Tíminn - 30.10.1945, Qupperneq 3

Tíminn - 30.10.1945, Qupperneq 3
82. blað IVN, |»rl8|ndaglim 30. okt. 1945 Kristjánsson: Baráttan um landbúnaðinn Merklr áfangar. Síðustu ár hafa staðið yfir hörð átök um sölu og verðlag á landbúnaðarframleiðslu ' ís- lendinga. Afurðasölulögin voru gagnmerk tilraun til þess, að koma sanngjörnu skipulagi á málin. Þar með voru opinberir fulltrúar látnir ákveða verðlag- ið og reynt að fyrirbyggja und- irboð. Næsti atburður, sem markar tímamót í þessari þróun, er hið margnefnda sexmanna- nefndarálit. Þar komu fulltrúar bænda og neytenda sér saman um verðlagsgrundvöll, sem væri í samræmi við afkomu annarra vinnandi stétta. Þar með var afurðaverðið byggt á fræðileg- um grundvelli í fyrsta sinn, en ekki aðeins miðað við eitthvað handahófshlutfall, sem ein- hverntíma hefði verið milli verð- lags og kaupgjalds. Álit sexmannanefndarinnar hefir lítilli gagnrýni sætt, þegar sleppt er ýmis konar vitleysum einhverra flumburgasprara, sem ekki hafa nennt að kynna sér málið, og þess vegna sagt aðrar eins fjarstæður og það, að bænd- um væri ætlað taxtakaup fyrir hverja vinnustund o. s. frv. Slík- um ómerkingum er ekki svar- andi hér. En gott á sexmanna- nefndin meðan ekki koma fram ádeilur frá öðrum. • Þær nefndir, sem ákváðu verð lag á vörum bænda, voru skip- aðar fulltrúum framleiðenda og neytenda og gert ráð fyrir sam- komulagi um verð. Ríkisstjórn- in skipaði oddamann og stóð hann jafnan með fulltrúum bænda, ef um ágreining var að ræða. Mátti því segja að sjón armið bænda væru alltaf í meiri hluta í þeim nefndum, sem fóru með verðlagsvaldið. Rcttarrán. — Undur í lýðræðislandi. Þriðji stórviðburðurinn í þess- um málum gerðist á síðastliðnu sumri þegar ríkisstjórnin gaf út bráðabirgðalög um Búnaðarráð- ið. Sú löggjöf var svo sérstök og einstæð í allri sögu löggjafar- starfsins að kalla má undan- tekningu. Vonandi verður hún fræg að endemum en ekki upp haf og undanfari einræðis og ofbeldiskúgunar, eins og hún getur þó bent til. Landbúnaðarráðherrann tekur sér vald til þess að skipa eftir eigin geðþótta eingöngu 25 menn l Búnaðarráð og það á að kjósa úr sínum hópi 4 menn til að ákveða verðlag landbúnaðar afurða ásamt formanni sinum Kosningáfyrirkomulagið er þannig að minnihluti /áðsins er áhrifalaus um skipun nefndar- innar. Ráðherranum er því hættulaust að velja í ráðið. svona eins og til skrauts eða sýnis, nokkra menn, sem kynnu að hugsa og álykta öðruvísi en hann. Þeir fá engu ráðið, ef meirihlutihn er „vel heppnað- ur.“ Þær eipar hömlur eru lagð- ar á eindæmi ráðherrans að mennirnir verða að vera bænd- ur eða starfsmenn fyrirtækja þeirra. Svo undarlega ber nú við að talsmenn ríklsstjórnarinnar segja að þessi tilhögun sé sigur fyrir bændastéttina. Nú sé verð lagsvaldið í höndum bænda. Talsvert hefir verið rætt um mannval Péturs Magnússonar í Búnaðarráð. Er það að vonum og engin furða, þó að slík skipun \ sæti vaxandi gagnrýni. Er því og sízt að neita að í ráðinu eru ýmsir menn,sem lítið hefir gætt við félagslega forustu bænda, og gildir einu hvaða atriði er tekið. Til munu vera þar full- orðnir bændur, sem naumast eru nafnkunnir í næstu sveit og segi ég það ekki mönnunum til lasts. Eins munu þar vera þeir menn, sem erfitt er 'að hugsa sér að bændur sjálfir hefðu kosið til Dessara starfa. Hins vegar leiði ég hjá mér nánari umræður á Deim grundvelli, því að ég vil ekki leiða athyglina frá aðal- atriði þessa máls, en það er ein- veldisstefna ríkisstjórnarinnar. Venjulegir menn sjá enga tryggingu fyrir því að Pétur Magnússon verði alltaf landbún- aðarráðherra. Einar Þveræingur sagði svo forðum, að þótt sumir konungar væru góðir,væru aðrir verri og því misráðið að játast undir vald þeirra. Sú skoðun hefir löngum verið mikilsmetin hjá íslendingum. Hygg ég að bændum þyki ekki betra að búa undir einveldi ráðherra en kon- unga. Eins munu aðrar stéttir lítið gleðjast yfir því fordæmi, sem hér er skapað. Hygg ég að verkalýður þessa lands myndi litlu þakka hlutdeild sinna ráð- herra í þessu tiltæki, ef það skyldi eftir fylgja að einhver félagsmálaráðherra, — við skul- um segja Eggert Ciaessen — skipaði einhverntíma verka- málaráð til þess að ákveða launakjör í landinu. Nú segja sumir stjórnarliðar að lögleg stéttarsamtök bænda séu engin til, því að þar sé ágreiningur um formið. Þeir vita þó að innan Alþýðusambandsins hefir löng' um verið meiri og minni ágrein- ingur um form og stundum heitar og harðsnúnar deilur Eins er um' landssamband út- vegsmanna og fleiri samtök. Ef fulltrúar verkalýðsins á Alþingi taka nú undir rökvillur Péturs Magnússonar og Jóns Pálma sonar um það að stéttarsamband bænda sé að engu hafandi vegna innbyrðiságreinings um formsatriði, þá eru þeir þar með að leggja til forsendur þess dóms, sem dæmir Alþýðusam- band íslands og flest önnur stéttarsamtök úr leik. Og eins mega atvinnurekendur gæta þess, að nú er um það að ræða hvort Alþingi eigi að viður- kenna og lögfesta fordæmi þess, að atvinnumálaráðherra eins og Áki Jakobsson eigi einn að skipa fulltrúa fyrir þá til að ráða málum stéttarinnar. Þetta mál, sem nú liggur fyrir Alþingi, er prófmál. Aðalatriðið er það, hvort menn sætta sig við það, að stétt þeirra afsali sér kosningarrétti sínum í hend- ur ráðherrans, sem þá og þá fer með málefni hennar. Þó er hér ekki um að ræða neitt sjálf- rátt afsal, heldur einungis það að ríkisstjórnin Jtekur sér ein veldi að þessu leyti. Slíkt minn ir á þá tíma, er þjóðhöfðingjar töldu sig hafa þegið vald sitt beint frá guði sínum og eiga að standa honum einum reiknings skap gerða sinna. Enginn sann ur-lýðræðismaður má eða get ur lagt blessun sína og sam þykki yfir svona einræðiskennt gerræði. Sem betur fér bendir ýmislegt á það, að stjórnarliðum sjálfum finnist þetta tiltæki sitt óverj andi. Landbúnaðarráðherrann hefir sjálfur sagt, að sér hefði verið ljúfast að veita stéttar- samtökum bænda þetta vald, ef aau hefðu verið til. Hvers vegna fékk hann þá ekki Búnaðarþingi jetta vald? Það er þó kosið af bændastétt landsins eingöngu. Ekki er hægt að deila um það, að þar séu fulltrúar stéttarinn- ar. Eins hefði verið hægt að láta fyrirtæki bænda, þau, sem veita starfsmönnum sinum rétt til „kjörgengis" í Búnaðarráð, eiga hlut að þvi að velja þessa menn. í þriðja lagi var hægt að láta bændur kjósa Búnaðarráð- ið i sumar. Hér lágu opnar fyrir að minnsta kosti þrjár leiðir til sess að ráðstafa verðlagsvald- inu í hendur bændastétt- arinnar á lýðræðislegan hátt til bráðabirgða. Engin af þeim var farin. Og það er fullljóst hvers vegna það var. Pétur Magnús son og Jón Pálmason hafa skýrt aað atriði. Fyrsta krafa þeirra var sú, að þetta vald væri í höndum manna, sem ekki væru á móti ríkisstjórninni. Það liggur því ljóst fyrir, að hér er spurt um það, hvoít menn vilji einskorða rétt stéttarsam- taka til að velja sér forsvars- menn við það, að fyrir valinu verði stjórnarliðar. Sú stétt, sem er á móti stjórninni, á að missa mannréttindi sín. Þetta mininr óþægilega á stjórnarfar þeirra landa, þar sem framboðsréttur er bundinn við stjórnarflokk- ana eina. Mörgum fleirum en mér mun vera nauðugt að trúa dví, að slíkt skrípalýðræði eigi meirihlutafylgi að fagna á Al- þingi. Ég fullyrði, að það er í vesölum minnihluta meðal ís- lendinga. Hér hefir nú verið bent á hina réttarlegu hlið þessa máls, og það freklega brot, sem fram- ið er á öllum mannasiðum lýð- ræðislanda. Jafnframt er svo vert að gefa gaum að því, að svona stjórnarfar er mjög ólík- legt til að blessast í framkvæmd. Einn ráðherra myndi velja menn, sem gerðu einstrengings- legar og óbilgjamar kröfur fyrir stétt sína. Annar veldi hins veg- ar menn, sem yrðu sannnefndir stéttarböðlar eða stéttarkvisl- ingar. Þannig myndi þessi til- högun, ef hún ætti sér fram- tið, færa í stéttarbaráttuna meira óhóf og öfga en enn er dæmi til hér á landi. Af þeim sökum er þetta líka fordæman- leg tilhögun og óþolandi. i Fjárhagshliðin. Þessu næst vil ég fara nokkr- um orðum um verðlagsákvæði hinnar nýju nefndar: „Bænda- stéttar Péturs Magnússonar“ eða „Sovétráðs landbúnaðar- ins“. Svo undarlega vill til, að þessi nefnd víkur frá sexmanna- nefndar-grundvellinum án þess að líta svo á, að hann sé órétt- mætur. Virðist þó svo, sem ann- að hvort hefði verið, að ætla bændum afurðaverð á þeim grundvelli, eða færa rök að því, að annar grundvöllur væri rétt- ari til að byggja á. Hér er grund- völlurinn hins vegar viður- kenndur og þvi jafnframt slegið föstu að bændur verði að sætta sig við lægri árstekjur og verri afkomu en verkamenn og sjó- menn. Undarlegt er það, að menn eins og Sveinn á Egils- stöðum, sem í fyrra voru mjög á móti því, að bændur slægju af fyllstu verðkröfum í trausti þess, að aðrir færu að dæmi þeirra og dýrtíðin yrði stöðvuð, skuli nú beita sér fyrir slíkum afslætti, þegar fullvíst er að engum öðr- um er slíkt i huga. En sleppum því. Athugum heldur hvaða kröfur séu réttmætar. Vefðbólgan í landinu og fjár- málastjórn síðustu ára veldur því, að drjúgur hluti þess verðs, sem neytendur greiða fyrir af- urðir bænda í búðunum, kemst aldrei heim til framleiðendans. Það lætur nærri að þriðjungur af smásöluvwjði á kjöti sé kostnaður, sem á þáð leggst eft- ir að bændur skila fénu á slát- urstað, eða samkvæmt útreikn- ingi og áætlun Guðmundár (Framhald á 6. síSu) Ljóðabækur — aldarfarslýsing Bókaútgáfa Pálma H. Jóns- sonar á Akureyri hefir nýlega sent frá sér allmargar bækur, skáldsögur, ljóðabækur og ald- arfarslýsingar og sagnahefti. Vergur sumra þessara bóka getið hér í stuttu máli. Ný ljóðabók eftir Steindór Signrðsson. Fyrst skal nefnd ný ljóðabók eftir Steindór Sigurðsson, Man- söngvar og minningar. Hefst hún á kvæðaflokki, ^samnefnd- um bókinni. Síðan eru ellefu smákvæði og tveir allstórir flokkar, og er annar Óður eins dags, kvæði, sem Steíndór orti i tilefni lýðveldisstofnunarinnar. Eru í þessari bók mörg ágæt kvæði, sem auka drjúgum skáld- hróður höfundarins. Nokkrar lausavísur eru einnig í bókinni, flestar ágætar. Leyfir blaðið sér að láta fljóta með tvær vísur úr bókinni. ! \ Með hástrengdum seglum ég hélt eitt sinn á hafið í drottins nafni. Nú sigli ég meðfram Köldukinn með kolbláan sjó fyrir stafni. Og hin: Bláum klæðum kvöld sig bjó. Kular um hæðadrögin. Meðan blæðir i sól og sjó syng ég kvæðalögin. Öll ber bókin vitni um skáld- legt flug og orðgnótt manns, sem í margt hefir ratað og margan sjóinn á sig tekið. í henni er meira af sönnum skáld- skap en ýmsum öðrum, sem stærri eru og gylltari í sniðum. Ný ljóðabók 1 eftir Kristján frá Djúpalæk. Önnur ljóðabók varð sámferða bók Steindórs í 'bókabúðirnar. Er hún eftir Kristján Einarsson frá Djúpalæk og nefnist Villtur vegar. Þetta er önnur ljóðabók Kristjáns. Hét hin fyrri Frá nyrztu ströndum og kom út 1943. ‘ Hlaut hún yfirleitt lofsamlega dóma, þótt vankantar þættu á henni. Kvæðin í þessari nýju bók eru einnig létt og lipurlega ort og mun betur fáguð en fyrri kvæði hans. Hafurskinna. Þá er komið annað h^fti af Hafurskinnu, safni kvæða frá fyrri öldum, er Konráð Vil- hjálmsson býr undir prentun. í þessu hefti eru sex kvæði eða drápur. Eru þau eftir séra Jón Guðmundsson í Stærra-Árskógi (uppi seint á 17. öld), Hreggvið Eiríksson (sjóhrakningsrlmur . ortar 1818), Sigurð Jónsson skálda á Kollslæk, séra Magnús Einarsson á Tjörn í Svarfaðar- dal (uppi seint á 18. öld) og Guðmund Bergþórsson. Loks er eitt kvæði eftir óþekktan höf. Þetta safn er hið skemmtileg- asta og merkasta, og er ætlun útgefanda að áframhald verði á þessari útgáfu. Er það vel far- iði Kvæði þessi hafa fram að þessu verið almenningi hulinn fjársjóður og fæstir haft hug- mynd um, að þau væru til. Má margvíslegan fróðleik sækja í þau um líf þjóðarinnar, auk þess sem þau varpa ljósi yfir hugsunarhátt og skáldmennt þjóðarinnar á fyrri tímum. Skuggsjá, íslenzkar aldarfars- lýsingar og sagnaþættir. Loks skal hér getið þriðja heftis Skuggsjár. Er með þvi lokið fyrsta bindi þessa safns. Meginefni bindisins eru end- urminningar Kristjáns Á. Bene- diktssonar, að mestu leyti frá (Framhald á 6. síOu) PETER PETERSEN': Gy ðingaof sóknir nar 1 Fjögurra daga á styrjaldarárunum minnast Danir með mestum sársauka: Hins 9. apríl 1940, 29. ágúst 1943, 19. september 1943 og 2. október 1943. — 9. april var innrásardagurinn, 29. ágúst var herinn leystur upp og margir helztu menn þjóðarinnar fang- elsaðir, 19. september var lögreglan tekin höndum og send í fangabúðir í Þýzkalandi og 2. október hófust Gyðingaofsókn- irnar í Danmörku. Verður hér greint frá þeim, samkvæmt frá- sögn, sem birtist í Berlingske Tidende i september í haust. Höf- undur greinarinnar er blaðamaðurinn Peter Petersen. Einhugur dönsku þjóðarinnar kom í veg fyrir það, að Gyðinga- ofsóknirnar næðu til eins margra og Þjóðverjar höfðu fyr- irhugað. Af þeim nálega sex þúsund mönnum, sem voru Gyð- ingar að hálfu eða öllu leyti og heima áttu i Danmörku um þessar mundir, náði þýzka lög- reglan aðeins í sjö hundrúð. Hinum tókst að komast undan til Svíþjóðar, þar sem þeim var vel og vingjarnlega tekið, ásamt fjölmörgum öðrum dönskum flóttamönnum. Rándýrið brýnir klærnar. Allt frá þvi að Danmörkvvar hernumin hafði orðrómur geng- Gyðingum væri í vændum. Öll- um var kunnugt um það, hvern- ig norskir þegnar af Gyðinga- ættum höfðu verið leiknir, og frá Hollandi og Belgíu var sömu sögu að segja, svo að ekki væri minrizt á Pólland. Hvernig var þá hægt að gera sér í hugarlund, að Dönum yrði hlíft? Framan af hernáminu var þó ekki að- hafzt neitt, og var sú vægð skýrð með þeirri séístöðu, sem Dan- mörk naut meðal hertekinna landa. En eftir 29. ágúst 1943 varð flestum ljóst, að nú var þess skammt að bíða, að Gyð- ingaofsóknir hæfust. Að vísu höfðu háttsettir Þjóð- verjar í Danmörku margsinnis ið um það, að ofsókn á hendur lýst yfir því, að alls ekki myndi koma til neinna Gyðingaofsókna þar. Slíkar yfirlýsingar voru meira að segja gefnarí í septem- bermánuði þetta ár. En Danir höfðu á hinn bóginn kynnzt gildi þýekra loforða nógu vel til þess að treysta þeim ekki of mikið. Mönnum, sem höfðu að- stöðu til þess að fyjgjast dálítiö með því, sem gerðist meðal Þjóðverja, var einnig ljóst, að eitthvað nýtt var á seyði. f lok septembermánaðar var margt þýzkra lögreglumanna komið til Danmerkur, auk nýrra sveita Gestapomanna, og hinn 29. september kom þáverandi yfirmaður þýzku lögreglunnar í Danmörku, Kannstein, aftur til Kaupmannahafnar úr ferð til Berlínar. Var sagt, að hann hefði komið með leynilegar fyr- irskipanir. Gaus nú orðrómur- inn um væntanlegar Gyðinga- ofsóknir upp á nýjan leik. , Kvíði Gyðinganna sjálfra jókst um allan helming. Margir voru þegar flúnir til Svíþjóðar, og nú fóru enijþá fleiri að þeirra dæmi, en hinir, sem sátu kyrrir, bjuggu sig’ undir það að flýja. Nokkrir voru teknir fastir við flóttatilraunir, bæði af Þjóð- verjum og dönskum lögreglu- mönnum, en enn sem komið var, voru þó allir slíkir flóttamenn fengnir í hendur dönskum yfir- völdum, sem létu þá lausa og höfðu hönd I bagga um það, að þeir kæmust á örugga staði. Ógnirnar dynja yfir. Árásin á Gyðingana hófst seint á föstudagskvöldið 1. okt. Um níuleytið höfðu Kaupmanna hafnSrbúar orðið þess áskynja, að eitthvað illt var í aðsigi, því að símanum hafði verið lokað fyrirvaralaust, og var hann ekki opnaúur aftur,fyrr en klukkan rúmlega eitt um nóttina. Hóf- ust nú þær óhugnanlegustu mannaveiðar, sem vonandi er, að Danir komist nokkurn tíma í kynni við. Vegna ráðstafana þeirra, sem gerðar höfðu verið 29. ágúst og ekki voru numdar úr gildi, voru aðeins fáir Kaupmannahafnar- búar vitni að þeim átakanlegu atburðum, sem áttu sér stað á götum borgarinnar, er þýzkir hermenn drógu þögla og þung- búna menn, kveinandi konur og grátandi börn út úr húsum sín- um með hjálp danskra nazista og tróðu þeim inn í vagna sína og óku á brott út í myrkrið og óvissuna. Víða þar, sem fólkinu hafði heppnast að flýja i tæka tíð, voru íbúðirnar brotnar upp, allt tætt og rifið og innanstokks- munir mölbrotnir. Ekki ósjaldan áttu sér stað hrein og bein rán, einkum þar sem danskir leið- sögumenn höfðu verið í fylgd með Þjóðverjunum. Hitt skal þó viðurkennt, að sums staðar, þar sem Þjóðverjar höfðu veríð einir að verki, var ekki snert við neinu, ef hringingum var ekki anzað, og yfirleitt kom greini- lega fram, að ýmsir Þjóðverj- anna framfylgdu þessari herför á hendur Gyðingum heldur lin- lega, enda var sagt, að dr. Best og margir aðrir þýzkir leiðtogar í Danmörku hefðu verið þessum ráðstöfunum andvígir og ekki

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.