Tíminn - 30.10.1945, Síða 1

Tíminn - 30.10.1945, Síða 1
RITSTÍÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ÚTGEPANDI: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Símar 2353 og 4373 PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. RITST JÓRASKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A Símar 2353 og 4373 AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A Sími 2323 29. árg. Reykjavík, þriðjndagiim 30. okt. 1945 83. blað f Íííb-rrk.. á heyi hafa bonð mjog gooan arangur Þingsályktnnartillaga frá Eysteini Jónssyiii Eysteinn Jónsson hefir á tveimur unðanförnum þingum flutt þingsályktunartillögu þess efnis, að athugun færi fram á því, hvaða verð þyrfti að vera á sjávarafurðum til þess, að framleiðsla þeirra svari kostnaði og veiti þeim, sem hana stunda, eigi lakari afkomu en öðrum hliðstæðum stéttum. Jafnframt sé og athug- að, hver áhrif dýrtíðaraukning stríðsáranna hefir haft á fram- leiðslukostnað sjávarafurða og hver áhrif lækkun dýrtíðarinnar myndi hafa á afkomu þeirra, sem sjávarútveg stunda. Þótt undarlegt sé, hefir þessi tillaga ekki fundið náð fyrir augum stjórnarsinna. Bæði mun þeim illa við, að hin hörmu- legu áhrif dýrtíðaraukningarinnar á framleiðslukostnað sjávar- vara upplýsist til fulls, og þeir munu óttast, að slík rannsókn Ieiði í ljós knýjandi þörf fyrir lækkun dýrtíðarinnar, ef útvegsmenn og fiskimenn eiga að bera svipaðan hlut frá borði og flestar aðr- ar stéttir. Niðurstaðan hefir því orðið sú, að þessi tillaga Eysteins hefir verið felld á undanförnum þingum. Eysteinn hefir nú lagt hana fram í neðri deild í þriðja sinn og verður nú fróðlegt að sjá, hvort stjórnarliðið treystir sér til að fella hana einu sinni enn. TRUMAN VEITIR HEIÐURSMERKI Truman forseti flutti á laugardaginn var ræíiu. sem vakið hefir mikla at- hygll. Hann lýsti yfir því, að Bandaríkin hygðu ekki á landvinninga og vildu stuðla að frelsi og sjálfstæði allra þjóða. Hann sagði ennfremur, að þau ætluðu sér að vera hernaðarlega styrk til þess að geta tryggt fram- gang þessarar stefnu sinnar, og myndu m. a. koma sér upp öflugasta flota í heimi. — Hér á myndinni sést íorsetinn vera að sæma fatlaðan hermann heiðursmerki. Skriffinnska og ranglæti ein- kenna úthlutun kjötstyrksins Athyglisvcrt dæmi um starfshætti stjórn- arinuar Skattstofan og skattanefndir landsins hafa undanfarið átt mjög annríkt við að semja skrár yfir þá, sem hafa rétt til kjötstyrksins samkvæmt bráðabirgðalögum stjórnarinnar. Hefir það komið næsta vel í Ijós við samningu þessa, hve heimskuleg og ósanngjörn þau ákvæði eru, sem útiloka fjölda inanna frá því að fá kjötstyrkinn. Viðtal við Bjarna Ásgeirsson, formann Búnaðarfélags íslands, um aukna tækni og nýjungar í landbúnaðinum Sumarið, sem nú er að kveðja, hefir verið bændum á Suður- og Suðvesturlandinu með afbrigðum örðugt, þar sem fádæma ó- þurrkar hafa bætzt ofan á verkafólksskortinn. Aldrei kemur það betur í ljós en á svona sumrum, að fullkomnar vélar og verkfæri til heyskapar og annarra heimilisstarfa ráða úrslitum um af- rakstur bjargræðistímans og afkomu bóndans. Má og fullyrða, að aldrei hefir áhugi bænda og viðleitni beinzt svo mjög að auknum vélakaupum og vélanotkun eins og nú síðari árin. Ma og telja víst, að nábýli undanfarinna ára við hina miklu tækni Bandaríkjahersins, svo og nánari kynni þjóðarinnar af hinni miklu vélamenningu þessarar voldugu viðskiptaþjóðar okkar nú um skeið hafi orkað ekki litlu á skilning manna almennt, og á- huga fyrir aukinni vélanotkun. Tíminn hefir átt tal við Bjarna Ásgeirsson, formann Búnaðar- félags íslands, sem einnig er í stjórn verkfæranefndar ríkisins, og spurt hann um, hvaða nýjungum á sviði landbúnaðarmála hann gæti skýrt frá. — Fer viðtalið hér á eftir. Tillaga Eysteins Jónssonar er svohljóðandi: „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að láta fara fram rannsókn á afkomu sjávarút- vegsins og framleiðslukostnaði sjávarafurða. Að þeirri rann- sókn lokinni verði lagt fram rökstutt álit um, hvaða verð þurfi að vera á sjávarafurðum, til þess að gera megi ráð fyrir, að framleiðsla þeirra svari kostnaði og veiti þéim, er hana 429 stúdentar inn- ritast í Háskólann Erá Ifáskólahátíóiimi á laugardagiim var Háskólahátíðin fór fram í hátíðasal Háskólans síðastl. laugardag. Viðstaddir voru forseti íslands, herra Sveinn Björnsson, sendifulltrúar er- lendra ríkja og ýmsir aðrir gestir. Hátíðin hófst með því, að út- varpskórinn söng úr Háskóla- ljóðunum, og því næst flutti hinn nýi rektor skólans, Ólafur Lárusson prófessor, ræðu. Gerði hann grein fyrir brey’tingum á kennaraliði skólans og stofnun nýrra deilda og námsgreina. Hann þakkaði fráfarandi rektor fyrir vel unnin störf í þágu stofnunarinnar þrjú undan- farin skólaár. Rektor skýrði frá framkvæmdum er skólinn hefir með höndum, en nýlega hefir verið ráðizt í að byggja stórt íþróttahús fyrir skólann og mun til þess þurfa allan gróðann af Happdrættinu næstu þrjú árin. Háskólahúsið er nú orðið skuld- laust. í vetur hafa innritazt í skól- ann 429 stúdentar og af þeim eru 66 nýir. Kennarar eru alls 53, að meðtöldum stundakenn- urum. Að ræðu rektors lokinni flutti dr. Þorkell Jóhannesson stór- fróðlegt erindi um Skaptáreld- ana og Móðuharðindin og þau áform Dana að flytja íslenzkt fólk til józku heiðanna. Dr. Þor- kell sagði, að þær frásagnir í íslandssögum, að flytja hefði átt alla íslendinga til Jótlánds væru ekki sannleikanum sam- kvæmar,- heldur hafi aðeins ver- ið talað um að flytja nokkur hundruð manns til Danmerkur og þá aðallega ómaga og flæk- inga. Þegar ræðu dr. Þorkells lauk, fór fram afhending skírteina til nýrra stúdenta og síðan var hátíðinni lokið með því, að út- varpskórinn söng þjóðsönginn. Hátíðin var öll hin virðuleg- asta. stunda, lífvænlega afkomu, eigl lakari en aðrar stéttir eiga við að búa. Ennfremur sé rannsak- að, hver áhrif dýrtíðaraukning stríðsáranna hefir haft á fram- leiðslukostnað sjávarafurða og afkomu útvegs- og fiskimanna og hver áhrif lækkun dýrtíðar í landinu mundi hafa á afkomu þeirra, er sjávarútveg stunda“. í greinargerð segir: „Flestum ætti að vera það ljóst, að aukn- ing dýrtíðarinnar í landinu hef- ir komið harðast niður á afkomu þeirra, sem framleitt hafa til útflutnings. Þeir hafa ekki get- að tekið þátt í dýrtíðarkapp- hlaupinu innanlands, þar sem hver hefir velt yfir á annan með þeim afleiðingum, að dýrtíðin hefir farið síhækkandi. Þeir, sem framleiða v,örur til útflutnings, hafa ekki getað flúið þannig undan dýrtíðinni um stundar- sakir, hvað þá heldur til fram- búðar. Vöxtur dýrtíðarinnar hefir því grafið undan afkomu útvegsmanna og fiskimanna. Þégar dýrtiðarráðstafanir voru brotnar niður árið 1942, gleypti dýrtíðaraukningin í landinu alla hækkun, sem fékkst á fisk- veröinu, og reyndar enn meira, þótt verðið hækkaði úr 35 aur- um í 45 aura pr. kg. Afleiðing- in varð sú, að afkoma smáút- vegsmanna og fiskimanna varð mun verri með 45 aura verð- inu, er búið var að brjóta niður ráðstafanirnar gegn dýrtíðinni, heldur en áður hafði verið, þeg- ar 25 aurar pr. kg. fengust fyrir fiskinn. Á sama hátt hefir farið á síðasta ári. Fiskverðið hækk- aði lítils háttar framan af ár- inu, en framleiðslukostnaðurinn hefir farið síhækkandi. Þannig hefir svo farið, að þær ráðstaf- anir, sem mfnn töldu sig gera til þess að bæta kjör almenn- ings, hafa orðið til þess að svipta bá, sem eiga afkomu sína undir ^jávarafla og verðlagi sjávar- afurða erlendis, verulegum bluta tekna þeirra. Framleiðslu- kostnaður sjávarafurða hefir verið of hár síðustu missirin, iafnvel ef miðað er við stríðs- verð afurðanna, þegar togarar ?ru undanskildir. Þó hefir verið varið stórfé til að halda honum niðri með niðurborgunum úr ríkissjóði, sem hafa dregið úr hækkun vísitölu. Smáútvegs- menn hafa flotið á óvenjulegum afla. Verðbólgan hefir minnkað blut fiskimanna í samanburði við kaup og atvinnutekjur í landi og framleiðslukostnað. Fiskimönnum í landinu fækk- aði á árunum 1942—1944. Það er orðið stórkostlegt vandamál að fá sjómenn á fiskiflotann-, eins og hann nú er, en mikil aukning hans stendur fyrir dyr- um. Ráðstafanir til þess að draga (Framhald á 8. síOú) Starf nefndanna hefir í flest- um tilfellum verið hið torveld- asta, þar sem oft er mjög erfitt að dæma það eftir hinum ó- 3kýru fyrirmælum laganna, bvort menn eiga að fá kjötstyrk eða ekki. Hefir þetta valdið margvíslegum erfiðleikum, og >um vafaatriði hafa nefndirnar orðið að ákveða af handahófi. Starf þetta hefir því orðið taf- samt og þótt lítið ánægjubegt. Auk þeirrar miklu skrlffinnsku og tímaeyðslu, sem þetta hefir bakað skattanefndunum og itarfsliði þeirra, hefir þpið lika valdið almenningi mikilli fyrir- böfn. Hér í Reykjavík hefir fólk beðið undanfarna daga í tuga- :ali á Skattstofunni, en erindi bess hefir verið að gæta að því, bvort það væri ekki á kjöt- skránni. Fjölmargar kærur hafa þegar borizt, en þó má telja víst, að margir hafi vanrækt að kæra, sem áttu rétt til styrksins og skki voru á skránni, T. d. eru þeir ekki á skránni, sem eignazt hafa lögheimili í bænum í ár, og ekki heldur þeir, sem kaupa orðið fæði, en hafa fengið það frítt áður, þar sem Skattanefnd- in hefir ekki getað lagt annað en Skattskrána til grundvallar ákvörðunum sínum. Þess vegna er enginn þeirra íslendinga, sem flutzt hafa til landsins í ár, á kjötskránni. * Skriffinnskan og tímaeyðslan þótt vond sé, er þó ekki vérsti ókostur þessa fyrirkomulags, heldur útilokun ákveðinna hópa af mqnnum frá því að fá styrk- inn. Menn, sem eiga 2—3 kindur, fá t. d. ekki styrkinn, eða menn, sem hafa 3 menn í atvinnu, enda þótt tekjur þeirra margra séu stórum lægri en þeirra, sem styrkinn fá. Mun síðar verða bægt að nefna mörg dæmi þessu L.il sönnunar. Það er engin af- 'ökun, að smáatvinnurekendur eiga ekki að fá styrkinn, þar sem beir greiði lægra kaup en ella vegna hans. þetta fellur um >jálft sig, þegar þess er gætt, að þeir atvinnurekendur, sem bafa hlutafélagsform á rekstri sínum, fá styrkinri. Það eina rétta í þessum efn- um er að láta styrkinn ná jafnt til allra. Flokkun í þessum efn- um getur ekki leitt til annars en óréttlætis, og þess vegna á hún engin að vera. — Hvaff er aff frétta af til- raununum með hina svokölluffu súgþurrkun? — Á Alþingi* 1944 var sam- þykkt heimild til rikisstjórnar- innar að láta framkvæma til- raunir með þessa heyverkunar- aðferð. Þáverandi landbúnaðar- ráðherra, Vilhjálmur Þór, sneri sér þá til Jóhannesar Bjarna- sonar vélaverkfræðings, sem þá var nýkominn frá námi i Ame- ríku, og fyrstur hafði vakið hér athygli á þessari heyverkunar- nýjung, og fól honum að panta þá þegar þurrkunarútbúnað frá Bandaríkjunum í tvær hlöður. Var pöntunin þegar send síðari hluta vetrar 1944, og var af- greiðslu þá lofað fyrri hluta næsta sumars. En vegna mik- illa erfiðleika við framleiðslu og afgreiðslu véla almennt, sökum hernaðarframleiðslunnar, sem alls staðar var skipað í öndvegi, drógst afgreiðsla véla þess- ara, svo að þær komu ekki fyrr en síðastliðið vor. Fól þá nú- verandi landbúnaðarráðherra, Pétur Magnússon, þeim Jóhann- esi Bjarnasyni og Pétri Gunn,- arssyni fóðurfræðingi að sjá um heyþurrkunartilraunir með vél- um þessum nú í súmar. Sagði Jóhann fyrir um niðursetningu vélanna og þurrkunarútbúnað í hlöðunum, en Pétur sér um efnagreiningu á hey „prufum', og vatnsmagnsmælingu í þeim á ýmsum stigum. Rétt er að geta bess, að Ágúst Jónsson rafvirki, sem einnig hefir sýnt, mikinn áhuga fyrir þessu máii, hófst handa um það sumarið 1944 að smíða og útvega blástursútbún - að til heyþurrkunar með þessari aðferð, og fékk að koma honum fyrir í skúr á Vífilsstöðum. Var gerð tilraun með hann þá um haustið. Gaf sú tilraun þá þegar mjög viðunandi árangur, þann- ig, að hún fullþurrkaði gras- burrt hey með blæstri í ca. þrjár vikur, en allan þann tímo var óslitin vatnstíð. Tilraunir bessar og heyþurrkunartæki greiddi svo landbúnaðarráð Ágústi, og fól fyrrnefnd- um mönnum áframhaldandi til- raunir með þau nú í sumar, á- samt hinum tækjunum tveim. Voru tæki Ágústs áfram á Víf- ilsstöðum, en hinum var feng- inn staður, — öðrum á Akur- eyri á’ búi Ræktunarfélags Norðurlands en hinum að Reykj- um 1 Mosfellssveit. Mun Ólafur •Jónsson, framkvæmdastjóri Ræktunarfélagsins, að mestu hafa séð um tilraunirnar þar nyrðra. Þeir, sem fyrir tilraunum þessum hafa, staðið, munu að sjálfJögöu gefa ýtarlega greln- argerð um þær 1 einstökum at- Bjarni Ásgeirsson riðum, er þeir hafa unnið úr athugunum sínum. Það sem ég segi um þær hér er aðeins bráða- birgðaathugun mín og álit eftir þá stuttu reynslu, er ég hefi haft af þeim, og þeim upplýs- ingum, sem ég hefi aflað mér hjá öðrum, sem haft hafa til- raunir þessar með höndum. Það sem ég tel að hafi þegar komið í ljós um aðferð þessa bann stutta tima sem hún hefir verið reynd hér er þetta: 1. Það er ógerlegt að þurrka meff þessari affferff rennblautt bey — effa svo seinlegt aff frá- gangssök má kalla. 2. Þaff er öruggt aff þurrka til fulls þaff, sem kallaff er gras- burrt hey (meff ca. 50% vatni). Tilraunir virffast benda til þess \ff stöffugur blástur í 2 eða 3 vikjir fullþurrki grasþurra töffu. yið'óhagkvæmustu skilyrði þ. e. njög vatnsmettað loft fara til icss fullar þrjár vikur. 3. Tilraunir virðast benda til \jess, að allmikið megi flýta fyr- r þurrkuninni, meff því aff láta bitna í heyinu, og blása svo bitagufunni á burt. Mér virffist bitahætta í heyi vera úr sögunni, bar sem þessi útbúnaffur er til úaðar. — Hér á Reykjum var gerff til- raun meff aff þurrka háartöðu, iem látin var inn hrá (meff ca. S0% vatni). Var látiff snarp- bitna í henni öffru hvoru, en blásið á hana á milli og fór allur biti úr henni á fáum klukku- tímum, og stóð gufustrókurinn upp úr stöðinni á meffan aff blásið var. Virffist þetta nú vera (Framhald á 8. síöu)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.