Tíminn - 06.02.1945, Side 8
DAGSKRÁ er bezta íslenzha tímaritið um
'þjjóðfélafísmál.
Deir, sem viljja kynna sér þjjóðfélagsmál9 inn
lend ofi útlend, þurfa að lesa Dagskrá.
? AW1¥ÁIX« TÍMAHÍS V
Laad sólar- uppkomunnar > GAMLAR KUMDÍGJA. KONTR.
(Behind the Rising Sun) J. CARROL NAISH, MARGO, TOM NEAL. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Betty Davis, Marian Hopkins. Sýnd kl. 6,30 og 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára. Hver er maðuriim Sýnd kl. 5.
. . .... . . .
DÁÐIR VORU DRÝGÐAR Englasöngur (And the Angels Sings) ~
Saga Nólseyjar-Páls og fleiri afreksmanna. Amer. söngva- og gam- anmynd. ■ •
Fred MarMurray,
er m e r k bók og Dorothy Lamour, Betty Hutton.
skemmtileg. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
.... ..
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Álf héll
Sjónleikur í 5 þáttum eftir J. L. HEIBERG.
Sýning aimað kvöld kl. 8.
1 Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 í dag.
Ú R B Æ N U M
Erlenduirs
1. febrúar, fimmtudagur:
Sókn Rnssa í
A.-Þýzkalandi.
Austurvígstöðvarnar: Her Zu-
kovs sótti lengra fram í áttina
til Stettínar og Berlínar, en tók
þó enga þýðingarmikla staði.
Þeir unnu á í Austur-Prúss-
landi.
Vesturvígstöðvarnar: Sókn
Frakka í Elsass hélt áfram. Þjóð-
verjar héldu áfram að hörfa inn
í Siegfriedvirkjabeltið.
Luzon: Ný landganga Banda-
ríkjamanna rétt fyrir sunnan
Manilla tókst ágætlega.
Belgía: Jafnaðarmenn gengu
úr stjórn Pierlots, aðallega
vegna óánægju út af matvæla-
úthlutuninni. Stjórnin hefir
beðizt lausnar.
2. febrúar, föstudagur:
Dregnr úr sókn
Rússa.
Austurvígstöðvarnar: Þjóð-
verjar virðast hafa stöðvað í
bili framsókn Rússa í áttina til
Berlínar og Stettín. Mest er bar-
izt við Ktistrin austan Oder-
fljóts. Rússar færðu þó út yfir-
ráðasvæði í Brandenburg, Pom-
mern og Austur-Prússlandi.
Vesturvígstöðvarnar: Frakkar
tóku Colmar. Sókn i. og 3. am-
erísku herjanna hélt áfram og
eru þeir komnir inn í Siegfried-
virkjabeltið á 50 km. víglínu.
Miklar loftárásir á þýzkar
borgir.
Búlgaría: Leppstjórnin i Búl-
garíu hefir látið taka af lífi
þrjá fyrrv. ríkisráðsmenn og
dæma 24 fyrrv. ráðherra og 68
þingmenn til lífláts. Er þeim
gefið að sök að hafa verið
hlynntir samvinnu við Þjóð-
verja.
3. febrúar. laugardagur:
Stórkostleg loft-
úrás ú Berlín.
Austurvígstöðvarnar: Rússar
hafa unnið lítið eitt á í Brand-
enburg og Pommern. Þeir
sögðust vera komnir inn í út-
hverfi ^ Königsberg. Yfirleitt
benda fregnir til, að vörn Þjóð-
verja sé harðnandi.
Vesturvígstöðvarnar: Amer-
iskar flugvélar gerðu stórkost-
lega loftárás á Berlín. Skemmd-
ir urðu miklar og talið
er, að þúsundir flóttamanna, er
ekki komust í byrgi, hafi far-
izt. Hundruð þús. flóttamanna
eru nú sögð í Berlín. Miklar loft-
árásir voru gerðar á fleiri þýzk-
ar borgir. Brezkur her brauzt
austur yfir Maasfljót, rétt hjá
Nijmegen.
Luzon: Bandaríkjamönnum
varð mikið ágengi í sókninni til
Manilla. Þeir sækja bæði sunn-
an og norðan að borginni og áttu
eftir eina 4 km. að sunnan.
Dauðaslys
Um miðnætti í fyrrinótt varð
það slys á Hafnarfjarðarvegin-
um, skammt fyrir sunnan Eski-
hlíð, að brezkur flugmaður varð
fyrir íslenzkri fólksbifreið og
beið bana af.
Slysið vildi til með þeim hætti,
að þrír brezkir flugmenn gengu
suður Hafnarfjarðarveg, allir á
vinstra vegkanti. Kom þá á móti
þeim íslenzk fólksbifreið, sem
ók með 60—70 km. hraða. Þeg-
ar bifreiðin kemur að mönnun-
um sveigir hún að þeim, þar sem
þeir gengu á vegbrúninni og ek-
ur á þann þeirra, sem næst gekk
miðju vegarins og dró hann
með sér um 50 metra. Losnaði
maðurinn þar við bifreiðina, án
þess, að hún stanzaði og hefir
ekkert til hennar spurzt.
Flugmaðurinn, sem fyrir bif-
reiðinni varð, lézt í gærmorgun
vegna meiðsla. Rannsóknarlög-
reglan biður þá, er einhverjar
upplýsingar kynnu að geta gef-
ið, í sambandi við þetta slys,
að gefa sig fram.
Innlendur;
1. febrúar, fimmtudagur:
Barúttudagur
blndindlssam-
takanna.
Opnuð var bindindismála-
sýning í Reykjavík. Samband
bindindisfélaga í skólum gekkst
fyrir ræðuhöldum í skólunum
um bindindismál og einnig voru
haldnar ræður á kvölddagskrá
útvarpsins, á vegum sambands-
ins. Kennsla var látin falla nið-
ur eftir hádegi í skólum lands-
ins.
Vimíuheimili S. í. B. S. tók til
starfa að Reykjalundi. (Sjá
nánar um það 1 seinasta blaði).
Guðmundur Ágústsson vann
Skjaldarglímu Ármanns. (Sjá í
bæjarfréttum).
2. janúar, föstudagur:
Gottfredsen
dæmdur.
Hæstiréttur kvað upp dóm
yfir Andreas Gottfredsen fyrir
níðskrif um íslendinga í brezkt
blað. Var hann dæmdur í 7
mánaða fengelsi og missi borg-
aralegra réttinda. Ennfremur
var hann dæmdur til að greiða
allan málskostnað í undirrétti
og fyrir hæstarétti.
3. janúar, laugardagur:
Hækkun olíuverðs.
Stórkostleg hækkun gekk í
gildi á benzíni og olíum. Benzín
hækaði úr 60 aurum í 70 aura
lítri, hráolía hækkaði úr 370
krónum í 500 krónur smál. og
ljósaolía úr 350 krónum í 740
krónur smál. Verð þetta gildir
við afhendingu frá tank í
Reykjavík.
Afstaða fimm-
mennlnganna
(Framhald af 1. síðu)
að fimmhienningarnir dauðsæju
eftir þvi að vera ekki með í
stjórnarmynduninni, og væru
nú að leita að ráðum til þess að
komast innundir hjá stjórninni.
Þessari frásögn mótmælti Jón
ekki með einu orði. í tilefni af
því, sem þarna er haft eftir
Jóni, fann ég ástæðu til að taka
fram, og þurfti ekki til þess
neitt umboð, að það væri ekki
flugufótur fýVir þessum frétta-
burði hans, því afstaða okkar
fimmmenninganna til ríkis-
stjórnarinnar væri óbreytt og
að ekkert það hefði fram komið,
sem gæfi ástæðu til að iðrast
þeirrar ákvörðunar.
Eins og á þessu sést eru um-
mæli þau, sem Jón hefir eftir
þeim Ingólfi Jónssyni og Þor-
steini Þorsteinssyni, byggð á því,
að Jón hefir í viðtali við þá
rangfært í blekkingarskyni um-
mæli mín, eins og hann lika
gerir í umræddri grein í Morg-
unblaðinu. Hefir Jón séð sér hér
leik á borði, þar sem þeir Ing-
ólfur og Þorsteinn voru fjar-
staddir, þegar fyrrgreind orða-
skipti áttu sér stað.
Fullyrði ég, að það, sem ég
sagði um afstöðu okkar fimm-
menninganna við nefnt tæki-
færi, er í alla staði rétt, og skora
ég á Jón Pálmason að nafn-
greina þá af okkur, sem nú séu
farnir að iðrast aðgerða sinna
í þessu efni.“
Jón svarar þessu með alllangri
grein í Mbl. 4. þ. m., en í stað
þess að verða við þeirri áskorun
Péturs að nafngreina þá fimm-
menningana, sem eiga að vera
farnir að linast, fer hann aðal-
lega með blekkingar um Anda-
kllsárvirkjunina! Hefir þar með
fullkomlega sannazt, að Jón
hefir notað nöfn þeirra Ing-
ólfs og Þorsteins í blekkinga-
skyni og fyrri yfirlýsing Péturs
Ottesen stendur óhögguð.
Fisksöliiinúlin
(Framhald af 1. slöu) ___
öðru lagi, þegar hann loks hefst
handa, viðleitni forsætisráð-
herra til að hjálpa fjárplógs-
mönnum til að halda skipunum
áfram.
Stjórnarblöðin hafa einnig
skýrt frá því, að búið sé að
ganga frá samningunum um
leiguna á færeysku skipunum.
Enn hefir ekki verið sagt frá
leigumálunum, en sagt er að
þeir séu óhagstæðari en leigan,
sem einstök fisksölusamlög voru
búin að semja um.
Þar sem stjórnin virðist þann-
ig bera búin að fá umráð yfir
bæði brezku og færeysku skip-
unum, verður að krefjast þess,
að einn aðili fái umráð fyrir
öllum þessum skipum og ráð-
stafi þeim þannig, að engin
verstöð verði útundan, eins og
verið hefir með smærri ver-
stöðvarnar til þessa.
Þá verður enn að krefjast
þess, að stjórnin dragi ekki leng-
ur að setja skýr ákvæði um ráð-
stöfun verðjöfnunargjaldsins og
að það verði látið ná til togara-
fisksins. Með öðru móti verður
ekki tryggt að það komi að til-
ætluðum notum.
Búnaðarmúlasjóðiir
(Framhald af 1. síðu)
farið, að engin not verði af bún-
aðarmálasjóði, þar sem ráð-
herra getur ónýtt allar ákvarð-
anir búnaðarþings um, hvernig
fénu verði varið.
Tillaga þessi var til umræðu
í neðri deild í gær og var henni
m. a. harðlega andmælt af Pétri
Ottesen, er kvaðst illa þekkja
sjálstæðiskennd bænda, ef þeir
gerðu sér að góðu að vera þann-
ig sviptir umráðarétti yfir fé
sínu. Endalokin urðu samt þau,
að tillagan var samþykkt með
atkvæðum allra viðstaddra
stjórnarliða, en á móti greiddu
atkvæði Framsóknarmenn og
þeir fimmmenninganna, er sæti
eiga í neðri deild.
Með þessari atkvæðagreiðslu
hefir samtökum bænda verið
sýnd fullkomnasta ofbekdi og
lítilsvirðing, enda eru kommún-
istar höfundar þessarar tillögu.
Hafa þeir hér sem oftar notað
Jón Pálmason til að verða bænd-
um til tjóns og skapraunar og
mætti furðulegt teljast, ef hún-
vetnskir bændur minntust þess
ekki í næstu kosningum.
Stjórnarlíðið ætlar..
(Framhald af 1. síöu)
kvæðagreiðslu í efri deild í gær.
Var hún samþykkt með atkvæð-
um stjórnarsinna gegn atkvæð-
um Framsóknarmanna og Þor-
steins Þorsteinssonar.
Þannig er Jón Pálmason not-
aður í neðri deild til að „fleyga“
framfaramál landbúnaðarins og
stjórnarsinnar í efri deild síðan
látnir nota þessa „fleyga“ til að
koma málunum fyrir kattarnef.
Bændur verða að
samelnast.
Þessi framkoma stjórnarliðsins
í tveimur stærstu landbúnað-
ármálunum á þessu þingi, jarð-
ræktarlagamálinu og áburðar-
verksmiðjumálinu, sýna gleggzt,
að ,það er fastur ásetningur
þess að bregða fæti fyrir stærstu
framfaramál og þýðingarmestu
nýsköpun landbúnaðarins. Án
samþykkt jarðræktarlagafrv. er
engin von til þess, að hér tak-
ist á næstu árum að koma allri
heyöflun á véltækt land, eins og
þó er óhjákvæmileg nauðsyn, og
án starfrækslu áburðarverk-
smiðju hér vantar ræktunina
nægilegt öryggi til að byggja á.
Sú framkoma stjórnarliðsins, að
stöðva þessi stórmál, stafar
ýmist af fjandskap sumra,
er þar ráða mestu, ellegar
af því, að búið er’vað stefna
fjárhag ríkisins í slíkt óefni, að
aðrir stjórnarsinnar, er kynnu
að vilja veita þessum málum lið,
treystust ekki til þess áf þeirri
ástæðu.
Hér er vissulega ekki aðeins
um hagsmunamál bænda að
ræða, heldur einnig hagsmuna-
mál þjóðarinnár allrar, því að
framtíð hennar byggist mjög á
því, að landbúnaðurinn verði
sem blómlegastur. Þess vegna
verða bændur og aðrir þeir,
sem skilja þýðingu og nauðsyn
landbúnaðarins, að taka hér
höndum saman og fylkja svo vel
liði í næstu kosningum, að mál
þessi komizt fram að þeim
loknum, en fyrr verður þess vart
að vænta úr því sem komið er.
Og þetta verður því aðeins gert,
að bændur hætti að senda lið-
hlaupa á þing, eins og Jón
Pálmason, heldur fylki sér fast
um þann flokk, sem heill og ó-
óskiptur berzt fyrir málum
þeirra, Framsóknarflokkinn,
auki þannig áhrif hans á ^Al-
þingi og geri honum kleift að
koma umbótamálum þeirra
fram.
Skemmtisamkoma.
Næsta skemmtisamkoma Framsókn-
armanna í Reykjavík verður n. k.
föstudag, 9. febr. í Sýningaskálanum.
Ráðgert hafði verið að hafa samkomu
þessa 22. þ. m.,. en það verður ekki
hægt vegna sýningar Kjarvals. Verður
þetta eina samkoma Framsóknar-
manna í febrúar og byrjar hún eins
og venjulega með Framsóknarvist kl.
8,30 e. h.
Áríðandi er að Framsóknarmenn
panti sem allra fyrst aðgöngumiða í
síma 2323, því aðsókn mun verða mikil,
ekki síður en venjulega.
Guðmundur Ágústsson hlaut
Ármannsskjöldinn til eignar.
Síðastl. fimmtudagskvöld var skjald-
arglíma Ármanns háð í íþróttahúsi
Jóns Þorsteinssonar. Guðmundur
Ágústsson lagði alla keppinauta sína
að velli, hlaut því 9 vinninga og vann
skjöldinn í þriðja sinn í röð, og þar
með til fullrar eignar. Guðmundur
hlaut einnig fyrstu verðlaun fyrir feg-
urðarglimu. Einar Ingimundarson
(Vaka) hlaut 8 stig, Ólafur Sveins-
son (K.R.) 7, Andrés Sighvatsson
(Samhygð) 6, Friðrik Guðmundsson
(K.R.) 5. Ólafur Sveinsson og Sigurð-
ur Hallbjörnsson (Á) 3 stig hvor og
Guðmundur Benediktsson (Hvöt) og
Steingrímur Jóhannesson (Í.R.) 1 stig
hvor. — Einar Ingimundarson fékk
önnur verðlaun fyrir fegurðarglímu.
Ellefu af tólf mættu til leiks og var
sá, sem ekki mætti forfallaður vegna
veikinda.
Árshátíð starfsmanna
Landssmiðjunnar.
Föstudagskvöld 26. f. m. hélt Starfs-
mannafélag Landssmiðjunnar árshá-
tíð sína að Hótel Borg. Var þar minnzt
15 ára afmælis smiðjunnar. Samkom-
an hófst með sameiginlegu borðhaldi
og stjórnaði því Gísli Gíslason frá
Mosfelli. Ræður fluttu: Ásgeir Sig-
urðsson forstjóri, Ásgeir Jónsson form.
starfsmannafél. og Kjartan J. Gísla-
son frá Mosfelli, skrifstofustjóri, sem
einnig flutti frumsamið kvæði, Rödd
smiðjunnar, ort í tilefni hins nýja húss
smiðjunnar. Einnig fluttu minni: Þor-
valdur Brynjólfsson, verkstjóri; Hilmar
Skagfield, bókari. Kór starfsmanna
söng nokkur lög undir stjórn Gunnars
Sigurgeirssonar, en að lokum var stig-
inn dans.
Stjórn starfsmannafélagsins skipa
nú: Ásgeir Jónsson, formaður; Ásgeir
Guðmundsson, ritari og Sigurður Jóns-
son gjaldkerí. Meðstjórnendur: Óskar
Pálsson og Óskar Sandholt.
Iláskóli íslands.
285% stig og Þórir Guðmundsson 1.
eink. 281% stig.
Embcettisprófi í lœknisfrœði hefir
Jón. H. Gunnlaugsson lokið með 1.
eink. 157 stigum.
Embœttisprófi í lögfrceði lauk Jón
Bjarnason 25. janúar og hlaut 1. eink.
213 stig.
Klæddist hermannafötum
og ók bifreið ölvaður.
Nýlega hefir sakadómari kveðið upp
dóm í máli manns nokkurs, sem gekk
um götur Reykjavíkur klæddur fötum
af norskum sjóliðsmanni, og fór auk
þess á skemmtun, sem haldin var fyrir
norska hermenn. Auk þess ók hann
bifreið ölvaður.
Maðurinn var dæmdur í 30 daga
fangelsi. Ökuskírteini var áður^búið
að dæma af honum ævilangt fyrir
ölvun við akstur. Hann hefir tvisvar
áður verið sektaður fyrir að klæðast
hermannafötum.
Innbrot.
Nýlega var brotin rúða í sýningar-
glugga verzlunar Jóns Sigmundssonar
við Laugaveg 8 og stollð 4 karlmanns
armbandsúrum. Málið er 1 rannsókn.
Aðalfundur.
Tollvarðafélag íslands hélt aðal-
fund sinn laugardaginn 27. f. m.
Formaður félagsins gaf ýtarlega
skýi-slu um störff þess og hag á
liðnu ári. í stjórn til næsta árs voru
kjörnir: Haraldur Norðdahl, form.
endurkosinn, Ólafur Helgason, ritari;
Karl Halldórsson, gjaldkeri. Varastj.:
Aðalsteinn Halldórsson, Guðjón H.
Guðjónsson og Gísli Guðmundsson.
Tollvarðafélagið er 10 ára í ár. Það
hefir á þessum tíma unnið sleitulaust
að velferðarmálum tollvarðanna og
mikið unnið, bæði að kjarabótum og
menningarmálum þeirra. í því eru nú
nálega allir; sem stéttinni tilheyra um
land allt.
Hjónaband.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band Sigurður Pálsson bóndi í Skóg-
arhlíð í Reykjahverfi, S.-Þing og
Aðalheiður Þorgrímsdóttir frá Miðhlíð
á Barðaströnd.
Leiðrétting.
í grein um Árna Pálsson á 6. siðu
féll niður föðurnafn Helgu. Á að vera
frú Helga Sigurðardóttir.
Strandarkirkja.
„Gamalt áheit" frá K. V. kr. 5.00.
Áheit frá S. J. Strandasýslu kr. 20.00.
Vlnnlð ötuRega fyrlr
Tímann.
*
Skagiírdingamót
verður haldið að Hótel Borg fimmtudaginn 8. febrúar. —
Til skemmtunar verður:
Ræður: Dr. Broddi Jóhannesson.
Próf. Magnús Jónsson.
Rektor Pálmi Hannesson.
Söngur: Sigurður Jónsson frá Sauðárkróki.
Maríus Sölvason.
D A N S.
Aðgöngumiðar verða afhentir í „Flóru“ og Söluturninum á
mánudag og þriðjudag.
STJÓRNIN.
Jörð til sölu
Jörðin Máfahlíð i Lundarreykjadal í Borgarfjarðarsýslu er til
sölu nú þegar og ábúðar frá næstu fardögum. Jörðin hefir 4—5
kúa girt tún og ræktunarskilyrði ágæt, slægna- og beitiland all-
víðáttumikið. Laxveiði er í Grímsá, sérmetin. Þjóðbraut liggur
fast við túnið. — Tilboð í jörðina óskast fyrir 20. marz n. k. —
Upplýsingar gefur og við tilboðum tekur Kristján Guðmundsson,
bóndi á Indriðastöðum (Símastöð Grund), en verður á Búnaðar-
þingi eða á Bókhlöðustíg 11, sími 3855, milli 7 og 8 á kvöldin.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna
öllum.
♦ ÚTBREIÐIÐ TIMANN4
■AAAA,
A.
Kandidatsprófi í viðskiptafrceöum
^ hafa lokið: Árnl Finnbjörnsson 1. eink.