Tíminn - 20.02.1945, Qupperneq 7
14. hlað
TtMlNX, |irið|nclagiim 20. febr. 1945
Efsta mynd: Heimavistahúsið til vinstri, íþróttasalur, skólahús og skóla-
stjóraíbúð á miðri mynd og til hægri. Myndin í miöið: Sundlaugin ásamt
búningsklefum og handavinnusal. Neðst'a mynd: Bryggjan og naustið í
Reykjanesi.
Reykjanesskólínn tíu ára
Síðastliðið haust varð Reykjanesskólinn 10 ára. Aðalsteinn Ei-
ríksson lét þá af skólastjórn, en það má segja, að skólinn eigi
honum að þakka vöxt sinn og viðgang. Við skólanum tók Þór-
oddur Guðmundsson frá Sandi, en hann hafði áður verið kenn-
ari við héraðsskólann á Eiðum. Tíðindamaður blaðsins hefir
fengið ýmsar upplýsingar um 10 ára starf Reykjanesskólans hjá
Aðalsteiiíi Eiríkssyni,
Reykjanesskólinn við ísafjarð-
ardjúp er fyrsti heimavistar-
skólinn, sem fleiri en eitt sveit-
arfélag standa saman að. Þegar
hann var reistur var því engin
reynsla fengin fyrir rekstri
heimavistarskóla barna hér -á
landi, sem fleiri en eitt skóla-
hérað stóðu að.
Staðurinn, sem skólanum var
valinn, er í marga staði hinn á-
kjósanlegasti. Hann liggur að
heita rná í miðju héraðinu. Þar
er mikill jarðhiti. Héraðsbúar
höfðu lengi haft augastað á
Reykjanesi fyrir skólasetur. Þar.
voru kenndar íþróttir frá - því
um miðja 19. öld. Árið 1937 var
stofnaður þar héraðsskóli með
sérstakri undanþágu um náms-
tíma.
Á Reykjanesi var mikið verk
að vinna, því að þar þurfti að
reisa allt frá grunni. Á stofnári
skólans var byggt skólahús með
tveimur kennslustofum, skóla-
stjóraíbúð og annað nauðsynleg-
asta húsnæði fyrir kennsluna.
Þessi hús voru öll raflýst með
steinolíustöð. Ári seinna, eða
heimavistahúsið og auk þess
stofur og salerni við gamla
heimavistarhúsið og auk þess
nauðsynleg peningshús, fjós og
hlaða. Árið 1936 eru hafnar
lendingarbætur og byggð 15 m
löng steinuppfylling og 12 m
löng trébryggja. Næstu ár fram
til 1940 eru aðalframkvæmdirn-
ar ræktunarframkvæmdir -og var
allmikið land brotið og um-
hverfi skólans fegrað. Árið 1940
—’41 var Langeyrarstöðin keypt,
hún rifin og flutt að Reykjanesi.
Úr því efni var byggt allstórt
hús fyrir heimavist nemenda og
starfsfólk, eru í því 17 herbergi
auk snyrtiklefa, borðstofu og
eldhúss.
Árin 1942—’44 voru enn hafn-
ar miklar byggingar í Reykja-
nesi. íbúð skólastjóra var breytt
í tvo kenn'slusali og nýbygging-
ar byggðar beggja megin skóla-
hússins. Annað <er íbúð skóla-
stjóra, en hitt íþróttasalur, böð
áhaldaklefi, bókasafn og fleira.
Þá var og byggð stór vinkilbygg-
ing við sundlaugina, sem í er:
Á neðri hæð smíðastofur og
efnisgeymslur, en á efri hæð
búningsklefar, gufubaðsklefar
og vatnsbaðsklefar. Sundlaugina
er verið að lengja um 20 m.,
verður hún þá alls 50 m löng og
12 m breið. Stofnkostnaður skól-
ans var 744.506,84 kr. lagður
fram af ríkissjóði, skólahéraði
barnaskólans, Norður-ísafjarð-
arsýslu, ísafjarðarkaupstað og
örlitlu leyti af Vestur-ísafjarð-
arsýslu. Skuldlaus eign var í
ágúst 1944 694.505,85 kr.
Þau 10 ár, sem barnaskólinn
hefir starfað hafa sótt hann 96
piltar og 64 stúlkur, flest úr
Reykjafjarðar- og Nauteyr-
arhreppum. Héraðsskólann hafa
sótt 172 piltar og 115 stúlkur.
íþróttanámskeið skólans hafa
alls sótt um 1100 börn.
Fjölskyldu Aðalsteins var
haldið veglegt samsæti í Reykja-
nesi i september s. 1., kom við
það tækifæri vel í ljós hugur
héraðsbúa til þeirra hjóna. Sam-
sætið sátu nokkuð á annað
hundrað manns, margar ræður
voru fluttar, skáldið Guðmund-
ur Ingi flutti Aðalsteini fagurt
kvæði og verður það birt hér í
blaðinu bráðlega. Aðalsteinn lét
bess getið í viðtali sínu við tíð-
indamann blaðsins, að hann
væri ánægður með eftirmann
sinn og vænti hins bezta af
honum. Enda bíður hans mikið
verkefni í Reykjanesi, því að
bað, sem þar á að gera er form-
að en ekki lokið. Aðalsteinn
rómaði mjög samstarfið við
fólkið í héraðinu og hvað það
hafa verið framúrskarandi gott
og ánægjulegt.
Jafnrétti
(Framhald af 4. síðu)
beri í samanburði við samherja
hans.
Auk þess er vitað mál, að ekki
eru allir, sem hafa réttindi,
hæfari til kennslu en hinir rétt-
indalausu, og styðst ég þar við
orð fyrrv. kennara Kennaraskól-
ans, sem hefir mörgum öðrum
meiri reynslu í þessum málum.
Vil ég svo ekki orðlengja þetta
frekar, en mig langaði aðeins
til að láta í ljós álit mitt á þeirri
„jafnréttisstefnu“, sem virðist
vera fylgt á Alþingi — þó að
okkur hafi verið lofað af hálfu
stjórnárinnar jafnrétti, ásamt
mörgu öðru. — Vil ég svo að
endingu óska fræöslumálastjóra
og öðrum þeim, er málum þess-
um unna, til hamingju með alla
þá nýliða, sem tækju við störf-
um í haust, ef helmingur allra
farkennara landsins hætti störf-
um i einu.
Grundarfirði, 16. jan. 1945
TíMINN
Þeir, sein fylgjast vilja með
almennum málum verða að lesa
Tímann.
Áskriftarverð í Reykjavík og
Hafnarfirði er 4 kr. á mánuði.
Áskriftarsími 2323.
Aski’iftargjald Tímans
utan Rvíkur og Hafnarfjarðar
er kr. 30.00 árgangurinn.
Fyrirspurnum
svarað
í síðasta tölublaði Tímans ger-
ir Hannes Pálsson tvær fyrir-
spurnir til sauðfjársjúkdóma-
nefndar.
1. Hannes spyr, hvort rétt sé,
að blóðprófanir við garnaveiki,
er Björn Sigurðsson hefir með
höndum séu ekki „ábyggilegri“
en svo, að ólík útkoma komi
fyrir úr tveim sýnishornum úr
sömu kind, teknum sama dagj
Hér mun H. P. eiga við dæmi
það, er dagblaðið Vísir birti í
skýrslu, er Sigurjón Pétursson,
Álafossi gaf blaðamönnum fyrir
nokkru. Sé gengið út frá því, að
sýnishornin „frá Hafnarfirði"
hafi verið úr kindunum frá
Reynisvatni, er við höfum enga
ástæðu til að rengja, er ekki
hægt að neita því, að útkom-
unum ber ekki saman. í áður-
nefndu blaði (21. tölubl. Vísis),
er gerður samanburður á út-
komunni og er það í samræmi
við þá niðurstöðu, er gefin var
upp til skrifstofu sauðfjárveiki-
varnanna af Birni Sigurðssyni
lækni. Þetta hefir B. S. sjálfur
viðurkennt í grein, er hann
skrifar í Morgunblaðið 30. jan.
s.l., og gefur þar nokkrar skýr-
ingar á ástæðum fyrir því, að
þetta háfi getað átt sér stað.
Nánari upplýsingar getum við
ekki gefið um þetta, þar sem
nefndin hafði ekki ástæðu til
að láta gera slíkan samanburð
til að prófa nákvæmni rann-
sóknanna að þessu leyti.
Hins vegar hafði nefndin fulla
ástæðu til að gera sér góðar
vonir um þessar rannsóknir eft-
ir tilraunir er B. S. læknir grði
á 40—50 kindum s.l. sumar, er
margar voru garnaveikar. Virt-
ist niðurstaða við slátrun þessa
fjár í haust koma mjög vel heim
við útkomu blóðrannsókna, er
B. S. gerði á þeim s.l. sumar.
Verða því mikil vonbrigði fyrir
nefndina, ef til kæmi, að rann-
sóknaraðferð þessi gæfist ekki
éins vel og ætlað var.
2. Þá -spyr Hannes eftir því,
hvort rétt sé með það farið hjá
Sigurði Bjarnasyni alþingism.,
er hann skýrði frá í útvarpi, að
engin kind væri nú lifandi af
þeim, sem Sigurjón Pétursson
hefði gert lækningatilraunir á
s.l, vetur.
Þessu er fljótsvarað. Alþingis-
maðurinn hefir í þessu atriði
ekki leitað sér upplýsinga sem
skyldi, ef honum er annt um,
að segja fullan sannleikann,
þegar 'hann talar í útvarp.
Skýrsla sú, er prófessor Níels
Dungal hefir gefið blaðamönn-
um um árangur af tilraunum
Sigurjóns Péturssonar, sannar
það, að 4 kindur eru enn á lífi
hjá þeim 7 bændum, er um get-
ur í skýrslunni. Þó er þessi
skýrsla ekki tæmandi fyrir til-
raunir S. P„ því að tiiraunir voru
gerðar hjá fleiri bændum en
þar getur um. Er okkur kunnugt
um, að nokkrar fleiri kindur
lifa enn hjá bændum, sem
reyndu þetta s.l. vetur, og má
sem dæmi benda á vottorð Sig-
urðar Jónssonar bónda á Arnar-
vatni er birt var í Vísi þann 10.
þ. m. Ennfremur má geta þess,
að miklar líkur eru til, að marg-
ar af þeim kindum, er nú eru
dauðar, af þeim, sem tilraunir
voru gerðar á, hafi farizt fyrir
mistök við inngjöf og vegna
kulda og jafnvel bleytu í húsum
meðan á tilraunum stóð. Margar
af kindunum lifðu til hausts og
skiluðu vænum dilkum ,en var
þá slátrað. Því miður liggur
ekkert fyrir um það, hvort þær
vom læknaðar af veikinni, eða
ekki. Flestar þær kindur, er til-
raunirnar voru gerðar á, voru
orðnar mjög veikar og gat því
verið full ástæða til að farga
þeim í haust, jafnvel þó að inn-
gjöfin hafi getað valdið því, að
veikin stöðvaðist og ærnar skil-
uðu arði.
Að lokum viljum við taka
fram, að okkur finnst það skort-
ur á hlutleysi, svo ekki sé meira
sagt, að fárast um tilraunir
þessar eins og gert hefir verið
í blöðum og útvarpi, á meðan
sauðfjársjúkdómanefnd bíður
eftir nægilega yfirgripsmiklum
og glöggum skýrslum um árang-
ur þeirra. En það hlýtfir jafnan
að taka langan tíma, jafnvel
svo árum skiptir, að sannprófa
árangur lækningatilrauna á svo
7 '
iVÝ ST ÁRLEG BÓK:
Orrustan um Stalingrad
. ' •“ '•' •"• •“" •'*'• r' • -' _ » — • anp
í þessum mánuði kemur á markaðinn ný bók, sem fjallar um
hina heimssögulegu bardaga um borgina Stalingrad. Er sögu
þeirra þar lýst- í máli og myndum. 68 myndir, flestar stórar, og
kort sýna glögglega gang þessara viðburða.
Þétta er fyrsta bókin, sem birtist á íslenzku um einstakar viður-
eignir þessarar styrjaldar.
Nú, þegar fall Berlínar virðist yfirvofandi, er ástæða fyrir menn
að rifja upp söguna um Stalingrad, því það mun dómur sög-
unn, að þar hafi verið rofið fyrsta skarðið í virkismúr Berlínar.
— Bókin verður 60—70 blaðsíður 1 Helgafellsbroti og er prentuð
á afbragðsgóðan myndapappír.
Verð hennar til áskrifenda verður ekki yfir 20 krónur.
Áskriftarlistar í afgreiðslu Þjóðviljans, í Bókabúð Máls og menn-
ingar, Bókaverzlun Guðmundar Gamalíelssonar og víðar. —
Einnig má panta hana beint frá útgefanda.
Bókaútg’áfan R ú n, Slgluiirði
FUMDUR
verður haldinn í Framsóknarfélagi Reykjavíkur í Kaupþings-
salnum, þriðjudaginn 20. þ. m.
Fundurinn hefst kl. 8y2.
FUNDAREFNI : Lóðamál í kaupstöðum og kauptúnum.
Frummælandi: Jens Hólmgeirsson.
STJÓRJVIJV.
Erlcnt yfirlit.
(Framhald af 2. síðu)
mest öngþveiti og ringulreið.
Jafnframt tóku þeir að safna
öllu liði sínu til Aþenu. Þang-
að streymdu vopnaðaír sveitir
hvaðanæfa. Bretar reyndu í
lengstu lög að leiða þetta hjá
sér og það var ekki fyrr en
kommúnistar voru búnir að
taka alímikilvægar opinberar
stofnanir í Aþenu, að Scobie
hershöfðingja var fyrirskipað að
skerast í leikinn. Fyrir atbeina
Breta var hinni fyrirhuguðu
byltingu afstýrt, en slík var
framkoma kommúnista í þeirri
baráttu, að brezkir hermenn,
sem höfðu barizt á ítaliu, sögðu
að þeir væru grimmari og mann-
úðarlausari en Þjóðverjar.
Til sönnunar þessu framferði
kommúnista fer hér á eftir frá-
sögn brezka sendiherrans í A-
þenu, Mr. Leeper: Stöðugt síðan
Þjóðverjar fóru úr Grikklandi
hefir hinn fámenni en vel vopn-
aði flokkur kommúnista haldið
uppi ógnaröld í landinu. Með
vissu’verður ekki sagt um, hve
margir hafa verið drepnir eða
handteknir áður en sjálf bylt-
ingin í Aþenu hófst,. en þegar
allur sannleikurinn kemur í ljós,
verður hryllilega sögu að segja.
Strax og bardagarnir hófust í
Aþenu, jukust þó ógnarverkin
í stórum stíl. Karlmenn, konur
og börn voru myrt í stórhópum
og þúsundir gisla teknir. Gisl-
arnir voru fluttir burtu og hlutu
svo hörmulega meðferð í þess-
um flutningum, að margir þeirra
dóu á leiðinn. Fregnir frá Salon-
iki segja frá sams konar hryðju-
verkum þar.
Til viðbótar þessari frásögn,
er til lýsing margra brezkra her-
manna á hinni hryllilegu með-
ferð gislanna. Þeir voru látnir
ganga langar dágleiðir klæð-
lausir og matarlausir, oft í
versta veðri. Þeir voru barðir og
pyntaðir og fjölmargir létu líf-
ið. í einum hópnum, sem taldi
•um 800 manns, dóu 200 á 10 dög-
um. Einn brezkur liðsforingi,
sem sérstaklega hefir kynnt sér
þessi mál, telur, að 1200 til 1500
manns hafi verið teknir af lífi,
flestir höggnir með öxum eða
stungnir hnífum. Gislarnir, sem
teknir voru, skiptu mörgum
þúsundum. —
Síðan Churchill gaf þessa lýs-
ingu, hafa komið fram mörg ný
atriði, er staðfest hafa þessa lýs-
ingu hans. Þau blöð, sem áður
gagnrýndu hann, hafa því orðið
að viðurkenna, að þau hafi haft
rangt fyrir sér, þegar þau héldu
því fram, að Elasmenn væru
frelsisvinir og lýðræðissinnar.
Þau hafa orðið að játa, að hér
hafi verið að.verki ofbeldis- og
hryðjuverkaflókkur, sem jafnvel
skarar fram úr nazistum á því
sviði. T. d. hefir Manchester
Guardian, sem áður hafði harð-
lega gagnrýnt Churchill, nýlega
viðurkennt, að bersýnilega hafi
langvinnri veiki sem mæðiveik-
in er.
Reykjavík, 12. febr. 1945.
Gunnar Þórðarson
Ingimar Jónsson
spellvirkjar og glæpamenn af
verstu tegund verið miklu ráð-
andi um gerðir Elasmanna.
Walter Citrine, einn aðalleiðtogi
ensku verklýðsfélaganna, er fór
til Grikklands til að kynnast
þessum málum, lét svo um mælt,
að hann hefði ekki getað hugsað
sér slík ógnarverk og hann
komst að raun um, að Elasmenn
hefðu unnið. M. a. sá hann lík
margra manna, sem Elasmenn
höfðu myrt og síðan kastað í
hrúgu.
Það má líka telja víst, að
meðal Grikkja sjálfra séu dagar
þessa flokks að miklu leyti taldir.
Hann hefir nú neyðst til að
semja um, að afhenda þá gisla,
sem voru enn á valdi hans, og
leggja jafnframt niður vopn sín.
Byltingartilraun hans hefir ver-
ið bæld niður að fullu og al-
mennar, frjálsar kosningar, sem
hann barðist mest á móti, verða
látnar fara fram. Fyrir tilstyrk
Breta hefir lýðræðisstefnan bor-
ið hærra hlut í Griklandi. At-
burðirnir þar ættu að hjálpa
mönnum annars staðar til að
varast hættuna, sem þar kann
að stafa af skoðanabræðrum
Elasmanna, sem enn hylja sig
bak við lýðræðisgrimuna, líkt og
Elasmenn, þegar þeir vóru í
stjórn Papandreou.
Frá tyrkneskum
konum.
(Framhald af 5. síðu)
blaðið Kadin Ev (a: Konan og
heimilið). Birtir það bæði tízku-.
myndir og greinar um sérstök
áhugamál kvenna. Ábyrgðar-
maður blaðsins er tyrkneski
kennslumálaráðherrann. Kadin
Ev birtir mjög glæsilegar tízku-
myndir, er gefa góða spegil-
mynd af tyrkneskri tízku,- sem
stendur sízt að baki hinni nafn-
frægu Parísar-tízku, eins og
hún var fyrir stríð. Þar eru
aldagamlir hlutar af tyrknesk-
um þjóðbúningum fléttaðir
saman við ameríska og enska
tízku á aðdáunarverðan hátt,
þannig, að vel megi fara á hin-
um hávöxnu, dökkhærðu blóma-
rósum Tyrklands.
Kennslumálaráðherra Tyrk-
lands ritaði formála nokkurn að
fyrsta eintaki Kadin Ev. Lagði
hann þar áherzlu á það, sem
áður hefir verið minnzt á í þessu
greinarkorni, þ. e. að konur hafi
eins mikið hlutverk að inna og
karlmenn í þágu þjóðar sinnar
og að með góðri menntun kven-
U.N D I R F Ö T,
IVÆRFÖT og
AÁTTKJÓLAR
H. TOFT
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.
Tvöíaldar kápur
úr^góðu efni
á fullorðna os’ börn
H. Toft
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.
Sjötugur
(Framhald af 6. slðu)
nokkur ár í stjórn Kaupfél. N,-
Þing. á Kópaskeri. Árið eftir að
hann kom, 1913, var hann kos-
inn oddviti hreppsnefndar og
hefir verið það óslitið síðan og
sýnt framúrskarandi ósérplægni
í því óvinsæla starfi. Auk þessa
jhefir hahn gegnt ýmsum fleiri
trúnaðarstörfum.
Það er ekki vegna skorts á
hæfum mönnum, að Benedikt
hefir svo lengi haft með hönd-
um opinber störf í sveit sinni,
heldur vegna þess, að hann er
og hefir ætíð verið grjótpáil
duglegur og haldið vel á spilun-
um fyrir hreppsins hönd, enda
kunna' sveitungar hans að meta
þetta mikla starf hans. Einkum
hefir hann verið virtur og dáð-
ur í sveitinni fyrir það, hvað
hann hefir haldið vel á málum
sveitarinnar gegn hrokafullum
embættismönnum og stórlátum
yfirvöldum, sem ávallt vilja
ganga á hlut lítilmagnans.
Þau Kristbjörg og Benedikt
hafa átt 6 mannvænleg börn og
eru 5 þeirra á lífi. En áður en
Benedikt giftist átti hann einn
son, og er það Helgi Benedikts-
son í Vestmannaeyjum.
Þau Þverárhjón eru orðlögð
fyrir gestrisni og greiðasemi og
njóta almennra vinsælda.
B. S.
þjóðarinnar sé stórt skref stig-
ið á framfarabrautinni. Er það
sannmæli.