Tíminn - 12.04.1946, Síða 3
66. blað
TÍMINN, föstudagmn 12. apríl 1946
3
Enskir barnavagnar
. og kerrur nýkomið.
‘Vagiiarnir eru stórir og rúm-
góðir, á háum hjjólum.
Sérlega vandaðir.
Verð kr. 499.00
kr. 577.00
kr. 752.00
og ípainni gerð á kr. 407.00. — Ný sending af kerrum með
lokuðum hliðum og brettum yfir hjólunum, einnig mjög
vandaðar. Verð kr. 117.00
og kr. 186.00
Gúmmí undir barnavagna og kerrur fyrirliggjandi, allar
stærðir. Ennfremur kerrupokar 2 gerðir.
Sendum gegn póstkröfu um allt land.
Verksmiðjan FÁFNIR
Síini 3631. Laugaveg 17 B.
Fimmtugur’:
Stefán Rafnar
skrifstofustjóri.
Hinn 5. þ. m. varð Stefán
Rafnar skrifstofustjóri S. í. S.
fimmtugur. Hann er fæddur og
uppalinn að Hrafnagili í Eyja-
firði, sonur hins merka fræði-
manns og rithöfundar séra Jón-
asar Jónassonar og konu hans,
frú Þórunnar Stefánsdóttur.
Hann gekk í þjónustu Sam-
bandsins árið 1917 og hefir unn-
ið hjá því óslitið síðan. Hefir
hann því stai’fað 29 ár hjá S. í. S.
á þessu ári, eða lengur en nokkur
annar af núverandi starfs-
mönnum þess. Eftir að Sam-
bandinu var skipt í deildir var
Stefán um nokkurra ára skeið
fulltrúi í útflutningsdeildinni,
en nú um mörg undanfarin ár
hefir hann verið skrifstofustjóri
og aðalbókari á aðalskrifstofu
þess í Reykjavík.
Öll sín störf hefir Stefán leyst
af hendi með hinni mestu prýði,
enda getur ekki nákvæmari og
samvizkusamari mann en hann.
Hann er mjög vinsæll meðal
samstaffsmanna sinna. Er hann
og skemmtinn í viðræðum og
hvers manns hugljúfi, sem á
því láni að fagna að kynnast
honum nokkuð verulega. Hann
er fróður maður og víðlesinn
og á . margt góðra bóka. Ekki
hefir hann gefið sig að opinber-
um málum, enda er hann hlé-
dræg'ur um of.
■ Stefán
Kafnar.
Það var ekki ætlun mín að
skrifa langt mál um Stefán
Rafnar, og ég býst heldur ekki
við að hann kæri sig neitt um
slíkt. En ég vil á þessum merki-
legu tímamótum í ævi hans
þakka honum fyrir góð og mikil
störf fyrir Sambandið á. um-
liönum árum og ánægjulegt
samstarf allan þann tíma, sem
við höfum unnið saman hjá S. í.
S. Jafnframt vildi ég mega óska
þess, að Sambandinu mætti
auðnast að njóta starfskrafta
Stefáns áfram um margra ára
skeið. Ég vil svo óska Stefáni til
hamingju með þann áfanga,
sem hann hefir nú náð, og hon-
um og fjölskyldu hans gæfu og
gengis á komandi árum.
Sigurður Kristinsson.
um, á að samrýmast þvi, að
kristin trú og kristin siðfræði.
hefir verið boðuð hér öldum
saman, og stjórnmálaílokkar
okkar kenna sig við ýmsar fagrar
hugsjónir: jöfnuð, bræðralag,
samvinnu, samhjálp, frelsi og
sjálfstæði. Hvar eru þau and-
legu verðmæti, sem þessi ein-
kepnisorð vísa til, ef' ekki er
áhugi á því, að hema burt hið
mikla þjóðfélagsböl? Eru flokk-
arnir, sem kenna sig við hug-
sjónirnar raunveruleg hug-
sjónasamtök, sem vilja koma á
mannbótum og þjóðfélagsbót-
um? Eða eru þeir bara hags-
munasamtök fyrir vissa hópa
og deildir þjóðfélagsini, skipu-
lagði r ribbaldaflokkar i eigin-
hagsmunaskyni? Mér finnst að
skilningur þeirra og afstaða i
áfengismálunum segi til um það.
Hvað á ég að gera?
í Vísisgreininni er talað um
drykkjumannahæli og þess hátt-
ar úrræði. Ég legg ekki á móti
þeim, því að ég veit að þau hafa
stundum hjálpað. En hvers er
von þegar menn koma þaðan,
haldnir logandi ástríðu drykkju-
fýsnarinnar, og við þeim tekur
m^nnfélag, þar sem hver smuga
angar af áfengislykt og gamlir
og nýir félagar seilast til þeirra
og vilja draga þá niður í fenið
á nýjan leik? Er það ekki frem-
ur greindarlítið að vinna að
HANS MARTIN:
SKIN OG SKÚRIR
„Nei, Hettý. Aftur á móti veiti ég þér fullt umboð til þess að
gera þær ráðstafanir, sem þér sýnist, og þegar þú ert búin að
því skaltu sýna mér árangurinn.“
„Ó, það væri gaman, pabbi .... En ég get ekki keypt allt, sem
mér sýnist, án þess að þú vitir einu sinni hvað það kostar —
húsgögnin, gluggatjöldin, gólfábreiðurnar ....“
„Máttu vera að því að athuga um verðið á því, sem við þurf-
um?“
„Já, ég get gert það á laugardaginn.“
„Það er ágætt. Þá skaltu gera þér grein fyrir, hvað við þurfum,
og láttu mig svo vita, hvað það kostar.“ Hugur hans fyllist sælli
gleði, þegar hann segir þetta, því að nú sér hann, að Hettý vill
líka taka tillit til þess, hvað hlutirnir kosta. Henni dettur ekki
í hug að kaupa og kaupa, án þess að gera sér grein fyrir því.
i
I . ★
„Hvað áttu við? Fengið sex mánuði?" segir Wijdeveld.
Karel stendur sótrauður frammi fyrir honum. Bókarinn er
nýfarinn.
„Að ég get ekki þreytt próf aftur fyrr en eftir sex mánuði.“
„Ekki fyrr en í maí með öðrum orðum?“
Karel kinkar kolli.
„Svo illa hefir þú rækt námið, að það er álitið tilgangslaust,
að þú reynir að ná prófi fyrr en eftir sex mánuði, þótt piltar, sem
byrjuðu miklu seinna nám en þú, hafi þegar lokið prófi.“
„Það lítur út fyrir það.“
„Jæja — þá það. Þú veizt, hvað um var talið. Námi þínu er
lokiö. Þú hættir þessu tilgangslausa bjástri í Leiden og byrjar
að sjá þér farborða sjálfur.“
Sonur hans svarar ekki. Hann stendur álútur frammi fyrir
töður sínum.
„Hettý.“ «
„Já, pabbi — nú skal ég íara.“ Hún kemur utan af svölunum
og flýtir sér gegnum herbergi föður síns og lokar hurðinni gæti-
lega á eftir sér.
„Ég skal hlutast til um, að þú fáir vinnu á einhv.erri ekru í
Indlandi. Tóbaksrækt og gúmmírækt gefa sem stendur góðar
tekjur þar í landi. Þú verður sjálfur að afla þér fjár þar austur
frá.“
„Á ég að gerast vinnuþræll á einhverri ekru austur í Indlandi?“
segir Karel -hásri röddu. „Nei — það dytti mér aldrei í hug.
ímyndarðu þér, að ég láti reka mig út í rimboe* með skít-
ugum verkakörlum?“
Wijdeveld sprettúr á fætur. „Ég læt þig ekki segja mér fyrir
verkum. En ég skal samt gera þér kost á öðru. Komdu i skrif-
stofuna til mín í fyrramálið. Þú skalt fá tækifæri til þess að vinna
þar fyrir peningunum, sem þú vékst að áðan — peningum, sem
við eigum.“
„Já, þarna rataðist þér satt á munn. Þar eru peningaf, sem v i ð
eigum.“ Hann stendur enn álútur. Það eru komnir hörkulegir
drættir kringum munninn. „Ég segi það aftur: sem v i ð eigum.
Þú átt þá ekki einn. Mamma á þá, og Maríanna á þá, og ég á
þá — og hinir krakkarnir líka. Og þér er ekki leyfilegt . ...“
„Jæja — mér er kannske ekki leyfilegt að ráða yfir þessum
peningum? Ég deili ekki um það við þig. Ég gef þér aðeins
kost á að koma í fyrramálið og byrja að vinna undir minni han-
leiðslu. Þá skal ég borga þér tvö hundruð gyllini í kaup á mánuði.“
Karel reynir að brosa háðslega. „Það væri víst mjög réttlátt
kaup.“
Kaupfélög!
Rófnasúðvélar,
grasfræsáðvclar,
f jölyrkjar
«"’ raðhreiiisarar.
Samband ísl. samvinnufélaga
Nýjar bækur!
Heiðiim siður á fslamli,
skemmtilegt og fræðandi rit um trúarlíf íslendinga til
forna, eftir mag. art. Ólaf Briem. Bókin flytur mikinn
fróðleik um goð og landvætti, hof og blót og aðra heiðna
siði. Hún er mjög vönduð að frágangi, með uppdrætti og
mörgum myndum., Allir, sem íslenzkum fræðum unna,
þurfa að eignast þéssa bók. Hún er ekki seld með hinum
föstu ársbókum, heldur sérstaklega. Frestið því ekki að
eignast hana, þar sem upplagið er mjög lítið.
Egils saga,
búin til prentunar af Guðna Jónssyni,*skólastjóra. Út-
gáfa þessi er mjög falleg, með 12 myndum og Utprentuð-
um uppdrætti. — Heimskringla verður næsta bók 1 íorn-
ritaútgáfu Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins. Þeir,
sem vilja tryggja sér þessa útgáfu frá upphafi, þurfa
strax að gerast félagsmenn, þar sem upplagsstærðin verð-
ur miðuð við félagafjölda.
Rimboe = frumskógur (malajíska).
lausn málsins aðeins á þeim
grundvelli?
Mér virðist að í þessu máli
þurfi að ganga hreint til verks.
Ógæfan stafar af þvi, að menn
drekka öðruvísi en þeir vilja
Þeir geta ekki annað. Það er
staðreyn^. Menn eru þannig. (Og
þá er ekki nema eitt ráð, sem
er lækning til gagns. ÞacJ er að
sem allra fæstir og helzt engir
byrji á því að neyta víns. Við það
á að miða afstöðu sína, bæði
einkalíf sitt og áhrif á löggjöf
og íramkvæmdastjórn.
Frá mínu sjónarmiði er málið
ofur einfalt, að því er tekur til
persónulegrar afstöðu. Ég vil
ekki eiga neinn hlut að því að
útbreiða þann sið, sem er hættu-
legastur og mestu böli veldur í
landi mínu. Þess vegna er ég
bindindismaður.
í samræmi við þetta vil ég
vinna að því, að neyzla áfengls
í landi mínu verði sem allra
minnst og helzt engin. Það geta
verið skiptar skoðanir um úr-
ræði til þess. En mér finnst, að
allir góðviljaðir menn hljóti að
meta úrræðin eftir þessu. Ef sú
hugsjón, að allir neyttu áfengis
í smáum stíl, á aÖ verða að al-
vöru, verðum við víst að fara
að hreinrækta þá mannkyns-
stofna-, sem ekki hafa hneigð til
ofdrykkju. Ég geri það ekki að
tillögu minni. Mitt takmark ,er
þjóðarbindindi.
Úrvalsljoð
Matthíasar
J oehiimssonar.
I bókinni eru milli 40 og 50 kvæði, sem Jónas Jónsson,
alþm. hefir valið. Hann ritar eining athyglisverðan for-
mála um þjóðskáldið. Þetta er fjórða bókin, sem gefin er
út í safninu ÍSLENZK ÚRVALSRIT. Næst verða gefin út
í þessum bókaflokki úrvalsljóð Gríms Thomsen.
Með þessum bókum er félagsmönnum send sérstök orð-
sending, þar sem leitað er álits þeira og tillagna um starf-
semi útgáfupnar. Er það vinsamleg ósk hennar, að sem
allra flestir þeirra svari þessari orðsendingu.
Enn er hægt að fá eldri félagsbækur við hinu upp-
runalega lága verði, svo sem hér segir: Ársbækur 1942:
5 bækur fyrir 10 kr„ 1943: 4 bækur fyrir 10 kr„ 1944: 5
bækur fyrir 20 kr. og 1945: 5 bækur fyrir 20 krónur.
Hér er tækifæri til að gera sérstaklega góð bókakaup.
Af sumum þessara bóka eru mjög fá eint. óseid.
Skrifstofa útgáfunanr er að Hverfisgjötu 21, sími: 3652,
pósthólf 1043. Afgreiðsla fyrir Reykjavík er í Safnahús-
inu, opið kl. 1—7, og í Hafnarfirði í verzlun Valdimars
Long. — Umboðsmenn eru um land allí.
Bóhaútffáfa Menninffarsjóðs off
Þjóðvinafélaffs.
KKKKKKKKKKKKJKKKKKKJKJKKJKKKKJKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKK
Undralæknirinn PARISH
Frásagnir af læknisferli W. T. PARISH, sem er
mestur andlegur læknir í heimi nú á tímum, fært í
letur af MAURICE BARBANELL, ritstjóra P s y c-
h i c N e w s ..
W. T. Parish, er löngu heimskunnur maður fyrir
lækningar sinar, enda langfrægasti læknamiðill nú-
tímans. Tugþúsundir manna um 'víða veröld eiga
honum líf og heilsu að lguna og blessa hann sem
sinn mesta velgerðarmann. Að eins lítinn hluta af
sjúklingum sínum hefir Parish augum litið, því að
langflesta þeirra hefir hann læknað úr fjarlægð, þ.
e. a, s.: sjúklingarnir hafa skrifað honufn og lýst
sjúkleika sínum, en Parish hefir síðan læknað þá úr
fjarlægð (absent healing). — í svo að segja hverju
landi veraldarinnar, er að finna fólk, sem Parish
hefir læknað. Einnig héðan frá íslandi hafa honum
borizt lækningabeiðnir.
Lækningaferill Parish er Iíkari ævintýri, en
veruleika, en þó er hvergi orði hallað í bók Barba-
nell, enda er hún byggð á skjalfestum heimildum
og rituð af vísindalegum strangleika og nákvæmni.
Lesið Vntlraleekninn Parish.
Fæst hjá bóksölum. Verð heft kr. 11,00 og í góðu
bandi, kr. 18,00.
DRAUPNISÖTOÁFAN