Tíminn - 16.02.1945, Qupperneq 5

Tíminn - 16.02.1945, Qupperneq 5
13. blað TÍMimN, föstudagiim 1G. fefor. 1945 5 lhn þetta leyti fyrir 118 árum: Ka 1» g p á n Pyrir rösklega öld bjó að Kambi í Villingaholtshreppi í Árnessýslu bóndi sá, er Hjörtur hét Jónsson, maður hniginn á efri aldur. Hann var talinn rík- ur maður og þótti svíðingur hinn mesti, er á leið ævfiia. Að kvöldi hins 8. febrúar 1827 gekk heimilisfólkið að Kambi til náða, eins og venja var. Var bóndi einn karlmanna á bæn- um, en annáð fólk var ráðskona hans, Gróa að nafni, vinnukona og fimm ára gamall drengur. Veður var hið versta, rok og rigning og dimmt yfir, en mýr- arnar svellaðar og því allgreið- færar. Heimilisfólkið sofnar skjótrt. En það hefir ekki lengi sofið, er það hrekkur upp við undirgang mikinn úti fyrir, og í sömu svif- um er bærinn brotinn upp, og inn ryðjast fjórir menn grímu- klæddir. Þeir hafa skjót um- svif: ráðast að fólkinu, þar sem það liggur alls nakið í rúmum sínum, og leggja hönd á það. Tveir hinna óvæntu gesta leggja hendur á húsbóndann og binda hann á höndum og fótum. Sá þriðji veitir ráðskon- unni sama umbúnað og fleygir henni siðan á gólfið, en hinir tveir varpa Hirti ofan á hana. Síðan dysja þeir þau þar á gólf- inu með ýmsu lauslegu, sem þeir rífa upp úr rúmum þeirra, ásamt kistugarmi og kvarnar- stokk. Fjórði maðurinn bindur vinnukonuna í rúmi hennar og tyllir böndum á hendur drengs- ins. Andlit beggja byrgir hann. Þessu næst kveikja komu- menn ljós og taka að leita í kotinu. Bundið fólkið heyrir, að þeir brjóta upp hirzlur og fleygja til öllu, sem unnt er að hreyfa. Einn stendur jafnan yfir hrúgunni, þar sem Hjörtur bóndi er kasaður hjá ráðskonu sinni, spyr hann eftir peningum hans og hótar hörðu, ef hann segi ekki til þeirra. Einnig kasta þeir orðum á milli sín. Loks finna þeir það, sem þeir leita að, peningana. Þeir safna þeim í lítinn stokk. Hjörtur heyrir glamra í myntinni, er ræningj- arnir sópa innan fjárhirzlur hans og peningakistla. Loks fara þeir að tygjast tn brottferðar. Einn þeirra stingur upp á því, að 'þeir4 kveiki í kot- inu, svo að ætla megi, að allt hafi brunnið til kaldra kola. En það vilja félagar hans þó ekki. Við svo búið fara þeir. Hræðslunni, sem gripið hafði fólkið, verður ekki með orðum lýst. Það var ekki fyrr en löng stund var liðin frá því, að allt féll í dúnalogn, að Hjörtur gamli tók að brölta í kösinni. Innan skamms tókst honum að velta af sér draslinu og skr^iðast að rúmfleti sínu. Pyrir ofan það var hnífur geymdur. Honum heppn- aðist að ná honum og skera með honum böndin af drengnum, sem hann skipaði síðan að leysa fætur sína. Síðan lét hann barn- ið breiða yfir sig rekkjuvoð, og þannig búinn og með hendur bundnar fyrir aftan bak hljóp hann út í myrkrið og óveðrið og stefndi að Hróarsholti. Svall honum svo móður, að hann fann ekki til kulda á leiðinni. Vakti hann fólkið í Hróarsholti upp og sagði tíðindin,sem orðin voru, og sýndi, hversu hann var leik- inn. Hét hann á menn að veita sér fulltingi til eftirfarar, því að ræningjarnir myndu enn skammt undan. Var svo mikill ofsi hans, að vinnumenn, sem komið höfðu fram á nærklæð- um til þess að heyra -tíðindin, fengu ekki að fara inn aftur að sækja sér utanyfirföt eða yfir- hafnir. En þó fór svo, að lítið varð um eftirför, enda niða- myrkur og enginn, sem vissi, í hvaða átt árásarmennirnir hefðu farið. Þótti Hirti bónda slælega að verið og bar sig illa. Heima í Kambi var "aðkoman hin versta. Öllu var þar umturn- ar, hurðir og hirzlur brotnar og hvaðéina á tjá og tundri. Haltr- aði Hjörtur kringum brotna og tæmdd peningakistla sína og stundi mæðulega og tautaði fyrir munni sér fáryrði um skaða sinn-. Pannst það á, að varla myndi annað hafa getað að borið, sem honum hefði fall- ið þyngra en missir peninganna. Urðu menn að vaka yfir hon- um, því að hann þorði ekki að vera einn karlmanna á bænum og vildi ekki heldur fara. Þegar bærinn var rannsak^ð- ur, fundust ýmsir munir, sem ránsmennirnir höfðu týnt eða skilið eftir í fljótræði. Þegar birti af degi, fundust fleiri úti við. Var það helzta gamall hatt- ur, snæraflækja, strigatuska, nýsleginn járnteinn, skór og vettlingur. Var þessu öllu haldið til haga, en þó hvarf vettlingur- inn nokkru eftir að hann fannst. Um þessar mundir var Þórður Svelnbjörnsson sýslumaður Ár- nesinga. Var ránið þegar kært fyrir honum, og voru rannsókn- ir hafnar og eftirgrennslanir ýmsar hafðar í frammi um það, hverjir gætu verið valdir að þessu fáheyrða tiltæki. Horfði í fyrstu þunglega um það, að ræningjarnir fyndust. Þó hugðu menn, að þeir hefðu komið neð- an að, því að bæði var það, að vinnukonunni í Kambi hafði virzt jSangreykjarlykt af skinn- klæðum, er maður sá var í, er hana batt, og svo hafði skórinn fundizt þar á túninu, að líklegt þótti, að þeir hefðu stefnt niður eftir. Kom þar, að grunur féll á tiltekna menn í Stokkseyrar- hreppi. Ollu því einkum för, er sáust á járnteini þeim, sem fundizt hafði, og handbragðið. á skónum. Naut sýslumaður einkum við glöggskyggni Þuríð- ar formanns, sem var alkunn kona á sínum tíma. Fyrstu mennirnir, sem handteknir voru, voru Jón Geirmundsson á Stétt- um, en steðjaför hans þóttust menn kenna á járnteininum, en handbragð konu hans á skónum, og Sigurður Gottsveinsson á Leiðólfsstöðum, hörkutól mikið og óhlutvandur að talið var. En þeir neituðu harðlega allri þátt- töku eða vitneskju um förina og fjártökuna að Kambi. Sátu þeir í haldi um hríð og voru allhart haldnir. Þessu næst leiddist grunur að þriðja manni, Jóni Kolbeinssyni á Brú. Ollu því einkum kynleg framkoma hagpis og orð, sem hann hafði látið falla. Var hann nú og tekinn höndum, en ekki fékkst hann til að játa á sig neinar sakir að sinni. Sá Kambránsmanna, sem fyrstur gugnaði fyrir harðræð- um yfirvaldanna, var Jón Geir- mundsson. Hann var hafður í haldi að Ámóti hjá Jóni Jóns- syni, er verið hafði lögságnari milli sýslumanna í Árnesþingi, hinum mesta kappsmanni og hörkutóli. Hafði hann lengi beitt nafna sinn Geirmundsson hörðu til þess að knýja hann til játn- ingar. Aðfaranótt 19. apríl dreymdi fangann þann draum, áð djöfullinp kæmi til hans og tæki úr honum innyflin. Fékk þetta mjög á hann, og um morg- uninn meðgekk hann þátttöku sína í ráninu og vísaði á hina. Voru það Sigurður Gottsveins- son, sem verið hafði forustu- maðurinn, Jón Kolbeinsson og Hafliði bróðir hans á Stóra- Hrauni. Var nú ekki annars kostur fyrir þá, en játa brot sitt, enda höfðu mjög borizt böndin að sumum þeirra áður. En því fór þó fjarri, að mála- rekstrinum væri lokið. Mikill fjöldi fólks flæktist inn í þetta, og fór svo, að sektardómar fyrir sauðaþjófnað, innbrbt og hnupl voru felldir yfir tugum manna. Póru málin bæði til landsyfir- réttar og hæstaréttar, sem loks felldi endanlegan dóm 15. júní ý829. Voru Kambsránsmenn allir dæmdir til ævilangrar þrælk- unar í Kaupmannahöfn. Skyldi Sigúrður Gottsveinsson erfiða í rasphúsi, en hinir í festingu. Utan voru þeir þó ekki fluttir fyrr en 1830. Allar eignir þeirra voru seld'ar, en konur þeirra og börn fóru á tvístring, því að allir voru þeir kvæntir, nema Jón Kolbeinsson. Hann átti unnustu, sem hann bað bróður sinn, Þorleif, að taka að sér, Sem hann og gerði. Er frá leið voru margar til- raunir gerðar til þess að fá þá Kolbeinssyni náðaða, enda munu þeir hafa verið menn vel látnir. En þeim málaumleitun- um var þunglega tekið, og stóð (Framhald á 7. síðu) Vílhelm Mxfberg: Eiginkona FRAMHALD Hún ætlaði að kalla á Hákon, því að hún gat ekki án hans verið. Hún ætlaði að segja við hann stíax í kvöld, þegar hann kæmi í þessum erindagerðum, sem hann hafði nú aftur tekið við af Elínu: Páll fer burtu á laugardaginn. Þú getur komið við stafngluggann, undir eins og orðið er aldimmt — heyrirðu það? En það skyldi ekki gerast neitt, sem aldrei yrði aftur tekið. Nei, nei, ekki þótt jörðin ætti að forgangast. Og Hákon hefir lika lofað því statt og stöðugt, að hún skuli sjálf ráða fyrir þa6 bæði. Hann ætlar ekki að snerta hana, nema hún leyfi honum það sjálf. Og það leyfi verður bið á, að hún veiti. Hún ætlar að verja sig gegn munni hans, því að hann rænir hana öllu viðnámsþreki. Það, sem aldrei verður aftur tekið, — það skal ekki gerast. Því ef — ja, þá gæti hún aldrei framar orðið heiðarleg eiginkona að nýju, hún gæti aldrei orðið söm og hún var nú. Nei, það má ekki gerast neitt óviðráðanlegt. Hann verður að fá að koma inn og sitja hjá henni, og þau eiga að sitja saman nokkra klukkutíma í myrkrinu. Ef til vill leyfir hún honum að halda í höndina á sér, og kannske sitja þau þétt upp við hvort annað, svo að þau þurfi ekki að tala hátt, heldur geti hvíslazt á. En þar við skal líka sitja. Það verður hún að segja honum strax, og hann þóknast henni áreiðanlpga. Því að ekki vill hann gera hana að skækju. Það er bara návist hans, sem hún þarfn- ast. Á eftir verður henni rórra í marga daga. Og undir eins og hún finnur, að hún hefir fengið fró, á hann að fara heim. Hann á að fara heim og yfirgefa hana alveg eins og hún var, þegar hann kom. Þannig á þetta að vera. Það er heppni, að það skuli vera herbergi á milli hjónaher- bergisins og vinnukonuherbergisins. Og Þóra sefur alltaf fast. Það er líka heppni, að þessi stóru og laufríku astrakaneplatré skuli vera fyrir utan svefnherbergisgluggana þarna á stafninum. Hann getur komið þaðan. í skjóli eplatrjánna getur hann auð- veldlega komizt að glugganum, án þess að til hans sjáist. Það verður bezt. Ekkert á að heyrast, ekkert að sjást. En hvernig getur hún fengið sig til þess að bregðast Páli svona — að hleypa manni inn í húsið jafnskjótt og hannter farinn? Hún hefir aldrei leynt hann neinu. En hann fer ferða sinna og skilur hana aleina eftir. Það hefði hánn ekki átt að gera. Það gat vitaskuld hugsazt, að hún þyrfti hans hjálpar við, og þá var hann ekki nálægur. Og þegar hún hrópaði á> hann 1 draumnum, kom hann ekki — hann hjálpar henni hvorki í draum-- um né vöku. Nú er það mikið happ fyrir þau bæði, að hún þarf ekki að óttast neitt — það er reglulegt happ,.að hún mun alls ekki þurfa á hjálp að halda. En það hefði getað verið á annan veg, og þess vegna hefði Páll ekki átt að skilja hana eftir aleina. Því verður ekki á móti mælt, að hann svíkur hana með því að ríða brott; hún ætlai: svo sannarlega ekki að gjalda líku líkt, en þótt svo hefði verið, var engan annan um að saka en hann sjálfan. Páll kemur með uppástungu: Ef til vill væri rétt, að vinnu- konan flytti sig inn í hjónaherbergið meðan hann er fjarver- andi, ef hún þorir ekki að sofa þar ein? Ef til vill fyndist henni hún vera eitthvað öruggari, ef þær svæfu tvær í sama her- bergi? Það eru reyndar tvær nætur, sem hann verður burtu. Honum datt auðvitað alls ekki í hug, að hún þyrfti að óttast vonda menn; það var svo sem talsvert um þjófafar í þorpinu, en þeir þorðu ekki á kreik um þetta leyti, þegar tekið var að birta á nóttunni. En Margrét vildi ekki, að maðurinn hennar væri neitt kvíð- andi. Það var þá líka byssan frammij anddyrinu. Bróðir henn- ar hafði einu sinni kennt henni að fara með byssu. Svo var hún ekki nein gauð, ef í harðbakkann sló. Þetta var með öðrum orðum ekki umtals vert. En hvers vegna var ekki nema fimmtudagur í dag? Margrét vill flýta tíman- um, sem allt í einu hefir tekið upp á því að standa í stað til þess að storka henni. Hún gengur alveg fram af sjálfri sér, tekst á hendur hvert verkið af ö'ðru. Hún ræðst í að sauma öll lökin sín, hún gerir ótal margt, sem vel hefði getað beðið lang- an tíma. Og tíminn er eftir sem áður jafn óendanlega lengi að líða. Fimmtudagur — það er ekki úr að aka með þennan fimmtudag. Og nú vill hún þó einmitt, að hann sé fljótari að líða en nokkurn tíma áður. Er ekki von, að hún reiðist, er ekki von, a'ð henni gremjist þetta hræðilega? Skrítið er það, að guð skuli láta dagana vera mönnum svona misjafnlega langa. Hann lætur suma daga vera styttri en eitt andartak og suma daga eins langa og harðindaár. Margréti hefir hann miðlað fimmtudegi, sem er lengri en allir aðrir fimmtu- dagar í lífi hennar. Og ekki nóg með það: Hann hefir líka ætlað henni föstudag og laugardág með stundir, sem ekki dragnast áfram, stundir, sem aldrei ætla að líða. En svo neyðist guð til þess aé láta koma kvöld á eftir laugardeginum. Já, þá umbun verður hann að veita henni, guð kemst þó ekki undan því. Og það kvöld verður hann að gera betra og unaðsríkara en öll önn- ur kvöld. Nú er kominn laugardagur, Páll stígur á bak fararskjóta sínum við hestasteininn, og bæði maður og hestur hverfa fyrir brekku- brún. Hann var að minnsta kosti farinn af stað; Margréti hafði dottið í hug, að kannske myndi han\i nú breyta fyrirætlun sinni, kannske myndi hann fresta ferðinni þar til siðar. En faðir hans yar hætt kominn. Páll varð að fara. Undir eins og. orðið er aldimmt — heyrirðu það? En það er sífellt dagur á lofti. Margrét reikar um stéttarnar og skimar undrandi og athugandi í allar áttir. Hvar lúrir kvöld- ið eiginlega á myrkrinu? Hvers vegna kemur það ekki? Guð ætlar þó að láta húma á þessu kvöldi? Hvers vegna sígur rökkrið ekki yfir? Það var þó líklega svo til ætlazt við sköpun heimsins, að yfir? Það var þó líklega svo fyrirhugað við sköpun heimsins, að En nú var liðið langt fram í maímánuð, og um það leyti árs dimmir seint. Margrét hugsaði þó ekki um það, hún beið bara, í senn hrædd og óþolinmóð. — Og þegar hún sá hvergi bóla á kvöldhúminu, hvert sem hún leit, fór hún inn í hjónaherbergið og settist þar og beið. Og þar sat hún og koffisí í hátíðaskap. Skrítið var það, en svona var henni venjulega innan brjósts, þegar hún var á leið til kirkjunnar á sunnudögum. Þessar til- finningar vöknuðu, þegar hún eygði háan kirkjuturninn af næstu Saya barnanna: JÚLLl OG DÚFA Eftir JÓN SVEIHSSON. Freysteinn Gunnarsson pýddi Síðan fórum við að hátta hrygg í huga og hálfgrát- andi. Lengi lágum við vakandi. En loks yfirbugaði þreyt- an okkur, og við sofnuðum. Um miðja nótt vaknaði ég við það, að einhver lagði höndina á höfuðið á mér. Ég opnaði augun, en sá ekki neitt, því að dimmt var inni. Ég fálmaði eftir hendinni. Það var Valdi. Hann hafði farið á fætur og var kominn að rúminu mínu. „Nonni,“ þvíslaði hann. „Ég get ekki sofið. — Heldurðu að hann Júlli og hún Dúfa verði úti?“ „Ég veit það ekki,“ svaraði ég lágt. Það var allt og sumt, sem ég gat sagt. Við vorum báðir svo raunamæddir, að við fórum að gráta og grétum beisklega. Ennþá buldi hríðin á þekjunni, þó virtist nú heldur vera farið að lægja veðrið. Hin börnin sváfu, það heyrðum við á andardrætti þeirra. Eftir stundarkorn sagði Valdi: „Af hverju fór hann Júlli út í hríðina? Ég vildi, að hann hefði ekki farið.“ „Já,“ svaraði ég. „Hann hefði aldrei á"tt að fara, en hann er svo hugaður.“ „Já, hann segir líka alltaf, að hann vilji heldur eiga stutta ævi með sóma en langt líf við skömm.“ ' Síðan fór Valdi litli grátandi upp í rúmið sitt aftur. Litlu síðar sofnuðum við báðir og sváfum lengur en vant var. Við vorum svo þreyttir af hryggð og kvíða. Þegar stúlkan kom með kaffiði til okkar um morgun- inn og vakti okkur, spurðum við undir eins og við luk- um upp augunum: „Hvernig er veðrið?“ „Hríðinni er létt,“ svaraði hún. „Karlmennirnir eru að grafa göng gegnum skaflinn við dyrnar.“ Við flýttum okkur í fötin og hlupum fram dimm göngin. Frammi við dyrnar loguðu ljós, og þar lágu snjóköggl- ar á gólfinu. Þeir ultu inn, þegar mennirnir grófu skaflinn, sém lagzt hafði að dyrunum. Eftir langt strit komust þeir upþ 'ur skaflinum, og nú skein dagsbirtan aftur inn til okkar. Til þess að hægara yrði að komast upp á fönnina, voru grafin þrep í hana. Nú var himinninn orðinn heiður, en frost var og kalt í veðri. ÚTSALA Seljum næstu daga mjög ódýrt: Kvenpeysur — blússur og vesti. Kvensloppar frá kr. 16.00, svuntur frá kr. 4,25. Barnakjólar 22,00. Barnaullarbuxur frá 7,50. Barnasamfestingar. Skinnhúfur á börn kr. 12,00. Káputau, tvíbreitt á aðeins 29,00. Mikið af bútum. Allar kveitkáitnr «g‘ tvöfaldar kápur seldar með afslætti. Hattar 30,00. Ullarbindi, góð, á 6,50. — Rykfrakkar 65,00 kr. Niels Carlsson & Co. h.f. Langavegi 39. Bæjarstjórastarfið í Hafnarfirði cr laust til umsóknar. Umsóknarfrest- ur er til Iiádcgis firiðjudaginn 30. febr. næstkomandi. Upplýsingar nni launakjör og ann- aö er að starfinu lýtur, gefur bæjar- stjórinn í Hafnarfirði.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.