Tíminn - 29.05.1945, Blaðsíða 7
39. blað
TfMrVTV, liriðjuclagiim 39. maí 1945
7
Kvennabálkui*
(Framhald af 5. aiðu)
nokkrum sinnum á hverrl nóttu
til þess að nudda sig, og ég verð
að færa henni morgunverð kl.
sex á morgana". Nú eru nudd-
lækningar mjög ódýrar í Jap-
an. Það var því augljóst, að
þetta var einungis eitt dæmi
um rótgróna og hefðbundna
grimmd Japananna.
Eina örugga lausnin frá þess-
um hörmungum japönsku kon-
unnar er blátt áfram sjálfsmorð.
Þó má hún ekki ráða því alger-
lega á hvern hátt hún fargar
sér. Henni er leyfilegt að
drekkja sér eða kasta sér niður
í eldgíg, en hún er ekki álitin
verð þess að fremja kviðristu
(harakiri). Ef henni á að veit-
ast sá heiður að deyja með
bónda sínum, verður hún að fá
leyfi hans til þess.
Þegar ég komst að öllu þessu,
fór ég að skilja, hvers vegna
hinar brosandi, þokkalegu, jap-
önsku konur, eru ógæfusömustu
konurnar, sem ég hefi kynnzt.
Ástæðan felst í örfáum línum í
furðu gamalli japanskri bók, er
inniheldur leiðbeiningar fyrir
japanska erindreka, sem sendir
eru til annarra landa. Þar
stendur m. a.: „Útlendingar á-
líta það enga minnkun fyrir
karlmanninn að sýna' konum
kurteisi í hvívetna og taka fullt
tillit til þeirra. Slík hegðun er,
þótt undarlegt megi virðast,
talin til dyggða.“
(Lausl. þýtt úr Reader’s Di-
gest).
MYNDAFRETTIR
Erlcnt yfirlit.
(Framhald. af 2. síðu)
um nokkru síðar járnbraut sína
þar fyrir lítið verð. Nokkrir
landamæraárekstrar urðu milli
Rússa og Japana á næstu árum,
en báðir virtust þó vilja forðast
styrjöld, enda beindist hugur
Japana mest að Kína næstu ár-
in. Árið 1941 gerðu Rússar og
Japanir hlutleysissáttmálann,
er Rússar sögðu upp nýlega,
með eins árs fyrirvara.
Það þykir eitt morki þess, að
Rússar séu farnir að hugsa sér
til hreyfings i Austur-Asíu, að
nýlega lét Tassfréttastofan rúss-
neska birta viðtal um þessi mál.
Þar var m. a. spurt, hvort Rúss-
ar myndu hugsa til að innlima
Mansjuríu og Koreu, þegar Jap
anir hefðu verið sigraðir. Þessu
var neitað, en sagt, að Rússar
vildu að Mansjuría og Korea
yrðu sérstök ríki, sem vel mætti
hugsa sér að gerðust þátttak-
endur í bandalagi Sovétríkj-
anna. Viðtal þetta vakti mikla
athygli í Bandaríkjunum og
virðast menn þar mjög mót
fallnir því, að Mansjúría og
Korea komist á einn eða annan
hátt undir yfirráð Rússa, held
ur verði þau algerlega óháð ríki
Landvinningaáform Rússa í
Austur-Asíu eru enganveginn
talin bundin við Mansjúríu og
Koreu. í Mongólíu eru Rússar
miklu ráðandi og allstór fylki í
Kína eru undir sérstakri kom-
múnistastjórn. Telja ýmsir lík
legt, að Rússar muni vinna að
þvi, ef kommúnistar telja sig
ekki sigurstranglega í öðrum
hlutum Kíhaveldis, að fylkin
sem nú eru undir kommúnista-
stjórn, verði sérstök ríki, er ger
ist aðili í Sovétríkjabandalag
inu.
Landvinningaáform Rússa í
Austur-Asíu eru vitanlega mjög
illa séð af Kínverjum og Banda-
menn munu vart fallast á þau
góðfúslega. Landvinningaáform
þessi byggjast ekki heldur á
neinum réttlætanlegum rökum
þjóðernislegum, landfræðilegum
eða sögulegum, því vart styður
það slíkar kröfur, að keisára
stjórninni rússnesku tókst að
halda uppi yfirgangi í þessum
löndum um 10 ára skeið.
Á víðavangi
(Framhald af 2. síðu)
vikið honum úr stjórnarsessi
með óvenjulegum hætti haustið
1942. En hér fór öðru vísi en
ætlað var. Þjóðin dæmdi svo
harðlega óhappaverkið við for-
setakjörið á Lögbergi 17. júní
1944, og fylkti sér svo einhuga
mn Svein, að forkólfar kom-
múnista og Sjálfstæðisflokksins
sáu, að tilgangslaust var að
spyrna á móti. Og þá tók Mbl
upp sitt venjulega háttalag
Reyna að breiða yfir fyrri
sundrungarverk með „einingar“
hræsninni.
Wavell hersTiöfðingi, landsstjóri Breta í Indlandi, afhendir ind-
verskum hermanni heiðursmerki fyrir vasklega framgöngu. Wavell
vinnur nú að tillögum um nýja stjórnskipun á Indlandi, er auki
að miklum mun sjálfstœði IndVerja.
Þrír af einna frœgustu flugforingjum Bretaveldis, talið frá vinstri:
Arthur Coningham flugmarskálkur, Harry Broodhurst flugmarskálkur
og Arthur Tedder flugmarskálkur. Tedder gekk nœstur Eisenhover að
völdum og liann undirritaði vopnahléssamninginn af hálfu Banda-
manna í Berlín. Margir telja hann einn snjallasta herforingja Breta,
en hann er maður hlédrœgur og því minna þekktur en ella.
Mynd þessi var 'tekin af Heidelberg, nokkru eftir að Bandaríkjamenn
komu þangað. Heidelberg, sem er sögufrœg borg, hafði sama og engan
hergagnaiðnað og slapp líka að mestu við loftárásir. Hún var aug-
lýst álveg óvíggirt.
Franskar hersveitir ganga nú aftur fylktu liði undir liinn frœga
sigurboga Napoleons" í Paris.
Tilkynnmg frá Máli og menniiigu: -
Tímarit Máls og meaningar
Nýtt hefti er komið út af Tímariti Máls og menningar. Meðal efnisins er ýtarleg rltgerð
eftir Halldór Kiljan Laxness um íslendingasögur, uppruna þeirra og skáldlistareinkenni. —
Valdimar Björnsson rltar minningargrein um Franklin D. Roosevelt, forseta Bandaríkjanna.
Guðmundur Kjartansson, jarðfræðingur: Um upphaf íslands og aldur. Björn Bjarnason um
Heimsráðstefnu verkalýðsfélaganna.
Ennfremur eru ritgerðir um Romain Rolland og Pár Lagerkvíst, kvæði, sögur og bóka-
fregnir o. fl. Sigurður Nordal ritar um Innan sviga eftir Halldór Stefánsson. Andrés Björnsson
um ijóðabækur Snorra Hjartarsonar og Guðmundar Böðvarssonar.
Félagsmenn i Reykjavík eru beðnir 'að vitja Tímaritsins í Bókabúð Máls og menningar.
Mál og mciming, — Laugavegi 19. Síml 5055.
Höíum að jafnaði
mikið úrval af alls-
konar karlmaimafatn-
aði, svo scm:
Kjólfötum,
Smókingfötum,
Jakkafötum,
Buxum, ljósum og dökkum,
Stökkum m/ og án hettu,
Frökkum, sumar og vetrar,
Manchettskyrtum,
Nærfötum,
Höttum,
Bindum,
Hönzkum.
Kaupfél. Eyfírðínga
V cf naðarvör udcild.
Þakkarávavp
Öllum þeim mörgu, er sýndu mér vináttu með heim-
sókn, gjöfum og heillaskeytum á fimmtugsafmœli minu
14. mai síðastliðinn, þakka ég af alhug.
KLEMENS KR. KRISTJÁNSSON
Sámsstöðum.
Köfum fengið
Gum-Gripper,
nýtt amerískt efni, lagfærir
falskar tennur, sem tolla illa eða
særa góminn.
Berist á á þriggja mánaða
fresti. Einfalt og þægilegt.
Leiðarvisir á íslenzku. Tólf
króna túba endist heilt ár.
Sendum um land allt.
Seyðisfjarðar Apótek.
Fataefni
úr kambgarni. — Ennfremur Sportfata- og Dragtaefni.
Saumum föt fljótlega.
Qefjun - Idiiiiu
Dafnarstræti 4.
ATHIJGIÐ
Getum afgreitt'
KARLMANNAF0T
úr fyrsta flokks enskum efnum. Amerísk snið, ef óskað er.
Komið sem fyrst, vegna sumarleyfanna.
FOJT H.F,
I»verliclti 17.
Hér sjást nokkrir þýzkir lierfangar, 'en tala þeirra skiptir nú orðið
‘milljónum. Margir þeirra verða fyrst um sinn látnir vinna nnauð-
ungarvinnu í ýmsum löndum Bandamanna.
Hættuleg
hjálparstarfsemi.
(Framhald af 4. siðu)
Yfir dyr íbúðar sinnar hafði
séra Vergara ritað þeksi orð
Lúðvíks Pasteur: „Við spyrjum
ekki óhamingjusaman mann:
„Frá hvaða landi ert þú, og
hvaða trú játar þú?“ Við segj-
um við hann: „Þú þjáist, það
er nóg. Þú ert einn okkar. Við
skulum lækna þig“.“-
Þessa nótt voru sjötíu ótta-
slegin og tötraleg Gyðingabörn
leidd inn í húsið, þar sem þessi
orð voru skráð. Daginn eftir not-
aði séra Vergara til þess að út-
vega þeim öruggari dvalarstað,
á svipaðan hátt og kaþólsku
prestarnir, faðir Chaillet og
faðir Duvaux höfðu gert hvor í
sínu lagi.
i Seinna gerði þýzka leynilög-
reglan tvívegis húsrannsókn hjá
presti. í fyrra skiptið drápu
þeir mág hans. En í síðara skipt-
ið var séra Vergara gert aðvart
af einum vina sinna um gesta-
komuna og flúði hann þá, á-
samt helztu hjálparmönnum
sínum, er hjá honum voru.út um
glugga á íbúðinni og komust
klakklaust yfir á þakið á næsta
húsi og niður á götuna. En
Þjóðverjar tóku konu prestsins
og son hahs höndum og mis-
þyrmdu þeim. Síðar fluttu þeir
drenginn í útiegð.
Flest þeirra átta þúsund
barna, er falin voru víðs vegar
um Frakkland, eru enn kyrr hjá
þeim, er tóku þau í fóstur. Þó
hafa fóreldrar og ættingjar, er
sloppið hafa lífs frá ofsóknum
nazista, og fundizt hafa eða gef-
ið sig fram, gert tilkall til hér
Aðalfnndnr
Sölusæmbands íslcn/kra fiskframleiðenda
verður haldinn í Reykjavík laugardaginn 9. júní kl. 10 árdegis.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Rætt verður um beiðni Fiskimálanefndar um kaup á Niður-
suðuverksmiðju S. í. F.
Sölusamband ísl. fiskframleiðenda
Magmis Sigurðsson,
formaður.
um bil þúsund barna. Hin eru
enn í fóstrinu og verða það, þar
til séð verður, hvort foreldrar
þeirra eða nánir vandamenn
koma lifandi heim úr fangabúð-
unum í Þýzkalandi og geta séð
sér og þeim farborða. En sá hóp-
ur verður líklega næsta þunn-
skipaður. .
Þessi börn eiga þó enga sæld-
ardaga. Þau hafa flest orðið að
þola miklar raunir áður en þau
komust í góðra manna hendur
og elzt fyrir ár fram. Þau hafa
horft á það eigin augum, er
foreldrar þeirra voru barðir og
dregnir burtu. Sjálf hafa þau
sætt hörkulegustu meðferð.
Heimili þeirra eru lögð í rústir,
og fæst sjá foreldra sína aftur,
önnur aðeins andlegt og líkam-
legt örkumlafólk. Þeirra eina
raunabót ér sú, að fólkinu, sem
tók þau upp á arma sina á
neyðar- og hættustund, er farið
að þykja vænt um þau, eins og
þau væru þess börn. „Ef for-
eldrar hans Hanna litla koma
ORÐSENDING
tU kaupenda Tlmans.
Ef kaupendur Tímans verða
fyrir vanskilum á blaðinu, eru
þeir vinsamlega beðnir að snúa
sér STRAX tU
ÞÓRÐAR ÞORSTEINSSONAR,
aJgreiðslumanns,
♦♦♦♦<
Vlnnið ötullega tyrlr
Tímann.
— ja, þá verðum við að sleppa
honum“, sagði ein konan. „En
verði það ekki, er bezt, að litla
skinnið sé kyrrt hjá okkur. Það
færi ekki betur um hann annars
staðar."
I