Tíminn - 09.03.1945, Qupperneq 7
19. blað
7
TtMBVN, föstadagiim 9. marz 1945
Allirsammála
Aðalblað stjórnarinnar segir
í morgun, að um viðkvæmt ut-
anríkismál, sem mikið hefir ver-
ið rætt um undanfarið meðal
almennings, á þingfundum og í
stjórn, hafi raunar allir -verið
sammála. En eru þetta hinar
raunverulegu staðreyndir?
Þess er ekki að dyljast, að
almannarómur segir annað. Um
það er rætt, að hörð átök hafi
orðið á Alþingi íslendinga um,
hvort þeir ættu að fara í stríð-
ið. Og það er rætt um að mjög
hógvær tillaga, en ákveðin um
að íslendingar færu ekki í styrj -
öldina, hafi verið felld. En aft-
ur samþykkt önnur loðin, sem
teygja mætti svipað og blautt
skinn og fengi gerólíkan svip
eftir því í hvern skankan væri
togað. En þetta fór allt fram
fyrir luktum dyrum. Og öllu
haldið leyndu fyrir almenningi.
En því er þessi leynd? Því
þolir þetta ekki dagsins ljós?
Varðar þjóðina nokkurt mál
meira en það, hvort hún á að
gerast styrjaldaraðili? Eigum
vér íslendingar að fara að taka
þátt í einhverjum leynisamn-
ingum? Hafa þeir gefizt svo vel
úti í löndum, að ástæða sé fyrir
oss að taka þá til fyrirmyndar?
Það er ágætt, ef það er rétt,
sem stjórnarblaðið segir í morg-
un, að allir hafi verið sammála.
En það fylgir engin sannfæring-
arkraftur 'þessum ummælum.
Og þau hafa sorglega lítið gildi
nema tjaldinu sé svipt frá, og
alþjóð sé gert ljóst, hvað hefir
verið og er að gerast í þessu
máli.
Um eitt geta allir verið sam-
mála: að heimta öll gögn fram
í dagsbirtuna. Hér í lýðfrjálsu
landi á ekkert að aðhafast, sem
alþjóð má ekki vita. Allt tal um
viðkvæm utanríkismál og þess
háttar er fyrirsláttur einn,
framborinn til að friða vonda
samvizku. Einhuga þjóð um
grundvallaratriði mannréttinda
sinna, að lifa frjáls í þessu áf-
skekta landi, án íhlutunar frá
stórum þjóðum, er hið mikla
vald, sem allir flokkar og for-
ingjar verða að lúta.
Hér er enginn réttur til að
dylja þjóðina og loka að sér
þegar rætt er um hvort æsku-
menn þessa lands eigi að taka
vopn í hönd og drepa aðra menn
og smána stjórnarskrá lýðveldis-
ins, sem kveður á um ævarandi
hlutleysi vort.
Það eru allir sammála um að ■
krefjast undandráttarlausrar og j
fullkominnar greinargerðar um
þetta mál.
4. marz 1944
B. G.
Víðavangshlaiip
í. R.
sem fyrst fór fram á sumardag-
inn fyrsta árið 1916, verður háð
í 30. sinni næstkomandi' 1.
sumardag.
í tilefni af því þarf ég — sem
fyrst — vegna skrásetningar I
sambandi við sögu hlaupsins, að
fá vitneskju um núverandi
heimili (og helzt líka stöðu eða
starf) allra þeirra manna, sem á
liðnum árum hafa tekið þátt í
hlaupi þessu sem keppendur og
starfsmenn. En ég veit aðeins
um lítinn hluta af þeim 350—
360 manns, sem þannig hafa
komið við sögu þessara 29 víða-
vangshlaupa.
Því bið ég hér með sérhvern
þann, sem þetta sér og er í þess-
Herstjórnin pakk'
ar íslendingum
Pyrir nokkru hrapaði herflug-
vél til jarðar skarrimt frá Borg-
arnesi áji þess þó að miklar
skemmdir yrðu á vélinni. Flug-
maðurinn komst af og var
fluttur í sjúkrahús í Borgar-
nesi. Bóndi nokkur er séð hafði
flugvélina nauðlenda á send-
inni strönd skammt frá Álfta-
nesi á Mýrum, sendi strax til-
kynningu um það til Borgar-
ness.
Frá Selfossi sáu menn nýlega
flugvél hrapa í sjóinn og til-
kynntu það þegar sýslumann-
inum, er aftur tilkynnti það
herstjórninni. Þótt flugvél
þessi hafi farizt með allri áhöfn
kom það sér vel fyrir herstjórn-
ina að fá vitneskju um atburð-
inn svona fljótt, því að rúmum
fimmtán mínútum liðnum var
önnur flugvél komin á stað-
inn til þess að bjarga ef um
björgunarmöguleika hefði ver-
ið að ræða og herstjórnin fékk
vitneskju um afdrif flugvélar-
innar.
Yfirmenn hersins róma mjög
hvað íslendingar eru fljótir að
veita aðstoð sína í slíkum til-
fellum og hér hafa verið nefnd.
Nýlega hefir utanríkisráðu-
neytinu borizt bréf frá sendi-
herra Breta á íslandi þar sem
hann f. h. foringja flugliðs
Breta hér á landi þakkar ómet-
anlega aðstoð, sem íslendingar
sýndu í sambandi yið slys, er
varð þegar ein af flugvélum
Breta hrapaði nálægt Vífilfelli
hinn 6. febr. s. 1. Áhöfn vélar-
innar voru 3 ijienn. Einn þeirra
slasaðist svo, "að það varð að
skilja hann eftir á slysstaðnum,
hinir tveir lögðu af stað til þess
að leita hjálpar og komu eftir
7 ‘ klukkustundir að útvarps-
stöðinni við Vatnsenda. Björg-
unarsveit skipuð íslendingum
tókst að finna særða manninn
og fiytja hann á spítala í Rvík.
Eftirtaldir íslendingar veittu
mikilsverða aðstoð við björgun
hins særða' flugmanns: Yfir-
maður Vatnsendastöðvarinnf,r
Guðbjartur Heiðdal, Þórarinn
Björnsson, Guðmundur Ófeigs-
son, Guðsteinn Sigurgeirsson,
Ska'rphéðinn Jóhannsson, -Egill
Kristbjörnsson og Hjörtur Ól-
afsson. BifreiðarsUjóri, Þórður
að nafni, en ekki er kunnugt
um föðurnafn hans.
Ennfremur' sýndi lögreglu-
stjórinn í Reykjavík mikla
hjálpsemi.
Sjóhrakníngar á •
Grímseyjarsuudi
(Framliald af 5. siðu)
og öldufall. En langsótt varð
þeim inn fjörðinn.. Klukkan níu
um kvöldið stigu þeir loks á land
á Oddeyrarbryggju. Var það á
orði haft, hvað vel þeir hefðu
borizt af eftir slíka mannraun.
En bátur þeirra var ósjófær tal-
inn, og hafði hann þó verið hið
bezta skip, þótt litill væri.
um hóp, og veit sig ekki svo
þjóðkunnan, að ugglaust sé að
ég viti þetta um hagi hans, að
gera svo vel að senda mér þess-
ar fyrnefndu upplýsingar um
sig;
Ég veit hins vegar hvenær
hann hefir keppt og fyrir hvaða
félag, eða verið starfsmaður.
Reykjavík, 11. febr. 1945.
Steindór Björnsson,
Sölfhólsgötu 10.
Davíð Stefánsson
(Framhald af 5. síðu)
hefir Davíð Stefánsson skrifað
merkilega skáldsögu, Sólon Is-
landus, þar sem hann ræðst á
eitt af því, sem hann fyrirlítur
mest í fari manna, tilhneiging-
una til að smeygja sér fram hjá
skyldunum undir yfirskini þess,
að þeir séu upp úr því vaxnir
að sinna slíkum kvöðum, gáfur
þeirra of verðmætar til þess að
þeir geti lagt sig niður við því-
lík verkefni — og að aðrir menn
séu einungis glópaldar, sem
ekkert mark sé á takandi. Davíð
hefir einnig skrifað merkileg
leikrit, er á þvi sviði skáldskap-
arins svo að segja einn um hit-
una hjá oss íslendingum, og á
öllum þeim brautum listarinn-
ar, sem hann hefir á annað
borð lagt leið sina eftir, hefir
hann komizt gegnum klungur
tómlætis og tortryggni inn að
hjartarótum þjóðarinnar ís-
lenzku. Ef til vill á hann eftir
að vihna þau afrek, einmitt á
sviði leikritagerðar, að leggja
grundvöllinn að verulegri
blómgun þeirrar bókmennta-
greinar á landi hér. En ennþá
sem komið er, er hann merkileg-
astur fyrir þetta:
Á þeim tímum, sem æskulýð-
ur íslands — minnsta kosti við
sjávarsíðuna — var að gerast
fráhverfur lestri ljóða, kom Da-
víð Stefánsson fram á sviðið og
mælti fram ljóðmál, er hrifu
hvei-n hug og hvert hjarta, og
frá ljóðum hans hefir síðan um |
aldarfjórðung legið leiö hinna I
ungu til unaðslanda annarra ís- |
lenzkra ljóðskálda. Þá hefir
hann með fordæmi sínu haft
mikil og mikilvæg bein og ó-
böin áhrif á íslenzka ljóðlist,
sem leitt hafa af sér nýja
blómgun hennar og aukin skil-
yrði til áheyrnar hjá þjóðinni.
Loks hefir hann fremur nokkru
öðru núlifandi skáldi vakið
hrifni og gleði í brjósti
flestra einstaklinga þjóðarinn-
ar, þeirra, sem heyrandi heyra
og sjáandi sjá.
Þakkarskuldin við Davíð er
mér mjög svo ljós, og því hefir
mér sannarlega orðið beinlínis
brátt í skapi, þegar ég hefi orð-
ið að horfa upp á það, að smá-
skítleg mannpeð, haldin ólækn-
andi andlegri ófrjósemi, hafa
reynt að vekja athygli á sinni
aumkunarlegu óveru með þvi
að setja sig í læriföðurlegar
stellingar gagnvart þessu ágæta
þjóðskáldi.
Mætti íslenzka þjóðin unna og
þakka skáldinu Davíð Stefáns-
syni frá Fggraskógi framvegis
eins og hingað til af sem heil-
ustum hug, því að meðan hún
sýnir slfk heilindi og slíkan
manndóm á einu sviði, þá er
hún heidur ekki heillum horfin
á öðrum.
Um Davið Stefánsson sem
mann og hollvin mætti margt
segja, en hann er — í sem
stytztu máli sagt — eins og hann,
kemur fram í Ijóðum sínum:
heitur, heill og traustur i gleði
og hrifni og í réttlátri reiði, —
er viðkvæmt karlmenni og
drengur hinn bezti.
ísafirði, í febrúar 1945.
Guðm. Gíslason Hagalín.
Lelðrétting.
í næstsíðasta tbl. misprentað-
ist eitt orð í síðustu vísu í
„Stjórnarstökum" á 2. síðu
blaðsins. Rétt er vísan svona:
Stjórnar-flaustið festulaust
fram úr nausti skríður,
hlýðir austan ofsaraust.
Undir haustið líður.
Happdrætti '
Háskóla Islands
Dregið vertíur í 1. flohki á morgun. '
Vinningar samtals 2.100.000,00 hrónur.
Heilmiðar eru gersamlega þrotnir.
Hálfmiðar einnig gengnir til þurrðar
í Reghjavíh.
(Nokkrír kálimiðar iást þó á Lauiásveg 61)
Horfur eru á, að fjjórðungsmiðar seljist upp.
Flgtið gður að ná í miða í taeha tíð.
i
♦
KyimiÖ yðuir ákvæðin um skattfrelsi viniiin^
anna.
A víðavangi
(Framhald af 2. síðu)
herra, sem hefði komizt að.slíkri
niðurstöðu, hefði annað hvort
sagt tafarlaust af sér .eða knúð
fram stefnubreytingu tafar-
laust.
En Pétur Magnússon gerir
hvorugt af þessu, heldur situr
aðgerðalaus í ráðherrastólnum.
Hann meira að segja beitti sér
á móti því, að þingið yrði kall-
að saman í vor, eins og Fram-
sóknarmenn lögðu Ml, svo að
ekki yrði lengur dregið að hefj-
ast handa um stefnubreyting-
una. Það eina, sem Pétur gerir
er að reyna að þvo hendur
sínar með því að segja, áð það
sé ekki honum að kenna, þótt
stef^an sé röng og henni sé'
fylgt, þvi að allt sé þetta arfur ;
frá fyrrverandi ríkisstjórn! Það
væri því eigi undarlegt, þótt
mönnum kæmi til hugar, að hér
væri íslendingum fæddur nýr
Pílatus.
Hver er fjármálastefna
stjórnarinnar?
Nokkuð hefir borið á því, að
menn spyrðu um, hver væri eig-
inlega fjármálastefna núverandi
ríkisstjórnar. Fjármálaráðherra
og íhaldsblöðin segja, að fjár-
málastefnan, sem' nú sé fylgt,
sé ekki fjármálastefna stjórnar-
innar, heldur stefna fyrrv.
stjórnar. Hver er þá fjármála-
stefna núv. stjórnar? Hefir
hún alls enga stefnu í fjár-
málum?
Það væri fróðlegt, ef stjórnar-
blöðin vildu svara þessu.-
Fylgízt med
Allir, sem fylgjast vilja með
almennum málum, verða að lesa
Tímann.
Fnnd
heldur Framsóknarfélag Reykjavíkur þriðju-
daginn 13. þ. m. í Kaupþingssalnum kl. 8V2
siðdegis.
FUNDAEEFNI:
Afgreiðsla mála á síðasta Alþingi.
Framsögumenn: EYSTEINN JÓNSSON og HERMANN JÓNASSON
stjOuima.
Góð bújörð
»
til löln
Jörðin Litlihvammur í Vestur-Húnavatnssýslu fæst; til
kaups og ábuðar strax á næsta vori. *.
Jörðin liggur í miðri sveit. Töðufall um 200 hestburðir.
Jörðin er einhver bezta útbeitarjörð sveitarinnar. Lax- j
veiðiréttindi. Bílvegur. íbúðarhús byggt af timbri, járn- (
varið.
Tilboð sendist fyrir 30. þessa mánaðar til undirritaðs, sem j
gefur nánari upplýsingar. — Réttur áskilinn til að taka
hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Benedikt Kr. Líndal j
Landssímastöð: „Efri-Núpur“. j
l
T I M IIV ]\ er vfðlesnasta auglýsingablaðið!
Kátir voru karlar u^/'B
Leffi Iieitir
brögðum.
™ (/****^
Leppur og Skreppur blístra hástöfum.
Frú Vamban: Heyrið þið, óþekktarormar!
Snáfiði inn að læra og látið langlegg-
inn eiga sig! — Leifi langi: Hæ, hó!
mamma mín! — Frú V.: Karlskrattinn!
Leifi blístrar fyrir utan.