Tíminn - 20.02.1945, Page 5

Tíminn - 20.02.1945, Page 5
14. hlað TlMlM, þrlðjiidagimt 30. febr. 1945 Kvennabálkur' .Tímans Frá tyrhneshum U o num Lítið er vitað um tyrkneskar nútímakonur annað en það, að þær hafa nú fyrir tiltölulega stuttum tíma öðlazt fullt frelsi og eru nú ekki lengur hjúpaðar hinum þykku blæjum, er hafa einkennt búning þeirra frá aldaöðli. Kvennabúrin frægu hafa nú verið rifin til grunna og hið ógurlega djúp, er stað- fest var milli karla og kvenna þar í landi, hefir verið brúað. Tvær tízkumyndir, teknar úr Kadin Ev. Þœr gœtu allt eins vel veriS úr amerisku tízkublaSi! Nánari fregnir herma, að tyrknesku konurnar hafi árið 1935 eða fyrir 10 árum öðlazt fullkomið jafnrétti á við karl menn. Fyrir stjórnartíð tyrk- nesku frelsishetjunnar Kemal Atatúrks var staða tyrknesku konunnar sannnefnd þrælkun. Konum var ekki leyft að fara út fyrir hússins dyr, nema þær væru hjúpaðar blæjum frá hvirfli til ilja. Ekki máttu þær sjást á almannafæri með eigin- mönnum sínum. Öll menntun var þeim forboðin og gjafvaxta meyjar fengu engu að ráða um gjaforð sín. Feðurnir sömdu um slíkt við fjölskyldu tilvonandi brúðguma. — ’ Nú er það full- kunnugt, að lög Múhameðstrú armanna leyfðu m'nnum að eiga fjórar konur og ótakmarkaðan fjölda af hjákonum. Geta má því nærri, hvort heirjjilislífið fer ekki út um þúfur, þegar svo er ástatt. En allt þetta tilheyrir nú liðna tímanum. Stefnuskrá tyrkneska þjóðveldisflokksins, er gerð var árið 1935, gerði það heyrum kunnugt, að þaðan í frá skyldi ríkja fullkomið jafnrétti milli kynjanna. Var það lokáhnútur- inn í margvíslegum réttarbót- um, er konunum höfðu' verið veittar smátt og smátt síðan tyrkneska lýðveldið var stofnað árið 1924. Tyrkneskar konur gegna nú mörgum ábyrgðar- miklum stöðum í landi sínu Þetta er í fáum dráttum saga tyrknesku kvenfrelsishreyfing arinnar. Er hún óneitanlega glæsileg á yfirborðinu. En þess ber að gæta, að Tyrkir eru íhaldssamir menn og værukær- ir. Þeir eru mjög hneigðir til þess að láta framfarir allar þróast af sjálfu sér. Þess vegna hefir tyrknesku konunum, einkum þó hinum eldri, veitzt allerfitt að átta sig á hinu nýfengna frelsi Upp til sveita gegna konur enn í dag eins erfiðum og jafnvel erfiðari störfum en karlmenn. Á sumum sviðum ber ennþá mikið á aðskilnaði kynjanna Kvennasamkundurnar fornu eru enn við lýði. Tetrykkjuhóf, er standa allt frá kl. 4 á daginn til kl. 9 á kvöldin, eru enn afar vinsæl, jafnvel meðal hinna menntuðustu kvenna. Karl mönnum er að vísu leyft að sitja hóf þessi, en þeir leggja þar lítt til málanna, enda er það höfuð- skemmtiatriði í hófum þessum að ræða um náungann. Áhrifa tyrknesku nútímakon- unnar gætir mest á sviði tízku og heimilisiðnaðar enn sem komið er. Virðist þetta rökrétt þróun, þar sem allar fram- kvæmdir þeirra og starfssvið var takmarkað við heimilið áð- ur fyrr. Gott dæmi um þessa stefnu er tyrkneska kvenna- (Framhald á 7. síSu) Vilhelm Moberg: Kaffibrauð Ferhyrndar smákökur. 250 gr. hveiti. 200 gr. smjörlíki. 110 gr. sykur. 2 eggjarauður. i/4 tesk. hjartarsalt. Hnoðað saman hveiti, smjör- líki og sykri og vætt í með eggja- rauðunum. Flatt út. Búnir til smáir teningar. Smurt á kök- urnar kremi, sem er búið til úr 125 gr. flórsykri og 1 eggjahvítu. Bakað við hægan eld. Amerísk formkaka. iy3 bolli hveiti. iyz tesk. lyftiduft. tesk. salt. 3 egg. 1 bolli sykur. Vanilludropar. y3 bolli vatn. Sigtið hveitið, bætið lyftidufti og salti út í, sigtið aftur. Þeytið eggjahvíturnar þangað til þær eru orðnar stífar og látið helm- inginn af sykrinum út í smátt og smátt. Þeytið síðan eggja- rauðurnar, látið það sem eftir er af sykrinum út í ásamt van- illudropunum, bætið vatninu út í smátt og smátt. Hrærið síðan hvítunum saman við. Síðan hveitinu. Bakað í ferhyrndu eða kringlóttu formi vel smurðu við hægan eld í 45 mín. Amerískar smákökur. % bolli hveiti. x/s tesk. salt. 3 egg. 1/2 bolli sykur. Vanilludropar. Sigtið hveitið með saltinu. Þeytið hvíturnar stífar, bætið sykri út í smátt og smátt (að- eins helmingnum). Þeytið eggja- rauðurnar og látið það sem eftir er af sykrinum og rauðurnar út í. Hrærið varlega saman hvít una og rauðuna. Hrærið síðan hveitinu saman og bætið því út í smáskömmtum. Deigið er síð an látið á vel smurða plötu og búnar til lengjur um 5 cm. langar. Bakað við hægan eld í 15 mín. Eiginkona. York-kaka. 125 gr. smjörlíki. 3 egg. V4 kg. sykur. Sítróndropar. Kardemommur. 2 tesk. lyftiduft. i/2 kg. hveiti. 4 dl. undanrenna. Smjörlíki, eggjum, sykrin- um, kardemommunum, sítrón dropunum og lyftiduftinu hrært saman. Hveitinu og mjólkinni hrært saman. Deigið látið í smurt fórm og bakað í klukku tíma. Eggjahvítukaka. % kg. hveiti. % kg. smjörlíki. % kg. sykur. Kardemommur. 3 dl. undanrenna. 2 tesk. lyftiduft. 125 gr. kúrenur. Súkkat. 8 eggjahvítur. Smjörlíkið mulið út í hveitið Sykrinum, kardemommunum mjólk, kúrennum, lyftidufti og smátt skornu súkkati blandað saman við. Þeyttum eggjahvít um bætt út í. Bakað í smurðu formi í iy4 klst. Hveitikex. 1/2 kg. hveiti. 200 gr. smjörlíki. 2 egg. iy4 dl. mjólk. 1 tesk. salt. 1 tesk. sykur. Smjörlíkið mulið út í hveitið sykri og salti bætt við. Síðan eggjum og mjólk. Deigið hnoð að vel og látið bíða í y2—1 tíma Flatt þunnt út og búnar til kringlóttar eða ferhyrntar kex- kökur. Bakað ljósbrúnt. S v o v ar um honur Uve&ið Kynleg er kvennaástin. Hún likist skeggi mannsins. Því styttra sem það er skorið, því meir vex það — og hvort tveggja er plága. Douglas Jerrold Satfa barnanna: JÚLLI OG DÚFA Eftir JÓW SVEIHSSON. Freysteinn Gunnarsson þýddi FRAMHALD hæð. Það iðaði eitthvað innan í henni — svona var það líka. þeg- ar hún fylltist helgri og hátíðlegri lotningu. En er það ekki ljótt af henni að hugsa um kirkjuna á þessu kvöldi? Það átti þó ekki að vígja hana fyrir framan altarið; það var í fyrrasumar, sem, ., , , það var gert, og það var heiiög og sjaidgæf athöfn, og hún iðaði jarnvir i annan enda þeirra. Siðan var snuið a vmnn, og brann, þegar hún gekk upp að altarinu .... Það var eins og núna — það var alveg eins og núna. Og henni fánnst hún hafa lifað þetta margoft áður, hundrað sinnum og ennþá_ oftar. Hún hefir setið svona, eins og hún gerir núna, og beðið hundrað kvöld. Þetta er alls ekki nýtt fyrirbæri. Hún hefir beðið lengi — allt frá því á brúðardegi sínum. Hún beið í vetur við spunarokkinn og vefstólinn. Hún hefir beðið frá morgni til kvölds, í vetur og fyrra og hitteðfyrra og lengur. Kannske eftir þessu rökkri, sem ekki kemur .... Hvi lætur guð ekki húma? Hvers vegna hleypir hann ekki húminu niður á jörðina? Enn er svo bjart inni í stofunni, að hún þarf ekki að kveikja. Hún gæti auðvitað tendrað lítinn furuviðarkyndil og látið hann á arininn, en hún sér ósköp vel, hvað hún er með 1 höndunum. En raunar er hún ekkert með í höndunum. Hún ætti að sýsla við eitthvað, svo að tíminn liði fijótar. Hún gæti setzt við sauma. En hún er búin að falda öll lökin sín. Það er ekki svo auðvelt að finna eitthvað til þess að dunda við, meðan hún bíður myrkursins, sem aldrei ætlar áð koma. Jú, hún gæti látið ný lök í rúmið þarna — rekkjan stendur úti í horninu og tjald- að kringum hana, gríðarstór og rúmfrek. Hún getur skipt i rúminu, það er þó verk, sem þarf að gera hvort eð er, og hún getur alveg gert það núna eins og á .jnorgun eða hinn daginn. Bara til þess að dunda við eitthvað — ekki af neinu öðru .... Þegar hún er búin að þessu, situr hún kyrrlát og ugglaus á bekknum í svefnherberginu. Þetta er Margrét, unga konan hans Páls Gertssonar, sem situr þarna; og hún ætlar-að vera á fótum dálitla stund enn, ’því að gamla klukkan gaf henni til kynna, iegar hún sló áðan, að það væri ekki orðið svo ýkja framorðið. En kannske fer hún bráðum að geispa. Og þá ætlar hún strax að halla sér út af. Það er alls ekki fleira, sem hún þarf að hugsa um nú í kvöld. Allar hurðir eru læstar, og hún er búin að draga hlera fyrir alla gluggana. Þótt einhver þjófur kynni að koma, yrði það síður en svo auðvelt fyrir hann að brjótast inn. En það er óþarfi að óttast þjófa, þegar næturnar eru svona bjartar, sagði Páll. En það er samt sem áður ekkert hægt að staðhæfa.....Nú virðist vera orðið aldimmt úti .... Og Margrét þýtur upp dauðhrædd. Það var komið við stafn- gluggann! Ljúfi guð! Hver gat það eiginlega verið? Það var hennar skylda að verða hrædd, og sú skylda var henni svo hug- stæð, að hún var nærri því heilt andartak að jafna sig. En hún er samt ekki hræddari en svo, að hún gengur hröðum skrefum yfir gólfið út að glugganum og iosar hespurnar. Kaldan súg legg- ur á móti henni, hann leikur um heitar kinnar hennar. Er næð- ingur úti í kvöld? En henni finnst bara gott að fá svalann á andlitið. Og þarna er kominn maður, eins og golan hafi feykt hon- um inn. Hann hefir verið hér um bil jafn fljótur á sér og súgur inn, og hann stendur á gólfinu og lyftir henni upp í fangi sér, svo þung sem hún þó er. Hún finnur stælta handleggina Íykj - ast um sig. Enn gætir hún þó allrar skynsemi, hún hugsar um allt — herbergið er svo nærri öðrum vistarverum, glugginn slæst í golunni .... glugginn, glugginn — hvers vegha lokarðu ekki giugganum á eftir þér og hespaðir? En þegar hún er búin að sannfæra sig um, að glugganum hafi verið lokað, er henni allur máttur þrotinn. Því að nú er hann fyrst kominn að henni eins og stormur, og hún hefir sjálf opnað gluggann fyrir storminum. Hún er að því komin að gefast uþp, og það fer skjálfti um hana. Hún lokar augunum — hún er örmagna, hún er eins og ljós, sem er að deyja; hún getur varla haldið augunum opnum. Já, hún er orðin svo magnþrota, að hún getur ekki lengur lyft augnalokunum. Hvað hefir hann gert? Lífið, sem svellur í blóði hennar, er nú einrátt. Og svo kemur það, eins og hljóðlát stuna í sárum þrautum: — Gerðu það, sem þér sýnist. 4. LEITIN Nú bjuggu menn sig í snatri að leita fjárins og sáuða- mannanna. Sumir tóku stóra stafi og festu sterkan þangað til hann var orðinn eins og tappatogari í lögun. Aðrir smöluðu saman öllum skóflum og rekum, sem jþeir fundu, og kölluðu á hunda þá, sem heima voru. Þegar þessum einkennilega viðbúnaði var lokið, lögðu af stað allir karlmenn, sem vettlingi gátu valdið Enginn var eftir heima, nema konur og böm. Leitinni var hagað svo, að fyrst fara menn á þá staði, sem helzt má ætla, að menn eða fé hggi grafið í fönn. Þar eru hundarnir látnir snuðra til og frá um skafl- ana. Ef einhver þeirra tekur þá til að krafsa og róta í snjónum, þá er það merki þess, að hann hefir fundið af þefnæmi sinni, að þar er eitthvað kvikt undir. Þá hlaupa mennirnir þar að, og einn þeirra stingur iar niður stafnum, þangað til hann finnur, að eitthvað annað en snjórinn er fyrir honum. Um leið og hann verður þess var, snýr hann stafnum nokkra hringi, alveg eins og tappatogara, þegar tekinn er tappi úr flösku. Ef stafurinn er þá jafnlaus eftir sem áður, má gera ráð fyrir, að þar sé ekkert kvikt undir. En ef hann er ástur, þá er sennilegast, að vírinn hafi vafizt í ull á kind eða klæði á manni. Og þá grípa menn rekurnar og grafa í fönnina af alefli. En hvernig getur það verið, kann einhver að spyrja, að menn og skepnur geti lifað svo lengi undir stórum snjóskafli? Hljóta ekki allir að kafna þar? Nei, það ber ekki á því. Loftið berst ótrúlega vel í gegnum snjóinn. Og það kemur ekki svö sjaldan fyrir lér á landi, að kindur eru grafnar undir snjó svo vik- um skiptir og nást þó lifandi úr þeirri köldu gröf. — Rökkrið var þá komið, og Margrét var ein hjá Hákoni langt inni í myrkrinu bak við rekkjutjöldin, og í myrkrinu umhverfis vakti kyrrðin ein. Og hún beið ekki með að segja honum, hvað hún hafði verið að gera rétt áður en hann kom. Þessi hreinu og sléttu lök, sem nú voru í rúminu, voru úr nýju léreftunum henn- ar. Það voru þessi lök, sem hann hafði ætlað að bjarga, þegar hún breiddi þau til bleikingar í vor — þarna þegar hún hafði í fyrsta sinn orðið þess vör og skilið það, hver hann var. Og án þess að vita fyllilega, hvað hún gerði, hafði hún látið lökin þau arna í rúmið núna áðan. Ef til vill hafði hún gert það af því, að þau voru svo fléttuð inn í drauma hennar og hugboð Þau höfðu orðið til á þessum langa og sára biðtíma. Kannske hafði hún flýtt sér að sauma þau, þegar hún vissi eftir hverjum hún beið. Og nú voru þessi lök undir honum og henni — nú voru þau komin í rúmið. Hún vippaði sér nær honum, og hlátur sem lengi hafði dulizt djúpt í sál þessarar ungu konu, seytlaði allt í einu fram. Hvað sagði hann um þetta? Og hvað hugsaði hún sjálf? Margrét — leiksoppur sjálfs- blekkingarinnar. Nú var hún aftur komin til sjálfrar sín. Hversu oft hefir hún ekki blekkt sjálfa sig í seinni tíð! Nú hefir hún í marga daga verið að blekkja konuna, sem varð svo hrædd áð- an, og villa henni sýn. Hún hefir blekkt sjálfa sig svo rækilega, að nú er það orðið, sem orðið er. Og nú gefst hún upp, nú vill hún bara sökkva, nú vill hún aðeins fá að lifa Óskýranlega djúpur friður hefir færzt yfir hana þarna í rúminu og vafizt að henni eins og mýksta ábreiða. Það var eins og hún hafði nú fyrst öðlazt öryggi á heimili sínu. En Hákon var ekki enn kominn á þetta stig. Hann var das aður eftir það, sem hafði gerzt. Þetta hafði dunið svo skyndi lega yfir, að hann hafði ekki getað hent reiður á atvikunum. Hann hvíldi í rekkju Margrétar, hún hvíldi hjá honum og þrýsti sér að honum, og hún hafði sagt, að hann mætti gera allt, sem hann vildi. En hann skildi það ekki enn, að þetta var veruleiki. Öllum þeim, fjœr og nær, sem 14. des., á sjötugsaf- mœli mínu, glöddu mig með gjöfum, heimsókn og heilla- skeytum, þakka ég hjartanlega; þar á meðal börnum mín- um og tengdabörnum. í guðs friði! Haga, 31. des. 1944. KÁRI MAGNÚSSON Öllum þeim hinum mörgu, bœði fjœr og nœr, sem á 80 ára afmœlí mínu, 15. des. síðastl., veittu mér vinarhót með heimsókn, gjöfum og heillaskeytum, votta ég beztu þakkir og bið þeim alls velfarnaðar. Hoftúnum, 24. des. 1944. JÓN G. SIGVRÐARSON Samband ísl. santvinnufélaga. SAMVINNUMENN: í samvinnufélögunum fáið þér eins mikið fyrir hverja krónu og unnt er. Atvinna vanur IlrGÍnlegiir og duglegur maíliur. mjölÉuu og skepnuMrðingu, óskast í ársvist á kúabú við Reykjavík. Árslaun 10 þúsund krónur auk fæðis, þjónustu og húsnæðis. Upplýsingar hjá afgreiðslu Tímans, simi 2323.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.