Tíminn - 11.08.1944, Page 4

Tíminn - 11.08.1944, Page 4
308 TtMEyN, föstudagiim 11. ágást 1944 77. blað tÍR BÆNUM Leiffrétting. í siðasta tölublaði Tímans varð leið- inleg — en þó auðsæ — prentvilla í upphafi greinarinnar „Holl ráð til hús- mæðra." Þar segir, að í kalda rabar- barasaft skuli nota 3 kg. af benzó- súru natróni, en á að vera 3 grömm — þrjú grömm. Námskeið f frjálsum íþróttum. Glímufélagið Ármann hefir ráðið, að gangast fyrir byrjendanámskeiði í frjálsmn íþróttum. Munu æfingarnar fara fram á túnunum fyrir neðan há- skólann. Námskeiðið hefst 15. ágúst. Aðalkennari verður Stefán Kristjáns- son íþróttakennari, en auk þess munu ýmsir kunnir íþróttamenn Ármanns leiðbeina nemendunum. Mun kennslan fara fram á þriðjudögum og fimmtu- dögum klukkan 7%—9% síðdegis og á laugardögum klukkan 4—6. Hljómleikar Eggerts Stefánssonar. sem haldnir eru af tilefni þess, að hann er nú á förum vestur um haf til árs dvalar í Bandaríkjunum, eins og áður hefir verið greint frá hér í blað- inu, verða í Trípólíleikhúsinu sunnu- daginn 20. ágúst og hefjast klukkan 8,15. Lárus Pálsson leikari, Vilhjálmur Þ. Gíslason, Páll ísólfsson og Sigvaldi Káldalóns aðstoða söngvarann á þess- ari kveðjuskemmtun. Aðgöngumiða er hægt að panta hjá Sigríði Helgadóttur, Bókaverziun Sigfúsar Eymundssonar, Lárusi Blöndal og Helgafelii. Hjónaband. í gær voru gefin saman í hjónaband í Reykjavik af sr. Bjarna Jónssyni ung- frú Hulda Pálsdóttir og Þorfinnur Bjarnason, skrifstofustjóri í Stykkis- hólmi. Sambandi íslenzkra berklasjúklinga hafa nýlega borizt eftirtaldar gjafir: Prá skipshöfninni á Fjallfossi kr. 1325. Starfsmönnum Sagarinnar h.f. kr. 1010. Skipshöfninni á Þórólfi kr. 1110. Frið- jóni Jensson kr. 1000. N. N. (áh.) kr. 50, M.G.E. (áh.) kr. 100, Guðm. Péturssyni ms. Esju kr. 100 Har. Lárussyni o. fl. kr. 110, Áheit kr. 25, Áheit 20, Áheit frá gamalli konu kr 10, Safnað af S. Sör- ensen, Fáskrúðsfirði kr. 275, Safnað af Fr. Berndsen, Skagaströnd kr. 255, — Safnað af Þórði Einarrssyni kr. 170, Áheit frá S. kr. 10, Safnað af Jóninu Hermannsdóttur, Flatey kr. 765, Safn- að af Ragnheiði Jónsdóttiu, Dalvík kr. 700, Safnað af Ólafi Hermannssyni, Eskifirði kr. 1550, Frá Líknarfélaginu Einingu, N.-Múlasýslu kr. 300, Afh. af Kaupfélagi Skagstrendinga kr. 50, Áheit frá N. N. kr. 10 16.361 menn sóttu Sundhöllina í júlí. 16.361 manns sótti Sundhöllina í júlímánuði. Þar af voru 9.570 karlar, 1.633 drengir, 2.897 stúlkur og 2.261 kona. Er þetta allmiklu lægri tala sundhallargesta en undanfarna mán- uði, því að hina sumarmánuðina, jmaí og júní, sóttu Sundhöllina 22—23 þús. m'anns. Til samanburðar má geta þess, að í marz s.l. var tala sundhallargesta um 28 þús. manns. Þessi lágá tala sundhallargesta í júlímánuði er skilj- anleg, þegar tekið er tillit til þess, að í þessum mánuði standa sumarfrí sem hæst og þeir, sem úr bænum fara til sumardvalar úti um land, eru farnir í þessum mánuði. Sepdiherra Bandaríhj- anna . . . (Framh. af 1. siðu) auka á þau bönd einlægrar vin- áttu, sem hingað til hafa ein- kennt svo mjög samskipti landa okkar beggja. Myndi ég telja mér það mikið lán, ef ég gæti á ein- hvern hátt átt tækifæri til að vera til aðstoðar landi yðar og og landi mínu, þegar leysa verður úr ótal vandamál- um, sem allar þjóðir verða að horfast í augu við að stríðinu loknu, og aftur þarf að taka upp friðsamleg störf. Ég trúi því, og hygg að þar gæti eigi um of bjartsýni, að brátt muni þeir tímar hefjast, og að þeir verði til hagsælda og farsældar fyrir lýðveldið ísland.“ Forseti svaraði ræðu sendi- herra með þessum. orðum: „Mér er það mikil ánægja að veita viðtöku frá yður bréfi þvi frá hæstvirtum forseta Banda- ríkjanna, þar sem hann skipar yður sérstakan sendimann og ráðherra með stjórnarumboði hjá mér sem forseta lýðveldisins íslands. Ég met mikils þessa nýju stað- festingu á vináttu Bandaríkja-' þjóðarinnar á þessum merku tímamótum, er vér höfum end- urreist lýðveldi á íslandi. Sú vin- átta milli þjóða vorra, sem skapazt hefir og aukizt á síð- ustu árum, er öllum íslending- um mikið gleðiefni. För forseta (Framh. af 1. síðu) hann velkominn, en læknisfrúin á Breiðumýri afhenti honum blómvönd. Var síðan ekið til Húsavíkur, þar sem skátar stóðu heiðursvörð við samkomuhúsið, en Karl Kristjánsson oddviti á- varpaði forseta og bauð honum til kaffidrykkju í samkomuhús- inu, sem var fagurlega skreytt, meðal annars með fánum allra hreppa sýslunnar. Þar ávarpaði sýslumaður forseta, en hann þakkaði. Síðan fluttu ræður Karl Kristjánsson, Kári Sigurjónsson, Þórdís Ásgeirsdóttir, séra Frið- rik Friðriksson og Sigurður P. Björnsson. Einnig las sýslumað- ur ávarp frá sýslunefnd Norður- Þingeyinga. Frá samkomuhúsinu var haldið í kirkjuna og þar ávarpaði forseti mannfjöldann, er safnazt hafði saman, en kirkjukórinn söng. Á fimmtudagskvöldið hélt for- seti síðan aftur vestur á bóginn. Komu Sigurður Eggerz bæjarfó- geti á Akureyri, Steinn Steinsen bæjarstjóri og séra Friðrik Rafn- ar vígslubiskup til móts við hann á sýslumörkunum og fylgdu honum til Akureyrar. Daginn eftir sat hann hádegisveizlu í boði bæjarstjórnar Akureyrar og sýslunefndar Eyjafjarðarsýslu, ásamt 150 manns úr bænum og héraðinu. Þá ávarpaði bæjar- stjóri forsetann, en hann svar- aði. Síðar um daginn var fjöl- menn samkoma í Lystigarðinum. Voru þar ræðuhöld og söngur og var þar mikið fjölmenni. Þá sat forseti og boð Sigurðar Guð- mundssonar skólameistara. Um kvöldið var hann í boði hjá bæjarfógeta. Árdegis á laugardag lagði fbr- seti svo af stað frá Akureyri á varðskipinu Ægi * Safnaðist mik- ill mannfjöldi saman á bryggj- unni til þess að kveðja hann, og Lúðrasveit Akureyrar lék. Kom hann til Siglufjarðar síðdegis sama dag. Karlakórinn Vísir, undir stjórn Þormóðs Eyjólfs- sonar, fagnaði honum á bryggj- unni með söng. Guðmundur Hannesson bæjarfógeti flutti ræðu, forseti svaraði og að því loknu hyllti mannfjöldinn hann. Var þá haldið heim til bæjar- fógeta, en síðan sýndi bæjar- stjóri, bæjarstjórn og verk- smiðjustjórn honum síldarverk- smiðjurnar. Að því búnu bauð bæjarstjórn honum á Siglufjarð- arskarð, en um kvöldið bauð bæjarstjórn honum til kvöldverð Ferð Breiðfirð- ingfafélagfsins um Snæfellsnes Breiðfirðingafélagið efndi til skemmtiferðar upi ‘Snæfellsnes um verzlunarmannahelgina 5.— 7. ágúst. — Þátttakendur voru 109. Farið var frá Reykjavík eft- ir hádegi á laugardag í fimm langferðabifreiðum og ekið til Ólafsvíkur um kvöldið og gist þar. Á sunnudagsmorgun var ekið Ég get fullvissað yður um, að sú samvinna, sem íslenzka stjórnin hefir átt við yður þann tíma, sem liðinn er frá því, er þér komuð hingað, hefir verið mjög geðfelld. íslenzka stjórnin er þess albúin að gera það, sem í hennar valdi stendur, til þess að eiga einhig framvegis sem bezta samvinnu við yður og met- ur mikils þá hugsun yðar að yð- ur gefist tækifæri til að vera til aðstoðar þjóð minni og þjóð yð- ar við að mæta erfiðleikum þeim, sem allar þjóðir hljóta að mæta í nánustu framtíð. Ég vona einnig, að vér getum innan skamms litið bjartari tíma, og ég flyt yður beztu árn- aðaróskir til handa Bandaríkja- þjóðinni og forseta hennar, í þeirri von, að hildarleik Jieim, er Bandaríkjaþjóðin á nú í, muni brátt ljúka.“ Viðstaddur athöfnina var ut- anríkisráðherra Vilhjálmur Þór. Að athöfn lokinni bauð forseti til hádegisverðar, og voru þar, auk forsetahjónanna, utanríkis- ráðherra og frú, amerísku sendi- herrahjónin, sendiráðsritarar ameríska sendiráðsins og yfir- menn hers og flota Bandaríkj- anna hér á landi. ar í húsi Þormóðs Eyjólfssonar. Safnaðist mannfjöldi saman við húsið, og skátar hylltu forsetann með fánakveðju. Bæjarstjóri flutti ræðu, er forseti þakkaði og karlakórinn Vísir söng. — Klukkan 10 um kvöldið hélt for- seti áfram ferð sinni og kvaddi Vísir hann með söng á bryggju. Til Hólmavíkur kom forsetinn á sunnudag. Jóhann Salberg Guðmundsson sýslumaður og sýslunefndarmenn Strandasýslu tóku á móti honum og skátar stóðu heiðursvörð á bryggju. Var haldið heim til sýslumanns. Þar ávarpaði hann forseta, én hann þakkaði. Var síðan setzt að kaffidrykkju og flutti séra Jón Guðnason ræðu undir borðum. Áður en forseti steig aftur á skipsfjöl hylltu menn hann, en sýslumaður flutti honum kveðju- orð. Til ísafjarðar kom forseti ár- degis á mánudag. Skátar stóðu vörð á bryggju. Jóh. G. Ólafsson bæjarfógeti bauð hann velkom- inn, og var síðan gengið til húss Jónasar Tómassonar. Þar hyllti mannfjöldinn hann, en bæjar- fógetinn ávarpaði hinn tigna gest. Forseti svaraði og minnt- ist baráttu Jóns Sigurðssonar og fleiri vestfirzkra þjóðmála- skörunga. Sunnukórinn söng undir stjórn Jónasar Tómasson- ar. Síðan var ekið í sel gagn- •fræðaskólans í Tunguskógi og setzt þar að kaffidrykkju. Bæj- arstjóri ávarpaði þar forseta, en auk hans fluttu ræður séra Jónmundur Halldórsson, Ólafur Ólafsson skólastjóri og Hannibal Valdimarsson skólastjóri. Hall- dór Kristjánsson á Kirkjubóli flutti snjallt kvæði. Áður en forseti fór frá ísafirði var hon- um afhent að gjöf frá starfs- mönnum í skipasmíðastöð MarsilíusarBernharðssonar mál- verk af Rafnseyri eftir Jón Hróbjartsson. Á mánudagskvöldið kom for- seti til Patreksfjarðar. Jóhann Skaftason sýslumaður fagnaði honum á bryggju, en, skátar stóðu heiðursvörð. Forseti fór fyrst heifh til sýslumannshjón- anna, en þaðan var haldið til hins nýja sjúkrahúss, sem þar er í smíðum. Var þar mannfjöldi samankominn. Sýslumaður tók fyrst til máls, en síðan lagði for- seti'hornstein hússins. Síðan var aftur haldið heim til sýslu- manns, en eftir litla stund heim- sótti forseti aldraða frænku sína, Júlíönu Jónscjóttur, systur Björns heitins ráðherra. Um kvöldið hélt sýslunefndin boð, TJARNARBÍÓ PILTAGULL (The Strawberry Blonde) Amerískur sjónleikur frá aldamótaárunum. JAMES CAGNEY, OLIVIA DE HAVILLAND, RITA HAYWORTH. Sýnd kl. 5—7—9. -GAMLA BÍÓ* Orlof flugmaimsins („The Sky Is The Limit“) FRED ASTAIRE, JOAN LESLIE. Sýnd kl. 7 og 9. „Dr. Broadway“ MACDONALD CAREY, JEAN PHILLIPS. Sýnd kl. 5. Bönnuff yngrl en 16 ára. ► NÝJA Eíó* Listamaimalíf (Hello, Frisco, Hello) Skemmtileg músikmynd í eðlilegum litum. Aðalhluverk: ALICE FAYE, JOAN PAYNE, LYNN BARI, JACK OAKIE. Sýnd kl. 5, 7 og 0. PYRINATE Nýtt amerískt méðal sem eyðir lúsum og nitum þeirra á 15 mín- útum, og er þó hættulaust, líka fyrir börn. 30 gramma glás ..... kr. 5.00 Fílabeinskambar ....— 4.50 Sendum um land allt. SEYÐISFJARÐAR APÓTEK. og var þar margt manna saman komið. Sýslumaður stýrði hóf- inu, en auk hans fluttu ræður Friðþjófur Ó. Jóhannsson, séra Sigurður S. Haukdal, prófastur í Flatey og séra Einar Sturlaugs- son á Patreksfirði. Fylgdu gest- ir forseta til skips að loknu hóf- inu. Til Stykkishólms kom forseti á þriðjudag. Fjöldi fólks beið á bryggju, en skátar stóðu heið- ursvörð. Kristján Steingrímsson sýslumaður bauð forseta vel- kóminn, en hann svaraði. Síðar um daginn ávarpaði sýslumaður hann fyrir framan sýsluskrif- stofurnar að viðstöddu fjöl- menni, en forseti svaraði. Um kvöldið var setzt að veizluborði í barnaskólanum. Sýslumaður setti hófið, en ræður fluttu Kristján Bjartmar oddviti, Kristján Þorleifsson á Grund, séra Jósef Jónsson prófastur á Setbergi, séra Magnús Guð- mundsson í Ólafsvík og séra Sig- urður Lárusson í Stykkishólmi. Að lokum þakkaði forseti. Fjöldi fólks fylgdi forseta til skips, er hann hélt brott. Hvarvetna þar sem forseti fór um var allt fánum skreytt, og viðtökur allar voru í hvívetna eins innilegar og frekast gat orðið. Innilegar þakkir færum viff öllum þeim, sem sýndu okkur samúff og vinarhug viff andlát og jarffarför kon- unnar nrinnar, móður okkar og tengdamóður, Krlstjönu Björnsdóttur, fyrv. ljósmóffur. Fyrir mína hönd, barna minna og tengdadóttur. JÓHANN LÁRUSSON, Litlu-Þúfu. Útsöluverð á amerískum vindlingum má ekki vera hærra en hér segir: Lucky Strike 20 stk. pakkinn kr. 3,40 Old Gold 20 stk. pakkinn kr. 3,40 Raleigh 20 stk. pakkinn kr. 3,40 Camel 20 stk. pakkinn kr. 3,40 Pall Mall 20 stk. pakkinn kr. 4,00 Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarffar má útsöluverffiff vera 5% hærra vegna flutningskostnaffar. Tóbakseinkasala ríkísíns Bækur Hjartaásútgáhmnar: Dularfulla morffiff ............ Verff kr. 10,00 Skuggar fortíffarinnar ......... — — 13,00 Þegar klukkan sló tólf ......... — — 9,00 Spennandi og skemmtilegar skáldsögur, tilvalinn tómstunda- lestur. — Fást hjá bóksölum. Eignizt skemmtilegar bœkur, — eignizt bœkur Hjartaásútgáfunnar. (Jtsöluverðj á amerísku reyktóbaki má ekki vera hærra en hér segir: Sir Walter Raleigh 1 lbs. pappadós kr. 30,00 % lbs. kr. 15,00 1% oz. kr. 3,75 — — — sliced 1% oz. kr. 4,00 Edgeworth ready rubbed 1 lbs. blikkdós kr. 40,00 — — — 1 yz oz. pappadós kr. 4,00 Dills Bezt rubbed , i/2 lbs. blikkdós kr. 15,00 1% oz. pappadós kr. 3,50 Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarffar má útsöluverffiff vera 5% hærra vegna flutningskostnaffar. Tóbakseínkasala ríkisins að Mávahlíð og komið við á Fornu-Fró&á í leiðinni. Þaðan var gengið um Búlandshöfða, inn Eyrarsveit að Grafarnesi. 86 manns tóku þátt í þessari göngu. Munu aldrei fyrr svo margir hafa g'engið samtimis fyrir Bú- landshöfða. í Grafarnesi var höfð alllöng viðdvöl og m. a. fengnir bátar og farið út á Grundarfjörð. Bifreiðarnar höfðu snúið við suður yfir heiði með þá, sem eigi fóru í göngu- ferðina. Var svo ekið norður Kerlingarskarð, vestur yfir Ber- serkjahraun, um Hraunsfjörð og vestur í Grundarfjörð, þar sem fólkið beið. — Síðan var snúið við og ekið um kvöldið inn að Berserkjahrauni og tjald- að þar við hraunjaðarinn. Árla á mánudag var haldið til Stykkishólms og dvalist þar til hádegis. Á heimleið var gengið á Helgafell. Þar flutti leiðsögu- maður fararinnar, Kristján Hjaltason, kennari frá Fjarðar- horni í Helgafellssveit, snjallt erindi um staðinn og héraðið. Margir gengu á Helgafell í fyrsta sinn. Munu flestir hafa reynt að fylgja hinum gömlu fyrirmælum til þes's að eign- ast óskastund uppi á fellinu. — Frá Helgafelli var svo haldið til Reykjavíkur og komið þangað nokkrú eftir miðnætti á þriðju- dagsnótt. Ferð þessi gekk mjög að ósk- um. Veður var ágætt alla dag- ana. Rómaði ferðafólkið mjög hina miklu fegurð Snæfellsness og Breiðafjarðar. Helgi Hjörvar skrifstofustjóri og frú hans voru í ferðinni sem gestir Breiðfirðingafélagsins. Fararstjóri var Jóhannes Ól- afsson frá Sandi. Breiðfirðingafélagið biður blaðið að færa Snæfellingum þakkir fyrir góðar og alúðlegar móttökur í ferðinni. Oræiaierð Ferðafé- lags Akureyrar f „Degi“ 3. ágúst er svo sagt frá öræfaför, er Ferðafélag Ak- ureyrar gekkst fyrir 1 júlímán- uði: 8 júlí s. 1. var í fyrsta sinn ekið á bílum frá Svartárkoti í Bárðardal um Ódáðahraun til Dyngjufjalla. Þátttakendur voru 25 karlmenn og 1 stúlka. Farar- stjóri var Þorsteinn Þorsteins- son. Með í förinni var Páll Arason úr Reykjavík, á sínum eigin bíl. — Þann 10. júlí gekk Þorsteinn við 18. mann um Jónsskarð að Öskuvatni og til baka um Suð- urskörð og Dyngjufjalladal. Tel- ur Þorsteinn líkur til, að fært sé að aka suður um Dyngju- fjalladal, allt að Kistufelli (rétt norðan við Vatnajökul) og aust- ur að Jökulsá móts við Hvanna- lindir. Þá hefir Ferðafélagið unnið að vegabótum á Vatnahjallaveg- inum og ekið að Urðarvötnum. Er með þessu brautryðjenda- starfi mikið greitt fyrir umferð um hálendi landsins. Vandræðatungur (Framh. af 3. síðu) mér forðum. Guðjón var bezti klettamaður hér um langt skeið. Fórum við saman í mörg svelti og víða um kletta og höfðum mikið yndi af. — Er við komum inn í tungur og að sveltinu leizt okkur ekki á að reyn'a að fara ofan í það, því að bæði var það, að jörð var frosin og snjór á, og þá er maður aldrei eins öruggur um fótfestu og handfesti, jafn- vel þótt maður sé á góðum broddum. Við fórum því heim við svo búið, vitandi það, að þessar kindur myndu daga þarna uppi. Þetta sama haust vantaði mig á með lambi, sem ég bjóst við að gengi innarlega á fjöll- um. Það var komið fram á jóla- föstu, þegar ég fór inn í Vand- ræðatungur til að vita,.hvort ég fyndi ekki þessa á. Ég fékk Árna Bergsson á Svínafelli með mér, og er við komum inn í fremstu tupgu, þá eru kindurnar úr svelt- inu á beit þar. Við urðum mjög undrandi. En brátt kom í ljós, hvernig þessu var farið. Það hafði komið grimmdar norðan veður með mikilli snjókomu og lagt snjóskafl mikinn þarna I klettabeltin, án þess þó að fenna yfir kindurnar í skútanum. Er veðrinu slotaði hafa þær farið á kreik og getað klórað sig upp snjóskaflinn, þótt brattur væri, og komizt á þann hátt upp úr sveltinu.Við náðum kindunum í tungunni og fórum með þær niður á jökul og gátum rekið þær fram jökulinn, þvi að gengi var á honum og gjár allar fullar af snjó. Gátum við komið kind- unum fram að Viðborði um kvöldið. Hafa því tvisvar bjargazt kindur úr þessu svelti, þótt sitt með hvorum hætti væri. 1 Vinfir Tímans Útvegið sem flestir ykkar einn áskrifanda að Tímanum og lát- ið afgreiðsluna vita um það" sem fyrst. é

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.