Tíminn - 23.10.1945, Blaðsíða 8

Tíminn - 23.10.1945, Blaðsíða 8
Þeir, sem vilja kynna sér þjóðfélagsmál, innlend og útlend, fmrfa að lesa Dagskrá 8 REYKJAVÍK D A G S K R Á er bezta íslenzka tlmaritÍLÖ um þjóðfélagsmál 23. OKT. 1945 80. blað 7 mmall tiwaws 18. október, fimmtudagur: Réttarhöld yfir naz- Istum. / Þýzkaland: í Berlín hófust réttarhöld yfir 24 aóalleiðtogum þýzkra nazista, sem enn eru á lífi. Birt voru ákæruskjölin gegn þeim, en síöan verður rétt- arhöldunum haldið áfram i Nurnberg. Bandaríkin: Truman forseti lýsti yfir þvi, að enginn fundur hinna „þriggja stóru“ yrði hald- inn fyrst um sinn. Argentína: Ný stjórn kom til valda og er hún hlynnt Peron, sem nýlega sagði af sér vara- forsetaembættinu. Höfðu verið miklar æsingar' í landinu eftir fráför Perons* og virðist hann njóta mikilla vinsælda. Danmörk: Skemmdarverka- menn nazista, sem enn leika lausum hala, hafa unnið ýms hryðjuverk, m. a. skotið til bana liðsforingja einn, sem stóð fram- arlega í Frelsishreyfingunni. 19. október, fimmtudagur: Herflutningar tll Pól- lauds. Pólland: Tilkynnt, að Rússar hafi aukið setuliðið í Póllandi til að ráða þar niðurlögum ýmsra skærusveita, sem eru sagðar myndaðar af liðhlaupum úr rauða hernum. Annað þykir þó búa undir þessum herflutningum Rússa. Bandaríkin: Frá því var skýrt, að Bandarikin hefðu enn ekki viðurkennt yfirráð Rússa í Est- landi, Lettlandi og Litháen. Þýzkaland: Fundizt hefir listi yfir 8 milj. manna, sem voru búsettir utan Þýzkalands og naz- istar töldu sig geta treyst. Java: Saerkarno, foringi þjóð- ernissinna, lýsti yfir því, að þjóðernissinnar myndu grípa til ítrustu gagnráðstafana, ef Hol- lendingar flyttu aukið lið til landsins. Venezuela: Nokkur hluti hers- ins gerði uppreisn og tókst að vinna bug á liðsmönnum stjórn- arinnar, Ný stjórn hefir verið mynduð. 20. október, laugardagur: Nýjar landakröfur Rússa? Rússland: Margt hefir komið fram, sem þykir benda til þess, að Rússar vilji fá herbækistöðv- ar á Svalbarða. Einnig þykir margt benda til, að þeir muni ekki yfirgefa Bornholm. Austurríki: Rússar virðast ekki ætla að fara með setulið sitt úr Austurríki og herða kröf- ur sínar um yfirráð olíulind- anna þar. Java: Soerkarno sendi Tru- man forseta orðsendingu og bað hann koma i veg fyrir lið- flutninga Hollendinga þangað. Bretland: Ekkert dregur úr verkföllum hafnarverkamanna og eru alltaf fleiri og fleiri her- menn látnir vinna að uppskip- un. 21. október, sunnudagur: Frönsku kosningarnar Frakkland: Fóru fram þing- kosnin^ar, sem eru taldar mikill sigur fyrir de Gaulle. Flokkur hans, katólski Framsóknarflokk- urinn, hefir unnið mest á, og annar helzti stuðningsflokkur hans, jafnaðarmenn, hafa styrkt aðstöðu sína. Af andstæðingum hans unnu kommúnistar einir á. Fullnaðarúrslit eru enn ekki kunn. í þjóðaratkvæðagreislunni um stjórnarskrármálið vann dé Gaulle mikinn sigur, þrátt fyrir mótspyrnu kommúnista. Tékkoslovakia: Stjórnin hefir óskað eftir aðstoð Breta við,end- urskipulagningu hersins. \ Sérleyfishafar gagnrýna brúa- og ræsageröir Opinberar bygginga- framkvæmdir með mesta móti Samkvæmt greinargerð, sem húsameistari ríkisins hefir sent blaðinu, hafa bygg- ingarframkvæmdir á vegum þess opinbera, orðið meiri í ár en nokkuru sinni fyrr. Framkvæmdirnar hafa þó orðið minni en fyrirhugað var, vegna skorts á fagmönnum, einkum múrurum. Af framkvæmdum þessum má m. a. nefna: Sjúkrahús á Akur- eyri (25 sjúkl.), Patreksfirði (21 sjúkl.), viðbyggingu við Klepps- spitala (40 sjúkl.), fæðingardeild við Landspítalann (54 konur), gagnfræðaskóla í Reykjavík (500 nem.), gagnfræðaskóla á ísa- firði (viðbygging fyrir 100 nem.), húsmæðraskóla á ísafirði (34 nem.), húsmæðraskóla í Hafnar- firði (34 nem.), húsmæðraskóla I Borgarfirði (34 nem.), og sund- hallir á Laugarvatni, ísafirði, Seyðisfirði og Fáskrúðsfirði. Þá héfir viða verið hafizt handa um byggingu barnaskóla, leik- fimishúsa, opinna sundlauga, læknisbústaða, prestseturshúsa og kirkna. Þá er nýbyrjað á stórri byggingu fyrir hæstarétt og unnið hefir verið að því að fullgera Þjóðleikhúsið. Verka- mannabústaði er verið að byggja á Húsavík, í Neskaupstað, Keflavik, Hafnarfirði og Reykja- vík. Á mörgum þessum byggingum hafði verið byrjað í fyrra eða árið þar áður, en þær tafizt af efnisleysi og verkafólksskorti. Á öðrum hefir aðeins verið byrjað í ár og er meginvinnan eftir. Meginástæðan til þess, að byggingarnar eru meiri i ár en áður, eru einkum þær, að bygg- ingaframkvæmdir hafa legið niðri á stríðsárunum og valda því ýmsar eðlilegar orsakir. Op- MOTMÆLI BÆNDA Á fulltrúafundi búnaðarfélag- anna í Norður-Múlasýslu 2. september síðastl. var eftirfar- andi tillaga samþykkt með sam- hljóða 18 atkvæðum: „Fundurinn telur það illa far- ið, að ríkisstjórnin skyldi grípa til þess úrræðis, að skipa verð- lagsmálum landbúnaðarins með bráðabirgðalögum, svo sem hún hefir gert, í stað þess að bændum gæfist þess kostur, fyrir eigin samtök, að velja sjálfir þá menn, er þeir vildu til þess kveðja, að ráða verðlagi á landbúnaðar- vörum. Sérstaklega þar sem vit- að er, að bændur mundu ráð- stafa sjálfir þessum málum með fundahaldi því, er hefst 7. sept- ember n. k. Fundurinn er því andvigur bráðabirgðalögunum um Búnaðarráð, mótmælir þeim ákveðið og skorar á næsta Al- þingi að nema þau úr gildi.“ Einn fulltrúanna, sem greiddi atkvæði með tillögunni, var Gísli Helgason í Skógargerði. Gísli hafði nokkru áður verið skipað- ur í búnaðarráð, en sótti ekki fund þess, þar sem hann var þessari ráðstöfun andvígur. T ogarakaupin (Framhald af 1. síðuj ofan af um samninga þessa og hvernig þeir hafa verið gerðir, en Tíminn mun rannsaka þetta mál nánar og skýra lesendum sínum frá niðurstöðunni, því að hann hefir sterkan grun um, að mál þetta sé e. t. v. ekki síð- ur varhugavert fjármálalega fyrir þjóðina heldur en báta- smíðarnar innanlands hjá Áka Jakobssyni, serrj. nú liggja sannanir fyrir um að kosta mörgum milj. kr. meira en hægt var að fá bátana fyrir annars staðar, og hefir þeim peningum því beinlínis verið á glæ kastað. inberar byggingar hljóta því að verða mjög miklar næstu árin, þótt ekki sé hugsað úm aðrar en þær, sem þörfin er mest fyrir. Þelr vilja stofna upplýsingaskrifstofu fyrir ferðamenn. (jarnía Síó Félag sérleyfishafa áætl- unarbifreiða / hefir nýlega haldið aðalfund sinn hér í bænum. Mörg mál voru rædd á fundinum og ýmsar sam- þykktir gerðar. Fara hér á eftir nokkrar á- lyktanir fundarins. Um gerð á brúm var svohljóðandi álykt- un samþykkt: „Aðalfundur Félags sérleyfis- hafa, haldinn I Reykjavík 15. október 1945, mótmælir skýrslu vegamálastjóra, sem birtist í dagblöðunum í þessum mánuði varðandi ógætilegan akstur og skemmdir á brúarhandriðum. Að þessu gefna tilefni vítir fundurinn harðlega skeytingar- leysi vegamálastjórnarinnar, að viðhalda svo þröngum brúm á flestum leiðum landsins, að ó- kleift er að aka yfir brýr þessar með . venjulegri alþjóðabreidd farþegahúsa, þ. e. 2.50 m, auk þess, sem slysahætta og óþæg- indi sem slíkar brýr skapa, er mjög mikil og eykst stöðugt með vaxandi úmferð. Fundurinn skorar því á Al- þingi og vegamálastjórn, að eftirfarandi áríðandi umbætur verði hið allra fyrsta fram- kvæm^at: 1. Að breikka allar brýr á al- þjóðavegum landsins þannig, að hiklaust sé hægt að aka yfir brýrnar á bifreiðum, með venju- legum farþegahúsum, að breidd 2.50 m. 2. Að taka allar beygjur af vegum, sem liggja að brúar- sporðum, svo hægt sé að aka yfir brýrnar, án tafa. 3. Að endurbæta nú þegar þau ræsi á vegum, sem eru mjórri en vegurinn, þvi slík ræsi skapa mikla slysahættu. 4. Að gæta þess vandlega, að þar sem nýir vegir eru lagðir og nýjar brýr gerðar, að fullt tillit verði tekið til þess, að breiðari farartæki verði notuð I framtíðinni en nú eru. 4. Að viðhald veganna verði stórunj aukið og stórvirk vega- vinnutæki verði notuð miklu meira en gert hefir verið að þessu“. Um upplýsingaskrifstoíu var gerð þessi ályktun: „Aðalfundur Félags sérleyfis- hafa, haldinn í Reykjavík 15. október 1945, skorar á ríkis- stjórnina að veita Félagi sér- leyfishafa helming sérleyfis- gjalds til að reka upplýsinga- skrifstofu fyrir almenning, sem gæfi ókeypis upplýsingar um allar ferðir með áætlunarbif- reiðum í landinu, þar til full- komin ferðaskrifstofa yrði sett á stofn af hálfu þess opinbera“. Um eftirlit með fólksflutn- irigum var þetta samþykkt: „Aðalfundur Félags hérleyfis- hafa, haldinn I Reykjavík 15. október 1945, telur að eftirlit þess opinbera með fólksflutn- ingum á hinum ýmsu sérleyfis- leiðum, á þessu ári, hafi alls ekki komið að neinum notum," hvorki fyrir almenning né sér- leyfishafa“; Auk þess voru gerðar ýmsar samþykktir um hagsmunamál sérleyfishafa. í stjórn félagsins voru kosn- ir Sigurjóh Danivalsson, for- maður, Sigurður Steindórsson, gjaldkeri og Helgi Lárusson, ritari, en til vara Guðbrandur Jörundsson og Páll Guðjónsson. Ymsar fréttir í stuttu máii Fyrsta íslenzka skipið, sem selur fisk á meginlandi Evrópu eftir styrjaldarlokin, seldi afla sinn í Antwerpen 10. þ. m. Skip þetta var m.s. íslending- ur. Flutti hann ísfisk héðan, að- allega frá Vestmannaeyjum. Seldi hann 95 smálestir fyrir 8160 ensk pund (212,894,40 ísl. kr.) Er þetta mjög hagstæð sala. Löndunarskilyrði eru enn slæm í Antwerpen,en úr þvi mun bætt fljótlega. Forseti íslands hefir sam- kvæmt tillögu orðunefndar sæmt eftirtalda menn stórridd- arakrossi hinnar íslenzku Fálkaorðu: Ásgeir Sigurðsson skipstjóra, Sigurjón Á. Ólafsson fyrv. al- þingismann, Friðrik V. Ólafsson skólastjóra, Marinus E. Jessen, skólastjóra, Geir Zoéga vega- málastjóra, Friðfinn Guðjóns- son leikara, P. L. Mogensen lyf- sala. Eftirtaldir menn voru um ieið sæmdir riddarakrossi hinn- ar íslenzku Fálkaorðu: Jón Árnason prentari, Hall- grímur Jónsson fyrrv. skóla- stjóri, Árni Einarsson kaupm., Benedikt Jónsson verkfræðing- ur, Einar Thorlacius fyrrv. pró- fastur og Sigurður Gíslason lögregluþjónn. JarÖræktarlagafrv. (Framhald af 1. síðu) legt að bera þetta mál fram hér í hv. efri deild, til þess að enn gefist tækifæri til að taka af- stöðu til málsins, eins og milli- þinganefnd búnaðarþings gekk frá þvi. (Búnaðarþing í vetur mótmælti eindregið þeim breyt- ingum, sem gerðar voru á frv. á seinasta þingi að tilhlutun Jóns Pálmasonar). Við flutningsmenn sjáum ekki ástæðu til að endurtaka rökin fyrir nauðsyn þess, að mál þetta fái afgreiðslu og það sem allra fyrst. Það má þó enn minna á það, að bændur lands- ins hafa þegar almennt gert sér það Ijóst, að vinna með orfi og hrífu er svo seinvirk vinnuað- ferð, að engir möguleikar eru að nota slík vinnubrögð til fram- búðar. Eftirspurn þeirra eftir nýtízkuvélum sýnir og sannar, að engum er ljósara en þeim, að nauðsynlegt er að skipta um vinnuaðferðir. Það er og aug- ljóst mál, að ef þannig á að búa að landbúhaðinum og jarðrækt- arframkvæmdum, að umbáetur í starfsaðferðum við framleiðslu landbúnaðarvara verða á eftir tímanum, skapast óþolandi ó- samræmi milli þeirra innbyrðis, sem stunda framleiðslu land- búnaðarafurða, og jafnframt milli landbúnaðarins og annarra atvinnugreina. Hitt er augljóst mál, að fljótvirku átaki til ger- breytingar verður ekki á komið nema með verulegri hlutdeild ríkissjóðs, enda er það viður- kennt, að ræktun er ekki unnin aðeins fyrir kynslóðína, sem hana framkvæmir, heldur engu síður fyrir óbornar kynslóðir, og þess vegná réttlætisatriði, að þjóðin taki öll verulegan þátt I þessum ræktunarframkvæmd- um. Slíka viðurkenningu hafa þær landbúnaðarþjóðir, sem framarlega standa, veitt rækt- unarmálunum með ríflegum fjárframlögum frá því opinbera. Það er ákveðin skoðun flutn- ingsmanna, að ef þjóðin lætur nú undir höfuð leggjast að gera verulegar ráðstafanir til þess að notfæra sér auðlegð moldarinnar samhliða auðæfum hafsins, þá hljóti sú yfirsjón að koma henni alvarlega í koll siðar.“ ÓÐIJR RtSSLMDS (Song of Rnssia) Amerísk stórmynd. — Músik eftir Tschaikowsky. Aðaihlútverk: Robert Taylor, Susan Peters. Sýning kl. 7 og 9. Síðasta sinn. Walt Disney teiknimyndin „SALUDOS AMIGOS“ með flugvélastráknum Detro og Andrjes Önd. Sýnd kl. 5. Tbjja Síó Æ\IMARK TWAIN’S (The Adventures of Mark Twain). Söguleg stórmynd. — . Aðal- hlutverk: Fredric March, Alexis Smith. Sýnd kl, 9, KVÆNTUR í ANNAÐ SINN (Fired Wife). Fjörug og fyndin gamanmynd. Robert Paige, Louise Allbritton, Diana Barrymore. Sýnd kl. 5 og 7. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Sýnir gamanleikiim GIFT EÐA ÓGIFT eftir J. B. Priestley annað kvöld kl. 8. Aðgöngumiðasala í dag kl. 4—7. — Sími 3191. 22. sýning. Aðeins 2 sýningar eftir Framsðknarmenn í Reykjavík Tímann hefir vantað sendisvein nú um nokkurn tíma og hefir ekki tekizt að fá hann þrátt fyrir margendur- teknar auglýsingar í útvarpinu. Þetta er að sjálfsögðu ákaflega óþægilegt fyrir blaðið og vill nú afgreiðslan vin- samlega' fara þess á leit við Framsóknarmenn h£r í bæn- um, að þeir geri það sem unnt er til að aðstoða við útvegun á sendisveini. Talið við Torfa Torfason á afgreiðslu Tímans. Sími 2323. U R B Æ N U Fjórar umsóknir bárust alls um dómkirkjuprests- embættið í Reykjavík, en umsóknar- frestur var útrunninn síðastl. sunnu- dag. Þeir, sem sótt hafa, eru: Sr. Jón Auðuns fríkirkjuprestur í Hafnarfirði, sr. Sigurður Kristjánsson sóknarprest- ur á ísafirðl, sr. Óskar Þorláksson sóknarprestur á Siglufirði og sr. Þor- grímur SigUrðsson prestur að Staðar- stað á Snæfellsnesi. Áttunda þing Iðnsambandsins var sett í Baðstofu iðnaðarmanna síðastl. laugardag. í sambandinu eru nú alls 47 félög með 2097 iðnaðar- mönnum á iðnskrá í 54 iðngreinum. Þingið sitja 41 fulltrúi. Forseti Iðn- sambandsins, Helgi H. Eiríksson setti þingið með ræðu. Forseti þingsins var kjörinn Guðumundiu- H. Guðmunds- son formaður Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur. Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins, ,er fyrir nokkru kominn til Svíþjóðar, en hann mun 'ferðast um Sviþjóð, Danmörku og að öllum líkindum England, til að kynna sér fyrirkomulag og byggingu skóla og leikhúsa þessum löndum. Aukning' vatnsveitunnar var samþykkt á bæjarstjórnarfundi síðastl. fimmtudag. Verður lögð ný æð til bæjarins frá Gvendarbrunnum, Samkvæmt tillögum er Sigurður Thor- oddsen verkfræðingur hefir gert. Er gert ráð fyrir að þessi nýja æð geti flutt allt að 290 sekuntulítra af vatni. Ætlazt er til að framkvæmdum verði lokið næsta haust. Bærinn mun taka lán til íramkvæmdar verksins og var borgarstjóra veitt heimild til að undir- skrifa hvers konar skuldabréf, sem gefin verða út vegna lántökunnar. Skarlatssótt hefir stungið sér niður í barnaheim- ilinu Vesturborg og hafa komið fram fáein tilfelli þar. Mænuveikin er nú orðin mjög væg, en þó varð vart eins eða tveggja tilíella í seinustu viku. Guðmundur Thoroddsen prófessor er nýlega farinn utan til að mæta á alþjóðaþingi Rauða Kross- ins, í Genf, sem haldið verður í þessum mánuði, og á fundi sambandsstjórnar alþjóða Rauða Krossins, sem haldinn verður í París í næsta mánuði. Ný bókabúð. Bókaútgáfan Leiftur h. í. hefir opn- að nýja bókabúð í húsakynnum þeim við Lækjartorg, sem Litla-bílstöðin var í áður. Bókabúð þessi hefir á boðstól- um íslenzkar bækur, en auk þess ensk- ar, sænskar og danskar bækur. Eining, 10. blað 3. árg. er nýkomið út. Af efni þess má nefna: Lausnarmenn og bölvaldar þjóða, grein eftir ritstjórann, Pétur Sigurðsson, grein um Sunnukór- inn eftir sama, Skilgreining kven- manns á karlmönnum, grein um Jón biskup Árnason og önnur er nefnist Áfengisfögnuður, Úr Loðmundarfirði eftir Halldór Pálsson, Nýjasti skólinn og margt fleira. Gestir í bænum: Eiríkur Þorsteinsson kaupfélagsstjóri Þingeyri, Steingrímur Baldvinsson, bóndi, Nesi, Aðaldal, Hjörtur Lárusson, bóndi Rauðárdal, Barðaströnd, Guð- mundur Guðlaugsson forstjóri Akur- eyri, sr. Sigtryggur Guðlaugsson, Núpi, Dýrafirði, Jóhannes Stefánsson, bóndi Kleifum, Gilsfirði, Eyjólfur Sigurðsson. Reykholti. Trúlofun. Nýlega hafa opinberað trúlofun sina ungfrú Ása Finnsdóttir úr Grundar- firði á Snæfellsnesi og Sigurður Ei- ríksson íþróttakennari frá Miðskeri i Hornafirði. Hjúskapur. Fyrra laugardag voru gefin saman í hjónaband á Akureyri ungfrú Olga Hallgrímsdóttir (Ijósmyndara Einars- sonar) og Guðmundur Ólafsson bankabókari. Heimili ungu hjónanna er á Oddeyrargötu 5.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.