Tíminn - 16.02.1945, Page 6

Tíminn - 16.02.1945, Page 6
6 TÍMHNN, föstndaginn 16. febr. 1945 13. blað Scxtngur: Agúst Guðmundsson bóndí á Sæbóli Hinn 26. jan. þ. á. varð Ágúst Guðmundsson bóndi á Sæbóli á Ingjaldssandi í Vestur-ísafjarð- arsýslu, sextugur. Hann er fæddur í Dalshúsum í Valþjófsdal 26. jan. 1886. Fað- ir hans var Guðmundur Sturluson og móðir Guðrún Zakaríasdóttir. Bjuggu þau þar stórþúi, en fluttu sig vorið eftir að Sæbóli og þar andaðist Guðmundur 30. jan. 1886. Ólst Ágúst upp hjá móður sinni, ásamt Kristjáni bróður sínum, sem látinn er fyrir nokkrum árum í Ameríku, fyrst á Sæbóli og síðan á Brékku, en syni og 2 dætur, öll uppkomin og hin mannvænlegustu, og eiga þau öll heima hjá foreldrum sínum. Ágúst á Sæbóli er einn af landnámsmönnum nútímans. Jörðin hans ber atorku hans. og dugnaði fögur merki. Renni- slétt tún, unnið með vélum, þar sem áður voru harðslægar þúf- ur. Byggingar yfir fólk og fénað, alt að nýju. Ágúst er glaður og reifur í umgengni, trúr í verkum sín- um, og vinnur þau störf, sem honum eru falin að inna af höndum fyrir samfélagið, af Sœbólshjónín, Élísabet Guönadóttir og Ágúst Guðmundsson var þó 3 ár í Hrauni, næsta bæ, frá 10—13 ára aldurs. Fimmtán ára gamall fór hann til fiskiveiða á þilskip, eins og flestir unglingar vestra á þeim árum. Haustið 1907 fór hann til Jóns Þorkels Ólafssonar tré- smíðameistara á ísafirði til tré- smíðanáms, og lauk þar námi að þrem árum liðnum. Eftir trésmíðanámið dró sjór- inn hann enn til sín og stund- aði hann þá fiskiveiðar á þýzk- um togurum, sem gerðir voru út frá Flateyri hjá Ásgeiri Torfa- syni skipstjóra. Byrjaði hann síðan Jsúskap á hinu fagra höfuðbóli, Sæbóli, vorið 1914, með móður sinni, og tók þá -upp þráðinn, sem faðir hans varð að fella niður í blóma aldurs síns. Árið 1916 gekk hann að eiga Elísábetu Guðnadóttur, f. 14. apríl 1894 á Galtarhrygg í Mjóa- firði við ísafjarðardjúp, en ólst upp að nokkru á Miðjanesi í Reykhólasveit. Elísabet átti því fimmtugsafmæli sl. vor. Hún er dugnaðarkona og hefir verið manni sínum samhent í bú- skaþnum. Eiga þau 4 börn, 2 Osigrar Ósigur ef áttu að .bíða engu skaltu fyrir kvfða. Sæmd þeim er í sigri engin, sem ei stækkar mann. Réttarþrautin reynir hann. — Raunin fyrir sannleikann kemur með úr deiglu drenginn dáðrakkan og hugprúðan. Viðleitnin, að verja blettinn vörgum fyrir — eðlisréttinD svo sem Ieyfði öll þín orka, — eins er lygin vann —, sýna mun þér sannleikann. — Síðar muntu reyna að hann hefir tök að hrella — storka, — hirta sjálfan dómarann. Svikum ofið óréttlæti aftur hittir þá á fæti, sem það rækta — í sér ala órétt til að dæma sök. Síðar sannleiksrök- sýna meðferð vitna og skjala. Lyga makksins völt er vala, vald þótt noti þrælatök. — Rór að vinna. Rór að tapa. Rangsleitnina láttu snapa allan feng, sem má hún megna, mæðstu ei — brostu að. Annars til er ekki það. — Óréttar mun þrotavað: Dragast loks með dómsmenn vegna dæmda í verðugt þrifabað. Kolbeinn frá Kollafirði. fulri alúð. Hann hefir m. a.ó séð um slátrun sauðfjár á Ingjalds- sandi fyrir Kaupfélag Önfirð- inga undanfarin ár, byggðar- laginu til mikils hagræðis, og farizt það prýðilega úr hendi. Ágúst er nú fjárrikasti bónd- inn í Mýrahreppi og á stærst bú. Hann á enn sauði, eins og faðir hans, sem var sauðabóndi mikill, og íslenzkir bænd'ur á undanförnum tímum, en sem nú er nær aflagt hér vestra. Hann er mjög brattgengur, og hefir oft bjargað kindum sín- um og nágranna sinna úr Barð- anum og Hrafnaskálarnúpnum, sem eru beggja vegna Ingjalds- .sandsins. Á afmælisdaginn heimsóttu bændur á Ingjaldssandi af- mælisbarnið, sambýlismaður hans flutti honum kvæði og ræður voru fluttar, og stóð gleðihófið fram á morgun næsta dag. Afmælisbarninu bárust einnig skeyti og kveðjur frá fjarverandi vinum og sveitung- um, en öll óskum við þeim hjón- um allra heilla og langra líf- daga. Jóhannes Davíðsson. 9 Ilesslofu Djöfullinn komst í dómasafnið. Dundaði í því — og las í hljóði. Hafði honum fundizt hugstætt nafnið, hélt það yrði hans málstað gróði. Lá hann í þessu langan tíma. Lagði undir flatt eða napurt glotti. Hann lét oft sem hann hefði svíma eða hausinn skók með vonzkuspotti. \ Stundum færðist hans glott um granir. Gerðist hann snöggvast við- litskeikur: „Þetta er eins og þeir eru vanir: Eitthvað í kringum hálfsann- Ieikur“. Loksins kom hann að lóðar- merkjum. Líka þeim málum vildi hann sinna. Leit yfir blöð með letiherkjum, leizt fyrir gýg nú mundi vinna. AHt í einu hann glyrnur glennti, glotti með svip af heppnu táli, dólgslega hló og drýldinn benti á dóma í landaþrætumáli: „Hér slær á verk mitt loksins Ijóma. Lætur þeim bezt á þessu stigi. Þarna gátu þeir séð sinn sóma: Sannleikur hundrað prósent lýgi- Elgum við að geia þeim Grænland? (Framhald af 4. síðuj Ef draga má dæmi af sölu dönsku eyjanna, er sennilegt, að verð Grænlands verði margfalt meira. En þá kemur fram sú spurning: Hafa Danir unnið til þess að græða of fjár á þessari nýlendu íslendinga? Jú, þeir týndu landinu, íslendingar fundu það. Danir geta ekki byggt rétt sinn á öðru en glæpa- réttinum. íslendingar byggja rétt sinn á afrekum, sem fræg eru um allan Norðurheim. Það virðist því skjóta nokkuð skökku við, ef Danir eiga að fá allan ábatann, en íslendingar ganga slyppir frá. Fyrir því munu þeir gera kröfu til Grænlandsfúlgunnar á sínum tíma og það því fremur sem þeir eiga lagakröfu til ein- hvers hluta hennar, sakir þess að þeir voru meðal annars sam- veldismenn Dana í röskar fimm aldir. Þegar af þeirri ástæðu einni mundi kaupandinn setja Dön- um þau skilyrði, að þeir jöfnuðu deilur sínar við aðra, áður en gengið væri frá kaupunum. Af ásettu ráði er gengið fram hjá rétti núverandi íbúa Græn- lands. Það mál kemur ekki við oss að öðru en því, að það getur haft einhver áhrif á skiptingu kaupfúlgunnar, Dönum til af- dráttar. Um fjárkröfur gegn Dönum að öðru leyti lítur ekki efnilega út, jafnhraklega og nú er komið fyrir þeim, og skal því hér ekki nánar farið inn-á þær sakir all- ar, en aðeins á það minnst, að jafnvel 1907 vörðu þeir það með oddi og egg, að stjórn þeirra hefði orðið landi voru til minnsta hnekkis, töldu það sjálfskaparvíti, og auðvitað hafa beir þá einnig svarið fyrir að beir hafi sjálfir haft nokkurn ábata af viðskiptum við landið. Af því leiddi þá líka að þeim hefir aldrei komið til hugar að binda enda á þau viðskipti á ánægjanlegan hátt fyrir oss,þótt mörg tækifæri hafi gefizt og kröfum okkar þá svo 1 hóf stillt, að það hefði verið leikur einn fyrir þá að leiða þau mál til lykta sér til góðrar sæmdar. Til skýringar er það fullnægjandi, að 1874, þ j óðhátíðarárið, er 1000 ár voru liðin frá landnámi Tngólfs, létu Danir konung sinn raus?/,ast til að gefa 8000 — átta búsund krónur — til verðlauna fyrir jarðabætur landsmanna, með fram, að því er talið var, í bokkabót fyrir að hátíðarnefnd- in heyktist við að bjóða Jóni landanna. En þeim hefir verið fyrir- munað að koma nærri henni. Er sök sér þó að þeir hafi aldrei dregið fisk úr sjó við þessar fiskisælustu strendur jarðarinnar, en hinu er engin bót mæl- andi, að viðburðir þeirra til að kenna íslendingum akuryrkju urðu þeim til háðs og spotts allar aldir. Þvi mun það jafnan reiknast þeim til stórsyndar að þeir meinuðu ís- lendingum að taka þátt í nýbygging 3rænlands, þvl að enginn vafi mun vera á, að ef landar vorir hefðu verið ■engnir til að manna Eskimóa, mundu beir nú vera komnir langt á leið með að teljast til siðaðra þjóða, og hagnýta sér hinar fornu byggðir með þeírra margvíslegu hlunnindum. Mun hér bykja djarflega mælt, en galdurinn ?r blátt áfram sá, að Danir elska Danmörku um alla hluti fram, sem vert er, og annað ekkl, en íslendingar einir þjóða bera þann ræktarhug til landsins, sem með þarf til að vinna slík stórvirki. og kunna bezt að laga sig eftir kröfum í landi, þar sem Dön- um verður allt að ís. Er hér ekki úr- hættis að minna á heimsfræg afrek Vilhjálms Stefánssonar í þeim efnum, góðiun íslendingum til íhugunar. forseta Sigurðssyni að vera á hátíðinni, því að búist var við .að vinsældir hans myndu skyggja á konunginn. En Danir höfðu þá fyrir skemmstu af náð sinni skammtað íslendingum 60.000 krónur á ári og valdboðið með stöðulögunum að það skyldi statt og stöðugt standa. Töldu þeir það jafnan eftir og kölluðu sveitarstyrk oss til handa, og því er auðskilið, að hvorki 1908 né 1918 voru þeir fá- anlegir til að hagga við því drottinsorði. Búast má við að sambands- þjóðin beri það fyrir, að slíkri kröfu hafi ekki verið haldið fram af ráðamönnum vorym og hér er gert út af væntanlegri Grænlandssölu. Því til and- svera má minna á, að það var skýrt látið í ljós í Norðmanna- deilunni, að vér áskildum oss allan rétt gagnvart Dönum. En í annan stað var ekkert eðlilegra en að þau atriði, er bíða máttu, væri látin af og á, því að bæði var nóg um ágreiningsefni og og við áttum allt til þeirra að sækja og það upp á móti. Að síðustu skal það - tekið fram, að það er ekki sjálf fjár- krafan, er fyrst og fremst vakir fyrlr oss landsmönnum. Hún er metnaðarmál fyrir oss, því að verði þessi nýlenda vor seld án okkar íhlutunar, mun alþjóð manna telja hana aldanskt land og mundi þá fljótt fyrnast yfir íslenzka landfundinn þar. Enn meiri áherzlu leggja þó beztu menn vorir á, að aldrei muni til fulls gróa sárin fyr en jafnaðar eru deilur um eftir- hreytur sambandsins, svo að báðir séu vel sæmdir af, en til þess þykja nú mun meiri lík- ur en áður hefir verið. Til þess dregur, að Danir hafa aldrei vitað hvað það er að búa við undirokun annarra þjóða, en sjálfir verið alfrjálsir menn í alfrjálsu landi og setið yfir hlut annarra um aldaraðir, alveg að óverðugu. Nú loks hafa þeir bergt á beizku og ekki unað brældómsokinu betur en svo, að þegar er þeim glæddust vonir um að losna, brugðust þeir sem mannlegast við og hafa þegar sýnt fagurlega að þeir kunna vel að meta fórnir þær, er hinar mönnuðustu þjóðir heims hafa fært til uppihalds mannrétt- inda, og því mætti vænta þess, að þeir uppberi endanlega rétt- ing heimalandamæra sinna. Þeim ætti því nú að skiljast betur hvað við höfum mátt líða og hve þægir þegnar við höfum verið þeim. Síðustu áratugina hefir hér talsvert verið ritað um Græn- land, sögu Dana og ekki allt sem frægilegast. Þá hefir oftar en einu sinni legið við, að sú saga yrði sögð- á enska tungu, svo sem í áróðursskyni, en sem betur fer hefir það verið látið farast fyrir, blátt áfram af því, að þeir, sem ábyrgir voru okkar manna, hafa talið að ekki væri sæmilegt að gera þeim þá höf- uðskömm áður en reynt væri hvort samkomulag næðist. Ég fyrir mitt leyti hefi þá trú, að til þess óyndisúrræðis þurfi ekki að koma, m. a. sakir þess, að ég virði Dani sem gagnmenntaða og kurteisa þjóð, er hefir mörg- um ágætismönnum á að skipa og því báðum aðilum fyrir beztu að jafngóð vinátta takizt með þeim og nú er með oss og Norð- mönnum. Og þvi er pistill þessi í letur færður. Magnús Torfason. TÍMINN Þeir, sem fylgjast vilja með almennum málum verða að lesa Tímann. Áskriftarverð í Reykjavík og Hafnarfirði er 4 kr. á mánuði. Áskriftarsími 2323. Marklausir heiðursmenn margir dæmdir. Mér er heldur en þóknazt eigi. Slíkir dómarar séu sæmdir silfurkrossi á heiðursdegi“. Kolbeinn frá Kollafirði. Samband ísl, samvinnufélaga* SAMVINNUMENN: í samvinnufélögunum fáið þér eins mikið fyrir hverja krónu og unnt er. SÆVON de PARÍS mýhir húðina oc# styrhir. Gefur henni yndisfagran litblœ oy ver hana hvillum. N O T I Ð SAVON DE (ý&rjý Sjaínar tannkrem gerir tennurnar mjallhvífar Eyðir tannsteini og himnu- myndun. Hindrar skaðlega sýrumyndun í munninum og varðveitir með því tennurn- ar. Inniheldur alls engin skaðleg efni fyrir tennurnar eða fægiefni, sem rispa tann- glerunginn. Hefir þægilegt og hressandi bragð. NOTIÐ SJAFNAR TANNKREM KVÖLDÍ OG MORGNA. Sápuverksmiðjan Sjöfn Akureyrí Deildarhjúkrunarkonu vantar á lyflækningadelld Landsspít- alans 1. n. k. Lmsóknarfrestur til 30. marz. — ITmsóknir sendist Skrifstofu ríkisspítalanna.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.