Tíminn - 06.04.1945, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
ÚTGEFPANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN.
Símar 2353 Og 4373.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
RITST JÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A.
Símar 2353 oK 4373.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9A.
Simi 2323.
29. árg.
Reykjavík, festndaginu 6. apríl 1945
Byggíng Þjóðmínja*
safnsíns hefst í
sumar
Eins og kunnugí er, sam-
þykkti Alþingi að koma upp
vandaðri byggingu yfir Þjóð-
minjasafnið til minningar
um lýðveldisstofnunina og
var ákveðið að verja 3 milj.
kr. til þessarar framkvæmdar.
Annar ’^ndirbúningur er nú
kominn svo langt, að byrjað
verður á byggingunni í sum-
ar.
«
Eftir að Alþingi tók áður-
greinda ákvörðun, skipaði þáv.
ríkisstjórn í byggingarnefnd dr.
Alexander Jóhannesson, Valtý
Stefánsson og Matthías Þórðar-
son. Núv. stjórn bætti við í
nefndina þeim Kristni Andrés-
syni og Kristjáni Eldjárn.
Nefndin hefir ákveðið að húsið
skuli reist á horni Melavegar og
Hringbrautar, rétt hjá háskól-
anum. Þá fól hún húsameistur-
unum Sigurði Guðmundssyni
og Eiríki Einarssyni að gera
uppdrætti að húsinu. Er það
verk nú langt komið. kúsið
verður þrjár hæðir, 60 m. langt
og 18 m. breitt. Hæðunum verð-
ur þrískipt. í miðju þeirra verða
stórir salir, en smærri herbergi
til hliðar. Listaverkasafni rík-
isins er ætlað að vera í einum
stóra salnum, unz það eignast
eigin byggingu. Sérstakur fyrir-
lestrasalur, er rúmar á annað
hundrað manns, verður í hús-
inu.
Áællunarferðir
að hefjast
Vegna breytzt tíðarfars og
þurrviðra um og eftir páskana
hafa vegir þornað og batnað yf-
irferðar, og vegabönnum því
verið aflétt.
Fært er um Suðurlandsundir-
lendi allt austur í Vík í Mýrdal
og hafa áætlunarfeúðir hafizt
þangað. Um Vesturland er fært
um Bröttubrekku og Dali. Til
Norðurlands er fært í Skaga-
fjörð og í þann veginn að verða
fært til Akureyrar. Undanfarið
hefir verið unnið að snjómokstri
á Öxnadalsheiði.
Póststjórnin hyggst að fara
fyrstu áætlunarferð landleiðis til
Akureyrar í dag.
Sjo menn dæmdír
fýrír ýms afbrot
Sakadómari hefir nýlega
kveðið upp fimm dóma fyrir
ýmiskonar afbrot.
Maður að nafni Sigfús Jónas
son, Brekkustíg 8, var dæmdur
í þriggja mánaða fangelsi fyrir
mannúðarleysi við drukkna
stúlku. Hafði hún heimsótt Sig-
fús ölvuð, en hann rekið hana
á dyr. Stúlkan féll á tröppun-
um og lá þar meðvitundarlaus
í blóði sínu, þegar komið var að.
Var hún þegar flutt í spítala og
lézt nokkru síðar. Sigfús er tal-
inn hafa sýnt mannúðar-
leysi, með því að koma henni
ekki til hjálpar, enda er þá talið
vlst, að hann hafi vitað um slys-
ið, en hins vegar er ekki hægt
að sanna, að ákærði hafi hrint
stúlkunni niður tröppurnar, því
hún fékk aldrei meðvitund, eft
ir að hún fannst. — Sigfús hefir
áður verið dæmdur fyrir auðg
unarbrot.
Knútur Guðjónsson var dæmd-
ur til að greiða 4000 kr. og í 60
daga fangelsi fyrir líkamsárás
— Hann hefir áður verið verið
dæmdur fyrir auðgunarbrot.
Stefán Agnar Magnússon,
Ingólfsstræti 7 B, var dæmdur í
(Framhald á 8. slBu)
25. blað
Hefur flugfélagíð
míllilandaferðir
i sumar l
Flugfélag íslands undirbýr
nú millilandaflug til Eng-
lands og Ameríku. Félagið
keypti síðastl. haust stóran
flugbát, sem mun taka 20 far-
þega T millilandaflug og 24
farþega í innanlandsflug.
Unnið er nú að því að ganga
frá innréttingu þessa flug-
báts fyrir farþegaflug.
Bergur Gíslason, formaður fé-
lagsins og Örn Johnson, fram-
kvæmdastjóri þess, eru nýlega
komnir úr Englandsför. Þangað
fóru þeir til þess að kynna sér
nýjungar í flugtækni og fyrir-
ætlanir Breta um millilanda-
flug að stríðinu loknu. Hvenær
millilandaflugferðir hefjast á
vegum félagsins verður ekki
með vissu sagt, að svo komnu
máli, en líkur benda til, að þær
geti hafizt í sumar. Þörfin fyrir
flugferðir til Ameríku er ákaf-
lega brýn, þar sem ekkert skip
með farþegarúmi er 1 förum
síðan Dettifoss sökk.
SkeiðfossraSstöðín
tekín til starfa
Rafstraum var hleypt frá
Skeiðfossvirkjuninni til Siglu-
fjarðar 29. marz síðastl. Virkj-
unin framleiðir nú 1500 til 1800
hestöfl, en þegar búið er að
hækka stífluna um 6 m. er á-
ætlað, að orkan verði 2350
hestöfl. Aðrennslisæð virkjun-
arinnar er 650 m. löng og 2,10
m. í þvermál. Pípurnar geta
flutt vatnsmagn sem nægir
tveimur vélgsamstæðum og er
ætlunin að bæta við annari véla-
samstæðu á næsta sumri. Telja
rafmagnsverkfræðingar, að afl
hinnar nýju samstæðu muni
verða 3500 hestöfl, verður þá
orka stöðvarinnar alls um 6000
hestöfl.
Sótt um 6 prestaköll
af 18 lausum
1. apríl var útrunninn um-
sóknarfrestur að þeim 18 pfesta-
köllum, sem auglýst hafa verið
laus til umsóknar. Alls bárust
umsóknir um 6 af prestaköllun-
um.
Um Vestmannaeyjar sóttu sr.
Halldór Kolbeins að Mælifelli,
sr.. Sigurður Guðmundsson að
Grenjaðarstað og sr. Yngvi Þór-
ir Árnason, að Árnesi. Um Hest-
þing sótti sr. Jón M. Guðjóns-
son að Holti undir Eyjafjöllum.
Um Bergþórshvol sótti sr. Sig
urður S. Haukdal 'iprófastur -í
Flatey á Breiðafirði. Um Stað á
Reykjanesi sótti sr. Jón Árni
Sigurðsson, settur prestur þar
Um Brjánslæk sótti sr. Guð-
mundur Guðmundsson, settur
prestur þar. Um Sauðlauksdal
sótti sr. Trausti Pétursson, sett-
ur prestur ftar.
f DAG
birtist á 3. síðu síðari hluti
grcinar Kristjáns Jónssonar
frá Garðsstöðum um sjávar-
útvegsmál.
Neðanmáls er grein eftir Guð-
mund Davíðsson um trjárækt-
ardaga barna og unglinga.
Á 4. síðu er pistill frá Karli
í Koti.
Merkilegar upplýsingar í Skutli um striðsyfirlýsingarmálið:
tr
Atti að leyna málinu fyrir forseta og
Alþingi, ef Tyrkinn hefði getað þagað?
DRBtUSTAA UM VDÍARBORG IIAFIA
HlT> iTðíái
Styrjöldin hefir nú borizt til einnar sögufrœgustu stórborgar í Evrópu,
Vínarborgar. Herma seinustu fréttir, að Rússar séu komnir inn í borg-
ina og standi bardagar þar yfir. Þjóðverjar hafa lýst yfir því, að þeir
muni verja borgina v í lengstu lög. Fyrir styrjöldina voru um 2 milj. íbúa
í Vín. Mynd þessi er frá tímum austurríska lýðveldisins og sýnlr mann-
fjölda, er safnazt liefir saman á torginu fyrir framan ráðhús borgarinnar.
Skíðalandsmétínti á
Ísafírðí lokíð
Skíðalandsmótinu á ísa-
firði er nýlokið. Guð-
mundur Guðmundsson frá í-
þróttabandalagi Akureyrar,
vann í samanlagðri göngu og
stökki og fékk því nafnbót-
ina „Skíðakóngur íslands“.
Alls tóku þátt í mótinu 45
keppendur, þar af 18 frá íþrótta-
bandalagi Reykjavíkur (IBR),
13 frá íþróttabandalagi ísa-
fjarðar (IBI), 10 frá íþrótta-
bandalagi Strandasýslu (IBSt),
4 frá íþróttabandalagi Akur-
eyrar (IBA) og einn frá í-
þróttabandalagi Siglufjarðar
(IBS). Helztu úrslit mótsins
voru, sem hér segir: Ganga: A-
flokkur, 1. Guðm. Guðmunds-
son, IBA, 77,18 mín. B-flokkur,
1. Reynir Kjartansson, IBR,
83,29 mín. Stökk: A-flokkur, 1.
Jónas Ásgeirsson, IBS, stökk
25,5 og 24,5 m. B-flokkur, 1.
Haukur Benediktsson, IBI, 21,0
og 21,5 m. Svig: A-flokkur, 1.
Guðmundur Guðmundsson, IBA,
238,8 sek. B-flokkur, 1. Þórir
Jónsson, IBR, 204,0 sek. C-flokk-
ur, 1. Stefán Kristjánsson, IBR,
212,4 sek. Auk þess var keppt í
sveitarkeppni í svigi og vann
IBA hana á 8,16,5 mí)i. A-flokk-
ur kvenna: 1. Maja Örvar, IBR,
73,7 sek. B-flokkur kvenna, 1.
Inga Árnadóttir, IBR, 60, 1. sek.
Þing Þjóðiæknísfél.
w
Vestur-Islendínga
Rifhard Beeh endiír-
kjöriim forseti l»ess.
Á ársþingi Þjóðræknisfélags
Vestur-íslendinga, sem haldið
var síðustu daga febrúarmánað-
ar voru þessir menn kosnir í
framkvæmdanefnd: Dr. Richard
Beck, forseti, séra Valdimar J.
Eylands, varaforseti, G. L. Jó-
hannsson, féhirðir, séra Egill H.
Fáfnis, vara-féhirðir, séra H. E.
Johnson, skrifari, Jón Ásgeirs-
son, vara-skrifari, Guðmann
Levy ,fjármálaritari, Árni G.
Eggertsson, K. C., varafjármála-
ritari, Ól. Péturss., skjalavörður.
Úr framkvæmdanefnd gengu
samkvæmt eigin ósk: Ásmundur
P. Jóhannsson, féhirðir, séra
Sigurður Ólafsson, ritari, Mrs.
Einar P. Jónsson, vararitari,
Sveinn Thorvaldson, varafé-
hirðir og dr. S. E. Björnísson,
vara-fjármálaritari. Hafði Ás-
mundur P. Jóhannsson átt sæti
í nefndinni ujm 20 ára skeið, og
flest hinna einnig árum saman.
Þingið var mjög fjölsótt, og
aðalræður á samkomunum í
sambandi við það, þeir dr. Helgi
P. Briem, aðalræðismaður, sem
var fulltrúi ríkissjórnar íslands,
og Árni G. Eylands fram-
kvæmdastjóri, forseti Þjóð-
ræknisfélagsins í Reykjavík, og
var þeim báðum fagnað hið
bezta."
Stjórnarbylting; í
Stúdentarádinu
Nýlega hafa orðið stjórnar-
skipti í Stúdentaráði. Stúdenta-
ráð er þannig skipað, að þar
eru 4 íhaldsmenn, 3 kommúnist-
ar, 1 jafnaðarmaður og 1 Fram-
sóknarmaður (Frá félagi frjáls-
lyndra stúdenta). Við stjórnar-
kosmngu í haust varð sam-
komulag milli kommúnista,
jafnaðarmanna og Framsóknar-
(Framhaíd á 8. síðu)
40 íbúðir byggðar
Stjórn Byggingarfél. verka-
manna hefir nýlega ákveðið að
hefjast nú þegar handa um
byggingu 40 íbúða, þriggja her-
bergja. Sótt hefir verið um lóð
undir húsin í Rauðarárholti.
Byggingarfélag verkamanna
var stofnað 1939 og hefir nú
þegar byggt 124 íbúðir-— í stjórn
félagsins eru: Guðm. I. Guð-
mundsson, form. Magnús Þor-
steinsson, varaform, Gr.Bjarna-
son, gjaldlc., og Bjarni Stéfáns-
son og Sv. Sveinsson, meðstj.
Þingmeim Framsóknarflokksins
greíddu atkvæði gegn ályktuninni,
sem þingid ger.di um málið
í páskavikunni komu hingað til lan'ds Pétur Benediktsson,
sendiherra íslands í Moskvu, og Eiríkur Benedikts, sendisveitar-
ritari í London. Samkvæmt allgóðum heimildum hefir Tíminn
ástæðu til að ætla, að heimkoma beggja standi í sambandi við
stríðsyfirlýsingarmálið svonefnda, sem enn mun enganveginn úr
sögunni, enda vafalaust mikil áherzla á það lögð af valdamesta
stjórnarflokknum, kommúnistaflokknum, að ríkisstjórnin „bæti
úr því, sem Alþingi hefir mistekizt“, eins og aðaimálgagn hans
hefir komizt að orði.
Hins vegar hefir sendiherrann í Washington eða starfsmaður
þaðan ekki komið heim ennþá, en margir þeir, sem kunnugir eru,
munu þó hafa talið skeyti hans viðkomandi þessu máli, gefa
fyljsta tilefni til að sendiherra sá yrði kvaddur heim.
Átti að leyiia málinii
fyrir forscta og
Alþingi?
Það seinasta, sem hefir gerzt
opinberlega í þessu þýðingar-
mikla máli, er grein, sem birt-
ist í vestfirzka blaðinu Skutli
24. f. m. Þar erft veittar nýjar,
athyglisverðar upplýsingar um
betta mál og má vafalaust telja
þær hinar áreiðanlegustu vegna
tengsla blaðsins við dómsmála-
ráðherrann.
í Skutli segir m. a. á þessa
leið:
„Það mun hafa verið hinn
13. febrúar, sem utanríkis- j
ráðherra fékk tilkynningu
uin, að íslandi væri gefinn
kostur á að taka þátt í San
Francisco-ráðstefnunni, ef
það liefði sagt Þjóðverjum og
Japönum stríð á hendur fyrir
1. dag marzmánaðar^
Þessum boðskkp mun sjálf-
um forseta ríkisins ekki hafa
verið trúað fyrir um viku
skeið, og þinginu ekki fyr dn
allt að hálfum mánuði, frá
því boðskapurinn barst utan-
ríkisráðherranum í hendur.
En þá hafði fréttin um málið
borizt íslenzku þjóðinni fram
hjá þingi sinu og stjórn, gegn
um útvarp austan úr Litlu-
Asíu!!“
Þessar upplýsingar Skutuls
virðast benda ískyggilega mik-
ið til þess, að ríkisstjórnin hafi
haft fullan hug á að afgreiða
þetta mál, án samráðs við for-
seta íslands og Alþingi, ef Tyrk- ]
inn hefði ekki gert henni þann
óleik að segja frá því, að ís-
lendingum hefði verið send
þessi ékilaboð! Væri það líka vel
skilj anlegt, að kommúnistar
hefðu viljað hafa þá afgreiðslu
á málinu, þar sem þeir munu
ekki hafa treyst á, að Alþingi
fengist til fylgis við stefnu
þeirra.
Þessar upplýsingar Skutuls
eru vissulega á þann veg, að
þjóðin á fyllstu heimtingu á, að
stjórnin geri hreint fyrir sínum
dyrum, bæði í þessum efnum og
öðrum, er við koma þessu máli.
Meðferð málslns
á Alþingi.
Skutull víkur í áðurnefndri
grein sinni að ályktun- þeirri,
sem gerð var um málið á lokuð-
um þingfundi. Telur blaðið, að
þingið hefði átt að lýsa yfir því,
að ísland vildi ekki taka þátt í
stríðsáðgerðum-í neinni mynd.
Síðan segir það:
„Því miður er svar Alþing-
is, eftir því sem næst verður
komizt, ekki í samræmi við
þetta. Það er að vísu ekki
bein stríðsyfirlýsing, en í því
er lögð sérstök áherzla á, að
ísland hafi verið raunveru-
legur þátttakandi í ófriðnum
frá stríðsbyrjun, og þannig er
svarið, af einhverjum öflum
innan Alþingis, togað I það
form, að það fari SEM ALLBA
NÆST ÞVÍ AÐ JAFNGILDA
STRÍÐSYFIRLÝSINGU“.
í tílefni af þessari frásögu
Skutuls, að svar Alþingis hafi
verið „togað í það form, að það
fari sem allra næst því að jafn-
gilda stríðsyfirlýsingu", hefir
Tíminn talið sér skylt að afla
upplýsinga um afstöðu þing-
manna Framsóknarflokksins til
málsins. Tíminn telur sér líka
heimilt vegna framangreindra
upplýsinga í blaði, sem er ná-
tengt einum ráðherranum, að
skýra frá því, að þingmenn
Framsóknarflokksins greiddu
atkvæði gegn þeirri ályktun,sem
samþykkt var. Framsóknarmenn
fluttu sérstaka tillögu, sem ekki
fékkst samþykkt.
Viðkomandi afstöðu Fram-
sóknarflokksins þykir að öðru
leyti nægja að vísa til þeirrar
greinargerðar um málið, er birt
var hér i blaðinu 2, marz síð-
astl. Tillagan, sem flokkurinn
flutti í þinginu, var byggð á
þeim forsendum, er þar voru
greindar. Þótt tillaga flokksins
fengist ekki samþykkt, má ó-
hætt fullyrða, að afstaða hans
hafi áorkað því, að ályktunin,
er samþykkt var, var stórum
betri en frumtillögur stjórnar-
liðsins.
Leyndm niá ekki
haldast lengur.
í áðurnefndri grein Skutuls
segir svo um hina miklu leynd,
sem stjórnin heldur yfir þessu
máli:
„Nú er liðið á annan mán-
uð, frá því þetta stórmál
barst íslenzkum stjórnarvöld-
um í hendur. Ennþá er sajtna
, leyndardómshulan yfir öllu.
Engin opinber skýrsla hefir
fengizt fram um það, hvað þá
heldur að frumgögnin sjálf
hafi verið lögð á borðið.
Þetta háttalag allt saman
er stórvítavert."
Það er vissulega ekki ofmælt,
að pukur ríkisstjórnarinnar um
þetta mikilsverða mál, sé stór-
vítavert. Þetta mál varðar þjóð-
ina alla og þar má enga stefnu-
breytingu gera, án vitund-
ar hennar. Þjóðin á fyllstu
heimtingu á að vita allt,
(Framháld á 8. siðu)