Tíminn - 11.09.1945, Qupperneq 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
ÚTGEFFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Slmar 2353 Oe 4373.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.í.
RITST JÓR ASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A.
Símar 2353 Og 4373.
AFGREIÐSLA, INNHEtMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A.
Slml 2323.
29. árg.
Reykjavík, þriðjudagiun 11. sept. 1945
68. blað
„Gerfifulltrúarnir” í búnaðar-
ráði hafa afhjúpað sig
Þeir létu að óskum ríkisstjórnarinnar og
heimiluðu verðlagsnefndinni að víkja frá
sexmannancfndarverðinu.
Búnaðarráð ríkisstjórnarinnar hefir nú lokið störfum að sinni.
Daginn eftir að ráðið sat veizlu hjá ríkisstjórninni, kaus það
verðlagsnefndina, og lagði henni jafnhliða þær starfsreglur, að
hún þyrfti ekki að vera bundin af sexmannanefndarverðinu!
Morgunblaðið fer líka miklum Iofsorðum um störf ráðsins og
telur, að það hafi ekki látið stjórnast af „neinum annarlegum
sjónarmiðum“ og það muni hin ftýja verðlagsnefnd ekki heldur
gera, því að hún sé skipuð „gætnum og greindum bændum“!
Það virðist nokkurn veginn ljóst, að hin „annarlegu sjónarmið“,
sem Mbl. talar um, séu kröfur bænda um sexmannanefndarverð-
ið, þ. e. jafnrétti við aðrar stéttir.
Búnaðarráð kaus verðlags-
nefndina síðastl. föstuda$, en
kvöldið áður hélt ríkisstjórnin
því veizlu í Oddfellowhöllinni.
Kosningin féll á þessa leið:
Stefán Stefánsson, Fagra-
skógi hlaut 21 atkv.
Sveinn Jónsson, Egilsstöðum
hlaut 19 atkv.
Ólafur Bjarnason, Brautar-
holti hlaut 17 atkv.
Bjarni Sigurðsson, Vigur hlaut
15 atkv.
Af þeim, sem ekki náðu kosn-
ingu, mun Jón Árnason hafa
fengið flest atkv. eða 7 atkvæði.
Formaður búnaðarráðs, Guð-
mundur Jónsson kennari, er
einnig formaður nefndarinnar
og er hún því skipuð fimm
mpnnum.
Áður en fundum ráðsins lauk,
lögðu þeir Jón Árnason, Helgi
Bergs og Ágúst Helgason'fram
svohljóðandi tillögu:
„Við undirritaðir gerum það
að tillögu okkar, að við verð-
lagningu landbúnaðarafurða
verði lagt til grundvallar álit
sexmanna nefndarinnar að við-
bættri landbúnaðarvísitölu,
samkvæmt útreikningi Hag-
stofu íslands og að hlutazt verði
til um, að útflutt kjöt verði
verðbætt til jafns við kjöt, sem
selt er á innlendum markaði“.
Þessari tillögu var vísað frá
með svohljóðandi dagskrá, er
var samþykkt með 19:4 atkvæð-
um: ^
„Búnaðarráð temr nauðsyn-
legt að verðlag landbúnaðaraf-
urða verði ákveðið í sem fyllstu
samræmi við samkomulag sex-
manna nefndarinnar og í trausti
•þess, að verðlagsnefndin geri
það, er hún telur fært til þess að
það fáist, tekur fundurinn fyrir
næsta mál á dagskrá“.
Flutningsmenn dagskrártil-
lögunnar voru: Guðmundur
Jónsson, Sveinn Jónsson, Davíð
Þorsteinsson, Benedikt Gíslason,
Friðrik Arinbjarnarson, Ás-
mundur Sigurðsson, Aðalsteinn
Jónsson, Sigtryggur Jónsson,
Skúli Guðjónsson og Ólafur
Bjarnason, Brimilsvöllum.
Af öðrum samþykktum Bún-
(Framhald á 8. síðu)
Haukur sökk í logni
Á Nýbygglngaráði áð haldast nppi aö sóa á-
fram gjaldeyrl til slíkra skipakanpa?
Það er nú upplýst í viðtali, sem skipstjórinn á flutninga-
skipinu „Haukur“ hefir átt við Vísi, að skipið sökk í blæja-
l^tgni og hafði fengið logn alla leiðina frá Bretlandi þar til það
sokk. Slæmu veðri verður því ekki kennt um skipstjón þetta,
eins og ýmsir meðhaldsmenn Nýbyggingaráðs reyndu að
hugga sig með í fyrstu, heldur eingöngu því, hve illa skipið
hefir verið úr garði gert.
Þessi vitneskja til viðbótar öðru, sem áður var vitað um
skipið, styrkir stórum þá kröfu, að fyllsta rannsókn sé látin
fara fram á sjóslysi þessu og réttmætri hegningu komið fram
á hendur þeim, sem hér hafa að svara til saka, hvort heldur
er um erlenda eða innlenda aðila að ræða. Með slíkri máls-
meðferð ætti að skapast verulega aukin trygging fyrir því,
að ekki væri keypt nieira af slíkum farkosti til landsins og
lífi íslenzkra sjómanna þannig stofnað í aukna hættu.
Slík rannsókn og hér um ræðir, þarf sannarlega ekki sízt
að ná til Nýbyggingaráðs og starfshátta þess. Hlutverk Ný-
byggingaráðs er að sjá um, að aðeins fullkomin og vönduð
skip séu keypt til landsins, en svo reynist fyrsta skipið, sem
keypt er á vegum þess, á þessa leið. Augljósari sönnun getur
ekki fengizt fyrir- þvi, hversu fullkomleéa Nýbyggingaráð
hefir vanrækt þetta hlutverk sitt. Þessi vanræksla Nýbygg-
ingaráðs verður ekki minna tortryggileg, þegar þess er gætt,
að formaður þess, Jóhann Þ. Jósefsson, er einn eigandi og
stjórnarnefndarmaður annars hlutafélagsins, er átti Hauk.
Það eitt er heldur ekki nægilegt, að hinir slælegu starfs-
hættir og vanræksla Nýbyggingaráðs fáist upplýst til fulls.
Það verður að setja ráðinu þær starfsreglur og skipa það
þannig mönnum, að það sói ekki hér eftir gjaldeyri og stofni
ekki mannlífum í hættu með því að kaupa fleiri skip, eins og
Hauk. Fullkomin trygging fyrir slíku fæst ekki meðan höfuð-
pauri ráðsins er maður, sem bersýnilega leggur meiri stund á
vafasamt skipabrask en að gæta þess „nýsköpunar“-hlut-
verks, sem ráðinu er ætlað.
Stéttarsamband bænda stofnað á lands-
fundi búnaðarféíaganna að Laugarvatni
Fundurinn krafðist samhljóða, að fram-
kvæmdastjórn sambandsins yrði falin
verðlagning Iandbúnaðarvara
Annar áhrifamesti maður Rússaveldis
Þau merkilegu tíðindi gerðust nú um helgina á landsfundi
búnaðarfélaganna, er haldinn var að Laugarvatni, að ákveðið
var að stofna stéttarsamband bænda og því sett lög*og fyrsta
framkvæmdastjórn þess kosin. Sambandið mun starfa innan vé-
banda Búnaðarfélags íslands, samkvæmt bráðabirgðalögum
þeim, sem samþykkt voru á seinasta Búnaðarþingi. Það mun hafa
sérstakan aðalfund og sérstaka stjórn, er fer með málefni þess.
Endanlega verður þó ekki gengið frá skipulagi stéttarsambands-
ins fyrr en eftir atkvæðagreiðslu um það, er fara mun fram í
búnaðarfélögunum næsta vor.
Á fundinum var ennfremur samþykkt með öllum atkvæðum,
að mótmæla því gerræði ríkisstjórnarinnar að Iáta landbúnað-
arráðherra skipa búnaðarráð og þess jafnframt krafizt, að fram-
kvæmdastjórn stéttarsambandsins yrði falin verðlagning land-
búnaðarvara.
Mynd þessi er af Molotov, utanríkismálaráðherra Sovét-Rússlands. Molotov
hefir um langt skeið verið nánasti samstarfsmaður Stalins og er oft talinn
annar áhrifamesti maður Sovétríkjanna.
Fulltrúarnir á stofnþingi
stéttarsambands bænda
Á stofnfundi Stéttarsambands bænda, er haldið var að Laug-
arvatni 7.—9. þ. m., áttu sæti tveir fulltrúar úr hverri sýslu
landsins, er kjörnir höfðu verið af fulltrúafundi búnaðarfélag-
anna í hverri einstakri sýslu. Nöfn fulltrúanna, er mættu á fund-
inum, fara hér á eftir:
Kjósarsýsla: Gestur Andrés-
son, Hálsi, Stefán Þorláksson,
Reykjahllð (báðir varafulltrú-
ar).
Borgarfjarðarsýsla: Jón Hann
esson, Deildartungu, Pétur
Ottesen, Ytra-Hólmi.
Mýrasýsla: Sverrir GíslaSon,
Hvammi, Sigurður Snorrason,
Gilsbakka.
Snæfellsnéssýsla: Gunnar
Guðbjartsson, Hjarðarfelli, séra
Jósep Jónsson, Setbergi.
Dalasýsla: Halldór Sigurðsson,
Staðarfelli, Þórólfur Guðjóns-
son, Fagradal.
A.-Barðastrandarsýsla: Jón
Kr. Ólafsson, Grund, Júlíus
Björnsson, Garpsdal.
V.-Barðastrandarsýsla: Karl
Sveinsson, Hvammi, Gunnar Ól-
afsson, Reykjarfirði (varam.).
Vestur ísaf jarðarsýsla: Guð-
mundur Ingi Kristjánsson,
Kirkjubóli, Jóhannes Davíðsson,
Hjarðardal.
Norður-ísafjarðarsýsla: Jón
Fjalldal, Melgraseyri, Þórður
Hjaltason, Bolungarvík.
Strandasýsla: Benedikt Gríms
son, Kirkjubóli, Matthías
Helgason, Kaldrananesi.
V.-Húnavatnssýsla: Jakob
Líndal, Lækjamóti (varafulltr.),
Hannes Jónsson, Kirkjuhvammi.
Austur-Húnavatnssýsla: Séra
Gunnar Árnason, Æsustöðum,
Hafsteinn Pétursson, Gunn-
steinsstöðum.
Skagafjarðars.: Bjarni Hall-
dórsson, Uppsölum, Jón Jóns-
son, Hofi.
Eyjafjarðarsýsla: Hólmgeir
Þorsteinsson, Hrafnagili, Ketill
Guðjónsson, Finnastöðum(vara-
maður). \
Suður-Þingeyjarsýsla: Björn
Sigtryggsson, Brún, Þórður Ind-
riðason, sAðalbóli (varamaður).
Norður-Þingeyjarsýsla: Bene-
dikt Kristjánsson, Þverá, Eggert
Ólafsson, Laxárdal.
Norður-Múlasýsla: Páll Met-
úsalemsson, Refsstöðum, Þor-
steinn Sigfússon, Sandbrekku.
Suður-Múlasýsla: Pétur Jóns-
son, Egilsstöðum, Vilhjálmur
Hjálmarsson, Brekku.
Austur-Skaftafellss.: Kristján
Benediktsson, Einholti, Steinþór
Þórðarson, Hala.
Vestur-Skaftafellss.: Sveinn
Einarssoji. Reyni, Þórarinn
Helgason, Þykkvabæ.
Rangárvallasýsla: Erlendur
Árnason, Skiðbakka, Sigurjón
Sigurðsson, Raftholti.
Árnessýsla: Bjarni Bjarnason,
skólastjóri, Stefán Diðriksson,
Minni-Borg.
Gullbringusýsla: Einar Hall-
dórsson, Setbergi, Erlendur
Magnússon, Kálfatjörn.
Vestm.eyjar: Helgi Benedikts-
son (varafulltrúi), Helgi Benó-
nýsson.
Fimmtugur-
Freymóður Jóhannsson list-
málari, Freyjugötu 45, verður
fimmtugur 12. þ. m. Freymóður
hefir um langt skeið verið einn
af kunnustu listmálurum lands-
ins.
Sextugur
Sextugur varð í gær Guð-
múndur í Vogatungu við- Holta-
veg, áður í Tungu. Guðmundur
er merkur maður og vinsæll.
Stofnun Stéttarsam-
bandsins 05* hlut-
verk þess.
Landsfundur_v búnaðarfélag-
anna, sem boáað hafði verið til
af Búnaðarsambandi Suður-
lands, kom saman að Laugar-
vatni síðastl. föstudag og stóð
fra,m á sunnudag. Á fundinum
voru mættir 48 fulltrúar, eða
tveir fulltrúar úr öllum sýslum
landsins, eins og til hafði verið
ætlazt. Nöfn fulltrúanna eru
birt á öðrum stað í blaðinu.
Forseti fundarins var kjörinn
Pétur Ottesen, varaformaður
Búnaðarfélags íslands, og fund-
arritarar Gestur Andrésson,
Hálsi og Stefán Diðriksson,
Minni-Borg.
Aðalmál fundarins var að
ræða um stofnun nýrra stéttar-
samtaka bænda, sem færu með
verðlagsmálin fyrir þeirra hönd.
Var málefni þetta mjög ýtar-
lega rætt og síðan samþykkt
með miklum meirahluta at-
kvæða, að stofna Stéttarsam-
band bænda innan vébanda
Búnaðarfélags íslands, samkv.
viðauka þeim við lög félagsins,
er samþykktur var á seinasta
Búnaðarþingi. Verður Stéttar-
sambandið sérstök deild innan
Búnaðarfélagsins, með sérstakri
stjórn, sem kosin verður af
þingum, er Stéttarsambandið
heldur og kosnir eru á fulltrú-
ar með öðrum hætti en til Bún-
aðarþings. Stjórn Búnaðarfé-
lags íslands hefir þegar viður-
kennt Stéttarsambandið löglega
stofnað' sem deild í Búnaðarfé-
laginu, samkv. fyrirmælum
‘seinasta Búnaðarþings.
Þar sem nokkur ágreiningur
var þó um afstöðu Stéttarsam-
bandsins til Búnaðarfélags fs-
lands, va,r samþykkt með sam-
hljóða atkvæðum allra fundar-
manna að láta fara fram skrif-
lega atkvæðagreiðslu um þetta
ágreiningsatriði á fundum bún-
aðarfélaganna næsta vor. Með
því að leggja málið þannig und-
ir dóm bændanna, ætti þessi á-
greiningur ekki að þurfa að
vera til trafala lengur, því að
þeim úrskurði, sem þannig fæst,
munu áreiðanlega allir hlita.
Samþykkt voru ýtarleg lög
um hlutverk og starfshætti
Stéttarsambandsins. Aðalverk-
efni þess verður að vera fulltrúi
bændastéttarinnar um verðlag
og verðskráningú landbúnaðar-
vara gagnvart Alþingi og ríkis-
stjórn, vera málsvari og samn-
ingsaðili gagnvart öðrum stétt-
arfélögum og stofnunum og
hafa forustu um, að bændui
beiti samtakamætti sínum til að
fá framgengt sameiginlegum
kröfum þeirra í verðlags-
viðskiptamálum.
og
Framk\æiii<lastjóriiiii
og verðlagsvaMð.
Á fundinum var kosin fyrsta
framkvæmdastjórn Stéttarsam-
bandsins og voru kjörnir í einu
hljóði Sverrir Gíslason,
Hvammi, J,ón Sigurðsson, Reyni-
stað, Pétur Jónsson, Egilsstöð-
um, Sigurjón Sigurðsson, Raft-
holti og Einar Ólafsson, Lækjar-
hvammi. Varamenn voru kjörn-
ir: Sigurður Snorrason, Gils-
bakka, Jón Jónsson, Hofi, Helgi
Jónsson, Seglbúðum, Sveinn
Einarsson, Reyni, Gestur And-
résson, Hálsi.
Stjórnin kýs formanninn og
hefir hún kjörið Sverri Gíslason
formann Stéttarsambandsins.
Á fundinum var borin fram
og samþykkt með öllum atkvæð-
um svohljóðandi tillaga:
„Fundurinn mótmælir ein-
dregið að ríkisstjórnin skipi
fulltrúa til þess að fara með
verðlagsmál landbúnaðarins.
Krefst hann þess, að bráða-
birgðalög um búnaðarráð verði
felld úr gildi og að fram-
kvæmdastjórn Stéttarsambands
bænda verði falið að ákveða
verðlag landbúnáðarvara".
Ályktun þessi hefir þegar ver-
ið send áleiðis til ríkisstjórnar-
innar. Mun það nú sannast,
hvort ráðherrann vill í raun og
veru veita bændum verðlags-
valdið, eins og hann hefir hald-
ið fram, því að ekki verður því
lengur borið við, að bændur
hafi ekki frambærilegan að-
ila til að fara með það mál.
Er vissulega ekki hægt að hugsa
sér frambærilegri aðila í þeim
efnum en framkvæmdastjórn,
sem landsfundur búnaðarfélag-
anna kýs með samhljóða at-
kvæðum, og krefst síðan með
samhljóða atkvæðum, að henni
verði fengið þetta vald í hend-
ur. Og ekki getur ráðherrann
borið því við, að stjórnmála-
andstæðingar hans séu í meiri-
hluta í stjórninni, og hann van-
treysti henni þess vegna,þar sem
flokksbræður hans eru þar I
meirahluta.
Neiti landbúnaðarráðherra því
að afhenda stjórn Stéttarsam-
bandsins verðlagsvaldið, er það
hin greinilegasta yfirlýsing þess,
að hann vill ekki láta bænd-
urna hafa þetta vald, þrátt fyrir
allar yfirlýsingar sínar um það.
Álger eining.
Þegar litið er yfir nöfn full-
trúanna á fundinum og þeirra,
(Framhald á 8. síðu)
/