Tíminn - 13.11.1945, Síða 8
Þeir, sem vilja kynna sér þjóðfélagsmál,
innlend og útlend, jpuifa áð tesa Dagskrá
8 | REYKJAVÍK
D A G S K R Á er bezta íslenzka
tímaritið um þjóðfélagsmál
13. NÓV. 1945
86. blað
r ANNÁIÆ TÍIHANS V
Þakka hjartanlega auðsýnda samúð og vináttu við
fráfall og jarðarför móður minnafr
Guðrúnar Katrínar BJarnadóttur,
HERMANN JÓNSSON.
AÐALFUNDUR
Félags ungra Framsóknarmanna í Reykjavík
Verður haldinn í Edduhúsinu uppi, Lindargötu 9A
næstkomandi miðvikudag (á morgun) og hefst hann
stundvíslega kl. 9 síðdegis.
Félagar fjölmennið!
Stjórnin.
Tækifæriskaup
fyrir hraðfrystihús eða rafveitur
24 kilówatta, 230 volta jafnstraums-rafall til sölu
Guðmundur Marteinsson.
Símar 5896 og 1929.
Manneldissýning
Kvenfélagasambands íslands í Þjóðleikhúsinu (inngangur frá
Lindargötu), er daglega opin kl. 2—10 eftir hádegi.
Stjórn Kvenfélagasambands Islands.
5. nóvember, mánudagur:
Hafnarverkfalli lokið.
%
Bretland: Nær allir hafnar-
verkamenn, sem höfðu gert
verkfall, hófu vinnu aftur. Ó-
samið var þó um kröfur þeirra.
Þeir munu hefja verkfall aftur,
ef samningar 3hafa ekki tekizt
innan mánaðar.
Kína: Chungkingstjórnin
birti skýrslu, þar sem sagt er
frá margvíslegum hryðjuverk-
um kommúnista.
Svíþjóð: Forsætisráðherrann
tilkynnti, að Svíþjóð væri fús
til þátttöku í alþjóðasamvinnu,
en myndi ekki taka þátt -í
bandalögum færri ríkja.
6. nóvember, þriðjudagur:
Ræða Molotoffs.
Rússland: Molotoff flutti ræðu
í tilefni af 28 ára afmæli bylt-
ingarinnar. Hann lýsti Rússa
andvíga bandalagi ríkjanna í
Vestur-Evrópu. Hann ásakaði
Bandamenn fyrir leyndina um
hagnýtingu atomoijkunnar, en
£vaö. Rússa samt myndi fá at-
omorkuna og margt fleira.
Finnland: Tanner, Ryti,
Rangell, Linkomies og fleiri
stjórnmálamenn handteknir og
mál höfðað gegn þeim fyrir að
eiga þátt i styrjöld gegn Rúss-
um.
Ungverjaland: Kosningar fóru
fram í Ungverjalandi. Smá-
bændaflokkurinn fékk hreinan
meirihluta. Jafnaðarmenn urðu
næst stærsti flokkurinn. Kom-
múnistar fengu minnst fylgi af
aðalflokkunum þremur.
Holland: Holleijzka stjórnin
hefir boðið Javabúum að þeir
myndi sérstakt samveldisríki
innan hollenzks ríkjasambands.
Þetta ríki öðlist smámsaman
fullt sjálfstæði.
7. nóvember, miðvikudagur:
Ræða ChurchiUs.
Bretland: Churchill flutti
ræðu um utanríkismál í brezka
þinginu. Hann kvað horfur mjög
ískyggilegar og friðurinn byggð-
ist nú einkum á því, að Banda-
ríkin tækjust á hendur forust-
una um varðveizlu hans. Hann
kvað ekki tímabært að láta
Rússa fá vitneskjuna um atom-
orkuna.
Rússland: Mikil hátíðahöld í
Moskvu vegna byltingárafmæl-
isins. Athygli vakti, að Stalin
var ekki viðstaddur og er borið
við lasleika hans.
Danmörk: Knud Kristensen
hefir tekizt á hendur að mynda
minnihlutastjórn vinstri manna.
8. nóvember, fimmtudagur:
Friðarumleitanir
bregðast.
Kína: Kommúnistar hafa
hafnað samkomulagstilboði
Chungkingstjórnarinnar. Þeir
krefjast þess, að stjórnin hafi
engan her í Norður-Kína og
Mansjúríu.
Rúmenía: Miklar óeirðir urðu
í Bukarest, er kommúnistar
Fél. Framsóknarkvenna
(Framhald af 1. síðu),
og er fúst til samvinnu við ein-
staklinga og önnur félög, sem
sýna vilja áhugamálum félags-
ins velvild og stuðning." —
Þannig hljóðar stefnuskráin.
Vonandi er, að félaginu takizt
að starfa 'samkvæmt henni í
framtíðinin og" að starfið verði
heillaríkt og ánægjulegt.
í stjórn félagsins voru kosnar
þessar konur:
Frú Ástríður Eggertsdóttir
form., frú Vigdís Steingrims-
dóttir, frú Þjóðbjörg Þórðar-
dóttir, frk. Anna S. Þórhalls-
dóttir, frú Steinunn Bjartmarz.
Framsóknarkonur í Reykja-
vík! Nú er það ykkar hlutverk
að fylkja ykkur um þetta ný-
stofnaða félag, svo að það
megi blómgast í framtíðinni og
gera nokkurt gagn í þjóðfélags-
málum.
reyndu að hindra mikinn mann-
fjölda í því að hylla Michael
konung í tilefni af afmæli hans.
Java: Brezki yfirhershöfðing-
inn tilkynnti þjóðernissinnum
í Surabaya, að þeir yrði að hafa
afhent vopn sin fyrir laugar-
dagsmorgun, ella yrðn þeir af-
vopnaðir með valdi.
Danmörk: Knud Kristensen
lauk stjórnarmyndun sinni.
Stjórnin er eingöngu skipuð
vinstri mönnum.
Bretland: Attlee upplýsti að
gefnu tilefni, að Þjóðverjar
hefðu ekki gert neinar atom-
rannsóknir á Borgundarhólmi.
9. nóvember, föstudagur:
Deilur í Frakklandi.
Frakkland: Deilur eru risnar
út af því, að kommúnistar og
jafnaðarmenn neita að kjósa de
Gaulle til að vera forseta, nema
hann undirri^i stefnuskrár
þeirra. De Gaulle hefir neitað.
Vegna þessa ágreinings hefir
forsetakjörinu verið frestað til
13. þ. m.
Bretland: Attlee lagði upp í
Ameríkuför sína. Áður en hann
fór, hélt hann ræðu, þar sem
hann skýrði frá því, að þeir Tru-
man myndu sérstaklega ræða
um kjarnorkumálið.
Indo-Kína: Óeirðir voru þar
vaxandi og hafa þjóðernissinnar
unnið ýms skemmdarverk til að
torvelda dvöl frönsku og brezku
herjanna þar.
10. nóvember, laugardagur:
Viðræðnr hefjast.
Bandaríkin: Hófst viðræðu-
fundur þeirra Trumans og Att-
lees í Washington.
Albanía: Bretar tilkynntu
bráðabirgðastjórninni þar, að
þeir myndu viðurkenna hana, ef
hún léti fara fram frjálsar kosn-
ingar.
Java: Brezki herinn hóf árás
á borgina Surabaya, þar sem
þjóðernissinnar höfðu ekki orðið
við áskoruninni um að framselja
vopn sín.
11. nóvember, sunhudagur:
Vopnahlés minnst.
í Bretlandi Bandaríkjunum,
Frakklandi og víðar var þess há-
tíðlega minnst, að þennan dag
var samið um vopnahlé og upp-
gjöf Þjóðverja 1 fyrri heims-
styrjöldinni.
Java: Bardagar geisuðu í
Surabaya. Bretar höfðu náð
þriðjungi borgariifnar á vald sitt.
Jugoslavia: Fóru fram þing-
kosningar. Stjórnarflokkarnir
lögðu fram einn sameiginlegan
lista, en annar listi var ekki í
kjöri.
Erlent yfirlit
(Framhald af 2. siðu)
einn minnihlutaflokk. Enginn
hinna flokkanna hefir þó enn
sýnt henni fjandskap, nema
kommúnistar. Þeir vilja hafa
upplausn í stjórnarfarinu og fá
kosningar sem fyrst aftur.
íhaldsmenn eru jafnvel taldir
óska hins sama. Öðru máli er
talið gegna um jafnaðarmenn
og radikala, sem telja sér hag í
því, að ró komizt á aftur.
Kosningar í Færeyjum
(Framhald af 1. síðu)
einum þingmanni, Sambands-
flokkurinn tveimur en jafnað-
armenn unnið einn. Þing-
mannatala er mismunandi eftir
atkvæðamagni, getur verið mest
25, en minnst 20.
Fólkaflokkurinn vill algeran
aðskilnað við Danmörk, en
jafnaðarmenn munu vilja halda
konungssambandinu, en skilja
við Danmörk að öðru leyti.
Miskeppnuð herferð
(Framhald af 4. síðu)
dýrtíðina, ef komið yrði hér
upp stórri allsherjarbrauðgerð
af bæjarfélaginu eða öðrum
slíkum aðila, sem gæti haft áhrif
til lækkunar á brauðverðið.
Yfirleitt er allt ásigkomulag
þessara mála þannig, að bæjar-
völdin geta vissulega ekki leng-
ur látið þau afskiptalaus.
' i • i : ’ • 1 -j i I I : j ! ’ 'tfs j L
Ófremdarástandið
í fisksölumálunnm.
Þá er ástandið í fisksölumál-
unum sannarlega hið hörmu-
legasta. Fiskbúðirnar eru víða
hinar ófullkomnustu, enda
eðliíegt, þar sem eigendur þeirra
mun oft bresta getu til að búa
þær betur úr garði. Hitt er svo
enn verra, að iðulega er ekki völ
á öðru en skemmdum eða úldn-
um fiski eða lítt ætum saltfiski.
Fjöldi bæjarbúa þarfnast þó
nýs fisks daglega. Ekkert ætti
heldur að vera auðveldara að
veita Reykvíkingum en nýjan
fisk. Þetta er þó ekki fisksölun-
um að kenna, því að þeir eiga
oft ekki völ á öðru en fiski, sem
er fluttur hingað af Suðurnesj-
um, og bæði er oft orðinn gam-
all og skemmist á leiðinni.
Úr þessu þarf vissulega að
bæta. Þar er ekki nema um
einn aðila að gera, sem er bæj-
arfélagið. Bærinn verður að
gera ráðstafanir til þess, ’að
alltaf sé nýr og góður fiskur
á boðstólum. Annaðhvort verð-
ur hann að semja um það við
einstaka útgerðarmenn, að þeir
annist fiskveiðar fyrir bæjar-
búa eða hafa sjálfur slíka út-
gerð með höndum. Jafnframt
þarf hann að koma hér upp
fullkominni fisksölumiðstöð og
setja strangari kröfur um út-
búnað einstakra fiskbúða og
meðferð fisksins þar.
Þannig mætti halda áfram
að nefna fleiri dæmi, sem sýna
að ríkjandi er fullkomið ófremd-
arástand um sölu og meðferð
ýmsra nauðsynlegustu og al-
gengustu matvæla hér í bæn-
um. Fyrir öllu þessu hafa for-
ráðamenn bæjarins haft áug-
un lokuð og þótt margsinnis
hafi verið ýtt við þeim, eins og
t. d. Framsóknarmenn hafa gert
í fisksölumálunum, hafa þeir
hummað allar aðgerðir fram af
sér. Eigi að komast betra lag
á þessi mál, þurfa bæjarmenn
að breyta stórlega um stjórn
bæjarmálanna í kosningunum í
vetur. En það verður þó ekki
gert með því að efla kommún-
ista eða Alþýðuflokkinn, sem
einnig hafa sýnt þessum málum
fyllsta tómlæti.
Á víðavangi
(Framhald af 2. síðu)
á bak við slíkt tal leynist hjá
mörgum draumurinn um að eft-
ir eigi að koma til uppgjörsins
milli alþýðustéttanna og auð-
valdsins, og þá geti úrræði
nazismans átt rétt á sér. Slílpr
díaumar munu áreiðanlega
blunda í brjóstum ýmsra auð-
kónganna hér á landi, því að
fyrirsjáanlegt er, að verkalýðs-
stéttin mun ekki una því til
lengdar, að stríðsgróðinn verði
fyrst og fremst fárra manna
eign. Sannleikurinn um sam-
starf kommúnista og stórgróða-
valdsins hér, er sá sami og um
þýzk-rússneska sáttmálann
forðum, að þessir aðilar telja
hyggilegt að hafa slíkan vopna-
frið meðan þeir eru að bíða eft-
ir hentugu tækifæri til að slá
hinn niður.
Menn geta haft það til marks,
hvort slíkur framtíðardraumur
eða ástin á vestrænu lýðræði
má sín meira hjá Mbl., að það
hefir nú safnað í kringum sig
flestum forsprökkum nazista-
hreyfingarinnar hér eða þeim
Tens Benediktssyni, Helga S.
Tónssyni, Páli Kolku, Óskari
Halldórssyni og Svafari Guð-
mundsáyni.
Eini vegurinn til að hindra
þetta uppgjör, sem Mbl. og
kommúnista dreymir um, og
þar með valdatöku kommún-
isma eða nazisma, er að efla
umbótastefnuna, eins og hvar-
vetna á sér nú stað í ná-
grannalöndunum.
(jamla Síó
I leyniþjómistii.
(Above Suspicion)
Joan Crawford
Fred McMurray
Conrad Veidt
Basil Rathbone
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Börn innan 14 ára fá
ekkl aðgang.
títjja Síó
VANDAMÁLIÐ
MIKLA
(Det brændende Spörgsmaal).
Poul Reumert,
Bodil Kjær.
Sýnd kl. 9.
Bönnuð fyrir börn.
Aldrei að víkja.
(We have never been Licked).
Afar spennandi og ævintýrarík
mynd.
Aðalhlutverk:
Richard Quinine.
Anne Gwynne.
Noah Beery.
Sýnd kl. 5 og 7.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
tjppáti
NÝTT
íslenzkt leikrit.
ipfjáUCýnincý
eftir H. H.
3. sýning á morgun kl. 8.
Aðgöngumiðasala í dag kl. 4—7.
Ú R B Æ N U M
Skemmtisamkoma.
Önnur Framsóknarvistin á þessum
vetri verður í Listamannaskálanum á
föstudaginn 16. þ. m. og hefst kl. 8%
stundvíslega. Þeir, sem ætla að taka
þátt í spilunum þurfa að vera komnir
að borðunum stundvíslega kl. 8,30, því
að óvíst er að hægt sé að tryggja þeim
spilaborð, sem koma eftir þann tíma.
Þegar búið er að spila og verðlaun
hafa verið veitt, verður dans stiginn
frám eftir nóttu. Framsóknarvistirnar
eru, sem kunnugt er orðið, einna eftir-
sóttustu skemmtisamkomur þessa
bæjar, svo að alltaf þarf að neita
fjölda manns um aðgang vegna
þrengsla. Það er því vissara fyrir þá,
sem ætla að siekja skeinmtun,
að tryggja sér miða í tíma með þvi
að hringja á afgreiðslu Tímans, Lind-
argötu 9A, simi 2323. Munið að sækja
miðana fyrir hádegi á föstudag, annars
má búast við að þeir verði seldir
öðrum.
Arreboe Clausen
hefir um þessar mundir sýningu á
nokkrum málverkum eftir sig í glugga
Verzlunar Jóns Björnssonar í Banka-
stræti. Eru flestar myndanna frá
Þingvöllum, einnig nokkrar frá Snæ-
fellsnesi.
Gunnar Gunnarsson skáld
flutti fyrirlestur i Gamla Bíó síðastl.
sunnudag og fjallaði hann um Jónas
Hallgrímsson og huldukonuna. Húsið
var fullskipað og var gerður góður
rómur að ræðu skáldsins.
Uppstigning,
hið nýja leiðrit, sem Leikfélag
Reykjavíkur, hefir tekið til meðferðar
verður sýnt annað kvöld kl. 8. Athygli
skal vakin á því, að engir fastir áskrif-
endur eru að þessari sýningu.
Framkvæmdir bæjarins
sýndar blaðamönnum.
Borgarstjóri og bæjarráð buðu síð-
Búnaðarféi minnist . .
(Framhald af 1. síðu)
Jón&son sýslunefndarmaður í
Skarðshlíð erindi og lýsti stofn-
un og starfsháttum félagsins.
Hjörleifur var aðalhvatamað-
ur að stofnun félagsins og fyrsti
formaður þess og er enn í stjórn
þess, og er þar víst fátítt að
sami maðurinn sitji i stjórn
eins félags í 50 ár. Rakti hann
starfssögu félagsins, sem er hin
merkilegasta og hefir þetta bún-
aðarfélag alla tíð verið með
athafnasömustu búnaðarfélög-
um á sambandssvæðinu. Margar
ræður voru fluttar bæði af gest-
um og bændum. Sérstaka athygli
og fögnuð vöktu ræður ungu
bændanna, sem þarna töluðu,
þær báru allar vott um fram-
farahug og þróttmikinn áhuga
fyrir verkefnum bændastéttar-
innar, og virtust þeir staðráðn-
ir í því að ráðast í erfiðleikana
og sigrast á þeim.
astl. þriðjudag blaðamönnum og ýms-
um starfsmönnum bæjarins að skoða
helztu framkvæmdir er bærinn hefir
nú með höndum. Heimsóttir voru f jór-
ir skólar. Gagnfræðaskóli Reykvíkinga,
Barnaskólinn á Melunum, Miðbæjar-
skólinn og Laugarnesskólinn. Þá var
skoðuð bygging Fæðingarstofnunar
Landsspitalans, sem byggð er i sam-
einingu af Reykjavíkurbæ og ríkinu,
íbúðarhúsin við Skúlagötu og fram-
kvæmdir við höfnina. Grandagarður-
inn og byggingarnar þar.
Smjör og molasykur
er nú komið til landsins. Alls komu
117 smál. af smjöri frá Ameríku en
auk þess er von á 50 smál. af dönsku
smjöri með Dronning Alexandrine, er
lagði af stað frá Kaupmannahöfn
11. þ. m. Þá komu einnig með seinustu
skipum frá Ameríku 4000 kassar af
molasykri til S.Í.S. og Innflytjenda-
sambandsins.
Aukaskammtur af molasykri.
Viðskiptamálaráðuneytið hefir á-
kveðið að veita aukaskammt af mola-
sykri. Skal stofnauki nr. 7 af núgild-
andi matvælaseðli vera innkaupaheim-
ild fyrir 7 pökkum af molasykri, hálft
enskt pund eða 1585 grömm alls. —
Stofnaukinn skal gilda frá 30. okt. tll
1. janúar 1946.
Erlingi Pálssyni
yfiriögregluþjóni
var haldið veglegt samsæti á fimmt-
ugsafmæli hans 3. þ. m. Voru þar
margar ræður fluttar og bárust af-
mælisbarninu margar góðar gjafir.
Erlingur hefir verið kjörinn heiðurs-
félagi t. S. 'í. í tilefni af fimmtugsaf-
mælinu.
Farþegar
með e:s. Fjallfoss frá New York s. 1.
mánudag: Ágúst H. Bjarnason próf.,
Vilhjálmur Guðjónsson, Kjartan Guð-
jónsson, Guðrún J. Waage og barn.
Einar G. B. Waage. — Farþegar með
s.s. Buntline Hitch frá New York sama
dag: Árni Ársælsson, Guðrún Dóra
Erickson, Walter Farrel, Grímur Há-
konarson, Jóhann Jakobsson, Ársæll
Jónsson, 5 ára, Agnar Ólafsson og
Esther Sigurðsson.
Aflasölur. '
í fyrri viku seldu þessi skip
afla sinn í Englandi: E.s. Edda seldi
1004 kit fyrir 1770 sterlingspund, Rán
1548 kit fyrir 4.645, Gyllir 2837 kit fyr-
ir 8.097 pund, e.s. Huginn 1416 kit, fyr-
ir 5.400 pund. Kári 2526 kit fyrir 7.603
pund. Sindri 1828 kit fyrir 5.555 pund,
Skallagrímur 3501 kit, fyrir 9,430 pund.
Júpíter 3722 kit, fyrir 10.622 pund og
m:s. Helgi 1516 kit fyrir 3.396 sterlings-
pund. í Belgíu seldu þessi skip: Eld-
borgin 119 smál. fyrir 9.439 og nú sið-
ast m.s. Siglunes frá Siglufirði 100
smálestir fyrir 7.836 strelingspund.
íslenzkur fimleikaflokkur
kvenna fer til Svíþjóðar.
Göteborgs Gymnastikförbund hefir
boðið íþróttasambandi íslands að
senda kvennaflokk á norræna fim-
leikahátíð í Gautaborg. Hátíð þessi
verður á vori komandi. Hefir Í.S.Í. á-
kveðið, að efnt verði til fimleikakeppni
um förina.