Tíminn - 20.01.1946, Page 2

Tíminn - 20.01.1946, Page 2
2 TlMEVlV. simnMdagiim 20. jairnar 1946 13. blað Upplýsingar Gísla og tregða Kveldúlfs Þaö var upplýst fyrir nokkru hér i blaöinu, aö einn af samn- ingamönnum ríkisstjórnarinnar við togarakaupin, Gisli Jónsson alþingismaöur, hafi skýrt frá því á lokuðum þingfundi i vetur, aö íslendingar hafi keypt togar- ana fyrh- helmingi hærra verö en brezkir útvegsmenn vildu gefa fyrir þá og bakað sér með því svo auknar óvinsældir, að, þangaö megi rekja sölubannið á íslenzka hraðfrystihúsafiskin- um. í aðalatriðum voru upplýs- ingar Gísla þessar; 1. Þegar fyrsta íslenzka samn- inganefndin kom til Bretlands, áttu brezkir útvegsmenn í eins- konar verkfalli við skipasmíða- stöðvarnar, þ. e. vildu ekki semja við þær um smíði á togurum, nema þær lækkuðu verðið um helming. Byggöu enskir útvegs-/ menn þessa kröfu á því, að smiðjurnar hefðu grætt mikið á stríðsárunum, byggingarkostn-» aður myndi lækka og smiðj- urnar ætluöu sér alltof mikinn gróða. 2. íslenzka ríkisstjórnin hafði þessa afstöðu brezkra útvegs- manna að engu, heldur sömdu um togaranna fyrir það verð, er smiðjiírnar settu upp og var helmingi hærra en brezkir út- vegsmenn vildu gefa fyrir þá. Síðan var þetta verð þó enn hækkað um þriðjung. 3. Brezkir útvegsmenn reidd- ust mjög þessu tiltæki íslend- inga að brjóta þannig niður samtök þeirra um lækkun tog- araverðsins. Þeir reyndu því að spilla fyrir íslendngum hjá brezku stjórninni. Fyrsta af- leiðing þess var siglingabann til austurstrandarinnar um nokk- urt skeið, en önnur afleiðing sölubannið á hraðfrysta fiskin- um. í tilefni af því, að Tíminn skýrði frá þessum upplýsingum Gisla, hefir hann skrifað 10 dálka grein í Mbl., án þess að bera þar nokkurs staðar á móti því, að frásögn hans á lok- aða fundinum sé rétt eftir höfð. Hann segir aðeins, að hann vilji ekki ræða um hana, þar sem ekki megi segja frá því, er ger- ist á lokuðum þingfundi! í fyrsta lagi er þetta rangt, því að segja má frá umræðunum, þegar bú- ið er að birta tilefni þeirra, eins og gert hefir verið í þessu til- felli. í öðru lagi myndi eng- inn þingmaður láta það ómót- mælt, að honum væru opinber- lega eignuð ummæli' á lokuðum fundi, sem hann hefði ekki sagt. Grein Gísla er því hin full- komnasta sönnun þess, að frá- sögn hans hafi verið rétt höfð eftir. Öllu veigameira getur það vit- anlega talizt, sem kommúnistar og Alþýðuflokksmenn halda fram, að Gísli sé svo ósannsög- ull og ómerkilegur, að ekkert sé leggjandi upp úr ummælum hans. En þess ber að gæta í þessu sambandi, að Gísli er ein- dreginn stuðningsmaður stjórn- arsamvinnunnar og vill styðja hana á allan hátt. Þess vegna er ólíklegt, að hann hafi farið að búa til ósannindi, er væru henni óþægileg, þótt hann temji sér slíkt í skiptum við and- stæðingana. Það eru þvi allar ástæður til að taka þessa frásögn Gisla trú- anlega. Fátt styður hana lika betur en að helztu útgerðarfé- Bjarnalínan — baráttan gegn alþýðu Islands — Síðari grein — v. Svo bregðast krosstré sem önnur tré. Snurða nokkur hljóp á Bjarnalínuna. Kom hún fyrr fram á meginlandinu. Hitler sveik. Hann snerist gegn Rúss- um og hóf innrás. Rússar tóku mannlega á móti og nutu öfl- ugrar aðstoðar Bandaríkja- manna og Breta. Hér á íslandi var önnur hlið uppi á teningnum. Kommún- istar sviku og settu Sjálfstæðis- manninn í Hermanni Hlifar- formanni i fangabúðir. Sjálf- stæfðismenn brugðust illa vjið og sumir þeirra snerust gegn komm'únistum í Kaupfélagi Siglfirðinga. Börðust þeir þó eigi einir, fremur en Rússar við Þjóðverja. Var árás kommúnista hrundið og alþýðan á Siglufirði gat aftur hafið viðreisn verzl- unarsamtaka sinna. VI. Árið 1944 fengu kommúnistar í flestum löndum hins nýja heims nýja línu senda frá Moskvu. Þeim var boðað, að nú beri þeim að taka þátt i stjórn- um, hvarvetna þar sem-því yrði við komið. Tóku þeir þessu vel, eins og öðrum línum, sem þeim hafa verið sendar frá höfuð- stöðvunum. Gengu þeir til sam- starfs við aðra flokka þá þegar i mörgum löndum, ýmist heima fyrir eða í „útlagastjórnum,'“ sem svo voru nefndar. Víðast hvar tóku aðrir flokkar þessu vel, — héldu, að hér væri um stefnubreytingu að ræða. Má rekja línu þessa um flest þau lönd, sem losnað hafa undan oki nazista. Línunni hefir óvíða blessun fylgt, enáa ekki við því að búast. Hér á íslandi þutu kommún- istar upp til handa og fóta. lögin hér, Kveldúlfur og Alli- ance, vilja ekki kaupa nema einn af þessum togurum hvort, enda þótt það væri eðlileg aukn- ing, að þau bættu nú við sig 3 —4 togurum hvort, þar sem skipastóll þeirra hefir gengið svo saman i stríðinu. Þessi fyr- irtæki gera sér það m. ö. o. Ijóst, að hér er um rándýra togara að ræða og ætla því að fresta kaup- unum og fá ódýrari og hentugri togara síðar. Sama tregðan er hjá öðrum útgerðarfélögum varðandi kaup á þessum togur- um. Það verður þvi Reykjavíkur- bær, sem fær að taka skakka- föllin af þessum kaupum ríkis- stjórnarinnar. Fullar horfur eru á þvi, að af þeim 20 togurum, sem koma hingað til bæjarins, verði bærinn að reka 13—14. Svo gæfulega er á þessari bæjarút- gerð byrjað, að fyrstu togararn- ir verða helmingi dýrari en þeir þyrftu að vera. Það er eins og ekki hafi þótt nóg að auka dýr- tíðina til að tryggja tekjuhalla- reksturinn. Þau stórfelldu mistök, sem hér hafa orðið, mætti sannar- lega verða bæjarbúum áminn- ing um það, að eigi muni van- þörf á, að i bæjarstjórnina kom- ist fulltrúi, sem getur fylgzt með háttalagi flokkanna, sem hér hafa verið að verki, og skapað þeim nauðsynlegt að- hald. Þeir sem vilja vinna að því, fylkja sér um B-listann og tryggja kosningu Pálma Hann- essonar. Nú skyldi mikið drífa og mikl- um árangri ná. Þeir fundu upp töfraorðið „nýsköpun“ atvinnu- veganna. Annar ofsatrúarflokkur hafði áður notað svipað töfraorð. Það var „nýskipan“ Evrópu, sem naz- istar notuðu á sínum tima. Þetta töfraorð hafði gefizt naz- istum allvel. Ekki þótti komm- únistum þó hyggilegt að nota orðið „nýskipún.“ Bæði var, að faðerni þess þótti þá ekki skemmtilegt, og auk þess var það talið of lítið fyrir sér. Það þótti meira i munni að nýskapa en nýskipa, — sem og von var. Nýskipan þýðir aðeins að flokka eða raða að nýju, en að nýskapa þýðir að búa til. — Það er svo mál út af fyrir sig, hvort „ný- sköpunar“-stjórninni hefir tek- izt að búa til nokkra nýja at- vinnuvegi. Fæstir munu i því sambandi minnast annars en ,,endurútflutnings“ vefnaðar- vöru, sem frægt er orðið. „Nýsköpuninni" var sæmilega tekið af mörgum. Orðið var svo stórt. Sumum mönnum hér heima datt í hug, að nú væru kommún- istar að bæta ráð sitt og teknir að gerast umbótamenn. Þetta var þó mesti misskilningur. Brynjólfur Bjarnason — sem er annað hvort formaður „útá- við“ eða „innávið" — tók af öll tvímæli um þetta á flokksstjórn- arfundi, rétt eftir stjórnar- myndunina. Þar hafði einhver trúboðinn hreyft andmælum gegn afviki frá rétttrúnaðinum. Brynjólfur brýndi fyrir mönn- um, að hann hefði með ráðnum hug tekizt hina nýju fram- kvæjnd á hendur og „flokkur- inn“ hefði aldrei verið nær byltingartakmarkinu en nú. — Það segir sig sjálft, að almenn- ingi var ekki sagt frá móttöku hinnar nýju línu. VII. Þegar fóstur nýsköpunar- stjórnarinnar, nýbyggingarráð, fór að fást við útvegun atvinnu- tækja og efnis til þeirra, tókst fylgjendum Bjarnalínunnar — skerðingarinnar á mætti alþýð- unnar — að koma ár sinni vel fyrir borð þar. Ef til vill var til of mikils mælst, að nýbygg- ingarráð hefði hliðsjón af því, hvað „bæri sig“ og hvað ekki, á þann hátt að taka fremur það, sem „bæri sig“ en hitt. Enda heitir það nú orðið „afturhald“ að nefna slík hugtök. Nýbyggingarráði fór eins og við var að búast, enda kváðu svinnir menn svo til forna, að „fé er jafnan fóstra líkt.“ Skrumið var brúðkaupsklæði stjórnarflokkanna, þegar þeir hófu sambúðina. Sömu tízku hefir nýbyggingarráðið eðlilega fylgt. Megináherzla hefir verið á það lögð að fá út sem hæstar tölur — á sem skemmstum tíma. Ekki er horft í verð á nokkrum hlut. Slíkt heitir og „andstaða gegn velferð þjóðar- innar“ og mælist að vonum illa fyrir. Merkisberar í baráttunni gegn mætti alþýðunnar hafa séð svo fyrir, enda eðlilegt, að hugur þeirra standi til að eyða inneignum erlendis fremur fyrr en seinna. Fyndinn maður kvað svo að orði á liðnu hausti, að nýbygg- ingarráð hefði stofnað til alls- herjar keppni um prishæð, og hagaði framkvæmdum sínum samkvæmt því. Kann ýmsum að virðast, að hér séu stór orð við- höfð. Ef til vill kenna þeir út- vegsmenn á Akranesi hvað við er átt. Að minnsta kosti hefir há- prísaást nýbyggingarráðs og ríkisstjórnar sjaldan komið skýrar í ljós, en í sambandi við fyrirhuguð bátakaup þeirra frá Danmörku. VIII. Ekki er að fullu vitaö, hvernig þættir Bjarnalínunnar hér á landi eru tvinnaðir í dag. Bend- ir sumt til, að samstarf kom- múnista og Sjálfstæðisflokksins sé ekki jafn gott og áður, og eining þeirra í baráttunni gegn alþýðu landsins sé tekin að réna. Segja sumir, að kommún- istar hafi sagt, eins og kaup- maðurinn sagði forðum við túlk- inn, sem hafði tekið að sér að útvega honum konu og lagði alúð við verk sitt: „Svona, svona. Nú get ég sjálfur.“ — Og Sjálfstæðisflokkurinn man eftir því, að andstæðingarnir v hafa sent honum kúlu i fótinn og hann á að ganga haltur eins og Vernharður Eggertsson eftir að hann fékk kúluna á Spáni. En nú standa bæjarstjórnar- kosningar fyrir dyrum, og móð- urinn vex stöðugt. Það hefir eðlilega sín áhrif. Æsingin held- ur áfram að vaxa, unz hún end- ar í taumlausum tryllingi tutt- ugasta og sjöunda þessa mán- aðar. Eftir þann dag kemur nótt og „þegar fjörið fer að dofna, færist kyrrðin nær.“ IX. Sumir menn eru vantrúaðir á ósætti þeirra kommúnista og Sjálfstæðismanna. Vilja þeir (Framhald á 4. síðu). Rödd kjósanda Nú líður óðum að þeim tíma, að kjósendum á íslandi gefst tækifæri til að láta í ljós álit sitt á stjórnarfarinu í landinu á uhdangengnum tíma. Bæjarstjórnarkosningar í Reykjavík og öðrum kaupstöð- um, og hreppsnefndarkosningar í sveitum landsins, eiga að fara fram 27. þ. m. að ógleymdum þingkosningum á þessu árí. — Ég er einn af mörgum, sem tel það þjóðarvoða, að menn á mála hjá erlendu stórveldi — þótt af íslenzkum ættum séu — fari með völd í landinu, eins og hér á sér stað um þriðjung ríkisstjórnarinnar og mun það koma greinilegar í ljós síðar. Það er þegar vitað að fyrir áhrif þessa eru nú sýnileg glögg merki þess, og þarf ekki meira en meðalgreind til að sjá, hvert sú óheillaþróun stefnir. Dýr- tíðarfarganið, sem þá og þegar gerir allan heilbrigðan og þjóð- nýtan atvinnurekstur til sjós og lands óarðbæran, má þar fyrst nefna og síðan fjölda af óheilbrigðum og skaðlegum fyr- irþærum í lifi þjóðarinnar, sem of langt yrði upp að telja, og ekki má gleyma áróðrinum fyrir hinu „austræna lýðræði," sem er hvort tveggja í senn, þjóð- hættulegur í eðli sínu og þann- ig rekinn, að hann spillir svo siðgæðisástandi þjóðarinnar, að búast má við, að hún biði þess seint eða ekki bætur. Ég gat þess í upphafi, að nú væri skammt' til bæjar- og sveitastjórnarkosninga, og þá ætti kjósendum að vera innan handar að sýna, hvernig þeir líta á þetta ástand. Hér í Reykjavík vígbúast stjórnarflokkarnir þrír af mesta kappi, og hafa að vopnum Al- þýðublaðið, Morgunblaðið og Þjóðviljann og heilan her af misjafnlega hlutvöndum kosn- ingasmölum. Ég held, að óhætt sé að segja það, að þeir, sem lesa þessi nefndu blöð, geti orð- ið margs vísari um hið innra ástand á kærleiksheimilinu við Lækjartorg, og mun mörgum óklíkubundnum mönnum detta í hug orðin í Lukasarguðspjalli þessi: „Sérhvert það ríki, sem er sjálfu sér sundurþykkt leggst í auðn, og hús fellur á hús.“ Þessi orð hefir sagan á öllum öldum staðfest að eru sígildur sannleikur, og ef trúa mætti öllu, sem þessi blöð segja hvert um annars flokka, — og þá náttúrulega fyrst og fremst um flokksforustuna — þá væri vissulega nálægt hrun hins is- lenzka lýðveldis. Og því miður er margt af því satt. En þegar þau fara að telja upp afrek flokka sinna í þarfir fólksins, þá koma manni í hug um sum þeirra sögurnar, sem sagðar eru eftir Vellýgna-Bjarna. Og þá eru það loforðin um gull og græna skóga, ef flokkar þeirra fái meirihlutavald í bæjar- stjórninni. Fyrir mörgum árum kom út „Almanak fyrir hvern mann,“ og var i því meðal annars saga um land eitt, er nefnt var „Slæpingjaland“ og meðal ann- ars sagt, að þeir, sem þar gætu logið mestu, lofað mestu og svikið mest, kæmust þar til æðstu metorða. Eru ekki sum kosningaloforðin eitthvað and- lega skyld því, sem gerðist á Slæpingj alandinu? Hvað segir undanfarin reynsla um það? Ég vonaði lengi að óflokks- bundnir menn gætu komið sér saman um kjörlista nú fyrir bæjarstjórnarkosningarnar, með mönnum á, sem ekki eru bundn- ir á klafa hjá flokkum þeim, sem skrifa og tala, eins og hér er bent á, að stjórnarflokkarnir gera, — og væru líklegir til aö setja hag fólksins i alvöru ofar valdastreitu og kosningaloforð- um. En sú hefir ekki orðið raun á. Aftur á móti hefir komið fram listi, B-listinn, borinn fram og studdur af Framsókn- arflokknum. Á þeim lista eru margir ágætir menn úr flestum starfsgreinum bæjarins, og hefi (Framhald á 4. siðu). r A Kosningarnar og samstarf- ið við kommúnista. Margir Sjálfstæðismenn eru að vonum óánægðir yfir sam- starfi forkólfa sinna við kom- múnista, enda sjá þeir hvert stefnir. í kosningum þeim, sem nú standa fyrir dyrum, geta þessir menn ráðið miklu um það, hvort þetta samstarf heldur áfram eða ekki. Því fleiri atkvæði, sem Sjálfstæðis- flokkurinn fær, því trúaðri verða forsprakkar hans á það, að þeim sé samstarfið við kom- múnista/ pólitískt hagkvæmt. Því færri atkvæði, sem Sjálf- stæðisflokkurinn fær, því fyrr opnast augu foringja hans fyrir skaðsemi samvinnunnar við kommúnista og því fyrr munu þeir slíta henni. Sjálfstæðismenn, sem eru á móti samstarfinu við kommún- ista, kjósa því í þessum* kosn- ingum með Framsóknarflokkn- um, sem er eini stjórnmála- flokkurinn, er hefir neitað ' að vinna með kcmmúnistum á þeim grundvelli, sem þeir vilja starfa á. Sveinbjörn Hannesson. Sjálfstæðisflokkurinn auglýs- ir fund í íhaldshöllinni í dag. Jafnframt auglýsir hann, að Sveinbjörn Hannesson sé einn af ræðumönnunum, en hann er 12. maður á framboðslista flokksins í . bæjarstjórnarkosn- ingunum. Mynd af þessum sama Svein- birni var birt í Þjóðviljanum i gær i tilefni af því, að hann er fjórði maður á framboðslista kommúnista í stjórnarkosning- unni í Dagsbrún. Er hægt að auglýsa hina góðu samvinnu kommúnista og Sjálf- stæðisforkólfanna öllu betur, þótt þessir aðilar reyni nú að dylja hana með skammamold- viðrinu í blöðum sínum. Þýðingarlausar afneitanir. Tveir flokkar hafa flúið á- berandi frá stefnu sinni og verk- um í kosningabaráttunni. Kom- rhúnistar reyna e|ins og þeir geta að afneita því, að þeir sé vikapiltar Rússa og vilji koma á stjórnarfari þeirra hér á landi. Sjálfstæðismenn reyna af engu minna kappi að afneita öllum samskiptum við komm- únista og látast vera þeim allra manna andvígastir. Hvort tveggja er jafn óvæn- legt til árangurs. Þjónusta kommúnistaforsprakkanna við Rússa er svo margreynd og aug- Ijós, að þeir geta ekki þvegið hana af sér með málamynda- afneitunum rétt fyrir kosning- arnar. Enn augljósara er þó' samstarf Sjálfstæðisflokksins og kommúnista, eins og stjórn- arsamvinnan, Dagsbrúnarsam- vinnan og bæjarstjórnarsam- vinna Bjarna og Sigfúsar sýna gleggst. Slíkt verður vissulega ekki hulið fyrir kjósendunum með alvörulausum skamma- greinum um kommúnista og til- vitnunum í Koestler rétt fyrir kosningar. Kommúnistar og Sjálfstæðis- menn munu því ekkert græða á þessum afneitunum sinum, heldur aðeins hljóta af þeim aukna skömm. Reykvíkingar! Þið, sem viljið viðhaida heiid- salagróðanum, greiðið einhverj- um stjórnarflokkanna atkvæði ykkar, því að þeir hafa sam- einazt um að halda verndar- hendi yfir honum, en þið, sem viljið láta skerða hann, fylkið ykkur um B-Iistann. Þið, sem viljið viðhalda hús- næðisleySinu og húsaleiguokr- inu og húsaleigulögunum, kjós- ið einhvern stjórnarflokkanna, því að stjórn þeirra hefir nú setið á annað ár án þess að gera nokkrar ráðstafanir i þeim málum, en þið, sem viljið gera ráðstafanfir til að bæta úr þessu, kjósið B-listann.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.