Tíminn - 15.01.1946, Síða 3

Tíminn - 15.01.1946, Síða 3
8. Wað TfMIlVIV, jiriðjutlaginii 15. jainiar 1946 3 LARS HANSEN: Fast jbeir sóttu sjóinn Svo hljóp hann th og þreif kaffiketilinn, sem byrjað var að ájóða upp úr. En hann gat ekki gleymt- olíufatinu, og um leið og hann skenkti í bollana sagði hann: — Ef ég næ mörgum yrðlingum í sumar, skulu þeir vissulega lifa með mér ánægjuleg jól. í>ú mátt vita, að þeir geta verið kátir og fjörugir í góðum félagsskap, eins og til dæmis með mér, og það get ég sagt þér fyrir víst, að ég kem til með að eiga eins skemmtilegt jólakvölö og hver annar, þegar ég er búinn að tendra ljós inni í húsinu minu og yrðlingarnir leika sér í blessaðir birt- unni. Þú hefðir átt að vera með mér og sjá tófurnar og bjarndýrið. Þetta dönsuðu vesalings kvikindin af einskærri gleði, þegar ég var búinn að kveikja á týrunni. Mér fannst þau helzt brosa íraman í mig. í þetta skipti skulu dýrin mín lifa þau dýrðlegustu jól, sem nokkur hefir lifað hér á Svalbarða'. En þegar þeir komu upp á þilfarið, lá við.aö þeir stirðnuðu af skelfingu. Fáeinar sekúndur stóðu þeir agndofa, því að inn fjörð- inn rak ísbreiðu mikla. Hún.hafði þegar lokað öllum skipaleiðum, svo að „Noregur“ og Kristófer voru hér innikróaðir. Hugsanirnar þutu hver af annari gegnum heila þeirra. Á sama andartaki og þeir sáu, hvernig ísinn hafði fyllt fjarðarkjaftinn á þessum fáu mínútum, sem þeir voru niðri í káetunni, varð þeim fullljóst, í hvaða gildru þeir voru gengnir. En ískyggilegast var það, að þeir vissu fyrir víst af gamalii reynslu, að isinn myndi ekki yfir- gefa Miklaflóann aftur á þessu ári. Og héldist ísrekið var mönn- unum fjórum, sem sátu allslausir úti á Þúsundeyjum, dauðinn vís — eins og ástatt var. Þetta sáu þeir Kristófer báðir í hendi sér á sömu stundu og athygli þeirra beindist að ísnum. En skelfingin varaði aðeins örstutta stund. Nú var hann Kristóíer ekki með neinar vanga- veltur. — Fljótt nú, hrópað Kristófer og stökk að akkerisvindunni. Akkerið var dregið upp á örstuttri stundu. Nú reið á að koma skútunni út af legunni, áður en ísinn næði henni og bæri hana með sér upp í fjöruna, þar sem hún hlaut að brotna í spón. Út fjörðinn var ógerningur að komast, en gæti Kristófer komið upp seglum, voru nokkrar líkur til þess, að hann gæti siglt undan ísnum lengra inn eftir, þangað sem Ormsaugað svonefnda opn- aðst til hafs. En þar er straumur svo mikill, að állinn líkist mest belj'andi vatnsfalli, og engu skípi fært að sigla gegnum það. En næði ísinn skútunni, gat ef til vill hent sig, að hún festist vel á jaka, er kynni að berast út gegnum þetta krappa og sollna sund. Það var eina vonin — svo veik sem hún var. Mennirnir tveir gengu berserksgang. Flóinn og fjarðarsundin voru að fyllast af is, og eftir stutta stund hlaut hann að byrja að hlaðast upp kringum þá. Stórseglið var komið upp til hálfs, svo að nú var ekki nema stuttrar stundar verk að koma því í lag. Eitt, tvö ,þrjú handtök, snögg og örugg — einn og tveir, einn og tveir. Kristófer þreif í öxlina á Skol og hrópaði: — í bátinn með þig og í land! — Nei, sagði Skolur. Það gengur eitt yfir okkur báða. Það brann eldur úr augum Kristófers.'er hann æpti: Orrusta fugtanna (Skozkt œvintýri) hreinsa það svo vandlega, að þar megi velta gullepli endanna á milli, færð þá ekki hana dóttur mína, heldur skal ég gera út af við þig strax í kvöld!“ Kóngssonurinn hóf nú fjósmoksturinn, en hann hefði allt eins vel getað byrjað að ausa upp allt úthafið. Eftir hádegið kom Kolbrún til hans og mælti: „Þú ert að taka út hegninguna, kóngssonur.“ ,'Rétt er nú það,“ svaraði hann. „Komdu nú, og hvíldu þig,“ segir hún. „Ég get svo sem gert það,“ segir hann. „Ég verð drep- inn hvort sem er.“ Hann settist við hlið hennar og var svo þreyttur, að hann sofnaði þegar í stað. Þegar hann vaknaði, var Kol- brún horfin, en búið var að moka fjósið svo kyrfilega, að vel mátti velta þar gullepli endanna á milli. Þá kom risinn og sagði: „Þú ert búinn að koma fjósið, kóngssonur.“ „Ójá, ég er nú búinn að því,“ segir kóngssonur. „Einhver hefir hreinsað það að minnsta kosti“ „Ja, ekki hreinsaðir þú það,“ sagði kóngssonur. „Jæja, jæja,“ segir risinn, „fyrst þú varst svona dug- legur í dag, þá gef ég þér frest þar til um þetta leyti á morgun. Þá átt þú að vera búinn að þekja þetta fjós með fugladún. Dúnninn verður að vera af fuglum, sem hafa enga fjöður samlita.“ Kóngssonur fór á fætur fyrir allar aldir morguninn eftir. Hann tók með sér boga sinn og örvar til þess að skjóta fuglana. Hann fór út í haga, en illa gengu hon- SÚ NÝBREYTNI er að komast 1 framkvæmd þessa dagana, að Lands- bókasafnið sé opið alla rúmhelga daga frá því klukkan tíu árdegis til klukkan ifu síðdegis, að matmálstímum undan- skildum. Þetta er mikil umbót, sem vert er að minnast lofsamlega. Eigi landsbókavörður og aðrir, sem kunna að hafa stuðlað að henni beztu þakkir fyrir. Með þessu er mörgum, sem bundnir eru við störf allan daginn, sköpuð skilyrði til þess að njóta safns- ins. Ég vil hvetja sem flesta til þess að sýna það, að þeir láti þetta ilýja tækifæri ekki ónotað. LANDSBÓKASAFNIÐ er ein af merkisstofnunum þjóðarinnar. Það var upphaflega stofnað árið 1818, og það gerði Daninn Carl Christian Rafn, síðar prófessor, í samráði við stjórn Hafnardeildar Bókmenntafélagsins. Formaður hennar var þá Bjarni Thor- steinsson, síðar amtmaður. Nefnist það þá og lengi síðan stiftsbókasafnið. Því var fyyst komið fyrir á lofti dómkirkj- unnar í Reykjavík, ásamt skjalasafni biskupsdæmisins, en um þær mundir var nýlokið rækilegri viðgerð á kirkj- unni. Þegar aðgerðin á kirkjunni fór fram árin 1878—79, var því komið fyrir um stund í bókhlöðu menntaskólans, en þaðan var það svo aftur flutt í Alþingishúsið árið 1881 og opnað al- menningi til afnota árið eftir. 23. september 1906 var lagöur hornsteinn- inn að hinu nýja safnaliúsi á Arnar- hólstúni, eins og þá var sagt, og haust- ið 1908 var tekið að flytja söfnin í þessi nýju salarkynni. Þar hafa þau svo átt samastað, þótt langt sé síðan,' að þrengjast tók um þau. En nú er í undirbúningi ný bygging suður á há- skólalóð, þar sem náttúrugripasafnið og þjóðminjasafnið munu eiga að vera í sambýli við listasafn ríkisins fyrst um sinn. Sú bygging er reist til minja um stofnun hins íslenzka lýðveldis, og kom hugmyndin fyrst fram á fundi í Blaðamannafélagi íslands. En upp- hafsmaðurinn var þáverandi formað- ur félagsins, Valtýr Stefánsson, er kom henni síðan á framfæri við lýðveldis- hátíðarnefndina. Þegar þessi bygging kemst upp, verða landsbókasafnlð og þjóðskjalasafnið ein um safnahúsið við Hverfisgötu. ÉG SAGÐI, að Landsbókasafnið væri ein af merkari stofnunum lands- manna. Það er ekki ofmælt. Hitt er svo annað mál, að landsbókasafninu eru að ýmsu leyti talsvert ábótavant. Þar eru stór skörð ófyllt, og nefni ég þar til íagurbókmenntir gránnþjóðanna síðustu áratugi. Fieira mætti benda á. Erlent yfirlit Lána Bandaríkjamenn Rússum? Rússar hafa undanfarið unn- j 2. Þess er krafizt af Rússum, ið að því að fá stórt lán hjá að þeir gefi nákvæmar og full- Úr þessu þarf að bæta, og í því skyni þarf að ætla safninu nægjanlegt fé. Það væri sparnaður, sem lítill hagn- aður fylgdi, að skera það um of við nögl. HÁLKAN Á GÖTUNUM var eitt af umræðuefnum Reykvíkinga í lok vik- unnar, sem leið, Annars er það ekki nýtt fyrirbrigði. Við þekkjum það öll af margfaldri reynslu, hve erfltt get- ur verið að „sjá fótum sínum forráð" í þessum bæ, þegar svo ber undir. Verst er þó aldraða fólkið sett, stirt orðið og svifaseint og kannske sjón- dapurt. Og stundum hefir hálkan vald- ið alvarlegum slysum, jafnvel dauða- slysum. HELZTU ÚRRÆÐIN, sem beitt hef- ir verið gegn hálkunni, er að sáldra sandi á gangstéttar og gatnamót. Að þessu er bót í bili, en þetta er líka að- ferð, sem hefnir sín síðar, þegar svell- in þána og aftur þorrnar um. Þá veld- ur sandurinn auknu ryki og óþrifnaði, og á þetta verulegan þátt í því, að sá hluti bæjarins, sem annars er all- ur malbikaður að kalla, ér undirorp- inn áþekkum sandhríðum og ryk- byljum og önnur hverfi hans. ER EKKI HÆGT að vinna bug á hálkunni á annan hátt? Má ekki reyna að bræða svellin af verstu hálkublett- unum, til dæmis Bankastrætinu, neðri hluta Túngötu og Vesturgötunni upp úr Grófinni? Og hættulegustu gatna- mótuniun, eins og Eymundssenshorn- inu svokallaða (Lækjargötu—Austur- stræti), þar sem slys og óhöpp eru svo tíð af völdum ísingar og hálku? Er ekki unnt að koma þarna við rafhitun með bærilegum kostnaði eða nota afrennsl- isvatn frá hitaveitunni í þessu skyni? Til þess þyrfti auðvitað lagnir í gang- stéttarnar og göturnar, en ekki mun sandausturinn bænum heldur kostn- aðarlaus, lauk þess hvað heppilegur hann er. ÉG LEYFI MÉR svo að hnýta hér aftan við smásögu, sem sýnir skemmti- legri hliðina á hinni afdrifaríku hálku á Reykjavíkurgötum. Þá háttaði svo til, að ég hringdi daglega til prestanna í bænum til þess að grennslast eftir hjónavígslum. Fólk hefir gaman af að sjá það í blöðunum, hverjir stofna til hjúskapar. Laugardag einn í flughálku hringi ég til eins prestsins og spyr að vanda um giftingar. — Jú, nú er mikið um að vera í dag, svarar hann. Það er ekki heldúr furða — í þessari hálku. Fólki veitir ekki af að styðja sig. .. Grímur í Görðunum. Bandaríkjamönnum með svip- uðum kjörum og lán það, sem Bretar fengu hjá Bandaríkjun- um. Enn er ekki vitað, hvort samningar kunna að takast með Rússum og Bandaríkjunum, því að kröfur þær, sem Bandaríkja- menn gera til Rússa eru allharð- ar og munu þeir ófúsir að ganga að þeim. Hins vegar hafa Rússar mjög brýna þörf fyrir þetta lánsfé, þar sem styrjaldarrekst- urinn hefir gengið mjög nærri atvinnulífi þeirra. Fullvíst er því, að Rússar vilji mikið á sig leggja til að fá stór- lán hjá Bandaríkjunum og sást viðleitni þeirra í þá átt meðal annars greinilega á ráöherra- fundinum nýafstaðna í Moskvu, þar sem Rússar létu undan ýms- um kröfum Bandaríkjamanna, svo sem um stjórn Japans, en þeir höfðu eins og kunnugt er gert kröfu til að fá hlutdeild í stjórn landsins, þótt þeir ættu komnar skýrslur um allt at- vinnulíf landsins og gefi Banda- ríkjamönnum tækifæri til að komast að raun um, að skýrsl- urnar séu réttar. 3. Lánið verður ekkl veitt fyrr en allir rússneskir herir eru farnir af landsvæðum þeim, sem samið var um á Potsdamráð- stefnunni, á Jaltaíundinum, eða á öðrum samkomum stórveld- anna. 4. Stjórn Rússlands skal kunn- gjöra innihald viðskiptasamn- inga sinna við nábúana í Aust- ur-Evrópu og hætta að skipta sér af innanlandsmáium í þess- um ríkjum. 5. Stefnt sé að því að vernda bandarískan eignarétt, þar með talinn útgáfurétt í Rússlandi og áhrifasvæðum Rússlands. 6. Rússar verða að gefa am- srískum blaðamönnum fullt frelsi í Rússlandi og leyfa þeim lítinn þátt í sigrinum yfir Japan. að senda skeyti heim til blaða Einnig létu þeir yfirleitt undan j sinna. kröfum Bandaríkjanna í Austur- Asíumálunum, en voru hins vegar fastir fyrir og ósveigjan- legir, þar sem Bretar áttu í hlut, eins og í Vestur-Asíu. Það er því auðséð, að Rússar hafa brýna þörf fyrir stórt lán. En um aðra ’ánveitendur en Bandaríkin er ekki að ræða, eins og málum er nú komið í heiminum, Þar sem mönnum mun þykja fróðlegt að kynnast kröfum þeim, sem Bandaríkjamenn gera til Rússa fyrir lánveitingunni, eru þær teknar upp hér eftir því sem hinu kunna brezka blaði „Observer“ farast orð: Nefnd sú í Bandaríkjunum, sem skipuleggja á fjármálin nú eftir styrjöldina, hefir sent rík- isstjórn Bandaríkjanna orð- sendingu, þar sem hún leggur til að lánveiting til Rússa verði háð eftirtöldum skilyrðum: 1. Stjórn Rússlands skal gefa hinum amerísku lánveitendum fullkomnar upplýsingar um all- an vígbúnað landsins. 7. Skipulagsnefnd fjármála Bandaríkjanna skal stefna að því að efla viðskipti þjóðanna. Hvað viðkemur Rússlandi geta þessi viðskipti ekki farið fram, nema um einkasölur stjórnar-. ínnar, því þær eru fléttaðar hag- kerfi landsins og fjármálum. En það er hægt að gera tilraun til að koma amerískum útflytjend- um í beint samband við hin ýmsu iðnfyrirtæki, sem ríkið á og rekur. 8. Ekki má koma á fót ríkis- einkasölum í Austur-Evrópu, og lánið skal nota til að hjálpa þessum löndum til að þurfa ekki að koma á fót ríkisverzlunum. Þessar kröfur eru mjög strang- ar og óaðgengilegar fyrir Rússa að mörgu leyti, sökum innilok- unarstefnu þeirra. Það er heldur ekki talið ólíklegt að Banda- ríkjamenn kunni eitthvað að slaka til, en um verulegar til- slakanir af þeirra hálfu mun ekki vera að ræða. Don Enea Mainetti: Ég sá Mussotini deyja (Niðurlag). Strax og þau voru komin í klefa sína bað hún um að fá að fara í bað og einnig um nál og þráð til að gera við sokkana sína. Við hvorugri bóninni var hægt að verða. Morguninn eftir kom skipun um að færa fangana milli gæzlustaða. Snemma um kvöld- ið kom svo hópur skæruliða frá Milanó með skilaboð um að líf- láta skyldi alla fangana. Erki- biskupinn í Dongo baðst áður leyfis til að fara á fund hinna dauðadæmdu og undirbúa þá undir dauðann. „Gerið svo vel, herra erkibiskup“, segir liðsfor- ingi skæruliðanna, „en verið fljótir, því ég hefi fyrirskipanir um að framkvæma aftökurnar, eins fljótt og kostur er“. Strax og erkibiskupinn hefir lokið ræðu sinni yfir föngunum fór liðsforinginn inn til þeirra og las upphátt fyrir þeim dauða- dóminn. Þvínæst var haldið með þá alla út úr ráðhúsi borgar- innar. Föngunum var raðað úpp öðru megin á torginu, að norðan- verðu, svo andlit þeirra vissi að stöðuvatni, sem þar er. Fáeinar hræður horfa á á milli raða af skæruliðum, sem eru viðstaddir. En þegar að því er komið að framkvæma aftökurnar, heyr- ast háværar óánægjuraddr fanganna. Liðsforinginn fer til þeirra til þess að spyrja hvað þeir vilji. Þeir óskuðu allir eftir því að Petacci væri fjarlægður undir eins. „Við erum fúsir til að láta okkur blæða, en við viljum blóð okkar ekki saman við blóð hans. Við viljum ekki verða honum samferða". Liðsforinginn varð við bón þeirra og Petaeci var leiddur burt. Hinir dauðadæmdu menn stóðu allir álútir og nokkrir þeirra féllu á kné. Liðsforinginn kall- aði til manna sinna og bað þá að vera viðbúna. Svo kemur skipunin: „Skjótið“. Þegar skothvellirnir bergmála, falla hinir dæmdu dauðir niður á torgið. Petacci lagði á flótta meðan á aftökunni stóð, en skoti er skotið á eftir honum og hann fellur við. Dauður skrokkurinn féll í stöðuvatnið. Um sama leyti fóru vopnaðir skæruliðar inn í húsið, þar sem Mussolini og Clara Petacci voru höfð í haldi. Fangarnir voru settir í bifreið og ekið af stað, en flutningabifreið full af mönnum fór á undan. Mussolini spuröi hvað væri verið að fara með sig, en enginn virti hann svars. Ennþá voru eknar nokkrar milur, en þegar komið var í út- jaðar Cinlini di Mezzagra var staðnæmzt og föngunum tveim- ur sagt að fara út úr. bifreið- inni. Mussolini bað um skýringu og sýndi nokkurn mótþróa í j fyrstu. Þá var það Clara sem' reyndi að róa hann og biðja hann að hlýða. Þau voru ekki fyrr komin út úr bifreiðinni en skæruliði nokk- fimm skotum að Benito Musso- lini. Strax á eftir var Clara Pe- tacci skotin. Hinum tveim lík- um var fleygt inn í vöruflutn- ingabifreið, sem hélt af stað ur, Dino Clerici að nafni, skaut til Piazza Lorete í Milanó. Á víðavangi (Framhald. af 2. siðu) gefa sitt svar. Farið út einhvern þurrviðris- eða sólskinsdag, og þá mun rykið, sem þyrlast upp og fyllir vit ykkar, svara af- dráttarlaust. Heimsækið fólkið, sem býr í fúlum, rökum og loft- lausum myrkrakjöllurum — heimsækið fólkið, sem býr í her- mannaskálum á Skólavörðuholt- inu og út um allar trissur, og þá munið þið einnig fá mjög skýrt og skorinort svar. Staðnæmizt og virðið fyrir ykkur börnin úr þessum sömu „íbúðum“, þar sem þau eru að leikjum á göt- unum — með því má einnig fá skýlaus svör um „heilsuvernd- ina“, er ungviðið í bæjarfélag- inu nýtur. Genð ykkur erindi á viðkomustaði strætisvagnanna, þegar veður er hryssingslegt — það skerpir sjálfsagt heilsu kvenna, barna, sjúklinga og gamalmenna og raunar hvers sem er, að á slíkum stöðum hefir hvergi verið myndazt við að koma upp neinu skýli. Komið á matsölustaðina suma og kynn- izt fæðinu, sem þar er á boðstól- um, og setjið ykkur t. d. í spor vanheils fólks, sem ekki má neyta nema vissra fæðutegunda, og enn má fá þar skorinort svar við þessari brennandi spurningu um heiLsuvernd'. Komið enn- fremur i barnaskólana, þar sem helmingi fleiri börnum er þrengt saman en þeir eru ætlaðir fyrir. Farið síðan, þegar vora tekur, vestur fyrir bæ og skoðið flugnabú bæjarstjórnarinar við öskuhaugana. Og farið svo loks niður í Nýborg eða inn í Aust- urríki, sem kallað er — þar selc^i nýsköpunarstjórnin með Bjarna Benediktsson og Sigfús Sigurhjartarson að bakhjarli, áfengi fyrir þrjátíu milljónir króna síðastliðið ár — til þess að fullkomna heilsuverndina. — Þetta eru Morgunblaðsmenn komnir langt i heilsuvernd cg hreinlæti eftir að hafa stjórnað bænum í þrjáríu ár.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.