Tíminn - 16.03.1945, Page 5
21. blað
BjN, föstndagiim 16. marz 1945
Um þetta leyti tyrir 43 árum:
Möðruvallaskóli brennur
Möðruvellir í Hörgárdal hafa
löngum verið eitt af mestu höf-
uðbólum landsins. Þar bjuggu
til forna ríkir og nafnfrægir
höfðingjar, þar var síðar auðugt
klaustur, þar var amtmanns-
setur, er fram liðu aldir, og þar
var menntasetri Norðurlands
valinn staður í upphafi síðasta
fjórðungs 19. aldar. Þannig hafa
Möðruvellir í Hörgárdal verið
söguríkur staður í mörgum
skilningi, bæði fyrr og síðar.
Margvisleg ráð hafa þar verið
ráðin, ill og góð. Oft hefir þar
verið setið yfir rétti þeirra, er
ekki megnuðu að ná sínum hlut.
En þaðan hafa einnig legið víðs
vegar um land máttugir straum-
ar manndóms og umbótavilja, er
kannske hafa meira orkað um
framfarir þessarar aldar en við
gerum okkur ljóst í fljótu bragði.
Þannig hafa skipzt á skin og
skuggar á Möðruvöllum — gæfa
og ógæfa. En einn vágestur hef-
ir í sex aldir gert þar meiri usla
heldur en á flestum eðá öllum
öðrum byggðum bólum íslands.
Þar hafa herjað eigi færri en
sex stórbrunar. Árið 1316 er sagt,
að munkarnir á Möðruvöllum
hafi brennt klaustrið þar í ölæði.
Aðfaranótt 7. febrúar 1826 brann
amtmannshúsið til kaldra kola
og varð mannbjörg aðeins með
naumindum. 5. marz 1865 brann
MÖðruvallakirkja. 21. marz 1874
brann Friðriksgáfa svokölluð —
hús, er Friðrik konungur VI.
hafði reisa látið á staðnum
eftir brunann 1826 og gefið til
amtmannsseturs. 22. marz 1902
brann Möðruvallaskóli, er reist-
ur hafði verið á rústum gamla
amtmannssetursins árið 1880, til
grunna. Og nú fyrir fáum árum
brann þar allstórt íbúðarhús frá
tímum skólans.
Hér verður lítlllega sagt frá
brunanum, sem lagði hinn
merkilega skóla á Möðruvöllum
í rústir á útmánuðum 1902.
Kennslustundum var nýlokið
laugardaginn 22. marz. Kenn-
arar og nemendur höfðu dreifzt
um húsið. Helgur dagur var í
vændum, og senn átti upplestr-
arfrí efri bekkjarins að hefjast.
Engan grunaði neitt illt. Jón
Hjaltalin skólameistari dvaldi í
Reykjavík þennan vetur vegna
veikinda konu sinnar, og Stefán
Stefánsson, síðar skólameistari,
gegndi skólastjórn í fjarveru
hans. Aðrir kennarar skólans
voru Halldór Briem og Ólafur
Davíðsson.
Klukkan nálægt hálftvö ætl-
aði einn skólapilta, Friðrik
Klemensson að nafni, að fara
upp í svefnloft sitt einhverra
erinda. Hann varð eldsins var
fyrstur manna. Lagði reykjar-
svælu á móti honum, og við nán-
ari aðgæzlu kom 1 ljós, að eldur
var tekinn að læsa sig um eitt
horn hússins uppi á efstu hæð-
inni. Hann hljóp þegar niður og
gerði öðrum viðvart. Komst nú
allt í uppnám. Stefán kennari,
er setið hafði að snæðingi í hÁsi
sínu, er var rétt norðan við
skólahúsið, kom hlaupandi á
vettvang, ásamt Ólafi Daviðs-
syni kennara, er verið hafði
staddur hjá honum. Réðust þeir
þegar til uppgöngu, sem þó var
ekki fýsilegt, því að allt var orð-
ið fullt af reyk og ógerlegt að
vita, hversu eldurinn myndi orð-
inn magnaður. Þarna á efstu
hæðinni var kvistherbergi, sem
Jón Hjaltalín hafði notað sem
skrifstofu, og til hliðar við það
kompa, er í var geymt ýmis kon-
ar skran, sem skólameistari átti.
Þessar vistarverur voru nú
brotnar upp, og kom þá í ljós,
að eldurinn var tekin að læsa sig
um þilin, og var þegar sýnt, að
ekki myndi verða við neitt ráð-
ið. Var þó bjargað ýmsu með-
færilegu úr skrifstofunni, svo
sem bókum, er þar voru. Jafn-
framt tóku piltar að bjarga
koffortum sínum og öðru laus-
legu, er þeir áttu í svefnstofum
sínum á miðhæð hússins. Rúm-
fötum og öðru þess háttar var
fleygt út um gluggana.
Á miðhæð hússins var einnig
herbergi, sem nefnt var „bóka-
bekkur“ eða „safnið". Þar voru
geymdar bækur, sem skólinn
átti, kennsluáhöld og lítils rátt-
ar af náttúrugripum. Lét Stef-
án næst snúa sér að því
að bjarga þessu. Báru karlmenn
munina út í pokum, í en kven-
fólk í svuntum sínum. En brátt
tóli björgunarstarfið að gerast
áhættusamt. Veggir hússins
voru að mestu úr múrsteini, en
trégrind til styrktar, og múrhúð
á innveggjum. Byrjuðu múr-
fyllurnar að hrynja niður, er
eldurinn hafði étið sundur við-
inn, auk þess, sem niður rigndi
þakhellum og sprekum með
gneistaflugi miklu og logasium.
Skipaði Stefán þá öllum að fara
út úr húsinu og- var því boði
hlýtt.
En þegar þakið var fallið nið-
ur, fóru piltar aftur inn í húsið
og björguðu borðum og bekkjum
og ýmsu öðru af neðstu hæðinni
út um gluggana meðan tiltæki-
legt þótti.
Klukkan sex var húsið ger-
fallið. Var þá menntasetur
Norðurlands orðið að rjúkandi
rúst, er logarnir sleiktu, og stóð
ekki annað upp úr en stúfur af
öðrum reykháf hússins og dálít-
ið horn af múrvegg.
(Framhald á 7. síðu)
þá menn, sem boða nýjungar
hér á landi, og svo var það um
Guðmund. Hann varð oft fyrir
illgjörnum ' árásum þeirra
manna, sem andvígir voru al-
þýðufræðslu i lýðháskólaformi.
Einna andvígastir honum voru
t. d. Benedikt Grönd^l, Jón Ól-
afsson og Gestur Pálsson og svo
Jón Hjaltalín, sem ekki gat þol-
að að neinn setti á stofn svip-
aðan skóla og hann hafði. Guð-
mundur skrifaði mikið í blöð. á
þessum árum, t. d. Norðanfara
og Austra, en ritstjóri hins síð-
arnefnda, Skapti Jósepsson, var
mikill vinur Guðmundar.
— En hvenær var það svo
sem þið hittuzt?
— Ég var um vetrartima á
Víkingavatni í Kelduhverfi, og
það hittist svo á, að Guðmund-
ur var þar þá líka, og það kost-
aði þetta. Við giftum okkur um
vorið 1897, og veturinn eftir var
seinasti veturinn, sem Guð-
mundur kenndi í Kelduhverfinu.
Á fimmtugsafmæli Guðmundar
færðu nemendur hans úr Keldu-
hverfi honum vandað gullúr og
skrautritað ávarp. Þá vorum
við komin til Þórshafnar.
Hólmfríður kemur nú með
ávarpið og sýnir mér.
Ég varð svo hrifinn af þessum
þakklætisóð lærisveina Guð-
mundar, að ég má til með að
gefa lesendum Tímans kost á að
lesa þetta ávarp þeirra. Ef til
vill segir það bezt, hvernig mað-
ur Guðmundur var. En ávarpið
er svona:
„Þú komst til að íræða og auka
ljós sannleikans í átthögum
vorum. ‘
Þú nærðir fegurstu blóm lífs-
ins í óspilltum barnshjörtum
vorum: trú, von og kærleika.
Þú leitaðist við af heilum hug
að gera nemendur þína að guð-
hræddum, góðum og dyggðug-
um mönnum.
Þú kenndir þeim að elska ljós-
ið.
Starf þitt bar mikinn og góð-
an ávöxt.
Haf þvi hjartans þakkir fyrir
iðju þína.
Vér óskum þér af alhug far-
sældar og gleði.
Gu>S veri með þér og greiði
götu þína og þinna.“
Þegar ég hefi skoðað þetta
skrautritaða ávarp, heldur
Hólmfríður áfram frásögu sinni.
Haustið 1899 var ákveðið að
koma upp skóla í Þórshöfn. Guð-
mundur lét byggja skólahús
fyrir um 20 nemendur, en þegar
til átti að taka, brást honum
allur stuðningur, sem honum
hafði verið heitinn. Það var oft
þröngt í búi hjá okkur um þær
mundir, og við lögðum hart að
okkur. Guðmundur lá á gólfinu
hjá drengjunum, og ég hafði
tvær stúlkur í rúminu hjá mér.
Mér hefir stundum dottið í hug,
hvort skólastjórar og konur
þeirra vildu leggja svona að sér
nú. En Guðmundur vildi allt til
vinna til þess að geta frætt og
kennt fólki. Hann sagði, að það
yrði alltaf til gagns.
Þennan skóla héldum við I
(Framhald á 6. síðu)
Vilhelm Moberg:
Eiginkona
FRAMHALD
annarra. Svo þegar öllu er á bothinn hvolft, hefir hann lika
sannarlega sinn djöful að draga.
Já, hahn ber sína byrði, en hann finnur ekki lengur til þess.
Líf hans hefir hlotið þá fyllingu, að hann hugsar ekki framar
um skuldir og vexti. Því að Margrét — konan hans — hans
kona og hans eins — hún er eins og hafsjór, sætur og yljandi.
Hún hefir veitt honum svimandi sælu. Hún gefur sig honum
þannig á vald, að hann missir alla stjórn á sér. Það er eins og
eldur hennar læsi sig gegnum hann. Hún logar undir vörum
hans eins og glóð, sem blásið er á, og ekkert er honum meirl
unun heldiír en sjá andlit hennar funa við atlot hans.
En Margrét óttast hegningu Guðs fyrir þá synd, sem hún
drýgir. Hann hefir sagt henni, að líkama sinn eigi hún þó sjálf,
og það sé hennar einkamál að hlífa honum við því sem er vont,
og gera það, sem er honum gott. Presturinn getur ekki gefið
líkama hennar hverjum sem er með einhverjum orðum, sem
hann les af bók. Hún gefur hann sjálf þeim, sem hún vill helzt.
En hún er hrædd .... Og hefir hann ekki veitt því athygli, að
það er sér í lagi óttinn, sem gerir mennina góða og guðhrædda?
Þeir verða það ekki af því, að þeir þrái himnaríki, heldur af því
að þeir vilja ekki lenda í helvíti. En það er sjálfsagt hægt að
vera án þess háttar guðsótta og vera samt álíka góður og aðrir,
því að hann gerir engan mann betri.
En Hákon kvelst líka af samvizkubiti, þvi að hann hefir brot-
izt inn eins og þjófur á nóttu og stolið Margréti frá eiginmanni
hennar. Hann hefði átt að segja eitthvað á þessa leið:
— Nú kem ég og tek konuna þína. Nú veiztu það.
Þá hefði hann ekki náð henni með svona auðveldu móti, en
þá hefði hann komið heiðarlega og drengilega fram. Og hann
hefði ekki drýgt neitt ranglæti. Páll hefði orðið að láta Mar-
gréti fara, úr því að hann var henni einskis vlrði. Ranglætið, sem
hann drýgði, var fólgið í þessum blekkingum.
— Nú tek ég hana. Nú á ég hana einn.
Það hefði hann átt að segja. Þá hefði sök hans við Pál ekki
hvílt svona þungt á honum.
Nú er honum kvöl að því að mæta granna sínum. Blóðið
hleypur fram í kinnarnar á honum undir eins og hann sér Pál.
Og hann á bágt með að tala við hann, hann verður að kreista
orðin út úr sér. Hann víkur úr vegi fyrir granna sínum til þess
að losna við þessa kvöl. í marga daga hefir hann forðazt að
stíga fæti sínum inn fyrir þröskuld hans. En svo talar Margrét
um það við hann, að þau séu tilneydd að haga sér kænlega —
svo kænlega, að þau komi ekki upp um sig. Þau mega ekki láta
það vitnast, hvað inni fyrir býr, hvorki með orðum né augnaráði.
En það er líka hættrulegt að vera of varfærinn. Og það liggur
við, að hann sé það. Páli getur þótt það grunsamlegt, ef hann
fer allt í einu að forðast hann. Hann verður að muna það, að
hann er kunningi Páls og haga sér samkvæmt því. Hann á að
koma á heimili þeirra eins og ekkert hafi í skorizt, og hann má
ekki forðast félagsskap Páls.
Og Hákon hlýðir ráðleggingum hennar. Hann kemur til Páls,
þó að honum sé það aðeins raun. Því að alltaf klingir hið sama
fyrir eyrum hans: Hjónadjöfull! Huglaus hjónadjöfull! Það er
ekki gaman að hlusta á þetta fyrir mann, sem hingað til hefir
verið heiðarlegur. Og oft fannst Hákoni, að Páll væri farinn
að fá illan bifur á honum: Hann er áreiðanlega ekki eins vin-
gjarnlegur og áður, hann veit áreiðanlega eitthvað. Og hann
getur sér til um, hvað Páll eigi við með orðum sínum. Hefir hann
ekki tileinkað sér slóttugt orðfæri, elns og hann sé að reyna að
fá hann til þess að koma upp um sig og Margréti? Hann talar
tvíræðum orðum. í skelfingu sinni spyr Hákon konu Páls, hvort
eitthvað hafi komið fyrir. Margrét hlær að honum: Pál grunar
ekki neitt fremur en barn í reifum.
Svo ber svo til, að hann hittir Pál og Margréti úti í hlaðvarp-
anum eitt kvöldið, og þegar þau skilja, verður hún Páli sam-
ferða inn, svo að hann verður einn eftir úti. Þá er eins og
hnífur sé rekinn í hann, og hann er að því kominn að hrópa:
Þetta er ekki rétt; þetta er vitlaust. Hún á ekki að fara inn með
þér! Hún á að fara með mér....! Ég á hana....! Það er ekki
nema klukkutími síðan hún var niðri í skógi.
Og svo ambrar hann heim með þá nagandi tilfinningu, að
enn eigi hann nokkuð ógert: Hann hefir rænt konu Páls, en
hann hefir skilið hana eftir í rekkju hans. Já, hann hefir ekki
gert nema hálft verkið. Það má ekki ganga þannig til. Páll veit
ekki, að Margrét er ekki kona hans, og honum hlýtur að ganga
erfiðlega að skilja, hvers vegna hann má ekki snerta við henni.
Nei, það getur ekki svo til gengið. Og Hákon hugsar svo ákaft
um þetta, meðan herfið bryður moldina, að það koma djúpar
hrukkur á ennið,
*
Það heyrist hófadynur uppi á hæðinni. Hákon skyggnir hönd
fyrir auga. Maður kemur ríðandi. Eins og hann er lifandi maður,
það eru gestir að koma til hans. Þetta eru óboðnir gestir. Hann
hefir átt þeirra von, en þeir koma óboðnir.
Þetta er hreppstjórinn, sem kemur.
Hákon Ingjaldsson veit, hvaða erlndi sá maður á. En hann
heldur áfram að herfa, eins og hann hafi ekki tekið eftir neinu.
Hann er ekki skyldugur að hlaupa á móti slíkum gestum og opna
dyrnar. Hreppstjórinn getur hamazt á hurðinni; það mun enginn
ljúka upp fyrir honum, því að Elín er úti í haga að rífa hrís.
Svo mundi hann sjálfsagt leita í fjósinu, og þegar hann fyndi
ekki heldur neinn þar, kæmi hann áreiðanlega út á akurinn.
Hreppstjórinn verður líka að hafa eitthvað fyrir hlutunum. Og
loks mun hann finna þann, sem hann leitar að, því að það yar
ekki ætlun Hákonar að hlaupa burt og fela sig fyrir honum.
Eftir stutta stund verður hreppstjórinn bóndans var; hann
kemur stikandi yfir þurran akurinn, sem rýkur undan stigvél-
uðum fótum hans. Þetta er feitur maður, hann másar og dæsir.
— Er þessi maður Hákon Ingjaldsson? Eigandi tólftungsjarðar
í Hegralækjarbyggð.
— Eigandi og eigandi ekki. Það er ég, sem vinn hér á þessu
býli. ,
— Þér hafið þó keypt jörðina.
— Jú-jú, — en ekki borgað. Svo það er ekki ég, sem á hana.
— Þér eruð með öðrum orðum eigandinn, sagði hreppstjóri
önuglega.
JÚLLl OG DÚFA
Ettir JÓN SVEINSSOH.
Við leituðum í annað og þriðja sinn og skoðuðum
hverja kind.
En það fór á sömu leið. Dúfu vantaði — aumingja
litlu dúfuna okkar.
Við fórum aftur að gráta og löbbuðum af stað. Þetta
var tvöfaldur harmur. Þau voru ófundin bæði, þessi
tvö, sem okkur þótti vænst um.
Veslings góði drengurinn, hann Júlli, og aumingja
litla Dúfa áttu þá bæði að vera að minnsta kosti aðra
nóttina til úti í kuldanum og snjónum.
Þegar við komum heim, voru tveir menn að leggja af
stað með ljósker í höndum. Þeir ætluðu að fara að leita
að Júlla og vera að því um nóttina.
En við börnin báðum innilega til guðs eins og kvöld-
ið áður, að hann léti Júlla og Dúfu ekki deyja.
Snemma næsta morgun komu mennirnir heim, og
•aðrir tóku við. Var svo haldið áfram leitinni allan daginn.
í fjóra daga og fjórar nætur samfleytt var leitað.
Grafið var og borað í skaflana á ótal mörgum stöðum.
En hvergi varð vart við Júlla.
Loks gáfust menn upp við leitina, því að nú var ekki
um að villast, að Júlli hlaut að vera dáinn. Kindumar,
sem vantaði, fundust allar á öðrum degi nema fjórar.
6. FUNDIN AFTUR
Allir á bænum söknuðu aumingja Júlla sárlega.
Oft grétum við börnin yfir honum, þegar við minnt-
umst á hann eða báðum fyrir honum á kvöldin.
Jafnvel leikir okkar voru nú allir aðrir en áður, og
fjörið og kátínan var minni en fyrr.
Tíminn leið hægt og seint.
Eftir heilan mánuð kom loks nokkuð fyrir, sem vakti
okkur af leiðindamókinu.
Eins og áður, þegar féð var rekið á beit í fjallið, kom
nú skyndilega áköf sunnanátt.Snjóinn leysti svo óð-
fluga, að leysingavatnið flóði yfir allt.
Brátt var orðið autt og snjólaust í kringum bæinn
og útihúsin, og uppi í fjallinu gægðust grænir geirar
undan snjónum.
Þá var kominn tími til að leita að Júlla og kindun-
um fjórum, sem ekki höfðu fundizt. Nú hlaut allt að
finnast.
En það fór eins og áður, að þíðan varð ekki löng.
Hann gerði frost og þurrviðri, og lagði þá svell um allt
á leysingarvatnið.
Nú var orðið áliðið vetrar, komið fram á einmánuð.
Og þá er venjulega öllum stórhríðum iokið.
Við börnin báðum nú húsmóðurina að lofa okkur að
fara upp í fjall með einum vinnumanninum.
Sjainár tannkrem gerír
tennurnar mjallhvítar
Eyðir tannsteini og himnu-
myndun. Hindrar skaðlega
sýrumyndun i munnlnum og
varðveltir með þvl tennurn-
ar. Inniheldur alls engin
skaðleg efni fyrir tennurnar
eða fægiefni, sem rispa tann-
3=j glerunginn. Hefir þægilegt og
hressandi bragð.
JVOTIB SJAFiVAIt TMIVKREJU
KVÖLDí OG MORGNA.
Sápuverksmiðjan Sjöfn
Akureyri