Tíminn - 27.06.1944, Blaðsíða 4
256
r
64. blað
Nýr soguprófessor
og lacdsbókavorður
Dr. Þorkell Jóhannesson
landsbókavörður hefir nú verið
skipaður prófessor í sögu við
Háskóla íslands frá 1. sept. n. k.
að telja. Frá sama tíma hefir
Finnur Sigmundsson magister,
1. bókavörður við Landsbóka-
safnið, verið skipaður lands-
bókavörður.
Dr. Þorkell Jóhannesson lauk
stúdentsprófi árið 1922 og meist-
araprófi í íslenzkum fræðum við
Háskóla íslands árið 1927. Dokt-
orsritgerð hans, sem fjallaði um
frjálst verkafólk á íslandi frá
öndverðu og fram um miðja 16.
öld, kom út á þýzku árið 1933.
Dr. Þorkell hefir verið 1. bóka-
vörður við Landsbókasafn ís-
lands síðan 1932 og landsbóka-
vörður síðan 1. júní 1943.
Finnur Sigmundsson lauk
magisterprófi í íslenzkum fræð-
um við Háskóla íslands árið 1928.
Hann hefir verið starfsmaður við
Landsbókasafnið síðan 1929, og
1. bókavörður síðan 1. júnf 1943.
Smíði 184smál.skips
lokið í Hafnarfirði
Stærsta skipi, sem smíðað hef-
ir verið á íslandi, var hleypt af
stokkunum í skipasmíðastöðinni
„Dröfn“ 1 Hafnarflrði 23. þ. m.
Skip þetta, sem gefið hefir
verið nafnið Edda og er eign
Einars Þorgilssonar & Co., er 184
smál. bruttó með 378 hestafla
dieselvél. Byrðingur og hvalbak-
ur er úr eik og yfirbygging úr
stáli. Það er útbúið flestum ný-
tízku siglingatækjum. Yfirmað-
ur við bygginguna var Sigurjón
Einarsson, en Hafliði Hafliðason
gerði teikninguna.
Á skipinu verður 20 manna
áhöfn, en skipstjóri er Sigurð-
ur Andrésson. Fer skipið á síld-
veiðar nú eftir mánaðamótin.
Brezki sendiherrann
varð fyrstur
Þann 23. þ. m. gekk brezki
sendiherrann, Gerald Shephard,
á fund forseta íslands, afhenti
honum embættisskilríki sín.
Varð Shepherd því fyrsti sendi-
herrann, sem afhenti forseta
embættisskilríki eítir að ísland
varð lýðveldi.
Vegleg gjöi til
Alpingís
Þann 16. júní síðastl. gekk
stjórn í. S. í. á fund forseta Al-
þingis og afhenti þeim fagran
og vandaðan fundarhamar að
gjöf frá í. S. í. til Alþingis.
Hamarinn er gerður af Ríkarði
Jónssyni. Hann, var notaður í
fyrsta sinn á Lögbergshátíðinni
17. júní.
112 stiídentar út-
skrifaðir í vor
(Framh. af 1. si8u)
Við árspróf hlaut Magnús
ust voru fleiri en nokkru sinni
áður, 67. Voru 42 úr máladeild,
þar af þrír utan skóla. 27 fengu
fyrstu einkunn, 14 aðra og 1
þriðju einkunn. Þrjár stúlkur
urðu efstar í máladeild: Sigríð-
ur Magnúsdóttir, fékk ein ágæt-
iseinkunn, 9,19, Sigríður Helga-
dóttir 8,70 og Sigfríður Bjarna-
"dóttir 8,59.
Úr stærðfræðideild útskrifuð-
ust 23 skólanemendur og tveir
utanskóla. 17 fengu fyrstu eink-
ynn og 8 aðra. Hæstur varð
Tryggvi Þorsteinsson með 8,55.
annar Andrés Andrésson 8,39 og
þriðji Haraldur Sveinsson 8,38.
113 gengu undir inntökupróf
í menntaskólann, en af þeim
féllu 11. 28 hlutu 8,00 eða hærri
einkunn og verða teknir í skól-
ann.
TÍMM, þriðjMdaginn 27. jnní 1944
(ÍR BÆIVUM
Sögusýningin,
sem þjóðhátíðarnefnd hefir undirbú-
ið, var opnuö 20 þ. m. Er hún til húsa
í Menntaskólanum. Sýningunni er ætl-
að að sýna frelsis- og menningarbar-
áttu íslendinga, og margir þekktustu
málararnir tóku sér fyrir hendur að
gera myndir af merkustu atburðum
íslandssögunnar, Hefir sú tilraun tek-
izt misjafnlega. 'Sýningin er í 7 deild-
um og er á margan hátt hin fróðleg-
asta. Hfir aðsókn að henni verið sæmi-
leg og verðskuldar hún það lika full-
komlega.
Þjóðhátíðarsýning
myndlistarmanna var opnuð i Llst-
sýningarskálanum föstudaginn 10. þ.
m. Eru þar til sýnis verk eftir 28 mynd-
llstarmenn, málverk, höggmyndir,
vatnslitarmyndir og teikningar.
Matstofa
Náttúrulækningafélags íslands tók
tíl starfa síðastl. fimmtudag á Skál-
holtsstíg 7. Mikil aðsókn hefir verið
að matstofunni, en vegna takmarkaðra
húsakynna, verður aðeins hægt að
selja félagsmönnum N.L.P.Í. fæði og
ekki nema tvær máltíðir á dag. Siðar
verður reynt að selja lausar máltíðir.
Til hádegisverðar verða aðallega græn-
metis- og ávaxtasúpur og grautar og
síðan einhver grænmetisréttur með
kartöflum, en stundum kjöt eða fiskur.
Til kvöldverðar verður krúska (úr
muldum höfrum, hveitiklíð, rúsínum
og vatni) með mjólk, alls konar græn-
meti, salöt, síld, harðfiskur, söl, lýsi
og grasamjólk. Matstofan á að verða
eins konar prófsteinn á kenningar
Náttúrulækningafélagsins. — Fram-
kvæmdastjóri hennar er Björn Guð-
mundsson, en forstöðukona, Dagbjört
Jónsdóttir, fyrrum húsmæðrakennari.
Gjafir.
Þann 17. júní bárust barnaspítala-
sjóði „Hringsins" eftirtaldar stórgjafir:
Frá Othar Ellingsen fyrir hönd O.
Ellingsen h.f. 25 þúsund krónur. Hið
íslenzka steinoliufélag gaf 5000 krónur
og P. L. Mogensen lyfsali gaf 1000 kr.
Stjórn „Hringsins" færir gefndum hin-
ar beztu þakkir íyrlr þessa miklu rausn.
Siiltusykur.
Veitt eru 3 kg. af sultusykri út á
stofnauka nr. 4 af núgildandi matvæla-
seðlum. Stofnauki þessi er genginn í
gildi og gildir til 1. ágúst næstkomandi.
Dregið
hefir verið hjá sýslumanni Rangæ-
inga í happdrætti Byggingarsjóðs U.
M. F. Njáls 1 Vestur-Landeyjum. Vinn-
ingurinn, 7 vetra gæðingur, kom á
nr. 1272. Skal hans vitjað til Valdimars
á Álfhólum.
Samkoma F. U. F.
vestan Rangár
Félag ungra Framsóknar-
manna vestan Rangár í Rang-
árvallasýslu heldur skemmti-
samkomu að Þjórsártúni sunnu-
daginn 16. júlí næstkomandi.
Þar verða ræðuhöld, dans og
ýms fleiri skemmtiatriði.
Dagskráin verður auglýstx
síðar.
Magnússon í 5 bekk B fullnaðar-
einkunina 9,55. Á vorprófi fékk
hann 9,74. Er þetta hið ágætasta
námsafrek.
Menntaskólanum á Akureyri
var sagt upp 14. júní. Alls gengu
429 nemendur undir próf. Gagn-
fræðapróf tóku 92, og hlaut
hæsta einkunn Sigrún Árna-
dóttir frá Vopnafirði, 7,10
(hæsta einkunn, sem gefin er,
er 8).
45 stúdentar útskrifuðust 30
úr máladeild, 15 úr stærðfræði-
deild. Af máladeildarstúdentum
hlutu 25 fyrstu einkum og varð
hæstur með 7,40 Páll Árdal frá
Siglufirði. Af stærðfræðideildar-
stúdentum náðu 9 fyrstu eink-
unn og varð hæstur Guttormur
Þormar frá Laufásl við Eyja-
fjörð með 7,21.
Erlent yfírlft.
/(Framh. af 1. síðu)
Þjóðverjar eru að yfirgefa Liv-
erno.
Bandaríkjamenn hafa tekið
Saipaney, sem er skammt frá
Marianaeyjum. Stórum japönsk-
um flota var stökkt þaðan eftir
að hann hafði orðið fyrir miklu
tjóni.
Dregið hefir úr svifsprengju-
árásum Þjóðverja á London
seinustu daga. Bandamenn hafa
gert harðar loftárásir á þýzkar
borgir, m. a. Berlín, jafnhliða
flugsókn sinni á innrásarsvæð-
inu.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
kosningunni, og þessi blettur
verður að skrifast að miklu leyti
á reikning forseta sameinaðs
þings, ef hann lætur framan-
greindri frásögn ómótmælt.
Hvernig hefði t. d. farið, ef
kjósendur hefðu gert mikið að
því í þjóðaratkvæðagreiðslunni
að skila auðum seðlum. Værum
við þá orðin lýðveldi eða værum
við þá búnir að fá viðurkenn-
ingu annárra þjóða? Þetta mætti
forseti sameinaðs þings og aðrir
þeir hugleiða, sem gengust fyrir
auðu seðlunum á Lögbergi.
RÆKTUNINNI MÁ EKKI
GLEYMA.
Aðkomumaður í bænum skrif-
ar: Forustugrein Morgunblaðs-
ins síðastl. föstudag ber yfir-
skriftina: Raforka og skip eru
öfl framtíðarinnar. í greininni
er síðan rakið, að þetta tvennt
sé undirstaðan að velgengni ís-
lendinga á komandi árum. Skal
því síður en svo andmælt, sem
þar er sagt raforku og nýjum
skipum til hróss, en hins vegar
verður ekki hjá því komizt að
minna á eitt afliff enn, sem ekki
er þýðingarminna en þessi tvö,
og það er aukin og bætt ræktun
landsins. Því aflinu má ekki
gleyma né vanrækja það. Þessi
þrenning, raforkan, skipastóll-
inn og ræktunin, eiga að haldast
í hendur og verða sameiginleg
lyftistöng þjóðarinnar á kom-
andi árum.
Skyldu ritstjórar Mbl. hafa
gleymt að minnast á ræktunina
af þekkingarleysi eða greindar-
skorti eða birtist hér enn óvilj-
inn til landbúnaðarins, sem
löngum hefir verið höfuðein-
kennið á blaði þeirra?
Mtimmgarorð
(Framh. af 3. síðu)
leggja á móti einni vökunótt
móðurinnar yfir deyjandi barni
sínu.
Stundum ná engin orð yfir
það, hvað gerir það að verkum,
að einn samferðamannanna
skilur meira eftir í minningun-
um heldur en annar. Svo er það
einnig hér. Sumt verður að les-
ast milli línanna. Þannig mun
saga Stelnunnar hafa ritazt í
minningum kunningja hennar,
vina og ættingja,- Þó- er það
víst, að hennar prýðilegu gáfur
og skilningur hennar á kjörum
og tilfininngum annarra munu
án efa hafa aflað henni svo
margra vina. En sér í lagi var
eitthvað það við hana, sem gerði
kynningu og návist hennar svo
þægilega, aðlaðandi og' minnis-
stæða. Það er einmitt það, sem
ekki er hægt að tjá með orðum.
Framrétt hjálparhönd hennar,
sem ekki gat vitað lítið barn ó-
stutt milli húsa né hjálparvana
konu án aðstoðar, hefir ásamt
mörgu öðru svipaðs eðlis, skil-
ið eftir sig þau spor, er seint
mást.
Leifur Eiríksson.
Nýtt veitingahús
(Framh. af 1. síðu)
setið þar að borðum i einu, og
dansgólf er þar mjög rúmgott,
ef svo ber undir.
Úti fyrir hefir enn lítt verið
lagað til, en það er 1 ráði að
gera fallegan skrúðgarð um-
hverfis húsið, og verður þá mjög
hlýlegt heim að líta. Bifreiðatorg
verður nokkrum metrum neðar,
við sjálf vegamótin.
Skammt utan við Ferstiklu er
skógivaxin Saurbæjarhlíðin og
góð tjaldstæði víða. En þaðan
er aftur stutt 1 Vatnaskóg. Er
þarna fagurt og skemmtilegt
umhverfi.
í hinu nýja veitingahúsi verð-
ur seldur matur og allar aðrar
venjulegar veitingar. Er af-
greiðsla hin liprasta, að sögn
allra þeirra, sem þangað hafa
komið. Starfsstúlkur eru fimm,
en forstöðukona er Rannveig
Líndal húsmæðrakennslukona.
Það er ánægjulegt, að gott
veitingahús skuli hafa verið
reist við þessa fjölförnu leið.
Vel upphituð, þrifaleg og þægi-
leg vejltingahús, þar sem vegfar-
endur geta fengið góðan beina
við hóflegu verði, eru þjóðþrifa-
fyrirtæki, og fullkomín nauðsyn
í nútímaþjóðfélagi.
-o—o—o TJARNARBÍÓ o—>—o.
Á TÆPASTA
VAÐI.
(Background to Danger)
GEORGE RAFT,
BRENDA MARSHALL,
SIDNEY GREENSTREET
PETER LORRE.
Sýnd kl. 5—7—9.
Bönnuff yngri en 12 ára.
Fréttamynd.
Innrásin í Frakkland. Inn-
reiff Bandamanna í Róm,
Páfi ávarpar mannfjöld-
Kaupum háu verði taglhár og
faxhár, samanbundið eftir lit-
um.
Sendum greiðslu strax eftir
móttöku.
Burstagerðin
Laugaveg 96, Reykjavík.
PYRINATE
Nýtt amerískt meðal sem eyðir
lúsum og nitum þeirra á 15 mín-
útum, og er þó hættulaust, líka
fyrir börn.
30 gramma Glas kr. 5.00
Fílabeinskambar — 4.50
Sendum um land allt.
SEYÐISFJARÐAR APÓTEK.
Notuð frímerki
Kaupi notuð, íslenzk
frímerki.
Sendið mér frímerkin 1 A-
byrgðarbréfi, og fáið þér and-
virðið um hæl, þegar búið er að
athuga merkin.
Umboðsmenn óskast til að
kaupa frímerki í öllum sveitum
landsins.
J. Agnars,
FRÍMERKJAVERZLUN,
Hallveigarstíg 9. Reykjavík.
Spegflar
margar stærffir fyrirliggjandi.
Erl. Blandon&Co.hf.
Hamarshúsinu.
Sími 2877.
GÆFAN
fylgir trúlofunarhringunum
frá
SIGURÞÓR, HAFNARSTR. 4.
Sent mót póstkröfu.
Sendið nákvæmt mál.
Ávarp kanadiska
forsætisráðherrans
(Framh. af 1. síðu)
þetta tækifæri: Grettir Jóhann-
esson, ræðismaður íslands í
Winnipeg, og W. J. Líndal dóm-
ari. Blómsveigur var lagður að
minnisvarða Jóns Sigurðssonar
við þinghúsið i Winnipeg og 50
manna kór söng íslenzk lög við
það tækifæri.
Þá hefir dr. Richard BeckÆf-
hent forseta íslands kveðjur rík-
isstjórans í Norður-Dakota, fylk-
isstjórans í Manitoba og þriggja
íslendinga, sem sæti eiga á þingi
Manitobafylkis. Eru það S. Sig-
fússon, Paul Bardal og G. S.
Thorvaldsson.
Kveðja frá íslendingum
í Kaupmannahöfn.
Heillaóskir halda enn áfram
að berast frá íslendingum og fs-
landsvinum erlendis í tilefni af
lýðveldisstofnuninni. M. a. hef-
ir borizt heillaósk frá fundi fs-
lendinga í Kaupmannahöfn, sem
haldinn var 17. júní.
Þá hafa borizt heillaóska-
skeyti frá Christmas Möller og
frú hans.
.>.——0—0— nýja rió——. i
Rómantísk ást
Dans- og söngvamynd.
.
Aðalhlutverk:
FRED ASTAIRE,
RITA HAYWORTH,
ADOLPHE MENJOUí
XAVIER CUGAT
og hljómsveit hans.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
heimskuim skáldsaga eftir Anthouy
Hope, er komiu út. Bókin er afar spcnn-
andi og skenuntileg.
»—— GAMLA BÍÓ—>—o—
| Pétur mfkli
Rússnesk stórmynd.
SIMONOV.
TARASSOVA.
Sýnd kl. 7 og 9.
Gullæði.
CHARLIE RUGGLES.
ELLEN DREW.
JOSEPH SCHILDCRAUT.
Sýnd kl. 3 og 5.
Börn innan 12 ára fá ekki
aðgang.
. O — O —0 — — 0 — . — 0 —. — . —
Vátryggíng
Þeir, sem óska að bjóða í vátryggingu á vörum, sem við kom-
um til með að flytja inn frá Ameríku, sendi tllboð sín fyrir 15.
júlí n. k.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði, sem er, eða hafna
öllum.
Samband veínaðarvöruinnHytjenda
Póstliólf 48S.
vor verða lokaðar frá 10. tll 24. júlí næst-
komandi vegna sumarleyfa. — Viðskipta-
mönnum vorum er hérmeð bent á að
birgja sig nægilega upp í tæka tíð með
vörur þær, sem tóbakscinkasalan selur,
svo jseir hurfi eigi að verða fyrir ó|»æg-
indum af lokuninni.
T óbakseinkasala
ríkisins.
Raítækjavinnustoían Selíossi
framkvæmir allskonar rafvlrkjastörf.
Vfnir Tímans
Útvegið sem flestir ykkar einn
áskrifanda að Tímanum og lát-
ið afgreiðsluna vita um það sem
fyrst.
Fylgízt med
Allir, sem íylgjast vilja með
almennum málum, verða að lesa
Timann.
Gerist áskrifendur, séuð þið
það ekki ennþá. Simi 2323.