Tíminn - 16.03.1945, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
ÚTGEPFANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN.
Símar 2353 Og 4373.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
RITST JÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9A.
Símar 2353 Og 4373.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSIN GASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A.
Síml 2323.
29. árg.
Reykjavík, föstuelagiim 16. marz 1945
21. blað
pBQar „Dl!lliIflSS,, SÖkk B«naðarþing lýsir eindrcgnu íylgí víð
Frásögn Jónasar Böðvarssonar, skipstjóra. j arðræktar- og áburðarverksmið jufrv.
Blaðinu hefir nú tekizt að fá allnákvæmar fréttir af því þeg- ____
ar Dettifossi var sökkt. En eins og kunnugt er, var áður aðeins
skýrt frá því, að Dettifoss hefði sokkið, hveijir farizt með skip-
KOIVUNGSH JÓIV í HEIMSÓKN
Búnadarþingf mótmælir harðlega
inu og hverjum hefði verið bjargað.
Tíminn hefir snúið sér til skipstjórans, Jónasar Böðvarssonar,
og hefir hann sagt blaðinu hvernig slysið bar að höndum.
Hótel Gulllíoss á Ak-
ureyri brennur
Skömmu fyrir miðnætti í
fyrrinótt, eða um kl. 11,30,
kviknaði í Hótel Gullfoss á
Akureyri. Varð húsið alelda á
skömmum tíma, en fólk bjarg-
aðist þó með naumindum.
Þegar slökkviliðið kom á vett-
vang, var orðinn svo mikill
eldur og reykur, að ekki voru
tiltök að fara inn í hið brenn-
andi hús.
í gærmorgun, þegar slökkvi-
liðinu hafði tekizt að ráða nið-
urlögum eldsins, var húsið að
mestu brunnið, en eftir stóð þó
grindin og nokkuð af báru-
járnsklæðningu. Aðeins litlu
varð bjargað af innanstokks-
munum, aðallega úr veitinga-
salnum, sem var á neðstu hæð-
inni og nokkru af innbúi hó-
telseigandans, Gunnars Stein-
grímssonar, tókst einnig að
bjarga.
Alls bjuggu 30—40 manns á
hótelinu, þar af im 20 skóla-
nemendur. Missti þetta fólk nær
því allt sitt í eldsvoðanum.
Ennþá er óvíst um orsakir að
upptökum eldsins, en hans varð
fyrst vart í austurálmu bygg-
ingarinnar. Slökkviliðið vann
ötullega að því að slökkva eld-
inn og verja næstu hús, aðallega
hótel Akureyri, sem var I mestri
hættu. En um tíma var óttazt
um, að eldurinn næði því. —
Skemmdir urðu því engar telj-
andi á öðrum húsum.
Ung söngkona
Reykvíkingar eiga von á
góðri skemmtun á þriðjudaginn
kemur, því að þá efnir hin vin-
sæla, unga söngkona, ungfrú
Guðrún Á. Símonar, til söng-
skemmtunar í Gamla Bíó, með
aðstoð Þórarins Guðmundsson-
ar, Fritz Weisshappel og Þór-
halls Árnasonar.
Á söngskránni, sem skiptist í
4 liði, eru 11 lög eftir innlenda
(Framhald á 8. slðu)
Skipið var á siglingu heim-
leiðis i allgóðu veðri. Það var
snemma morguns, klukkan 8y2,
þegar sprenging varð framar-
lega í skipinu. Hvort tundur-
skeyti eða tundurdufl hefir
valdið sprengingunni, verður
ekki vitað. Farþegar voru flestir
neðanþilja í rúmum sínum, en
skipverjar voru um það bil að
skipta um vakt. Sex hásetar voru
fram í. Var einn þeirra í rúmi
sinu (hann komst af), en hinir
voru í borðsal. Einnig voru
nokkrir kyndaranna fram í, en
þar voru vistarverur þeirra og
háseta ofanþilja. Þeir, sem
voru fram í borðsal, munu ekki
hafa komizt út, því sprengingin
mun hafa rifið skipið að fram-
an undir sjávarmáli.
Þegar sprengingin varð, þustu
allir út á þilfar, nema þeir, sem
ekki hafa komizt úr klefum sín-
um fram í. Á skipinu vorn tveir
björgunarbátar á bátaþilfari
miðskips og einn á palli aftast á
skipinu. Einnig voru björgunár-
flekar á skipinu. Eini báturinn,
sem hægt var að koma út, vegna
þess hve skipið hallaðist, var sá,
sem var bakborðsmeginn mið-
skipa. Við sprenginguna losnaði
einn fleki frá skipinu og öðrum
varð komið á flot skömmu
seinna. Þótt það tæki ekki mik-
ið meira en' 3 mín. að koma
björgunartækjum þessum á flot
frá skipinu, mátti ekki tæpara
standa, að tími ynnist til þess.
Alls mun ekki hafa liðið lengri
tími en 5 mín. frá því að spreng-
ingin varð og þar til skipið var
sokkið.
Framhluti skipsins fór á und-
an og stóð fánastöngin með ís-
lenzka fánanum seinast ein upp
úr sjónum.
Flestir þeirra, sem af komust,
fleygðu sér í sjóinn og tókst síð-
ar að koma sér í bátinn eða á
flekana. í bátinn komust fyrst
11, en síðar voru teknir upp í
hann 2, sem bjargazt höfðu á
annan flekann, en á hinn flek-
ann komust 17.
Eftir um klukkutíma hrakn-
inga á bát og fleka, var fólkinu
bjargað af brezku eftirlitsskipi.
Allan þann tíma voru skipbrots-
mennirnir fullvissir um, að
hjálp myndi berast, því altaf
sást til skipaferða. Veðrið var
sæmilegt í fyrstu, en síðar
hvessti nokkuð. Flestir þeir, sem
af komust, voru fáklæddir. Eng-
um varð samt verulega meint
af vosbúðinni nema frú Euguine
Bergin, en hún var meðvitund-
arlaus, þegar henni var bjarg-
að af björgunarbátnum. Hún fór
í sjúkrahús þegar í land kom og
hresstist eftir nokkurra daga
veru þar. Allir hinir, s&m af
komúst, voru hressir og ómeidd-
ir. —
Hinir brezku sjómenn tóku
skipbrotsfólkinu tveim höndum,
og veittu þá hjálp, sem þeir
gátu veitt. Þegar komið var á
land, var fulltrúi frá Eimskipa-
fél. og Rauðakrossinum mættir
til að taka á móti fólkinu. Eftir
nokkurra daga bið fengu skip-
brotsmennirnir ferð heim og
gekk sú ferð að óskum.
Mynd þessi var tekin Jyrir nokkru síðan, þegar brezku konungshjónin
komu í heimsókn í aðalbœkistöðvar Harris flugmarskálks, sem stjórnar
loftsókn Breta gegn Þýzkalandi. Harris er til vinstri liandar á myndinni.
Hneyksll í flugmálunum:
Kunnur Rússadindill
skipaður ilugmálasljóri
Þegar núverandi stjórn var mynduð, höfðu ýmsir liðsmenn Al-
þýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins það á orði, að kommúnist-
ar leggðu alveg ótrúlegt kapp á, að flugmálin tilheyrðu ekki
samgöngumálaráðuneytinu, sem Emil Jónsson átti að fá, heldur
yrðu þau klofin frá því og falin ráðherrum kommúnista. Mörg-
um þótti þetta ekki undarlegt, þar sem flugmálin og flugsam-
göngurnar um ísland hljóta að verða einn meginþáttur utan-
ríkismálanna á komandi árum.
Niðurstaða þessara átaka
stj órnarflokkanna í haust lykt-
aði með því, að kommúnistar
urðu hlutskarpari og fengu yfir-
stjórn flugmálanna í sínar
hendur. Var fyrsti árangur þess
sá, að Sigurður Thoroddsen var
sendur á flugmálaráðstefnuna
í Chicago síðastl. haust, án þess
að sjáanlegt væri, að íslend-
ingar hefðu minnstu þörf fyrir
nærveru hans þar. Annar árang-
urinn er sá, að Erling Ellingsen
hefir nú verið skipaðuríembætti
flugmálastjóra, er ákveðið var
að stofna á seinasta Alþingi.
Mun hvorki Agnari Kofoed-
Hansen er verið hefir flugmála-
ráðunautur ríkisins, né Erni
Johnson, er sýnt hefir mikinn
dugnað í þessum málum, hafa
verið boðið þetta starf, en þeir
hefðu virzt manna sjálfkjörn-
astir til þess. Kommúnistum
mun heldur ekki hafa verið það
neitt. áhugamál að fá hæfan
mann í starfið ,enda er eigi
kunungt um, að Erling þessi
hafi neitt það til brunns að bera,
er réttlæti þessa embættisveit-
ingu. Hins vegar er hann al-
þekkturRússadindill og það mun
sá verðleiki, er kommúnistar
munu telja nauðsynlegastan í
þessu sambandi.
Þetta mun því vafalaust ekki
vera seinasta hneyksli kommún-
ista í flugmálunum, ef þeir ann-
azt eiga stjórn þeirra.
Vísitalan
Kauplagsnefnd og Hagstofan
hafa reiknað út vísitölu fram-
færslukostnaðar fyrir marz-
mánuð og reyndist hún vera 274,
eða hin sama og tvo síðastliðna
mánuði.
Nýtt sjúkrahús
á Akureyri
Bæjarstjórn Akureyrarkaup-
staðar samþykkti á fundi sín-
um 6. þ. m. að hefja byggingu
hins fyrirhugaða sjúkrahúss
strax í vor og veður leyfa. Einn-
ig var ákveðið á fundinum ,að
húsið skyldi standa í brekku
sunnan við gamla sjúkrahúsið.
í spítalanum eiga að vera
rúm fyrir 88 sjúklinga, auk her-
bergja fyrir nauðsynlegan út-
búnað lækna og hjúkrunar-
kvenna.
Maður drukknar
Það slys vildi til s. 1. laugar-
dag, að Guðmundur Guðmunds-
son, bóndi í Grænanesi, drukkn-
aði í Grjótá I Steingrímsfirði.
Var Guðmundur að fara yfir ána
ríðandi, en féll af hestinum.
t DAG
birtist á 3. og 6. síðu grein
eftir Hermann Jónasson,
formann Framsóknar-
flokksins. Nefnist hún
„Kollsteypustefnan er for-
dæmd“.
Neðanmáls á 3. og 4. síðu
eru minningar um Guð-
mund Iljaltason, viðtal við
ekkju hans, Hólmfríði
Björnsdóttur, skráð af
Guðna Þórðarsyni blaða-
manni.
~—------------
kúgunarákvæði Búnaðarmála-
sjódsjaganna
Búnaðarþing hefir nú lokið afgreiðslu þriggja stórmála, sem
fyrir því hafa legið, jarðræktarlagamálsins, áburðarverksmiðju-
málsins og búnaðarmálasjóðsmálsins. Hefir Búnaðarþing í tveim-
ur fyrst nefndu málunum tekið eindregna afstöðu með frv.
þeim, sem stjórnarliðið kom fyrir kattarnef á seinasta þingi, og í
síðastnefnda málinu hefir það mótmælt því gerræði, að réttur
bænda til að ráðstafa búnaðarmálasjóði skuli takmarkaður.
Vafalaust mun það verða kölluð þröngsýni og klíkuskapur f mál-
gögnum kommúnista og Kveldúlfsmanna, að Búnaðarþing fylgir
þannig fast fram umbótamálum landbúnaðarins, en hitt mun
og jafnvist, að bændastéttin mun standa óskipt að baki Búnað
arþingi í málum þessum.
Búnaðarmálasjóður.
Á fundi Búnaðarþings í gær
var afgreidd fjárhagsáætlun
fyrir búnaðarmálasjóð. Tekjur
hans voru áætlaðar 300 þús. kr.
á þessu ári og 350 þús. kr. á
næsta ári. Ákveðið var að verja
meginhluta þessa fjár til hús-
bygginga fyrir félagið, eða kr.
395 þús. Til útgáfu Freys verð-
ur varið 65 þús. kr., til greiðslu
kostnaðar af Búnaðarþingi, að
því leyti, sem það sinnir sér-
hagsmunamálum bændastéttar-
innar, eru áætlaðar 60 þús. kr.,
til ferðasjóðs bænda 20 þús. kr.
og til styrktar nýjungum hjá
búnaðarsamböndunum 100 þús.
kr. Ýms gjöld voru áætluð 10
þús. kr.
Eins og sjá má af þessari á-
ætlun, er það fyrirætlun Bún-
aðarþings að reisa hús fyrir
starfsemi Búnaðarfélagsins, á-
samt gistiheimili fyrlr bændur,
sem er ætlað að rúma um 100
gesti og hafi tilheyrandi veit-
ingasali. Til þess að fá tekj-
ur til byggingarinnar, var stjórn
félagsins heimilað að selja
húseign þá, sem það á núv
Þegar búið er að koma húsi
þessu upp, er það ætlun Bún-
aðarþings, að tekjur búnaðar-
málasjóðs renni aðallega til
búnaðarsambandanna.
í tilefni af því gerræði sein-
asta Alþingis, að ráðstöfunin á
tekjum búnaðarmálasjóðs skuli
háð samþykki ráðherra, var
samþykkt svohljóðandi tillaga
méð atkvæðum allra Búnaðar-
þingsmanna, nema Sveins á
Egilsstöðum, er greiddi atkvæði
á móti:
„Búnaðarþing telur sig ekki
hafa misnotað það fé, er það-
hefir fengið til ráðstöfunar á
undanförnum áratugum og á-
lítur því ómaklega þá tortryggni
er fram kom á Alþingi í garð
þess, með breytingu þeirri, er
Alþingi gerði á frumvarpi til
laga um búnaðarmálasjóð, þar
sem áskilið er, að landbúnaðar-
ráðherra samþykki áætlun fyr-
ir sjóðinn, og þar sem hér er
eingöngu um að ræða fjárfram-
lag frá landbúnaðinum, leggur
Búnaðarþing áherzlu á að þetta
ákvæði verði numið úr lögun-
um“.
Bændur hafa með þessari sam-
þykkt hafið einhuga baráttu
fyrir því, að fá þessu kúgunar-
ákvæði aflétt og munu áreiðan-
lega ekki, nema aumustu und-
anvillingarnir í stéttasamtök-
unum, skerast úr leik í þeirri
baráttu.
Jarðræktarlagafrv.
í jarðræktarlagamálinu mót-
mælti Búnaðarþing eindregið
breytingu þeirri, sem gerð var á
frv. í neðri deild að tilhlutun
kommúnista og Jóns Pálma-
sonar og síðar varð þess vald-
andi, að málinu var vísað frá
í efri deild. Jafnframt mælti
það með samþykkt frv., eins og
það var upphaflega lagt fram.
Tillagan, sem Búnaðarþing
samþykkti um frv., var sam-
þykkj með atkvæðum allra
búnaðarþingsmanna gegn atkv.
Sveins á Egilsstöðum, Ólafs í
Brautarholti og Páls á Ásólfs-
stöðum. Tillagan er svohljóð-
andi:
„Búnaðarþing lítur svo á, að
þegar um það er að ræða að
breyta jarðræktarlögunum í
þeim tilgangi að efla ræktun
landsins, svo það takmark ná-
ist sem fyrst, að allur heyfeng-
ur verði tekinn af véltæku
landi, þá beri að gera það á
grundvelll gildandi jarðræktar-
laga þannig, að allir bændur,
sem hlut eiga að máli, getl þeg-
(Framhald á 8. síðu)
r
\ Sendiherrar Islands er-
lendis kallaðir heím
Tíminn hefir það eftir áreiðanlegum heimildum, að
allir sendiherrar íslands erlendis hafi verið kallaðir heim.
Tíminn hefir snúið sér til fulltrúa Framsóknarflokksins í
utanríkismálanefnd og hefir hann skýrt blaðinu svo frá,
að þetta hafi alls ekki verið rætt i nefndinni og honum sé
því málið algerlega ókunnugt.
Þessi starfsemi virðist vera áframhald af því leynipukri,
sem' utanríkismálaþjónustan er að verða, og þó einkum
síðan stríðsyfirlýsingarmálið, svokallaða, kom til sögunn
ar.