Tíminn - 20.03.1946, Side 1
j RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
! ÚTGEPANDI:
> . FRAMSÓKNARFLOKKURINN
í Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
RITST JÖRASKRIFCTOFUR:
EDDUHÚSI. Llr.darcötu 9 A
Slmar 2353' og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A
Síml 2323
30. árg.
Reykjavík, iniðvikndagiim 30. marz 1946
49. klaCS
Dýrtíðarvísitalan
í nokkrum löndum
Þjóðabandalagið hefir nýlega
birt skýrslu um hækkun dýrtíð-
arvísitölunnar í nokkrum lönd-
um á stríðsárunum. í skýrslunni
er verðlagið á miðju árinu 1939
lagt til grundvallar eða merkt
með tölunni 100. Þegar þessi
tala er lögð til grundvallar, var
dýrtíðarvísitaian í árslok 1945
í eftirtöldum löndum sem hér
segir:
Kanada ................... 119
Bandaríkin ............... 131
Bretland ................. 132
Suður-Afríka ............. 132
Argentína ................ 135
Svíþjóð .....!........... 143
Sviss . :................ 151
Noregur . ................ 157
Danmörk ................. lí>8
Tékkóslóvakía ............ 174
Brazilía ................. 186
Portúgal ................. 196
ísland ................... 284
Tyrkland ................. 358
Finnland ................. 399
Búlgaría ........ :...... 489
Samanburður þessi mætti
vissulega , verða íslendingum
lærdómsríkur. Á sama tíma og
dýrtíðin eykst í engiláaxnesku
löndunum og Svíþjóð um 19—
43 stig, eykst hún hér um 184
stig eða mörgum sinnum meira.
Þetta eru afleiðingarnar af því
að ekki voru gerðar hér svipað-
ar . dýrtíðarráðstafanir og í
þessum löndum, en þær voru
mjög svipaðar þeim, sem Fram-
sóknarmenn beittu sér fyrir
hér.
STJÓRN IRANS
KÆRIR RÚSSA
Stjórn Irans hefir beðið sendi-
herra sinn 1 Washington að
leggja fram í Öryggisráðinu
kærur á hendur Bússum, fyrir
það, að hafa ekki farið með Jier
sinn úr landinu á tilsettum
tíma, fyrir 2. marz. Einnig
munu Rússar verða ásakaðir
um að hafa skipt sér af innan-
landsmálum í Iran.
Njósnir Rússa í Kan-
adfr - síðan 1942
Mac Kenzie King forsætis-
ráðherra Kanada hefir gefið
skýrslu um njósnamálið og taldi
hann það hafa verið miklu al-
varlegra en í fyrstu var ætlað
og hefði hann vitað það, hefði
hann rætt við Attlee og Truman
urfi málið fyrr en raun varð á.
Það er nú upplýst, að Rússar
hafa haft skipulagða rijósnar-
starfsemi í Kanada síðan 1942.
Hágg og Andersen
útskúfaðir
Sænska íþróttasambandið
hefir svipt hlaupagarpana
Gunder Hágg og Arne Andersen
leyfi til að taka þátt í íþrótta-
mútum, þar sem þeir hafi þegið
peninga fyrir þátttöku í þeim.
Úrskurður þessi hefir vakið
Rætt um landvistar-
leyfi nokkurra Þjóð-
verja .
Þingsályktunartillagan um
landvistarleyfi nokkurra
Þjóðverja var loksins tekin
á dagskrá í gær, þótt því hefði
verið lofað að afgreiða hana
strax og þingið kæmi saman
að nýju.
Ekki tókst heldur að ljúka
umræðunni að þessu sinni, því
að Fipnur Jónsson hélt langa
ræðu, sem nær ekkert kom ná-
lægt málinu, en átti víst aðal-
lega að sanna, að Tíminn hefði
sagt það ósatt, að þýzki ræð^is-
maðurinn hefði hætt að nota
stöð sína eftir aðvörun lögreglu-
stjóra í apríl 1940. Engar sann-
anir gat Finnur þó fært fyrir
þessu og var þessi lopi hans
honum því til lítils sóma. Hins
vegar liggur það fyrir, að eftir
þetta hætti að heyrast í stöð
ræðismannsins.
Hermann Jónasson benti á,
að þetta væri tillögunni óvið-
komandi. Hvatti hann til, að
afgreiðslu hennar yrði hraðað
sem mest. Einnig óskaði hann
eftir, að hraðað yrði afgreiðslu
/
á tillögu hans um athugun á
áfstöðu innlendra manna til
styrjaldarinnar, en sú tillaga er
komin fram vegna aðdróttana
Finns í garð Framsóknarmanna.
1500 útlendingar hafa
hér dvalarleyfi
í sambandi við umræður á
Alþingi í gær um landvistarleyfi
nokkurra Þjóðverja, upplýsti
dómsmálaráðherra að 724 Danir,
50Ö Færeyingar, og 290 aðrir erl.
rikisborgarar - hefðu hér nú
landvistarldýfi. Hinir síðast-
nefndu skiptast þannig, að 103
eru Norðmenn, 76 Þjóðverjar,
40 Bretar, 39 Svíar, 10 Banda-
ríkjamenn, en aðrir eru ríkis-
borgarar ýmsra annarra þjóða.
Þeir Þjóðverjar, sem hér eju
taldir, eru aðallega íslenzkar
konur og börn þeirra, sem hafa
komið hingað síðan stríðinu
lauk.
ERLENDAR FRÉTTIR
I STUTTU MÁLI
— í gær hófst í London ráð-
stefna fulltrúa utanríkismála-
ráðherra Bretlands, Bandaríkj-
anna og Rússlands, þar sem rætt
verður um friðarsamninga við
Rúmena.
— í gær var hleypt af stokk-
unum nýjasta og fullkomnasta
flugvélamóðurskipi Breta. Áhöfn
þess mun verða um 2000 manns.
Elísabet prinsessa hleypti skip-
inu af stokkunum.
— Útvarpsstöðin brezka B.B.C.
mun framvegis hefja útsend-
ingar til rússnesku þjóðarinnar
á rússnesku frá London.
■— Þingkosningar fara fram i
Ítalíu í júní næstkomandi.
Jafnframt fer þá fram þjóðar-
atkvæðagreiðsla um konung-
dóm.
miklar deilur í Svíþjóð, þar sem
hér er um að ræða tvo lang-
frægustu íþróttamenn Svía um
|þessar mundir.
Stendur reglulegt
1945 fram á páska
„Nýsköpun” ríkisstjórnar-1-----f -
innar á vinnubrögðum
þingsins
I Lærdómsrík atkv. !
Sennilega munu þeir margir, sem ekki gera sér þess grein, að það
er reglulegt Alþingi 1945, sem enn situr að störfum. Samkvæmt
allri venju hefði því þingi átt að vera lokið í seinasta lagi fyrir
áramót og reglulegt Alþingi 1946 standa nú yfir. Þess vegna er
eðlilegt, að margir villist á þessu og dyljist sú „nýsköpun“ ríkis-
stjórnarinnar að draga þinghaldið 1945 langt fram á ári«| 1946
og stofna þannig til lengsta og jdýrasta þinghalds í þingsögu
íslendinga.
Þegar ákveðið var að kveðja
saman reglulegt Alþingi 1945
ekki fyrr en 1. okt., bentu
Framsóknarmenn á, að það
væri vafasamt, að samvinna
stjórnarflokkanna reýndist svo
góð, að þingið gæti lokið störf-
um fyrir áramót. Ráðherrarnir
töldu hins vegar enga hættu á
slíku. Þegar þingið kom svo
saman 1. okt., þirti Mbl. forustu-
grein, þ'ar sem sagt var, að
stjórnarandstæðingar myndu
reyna að tefja þingstörfin og
því yrðu „stjórnarflokkarnir að
skipuleggja þingstörfin strax í
byrjun þingsins, að þau gætu
gengið fljótt og vel.“ Þegar
þess var svo gætt til við-
bótar, að stjórnarflokkarnir
töldu stjórninni það einna helzt
til gildis, að hún myndi endur-
reisa veg og virðingu þingsins,
mátti vissulega búast við, að
reglulegri nýsköpun yrði komið
á s'jörf þess og þau myndu
ganga „fljótt og vel“, eins og
Mbl. komst að orði. Ýmsir í-
>
haldsmenn reyndu líka að af-
saka kosningu Jóns Pálmasonar
í forsetaembætti sameinaðs
þings með því, að hann myndi
betur fallinn til að skipuleggja
vinnubrögð þingsins en. Gísli
Sveinsson, því að hann væri í
góðu sambandi við stjórnina og
gæti rekið á eftir henni, ef
þörf krefði. V
Nú géta menn kynnst þessari
„nýsköpun,“ stjórnarflokkanna,
sem er framkvæmd undir for-
ustu Jóns Pálmasonar, í sjón og
reynd. Þingið er búið að standa
hátt á fimmta mánuð og meðal
stjórnarliðsins er farið að tala
um, að því muni ekki einu sinni
lokið fyrir páska! Ástæðan til
þessa er fyrst og fremst sú, að
alla forustu vantar á þinginu og
um aðalmálin, sem stjórnin
þykist ætla að „afgreiða“, eins
og t. d. tryggingamálin og bygg-
ingamálin, ríkir enn magnað ó-
samkomulag innan stjórnar-
innar og stjórnarflokkanna.
Ennþá hafa þessi mál því ekki
verið til nema einnar umræðu í
annarri þingdeildinni og síðan
hafa þau legið í nefnd. Svipað
má segja um ýms minniháttar
mál, sem einnig eiga að ganga
y
fram.
Meðan beðið er eftir því, að
þetta ósamkomulag stjórnar-
flokkanna jafnist, situr Alþingi
algerlega starfslaust. Ekkert er
betur til þess fallið að draga
niður álit þess en að láta það
bíða þannig aðgerðalaust viVtum
saman éftir því, að stjórnin
jafni ágreiningsmál, jafnframt
og miklu ríkisfé er þannig sóað
að óþörfu, en seta þingsins
kostar ríkissjóð allmörg þúsund
kr. á dag.
Það er tvímælalaust, að allir
þeir, sem fylgjast með þessu, |
fordæma harðlega þesa .,ný-1
sköpun“ á vinnubrögðum þings- |
ins og krefjast þess, að henni!
verði hætt. Alþingi má sóma síns
og ríkissjý^s vegna^ ekki sitja
lenguKaðgerðalaust en orðið er.
Það verður að fá að skera taf-
arlaust úr ágreiningsefnum
stjórnarflokkanna, enda er það j
hinn rétti aðili til þess. Ef
stjórnin og forsetarnir taka rögg
á sig, mætti vel ljúka þinginu
fyrir mánaðamót og hefir þó
vissulega verið nógu lengi sétið,
eða í fimm mánuði. Hitt er ó-
verjandi með öllu að ætla enn
að halda áfram aðgerðaleysinu
og draga þingið að páskum eða
framyfir þá. Ef stjórnarliðið
skeytir nokkuð um álit þingsins,
má það ekki láta slíkt koma
fyrir. Þjóðin mun áreiðanlega
fylgjast vel með því, sem gerast
mun í þessum efnum um það
geta stjórnarfl. v.erið vissir.
greiðsla fyrir
bændur
Þau tíðindi g-erðust við loka-
umræðu búnaðarráðslaganna í |
neðri deild í gær, að 17 þing- i
menn sýndu það við atkvæða- j
greiðsluna, að þeir vildu ekki !
aðeins taka verðlagsvaldið af j
bændum, eins og lögin gera ráð j
fyrir, heldur einnig neita þeim ]
um sambærileg kjör við aðrar j
stéttir.
Við umræðu þessa höfðu1 I
Bjarni Ásgeirsson, Jón Sigurðs- j
son og Skúli Guðmundsson bor- \ j
ið fram breytingartillögu þess !
efnis, að „verðlag landbúnaðar- j
afuröa skuli ákveðið eftir vísi- j
tölu landbúnaðarvara, sem
reiknuð er árlega á Hagstofu ís- j
lands samkvæmt grundvelli sex-
manfianefndar." Ef tillaga þessi j
hefði verið samþykkt, hefði
bændum verið tryggt sex-
mannanefndarverð eða svip-
uð launakjör og öðrum vinn-
andi stéttum.
Atkvæðagreiðslan um ' þessa
tillögu féll á þá leiff, aff 17 sögffu
nei, en 12 já, fimm voru fjar-
verandi og einn (Barffi Guff-
mundsson) greiddi ekki atkv.
Þeir seytján þingmenn, sem
lýstu því þannig yfir, að þeir
vildu ekki unna bændum jafn-
réttis viff affrar stéttir, voru
þessir: Jón Pálmason, Garff-
ar Þorsteinsson, Gunnar
Thoroddsen, Sigurffur Bjarna-
son, Hallgrímur Benediktsson,
Jóhann Jósefsson, Sigurður
Hlíðar, Sigurður Kristjánsson,
Lúövík Jósefsson, Einar Olgeirs-
son, Sigfús Sigurhjartarson, Sig-
urður Guðnason, Sigurffur Thor-
oddsen, Þórffur Benediktsson,
Emil Jónsson, Finnur Jónsson
og Stefán Jóhann Stefánsson.
Mættu nöfn þessara manna
verffa bændum minnisstæff í
næstu kosningum.
Aff lokinni þessari atkvæffa-
greiffslu voru hráffabirgffalögin
um búnaffarráffiff afgreidd sem
lög frá Alþingi og hefir stjórn-
arliðiff þannig fullkomnaff þetta
ofbeldisverk sitt gegn bænda-
stéttinni.
Nýtt olíusamlag
tekur til starfa
í síðastl. viku var olía látin í
fyrsta sinn í olíugeyma olíu-
samlagsins í Ólafsvík. Geym-
arnir, sem eru 4 og taka 50
smál. hver, voru settir upp
af Landssmiðjunni síðastl.
sumar. Þeir kostuðu upkomn-
ir 140 þús. kr.
Olíusamlagið í Ólafsvík var
það fyrsta sem stofnað var
samkvæmt lögunum um olíu-
samlög, sem afgreidd voru á Al-
þingi 1943. Samlagið var stofnað
5. ágúst 1944, aðallega fyrir for-
göngu oddvita Ólafsvíkurhrepps,
Jónasar Þorvaldssonar og ýmsra
útgerðarmanna í Ólafsvík.
Stjórn samlagsins skipa nú:
Jónas Þorvaldsson oddviti for-
maður, Víglundur Jónsson út-
geröarmaður og Halldór Jóns-
son útgerðarmaður.
Ungur listamaður
í næsta mánuði er von hing-
að á 13 ára gömlum dreng af is-
lenzkum ættum, sem er orðinn
þekktur á Norðurlöndum íyrir
celloleik. Hann heitir Erling
Blöndal Bengtsson og er móðir
hans íslenzk, Sigríður Nielsen.
Erling er nú á hijómleikaferð
im Svíþjóð. Hann var á iimmta
xri, þegar hann kom fyrst opin-
lerlega fram. Hér mun hann að
jálfsögðu halda tónleika.
Kostar teikning útvarpshallar-
innar yfir 300 þús. kr. í dollunim?
Eitt einkenni „nýsköpunarinnar" hjá ríkisstjórninni er að fá
erlenda sérfræðinga til að vinna ýms sérfræðiverk í þeim grein-
um, þar sem ekki er hörgull ,á innlendum sérfræðingum. Hins
vegar er stjórnin fullkomlega tómlát um að fá erlenda sérfræð-
inga til að vinna að rannsóknum, sem íslenzkir sérfræðingar
geta ekki annað, nema að litlu leyti, en eru mjög aðkallandi.
Má sérstaklega nefna í því sambandi rannsóknir á rafvirkjun-
arskilyrðum víða á landinu.
Gott dæmi um það fyrrnefnda
er sú ráðstöfun menntamála-
ráðherra, að fá ameríska húsa-
meistara til að annast teikn-
ingu hinnar fyrirhuguðu út-
varpshallar. Vafalaust hefðu ís-
lenzkir húsameistarár getað
annað þessu verkefni, því að
þeir hafa séð um byggingar, sem
ekki eru vandaminni. Þessi ráð-
stöfun virðist líka ætla að draga
talsverðan dilk á eftir sér, því
að þegar mun vera búið að
sækja til viðskiptaráðs um yfir-
færslu á um 300 þús. kr. í doll-
urum til greiðslu á kostnaði
vegna teikningarinnar. Ekki er
fullráðið, hvort það muni allur
kostnaðurinn í sambandi við
teikninguna. Með því að láta
ameríska verkfræðinga vinna
þetta verk, hefir kostnaðurinn
við það bersýnilega verið stór-
aukinn og jafnframt stofnað til
gersamlega óþarfrar eyðslu á
dollurum, sem þó er full á-
stæða til að -spara sem mest.
Samgöngumálaráðherranum
hefir þó síður en svo litizt
þannig á, að þetta væri víti til
varnaðar. Hann leggur nú allt
kapp á, að amerískir bygginga-
meistarar verði fengnir til að
annast teikningu hins fyrir-
hugaða útlendingagistihúss.
Teikning þeirrar byggingar er
þó enn viðaminni en útvarps-
hallarinnar og myndi áreiðan-
lega margir íslenzkir bygginga-
meistarar geta leyst hana ágæt-
lega af hendi.
Það samrímist áreiðanlega
BIFREIÐASLYS
Aðfaranótt síðastl. sunnu-
dags varð bifreiðaslys austúr í
Ölfusi, flutningabifreið valt út
af veginum hjá Varmárbrú. Bif-
reiðinni mun hafa verið ekið
mjög hratt er slysið varð. Skrá-
setningarmerki bifreiðarinnar
er x-108 og var hún á leið frá
Hveragerði að Selfossi. Hún fór
nokkrar veltur út af veginum,
en einn farþegi sem var í bif-
reiðinni og bifreiðarstjórinn,
sluppu báðir ómeiddir og má
það teljast sérstök heppni. Bif-
reiðarstjórinn fékk þó tauga-
áfall.
bezt íslenzkum þjóðarmetnaði,
að íslenzkir sérfræðingar 'leysi
þau verkefni af höndum, sem
þeir geta vel gert. Því aðeins á
að leita eftir erlendri hjálp, að
hörgull sé á íslenzkum sérfræð-
ingum. í þeim tilfellum, sem
hér um ræðir, er slíku ekki til
að dreifa. Þess verður því að
krefjast, að stjórnin hætti þeirri
flottræfilslegu „nýsköpun“, sem
hún er hér byrjuð á, og bersýni-
lega er ekki til annars en auk-
ins kostnaðar fyrir ríiúð;; og:
álitshnekkis fyrir .í^lanzka ,byggh;
ingarmeistara.