Tíminn - 02.03.1945, Blaðsíða 7

Tíminn - 02.03.1945, Blaðsíða 7
1T. blað TtMlM, föstodagiim 2. marz 1945 7 Kátír voru karlar Drottningin: Stopp, segi ég! Vamban: Hjálpi nú allir heilagir! Leifi langi: Ho, ho .... Vamban: Þjófur, ræningi .... Tilkynning írá Fiskimálanefnd Allir l»eir, sem lagt hafa flsk inn til söltunar yfir tímabilið 10.-31. jan. síðastl. eru hérmeð áminntir um, að þeir verða að gefa Fiskimálanefnd upplýsingar um heildarmajgn þess afla nú þegar. Að öðrum kosti getur afli sá ekkl komið til greina við ntborgian verð- jöfnunargjalds fyrir janúarmánuð. Fískimálaneind. SAVON de PARÍS mýUir húðina off styrkir. Gefur henni yndisfagran litblœ og ver hana kvillum. NOTiÐ SAVON The World’s News Seen Through ' The Christian Science Monitor An lnternational Daily Newsþaper u Truthful—Constructive*i--Unbia8ed—Free from Sensaúonal- ism — Editorials Are Timely and Instructive and Its Oaily Features, Togeíher wifh the Weekly Magazine Section, Make the Monitor a.n Ideal Newspaper for the Home. The Christian Science Pubiishiiag Society Onev Norway Street, Boston, Massachusetts Price $ 12.065 Yearly, or $1.00 a Month. Snrurdoy Iasue. including Magazine Section, 1(2.60 a Ymut. lntroductory Offer, 6 Issues 25 Centa. SAMPLB COPY ON RBQUEST ORBSENDING TIL KAITPENDA TÍMANS. Ef kaupendur verða fyrir vanskilum á blaðinu, eru þeir vin- samlega beðnir að gera afgreiðslunni þegar aðvart. Wllliatn Key í Ungverjalandi William S. Key hershöfðingi, sem var hér yfirmaður ameríska hersins, hefir verið fengið starf í etirlitsnefnd Bandamanna í Ungverjalandi. Með honum verða foringjar, sem voru í liði hans hér á landi, þeir B. S. Townsend ofursti, Prank W. Gillespie og William S. Dietrikt. — Key hershöfðingi er formað- ur nefndarinnar. í nefnd þess- ari verða fultrúar frá Rússum, Bretum og Bandaríkjamönnum. Nýr hagfræðíngur Jónas Haralz lauk meistara- prófi í hagfræði við háskólann í Stokkhólmi í desembermánuði síðastliðnum með mjög góðum vitnisburði. Hlaut hann hæstu einkunn, sem gefin er, í þrem námsgreinum, hagfræði, tölu- fræði og þjóðfélagsfræði og góða einkunn í hagnýtri sálar- fræði. Jónas Haralz er sonur þeirra Haralds heitins Níelssonar, pró- fessors og frú Aðalbjargar Sig- urðardóttur. Hann varð stúd- ent við menntaskólann hér í Reykjavík árið 1938 með ágæt- iseinkunn. Fél.myndlístamanna Félag myndlistármanna hélt aðalfund sinn nýlega. Var for- maður félagsins, Guðmundur Einarsson frá Miðdal, endur- kosinn, einnig var ritari félags- ins, Finnur Jónsson, endurkos- inn, en Jón Þorleifsson var kos- inn gjaldkeri í stað Marteins Guðmundssonar, er baðst undan endurkosningu. Varamenn í stjórn voru kosn- ir þeir Magnús A. Árnason og Freymóður Jóhannsson. í sýninganefnd voru kosnir Finnur Jónsson, Jón Engilberts, Kristinn Pétursson, Eggert Guð- mundsson og Guðmundur Ein- arsson. Til vara Magnús A. Árnason, Þorvaldur Skúlason og Jcþi Þorleifsson. í Bandalagsráð voru kosnir Finnur Jónsson, Jóhann Briem, Guðmundur Einarsson, Jón Þor- leifsson og Sveinn Þórarinsson. Til vara . Gunnfríður Jónsdóttir og Freymóður Jóhannsson. í úthlutunarnefnd voru kosn- ir Jón Engilberts, Guðmundur Einarsson, Ríkharður Jónsson, Finnur Jónsson og Þorvaldur Frá Færeyjutti Bækur um Faereyjar. í Þýzkalandi er komin út bók um Færeyjar, sem skrifuð er af þýzkum hjónum, sem ferðuðust um eyjarnar fyrir styrjöldina. Nafn bókarinnar er „Fredens Öer“. „Nordiske Kronikker" nefnist bók nokkur, sem kom út á veg- um Gyldendals-útgáfunnar í Danmörku. Nordens Kronikker er úrval úr mörgum ágætum greinum, sem rithöfundurinn Jörgen-Frants Jacobsen skrifaði sem starfsmaður við „Politiken“. Færeyingurinn dr. phil. Chris- tian Matras sá um útgáfuna. Tveir Færeyingar, sem búsett- ir eru í Osló, Sverre Stove og Jacob* Jacobsen, hafa í samein- ingu skrifað stóra bók, sem heit- ir „Föröen“. Bók þesi er prýdd mörgum myndum. Skömmu fyrir jól kom út 1 Færeyjum bókin „Stafnhlaðið" eftir Jacob Dahl, prófast, sem nú er látinn. Bók þessi er án efa með því bezta, sem skrifað hefir verið á færeyska tungu hingað til. Tímaritið „Varðin“ hefir kom- ið út reglulegar en áður, síðan skáldið H. A. Djurhuus tók við ritstjórn þess. Síðasta hefti, sem út er komið fyrir sköminu, er að mestu helgað minningunni um hina miklu menn „Varðans“, þá M. A. Jacobsen, bókavörð og J. Dahl, prófast. Sámal. Faereylngar kaupa flugvöll. Bretar hafa unnið að því í nokkur ár að byggja flugvöll í Vogey. Nú er hann fullgerður, og hafa Bretar látið hann af hendi við færeyska Lögþingið. Hafa brezka stjórnin og færeysk yfirvöld. gert samning um kaup og_ leigu á vellinum. í samningnum er það tekið fram, að stjórnarvöldin í JPær- eyjum skuli taka eignarnámii fyrir danska ríkið, en með greiðslu frá Lögþingi Færey- inga, allt það land í Vogum, sem þarf til þess að koma þarna upp fyrrgreindum flugvelli og öðrum mannvirkjum í sambandi við hann. í þriðju grein samnings- ins er svo tekið til orða, að Bret- ar skuli hafa rétt til að nota flugstöðina leigulaust, þar til hún verður afhent réttum fær- eyskum stjórnarvöldum. Skúlason. Til vara Eggert Guð- mundsson og Ásgeir Bjarnþórs- son. Þáttur af Erlendf í Tungunesi. (Framhald af 4. síðu) hætti. í tveimur bréfum úr Húnaþingi, birtum í Norðanfara 18. júní 1868 en rituðum 15. og 20. maí sama ár, er þess getið, að sýslufundir og sveitarfundir hafa verið haldnir um sumarmál in til að koma á almennum sam- tökum um verzlun, og skyldu nokkrir hinna helztu manna í hverri sveit ganga í ábyrgð fyr- ir þá, sem þyrftu að taka lán í kaupstað. Er ekki frá þessu sagt fyrir það, að það þyki í sjálfu sér tíðindum sæta, heldur af því, að það varð enn baráttu- efni við kaupmenn, að þessu sinni aðallega við kaupmenn á Skagastfönd. Það má og sjá af bréfi úr Skagafirði, rituðu 18. sept. þetta ár, birtu í 27.—28. tbl. Nf. (10/10 ’68), að sumum nágrönnunum hefir þótt Hún- vetningar berast nokkuð mikið á í félagssamtökum sínum. En ekki er Skagfirðingurinn með öllu oflætislaus sjálfur, er hann hyggst stinga á oflæti Húnvetn- inganna: „Hér genj:u menn í félag úr fjórum hreppum, sem hafði góðan árangur í tilliti til prísanna og einkum þó í því að ná matnum hjá þessum lausa- kaupmönnum, þar eð ekki var nema ein verzlun hér í sýsl- unni, sem ekki hefði getað nægt öllum búum hennar með vöru- birgðir. Þessi félagsskapur komst á án þess að halda nokk- urn sýslufund og því síður að skrifa lög í svo og svo mörgum greinum, er þyrftu heilar arkir.“ Upp úr þessum verzlunarsam- tökum óx Félagsverzlunin við Húnaflóa og Vörupöntunarfélag Húnvetninga og Skagfirðinga. Þó að Vörupöntunarfélagið kæmi síðar til sögunnar, voru tengsl þess við fyrstu verzlunar- félögin á þessum slóðum öllu traustari. Stjórnarstökur Stjórnar-sigling. Nú reynir á hve sterk er stjórnarklóin, og stýrið traust og haldgott band. Tvö hundruð miljónum tekst þeim að koma í sjóinn. En — tekst að bjarga nokkru á land? Sælir eru einfaldir. Sælir eru allir þeir, sem styðja þessa stjórn, — stóra sigra ætla þeir að vinna. En hver og einn er ráðinn í að færa’ ei sjálfur fórn, en fita sig með lagi á kostnað hinna. Sá, sem sezt á steininn, verður tvisvar feginn. Stjórnin hugsar máské einnig ögn um „bænda greyin,“ ef þeir lækka kröfurnar og ganga rétta veginn, og rata á bekkinn Sjálfstæðis- eða Sósíalista megin. Seztu, bóndi góður, og þú , verður tvisvar feginn. Gáta. Fær mér nokkur greint, v hver getur gleypt sinn líka — hálfu stærri, og vænan bita að auki etur. Ætla ég þess geti færri. Forustu-Flekkur. Hjörðin blekkt í svaðið sekkur, sér hún ekki háskann fyr en upp úr stekkur Forustu-Flekkur og feitu og stóru sauðirnir. Allir vilja sitja. Allir vilja sitja um kyrrt og hafa hlýtt á sér með hendur mjúkar, silki-brjóst og kjóla, en naumast geta allir setið alltaf, því er ver: Einhverjir verðá þó að smíða stóla. Bráðum hætta íslendingar við allt strit og stjá og státnir ’oní vasa höndum pota: Þeir geta fengið ódýrari annars staðar frá alla hluti, sem er þörf að nota. En hvernig fer, ef eyðist bæði þjóðar-fé og fremd? Fáráðlingur, vertu' ei niðurdreginn. Hvað veldur kar- töfluskortimim? (Framhald af 4. síðu) kapphlaup um það af allra hálfu, ríkis, bæja- og sveitar- félaga, stofnana og einstakl- inga, þegar þurft hefir að hrinda í framkvæmd 'hinum ýmsu mannvirkjum seinustu ára. Vinnuaflið hefir dregizt frá framleiðslunni til þeirra starfa, sem ekki hefir fjárhags- lega áhættu í för með sér, þar sem litlu hefir þurft að voga og daglaunin vérið alheimt að kvöldi. Þetta er nokkuð annað en að stunda framleiðslu, þar sem miklu fé verður að hætta, og festa um lengri eða skemmri tíma og eiga flest undir veðr- áttunni og fleiru sem ekki verð- ur vlð ráðíð. Til garðræktarinn- ar eins og flestrar annarrar framleiðslu þarf nokkra fjár- muni, kaupa þarf útsæði, áburð, girðingar, jarðvinnslu og mikla aðra vinnu, og þetta allt í fullri óvissu um árangurinn, bæði um uppskerumagn og verðið, sem fyrir hana fæst. Nokkuð hafa þær raddir látið til sín heyra, sem halda því fram, að garðávextir og ýms önnur landframleiðsla sé ofhátt verðlögð, og að viturlegra og kostnaðarminna sé, að kaupa samskonar vöru frá útlöndum. Víða í sveitum er heimilisfólkið ekki fleira en húsráðendur og eitthvað af börnum og gamal- mennum, sem litt eða ekki geta aðhafst. Þetta fólk kemst varla yfir allra nauðsynlegustu heim- ilisstörfin, hvað þá meira. Þess er engin von að því vinnist tímí til garðræktar, nema þá sem svarar' til þarfa þess heimilis. Það er því ekki óeðlilegt að garðlönd minnki sums staðar í sveitum og að kartöflufram- leiðslan verði minni af þeim ástæðum meðal annars. Nokkur hætta mun á því vera að eitt- hvert framhald verði á þessu næsta sumar. Hér í Reykjavík eru vafalaust nokkrir möguleikar fyrir auk- inni garðrækt, en þó er eitt vandamál í sambandi við kar- töfluræktina , sem leysa þarf, það er vöntun á góðri geymslu fyrir kartöflur o. fl., sem al- menningur gæti haft aðgang að. Þarf bærinn eða einstakl- ingar í félagi að eignast slíkt hús og það sem fyrst. Eins og nú er, verða menn að notast við íbúðarkjallara . fyrir slíkar geymslur, en slíkt er ekki við- hlítandi vegna upphitunar í þeim frá miðstöðvum og hita- leiðslum, en séu þeir ekki hitað- ir, er nokkur hætta á því að í þeim frjósi ef mikil frost gerir. Hér verður varla bót á ráðin nema með því að slík geymsla fáist gerð, til almennra afnota. Eins og nú er ástatt, eru það ekki néma tiltölulega fáir þeirra, sem rækta kartöflur hér 1 bæn- um og við hann, er hafa ástæð- ur til að geta geymt þær lengur en til ársloka, og geymsluleysi hamlar mörgum frá því að stunda garðrækt til eigin nota, sem annars mundu gera það. Á þessu þarf að verða breyting, því að garðræktin, einkum kar- töfluræktin er svo mikilsverður þáttur í matfangaframleiðslu þjóðarinnar, að ekki má missa sjónar á mikilvægi hennar, jafn- vel þótt kaupgeta almennings sé nú meiri en flestir hafa átt að venjast áður. Það sem hér hefir verið greint að framan, ætti að gefa mönn- um nokkrar skýringar á því, hversvegna svo er ástatt sem nú er um kartöflurnar í landinu, og að bót verður ekki ráðin á því sem að er, með því einu að gera kröfur til annarra, það eru á- reiðanlega meiri örðugleikar á leiðinni en verið hafa áður. í nokkrum blaðagreinum, sem birzt hafa seinustu dagana, hef- ir verið deilt nokkuð á forstöðu Grænmetisverzlunar ríkisins út af þurrð á kartöflum, og telja þeir, sem skrifað hafa, ekki fullt samræmi í því, sem aðrir menn hafa borið mig fyrir. Ég ætla ekki hér að fara að elta ólar við slíkan misskilning, en vænti, að það sem hér hefir þegar verið sagt um þessi mál, séu nægilegar skýringar fyrir allan þorra manna. Jón ivarsson. Stjórnin skipar sennilega sérfræðinganefnd, er sér um, að við lifum Minmogagreinar Tíminn vill minnast sem flestra góðra manna í tilefni af merkisdögum í lífi þeirra — eða dánardægri. En vegna mjög |takmarkaðs rúms blaðsins eru menn beðnir að hafa slíkar greinar eins stuttar og þeir sjá sér fært. Margar greinar, sem Tíminn vildi gjarnan birta, blða oft lengi vegna þrengsla.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.