Tíminn - 23.10.1945, Blaðsíða 6
?
6
TÍMEVN, þriðjndagiim 23. okt. 1945
DANARMEVTVEVG:
Ingibjörg jónsdóttir
frá Skíðastöðnm.
Þessi gagnmerka og gáfaða
sæmdarkona lézt að heimili
sínu á Sauðárkróki hinn 11. þ.
mán.
Fædd var hún að Þóreyjar-
núpi í Húnaþingi 28. dag janú-
armánaðar 1862, dóttir hjón-
ann Jóns Eiríkssonar og Sigur-
laugar Engilbertsdóttur. Flutt-
ist hún ung með foreldrum sín-
um að Haganesi í Fljótum og
var i fóstri hjá Sveini Sveins-
syni, bónda þar, og konu hans,
Helgu Gunnlaugsdóttur frá
Neðra-Ási i Hjaltadal, en í Haga-
nesi var Jón faðir hennar oim
skeið verkstjóri og ráðsmaður
fyrir búi Sveins bónda. Síðar
fluttist Ingibjörg að Grýtu-
bakka, austan Eyjafjarðar, en
á þeim slóðum stóð ætt föður
hennar. Nálægt miðjmn 9. tug
aldarinnar lauk hún námi við
kvennaskólann á -Laugalandi í
Eyjafirði og dvaldist enn um
sinn á sömu slóðum, en fluttist
vorið 1889 vestur í Lýtings
staðahrepp í Skagafirði. Nokkru
síðar, 1892, giftist hún Hannesi
Péturssyni frá Valadal og
reistu þau þá bú að Skíðastöð-
um í sömu sveit. Bjuggu þau
þar, við batnandi efnahag og
frábærar vinsældir, unz Hannes
lézt árið 1900 — eftir stutta
sjúkdómslegu. Var hann hverj-
um manni harmdauði, er hon-
um hafði kynnzt, því að honum
var um allt ágætlega farið.
Mjög segist öllum frá á einn
veg, þeim er þekktu hann, að
hann hafi verið úérstakur mann-
kostamaður, grandvar í allri
framkomu svo að af bar og vit-
ux. Gamlir Lýtingar, sem ég
hefi átt tal við, róma mjög
heimili þeirra hjóna um sið-
ferði, iðjusemi og hætti alla.
Þótti þá góður skóli ungum
mönnum, sem óráðnir þóttu, að
vera á vist með þeim hjónum,
svo að þeir temdu sér prúð-
mannlega framkomu, iðjusemi
og góðar dyggðir. Beittu þó
húsbændurnir hvorki valdboði
né umvöndunum við heima-
menn sína, heldur fór þá sem
jafnan verður, að sterkur per-
• sónuleiki góðs manns mótar
eftir sér þá, sem hann um-
gengst, sjálfum sér óvitandi.
Reynast þau menningaráhrif
næsta mikilvæg og dýrmæt
þeim er njóta. Fennir seint í
þær slóðir að jafnaði.
Þeim 'hjónum varð þriggja
barna auðið.(Eru þau öll á lífi:
Pétur, sparisjóðsformaður og
endurskoðandi, Sauðárkróki,
Jórunn, húsfreyja, sama stað,
Pálmi, rektor, Reykjavík.
Eftir missi manns síns bjó
Ingibjörg nokkur missiri, þar til
hún giftist öðru sinná, Gísla
Björnssyni frá Kolgröf. Bjuggu
þau enn á Skíðastöðum rausn-
ar- og myndarbúi til vorsins
1914, er þau brugðu búi og
skildu að samvistum. Fluttist
þá Ingibjörg til Péturs sonar
síns, sem var setztur að á Sauð-
árkróki, og átti hún heima hjá
honum síðan til æviloka.
Þótt Ingibjörg yndi sér allvel
á Sauðárkróki og hún nyti þar
ástúðar og nærgætni barna
sinna og tengdabarna, festi hún
þar aldrei rætur, svo sem títt er
um sveitamenn, sem taka sig
upp rosknir og flytja í. kauptún.
Hugur hennar var að hálfu^ eða
meir, bundinn við fornar slóðir,
og þó líklegast hvergi fastar
bundinn en við hina fögru sveit,
þar sem hún hafði lifað beztu
manndómsár sín, og þá áerstak-
lega við Skíðastaði. Er mér
einkar ljúft að minnast þess,
þegar fundum okkar bar saman,
hve henni voru tiltækar minn-
ingarnar þaðan, einkum frá
þeim tíma, er fyrri maður henn-
ar lifði og hún naut þess að eiga
öll börn sín heima og sjá þau
vaxa. Þar áttu minningarnar
Ingibjörg Jónsdóttir
sín helgustu vé. Var mér sönn
unun að hlýða sögum hennar
: öllum, er hún sagði mér frá
; liðnum xtíma. Hún var marg-
| fróð og stálminnug. Þó var enn
meir hitt, að sögunum hlotnað-
ist listrænt og siðrænt inntak
með þeim hætti, sem einungis
má verða þegar- gáfaður og góð-
ur maður segir frá. Frásagnar-
list hennar várpaði yfir atburð-
ina tignum og töfrandi blæ,
sem allra helzt minnir á geisla-
skin vornætursólar á fögrum
stað í góðu veðri.
Mörgum góðum mæðrum hefi
ég kynnzt um dagana. En sú
er sannfgéring min, að engri
betri móður hefi ég kynnzt en
henni. Eg greindi það glögglega,
hve innilega hún gladdist við
gengi barna sinna, en þó jafnan
án alls mikillætis og með þeirri
frábæru hófsemi, sem einkennir
góða menn og margshyggjandi.
Gleymdi hún ekki að þakka
guði hvern bantí áfanga, er
unnizt hefði og biðja hann
styrktar og blessunar á þeirri
leið, sem framundan var.
Samúð hennar var víð sem
askurinn YggdrasÚl, og þó
furðulega sterk og heit. Hún
náði til alls þess, sem átti í vök
að verjast, til alls þess, sem sat
við skarðan hlut, án saka.
Ingibjörg var sérstaklega ljóð-
elsk og hárglögg að greina þar
stórt frá smáu. Unni hún eink-
um allri skáldlegri fegurð og var
fljót að læra heil kvæði allt
fram á seinustu ár. Ég má ekki
ljúka við þessar línur nema geta
um eitt kvæði, sem hún haíði
j alveg sérstakar mætur á. Þaö
| var kvæðið Skagafjörður, eftir
Stephan G. Stephansson. Þó
voru það einkum þessar tvær
ljóðlínur, sem hún dáðist að:
„Sveitin glaða, gegnum þig
heilsa ég feðra-foldu minni“.
Að sjálfsögðu þótti henni sú
hugsun höf. fögur og. alveg sér -
staklega „skagfirzk“, að láta
Skagafjörð, fja^öaprýðina, varpa
tignarfegurð sinni á landið allt.
En meir þótti henni um hitt
vert, að þessa hugsun höf.
þyrftum við að færa út, leggja
hér til rýmri skilning: Fegurstu
minningarnar, sem við eigum,
minningarnar um þá, sem okkur
hafa verið hjartfólgnastir, eiga
að bera birtu á mannlífið allt,
varpa ljósi yfir það allt. Sýna
okkur það í bjartara og fegurra
ljósi en við annars myndum
sjá það.
Þessa skoðun kaus hún sér
áð leiðarljósi í leitinni að sann-
indunum um mannlegt líf.
Skriðulandi, 14. okt. 1945.
Kolbeinn Kristinsson.
Kaupmeim!
Kaupfélög!
RAFSUÐUPLÚTUR
•>
750 w. 220 volt, fyrirliggj andi í heildsölu.
Raftækjaverzl. Eiríks Hjartarsonar & Co.,
Laugaveg 20 B. — Sími 4690.
Bréfaskóli S. I. S.
Samband ísl. samvinnufélaga
rekur tvær fræðslustofnanir,
Samvinnuskólann, sem stofn-
aður var 1919, og Bréfaskóla S.
í. S., sem stofnaður var 1940.
Eins og nafn bréfaskólans
bendir til fer þar fram bréf-
leg kennsla. Skólinn gefur
út sérstök verkefni í þeim náms-
greinum, sem kenndar eru. En
námsgreinarnar eru þessar:
1. Skipulag og starfshættir
samvinnufélaga.
í þeim flokki eru 5 bréf um
50 síöur og fjalla þau um eðli
og tilgang samvinnufélaga og
hvernig þau eru byggð upp fé-
lagslega og verzlunarlega.
2. Fundarstjórn og fundar-
reglur.
í þessum flokki eru 3 bréf um
30 síður. Er þar lýst hvernig
góður fundarstjóri stjórnar
fundum, og eftir hvaða reglum
verður að fara, til þess að góð-
ur árangur náist af störfum
fundarins.
3. Bókfærsla I.
í þessum flokki eru 7 bréf, 112
síður. Er þessi flokkur fyrir
byrjendur og kennd tvöfalt bók-
hald og sýnt hvernig efnahags-
og rekstursreikningur er gerð-
ur upp.
4. Bókfærsla II.
í þessum flokki eru 6 bréf,
beint framhald af fyrra flokki.
5. Enska.
í þessum flokki eru 7 bréf, 152
síður. Flokkurinn er handa byrj-
endúm og sérstök áherzla lögð
á réttan 'framburð og megin-
reglur enskrar málfræði.
6. Búreikningar.
í þessum flokki eru 7 bréf og
kennd undirstöðuatriði færslu
einfaldra búreikninga.
7. íslenzk réttritun.
í þessum flokki eru 6 bréf og
kenndar meginreglur um ís-
lenzka réttritun og nokkuð
drepið á málfræði. Fjöldi æf-
inga og verkefna fylgja bréf-
unum.
8. Beikningur.
Um næstu mánaðamót verður
byrjað á kennslu í reikningi.
Kenndur verður hagnýtur
reikningur og byrjað á undir-
stöðuatriðum. í flokknum eru
10 bréf, og fjalla þau um reikn-
ing og reikningsaðferðir, sem
kennt er á tveim til þi;em
vetrum 1 framhaldsskólum.
Starfi skólans er hagað svo,
að nemandi getur tekið eina
námsgrein eða .fleiri eftir því
sem ástæður hans leyfa.
Skólinn sendir nemandanum
siðan bréf í þeirri námsgrein,
sem hann óskar eftir. Þegar
nemandinn hefir lesið bréfið og
kynnt sér efni þess rækilega,
gengur hann frá úrlausnum
sínum á þeim viðfangsefnum,
sem honum eru sett í bréfinu,
og sendir þær bréfaskólanum.
Bréfaskólinn fær bréfið þeim
kennara sínum, er þessa náms-
grein kennir, en hann leiðréttir
svör nemandans, svarar athuga-
semdum og fyrirspurnum og
bendir nemandanum ef til vill
á eitthvað það, sem honum
hefir sézt yfir. Síðan endur-
sendir • skólinn nemandanum
leiðréttar úrlausnir, ásamt
næsta bréfi.
Bréfaskólinn starfar allt ár-
ið og tekur við nemendum hve-
nær sem er. Enginn nemandi
er öðrum háður með hraða
námsins eða tilhögun þess.
Nemendum er í sjálfsvald sett,
hve miklum tíma þeir verja til
þess, þetta er því hin hentug-
asta frístundavinna, sem hugs-
ast getur. Og það er sama hvar
á landínu hann er og hvaða at-
vinnu hann stundar — bréfa-
skólinn stendur öllum opinn.
Þetta kennslufyrirkomulag er
sérstaklega hentugt fyrir þá,
sem erfitt eiga að sækja skóla af
einhverjum ástæðum. Þeir geta.
þá notað tómstundirnar heima
til þess að afla sér fræðslu um
þau efni, sem hugur þeirra
stefnir til.
Þá er einn meginkostur þess-
arar kennsluaðferðar sá, að
nemandinn fær hina beztu. æf-
ingu við það að vinna sjálf$tætt.
Hann verður að glíma einn við
þau verkefni, seip skólinn fær
honum, og brjóta til mergjar
efni hvers bréfs, til að geta
leyst úr verkefnunum. Þessi
kennsluaðferð hefir og þann
kost í för með sér, að hægt er
að tryggja nemendum, hvar sem
þeir eru, góða kennara í hverri
grein. Menn geta stundað nám
og notið við það tilsagnar fær-
ustu manna, en sinnt þó jafn-
framt atvinnu sinni og þurfa
litlu til að kosta.
Nemendur bréfaskólans eru
nú orðnir um 900 talsins, þótt
námsgreinar hafi ekki verið
fleiri en sjö til þessa, en nú i
haust bætist við sú áttunda,
reikningur, eins og áður er sagt.
Segja má, að árangur kennsl-
unnar hafi orðið voiium betri,
þótt strjálar póstgöngur hafi
valdið nokkrum erfiðleikum.
Reynsla sú, sem þe|ar er
fengin af rekstri skólans, bendir
til þess, að þetta kennsluform
eigi jafnmiklum vinsældum að
fag'na hér á landi og víða er-
lendis, þar sem bréfaskólar eru
þaulreyndir og mikið útbreiddir.
Sláturfélag Suðurlands
Reykjavík. Sími 1249. Símnefnt: Sláturfélag.
Reykhús. — Frysihús.
SViðursuðuverksmiðja. — Bjúgnagerð.
Framleiðir og selur í heildsölu og smásölu: Niöur-
soðið kjöt og fiskmeti, fjölbreytt úrvál. Bjúgu og alls
konar áskurö á brauö, mest og bezt úrval á landinu.
Hangikjöt, ávallt nýreykt, viðurkennt fyrir gæði.
Frosið köt alls konar, fryst og geymt í vélfrystihúsi
eftir fyllstu nútímakröfum.
Verðskrár sendar eftir óskum, og pantanir afgreiddar
um allt land.
Orðsending til kaupeijdá Tímans -
Ef kaupendur verða fyrir vanskilum á blaðinu, eru þeir vin-
samlega beðnir að gera afgreiðslunni þegar aðvart.
80. blað
Bréfaskóii S. /. S.
Námið er stundað heima. Námshraði við hæfi hvers
nemanda. Námsgreinar:
Bókfærsla.
Enska.
íslenzk réttritun.
Skipulag og starfshættir samvinnufélaga.
Fundarstjórn og fundarreglur.
Reikningur.
Látið Bréfaskólann
styifju i/ðui’ til sjálfsnáms.
Laus staða
Oss vantar afgreiðslumann i sölubúð frá næstu ára-
mótum.
Eiginhandarumsóknir, ásamt launakröfu, sendist
til Sigurðar Steinþórssonar, kaupfélagsstjóra, fyrir
15. nóvember næstkomandi. í umsóknunum séu upp-
lýsingar um aldur, nám og starfsferil.
Kaupfélag Stykkisbólms.
. Ullarverksmiðjan
GEFJUN
framlelðlr fyrsta flokka vörur.
Spyrjlð því Jafnan fyrst eftlr
Gefjunarvörum
þegar yður vantar ULLARVÖRIJR
Samkomusalurinn
t hinni nýjju mjólkurstöð við Laugaveti
ftest leigður til fundahalda og unnarra
samkoma í vetur.
Upplysingar í síma 1626.
Tilkynning
Að gefnu tilefni tilkynnist hér með að óheimilt er að
flytja út ísvarinn fisk til Belgíu eða annara landa á megin-
landi Evrópu, nema með sérstöku leyfi.
Þeir, sem hafa í huga að senda ísfisksfarma til hafna á
meginlandinu verða að tryggja sér útflutningsleyfi hjá
nefndinni fyrir hverja einstaka ferð áður en ferming við-
komandi skipa hefst.
Vanræki skipaeigendur að sækja um leyfi til þessara
siglinga, verða þeir látnir sæta ábyrgð að lögum.
Reykjavík, 19. október 1945..
Samninganefnd utanríkisviðskipta.
Eskimóadrengurin
er bók barnanna í ár.
Bókaútgáfa Guðjóns Ó. Guðjónssonar.