Tíminn - 29.05.1945, Blaðsíða 8
DAGSKRÁ er bezta íslenzha tímaritið um
þjóðf élaysmál.
8
tŒYKJÆVÍK
Þeir, sem viljja kynna sér þjóðfélagsmál, fttn-
lend oy útlend, þurfa að lesa Daqskrá.
29. MAÍ 1945
39. blað
Tamáll
17. maí, fimmtudagur:
]\ý vandamál.
Bretland: Eden flutti ræSu í
brezka þinginu og sagði, að ár-
angurinn væri sæmilegur á ráð-
stefnunni í San Francisco, en
hinu væri ekki að leyna, að
myndast hefðu ný erfið vanda-
mál á öðrum vettvangi alþjóða-
mála.
Þýzkaland: Bandamenn hand-
tóku stormsveitarforingjana
Skoryeny, leikkonuna Leni Rei-
fenstal og hnefaleikarann Max
Schmeling.
Ítalía: Kona Himmlers og
dóttir handteknar.
18. maí, föstudagur:
Vmmiskylda í Belgíu.
Belgía: Belgíska stjórnin fyr-
irskipaði vinnuskyldu næstu
þrjá mánuði og má enginn gera
verkfall á þeim tíma. Tilefni
þessarar fyrirskipunar er það,
að verkföll hafa breiðst út í
Belgiu að undanförnu, þótt
verkalýðssamtökin hafi reynt að
hindra þau. Munu kommúnistar
vinna að þeim á laun.
írland: De Valera tilkynnti,
að írar myndu senda mikil mat-
væli til meginlandsins og yrði
matarskammturinn enn tak-
markaður í því skyni.
Bandaríkin: Truman forseti
lýsti sig fylgjandi því, að Frakk-
ar hernæmu nokkurn hluta
Þýzkalands.
19. maí, laugardagur:
Yflrlýsing Alexanders.
ítalía: Alexander marskálk-
ur birti yfirlýsingu um Trieste-
deiluna. Hann deildi fast á
franíferði Titos og taldi það
minna á háttalag Hitlers,
Mussolini og Japana.
Þýzkaland: Bretar tóku til
fanga Alfred Rosenberg, einn af
kúnnustu foringjum nazista.
Bretland: Tilkynnt, að brezki
flugherinn hafi alls varpað 986
þús. smál. af sprengjum á
Þýzkaland, en ameríski flugher-
inn 891 þús. smál.
Frakkland: Frakkar báru
fram kröfur um að innlima
nokkur ítölsk héruð og hafa
sent her þangað.
20. maí, sunnudagur:
Tito slakar til.
Jugoslavia: Tito lýsti yfir því,
að hann myndi láta her sinn
fara úr þeim héruðum Austur-
ríkis, er hann hafði látið „inn-
lima“. Bretar höfðu mótmælt
„innlimuninni". Hins vegar
neitaði hann að láta herinn fara
úr Trieste.
Kína: Kínverskur her tók
hafnarborgina Fooshov.
Belgía: Tilkynnt, að Leopold
konungur væri hjartabilaður og
myndi ekki taka við stjórn fyrst
um sinn.
Noregur: Berggrav biskup lýsti
sig andvígan því, að dauðarefs-
ing yrði aftur í lög tekin.
21. maí, mánudagur: ^
Kosningar í Bretlandl.
Bretland: Þing verkamanna-
flokksins kom saman í Black-
pool. Þinginu barst tilboð frá
Churchill um, að samstjórn-
in héldi áfram þar til styrjöld-
inni væri lokið við Japani, ella
yrði kosið til þingsins 1 júlí.
Þingið samþykkti að standa við
fyrri ályktun flokksins, að ráð-
herrar hans færu úr stjórninni,
er Evrópustríðinu væri lokið.
Þingið lagði til, að kosningar
yrðu í haust og skyldi flokkur-
inn þá vera í samstjórn til þess
tíma.
Sýrland: Stjórnir Sýrlands og
Libanon hafá hætt samningum
við Frakka, vegna þess, að þeir
hafa flutt þangað aukið lið.
Sýrlendingar og Libanonmenn
vilja fá fullt frelsi, en Frakkar
hafa farið þar með æðstu stjórn.
22. maí, þriðjudagur:
Samvinnuslit í Sví|) jóð.
Svíþjóð: Per Albin Hanson
forsætisráðherra tilkynnti, að
TÍI»14.\S
vænta mætti þess, að núverandi
samstjórn yrði slitið, þar sem
styrjöldinni væri lokið og henn-
ar því ekki sama þörf og áður.
Bretland: Tilkynnt, að Bretar
þyrftu enn að minnka matar-
skammtinn til þes að geta
hjálpað meginlandsþjóðunum.
23. maí, miðvikudagur:
Cliurchill biðst lausnar
Bretland: Churchill gekk á
fund Georgs konungs og baðst
lausnar fyrir ' ráðuneyti sitt.
Konungur fól honum að mynda
nýja stjórn.
Þýzkaland: Bandamenn settu
stjórn Dönitz og þýzka herfor-
ingjaráðið, sem var i Flensborg,
í varðhald.
Japan: Tokio varð fyrir stór-
kostlegri loftárás 550 amerískra
flugvirkja.
24. maí, fimmtudagur:
Himmler fremur "
sjálfsmorð.
Þýzkaland: Tilkynnt, að
Himmler, yfirmaður Gestapo,
hafi framið sjálfsmorð kvöldið
áður. Hann var. tekinn fastur í
dularbúningi 21. maí og þekkt-
ist ekki fyrr en hann skýrði
sjálfur frá nafni sínu. Hann var
þá tekinn til læknisskoðunar,
en áður en henni væri lokið,
beit hann sundur bi,ásýruglas,
sem hann hafði falið í munni
sér: Hann lézt 16 mín. síðar.
Frakkland: De Gaulle hélt út-
varpsræðu,’ þar sem hann sagði
m. a., að allar kauphækkanir
yrðu bannaðar fyrst um sinn.
Baindaríkin: Truman forseti
hefir sent Harry Hopkins til
Moskvu og Joseph Davies til
London i persónulegum erind-
um fyrir sig.
25. maí, föstudagur:
Nýja brezka stjórnin.
Bretland: Churchill tilkynnti
að hapn hefði lokið við myndun
nýrrar stjórnar og birti ráð-
herralistann. íhaldsmenn og ut-
anflokkamenn, sem sátu í fyrri
Stjórninni, gegna störfum á-
fram. Nýliðar í stjórninni eru
ýmíst íhaldsmenn eða utan-
flokkamenn, m. a. Hore Belisha.
Jafnaðarmenn • og frjálslyndir
standa utan stjórnarinnar.
Frakkland: Utanríkismála-
nefnd bráðabirgðaþingsins skor-
ar á Bandamenn að hrekja
Franco frá völdum, þar sem
hann hefir neitað að framselja
Laval.
Japan: Tokio varð fyrir stór-
kostlegri loftárás, • skemmdir
urðu á keisarahöllinni.
Verra en heild-
salahneykslið
(Framhald af 1. síðu)
Heyrzt hefir að reyna eigi að
réttlæta réttarsektina með því,
að einn af meðeigendum fyrir-
tækisins hafi látizt meðan rann-
sóknin stóð yfir, en vitanlega
þurfti það engu að breyta um
það, að málið héldi áfram og
fyrirtækið fengi fulla sekt. Get-
ur hver gert sér í hugarlund,
hvort núv. stjórn mundi láta
mál falla niður, sem hefði verið
höfðað gegn einhverju kaupfé-
lagi, þótt forstöðumaður þess
andaðist meðan rannsóknin
stæði yfir. Hitt mun sönnu naer,
að það hafi haft sín áhrif að
annar meðeigandi fyrirtækisins
var Jóhann Þ. Jósefsson; for-
maður nýbyggingaráðs, og sá
þriðji tengdasonur Magnúsar
Jónssonar, fyrrum dósents.
Það sýnir beZt, hve kommún-
istar eru samdauna hvers konar
.spillingu, að þeir hafa krafizt
þess, rétt eftir að uppvíst varð
um svik þessa fyrirtækis, sem
Jóhann Jósefsson er riðinn við,
að nýbyggingaráði yrði falin
úthlutun alls innflutnings til
landsins. Öllum sannsýnum
mönnum myndi hinsvegar þykj a
eðlilegt og sjálfsagt, að mál þetta
yrði tafarlaust tekið upp að
nýju og Jóhann léti af for-
Ongþveítið í byggingamálum
(Framhald af 1. síOu)
málum, þegar hún var að semja
stefnuskrá sína.
Ýmsir stjórnarliðar munu
hafa gert sér vonir um, að
stjórnin myndi bæta úr þessari
gleymsku sinni í verki. Þeir
hafa beðið og bíða enn, án þess
að sjá þess nokkur merki, að
stjórnin ætL að hreyfa hönd eða
fót til úrbóta.
Þvert á móti virðist stjórnin
hafa fullan hug á að sýna þess-
um málum sem bezt ræktarleysi.
Nefndin, sem á síðastl. ári safn-
aði upplýsingum um bygginga-
þörfina og ætlaði síðan að und-
irbúa tillögur um hvernig ætti
að fullnægja henni, hefir verið
lögð niður og starf hennar falið
Nýbyggingaráði, sém hefir látið
þessi mál með öllu afskiptalaus,
þrátt fyrir margra mánaða
setu. Frumvarpinu um. lóðamál-
in, sem stjórninni barst á síð-
astl. hausti, hefir verið stungið
undir stól, þótt nægur tími væri
til að afgreiða það á seinasta
þingi. Verst af öllu er þó það, að
stjórnin hefir engu skeytt því,
þótt nauðsynlegar íbúðarbygg-
ingar tefjist eða stöðvist með
öllu vegna þess að skortur er á
byggingarefni og ýmsir stór-
gróðamenn hafa sölsað meginið
af því undir sig, til að geta kom-
ið upp óþarflega stórum luxus-
húsum eða íburðarmiklum sum-
arbústöðum.
Þetta sinnuleysi ríkisstjórn-
arinnar .bitnar nú á fjölda
manna víða um land, er hafa
ætlað að reyna að koma sér upp
nýjum íbúðum til að komast úr
húsnæði, sem er lítt eða ekki
nothæft. Margir bændur, verka-
menn og sjómenn og fjölskyldur
þeirra verða að hírast áfram í
moldarkofum og kjöllurum
vegna þess að byggingarefnið er
notað til þess að auðkóngarnir,
er bjuggu í luxushúsum, geti
reist sér enn glæsilegri luxus-
hús.
„trræði“ kommún-
ista.
Blað kommúnistanna, Þjóð-
viljinn, finnur að vonum til
þess, að þetta ástand í bygging-
ingamálunum samrýmist illa
þeim loforðum, er forkólfar þess
hafa verið að gefa hinum vinn-
andi stéttum landsins. Blaðið
finnur, að óánægja þeirra, sem
þetta skípulagsleysi bitnar á,
fer óðum vaxandi, og það veit-
ist því stöðugt erfiðara að
skrökva því að íbúum bragg-
anna í Reykjavík, að forsprökk-
um kommúnista sé bezt trúandi
til að leysa húsnæðismál þeirra.
Til þes að reyna að bjarga sér
undan þessari réttmætu óá-
nægju þeirra, sem búa við hús-
næðisvandræðin í 'Reykjavík,
ber Þjóðviljinn fram í forustu-
grein 24. þ. m. tillögu um það,
hvernig tryggja eigi Reykvík-
ingum nóg byggingarefni. Hún
er í stuttu máli sú, að draga úr
innflutningi byggingarefnis til
annarra staða en Reykjavíkur,
en láta þó eftir sem áður af-
skiptalaust, hvernig byggingar-
efnið verður notað hér.
Eftir að Þjóðviljinn -hefir veizt
harðlega að viðskiptaráði í upp-
hafi greinarinnar, segir hann:
\
„Það er fyllsta ástæSa til að ætla að
þetta Framsóknar-cocacola viðskipta-
ráð sé nú í þann veginn, eða búið, að
ráðstafa þeim timburinnflutningi sem
mennsku í nýbyggingaráði með-
an rannsókn færi fram og dóm;
ur gengi í málinu. Dómsúrslitin
yrðu svo að ráða því, hvort Jó-
hann tæki við formennskunni
aftur.
íhaldsmenn og kommúnistar
anumæltu því, á sínum tíma,
að Jón ívarsson ætti sæti í
viðskiptaráði meðan mál hans
væri rannsakað. Slíkt ætti ekki
síður að gilda um Jóhann. Dóms-
málaráðherrann getur ekki bætt
öðru vísi betur úr þessu réttar-
sættarhneyksli en að taka mál-
ið upp að nýju og sé Jóhanni
annt um heiður sinn á hann
líka að heimta fulla rannsókn
og dóm og víkja úr nýbygginga-
ráði á meðan.
fæst frá Svíþjóð og það með þeim
hætti, að hlutur Reykjavíkur sé fyrir
borð borinn.
Það ætti að vera óþarfi að benda á,
að Reykvíkingar hafa hlutfallslega
meiri þörf fyrir byggingarefni en
aðrir landsmenn, og það meðal ann-
ars af þeirri cinföldu ástæðu, að til
Reykjavíkur streymir fólk úr öllum
landshlutum og það svo ört, að svo
að segja öll f jölgun þjóðarinnar lendir
hér. Stórir landshlutar utan Reykja-
víkur þurfa aðeins að sjá um endur-
byggingu og viðhald húsa, fyrir það
fólk, sem þar hefir dvalið, en Reykja-
vík verður auk þessa að sjá á annað
þús. nýrra íbúa fyrir húsnæði ár
hvcrt. Þessar staðreyndir, ásamt óaf-
sakanlegu sinnuleysi bæjarstjórnar-
mcirihlutans, hafa skapað óþolandi
húsnæðisvandræði í bænum, sem rík-
isstjórn og bæjarstjórn ber að sam-
einast um að bæta úr, en í stað þess
eru Framsóknarmenn látnir ráða því
hvað mlkið timbur Reykvíkingar fá
til húsagerðar á þessu ári.“
Hér er vissúlega ekki verið að
krefjast þess, að tekin sé upp
>kömmtun á byggingarefni al-
mennt, svo að nauðsynlegar í-
búðarbyggingar, hvar sem er á
íandinu, geti setið fyrir skraut-
hýsum auðkónganna. Nei, það á
ekki að takmarka byggingarefn-
ið til þeirra. Það á að taka bygg-
ingarefnið frá bændum, sjó-
mönnum og verkamönnum og
öðrum þeim, sem búa utan
Reykjavíkur, svo að auðkóng-
arnir geti haldið-áfram óhindr-
að að byggja skrauthýsi og
skrifstofuhallir í höfuðborginni.
Sú athugun á byggingarþörf-
inni, er gerð var á síðastl. ári,
sýndi fullkomlega, að endur-
byggingaþörfin er sízt minni í
sveitum, kauptúnum og kaup-
stöðum út á landi en í Reykja-
vík, og vitanlega eiga þessir
staðir líka að fá til sín bróður-
partinn af fólksfjölguninni. Það
sýnir vel hug kommúnistanna,
ekki aðeins til sveitanna, held-
ur líka kauptúnanna og kaup-
staðanna úti á landi, að þeir
leggja hiklaust til, að bygginga-
efninu sé skipt þannig, að reikn-
að sé með, að öll fólksfjölgunin
lendi í Reykjavík. Til þess hlyti
líka að leiða, ef úthlutun bygg-
ingarefnis væri hagað þannig,
að ekki væri ætlað byggingar-
efni til nýbygginga annars stað-
ar, þótt afkomuskilyrði séu þar
betri en í Reykjavík.
Um úthlutun viðskiptaráðs á
byggingarefni mun óhætt að
segja það, að Reykjavík hefir
fengið og fær fullkomlega sinn
hluta ‘af byggingarefnisinn-
flutningnum og myndi henni
sennilega til lítils hags, að þeir
reikningar yrðu gerðir upp.
Annars ræður viðskiptaráð ekki
nema litlu um það, hvert bygg-
ingarefnið fer, því að verzlan-
irnar, sem fá innflutningsleyfin,
skipta því milli landsmanna, án
afskipta ráðsins. Ádeila Þjóð-
viljans* á viðskiptaráð er því
hreint vindhögg, en með þvl að
blekkja almenning og leyna fyr-
ir honum vanrækslu stjórnar-
innar.
Vanmáttur stjórnar-
innar og stjórnar-
flokkanna.
Þessi krafa Þjóðviljans, að
dregið verði úr byggingarefnis-
innflutningi til annarra staða
en Reykjavíkur, til þess að lux-
usbyggingarnar geti haldizt á-
fram hér, lýsir ekki aðeins full-
komnum fjandskap til lands-
byggðarinnar, heldur og fyllsta
úrræðaleysi og va-nmætti til að
leysa by’ggingamálin, svo að
nokkurt vit sé í eða til gagns
megi verða fyrir þjóðarheildina.
Sinnuleysi og úrræðaleysi rík-
isstjórnarinnar og stjórnar-
flokkanna í byggingarmálunum,
er gleggsta dæmi þess, hve ger-
samlega þessir aðilar eru ófærir
til að hafa með höndum þá
„nýsköpun", sem þeir eru stöð-
ugt að lofa þjóðinni. Þjóðin fær
hvorki í byggingarmálum né á
öðrum sviðum þá „nýsköpun“,
sem hún þráir, nema hún
steypi núv. stjórn úr stóli og
hefji samtök framtakssamra
umbótamanna til yfirráða. Al-
OAM LA B f Ó
PAYAMA HATTIE
Söngva- og gamanmynd.
Red Shelton,
Ann Sothern.
Sýnd kl. 9.
Andy Hardy
milli tvess'gja elda
(„Andy Hardy’s Double Life“)
Ann Rutherford,
Mickey Rooney,
Esther Willlams.
Sýnd kl. 5 og 7.
í
N Ý J
Í Ó
Æskaogelli
(„In Our Time“)
Mikilfengleg stórmynd.
Aðalhlutverkin leika:
Ida Lupino,
Paul Henreid.
Sýnd kl. 4, 6,30 og 9.
Þeir gerðu garðinn
frægan
oo
Dáðir
voru drýgðar
eru ágætar skemmtibækur og
hafa auk þess þann kost að
vera ódýrar.
TJARNARBÍÓ?
LAÍVGT FIjVTVST
ÞEIM SEM BÍÐUR
(Since You Went Away)
Hrlfandi fögur mynd um' hagi
þeirra, sem heima sitja.
Claud. Colbert, Jennifer Jones,
Joseph Cotten, Shirley Temple,
Monty Wooley, L. Barrymore,
Robert Walker.
Sýnd kl. 6 og 9.
Þokkalcg þrenning
Sprenghlægileg sænsk gaman-
mynd.
Sýnd ki. 4.
LEIKFÉLACt REYKJAVÍKUR
Kaupmaðurinn í Feneyjum
Gamanleikur í 5 þáttum, eftir William Shakespeare.
Sýning annað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 í dag.
Aðgangur bannaður fyrir börn.
Vegna hreinsunar og
eiftirlits á Esju
verður ferðum Súðarinnar hagað sem hér greinir:
1. Skipið fer austur um land síðari hluta þessarar viku með
viðkomu á venjulegum höfnum til Akureyrar og heldur síðan
áfram til Reykjavíkur með viðkomu á Siglufirði, ísafirði,
Bíldudal og Patreksfirði. Flutningi til Austurlandshafna frá
Hornafirði til Húsavíkur óskast skllað og pantaðir farseðlar
sóttir á morgun (miðvikudag).
2. Að lokinni ofangreindri ferð er ráðgert, að skipið fari, í
kringum miðjan júní, venjulega strandferð vestur og norð-
ur til Akureyrar.
Meðan á austurferð Súðarinnar stendur, verður séð fyrir flutn-
ingi til og frá Vestfjörðum með Ægi og smærri skipum.
Ú R B Æ N U M
Skákeinvígi
þeirra Guðmundar Ágústssonar og
Magnúsar G. Jónssonar um titilinn
„Skákmeistari Reykjavíkur 1945“, er
nýlega lokið með sigri Guðmundar.
Þeir tefldu fimm skákir, vann Guð-
mundur 3 og gerði 2 jafnteflí.
Skipanaust h.f.
hefir farið þess á leit við bæjarstjórn
að bærinn styrki félagið til að koma
upp fullkominni dráttarbraut við
Elliðaárvog, með því að kaupa hluta-
bréf í fyrirtækinu. Bæjarráð hefir
samþykkt að leggja til við bæjarstjórn
að keypt verði hlutabréf fyrir 100 þús.
krónur, með því skilyrði, að bæjar-
stjórn eigi rétt á að tilnefna einn
mann í stjórn félagsins.
Strandarkirkja.
Gamalt áheit frá'ónefndum kr. 50,00.
veg sérstaklega mættu menn út
um land gera sér þetta Ijóst,
eftir að annað helzta stjórnar-
blaðið hefir komið fram með þá
tillögu, að takmarka byggingar-
efnisinnflutning þangað, svo að
ekki þurfi að stöðva luxusbygg-
ingar í Reykjavfk. Núverandi
stjórnarsamvinna getur þannig
ekki aðeins orðið til þess, að
ríkjandi öngþveiti haldist á-
fram, heldur einnig að gripið
verði til hinna ranglátustu ör-
þrifaráða og kostur landsbyggð-
arinnar enn þrengdur í þessum
efnum.
Aðalfundur
Taflfélags Reykjavíkur
var haldinn 13. þ. m. í stjórn voru
kosnir: ívar Þórarinsson f ormaður,
Þórður Jónsson gjaldkeri; Böðvar
Pétursson ritari; meðstjórendur: Ró-
bert Sigmundsson, Hafsteinn Ólafsson
og Kristján Silveriusson til vara.
Aðalfundur íþróttafélags
Reykjavíkur
var nýlega haldinn. Formaður gaf
skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu
ári og skýrði frá helztu framtíðar-
áætlunum. Sigurpáll Jónsson var kos-
inn formaður félagsins í stað Þorsteins
Bernharðssonar. Aðrir í stjórn voru
kosnir: Friðjón Ástráðsson, Ingólfur
Steinsson, Ragnar Þorsteinsson, Sig-
urður Sigurðsson, Halldór Magnússon,
og Þorsteinn Bernharðsson. — Vara-
stjórnendur: Elísabet Jónsdóttir,
Gunnax Sjteindórsson og Sigurgísli
Sigurðsson. — Endurskoðendur voru
endurkosnir Gunnar Einarsson prent-
smiðjustjóri og Ben. G. Waage, forseti
í. S. í.
33 gluggarúður
voru nýlega brotnar með grjótkasti
í dælustöðinni í Öskjuhlíð og munaði
litlu að háspennustöðin væri eyðilögð
með þessu athæfi gárunganna. Verkn-
aður þessi var framinn um nótt og var
gólf stöðvarinnar þakið stærðar
hnullungum, þegar komið var að um
morguninn. Öll vegsummerki sýna, að
hér hafa fullorðnir menn verið að
verki og skemmt sér á heldur óviðfeld-
inn hátt, svo ekki sé meira sagt. Bera
slíkar aðfarir sem þessar vott um sið-
leysi og lúalegt innræti hlutaðeigenda.