Tíminn - 13.07.1945, Síða 6
6
TÍMIM, föstndaginn 13. julí 1945
52. blað
Sjötngnr:
Magnús Stemgrímsson
hreppstjórl á Hólom
Magnús Steingrímsson, bóndi
að Hólum í Steingrímsfirði, verð- 1
ur 70 ára laugardaginn 14. þ. m.
Magnús er fæddur að Hólum
í Steingrímsfirði 14. júlí 1875.
Poreldrar hans voru Kristín
Magnúsdóttir Jónssonar frá
Hvítadal og Steingrímur Hjalta-
son, Jónssonar bónda að Hólum.
Magnús er elztur sex systkina,
en aöeins tvö þeirra eru enn á
lífi, Magnús og Hjalti trésmiður
á Hólmavík. Þar sem Magnús
var elztur systkinanna, en
þröngt var í búi, varð hann
snemma að vinn'a mikið. Má
nefna því til sönnimar, að dag-
inn eftir ferminguna fór hann
vestur að Djúpi á vertið og reri
þar hverja vorvertíð eftir það í
19 ár.
Árið 1905 hóf Magnús búskap
að Hólum. Tók hann við jörðinni
af föður sínum. Bjó hann þar til
1921, er hann flutti að Ósi í
sömu sveit og bjó þar i 5 ár, en
þá lét hann elzta syni sínum
eftir þá jörð og fluttist aftur
að Hólum. Hefir hann búið þar
siðan. Hann hefir gert þar mikl-
ar umbætur, m. a. byggt þar öll
hús að nýju. Jafnframt bú-
skapnum heíir ' Magnús lagt
nokkra stund á smíðar og stund-
aði sjó um skeið, var t. d. for-
maður í 5 haustvertíðir. Á vetr-
um hefir hann jafnan unnið
mikið að bókbandi og var um
langt skeið eini bókbindarinn
hér um slóðir.
Magnús hefir gegnt mörgum
trúnr/ðarstörfum um dagana.
Hann var í hreppsnefnd frá
1905—34. Hreppstjóri hefir hann
verið frá 1919 og síðan. Sýslu-
nefndarmaður hefir hann verið
fimm seinustu árin. Hann hefir
oft verið fulltrúi á aðalfundum
Kaupfélags Steingrímsfjarðar.
Eftirlit með vegagerð hefir hann
annazt um margra ára skeið.
Öll þessi störf hefir hann rækt
með mikilli samvizkusemi og
dugnaði.
Magnús Steingrímsson.
Verk Magnúsar sýna það bezt,
að hann 'hefir verið mikill
starfsmaður, og þau opinberu
störf, sem sveitungar haps
hafa falið honum, eru sönnun
þess, að þeir hafa treyst honum
og virt hann. Þessari tiltrú hefir
hann vissulega ekki brugðizt.
Verk manna eins og Magnúsar
eru þeim vissulega beztur vitnis-
burður.
Magnús er kvæntur Kristínu
Árnadóttur og eiga þau sex
börn. Þrjá fullórðna syni hafa
þau misst, alla hina mannvæn-
legustu. Þau Kristín og Magnús
hafa verið mjög samhent og
heimili þeirra orðlagt fyrir gest-
risni og rausnarskap.
Á þessum merku tímamótum í
ævi Magnúsar, mun vissulega
verða hugsað hlýtt til hans af
sveitungum hans og honum
þakkað fyrir það liðna og óskað
allra heilla á komandi timum.
Sveitungi.
Finuntagiir:
Jón V. Hjaltalín
bóndi í Brokey
Þann 8. júlí s. 1. varð Jón V.
Hjaltalín bóndi í Brokey í Skóg-
arstrandarhreppi fimmtugur.
Hann er fæddur í Brokey, sonur
merkishjónanna, Vigfúsar J.
Hjaltalín bónda í Brokey og
konu hans, Kristjönu Kristjáns-
dóttur frá Gunnarsstöðum í
Dalasýslu. Jón hefir alið aldur
sinn allan í Brokey og tók við
búi af föður sínum fyrir nokkru
og býr nú á jörðinni, ásamt Vil-
hjálmi bróður sínum. Er Brok-
eyjarheimilið víðkunnugt fyrir
gestrisni og myndarskap í hví-
vetna og hefir svo verið um
langa hríð. Jón er kvæntur Ingi-
björgu Pálsdótur frá Böðvars-
hólum í Vesturhópi og eiga þau
tvö börn, ung að aldri.
Jón er atorkusamur pg dug-
andi bóndi, en auk þess mjög á-
hugasamur um félagsleg mál-
efni. Hann er einn af stofnend-
um Kaupfélags Stykkishólms
og hefir setið í stjórn þess und-
anfarin 15 ár. Hann hefir verið
í hreppsnefnd, sýslunefnd, yfir-
skattanefnd, sóknarnefnd og
/
Mét ungmennaié-
laga á Blonduósi
Héraðsmót Ungmennasamb.
Austur-Húnavatnssýslu var
haldið að Blönduósi 1. júlí. Var
það mjög fjölsótt.
Hófst það með guðsþjónustu
í kirkjunni á Blönduósi kl. 11.
Sr. Þorsteinn Gíslason í Steins-
nesi prédikaði.
Kl. 1 var mótið sett af sr.
Pétri Ingjaldssyni á Höskulds-
stöðum, formanni sambands-
ins. Þá fluttu ræður sr. Gunnar
Árnason, Æsustöðum og Þor-
björn Björnsson, bóndi, Geita-
skarði. Kristján Sigurðsson
kennari, ^rúsastöðum, flutti
kvæði, og Ólafur Magnússon frá
Mosfelli söng einsöng.
Að því loknu hófst víða-
mörgum öðrum trúnaðarstörf-
um hefir hann gegnt og gegnir
fyrir sveit sína og hérað.
Jón V. Hjaltalín.
\
Framsóknarflokkurinn og sam-
vinnustefnan eiga honum þakk-
ir að gjalda fyrir örugga lið-
veizlu, eins og svo margir aðrir
á þessum merku tímamótum í
ævi hans. Því verða hamingju-
óskirnar nú margar og innileg-
ar. X.
vangshlaup. Fyrstur að markinu
var Reynir Steingrímsson,
Hvammi í Vatnsdal, annar Er-
lendur Klemensson, Bólstaðar-
hlíð. Þá fór fram 100 m. sprett-
! hlaup. Fyrstur varð Björn Krist-
jánsson, , Skagaströnd.. Þá var
keppt í langstökki og sigraði þar
Bæringur Kristinsson, Skaga-
strönd. í reiptogi kepptu tvær
sveitir. Voru í annari menn
vestan Blöndu, en í hinni menn
austan Blöndu, og sigraði sú
sveit. í boðhlaupi sigraði sveit af
Skagaströnd.
Þá fóru fram kappreiðar,
kepptu 12 hestar í stökki á 360
m. vegalengd. Fyrstu verðlaun
hlaut Hrani, 17 vetra, eigandi
Þórarinn Sigurjónsson, Blöndu-
ósi, ijámi 22.4 sek., önnur verð-
laun hlaut Rauður, 12 vetra,
eigandi Jón Benediktsson, Höfn-
um, tími 22.4 sek., þriðju verð-
Ályktanir þings Iþróttasam-
r
bands Islands
Á nýloknu ársþingi fþrótta-1
sambands íslands, sem haldið
var á Akureyri, voru m. a. sam-
þykktar þessar tillögur:
1. Ársþing í. S. í. á Akureyri
28.—30. júní 1945 skorar á Þing-
vallanefnd að láta nú þegar
hefja framkvæmdir um bygg-
ingu leikvangs og sundlaugar á'
Þingvöllum, svo að hægt verði að
heyja þar íþróttalandsmót.
2. Ársþing í. S. í. skorar á
Ríkisútvarpið að láta útvarpa
sem oftast frásögnum af íþrótta-
mótum og kappleikjum og fá.
kunnáttumenn í íþróttum til
flutnings.
3. Ársþing í. S. í. samþykkir
að kjósa þriggja manna milli-
þinganefnd, er sjái um undir-
búning skíðadagsins 1946 og
leiðbeini um skíðakaup o. fl.
4. Ársþing í. S. í. skorar á
íþróttabandalögin að beita sér
fyrir því að leggja fram fé til
byggingar íþróttaheimilis í. S. L,
sem svari a .m. k. 1 kr. á hvern
gjaldskyldan félagsmann árlega.
5. Ársþing í. S. í. telur að
framkomnar tillögur um sam-
einingu í. S. í. og U. M. F. í.
skuli leggja til grundvallar fyrir
frekari samkomulagsumleitun-
um og felur stjórn í. S. í. að
halda þeim áfram á þann hátt,
sem hún telur heppilegastan til
fullkomins árangurs fyrir mál-
ið, m. a. með því að senda öllum
félögum og héraðssamböndum
innan í. S. í. tillögur nefndar-
innar til umsagnar. fyrir næsta
ársþing.
6. Ársþing í. S. í. lýsir ánægju
sinni yfir bindindissamstarfi,
sem verið_ hefir mílli Bindindis-
nefndar í. S. í. og Stórstúku
íslands.
7. Ársþing íþróttasambands
íslands skorar eindregið á öll
sambandsfélög, að þau sæki ekki
um vínveitingaleyfi á skemmt-
anir sínar.
8. Ársþing í. S. í. skorar á rík-
isstjórnina að láta héraðabönn
í áfengismálum koma til fram-
kvæmda þegar í stað.
9. Ársþing í. S. í. skorar á Al-
þingi og ríkisstjórn að láta loka
Áfengisverzlun ríkisins.
10. Ársþing í. S. í. skorar á
sambandsstjórnina að fella nú
þegar i burtu úr leikreglum
bráðabirgðaákvæði um klútrás-
merki.
11. Þingið samþykkir að fela
stjórn í. S. í. að vinna að því,
að stofnuð verði sérsambönd í
hinum ýmsu íþróttagreinum á
grundvelli 7. kafla laga í. S. í.
12. Þingið samþykkir að fela
stjórn í. S. í. að beita sér fyrir
þvi, að stofnað verði íþrótta-
samband þróttafélaga í skólum.
13. Þingið felur stjórn í. S. í.
að vinna að því að fá endurskoð-
uð íþróttalögin og beita sér fyrir
lagfæringum á þeim, einkum
16. gr. þeirra.
|14. Þingið samþykkir að fela
stjórn sambandsins að skylda
sérráð, eða félög, þar sem ráð
eru ekki, til að hafa spjaldskrá
yfir alla félaga sína.
15. Ársþing í. S. í. skorar á
sambandsstjórnina að skipa 5
manna milliþinganefnd til að
samræma og fullkomna lög Í.S.Í.
og hinna einstöku bandalaga
þess og sérráða.
16. Ársþing Í.S.Í. felur stjórn
sambandsins að skipa þriggja
manna nefnd til að gera tillögur
um byggingu, rekstur og fyrir-
komulag fjáröflunar til íþrótta-
heimilis Í.S.Í.
17. Ársþingið samþykkti fram-
komna reglugerð um Heiðurs-
gjafasjóð Í.S.Í.
Aðalfundur Landssambands
. blandaðra kóra
Sjötti aðalfundur Landssam-
bands blandaðra kóra og
kvennakóra var haldinn í
Reykjavík dagana 28.—29. júní
s. 1.
Fundarstjóri var kosinn Jónas
Tómasson tónskáld á ísafirði,
fundarritarar Ólafur Jensson
stud. polyt. og Jón Alexanders-
son, forstjóri, Reykjavík.
Þessir kórar eru nú í sam-
bandinu:
Kantötukór Akureyrar, Akur-
eyri, Sunnukórinn, ísafirði,
Vestmannakórinn, Vestmanna-
eyjum, Söngfélaga I. O. G. T,
Reykjavík, Söngfélagið ,Harpa“,
Reykjavík, Söngfélagið „Hún-
ar“, Reykjavík, Samkór Reykja-
víkur, Reykjavík, Kirkjukór
Borgarness, Borgarnesi.
Alls eru um 320 söngfélagar í
þessum kórum. Mættu fulltrúar
frá þeim öllum, nema Kirkju-
kór Borgarness, og voru mættir
14 fulltrúar frá sjö félögum og
form. þeirra allra nema Kirkju-
kórs Borgarness og Sunnukórs-
ins. Auk þess sátu þessir söng-
stjórar fundinn: Jónas Tómás-
son, ísafirði, Björgvin Guð-
mundsson, Akureyri, Jóhann
Tryggvason, Reykjavík, Róbert
Abraham, Reykjavík og Ottó
Guðjónsson, Reykjavík.
Formaður L. B. K., Guðmund-
ur Benjamínsson, gaf skýrslu
um starfið á liðnu ári. Þá voru
og lesnar upp skýrslur frá kór-
um og kom það greinllega fram,
að starfað hefir verið með
miklu fjöri síðastliðið starfsár
hjá sambandskórunum.
Eftir tillögu frá Brynjúlfi Sig-
fússyni, söngstjóra í Vestm.-
eyjum, samþykkti fundurinn á-
lyktun þess efnis, að vinna beri
að því, að draga sem mest úr á-
hrifum „jassins“ á ungu kyn-
slóðina.
laun hlaut Gustur, 7 vetra, eig-
andi JSverrir Hallsson, Gauts-
dal, tlmi 23.3 sek. í skeiði tóku
þátt 4 hestar. Vegalengd var
Þá var og samþykkt, einróma,
svohljóðandi tillaga frá Björg-
vin Guðmundssyni, tónskáldi á
Akureyri:
„Landsfundur blandaðra kóra
skorar á tilheyrandi athafna-
völd að gera stafróf tónfræð-
innar að prófskyldri; námsgrein
i efri bekkjum barnaskólanna,
svo og i öllum æðri skólum
landsins".
Samþykkt var að vinna að
því, að koma á söngmóti á næsta
vori, og voru ætlaðar til þess kr.
3000,00, en . til söngkennslu á
komanda ári voru áætlaðar kr.
13.500,00.
Á fundinum komu fram raddir
um að nauðsynlegt væri að
koma söngkennslu í fastara og
betra horf, helzt með því að
komið væri upp almennum
söngskóla.
Fleiri mál voru rædd.
í stjórn voru kosnir: Formað-
ur Jón Alexandersson, forstjóri
(Guðm. Benjamínsson klæð-
skerameistari mæltist undan
endurkosningu), ritari Krist-
mundur Þorleifsson, bókari,
gjaldkeri Jón G. Halldórsson,
viðskiptafræðingur, varafor-
maður Guðmundur Benjamíns-
son, klæðskerameistari, vararit-
ari Reinhard Reinhardsson, iðn-
aðarmaður, varagjaldkeri Bent
Bjarnason, bókari.
Endurskoðendur voru kosnir
Gísli Guðmundsson, tollþjónn og
Haraldur Leonhardsson, verzl-
unarmaður. Varaendurskoðandi
var kosinn Þórður Þorgrímsson,
bílaviðgerðarmaður.
í stjórn söngmálaráðs voru
þessir kosnir: Formaður: Björg-
vin GÚðmundsson, tónskáld á
Akureyri, 1. meðstjórnandi Jón-
as Tómásson, tónskáld á ísafirði,
2. meðstjórnandi Róbert Abra-
ham, söngstjóri í Reykjavík.
250 m.. Eínn þeirra rann skeiðið,
Lýsingur, 12 vetra, eigandi Jón
Þórarinsson, Hjaltabakka, á 24,7
sek.
Samband isl. samvtlnnufélagn.
SAMVINNUMENN!
Þegar eldsvoða ber aö höndum, brenna nálega
í hvert sinn óvátryggðir innanstokksmunir.
Frestið ekki að vátryggja innbú yðar.
Tilkynníng' ftil
bænda í Dalasýslu
Erum kaupendur að vorull, bæði þveginn; og óþveg-
■
inni, og veitum henni móttöku að Brautarholti i
Haukadal. Þar geta menn og fengið lánaða ullarballa
undir ullina og gert oss aðvart, ef óskað er eftir að
ullin sé sótt heim, en um það getur verið að ræða ef
bílfært er á staðinn.
Verzlonarfélag Borgarfjarðar li.f.,
Borgarnesi.
Ullarverksmiðfan
Gefijun
framleiðir fyrsta flokks vörur.
Spyrjið þvi Jafnan fyr*t eftir
Geíjunarvörum
þegar yðnr vantar ullarvörar.
Skinnaverksmiðjan
Iðunn
framleiðir
SÚTUÐ SKUVV OG LEÐUR
ennfremur
hina landskunnn
Iðunnarskó
T I M IIV IV er víðlesnasta auglýsingablaðið!