Tíminn - 12.04.1946, Qupperneq 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON (
ÚTGEí'ANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN >
Slmar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.I.
\
RITST JORASKRIFCTOFUR:
EDDUHOSI. Lli.dargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA. INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOPA:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A
SimJ 2323
30. árg.
Reykjavík, föstudaginn 12. april 1946
66. blafS
Tillögur um stórfelldar
tollalækkanir
Skúli Guðmundsson flytur tillögur um tolla-
lækkun á timbri, tilbúnum húsum, húsgögn-
um og búsáhöldum.
Fyrir nokkru síðan var lagt fram frv. í neðri deild um breyt-
ingu á tollalögunum og fjallar það einkum um aukna verndar-
tolla. Frumvarp þetta hefir verið ttl athugunar í fjárhagsnefnd
deildarinnar og hefir fulltrúi Framsóknarflokksins þár, Skúli
Guðmundsson, lagt fram allvíðtækar breytingartillögur við það.
Aðalefni tillagna hans er að lækka stóriega tolla á timbri, til-
búnum húsum, gluggum, hurðum, húsgögnum, búsáhöldum og
dráttarvélum.
Ætlar stjórnarlið-
ið að svæfa her-
stöðvatillöguna ? |
Það eru nú liSnir 16 dagar
síðan að Hermann Jónasson
lagði fram þingsályktunartil-
lögu þess efnis, að stjórnin léti
birta skjölin í herstöðvamálinu.
Síðan hefir enginn fundur ver-
ið haldinn í sameinuðu þingi,
þótt mörg mál liggi þar óaf-
greidd. Virðist margt benda til
þess, að fundir hafi verið látnir
falla þar niður, svo að ekki hafi
verið hægt að bera fram þá
kröfu, að málið yrði tekið á
dagskrá, en forseta hefir vcrið
kunnugt um, að þaö yröi gert,
cf fundur væri haldinn.
í lengstu lög verður því þó
ekki trúað, að stjórnin ætli að
bæta því við leyndina yfir her-
stöðvamálinu að varna þinginu
að ræða þetta mál opinberlega
og taka afstöðu til leyndarinnar.
En það væri vissulega í sam-
ræmi við aðra framgöngu kom-
múnista í þessu máli, aö þeir
hjálpuðu til þess, að málið feng-
ist ekki rætt í þinginu.
ERLENDAR FRÉTTIR
I STUTTU MÁLI
%
— Brezka stjórnin hefir lýst
yfir því, að Bretar rnuni taka
upp brauðskömmtun, ef Banda-
ríkjamenn gera slikt hið sama.
Bandarikj ast j órn hefir óskað
eftir, að komið yrði á samtökum
þjóða, þar sem feitmetisneyzla
er mest, um að draga úr henni.
— Öryggisráðið kemur sam-
an til fundar á mánudaginn.
Verður þar rætt um, hvort taka
skuli íranmálið af dagskrá eftir
kröfu Rússa og hvort taka skuli
Spánarmálið á dagskrá eftir
kröfu Pólverja.
— Damaskinos erkibiskup
hefir orðið við þeim tilmælum
að gegna áfram ríkisstjóra-
störfum fyrst um sinn.
— Vaneldissjúkdómar eru nú
mikið farnir að gera vart við sig
á meginlandinu. Sem dæmi um
matvælaskortinn er þess getið,
að kornuppskeran í' Tékkósló-
vakíu nam pú ekki nema um 4
millj. smál, en var um 8 millj.
smál. að jafnaði fyrir styrjöld-
ina.
— í London er nýlega lokið
fiskimálaráðstefnu. Náið ,sam-
starf var á ráðstefnunni milli
allra fulltrúa Norðurlanda.
s
Verður hér á eftir skýrt frá
aðalatriðunum í tillögum Skúla:
Allir tollar á dráttarvélum og
hjólbörðuní á dráttarvélar og
veghefla falli niður, en nú hvílir
á þeim 8% verðtollur og 7 aura
vörumagnstollur á kg.
Verðtollur á algengustu timb-
urtegundum lækki úr 8% í 2%,
en á öðrum úr 15% í 8%.
Verðtollur á tilhöggnum hús-
um lækki úr 30% í 2%.
Verðtollur á gluggum, hurðum
og glugga- og hurðakörmum
lækki úr 30% í 8%.
Verðtollur á húsgagnagrind-
um og ósamsettum húsgagna-
hlutum lækki úr 30% í 15%.
Verðtollur á tilbúnum hús-
gögnum lækki úr 50% í 30%.
Verðtollur á hvers konar bús-
áhöldum lækki úr 30% í 10%.
Þá er lagt til að endurgreidd
verði aðflutningsgjöld af kyn-
bótadýrum, sem Loðdýraræktar-
félag íslands flytur inn, og enn-
fremur að endurgreidd verði að-
flutningsgjöld af efni í umbúðir
um innlendar framleiðsluvörur,
sem seldar erú til útlanda.
Ef þessar tillögur Skúla væru
samþykktar, myndu þær hjálpa
til að lækka dýrtíðina verulega,
ef þær næðu fram að ganga.
Þær myndu lækka byggingar-
kostnaðinn og létta stórlega
undir með þeim, sem ætla að
bæta úr húsnæðisvandræðnm
sínum með innflutningi tilbú-
inna timburhúsa. Þær myndu og
létta mjög fyrir efnaminni fjöl-
skyldum, sem þurfa að afla sér
húsgagna og búsáhalda, og t. d.
koma sér mjög vel fyrir ungt
fólk, sem er að byrja búskap.
Mun möygum þykja fróðlegt
að sjá, hvernig stjórnarflokk-
arnir bregðast við þessu úrræði
til að draga úr veigamiklum
þáttum dýrtíðarinnar, en sumir
þeirra hafa oft lofað því hátíð-
lega að berjast fyrir tollalækk
un, einkum þó korpmúnistar.
Kosningar í Japan
Þingkosningar fóru fram
Japan síðastl. miðvikudag.
Kosnir voru 466 fulltrúar
fulltrúadeild þingsins, en ennþá
er ekki búið að kjósa fultrúa í
öldungadeildina. Jafnaðarmenn
áttu mestu fylgi að fagna i kosn-
ingunum, og eru þeir liklegir til
að mynda stjórn, ásamt öðrum
vinstri mönnum. Gert hefir
verið uppkast að nýrri stjórnar-
skrá; líkist hún í ýmsu mjög
stjórnarskrá Bandaríkjann^.
Skrif Mbl. um vantrauststillöguna og þinghaldið:
. • ' • v . ■ V/
Þinghaldið í vetur mætti vera kjósendunum
örugg vísbending um vinnubrögð stjórnarfl.
Alþýðœtryggingarfrv. er nú fyrst eftir 5Vz
mánaðar þingsetu að koma úr nefnd i fyrri
þingdeildinni!
Affalmálgagn ríkisstjórnarinnar, Morgunblaffiff, reynir í gær
að nota vantrauststillöguna gegn ríkisstjórninni, er Framsóknar-
menn flytja, til árása á þann veg, aff þeir séu aff tefja þingstörfin
og hindra þaff, aff þinginu verffi lokiff fyrir páska. Jafnframt not-
ar þaff tækifærið til aff fara miklum lofsörðum um hin góðu
vinnubrögð stjórnarflokkanna í þinginu.
Vafasamt er, hvort Morgunblaffiff hafi nokkurn tíma komizt
lengra í blekkingariðju og yfirdrepsskap en í þessum skrifum
sínum.
Um vantrauststillöguna er
það að segja, að hún þarf
ekki að tefja vinnubrögð þings-
ins neitt. Slíkar tillögur fara
aldrei til nefndar, heldur eru
aðeins ræddar á þingfundi
og ber að útvarpa umræðunni.
Vegna þess verður hún líka mun
skemmri en ella eða í hæsta lagi
6—7 klst. Vegna vantrauststil-
lögunnar væri því næsta auð-
velt að ljúka þinginu fyrir páska,
ef ekki kæmi annað til.
Það er því meira en tilgangs-
laust fyrir Mbl. að ætla að koma
töfum á þingstörfum yfir á
bak vantrauststillögunnar. Öll
þjóðin veit,\að það eru vinnu-
brögð stjórnarflokkanna sjálfa
eða réttara sagt ódugnaður
þeirra og ósamkomulag, sem
veldur því, hve óhæfilega langt
þingið er orðið. Þingið hefir
mánuðum saman orðið að bíða
aðgerðalaust vegna samninga-
viðræðna stjórnarflokkanna um
þau höfuðmál, sem þeir höfðu
lofað að leysa á þinginu áður en
það kom saman, þ. e. eflingu
Fiskveiðasjóðs og alþýðutrygg-
ingarnar.
Um Fiskveiðasjóðsfrv. er það
að segja, að það var lagt fram
í n. d. nokkru fyrir jól og lá
síðan í nefnd í þrjá mánuði og
er nú Ioks komið til efri deildar,
þar sem það ú enn eftir tvær
umræður og athugun í nefnd.
Frumvarpið um alþýðutrygg-
ingarnar var lagt fram í efri
deild nokkru fyrir jól og hefir
síffan legiff þar í nefnd- og er
ekki komið þaðan enn. Vitað er
að stjórríarflokkarnir eru búnir
að semja um 40—50 breyt-
ingar á því, en eiga eftir að koma
sér saman um allmörg atriði.
Afgreiðslu þess frá e. d. verður
tæpast lokið fyrr en á mánu-
dag, og eigi að ljúka þinginu
fyrir páska, verffur neffri deild
að afgreiða þennan mikla laga-
bálk á affeins tveim dögum, en
hann er hvorki meira né minna
en í 150 greinum, sem flestar
(Framháld á 4. slðu).
Bættar straridferðir og
samgöngur við útlönd
Þingsályktiiiiartillaga frá Eysteini Jónssyni.
Eysteinn Jónsson hefir ný-
lega lagt fram í sameinuffu
þingi tillögu þess-efnis, aff Al-
þingi „skori á ríkisstjórnina
aff hlutast til um, aff sam-
göngum meff ströndum fram
verði án tafar komið í viff-
unandi horf og að sam-
göngum viff önnur lönd verffi
hagaff þannig, aff sem mestir
vöruflutningar geti átt sér
staff án umhleffslu.“
í greinargerð tillögunnar segir
á þessa leið:
— í strandferðamálum hefir
nú undanfarið ríkt slíkt öng-
þveiti, að furðulegt má teljast.
Þarf að leita langt aftur í tím-
ann til þess að finna fordæmi
fyrir því, sem gerzt hefir und-
anfarna mánuði um lestarflutn-
ing á fólki, strjálar ferðir o. fl.
Þetta er afsakað með því, að
Esja, er í viðgerð. Ekki er sú af-
sökun nægileg, þegar þess er
gætt pi. a., hvílíka aðstöðu rikis-
stjórnin hefir gagnvart Eim-
Merkilegt tónverk
flutt á Akureyri
Síðastl. sunnudag flutti Kan-
tötukór Akureyrar tónverk(ora-
torium) Qftir Björgvin Guð-
mundsson tónskáld, er hann
lauk 1930, en ekki hefir verið
flutt fyrr. Nefnist það Örlaga-
gátan og byggist á ljóðaflokki,
sem Stephan G. Stephansson
orti um þann atburð, er dísir
drápu Þiðranda, son Halls á
Síðu. Ljóðaflokk þennan samdi
Stephan eftir beiðni Björgvins,
sem þá var byrjaður á verkinu.
Mikið fjölmenni hlustaði á
tónverkið, er var ■ flutt undir
stjórn höfundarins, og var því
afburða vel tekið.
í tilefni af þesum atburði,
hefir bæjarstjórn Akureyrar
samþykkt að veita Björgvin
lausn frá kennslu við barna
skólann með fullum launum, og
skorað á ríkið að gera slikt hið
sama. Má telja víst, að ríkis-
stjórnin bregðist vel við þeirri
áskorun.
U t a n f ö r varðandi
menntaskólabygg-
inguna
filraunir raeð hrað-
frystingu á grænmeti
Blaffamönnum var boðiff til
miffdegisverffar í gær hjá
Húsmæðrakennaraskóla ís-
lands, til aff kynnast tilraun-
um, sem rannsóknarráð ríkis-
ins hefir Iátiff gera í vetur
með frystingu grænmetis.
Ásgeir Þorsteinsson bauð
gestiha velkomna. Því næst
skýrði dr. Jakob Sigurðsson, sem
haft hefir umsjón með þessum
tilraunum, frá árangrinum, sem
náðst hefði. Taldi hann, að
þessar fyrstu tilraunir með
frystingu grænmetis hér gæfu
góða raun og mætti bráðlega
búast við, að fryst grænmeti
yrði allmikil verzlunarvara hér
á landi eins og nú væri, t. d. í
Bandaríkjunum, en þar er ár-
lega fryst um 150 millj. punda
af grænmeti til sölu á vetrar,-
markaðinum. Vitanlega væri hér
miklu meiri ástæða til að frysta
grænmeti tiltölulega i stærri
stíl, sökum þess hve sá tími er
stuttur, sem við getum notað
nýtt grænmeti. Doktorinn taldi
auk þess, að fryst grænmeti
væri jafnvel að sumu leyti
fremra nýju grænmetí, ef það
fengi rétta meðhöndlun.
Alls voru frystar 11 tegundir
af grænmeti og reyndist vera
hægt að geyma þær allar með
mismunandi góðum árangri,
eftir því hver tegundin var. Er
Tveir menn úr byggingar-
nefnd Menntaskólans í Reykja-
vík, Pálmi rektor Hannesson,
formaður nefndarinnar, .og nú þegar hafinn undirbúningur
Hörður Bjarnason, skipulags- ^ að byggingu frystihúss austur í
stjóri, fóru til útlanda 11. þ. m.' Hveragerði, sem notað verður
á vegum menntamálaráðuneyt- tíl að frysta grænmeti fyrir vetr-
isins í sambandi við hina fyrir- armarkaðinn.
huguðu byggingu menntaskóla-
hússins.
Ungfrú Helga Sigurðardóttir
lét svo ummælt, „að grænmeti
skipafélaginu vegna samstarfs
um erlend leiguskip o. fl.
Flutningsmaður þessarar til-
lögu hefir búizt við því sífellt
undanfarið, að bætt yrði úr
þessu ástandi, en þar sem ekki
bólar á slíku, en langt komið
setu Alþingis, þykir rétt, að Al-
þingi segi skoðun sína um málið.
Þá er annað atriði þýðingar-
mikið. Ekki hefir þess ennþá
orðið vart, að breytt hafi verið
um stefnu um vöruflutninga frá
öðrum löndum, þótt styrjöldinni
sé lokið og meiri skipakostur til
.umráða en áður. Umhleðslu-
stefnunni er haldið ennþá, til
stórtjóns fyrir mikinn þorra
landsmanna. Ríkisstjórnin hefir
tvímælalaust möguleika til þess
að hafa mikil áhrif á fram-
kvæmd þessara mála, m. a.
vegna leiguskipanna, sem Eim-
skipafélagið fær fyrir milli-
göngu stjórnarinnar. Þess vegna
þykir flm. rétt og nauðsynlegt,
að Alþingi geri ályktun um það,
hverja stefnu það aðhyllist í
þessu máli. \
<Fravihald á 4 siðui.
Er för þeirra einkum heitið þyrfti að vera á diski hvers ein-
til Norðurlanda, til að kynnast
ýmsum nýjungum í skólabygg-
ingum þar. Ráðgert er að leggja
hornstein að nýja menntaskóla-
húsinu, er reist verður í Laug-
arnesi 1. okt. næstk., á 100 ára
afmæli skólans,-
Aðalfundur Fél. ísl.
rithöfunda
Annar árgangur kemur út af
Dynskógum, riti Félags is-
lenzkra rithöfunda, I ár. Var
þetta ákveðið á aðalfundi fé-
lagsins 9. þ. m. og Guðmundur
G. Hagalín samtímis kjörinn
iitstjóri þess. Auk hans var kos-
in þriggja n\anna ritnefnd og
eiga sæti í henni Elínborg Lár-
usdóttir, Gunnar M. Magnúss
og Jakob Thorarensen.
Við stjórnarkjör á aðalfund-
inum baðst Guðmundur G.
Hagalín, sem verið hefir for-
maður félagsins frá stofnun
(Framhald á 4. síðu).
Fjállaferðir
Margir ferðamannahópar eru
nú að búa sig undir fjaila- og
jöklaferðir um páakana. Fjalla-
menn gera út stærsta leiðang-
ur\nn, en þeir hafa árlega efnt
til slíkra ferða um páskahátíð-
ina og jafnan verið mikil þátt-
taka. Að þessu sinni fara þeir
hópferðir á Eyjafjalla- og Tind-
fjallajökla. Um 40 manns hafa
tilkynnt þátttöku sína í þessa
för. Hóparnir, sem fara á þessa
jökla, leggja af stað héðan úr
bænum á sunnudaginn.
Þá ætla skátar að leggja í leið-
angur á Fimmvörðuháls, í félagi
við Fjallamenn. Nokkrir K. R,-
ingar ætla einnig að fara á
Kjöl og Kerlingarfjöll um pásk-
ana. Hófu þeir undirbúning
þessarar farar síðastl. haust
með því að flytja matvælabirgð-
ir í sæluhús Ferðafélagsins á
Kili.