Tíminn - 06.07.1946, Page 1

Tíminn - 06.07.1946, Page 1
; RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON \ ' ÚTGEFANDI: FRAMSÓKN ARFLOKKURINN ; Símar 2353 og 4373 ( ; PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. 30. árg. \ RITSTJÓRASKRIFSTOFUR EDDUH'ÍSI. Undargötu 9 A | Slmar 2353 og 4373 \ AFGREIÐSLA, INNHEIMTA j OG AUGLÝSINGASKRIFSTOF/ : \ EDDUHÚSI, Lir.dargötu 9 A \ Ji-Til 2323 119. blað Söguleg hnef- leikakeppni UNO frestaði störfuin meðan hún fór frain. Ein sögulegasta hnefaleika- keppnl, sem fram hefir farið, var háð í Jankee Stadion í New York 19. f. m. Þeir Joe Louis, sem var heimsmeistari í þyngsta flokki hnefaleika- manna, og Billy Conn, sem talinn var skæðasti keppi- nautur hans, kepptu þá um heimsmeistaratitilinn. Svo mikili var áhuginn fyrir þess- ari keppni, að vinnan hafði verið látin falla niður í skrif- stofum þjóðabandaiagsins (U. N. O.) og aðalfulltrúar flestra ríkjanna skipuðu fremstu bekkina með Tryggvi Lie í heiðurssæti. Alls voru 70 þús. áhorfenda viðstaddir. Að- göngumiðar voru seldir frá 50 —500 kr. og samanlögð sala aögöngumiða nam 15 milj. kr. Alllöngu fyrir kappleikinn hafði því verið spáð, að Conn myndi bera sigur úr býtum og sýndu veðmálin, að sigurvonir hans voru taldar 5—1. Seinasta hálfa mánuðinn fóru sigurvonir Louis hins vegar að glæðast, þar sem þjálfarar og kunnir hnefaleikamenn, sem sáu hann æfa, töldu, að honum hefði síður en svo farið aftur. Þegar kappleikurinn hófst, voru veð- málin 3—1 Louis í hag. Framan af leiknum veitti Conn betur og hann vann fyrstu þrjár loturnar. Louis var hins vegar mjög öruggur, varðist öllum alvarlegum höggum og var bersýnilega að gera sér grein fyrir veilum mótstöðu- mannsins, í 4. lotunni hóf Louis gagnsókn og kom tveimur þung- um höggum vinstri handar á Conn. Louis vann þá lotu með yfirburðum og hélt sókn sinni stöðugt áfram, unz hann barði Conn í gólfið með öflugu höggi vinstri handar seint í 8. lotu. Conn reyndi að rísa á fætur, en mistókst það. Louis hélt þannig heimsmeistaratitlinum áfram, en hann er búinn að verja hann 22 sinnum og hefir alltaf sigrað. í 13 seinustu kapp- leikjum hefir hann barið mót- stöðumenn sina óvíga. Louis er nú búinn að vera heimsmeistari í 9 ár, og telja margir, að hann sé mesti hnefaleikagarpur, sem nokkru sinni hefir uppi verið. Louis gerði meira en að halda titlinum, hann fékk einnig 40% af öllum ágóðanum af keppn- inni. Conn varð að láta sér nægja 20%. Norrænt námskeið á Askov Hinn 1.—10. ágúst næstkom- andi verður haldið norrænt námsskeið (,,Det andet Göte- borgskursus") á Askov-lýðhá- skóla í Danmörku með fyrir- lestrum um uppeldis- og samfé- lagsmál frá sjónarmiði kristni og kirkju. Er það félagið „Venn- er af Grundtvigs Göteborgs- tanke“, sem gengst fyrir náms- skeiðinu og er það einkum fyrir kennara og kirkjunnar menn. Mörg erindi verða flutt á náms- skeiðinu og verða fyrirlesar- arnir þekktir menn frá Dan- mörku, Noregi, Svíþjóð og Finn- landi. Forgöngumenn mótsins von- ast eftir góðri þátttöku frá öll- um Norðurlöndunum. Fræðslu- málaskrifstofan gefur nánari upplýsingar um námsskeiðið. Frá aðalfundi Sambands ísl. samvinnufélaga Vörusala sambandsfélaganna nam 158 milj. kr. áriö 1945 eöa 14,5 milj. kr. meira en næsta ár á undan — ■> Samgöngur á meginlancUnu að færast í eðtilget horf Samg-öngur á meginlandinu færast nú óðum í eðlilegt horf. Nýlega hafa t. d. verið hafnar fastar bílferðir milli Stokkhólms og Parisar, og sézt hér ein af bifreiðunum, sein notuð er á þessari leið. Nýtt fyrirtæki, sem annast landflutninga Nýlega hefir verið stofnað hlutafélag til að annast flutn- inga landleiðis hér á landi. — Fyrst um sinn verður starfsemi félagsins aðeins bundin við vöru- flutninga. Um þessar mundir eru að hefjast flutningar á veg- um félagsins milli Akureyrar og Reykjavíkur. Verða ferðir farn- ar tvisvar í viku. Hefir félagið fimm bifreiðar til að annast vöruflutninga og mun taka hvers konar flutning á þessari leið. Hver pakki sem félagiö flytur verður færður á framskrá og tekur félagið ábyrgð á vör- unum og eru vörurnar vátryggð- ar á meðan þær eru í vörslu fé- lagsins. Forstjóri félagsins er Steinþór Ásgeirsson, en af- greiðslan er á horni Grettisgötu og Hringbrautar. Á Akureyri er afgreiðslan hjá bifreiðastöðinni Bifröst. Jóhann Þorsteinsson píanóleikari látinn Frá Kaupmannahöfn hafa þau sorglegu tíðindi borizt, að Jóhannes Þorsteinsson píanó- leikari hafi látizt þar af slys- förum. Hann fór til Kaup- mannahafnar í vor með ungfrú Elsu Sigfúss og lék undir á hljómleikum hennar.. Jóhannes heitinn hafði komið nokkrum sinnum fram hér opinberlega og vakið athygli sem mjög efni- legur pianóleikari. Hann var kjörsonur hjónanna frú Lauf- eyjar og Jóns Sigurðssonar, forstjóra á Akureyri. Herskip sýnd Allmörg brezk herskip eru um þessar mundir stödd á Reykjavíkurhöfn. Eru skip þessi flest tundurduflaslæðarar. Það hefir nú verið tilkynnt, að skip- in verði til sýnis almenningi i dag og á morgun. Skipið, sem sýnt verður á morgun, liggur undir kolakrananum og er merkt með svörtu flaggi. Skip- in verða til'sýnis frá kl. 2—6 e. h. Hraöfrystihús fyrir grænmeti byggt í Hverageröi ! Fyrir nokkru var hafin bygg-"9, ing hraðfrystihúss í Hveragerði, ! sem notað verður til frystingar ! á grænmeti. Er verkinu nú það langt komið, að húsið er komið undir þak og verið er að leggja einangrun í klefana. E*rystivél- arnar eru smíðaðar hér á landi og frysta þær við gufu. Fryst- ing verður þeim mun meiri, sem gufan er heitari. Er þetta alger nýjung hér á landi og sparar hún alla aðra orku við frystinguna. Frystihúsið er 320 ferm. að stærð og eru í þvi tveir frystiklefar, sem áætlað er að ! rúmi um 200 smál. samtals. í húsinu er ennfremur stór vinnslusalur. Auk þess sem hús- | ið tekur grænmeti til frysting- , ar, er ætlunin að framleiða safa ! ! úr tómötum í sambandi við: I frystihúsið. Grænmetishrað- ; frystistöðin mun að öllu for- ! fallalausu geta tekið til starfa í ! næsta mánuði. Eins og kunnugt er, hefir j rannsóknarstofa Háskólans haft með höndum tilraunir með, , frystingn grænmetis hér á , landi og hafa þær tilraunir gef- jizt mjög vel.Sýna þær, að græn- ! metið varðveitir við slíka jgeymslu mjög vel fjörefni þau, jsem annars fara forgörðum við | venjujega geymslu. Það er því | meðfram vegna árangurs þess- ara rannsókna, að hraðfrysti- grænmetishús þetta er byggt. Konráð Axelsson i Hveragerði veitir húsinu forstöðu. * Nýtt Islandsmet í boðhlaupi Á innanfélagsmóti í. R. í fyrrakvöld var sett nýtt met í 4X800 m. boðhlaupi. Var það boðhlaupssveit félagsins, sem setti mótið. Tími sveitarinnar var 8:20,4 mín. Gamla metið var sett af sveit K.R. 1944 og var það 8:45,0 mín. í sveit í. R. voru Jón Bjarnason, Sigurgísli Sigurðsson, Óskar Jónsson og Kjartan Jóhannsson. Afmælisrit Magna Hið merka félag, málfunda- félagið Magni í Hafnarfirði, átti 25 ára afmæli á síðasta ári. Eins og kunnugt er, beitti það sér fyrir stofnun Hellisgerðis, feg- ursta skrúðgarðs sunnan lands, og hefir annazt hann alla stund. Á morgun kemur út rit eftir Ólaf Þ. Kristjánsson kennara um Magna og starf þess félags um aldarfjórðungsskeið, og verður það selt í sambandi við hátíð, er Magni gengst fyrir í Hellisgerði. Rit þetta er hið smekklegasta að öllum frágangi og prýtt mörgum myndum, bæði úr garð- inum og frá ýmsum hátíðum; er þar hafa verið haldnar, og af þeim mönnum, er félagið skipa og borið hafa uppi hið ágæta starf þess á liðnum árum. En auk þess er ritið hið gagnorð- asta og skemmtilegasta aflestr- ar eins og allir munu vænta, er þekkja höfund þess og rit- leikni hans. Málfundafélagið Magni hefir unnið svo gott og nytsamt starf, að það á alþjóðarþökk fyrir. Því fé, sem til þess rennur, er vel varið. Þeir, sem efni hafa á, ættu að leggja eitthvað að mörkum til þess. Bruni á flugvellinum í Reykjavík Síðastl. miðvikudag brann braggahverfi á flugvellinum i Reykjavík. Voru í bröggum þessum aðalslörifstofur brezka flughersins hér á landi, og mun flugherinn hafa orðið fyrir til- finnanlegu tjóni við að missa þar ýms skjöl og skilríki. Hvass- viðri var, er eldurinn kviknaði, svo erfitt var að fást við slökkvi starfið, en slökkviliðið í Rvík vann að slökkvitilraunum, — en sökum óhagstæðra skilyrða tókst ekki að ráða við eldinn og brann braggahverfig allt upp á tiltölulega skammri stundu. Fráfarandi forstjóri og framkvæmda- stjórar kjörnir heiðursfélagar Aðalfundur Sambands islenzkra samvinnufélaga stendur nú yfir á Blönduósi. Á fundinum sitja 77 fulltrúar, auk stjórnar og framkvæmdastjóra en alls eiga 87 fulltrúar frá 52 félögum rétt til setu á fundinum. Fundurinn var settur kl. 10 árdegis á fimmtudaginn. Voru þar gefnar skýrslur um starf- semi S. í. S. og reikningar þess fyrir síðastl. ár lagðir fram. Þegar lokið var skýrslugerð og afgreiðslu reikningsatriða, kvaddi formaður S. í. S., Einar Árnason, sér hljóðs og flutti þeim Sigurði Kristinssyni, Að- alsteini Kristinssyni og Jóni Árnasyni þakkir í virðulegri ræðu. Lagði hann síðan fram eftirfarandi tillögu fyrir hönd stjórnar S. í. S.: 1 I „Sem vott virðingar og þakklætis fyrir vel unnin og heillarík störf í þágu Sam- bands ísienzkra samvinnufé- iaga, kýs aðaifundur S. í. S. 1946 fyrrverandi forstjóra Sigurð Kristinsson og fyrr- verandi framkvæmdastjóra, þá Aðalstein Kristinsson og Jón Árnason, heiðursfélaga Sambandsins, og eiga þeir rétt til setu á aðalfundum þess sem heiðursgestir". Tillagan var samþykkt með lófataki og risu fundarmenn úr sætum sínum til virðingar heiðursfélögunum. Samkvæmt skýrslum þeim, sem voru lagðar fram, nam öll vörusala S. í. S. á síðastl. ári 94.647 þús. kr. Sala sambands- félaganna nam 158 milj. kr. eða 14 y2 milj. kr. meira en árið áð- ur. Félagar i S. í. S. voru 1 síð- ustu árslok 25. 297 og Jiafði þeim fjölgað um 2290 á árinu. Síðar verður sagt nánar frá aðalfundinum og starfsemi S. í. S. á síðastliðnu ári. K.R.-ingarnir komnir heim Fimleikamennirnir komu heim í fyrrakvöld með flugvél frá Prestwick í Skotlandi. Stjórn K. R. hafði þá boð inni fyrir fimleikamennina í Tjarnar- café, þar sem viðstaddir voru, auk stjórnar félagsins, fulltrú- ar blaða og útvarps, utanríkis- málaráðuneytisins og stjórn í. S. í. Fimleikaflokkurinn hefir far- ið hina mestu sigurför og hvar- vetna hlotið hinar beztu mót- tökur. Hafa fimleikarnir vakið mikla athygli, einkum stökkin, sem talin eru með þvi bezta sem sézt í því efni. Það er haft eftir Norðmönnum, að þeir eigi ekki jafn góða menn í stökkum á dýnu. Heiðursfélagar S. \. S. Sigurður Kristinsson. Aðalsteinn Kristinsson. Jón Árnason. Smjörlíki hækkar Viðskiptaráð hefir leyft hækkun á smjörlíki. Hækkun þessi nemur 60 aurum á hvert smjörlíkis kg., þannig, að kílóið kostar nú kr. 5,60 en var áður kr. 5,00. Danskur söngvari Á mánudaginn kemur hingað til lands danskur barryton söngvari á vegum tónlistarfé- lagsins. Heitir hann Einar Nörby, og mun hann halda nokkrar söngskemmtanir hér.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.