Tíminn - 23.10.1945, Blaðsíða 7
80. blað
TÍMIM, jþriðjndaglim 23. okt. 1945
7
Á v í ð a v a
(Framhald af 2. slSu)
flokki, hefir mánaðarfæðið
hækkað úr 332 kr. í 420 kr. eða
um 88 kr. Yfir árið nemur þessi
verðhækkun 1056 krónur. Fyrir
skólafólk og lágtekjufólk er þessi
hækkun eðlilega mjög tilfinnan-
leg. Það fær nú að reyna afleið-
ingar stefnu stjórnarinnar í
dýrtíðarmálunum, því að vitan-
lega leiðir þessa hækkun beint
af þeim. Þó er þetta ekki nema
smáræði hjá því, sem eftir er að
koma, ef sömu stefnu verður
fylgt áfram.
Einn hinna opinberu starfs-
manna. sem fékk kauphækkun
samkvæmt launalögunum í vet-
ur, lét svo ummælt, þegar hann
frétti um þessa hækkun hjá
matsöluhúsunum: Hún ætlar að
fara fljótt „kjarabótin,“ sem
'stjórnarflokkarnir þóttust hafa
veitt okkur með launalögunum.
Hér fara 1000 kr. í aukinn fæðis-
kostnað. Áður hafa farið rífleg-
ar upphæðir í hækkun fargjalda,
símgjalda og veltuskattinn. Og
svo eiga skattarnir eftir að
koma.
Alþýðublaðið ætlar þó ber-
sýnilega ekki að þreitast á því
að hæla Alþýðuflokknum af
„kjarabótinni!“
Kengáluriddarinn fer í
smiðju á réttum stað.
Kengáluridd,arijm hefir enn
farið af stað í Mbl. og hyggst
nú að kenna bændum, hvernig
n g i
þeir eigi að hátta framkvæmd-
um hjá sér. Hefir hann það
helzt fram að færa, að bændur
eigi að hafa í þjónustu sinni
vinnuflokka, er vinni að rækt-
un og húsabyggingum. Þetta er
rétt hjá Kengáluriddaranum,
en hugmyndin er hins vegar
ekki ný. Framsóknarmenn báru
fram frumvarp um þetta efni á
þingi 1943 og fengu það sam-
þykkt á seinasta þingi (lögin
um ræktunar- og húsagerðar-
samþykktir. Hef'ir þegar verið
hafizt handa um framkvæmdir
samkvæmt lögum þessum 1
nokkrum héruðum. Vafalaust
hefir Kengáluriddaranum ver-
ið kunnugt um það. Afsannar
það vel óhróðursskrif hans um
Framsóknarmenn, að þegar
hann vill þannig bera fram já-
kvæðar tillögur í landbúnað
armálum, verður hann að fara
í smiðju til Framsóknarflokks-
ins. Ætti Kengáluriddarinn að
gera slíkt sem oftast, því að þá
væri nokkur von til þess, að
hann bætti ráð sitt.
Hitt er svo annað mál, að
ræktunarsamþykktir koma ekki
að fullu gagni, nema jarðræktar-
styrkurinn verði líka hækkað-
ur. Framsóknarmenn hafa nú
lagt fram frv. um það efni í
þriðja sinn. Afstaða stjórnar-
flokkanna til þess nú mun skera
úr um það, hvort þeir eru eins
hlynntir „nýsköpun“ landbún-
aðarins og þeir vilja vera láta.
Erlent yfirlit
(Framhald af 2. síðu)
„ hefðu verið sviknir og svipti!
hann því ríkisráðið völdum og;
tæki þau aftur í sínar hendur.
Biskuparnir í * Jugoslaviu hafa
nýlega sent út sameiginleg mót-
mæli gegn framferði Titos.
Hættulegust Tito er þó senni-
lega andstaða króatiska smá-
bændaforingjans, Vladko Matc-
hek, sem nú dvelur landflótta
í París. Hann hefir um áratugi
verið langvinsælasti stjórnmála-
foringi Króata og nýtur enn
trausts fylgis þeirra. Hann gaf
blaðamönnum nýlega lýsingu
á stjórnarfarinu í Jugoslaviu.
M. a. skýrði hann frá því, að
pólitískir fangar skiptu nú orð-
ið hundruðum þúsunda, en í
kommúnistaflokknum, sem öllu
réði, væru ekki skráðir nema
150 þús. manns. Samkvæmt hin-
um nýju kosningalögum, má að-
eins þjóðfylkingin (samtök
kommúnista og ýmissa smá-
flokka) hafa menn í kjöri og
Ymsar fréttir
Eimskipafélag íslands gekk
3. þ. m. endanlega frá samning-
um við skipasmiðastöð Bur-
meister & Wain í Kaupmanna-
höfn um smíði á tveimur flutn-
ingaskipum fyrir félagið. Munu
skip þessi kosta um 6 miljónir
hvort og verður annað þeirra
tilbúið til afhendingar í nóvem-
ber 1946, en hitt í febrúar 1947.
Skipin verða, 2600 smál. hvort
með 3700 ha. dieselvél. Hraði
þeirra verður 14y2 míla á klst.
Rúm fyrir 12 farþega verður í
hvoru skipi.
Þórhallur Ásgeirsson, sem
verið hefir sendisveitarritari í
Washington, er fulltrúi ís-
lands á 27. þingi Alþjóða-verka-
málaskrifstofunnar, sem hófst í
París 15. þ. m.
Fyrir þinginu lá beiðni frá ís-
landi um inngöngu og hefir hún
verið samþykkt.
Þann 14. þessa mánaðár var
Georg L. Höst sendiherra Dana
hér sæmdur Stórkrossi Fálka-
orðunnar, Knud Höjgaard, eig-
andi fyrirtækisins A. S. Höj-
gaard & Schultz var sæmdur
Stórriddarakrossi, með stjörnu,
og Kay Landvad verkfræðingur
Riddarakrossi.
Rauða kross deildin á Akra-
nesi hefir nýlega afhent bæjar-
stjórn Akraness til umráða
„Finnska baðstofu". Baðstofu
þessa lét deildin gera í sam-
bandi vfð Bjarnalaug. — Er
hún mjög vel úr garði gerð og
kostaði 40 þúsund krónur.
þó því aðeins, að þeir hafi verið
samþykktir af kommúnistum
sérstaklega. Þannig ráða þeir
raunverulega frambjóðendaval-
inu. Ehgin blöð mega koma út,
sem eru andstæð þjóðfylking-
unni. Fleira svipað nefndi Matc-
hek til dæmis um stjórnarfarið
í Jugoslaviu. Andstaða Matchek
mun verða Tito sérstaklega erfið,
vegna þess, að fylgi Titos hefir
verið tiltölulega mest í Króatíu,
Bæði Bandaríkjamenn og
Bretar eru taldir fylgjast með
stjórnmálaþróuninni í Jugo-
slaviu með mikilli athygli. Það
þykir ekki ósennilegt, að svo
fari að lokum, að þeir slaki til
fyrir Rússum í Rúmeníu og
Búlgariu og viðurkenni þau
lönd rússnesk áhrifasvæði.
Öðru máli gegnir með Jugo-
slaviu, sem er eins og Tékko-
slovakia nokkurs konar landa-
mæraland milli vestræns lýð-
ræðis og „austræns lýðræðis."
Þess má vel vænta, að, átök
stórveldanna geti orðið hörðust
úm slík lönd.
í stuttu máli
í danska tímaritinu „Mand-
ens Blad,“ septemberheftinu, er
þess getið, að Islenzkur maður,
Hjálmar J. Bárðarson (Tómas-
sonar frá ísafirði), hafi unnið í
verðlaunasamkeppni blaðsins
um beztu ljósmyndir.
Á forsíðu er mynd eftir hann,
sem nefnist „Afl“ og er af
kreptum karlmannshnefa. Enn-
fremur er ljósmynd eftir hann
inni í blaðinu af stúlku við
drykkjuborð.
Blaðið lýkur miklu lofsorði á
ljósmyndir Hjálmars og segir,
að hann hafi tekið öllum öðrum
keppendum fram í tækni og vali
verkefna.
FYLGIST MEÐ
Þið, sem i dreifbýlinu búið,
hvort heldur er við sj& eða í
sveit! Mlnnlst þess, að Timinn
er ykkar málgagn og málsvari.
Sýnið kunningjum ykkar blaðið
og grennslizt eftir því, hvort þeir
vilja ekki gerast fastir áskrif-
endur.
Utanáskrift: Tíminn, Lindar-
götu 9 A, Reykjavík.
Þurrkaður og pressaður
SALTFISKUR
ódýr og góöur, i stærri og
minni kaupum.
Hafliði Baldvinsson
Simi 1456. — Hverfisg. 123.
Innilegt þakklœti fœrum við ðörnum, tengdabörnum og
vinum, sem heimsóttu okkur og sœmdu með gjöfum á
50 ára hjúskaparafmœU okkar 9. sept. síðastliðinn.
Bassastöðum 25. sept. 1945.
Guðrlður Jónsdótti , Áskell PáUson.
Utvegum frá Danmörku
Rex Rotary fjölritara, stensla, svertu og fleira tilheyrandi
fjölritun.
JÓHMN KARLSSON & CO.
Sími 1707.
S k r á
um þá menn i Reykjavik, sem réttindi hafa til
niðurgreiðslu úr ríkissjóði á kjötverði, samkvæmt
lögum nr. 81 frá 1945t er til sýnis í Skattstofu
Reykjavíkur frá laugardegi 20. október til föstu-
dags 26. okt. að báðum þeim dögum meðtöldum,
kl. 9—10 virka daga.
•
Yfirskattanefnd Reykjavíkur úrskúrðar kær-
v ur varðandi niðurgreiðsluskrána, en Skattstofa
Reykjavíkur veitir kærum móttöku og gefur
upplýsingar.
Kærufrestur er til 30. okt. og þurfa, kærur
að vera komnar til Skattstofu Reykjavíkur eða
í bréfakassa hennar í síðasta lagi kl. 19 þriðju-
daginn 30. október n. k.
Útvegum veggfóður
til afgreiðslu síðast í okt. frá verksmiðju Dahlanders, Svíþjóð.
Sýnishorn fyrirliggjandi.
I
Einkaumboðsmenn:
JÓDAM KARLSSON & CO.
Sími 1707.
Umsóknir
um bátakaup
Sjávarútvegsnefnd Reykjavíkurbæjar hefir nú
fengið endanlega staðfestingu á kaupum hinna
síðari ö Svíþjóðarbáta, sem keyptir eru fyrir
milligöngu Reykjavíkurbæjar.
Afhendingartími vélanna i bátana er á tímabil-
inu 15. okt. til 15. nóv. 1946 og á þá eftir að setja
þær niður. Má því gera ráð fyrir, að bátarnir
verði tilbúnir til afhendingar í Svíþjóð um ára-
mótin 1946 til ’47. Stærð bátanna, vélanna og
gerð þeirra er hin sama og á hinum 5 fyrri Sví-
þjðarbátum, sem keyptir voru fyrir milligöngu
Reykjavíkurbæjar.
Þeir, sem kynnu að vilja kaupa þessa báta, sendi
bindandi umsóknir til Sjávarútvegsnefndar
Reykjavíkurbæjar, Austurstræti 10, 4. hæð,
fyrir 15. nóvember næst komandi.
Skattstjórlnu í Reykjavík.
Halldór Sigfússon
iet 'Ua £etu{ ífcu ^ampieA
of this Clean, Family Newspaper
The Christian Science Monitor
‘ Free from crime and sensational news . . . Free from political
bías . .. Free from "special interest” control .. . Free to tell you
the truth about world events. Its own woríd-wide staff of corre-
spondents bring you on-the-spot aews and its meaning to you
and your family. Each issue filled with unique self-help features;
to clip and keep.
r The Chrlstian Scienec PnbUshlnr Soclety
I One, Norway Street, Boston 15, Alass.
I
I
Name..
Street.
opies I
ience j
Cltjr..
PB-3
.Zone........Staie..
* pn Plcase send sample copies
I—I of Tbe Cbristian Science
, Monitor.
j j Please send a one-montb
J trial subscription.
close $í
I en- |
Þeir, sem áður hafa sent umsóknir þurfa að
endurtaka þær til þess að koma til greina, sem
kaupendur bátanna.
Sett er að skilyrði, að bátarnir verði skráðir hér
í bænum og gerðir út héðan.
Væntanlegir kaupendur þessara báta njóta sömu
lánskjara og þeir, er áður hafa gerzt kaupendur
að Svíþjóðarbátum fyrir milligöngu nefndarinn-
ar, enda uppfylli þeir sömu skilyrði.
s*. At Jr»
Nánari upplýsingar um bátana gefur Björn
Björnsson, hagfræðingur bæjarins, Austurstræti
10, 4. hæð, sími 4221.
Reykjavíkurbæjar
LEIFUR HEPPNI
Söguleg skáldsaga um afreksverk
Leifs Eiríkssonar.
í bókaverzlanir er komin skáldsagan „Leifur heppni“ eftir
ameríska rithöfundinn Fredric A. Kummer, í þýðingu
Knúts Arngrímssonar skólastjóra.
|r
\
í skáldsögu þessari er á bráðskemmtilegan hátt skýrt frá
æviatriðum og afrekum Leifs Eiríkssonar, fundi Vínlands,
bardögum við Rauðskinna og villidýr, sjóorustum og svað-
ilförum. — Bókin er .prýdd mörgum fögrum teikningum
eftir ameríska listmálarann Norman Price, á meðal þeirra
margar heilsíðumyndir, sem lýsa spennandi atburðum í
sögunni. Einnig er i bókinni stórt kort yfir siglingar Leifs.
„Leifur heppni“
er bók, sem jafnt ungir sem gamlir vilja eiga og lesa.
„Leifur heppni“
er myndarleg og smekklega valin tækifærisgjöf.
BókfellsLLtgáfan
x