Tíminn - 27.04.1944, Síða 4
172
TÍMIIVTV, fimmtMdagiim 27. apríl 1944
44. blað
Aðvörnn
til sauðfjár- og hrossaeígenda
Hérmeð skal brýnt fyrir hlutaðeigendum, að sauð-
kindur og hross mega ekki ganga laus á götum bæjarins
né annars staðar innan lögsagnarumdæmisins, nema
maður fylgi með til að gæta þeirra, eða séu í öruggri
vörzlu.
Brot gegn þessu varða sektum og ber eiganda auk
þess að greiða allan kostnað við handsömun og varðveizlu
skepnanna.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 25. apríl 1944.
AGNAR KOFOED-HANSEN.
Auglýsing
um benzínskömmftun
Samkvæmt auglýsingu atvinnu- og samgöngumála-
ráðuneytisins frá 12. apríl 1944 skulu benzínskömmtun-
armiðar, sem menn kunna að eiga ónotaða frá 1. skömmt-
unartímabili þessa árs, gilda áfram á 2. skömmtunartíma-
bil. Bifreiðaeigendur, sem rétt eiga á benzínskammti fyrir
1. tímabil, en hafa enn eigi sótt hann, skulu sækja hann
fyrir 1. maí næstkomandi, þar eð þá hefst nýtt skömmt-
unartímabil.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 25. apríl 1944
Ag-nar Kofoed-Hansen
Danmörk
eftir hernámið
Tvo fyrirlestra um þetta efni heldur
OLE KIILERICH, ritstjóri
í Tjarnarbíó sunnudaginn 30. apríl kl. 1,30 e. h.
Öllum heimill aðgangur. Aðgöngumiðar á kr. 3 í bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar.
NORRÆNAFÉLAGIÐ FRIE DANSKE I ÍSLAND .
DET DANSKE SELSKAB FORENINGEN DANNEBROG
. DANSK-ÍSLENZKA FÉLAGIÐ
I lt It lMHl
Afli Reykjavíkurbáta.
Aðeins þrir bátar hafa gengið frá
Reykjavík í vetur með línu, þeir „Jón
Þorláksson," „Ásgeir“ og „Austri".
Munu þeir tveir fyrrtöldu vera búnir
að fá á 9. hundrað skippund af fiski,
en „Austri" nokkru minna, enda varð
hann fyrir áfalli í byrjun vertíðar. Sjö
bátar hafa gengið með tog og eru það
þeir „Ársæll“ (15 smál.), „Freyja" (71
smál.), „Gestur" (34 smál.), „Hermóð-
ur“ (39 smál.), „Maí“ (52 smál.),
„Skálafell" (53 smál.) og „Þorsteinn"
(61 smál.). Heldur hefir afli verið treg-
ur á togbátana. Yfirleitt er nú afla-
lítið víðast í verstöðvunum, en vertíð-
arafli er samt orðinn góður hjá mörg-
um.
Oddfellowreglan.
Þessi merki félagsskapur minnist nú
þessa dagana 125 ára afmælis síns.
Reglan er þekkt hér á landi, einkan-
lega fyrir brautryðjendastarf sitt og
stuðning við ýms mannúðarmál.
Hjónaband.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Margrét Kristjánsdóttir
og Baldvin Pálsson, eigandi „Pennans."
Benzínskammtur.
í ^þömmtun þeirri, sern fram fer á
benzíni fyrir tímabilið 1. maí til 1. sept.,
á skammturinn að aukast á flestar
venjulegar bifreiðir. Einnig eiga að
gilda áfram þeir miðar, sem menn
kunna að eiga eftir frá 1. skömmtunar-
tímabilinu. ,
Búfé.
Lögreglustjóri auglýsir aðvörun um
að hross og sauðfé megi ekki ganga
sjálfala innan lögsagnarumd. Reykja-
víkur. Ætti þetta einkum að vera til
athugunar fyrir menn, sem eiga sauð-
íé, því raunalegt er t. d„ þegar sauðfé
kemst í garða og eyðileggur máske á
„ skammri stund trjágróður, sem kostað
hefir mikla elju og umönnun að ann-
ast og er í þann veginn að verða til
hinnar mestu prýði og yndis, eins og
fagur trjágróður er jafnan þeim, sem
fegurð unna.
Elliheimilið.
Á Elliheimilinu Grund eru nú um 170
vistmenn, en fjöldi manns kemst ekki
þangað vegna húsnæðisleysis. í ráði
er nú að bæta úr þessu með því að
reisa stórhýsi í viðbót við fyrri bygg-
ingar. Er vel farið, að eldra fólkið fái
sín eigin heimili, því oft er eins og því
sé ofaukið meðal þeirra, sem enn eru
i blóma lífsins og í alls konar starfi
og stríði. En væri ekki meira vit i, að
reisa elliheimili í sveit eða a. m. k. þar,
sem nokkurt landrými er? Margt eldra
fólk myndi hafa unun af og geta gert
gagn við að hirða lítilsháttar garða
eða grasbletti, og jafnvel eitthvað af
skepnum, t. d. alifugla. Þetta myndi
oft gera gamla fólkinu lífið ánægju-
legra.
„Bjallan".
Blað nokkurra Samvinnuskólanem-
enda, er Bjallan heitir, hefir borizt
Tímanum. Er það snoturt að frágangi
og skrifa í það ýmsir höfundar, þar
á meðal er viðtal við Einar Árnason,
form. Sambands ísl. samvinnufélaga.
Landsnefnd lýðveldís-
kosninganna . . .
(Framh. af l.,síðu)
— Hver kjörseðill er, að efni
til, í tvennu lagi. Á efri hluta
hans er tillaga um niðurfelling
Sambandslagasamningsins, en
neðri hlutinn er um lýðveldis-
stjórnarskrána. Það eru því
tvær tillögur, sem greiða þarf
um atkvæði, en það gerist með
því að merkja kross framan við
þær, með venjulegum hætti.
Krossarnir eiga því að verða
tveir á hverjum seðli, ella er at-
kvæðagreiðslunni ekki gerð full
skil. Það er ástæða til að vekja
athygli á þessu, þar sem kjör-
seðlarnir eru nokkuð óvenju-
legir og því nokkur hætta á, að
kjósendum geti sést yfir það, að
greiða þarf atkvæði um tvær til-
lögur á einum og sama kjör-
seðli,
Að lokum vil ég bæta því við,
að þess á að mega vænta, að all-
ir íslenzkir kjósendur fylki sér
af einhug um þessa atkvæða-
greiðslu. Ekkert má hindra þá
frá þátttöku, nema alveg óvið-
ráðanleg forföll. Verum þess
minnugir, að þátttaka okkar í
atkvæðagreiðslunni og úrslit
hennar, verður í augum stór-
þjóðanna, lóð á metaskálarnar
um frelsi okkar og sjálfstæði í
framtíðinni. Ef við ætlumst til
þess, að þær virði og meti frelsi
okkar og sjálfstæði, þá verðum
við sjálfir að sýna það að þjóðin
standi sem einn maður um
stofnun lýðveldisins. Enginn má
þvi skerast úr leik um að gera
r r ■n,
*t) .J
Danski rithöfundurinn, Peter
Freuchen, slapp í vor úr greip-
um Þjóðverja og komst til Sví-
þjóðar.Hér á landi er hann kunn
astur fyrir bók sína, „Æska mín
í Grænlandi“. Eftir hann er og
saga Knúts Rasmussens, er nú
birtist í Tímanum.
Maður drukknar
Er „Goðafoss“ var á leið til
útlánda í síðustu ferð sinni, tók
út einn skipverja, Ólaf Guð-
mundsson bátsmann, og
drukknaði hann.
Ólafur var Reykvíkingur, til
heimilis að Þverveg 40 i Skerja-
firði, hálf-fertugur að- aldri.
Hann var kvongaður og lætur
eftir sig konu og þrjú börn.
Helgi Elíasson skip-
aður fræðslumála-
stjóri
Jakob Kristinsson fræðslu-
málastjóri sótti nýlega um lausn
frá embætti sínu, sökum heilsu-
brests, og hefir kennslumálaráð-
herra nú veitt honum lausn frá
1. ágúst næstkomandi að telja.
Jafnframt hefir Helgi Elíasson
skrifstofustjóri verið skipaður
fræðslumálastjóri frá sama
tíma að telja.
Sigurður Einarsson dósent
hefir verið skipaður skrifstofu-
stjóri fræðslumála í stað Helga,
en lyonum hefir að sjálfs ósk
verið veitt lausn frá dósents-
embætti frá 1. maí að telja.
Ver k a manna iélagið
„Dagsbrán^ kaupír
landsspildu í Bisk-
upstungum
Verkamannafélagið Dagsbrún
hefir fest kaup á þrjátíu hekt-
örum lands úr jörðinni Stóra-
Fljót í Biskupstungum. Er spilda
þessi ræktargott gróðurlendi, og
mun félagsstjórnin og aðrir,
sem beitt hafa sér fyrir land-
kaupum þessum, hugsa sér að
þarna verði, er fram líða stund-
ir, reist hvíldar- og hressingar-
heimili fyrir reykvíska verka-
menn.
Dagsbrúnarfundur lagði ný-
lega samþykki sitt á kaupin og
fól stjórninni að skipa nefnd
manna til þess að vinna að fjár-
öflun til framkvæmda eystra.
Innrásin á mcgín-
landið
(Framh. af 1. síðu)
ýmsar innanlandstilskipanir,
samgöngubönn og margskonar
íhlutun hernaðaryfirvaldanna
á þeim svæðum, er bezt liggja
við til innrásar á meginlandið.
Það er því ekki að undra, þó
gamla spurningin: Hvenær
verður innrásin? leiti af aukn-
um þunga á hugi stríðandi og
líðandi, vonandi o$ bíðandi,
uggandi og kvíðandi fólks í hin-
um hrjáða heimi.
hlut okkar þar sem beztan. Það
er þess vegna þjóðarnauðsyn að
þátttakan í atkvæðagreiðslunni
verði meiri og glæsilegri en
nokkur dæmi eru til. Hitt dreg
ég ekki í efa, að þeir, sem að
kjörborðinu ganga, munu alir
greiða atkvæði á þann hátt,
sem til sæmdar og sigurs leiðir.
Á viðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
sem vonandi er senn á enda, að
verkalýðsfélögin hafa meira.
beitt sér í neikvæða átt en já-
kvæða hér á landi, þótt að þar
séu ýmsar góðar undantekning-
ar, svo sem á ísafirði og víðar.
Það ber að fagna hverri til-
raun, sem verkalýðsfélögin
reyna til umbóta fyrir verka-
menn. Og eitt af umbótamálun-
um, sem bíða þeirra, er að koma
upp hressingar- og hvíldarstöð-
um í sveit, þar sem verkamenn
og fjölskyldur þeirra geta dval-
ið um tíma að sumrinu.
„Njóta sannmælis“.
Morgunblaðið var að kveina i
gær í aðalleiðara sínum yfir því
að Framsóknarmenn vilji ekki
láta andstæðingana njóta sann-
mælis. Á blaðið þar við, að Ing-
ólfur á Hellu, Eiríkur Einarsson,
Jón á Reynistað og aðrir slíkir
hafa ekki verið viðurkenndir
sem jafningjar Sveinbjarnar,
Hermanns og annarra, sem
mest hafa unniö að því að koma
afurðasölu bænda í betra horf.
Ef einhverjir Sjálfstæðismenn
skyldu gera eitthvað til gagns
bændastéttinni, þá er auðvitað
sjálfsagt að láta þá njóta sann-
mælis.
IJr bréfi.
Merkur maður skrifar Tíman-
um m. a.:----„Hér á landi eiga
að vera þrír flokkar. Afætu-
flokkur, sem í séu gróðabralls-
menn, iðjuleysingjar og eyðslu-
belgir. Öreigaflokkur, sem í sé
byltingasinnaður lýður og
menn, sem alltaf eru óánægðir
með allt og alla, og ýmsir ráð-
leysingjar. Og svo í þriðja
flokknum eiga að vera frjáls-
lyndir umbótamenn, sem eru
sjálfstæðir í hugsun og verki,
en þó félagshyggjumenn —
menn, sem vilja í alvöru að
sem flestir séu efnalega sjálf-
stæðir og sjálfbjarga. Sá flokk-
ur á að vera lang fjölmennast-
ur og ráða mestu í landinu.
Það eiga að vera nógir menn til
í slíkan flokk, og það er þjóðar-
nauðsyn að þeir sameinist í
eina sterka fylkingu, hvar sem
þeir kunna að telja sig í flokki
nú sem stendur". — — Þessi
umsögn er mjög athyglisverð.
Hugleiöingar um
stjórnskipun ríkísins
(Framh. af 2. slðu)
fyrir betri afgreiðslu málanna.
Mikilvægustu málin, fjármálin,
hafa þegar verið tekin til af-
greiðslu í einni málstofu. Virð-
ist þá ástæðulaust að ræða þau
málefni, sem minna er um vert,
í tveim. Vafalaust er, ef mál-
stofan væri aðeins ein, mundi
það mjög greiða fyrir þingstörf-
unum og þá stytta þingtímann.
Hins vegár virðist geta komið
til mála að hafa tvær máls-
stofur, en þá ætti skipun þeirra
að vera raunverulega breytileg
og störf hvorrar deildar afmörk-
uð gagnvart hinni. Ef að slíku
ráði yrði horfið, sýnist ráðlegt
að viðhafa kjörmannakjör til
efri deildar og láta t. d. væntan-
leg fjórðungsþing velja þing-
menn efri deildar.
VII.
Til þess að ganga frá gagn-
gerðri endurskoðun hinna nýju
stjórnskipunarlaga, væri æski-
legt að setja á fót þjóðfund, eða
sérstakt stjórnlagaþing. Það ætti
að tryggja það, að mál þetta
yrði rætt út af fyrir sig og án
hrossakaupa út á við. Málið er
svo mikilvægt, að það er þess
-o-o—GAMLA BÍÓiA
■
Vaskír drengir
(Gallant Sons)
JACKIE COOPER,
BONTIA GRANVILLE,
GENE REYNOLDS.
Sýnd kl. 7 og 9.
Fálkimi
og óþekkti morðinginn
(The Falcon Strikes Back)
TOM CONWAY.
Sýnd kl. 3 og 5.
Börn innan 12 ára fá
ekki aðgang.
•o——»—nýja e;ó —q—
Skæruhermenn
(Chetniks, The Fighting
Guerrillas).
Kvikmynd um hetjudáðir
júgóslavnesku hetjunnar
DARJA MIHAILOVITCH.
Aðalhlutverk:
ANNA STEN og
PHILIP DORN.
Bönnuff börnum yngri en
14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
---------— -----------------------------------------• i
Hjartans þökk fyrir hlýjar kveðjur, gjafir og aðra
vinsemd, er mér var sýnd á 95 ára afmœlinu.
ÞORBJÖRG PÁLSDÓTTIR,
Bjarnastöðum.
Stúlkur
vantar í eldhiisið á Kleppsspítalanum,
sem fyrst. — Upplýsingar í skrifstofu
ríkisspítalanna, Fiskifélagslnisinu.
Starfsstúlkur
siarismenn
vantar á Kleppsspítalann 1. maí n. k.
Tilkynning
tíl ínnllytjenda
Ýmsar vörutegundir, sem ísland flytur inn frá Banda-
ríkjum Norður Ameríku, eru nú háðar ákveðnum út-
flutningskvóta þar. Kvótarnir eru ýmist bundnir við
magn eða verðmæti og gilda fyrir einn ársfjórðung, hálft
ár, eða eitt ár í einu.
Sendiskrifstofa íslands í Washington mælir með beiðn-
um um útflutningsleyfi innan þeirra takmarka, sem kvót-
inn segir til um. Framvegis mun sendiráðsskrifstofan
ekki geta mælt með slíkum beiðnum nema fyrir liggi
jafnframt yfirlýsing um að gjaldeyris- og innflutnings-
leyfi sé fyrir hendi fyrir tilsvarandi upphæð eða vöru-
magni.
Þegar innflytjendur gera kaup á vörum í Bandaríkj-
unum þurfa þeir því að tilkynna viðskiptafirmum sínum
þar leyfisnúmer og upphæð eða vörumagn, er leyfið gild-
ir fyrir, til þess að viðskiptafirmun geti látið þessar upp-
lýsingar fylgja umsóknum um framleiðslu- og útflutn-
ingsleyfi, til skrifstofu sendiráðsins. Mun verða gengið
ríkt eftir að þessum fyrirmælum verði fylgt.
Ef innflyténdur flytja inn vörur á leyfi annarra aðila
þarf framsal þeirra leyfa að hafa farið fram áður en
framangreindar uplýsingar eru tilkynntar hinum er-
lendu aðilum, og geta þá innflyténdur, þar sem þess ger-
izt þörf, fengið framseld leyfi sameinuð í eitt.
26. apríl 1944.
Vidskiptaráðið.
vert, að tryggt sé, að það eitt
sé rætt og afgreitt án tillits til
annara þjóðmála. Næsta Alþingi
þarf því, að setja lög um skipun
þjóðfundar. Stjórnarskrá þjóð-
fundarins ætti síðan að fá stað-
festingu með sérstakri þjóðarat-
kvæðagreiðslu.
Seyðisfirði, 8 .apríl 1944.
Hjálmar Vilhjálmsson.
Ef ruða brotnar
hjá yffur, þurfiff þér affeins aff
hringja í síma 4160.
Höfum rúðugler af öllum gerff-
um og menn til aff annast
ísetningu.
P
VERZL. BRYNJA
Sími 4160.