Tíminn - 13.11.1945, Blaðsíða 3

Tíminn - 13.11.1945, Blaðsíða 3
86. blað þriíðjndaglim 13. nóv. 1845 3 Stefán Björnsson, mjólkurbússtjóri: Olfaþyturinn út af mjólkurmálunum — skýrsla Sigurðar Péturssonar Vegna þess, hve mikið er rætt og ritað um gerlafjöldann í neyzlumjólkinni í Reykjavík um þessar mundir, þykir mér við eiga að leggja orð í belg og gefa þær skýringar á málinu, er ég veit sannastar. Að vísu verður hér aðeins fjallað um meginatriðin. Mjólkui'ranusóknir . Sigurðar Péturssonar. Hin svokallaða skýrsla Sigurð- ar Péturssonar gerlafræðings, sem kynnt hefir verið öllum landslýð undanfarna daga, er að mínum dómi óvönduð og óvís- indaleg, og alls ekki .til þess hæf að vera aðalmálgagnið í slíkum málarekstri, sem orðinn er út af henni. Þetta vil ég leyfa mér •að rökstyðja. * Tilgangurinn með rannsókn- um gerlafræðingsins virðist vera tvenns konar: 1. Að afla sér upplýsinga um gerlamagn neyzlumjólkurinnar, þegar hún er móttekin í Mjólkurstöðinni. 2. Að gera samanburð á gæðum mjólkur af samlagssvæði Mjólk- urstöðvarinnar, frá Mjólkursam- lagi Borgfirðinga og Mjólkurbúi Plóamanna. Til þess að fá sann- an árangur, bar gerlafræðingn- um skylda til að taka jafn- mörg sýnishorn af mjólk hvers aðila, jafn marga daga og um- fram allt sömu daga. Mér til stuðnings vitna ég í hinn þekkta prófessor Orla-Jensen: Mælke- bakteriologi, bls. 147, en hann segir: „Vil man sammenligne BymEjglk fra forskellige Forretn- inger, maa det selvfölgelig ske samme dag og samme Klokke- slet, og ikke saaledes, at den ene Mælkepröve indköbes om Morg- enen en kold Dag og den anden om Aftenen en varm Dag.“ Laus- leg þýðing mín: „Þegar bera á saman neyzlumjólk frá mis- munandi aðilum, verður auðvit- að að gera það sama dag og á sama tíma dags, en ekki þannig, að eitt sýnishornið sé tekið að morgni á köldum degi en annað að kvöldi' dags, þegar heitt er.“ En gerlafræðingurinn sýnir ótrúlega litla viðleitni í þessa átt. Hann tekur ekki sama sýn- ishornafjölda frá hverjum að- ila, ekki jafn marga daga og ekki sömu daga frá þeim öllutn, eins og skýrslur hans sýna, og útilokar þar með ekki þann möguleika, að forsjónin hafi verið hlutdræg í málinu og jafnvel hann sjálfur. Þegar um það er að ræða að veita almenningi sanna fræðslu um gerlafjölda neyzlumjólkur- innar þarf að taka sýnishorn af henni alla mánuði ársins, marga daga í röð í hverjum mánuði. Sigurður Pétursson hefir tekið sýnishorn alltof fáa daga á ár- inu eða 4 daga alls af mjólk frá Mjólkursamlagi Borgfirðinga, 13 daga alls frá Mjólkurbúi Flóa- manna og 17 daga alls af mjólk af samlagssvæði Mjólkurstöðv- arinnar. Alla þessa daga velur Sigurður að sumrinu, þegar mjólkin er verst, sökum hita. Hann vekur ekki athygli á þess- ari staðreynd í greinargerð fyr- ir skýrslu sinni, og hlýtur því almenningur að halda, að það hermdarástand, sem skýrslan túlkar, sé einnlig fyxir hendi þann tímann, sem veðráttan er köld. Til þess að ákveða gerlafjöld- ann í mjólkinni notar Sigurður bláprófun (reduktase-prófun) og gerlatalningu á plötum við rannsókn sömu mjólkur. Þessar tvær rannsóknaraðferðir eiga að gefa sambærilegan árangur, en þær gera það ekki hjá Sig- urði. Bláprófunin er notuð til að skipa mjólkinni í flokka þannig: 1. fl. mjólk inniheldur minna en i/2 milj. gerla i cm3. 2. fl. mjólk inniheldur frá y2 —4 milj. gerla í cm3. 3. fl. mjólk inniheldur frá 4 —20 milj. gerla í cm3. 4. fl. mjólk inniheldur meira en 20 milj. gerla í cm3. Þessi prófun gefur beztan árangur, þegar hún er notuð við rannsókn blandaðrar mjólk- ur, þ. e. samanhelltrar mjólkur úr lnörgum kúm, en það var ein- mitt þess konar mjólk,- sem gerlafræðingurinn rannsakagi. Lítum svo á niðurstöður þær, sem hann fær: Sýnishorn nr. 2 4. fl. mjólk gerlafjöldi 5.500.000 í cm3. Sýnishorn nr. 3 4. fl. mjólk gerlafjöldi l.500.000 í cm3. Sýnishorn nr. 14 3 fl. mjólk gerlafjöldi 1.100.000 í cm3. Sýnishorn nr. 4 3. fl. mjólk gerlafjöldi 70.000 í cm3. Sýnishorn nr. 5 3. fl. mjólk gerlafjöldi 20.000 í cm3. Sýnishorn nr. 47 2. fl. mjólk gerláfjöldi 50.000 í cm3. Sýnishorn nr. 74 4. fl. mjólk gerlafjöldi 1.000.000 í cm3. Sýnishorn nr. 60 3. fl. mjólk gerlafjöldi 12.000.000 i cm3. Þessi dæmi eru aðeins lítið sýnishorn af ósamræminu í þessum rannsóknum Sigurðar. En hvað segir svo próf. Orla- Jensen um hæfni bláprófunar- innar? í Mælkebakteriologi hans stendur á bls. 143: „men ikke desto mindre viser de talrige Undersögelser af Blandings- mælk, saaledes som den nu engang forekommer i Praxis, at Mælkens Affaroningstid giver et ligesaa godt Udtryk for dens Kimtal, som den omstændelige og med ikke færre Fejlkilder beheftede Pladetælling.“ Laus- leg þýðing mín: „en engu að síður sýna þó hinar mörgu rann- sóknir á blandaðri mjólk, en þannig er mjólkin jafnan, að aflitunartími mjólkurinnar gef- ur eins góðar upplýsingar um gerlatölu hennar og hin erfiða og engu síður brigðula gerla- talning af plötum." Ég vil ennfremur leyfa mér að benda á bókina The Care and Handling of Milk, eftir prófessor Harold Coss, útg. 1939. Á bls. 71 skýrir hann frá rannsóknum, sem H. C. Troy frá Cornell gerði á blandaðri mjólk á mjög mörg- um mjólkurbúum í Bandaríkj- unum. Troy ber saman árangur bláprófs-rannsókna og plötu- talninga í sömu mjólk og finn- ur nærri undantekningarlaust mjög greinilegt samræmi. Ef menn vilja fræðast meira um þetta efni, get ég einnig visað á Journal of Dairi Science, hefti 5, bls. 438. Hvað mundu nú fræðimenn á borð við þá, sem ég hefi vitn- að í hér að framan, segja um rannsóknir Sigurðar Péturs- sonar? Til samanburðar við gerla- fjöldann mælir gerlafræðingur- inn sýrustig mjólkurinnar. í mörg skipti er sýrustigið eðli- legt eða 17—18 stig, mjög oft er það lægra en eðlilegt er, eða allt niður 1 13 stig, en aðeins í mjög fáum tilfellum lítið eitt of hátt og í eitt einasta skipti (prófun no. 11 frá Vífilsstöð- um, 22.5 stig) er það svo hátt, að um töluverða súrnun er að ræða. Það væri fróðlegt að sjá eða heyra það skýrt, hvers vegna ógerilsneydd mjólk, sem aldrei hefir verið djúpkæld, en sem inniheldur tugi milljóna af gerlum og orðin er klukku- stunda- eða jafnvel dægragöm- ul, er ækki farin að sýrna, svo að vel sé mælanlegt. Pétur Sigurðsson mjólkur- stöðvarstjóri hefir sent blöðum til birtingar vottfest afrit af rannsóknum Sigurðar Péturs- sonar á gerilsneyddri mjólk frá Mjólkurstöðinni í sumar. Þessi skýrsla inniheldur mikinn fróð- leik. Hún sýnir m. a., að Sig- urður notar fosfatase-prófun- ina til að ákvarða, hvort mjólk- in hefir verið hituð nægilega mikið. í svari sínu við athuga- semdum Péturs mjólkurstöðv- arstjóra, við skýrslu hans, seg- ist Sigurður hafa tekið 116 sýn- ishorn af gerilsneyddri mjólk og hafi 11 þeirra ekki verið nægilega hituð, og dæmir svo mjólkina gallaða þessa daga. Það lítur ekki út fyrir, að gerla- fræðingurinn viti, að fosfatase- prófun er ónákvæm, þegar um er að ræða stassaniseraða mjólk, sem gerilsneydd er í þinni svo- kölluðu „nýrri gerð“ stassano- véla og einnig í vélum af nýj- ustu, stuttu gerðinni. Vélin í Mjólkurstöðinni er af nýrri gerðinni, og ónákvæmni fosfat- Það er 1. marz 1945] Dyrabjöllunni er hringt harkalega árla morguns. Ég var ekki komiinn á fætur. Þungt fótatak heyrist inni í dagstof- unni, og húsfreyjan stingur höfðinu inn í gættina. — Tveir einkennisbúnir menn vilja tala við yður. Það er áríð- andi, að þér flýtið yður, segja þeir. Þetta minnir mig á heimsókn leynilögreglunnar árið 1941, og mig langar ekkert til þess að láta draga mig í annað sinn niður i bækistöðvar hennar við Prins Albrechts Strasse. En í þetta skipti voru morgun- gestir mínir ekki úr leynilög- reglunni. Þetta voru sendimenn frá herforingjaráðinu. Annar aseprófunar er í því íólgin, að hún gefur oft neikvæða niður- stöðu, enda þótt mjólkin sé nægilega hituð. í Danmörku er þessi prófun því ekki talin not- hæf til rannsókna á stassaniser- aðri mjólk. Þessi síðast nefnda skýrsla sýnir, að Sigurður hefir oft tekið sýnishorn af gerilsneyddu mjólkinni fyrir Mjólkursamsöl- una og talið hana óaðfinnan- lega sama daginn, sem hann rannsakar hráu mjólkina og telur hana ónothæfa. M. ö. o. Sigurður Pétursson rannsakar gerilsneyddu mjólkina sem Iaunaður og ábyrgur starfsmað- ur Mjólkursamsölunnar, gefur henni skýrslu og telur mjólkina óaðfinnanlega. Sama daginn rannsakar hann hráu mjólkina í umboði héraðslæknisins 1 Reykjavík, gefur honum skýrslu og telur mjólkina ónothæfá og ástand hennar óviðunandi. Og ennfremur: Við rannsókn- ir sínar á gerilsneyddu mjólk- inni í sumar finnur Sigurður einatt fremur lága gerlatölu í mjólkinni. Langhæsta gerla- tala, sem hann finnur, er 33.000 í ccm. Þetta er lág tala, og má miða við það, að reglugerð sú, um mjólk og mjólkurvörur, sem nú er í ráði að setja og búið er að semja, leyfir 100.000 gerla í ccm. gerilsneyddrar mjólkur. í svari til Péturs Sigurðssonar viðurkennir Sigurður Pétursson, að gerilsneyðing Mjólkurstöðv- arinnar drepi ca. 99% af gerlum mjólkurinnar, og er það mjög góður árangur. Nú getur hver og einn sett upp dæmi og reiknað: Versta gerilsneydda mjólkin, sem Sig- urður prófar í sumar, inniheld- ur 33.000 gerla í ccm. Hann við- urkennir að þetta sé ca. 1% af gerlafjölda þeim, sem fannst í hráu mjólkinni. M. ö. o.: Versta er liðsforingi, hinn boðliði með þykkan skjalabunka undir hend- inni. Liðsforinginn setur upp strangan og hátíðlegan svip og segir: — Eruð þér 1 einhverjum tengslum við danska þjóðernis- minnihlutann í Suður-Slésvík? — Jú, rétt er það. Ég er trún- aðarmaður danska þjóðernis- brotsins hér í Berlín. — Við komum í alvarlegum erindagerðum. Þekkið þér danska Slésvíkinginn „X“? — Jú, ég þekki bæði hann og fólk hans. — Vitið þér, að „X“ hefir strokið úr herdeild sinni?! — Mér er ekki ókunnugt um það. — Þér hafið sézt I fylgd með hráa mjólkin, sem Mjólkurstöff- in tók á móti í sumar, hefir samkvæmt þessu innihaldiff 3.- 300.000 gerla í ccm. og veriff, samkvæmt réttri túlkun blá- prófunar, í öffrum flokki. Hver botnar nú I þessum glundroða? Ef það er svona vísinda- mennska, sem á 1 framtíðinni að þróast á sviði mjólkuríðnaðar- ins, í skjóli hins opinbera, sé ég ekki, að mjólkurbúin hafi annað að gera en að senda skýrslur Sigurðar Péturssonar til erlendra vísindastofnana og fá þær dæmdar þar, og óska svo með góðum rökum eftir því að fá að vera laus við vísinda- mennskuna. Ástaud mjólkurlimar. Enda þótt skýrsla Sigurðar Péturssonar gefi engar áreiðan- legar upplýsingar um ástand neyzlumjólkurinnar, ber að játa, að hún er töluvert gölluð með köflum.Það er ekkert undarlegt, og mjólkin er að mínum dómi ekki hótinu verri en svo mý- margt, sem þe§si þjóð sættir sig við, og stendur til bóta — von- andi bráðra bóta. Mjólkurmál- ið er þénugt mál fyrir kosning- ar og í hvers konar stjórnmála- baráttu. Þess-vegna ber það svo oft á góma og þess vegna er það á döfinni núna, en ekki sökum þess, að Sigurður Pétursson hafi uppgötvað eitthvað, sem kom öllum á óvart. Mjólkuriðnaðurinn er ung iðn- grein hér. Hann hefst rétt fyrir og um 1930. Þá eru fyrstu mjólk- urbúin byggð, öll lítil, sem eðli- legt var, og gölluð á ýmsan hátt, sökum skorts á reynslu. Hann er því ekki sambærilegur við erlendan mjólkuriðnað, t. d. danskan, sem var hafinn árið 1880. í flestum löndum eru til honum í Kaupmannahöfn. — Það getur átt sér stað. En það hefir þá verið í febrúar 1944. Ég hef ekká komið ^til Kaupmannahafnar siðan. — Það var«í febrúar 1944. Þið komuð inn í stórt vöruhús. Viss- uð þér um fyrirætlanir hans? — Ég veit ekkert um neinar sérlegar fyrirætlanir hans. — Grunar yður, hvert hann muni hafa farið? — Frá Kaupmannahöfn er í rauninni ekki hægt að komast nema eina leið. — Yfir til Svíþjóðar? — Eruð þér ekki á sam.a máli? — Gerið þér yður ljóst, að þetta getur haft mjög alvarlegar afleiðingar? Þessa ógnun hafði ég heyrt nokkrum sinnum áður í öðru sambandi. Boðliðinn byrjar að hripa eitthvað niður hjá sér. Ég legg úrklippusafn úr Flens- borg Avis á borð fyrir framan liðsforingjann. Þetta erú öll þau suður-slésvísku hermannabréf, sem birzt hafa í blaðinu síðan 1939. Hundruð ungra danskra Suð- ur-Slésvíkurbúa hafa ár eftir ár innt af höndum skyldu sina í þýzka hernum. Hátt á annað hundrað hafa fallið. Danski þjóðernisminnhlutinn hefir allt- af haldið fast við fyllsta hlut- leysi. Þetta getur herforingja- ráðið sannfært sig um, ef upp- lýsinga er leitað hjá stjórnar- miðstöð þj óðernisminnihluta, Rosenberg, útbreiðslumálaráðu- neytinu og ýmsum öðrum yfir- völdum I Berlín. Er sanngjarnt, vélsmiðjur, sem framMða margt eða allt það nauðsynleg- asta, sem þessi iðnaður þarfn- ast, og þar eru til sannar vís- indastofnanir, sem styðja hann með ráðum og dáð. Hér er ekk- ert slíkt til. Ending mjólkurvéla miðast við ca. 10 ár. í striðsþyrjun eða árið 1939 var þvi kominn sá tími að endurnýja þurfti vélar af eðlilegum ástæðum og þó miklu fremur sökum þess, að þær voru orðnar of afkastalitl- ar, þar eð ört hafði aukizt mj ólkurmagnið, sem mjólkurbú- in þurftu að taka á móti, enda var þá verið að undirbúa end- urbætur á þessu. Það er staðreynd, að þegar styrjöldin rauf sambönd okkar við Norðurlöndin, höfðu mjólk- urbúin hér sunnanlands allt of afkastalitlar vélar og sumar þeirra voru mjög lélegar. Mjólk- ursamlagið á Akureyri var þá nýtt og vel búið að vélum, og hafði því öll skilyrði til að standa sig betur. Varahluti og annað tll viðhalds gömlu vélun- um var ekki hægt að fá, þar eð verksmiðjur þær, er framleiða þetta, eru í Danmörku. Mjólk- urbúin hér syðra hafa því átt við að búa tilfinnanlegan skort á nauðsynjum öll stríðsárin, en þó hafa þau orðið að bæta við sig mjög miklu mjólkurmagni, vegna hinnár öru þróunar, sem styrjöldin orsakaði hér. Hver maður ætti að geta skilið, að það er því alls ekki von, að vörur mjólkurbúanna séu allar fyrsta flokks. En hér kemur margt til greina. Framleiðslusvæði Reykjavíkur er orðið stórt. Borgin er orðin stór og þarfnast mikils. Fjöll og hrjósturlönd eru í nágrenni hennar, en sveitir fremur strjálbýlar. Það þarf að flytja mikinn hluta mjólkurinnar að það skuli látið bitna á sak- lausu fólki, að fáeinir unglingar strjúka úr herþjónustu? Ekki er allri þýzku þjóðinni hegnt, þótt einn og einn þýzkur piltur gerist sekur um skemmdarverk. — Það verður að gera allt, sem hægt er, til að hafa hendur í hári skemmdarverkamanna og svikara, hvort sem þeir eru i hernum eða annars staðar. — Auðvitað. — Vitið þér, hvar „X“ er nið- urkominn í Svíþjóð? — Nei — það hef ég enga hugmynd um. — Þá er okkar erindi lokið að sinni, boðliði, sagði liðsfor- inginn. í gær fékk ég bréf frá ungum, dönskum Flensborgarbúa, sem gegnir herþjónustu í einni her- deild Þjóðverja í Danmörku. Hann gefur l skyn, að hann hyggi á flótta. í svarbréfi mínu til hans segi ég honum frá morgunheimsókn- inni og erindi komumanna. Það kemur ekki að sök, jafnvel þótt hinir þýzku ritskoðunarmenn opni það. Sjálfur verður hinn ungi Dani að ráða í, hvað ég er að fara. Síðan verður hann að ráða við sig, hvað gera skuli. Stríðið er senn búið. Dönsku fólki í Suður-Slésvík er búin bráð hætta af flóttatilraunum hermanna þaðan. Á hinn bóg- inn er svo sú sálarkvöl, sem ungur Slésvíkur-Dani, er gegna verður herþjónustu í liði óvina sinna, hlýtur að þola. * 2. marz er runninn upp. (Framhald á 6. slðu) Jacob Kronika: Dagbókarblöð fra Berlín Hér birtast nokkur dagbókarblöff dansks blaffamanns, Jacobs Kronika ritstjóra, er dvaldi í Berlín um þaff leyti, sem varnir Þjóffverja voru aff bresta. Ýmislegt í þessum dagbókarblöffum varpar ljósi yfir ástandiff í Þýzkalandi á þessum örlagaríku mánuffum, harffstjórnina, skortinn og vonleysiff á öffru leitinu, cn á hinn bóginn þrákelkni þeirra, sem sífellt börðu höfðinu viff steininn, héldu áfram aff leita uppi algenga flóttamenn og töl- uffu um fimmtíu ára styrjöld, þótt allt væri þegar tapaff.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.