Tíminn - 25.01.1946, Page 2

Tíminn - 25.01.1946, Page 2
2 TÍMIM, föstndagiim 25. janúar 1946 17. blaS Föstudagur 25. jan. Myndabók íhaldsins SjálfstæðLsflokkurinn hefir undanfarna daga látið bera til bæjarmanna mikla og skraut- lega myndabók, sem er ætlað að sýna framkvæmdir bæjarins á undanförnu kjörtímabili. Rit þetta hefir að vonum vakið talsverða athygli meðal bæjar- búa og vafalaust á talsverðan annan hátt en flokkurinn hefir ætlazt til. Ritið hefst á eins konar á- varpi, sem er undirritað af öll- um frambjóðendum Sjálfstæð- isflokksins í bæjarstjórnar- kosningunum. Þessar undir- skriftir frambjóðendanna hafa minnt marga á, að fyrir sein- ustu bæjarstjórnarkosningar barst þeim alllangt bréf, er einn- ig var undirritað af öllum fram- bjóðendum Sjálfstæðisflokks- ins. Þar var lofað mörgum og stórum framkvæmdum, en myndir af þeim eru yfirleitt^ ekki finnanlegar í myndabók- inni. Ekki er þar t. d. mynd af fiskhöllinni, sem íhaldið lofaði þá, ekki mynd af gagnfræða- skólanum, sem íhaldið lofaði þá, ekki mynd af iðnskólanum, sem íhaldið lofaði þá, ekki af barna- hælinu, sem íhaldið lofaði þá, ekki af nýja spítalanum, sem íhaldið lofaði þá, ekki af nýja íþróttaleikvanginum, sem í- haldið lofaði þá, ekki af bætt- um sorphreinsunartækjum, ekki af nýjum strætisvögnum, ekki af nýju vatnsveitunni o. s. frv, o. s. frv. Myndabókin er 'm. ö. o. fróðlegt heimildarrit um svik íhaldsins á liðnu kjörtímabili, ef menn rifja upp myndirnar, sem vantar i bókina, en ættu aö vera þar, ef íhaldið hefði staðið við loforð sín. Bókin er þó að öðru leyti enn fróðlegri. Á næstum hverri ein- ustu síðu hennar er löng upp- talning á því, sem íhaldið ætl- ar að gera, ef það fær að halda völdunum áfram. Þessa upp- talnmgu ættu bæjarmenn vel að athuga, því að í raun réttri er hún ekki annað en upptaln- ing á þvi, sem íhaldið hefir van- rækt að gera allan þann langa tíma, sem það hefir farið með stjórn bæjarins. Þessi langa upptaíning er hin fullkomnasta sönnun þess, hve léleg og dáð- laus stjórn íhaldsins hefir ver- ið og það mun hún vissulega verða áfram, ef hún verður framlengd einu sinni enn, þótt það lofi nú öllu fögru eins og það hefir líka jafnan gert við allar undanfarnar kosningar. Þegar litið er á það, hve miklu fjármagni bæjarstjörnin hefir ráðið yfir undanfarið kjörtíma- bil, — en það mun hafa verið hátt á annað hundrað millj. kr., sem bæjarmenn hafa orðið að greiða til bæjarins í ýmis konar sköttum, — verður myndabók í- haldsins líka hin átakanlegasta sönnun þess, hve óhyggilega er hægt að ráðstafa miklu fé. Hin- ar stærri framkvæmdir eru allar byggðar fyrir lánsfé, t. d. hita- veitan og Sogsvirkjunin, svo að fyrir skattfé bæjarbúa hafa sáralitlar umbætur verið gerð- ar. Ef vel hefði verið á haldið, hefði mátt byggja fyrir það hundruð góðra íbúða og safna gildum sjóðum til skipakaupa. En stjórn íhaldsins hefir eytt því í alls konar sukk og eyðslu, sem hvergi sjást nein merki eftir, nema ónógar framkvæmd- ir og ný fyrirheit íhaldsins um, að nú skuli það fara að byrja á þeim! Myndabók íhaldsins, ef hún er Ástandið í húsnæð- ismálunum Morgunblaðið og fleiri blöð gömlu bæjarstjórnarflokkanna hafa undanfarna daga keppzt um að fræða hinar húsnæðis- lausu fjölskyldur hér í bænum á þeirri fjarstæðu, að húsnæðis- vandræðin hér í Reykjavík séu honum Eysteini að kenna. Hon- um hafi láðst að gera nægjan- legar ráðstafanir, meðan hann var í ríkisstjórninni, til þess að fólkið hér í bænum þyldi margra ára óstjórn íhalds ok kommún- ista í húsnæðismálunum, og þess vegna sé hið hörmulega ástand, sem nú ríkir í þessum efnum, honum að kenna. Mikil er trúin á heimskuna, varð mér og fleiri húsnæðis- lausum mönnum að orði, er við fyrst sáum þessa kosningafæðu. Mikið halda þessi blöð, að menn séu gleymnir og sljóir. Er engu líkara en að slikur málflutn- ingur sé ætlaður minnislausu og sjónlausu fólki. Síðustu árin fyrir hina nýaf- stöðnu heimsstyrjöld, er Fram- sóknarflokkurinn fórSneð völd í landinu, var enginn húsnæðis- skortur hér í bænum. Framboð á húsnæði var flest árin meira en eftirspurnin, og var alltítt, að húsnæði stæði autt lengri eða skemmri tíma. Verð á hús- um var hóflegt og húsabrask þekktist ekkf sem arðvænlegur atvinnuvegur. Vegna gjaldeyr- isskortsins var eftirlit með sölu á byggingarefni til tryggingar því, að nauðsynlegar byggingar íbúðarhúsa gengju fyrir óþörf- um byggingum skrautlegra stór- hýsa. Nú í dag er ástandið þannig í þessum efnum: Þúsundir manna búa í bröggum og öðrum skúrum, sem ekki geta talizt mannabústaðir, hundruð manna búa í kjallarageymslum og fjöl- margar fjölskyldur, sem teljast hafa íbúðir, búa svo þröngt, að ekki getur talizt viðunandi. Byggingarkostnaðurinn ér gíf- urlega hár vegna verðbólgunn- ar, sem íhald og kommúnistar lofsyngja og þakka sér nú orðið kinnroðalaust. Flestar bygging,- ar eru framkvæmdar með brask fyrir augum og söluverð nýju húsanna því um þriðjungi hærra en það þarf að vera, þrátt fyrir hinn háa byggingarkostnað. Sala á nýjum húsum og íbúðum fer að mestu leyti fram á svört- um markaði, og hið sama er að segja um leigu á húsnæði í nýju húsunum. Hið takmarkaða byggingarefni, sem til landsins fæst, fer að verulegum hluta í ýmsar stórbyggingar, sem ýmist eru óþarfar eða geta beðið. Stríðsgróðamenn, sem stunda byggingabrask í skjóli óstjórn- arinnar, hafa frjálsar hendur til að hamstra hið takmarkaða byggingarefni, og um leið ó- eðlilega aðstöðu til að tryggja vel og réttilega athuguð, er þannig hin eindregnasta hvatn- ing til bæjarbúa um það, að þeir eigi að losa sig við yfir- ráð þess í kosningunum 27. þ. m., ef þeir vilja ekki láta sama athafnaleysið og vanstjórnina haldast áfram. Og leiðin til að gera þetta, er að fylkja sér um B-Iistann, því að efsti maður hans er liklegastur til að fella áttunda manninn hjá íhaldinu. Frjálslyndir og umbótasinnaðir menn eiga að fylkja sér um Pálma Hannesson á sunnudag- inn kemur og tryggja honum sæti í bæjarstjórninni. sér vinnuaflið. Úthlutun lóðaleini flokkurinn, sem vill skilja er hagað þannig, að þetta ástand geti blómgvazt sem bezt. Bygg- ingarfélög stríðsgróðamanna, sem stofnuð hafa verið til bráðabirgða, og einstakir stríðs- gróðamenn, sem fást við bygg- ingabrask, ganga fyrir að fá lóðir, fá hverja lóðina á eftir annarri á beztu stöðum í bæn- um, án nokkurra skilyrða af hálfu bæjaryfirvaldanna um sannvirðissölu á húsunum. Samvinhubyggingarfélög og byggingarfélög verkamanna eru sett í þá aðstöðu að þau geta lítið aðhafzt. í fáum orðum sagt, ástandið getur vart verið verra. Hafa mál þessi stöðúgt sigið á ógæfuhlið hin síðari ár, en bæjarstjórn Reykjavíkur hefir ýmist lokað augunum fyrir að- alatriðum málsins eða farið inn á leiðir, sem eru vanhugsaðar og ófullnægjandi. Þetta eru staðreyndir, sem blasa við, því miður. Það eru gömlu flokkarnir í bæjarstjórn Reykjavíkur, 'sem bera ábyrgð á þessu að verulegu leyti. Þeir hafa horft á það án aðgerða, að hið takmarkaða byggingarefni og takmarkaða vinnuafl leitaði að verulegu leyti í hendur að- ila, er byggja með það fyrir aug- um að selja hús og einstakar í- búðir með allt að 50% sölu- álagningu. Þeim hefir ekki kom- ið til hugar að stöðva slíkt, t. d. með skömmtun á byggingarefni og skilyrðisbundinni úthlútun lóða. Er þó hvorttveggja mjög einfalt í framkvæmd og öruggt til úrbóta ef rétt er á haldið. Er hér þó um að ræða atriði, sem byrja verður á að lagfæra ef heilbrigðar byggingarfram- kvæmdir eiga að geta hafizt fyrir þá sem vantar húsnæði. Fyrsta skilyrðið er: lóðin, bygg- ingarefnið og vinnuaflið, en að slíkum hlutum hefir sá forgang nú, sem byggir með það fyrir augum að verðhækka nýreistar byggingar um allt að þriðjung í eiginhagsmunaskyni. Sagt er að ýmsir menn úr bæjarstjórn- arflokkunum þremur njóti góðs af þessu ástandi, og því forðist blöð þeirra að ræða um þessa híið málsins. í þess stað æpa þau í örvæntingarhræðslu við fólkið: Þetta er honum Ey- steini að kenna. Þau virðast ekki gera sér grein fyrir, að slíkt er ekki hægt að skilja á annan veg en þann, að Eysteinn hafi, að þeirra áliti, átt að ráða þannig fram úr þessum málum langt fram í tímann, er hann var ráð- herra, að margra ára óstjórn þeirra yrði ekki eins áberandi. Slík krafa til annara, virðist hæpin fyrir þann, er hana gerir, svo að ekki sé meira sagt. Framsóknarflokkurinn hefir lagt fram tillögur til lausnar húsnæðisvandamálinu hér i bænum, sem hafa vakið mjög mikla athygli. í tillögum þeim er gert ráð fyrir raunhæfum að- gerðum til að auka húsnæðið, létta byrðar hinna húsnæðis- lausu, útiloka byggingabraskið, lóða- og leigubraskið, svo fært sé að afnema húsaleigulögin, sem eru bæði ranglát og fjarri sínum tilgangi vegna þeirrar óstjórnar sem líðst í sambandi við sölu hinna nýju húsa, sem reist eru af hinu dásamlega einkaframtaki til uppboðsút- hlutunar milli hinna húsnæðis- lausu. Tillögur Framsóknarflokksins í þessu máli sýna, að hann er málið og leysa það eftir hinum færustu leiðum. Hinir flokkarn- ir virðast svo háðir í sínum til- lögum, að þeir sleppa úr kafl- anum um orsök og afleiðingu, en æpa í þess stað að andstæð- ingi sínum, sem var ráðherra fyrir mörgum árum, og halda sig geta talið fólki trú um að hans sé sökin. Ég legg til að Tíminn endur- prenti tillögur flokksins í hús- næðismálum bæjarins og haldi þeim hátt á loft. Þá munu fleiri af hinum húsnæðislausu skilja, að fulltrúi frá flokknum á erindi i bæjarstjórnina. Einn af hinum húsnæðislausu. Aths. Samkvæmt ósk höfund- ar þessarar greinar birtast of- angreindar tillögur í byggingar- málunum í blaðinu í dag — á 3. síðu. Ritstj. (jaj/nalt Híjtt Stuöningsmenn B-listans Skrifstofa B-listans er í Edduhúsinu við Lindargötu, símar 6066 og 2323. Þeir, sem ætla að styðja að sigri listans og koma Pálma Hannessyni í bæjarstjórnina — ættu sem allra flestir að hafa samband við skrifstofuna, sem er opin alla daga frá kl. 10 á morgnana til kl. 10 á kvöldin. „Baráttan um barnssálina“. í Þjóðviljanum 12. jan. birtist svo hljóðandi tilkynning frá Sósíalistaf lokknum: „í kvöld er tækifærið til að vinna að sigri C-listans. Kom- ið í kosningaskrifstofuna í kvöld, bæði flokksmenn og fylgjendur. Látið krakkana ykkar hjálpa til.“ (Leturbr. hér). Hér er sósíalista foreldrun- um ráðið til að draga óþroskuð börn sín inn í hita kosningabar- áttunnar. Hvað segja uppeldis- fræðingar og kennarar um slíkt athæfi? Ætli það sé ekki nóg, þegar stálpaðri börnin finna upp á þvi af sjálfu sér að rífast um stjórnmál? En það hefir svo sem fyrr komið fram hjá kommúnistum, að þeir telja „baráttuna um barnssálina" þýðingarmikið atriði í stjórn- málabaráttu framtíðarinnar. Og fleiri hafa notað^þessa vinnu- aðferð, þó að illt sé frá að segja. Fyrir einum áratug eða svo skýrði Morgunblaðið frá því, að stofnað hefði verið í Reykjavík „Félag sjálfstæðra drengja.“ í þessu félagi áttu að vera dreng- ir innan fermingaraldurs, og mun stofnun þessi hafa átt að búa þá undir þátttöku í Heim- dalli síðar. Sjálfstæðisflokkur- inn virðist þó hafa séð að sér í þessu efni, enda trúlega hlot- ið áminningu fyrir tiltækið. „Hafa báðir ver.“ í Þórðar sögu hreðu segir svo: „Þeir nafnar sóttust í ákafa, Þorbjörn aumingi og Þorbjörn vesalingur, og lauk svo, að þeir féllu báðir dauðir.“ — Þessi orð munu ýmsum þeim í hug koma, sem sjónarvottar eru að viður- eign Morgunblaðsins og Þjóð- viljans þessa dagana. Líklegt er, að þar hafi báðir ver, en hvor- ugur betur. Bragð er a'ð. Ungur fylgismaður ríkis- stjórnarinnar, sem er nýkominn frá útlöndum og nú er starfs- maður i Nýbyggingarráði, hefir fyrir skömmu lýst þvi yfir á prenti, að Valtýr Stefánsson hafi sett heimsmet í óheiðar- legri blaðamennsku. Þetta mun vera ofmælt, því að heimsmetið hefir sjálfsagt verið sett ein- hvers staðar í einræðisríkjunum. En bragð er að þá barnið finn- ur. Ólafur launar lambið gráa. Einn þeirra manna, sem Ólafi Thors er mest í nöp við, er Björn Ólafsson fyrverandi ráð- herra. Ekki af því að þeir séu ósammála um þjóðfélags- mál sem mestu skipta, því að báðir eru Sjálfstæðismenn og Björn víst engu síður en Ólafur, því að það sýndi hann a. m. k. með áhrifum sínum í viðskipta- málum meðan hann var ráð- herra. Ástæðan var sú, að Björn tók sæti í ríkisstjórninni, sem forseti skipaði með samþykki eða hlutleysi meiri hluta Al- þingis, þegar Ólafur varð að hrökklast frá við lítinn orðstír eftir að hafa hleypt dýrtíðinni upp úr öllu valdi. Við svokallaða (Framhald. á 4. síUu). // iHÍaVahgi Menntamenn á villigötum, Kommúnistar héldu svokall- aðan menntamannafund í fyrra- kvöld. Allmargir ungir mennta- menn hafa gengið í flokkinn undanfarið, sumir vafalaust af trú, en aðrir vegna þess, að þeir álíta stjörnu flokksins vera hækkandi. Svipað fyrirbrigði átti sér stað árið 1937, þegar tuttugu lögfræðingar gengú í einu í Alþýðuflokkinn rétt fyrir kosningarnar! Annars er það meira en furðu- legt, að menntamenn skuli skipa sér undir merki kommúnista- flokksins. Aðalsmerki sannra menntamanna er að unna and- legu frelsi. Hvarvetna þar sem kommúnistar ráða, er andlegt frelsi úr sögunni. Rithöfundar, myndlistarpienn og tónlistar- menn, sem ekki eru á „línunni", eru settir í bann og sleppa vel, ef þeir hljóta ekki þyngri refs- ingu. Listin er gersamlega ein- ok.uð í þjónustu valdhafanna. Málfrelsið er afnumið og öll gagnrýni á stiórnarherrunum barin niður með harðri hendi. Kommúnistaforsprakkarnir hér hafa vel sýnt, að þeir myndu ekki verða neinir eftirbátar hinna erlendu lærifeðra sinna í þessum efnum, ef þeir fengju að ráða. Úthlutun Rithöfunda- félagsins svokallaða á ókálda- styrkjum, er góð sönnun um þetta. Kiljan hefir notað völd sín þar til að láta úthluta sér langhæsta styrknum, en þeir, sem ekki hafa viljað dásama kommúnismann, hafa ýmist verið settir alveg hjá eða mjög hlunnfarnir. Mörg helztu skáld þjóðarinnar, eins og Gunnar Gunnarsson, Davíð Stefánsson, Guðmundur G. Hagalín og Kristmann Guðmundsson, hafa gengið úr félaginu til að mót- mæla þessari viðleitni til and- legrar kúgunar. En svo koma nokkrir ungir menntamenn og falla fram og tilbiðja þennan flokk andlegrar kúgunar. Er í raun og sannleika hægt að hugsa sér unga menntamenn, sem eiga að vera frjálslyndir og víðsýnir, á verri villigötum? Gott dæmi um ihalds- stíórnina. Eitt af því, sem íhaldið gumar af í „stefnuskránni“, eru stór- kostlegar endurbætur á rekstri strætisvagnanna síðan bærinn tók við rekstri þeirra. Sannleik- urinn er sá, að allar endurbæt- urnar eru þær, að útvegað hefir verið grind undir einn vagn, og fargjöldin hafa á flestum leið- um verið hækkuð um helming! Rekstur strætisvagnanna hjá bænum er gott dæmi um stjórn íhaldsins. Þeir, sem vilja koma endur- bótum á þennan og annan rekstur bæjarins, fylkja sér um listann, sem er líklegastur til að fella áttunda mann íhalds- ins, og tryggja með því kosn- ingu Pálma Hannessonar. Viltu heldur efla heildsal- ana en framleiðsluna! Undir stjórn íhaldsins á Reykjavíkurbæ hefir, útgerðin þar stöðugt dregizt saman, en verzlunum og heildsölum hefir fjölgað að sama skapi. Þeir, sem vilja stuðla að því, að þetta haldist áfram, kjósa með íhaldinu á sunnudaginn kemur. Hinir, sem vilja efla arð- vænlega framleiðslu í bænum, útgerð og iðnað, skipa sér hins vegar um Framsóknarflokkinn, sem er eini flokkurinn, sem berst fyrir þeirri fjármála- stefnu, er gæti tryggt þessum atvinnugreinum lífvænlega af- komu og stuðla þannig að við- gangi þeirra og vexti. Viljið þið ekki láta skerða heildsalag róðann! 388 verkamenn greiddu at- kvæði gegn uppsögn kaupsamn- inga hjá Dagsbrún.Þessir verka- menn vilja vafalaust ekki síður fá kjör sín bætt en aðrir stétt- arbræ'ður þeirra. En þeir trúa ekki á leið kauphækkunarinnar, þvi að reynslan hefir sýnt þeim, eins og trúnaðarráð Dagsbrún- ar hefir líka játað, að hún leið- ir ekki til varanlegra kjarabóta. Þeir vilja fara hina leiðina að lækka heildsalagróðann og ann- an braskgróða og bæta kjör verkamanna á þann hátt. Þessa leið myndi líka allir verkamenn vilja fara, því að hún er bæði þeim til hags og atvinnurekendunum, ef þeir væru ekki blindaðir af áróðri kommúnista. En kommúnistar geta ekki farið þessa leið, því að þeir eru í samvinnu við stór- gróðavaldið í Sjálfstæðisflokkn- um og það getur aldrei fallizt á skerðingu heildsalagróðans. Verkamenn og aðrir launþeg- ar! Sýnið það í kosningunum 27. þ. m., að þið viljið láta fara þá leið í launamálum, að heil- salagróðinn og annar brask- gróði sé skertur, og kjör ykkar verði bætt með því að ódýrara verði að lifa. Þennan hug ykk- ar getið þið látið í ljós með því að fylkja ykkur um B-listann í kosningunum á sunnudaginn kemur, því að Framsóknarflokk- urinn er eini stjórnmálaflokk- urinn, er berst fyrir þessari stef nu!

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.