Tíminn - 30.10.1945, Side 7
ezh
82. blað
.T
\1V, liriðjinlaginn 30. okt. 1945
7
Sjóður til styrktar
fátækum ekkjum
Bókamenn! Bókamenn!
Ennþá gefst ySfur Uostnr á uð eignast eftirtaldar árvalsbœUur:
Síðastl. fimmtudag boðaði stjórn Eltknasjóðs íslands blaða-
menn á fund sinn og skýrði þeim frá stofnun og tilgangi sjóðs-
ins, sem er sá, að styrkja fátækar ekkjur, er misst hafa fyrir-
vinnu sína og barna sinna, af slysförum, eða á annan hátt. Bisk-
upinn yfir íslandi, herra Sigurgeir Sigurðsson, sem er formað-
úr sjóðsstjórnarinnar, hafði orð fyrir stjórninni, sem skipuð er
auk hans Jóhanni Sæmundssyni lækni og Ingu Lárusdóttur.
Þann 21. janúar 1943 lagði
kona, sem ekki vill láta nafns
síns getið, fram 1000.00 krónur
að gjöf til sjóðsstofnunar. Sjóð-
urinn skyldi bera nafnið Ekkna-
sjóður íslands.
Sjóðurinn er stofnaður af
sjómannskonu og þetta þúsund
króna íramlag var hluti af á-
hættuþóknun manns hennar.
í skipulagsskrá sjóðsins er
svo kveðið á, að honum skuli
stjórnað af biskupi íslands, yf-
irlækninum við Trygginga-
stofnun ríkisins og einni konu,
tilnefndri af þeim, og hefir frk.
Inga Lárusdóttir tekið við til-
nefningu í stjórnina.
Takmark sjóðsins er að styrkja
fátækar ekkjur á íslandi til að
halda heimilum sínum og ala
upp börn sín, einnig þær, er
mennirnir hafa yfirgefið, ‘án
þess að þær eigi sök á.
í skipulagsskránni er mælt
svo fyrir, að eigi megi veita fé
úr sjóðnum fyrr en höfuðstóll
hans er orðinn 100 þúsund krón-
ur, og. aldrei þó meira fé en
árlegum vöxtum nemur.
Ennfremur er svo kveðið á,
að verði eigi þörf á að styrkja
ekkjur, vegna þess að fyrirhug-
uð ekknatrygging ríkisins verði
svo rífleg að hún nægi, skuli
fé sjóðsins varið til mannúðar-
mála og líknarstarfsemi í sem
beztu samræmi við upprunaleg-
an tilgang gefándans og skipu-
lagsskrána.
Skipulagsskrá sjóðsins var
útgefin af dómsmálaráðherra
21. janúar 1944. og birt í stjórn-
artíðindum það ár (A. 3, B. 4,
bls. 57—58).
Mjög hljótt hefir verlð um
sjóðsstofnun þessa og hefir
hann því lítið vaxið. Sjóðseign-
in er nú um 1500 krónur.
Stjórn sjóðsins hefir álitið
rétt að vekja nú athygli al-
mennings á honum, með því að
fæstum mun kunnugt um, að
hann sé til. Oft hefir þvi verið
hreyft, að stofna bæri einn alls-
herjar liknarsjóð, og má telja,
að þessi sjóður sé fyrsti vísir-
inn. Nú fer veturinn í hönd, og
virðist vetrarkoman tilvalið
tækifæri til að efla sjóð sem
þennan, því að margar ekkjur
eiga við þröngan kost að búa,
ekki sízt vetrarmánuðina. Einn-
ig má minna á það, að Ægir og
vetrarveðrin hafa lagt margan
sjómanninn í hina votu gröf
og svift fjölda kvenna og barna
fyrirvinnunni árlega.
Nú er hinn mikli hildarleikur
genginn um garð, og standa nú
vonir til, að mannfórnum vorum
af hans völdum geti verið lok-
ið. En ber oss þá ekki að minn-
ast ekkna og barna þeirra
manna, sem féllu?
Það var sjómannskona, sem
stofnaði þennan sjóð með hluta
af áhættuþóknun manns henn-
ar. Er næsta líklegt, að konur og
menn vilji nú feta í fótspor
hennar, er þeim er kunnugt
um fordæmið, og efli Ekkna-
sjóð íslands.
Biskupsskrifstofan veitir
framlögum viðtöku, og stjórn
sjóðsins óskar þess, að blöð og
útvarp veki athygli á honum
nú í sambandi við fyrsta dag
vetrarins. Væntir hún þess
einnig, að blöðin veiti framlög-
um til sjóðsins viðtöku nú um
vetrarkomuna.
ErLent yfirlit
(Framhald af 2. siOu)
samninga og raunhæfrar al-
þjóðasamvinnu er lokuð, eins
og stendur. Eina leiðin til að
koma í veg fyrir, að yfirgangs-
mennirnir rjúfi friðinn, er að
þeir viti, að aðrir séu þeim
sterkari. í samræmi við þetta
byggja Bandaríkj amervn sér nú
víða herstöðvar og hyggja á að
halda herskyldunni áfram. í
öllum löndum Bandamanna, sem
það megna, er líka fyrirhugaður
stóraukinn vígbúnaður, m. a.
í Noregi og Danmörku.
Marshall yfirhershöfðingi
Bandaríkj ahersins lýsti stefnu
Bandaríkjanna nýlega á þessa
leið:
„Við höfum fram að þessu
reynt að vinna að friðnum með
því að hafa sjálfir lítinn herbún-
að. Þannig höfum við ætlað að
gefa gott fordæmi. ÞeSsi stefna
hefir brugðizt okkur hrapallega
og hefir kostað okkur hvað eftir
annað miljónir í mannslífum og
biljónir í fjármunum.
Orsakirnar til þessa eru aug-
ljósar. Heimurinn virðir ekki
þann veika, a. m. k. ekki þeir,
sem ætla að neyta aflsmunar
til ásælni og yfirgangs.
Við verðum því, ef við ætlum
að láta von okkar um varanleg-
an frið rætast, að hafa nægan
styrk til stuðnings friðarvilj-
anum. Þeir, sem hyggja á ójöfn-
uð og yfirgang, þurfa að geta
séð það svart á hvítu, að rjúfi
þeir friðinn, gerast þeir sjálfum
sér verstir".
Það er raunasaga, að eftir hið
ægilegasta stríð skuli ekki k'om-
ast á friðsamleg sambúð þjóð-
anna, sem leiði til afvopnun-
ar og útrýmingar á stríðshætt-
unni. En það er hér, eins og oft-
ar, að ekki þarf nema einn gikk
í hverja veiðistöð. En þrátt fyrir
það, er það ofmikil bölsýni að
telja vonlaust um heimsfriðinn.
Ef yfirgangsmennirnir sjá, að
aðrir eru þeim sterkari, getur
þeim smámsaman lærzt að
vera hófsamari og sætta sig við
að hlíta settum reglum í alþjóð-
legu samstarfi. En slíkt getur
tekið tíma og kostað þolinmæði.
Næstu ár geta þvi oft orðið ugg-
vænleg, en samt er von til þess,
að friðnum verði bjargað, ef lýð-
ræðisþjóðirnar vanrækja ekki
þann viðbúnað, sem þarf til
þess að halda yfirgangsseggjum
í skefjum. Þann viðbúnað þarf
hver lýðræðisþjóð að rækja,
hvort sem hún er stór eða smá,
og taka á sig þær byrðar, sem
því eru samfara. Annars getur
hún ekki gert kröfu til þess að
verða virt af öðrum, ef hún vill
ekkert á sig leggja 1 þeim átök-
um, sem varða þó frelsi hennar
og tilveru.
En jafnframt því, sem lýðræð-
isþjóðirnar gæta þess þannig,
að verða viðbúnir, munu þeir
halda áfram með engu minna
kappi að vinna að því, að skap-
azt geti friðsamleg alþjóðasam-
vinna. Þær munu því varast að
sýna Rússum merki um nokk-
urn yfirgang;og taka fyllsta til-
lit til réttmætra hagsmuna og
óska þeirra. Með því að sýna
þannig stöðugt góðan sam-
vinnuvilja, þótt þær séu jafn-
framt víð öllu búnar, munu þær
stefna að því að skapazt geti
bróðurleg samvinna þjóðanna í
framtíðinni.
Uudlrföt,
Máttkjólar og
undirfatamótiv.
Verzl. H. Toft
Skólavörðustíg 5. Sími 1035,
Skemmti- og fræðibækur:
Sjómannasaga, Vilhj. Þ. Gíslason, skinnb........ 125.00
Minningar, Sig. Briem, skinnb.................... 85.00
Byggð og Saga, próf. Ólafur Lárusson, skinnb.... 65.00
Byron, André Maurois, skinnb..................... 85.00
Friðþjófssaga Nansens, Jón Sörensen, skinnb..... 76.00
Endurminningar um Einar Benediktsson............. 50.00
Kristín Svíadrottning, Frederick L. Dumbar, heft. .. 32.00
Stýrimannaskólinn í Reykjavík 1891—1941, heft. .. 15.00
Úr byggðum Borgarfjarðar, Kristl. Þorsteinsson, skb. 70.Ú0
Saga Eiríks Magnússonar, dr. Stefán Einarsson .... 8.00
Sindbað vprra tíma ............................. 28.00
Frekjan, Gísli Jónsson ......................... 15.00
Huganir, dr. Guðm. Finnbogason ................. 50.00
Samtíð og saga I, heft .......................... 12.00
Samtíð og saga II, heft ......................... 16.00
Þjóðsagnir:
♦
Endurminningar Jóns frá Hlíðarenda, heft........ 4.00
Frá ystu ptesjum II., Gils Guðmundsson, heft.... 18.00
ísl. sagnaþættir og þjóðsögur III,IV, V, Guðni Jónss. 12.00
Rauðskinna II, Jón Thoroddsen, ................... 6.00
---. IV, .................................. 6.00
--- V, ................................... 12.00
Sagnir og þjóðhættir Odds Oddssonar frá Eyrarb. .. 12.00
Skrítnir náungar, Hulda, innb.................... 10.00
Ujóðabækur:
Ég ýti úr vör, Bjarni M. Gíslason, ib.'......... 8.00
Úrvalsljóð, Kristján Jónsson, skinnb............. 25.00
— Jón Thoroddsen, skinnb.. 25.00
— Stephan G. Stephansson, ................. 25.00
Kertaljós, Jakobína Johnsson, skinnb............. 10.00
Kvæði II, Halla frá Laugabóli, heft ............ 5.00
Ljóðmæli, dr. Björg C. Þorláksson, innb......... 8.00
Ljóð, Guðfinna frá Hömrum sk.b.................. 10.00
Ljóðasafn I—III, Guðm. Guðmundsson, shirt....... 75.00
Ljóð og lausavísur, Þórður Einarsson, heft...... 10.00
Mánaskin, Hugrún, sk.b. ... ‘................... 10.00
Sólheimar, ljóð, Einar Páll Jónsson, ib......... 21.00
Stjörnublik, Hugrún, ib........................ 10.00
Söngvar dalastúlkunnar, Guðrún Guðmundsd........ 11.00
Blessuð sértu sveltin mín, Sig. Jónss. frá Arnarvatni, 20.00
Utan af viðavangi, Guðm. Friðjónsson, ib........ 16.00
Frumsamið:
Á förnum vegi, Stefán Jónsson, ib............... 10.50
Arfur, Ragnheiður Jónsdóttir, ib................ 12.50
Evudætur, Þórunn Magnúsdóttir, ib............... 32.00
Fólkið í Svöluhlíð, Ingunn Pálsdóttir frá Akri, ib. .. 12.00
Frá liðnum kvöldum, Jón H. Guðmundsson, ib...... 4.50
Hafið bláa, Sig. Helgason, ib................... 25.00
Heldri menn á húsgangi, Guðm. Daníelsson, ib.... 25.00
Nýjar sögur,1 Þórir Bergsson, ib................ 55.00
Samferðamenn, Jón H'. Guðmundsson, heft......... 12.00
Við sólarupprás, Hugrún, heft................... 15.00
Svart vesti við kjólinn, Sig. B. Gröndal, ib. ........ 22.00
Barnabækur:
Bókin um litlabróðir, Gustaf af Geijerstam, ib.. 12.00
Leikir og leikföng, Símon Jóh. Ágústsson........ 3.50
Mýsnar og Mylluhjólið ............................. 5.00
Sigríður Eyjafjarðarsól ........................... 5.00
Skóladagar, Stefán Jónsson ....................... 12.00
Skeljar II, Sigurbjörn Sveinsson ................. 1.25
Svarti Pétur og Sara, Hugo Fosberg.............. 10.00
Töfraheimur maurann, Wilfrid S. Bronsson ....... 15.00
Tvö ævintýri ...................................... 2.50
Duglegur drengur, Bengt Nylund.................... 12.00
Hjartarfótur, Edward S. Ellis .................... 14.00
Meðal Indíána, Falk Ytter......................... 10.00
Strokudrengurinn, Paul Askag...................... 12.50
Hve glöð er vor æska, Frímann Jónsson, ib....... 20.00
I*ýddar söyiir:
Anna Farley, Guy Fletcher ....................... 8.00
í leyniþjónustu Japana A. Vespa ...................16.00
Noregur undir oki Nazismans .................... 25.00
Spítalalíf, James Harpole ...................... 25.00
Þögul vitni, John Stephen Strange................ 10.00
Tamea, Peter B. Kyne .'........................... 12.50
í leit að lífshamingju, W. Somefset Maugham .... 10.00
Lífsgleði njóttu,'Sigrid Boo ................... 23.00
Horfin sjónarmið, James Hilton ................. 30.00
Shanghai, Vicki Baum ........................... 25.00
Dragonwick, Anya Seton ........................... 15.00
Sendum geyn póstUröfu um land allt.
isafoldarprentsmiðja h.f., Reykjavík
Sími 3048
í ða
vang l
(Framhald af 2. siðu)
lítið i móinn, en hins vegar
hefir það ekki birt neina frétt
um yfirráðafyrirætlanir Rússa
síðan Kristinn bar fram kröf-
una um eftirlitið.
Þetta er örlítið sýnishorn af
því, . hvernig ritfrelsinu yrði
háttað, ef kommúnistar ættu
eftir að komast hér til fullra
valda.
UR BÆNUM
Hjónaefni.
Trúlofun sína hafa opinberað ný-
lega ungfrú Áslaug Þórólfsdóttir frá
Borgarnesi og Ólafur Ingvarsson kenn-
aranemi frá Seyðisfirði.
Hjónaefni.
Síðastl. laugardag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú. Fjóla Bjarnadóttir
skrifstofustj. HótelXBorg og Oddbergur
Eiriksson skipasmiður, Innri-Njarðvík.
OfÍMHefiha
til innheimtumanna Tímans
Hin glæsta fyrirmynð!
Mbl. hefir tekið það hlutverk
að sér að áminna önnur blöð
um prúðmennsku 1 málflutn-
ingi og orðbragði.
Hversu vel Mbl. rækir það svo
að vera öðrum blöðum til fyrir-
myndar 1 þessum efnum, má sjá
í lítilli svargrein um Kolku
lækni, er nýlega birtist í Mbl.
Þar eru t. d. pólitískir andstæð-
ingar hans kallaðir „sjálfhælin
og illmálg skauð“, „rógsnatar“
með „öll klækimennskunnar
vopn á lofti“, enda hafi þeir „að
lífsstarfi að flytja þjóðinni róg
og lýgi“, flokkur þeirra sé hald-
inn „holgröfnum eiturkýlum“
og „hugleysið, ræflldómurinn og
skítmennskan“ séu ófrávíkjan-
legir fylginautar hans, o. s. frv.
I þessum dúr.
Já, væri það ekki til mikilla
umbóta 1 íslenzkri blaða-
mennsku, ef önnur blöð tækju
prúðmennsku og grandvarleik
Mbl. sér til fyrirmyndar!
Áskriftargjald Tímans
utan Rvíkur og Hafnarfjarðar
er kr. 30.00 árgangurlnn.
Hjónaefni.
Trúlofuri sína opinberuðu s. 1. laug-
laugardag ungfrú TJnnur Eiríksdóttir
(Hjartarsonar rafvirkja í Reykjavík)
og listmálari Örlygur Sigurðsson
(skólameistara Guðmundssonar, Ak-
ureyri).
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trúlofun sína
ungfrú Þóra Þorleifsdóttir Eyjólfsson-
ar byggingameistara og Helgi Jóhann-
esson bókari frá Svínhóli, Dalasýslu.
Sjómannablaðið Víkingur,
10. hefti þessa árs er komið út. Helztu
greinar blaðsins eru þessar: Minnis-
blað eftir Ásgeir Sigurðsson, Kvæði til
gamallar sjómannsekkju eftir Sigurð
Einarsson, Viðhorf dagsins eftir Har-
ald Böðvarsson, Magnettengsli fyrir
mótorskip, Landssamband ísl. útvegs-
manna, Réttur íslands til Grænlands
eftir Jón Dúason, Vistarverur sjó-
manna eftir Konráð Gislason. Þá eru
í blaðinu sögur, Frívaktin frá hafi til
hafnar o. fl. Enn fremur er í blaðinu
fjöldi mynda.
Þurrkaður og pressaður
SALTFISKUR
Ódýr og^góður, í stærri og
mfnni kaupum.
Hafliði Baldvinsson
Sími 1458. — Hverfisg. 123. ..
innheimtumenn Tímans, sem eUUi hafa
ennþá sent sUilagreinar fyrir þetta ár,
eru vinsamleya beðnir að gera það hið
allra tyrsta.
flVjVÐEMIA TIMAIVS.
Nemandi
Reglusamur og laghentur
unglingur getur fengið að læra
prentiðn.
Umsókn, ásamt mynd, merkt
„Nemandi", sendist blaðinu.
rVýkomið:
DÚIVBELT
LÉREFT.
H. TOFT
Skólavörðustíg 5. Simi 1035.