Tíminn - 25.10.1946, Qupperneq 4
Skrifstofa Framsóknarflokksins er í
Edduhásinu við Lindargötu. Sími 6066
REYKJAVÍK
FRAMSÖKNARMENN!
Komið í skrlfstofu Framsóknarflokksins
25. OKT. 1946
195. blað
U L
œnum
í dag.
Sólln kemur upp kl. 8.50, Sólarlag
kl. 18.03. Árdegisflóð kl. 6.20. Síðdegis-
flóð kl. 18.40.
í nótt.
Næturakstur annast bifreiðastöðin
HreyfiU, sími 6633. Næturlæknir er í
Læknavarðstofunni í Austurbæjarskól-
anum, sími 5030. Næturvörður er I
Lyfjabúðinni Iðunnl, simi 7911.
Útvarpið í kvöld.
19.25 Þingfréttir. 19.40 Auglýsingar.
20.00 Fréttir. 20.30 Útvarpsagan:
„Blindrahúsið" eftir Gunnar Gunnars-
son, II. (Halldór Kiljan Laxness).
21.00 Strokkvartett útvarpsins: Kvart-
ett Op. 18. nr. 4 í c-moU eftir
Beethoven. 21.15 Erindi: Hrossarekst-
ur á Arnarvatnsheiði (Sigurður Jóns-
son frá Brún). 21.40 Tónleikar: Óperu-
lög (plötur). 22.00 Fréttir. 22.05 Sym-
fóníutónleikar (plötur): a) Celló-
konsert eftir Dvorak. b) Slavnesk
rapsódía eftir sama. 23.00 Dagskrárlok.
Skipafréttir.
„Brúarfoss" fór frá Leith 23. okt.
til Kaupmannahafnar og Leningrad.
„Lagarfoss" er í Kaupmannahöfn.
„Selfoss" kom til Reykjavíkur 20. okt.
frá Hull, fer í dag vestur og norður.
„FjaUfoss" kom til Hull i morgunn,
24. okt., fór þaðarv í gækvöldi til
Amsterdam. „Reykjafoss" fór frá Hull
í gærmorgunn til Reykjavíkur. „Sal-
mon Knot" kom til Siglufjarðar i
fyrradag, lestar síld. „True Knot" er
í New Vork. „Anne" kom til Gauta-
borgar 23. okt. frá Kaupmannahöfn.
„Leeh" kom til Leith 15. okt. „Horsa"
kom til Leith í fyrradag frá Seyðis-
firði.
Skemmtun
Skemmtisamkoma Framsóknar-
manna í samkomusal Mjólkurstöðvar-
innar í kvöld byrjar með Framsókn-
arvist klukkan 8,30. Aðgöngumiðar
sækist í afgreiðslu Tímans fyrir kl.
þrjú í dag. Verði þá eitthvað eftir af
pöntuðum aðgöngumiðum má búast
við að þeir verði seldir öðrum, því að-
sóknin er mikil eins og venjulega að
þessum vinsælu skemmtisamkomum
Framsóknarmanna.
Dæmdur vegna ógætilegs
aksturs.
Nýlega var maður að nafnl Friðrik
Jónsson, Ránargötu 10, dæmdur af
Hæstarétti í 60 daga varðhald, og öku-
leyfismissi i 3 ár vegna ógætilegs akst-
urs, er varð stúlkubarni að bana. —
Skeði atburður þessi við Baldurshaga
í ágústmánuði 1945.
Skákeinvígt.
(Framhald af 1. síöu)
alvöru fyrr en 1924, en þá gékk
hann í Taflfélag Reykjavlkur.
„Ég var orðinn 17 ára, er ég
lærði fyrst mannganginn“,
sagði Ásmundur, „og eiginlega
er það að þakka sjómannastof-
unni, sem þá starfaði hér í
Reykjavík, því þar lágu frammi
töfl og ég fór að byrja að tefla
þar. Árið 1931 varð ég íslands-
meistari i fyrsta sinn. Síðan
hefi ég teflt á fimm alþjóða-
skákmótum og einu norður-
landamóti nú í sumar.“ „Er
nokkur glímuskjálfti?" spurði
tíðindamaður. „Nei, þó að hann
hafi einhverntíma verið, er ég
nú löngu hættur að finna til
hans. Hins vegar býzt ég við að
þessi keppni verði mér þungur
róður, því ég veit að hinir ungu
taflmenn okkar eru komnir
langt í skáktækni. Ég hefi aldrei
keppt áður við Guðmund, svo
ekki er hægt að segja um úr-
slitln“.
Guðmundur Ágústsson er að-
eins 29 ára að aldri og hefir tek-
ið þátt í einu skákmóti erlendis,
á skákmóti Norðurlanda í sum-
ar, þar sem hann stóð sig mjög
vel, eins og mönnum mun
minnisstætt. Hann varð efstur
í meistaraflokki A.
„Ég lærði snemma mann-
ganginn", sagði Guðmundur,
,,en fór þó ekki að tefla fyrir al-
vöru fyrr en 1937. Ég hefi teflt
mikið við Eggert Gilfer og á
honum mikið af kunnáttu
minni að þakka, eins og reynd-
ar allir reykvískir skákmenn.“
Guðmundur segist eyða flestum
frístundum sinum i að tefla,
Árás og rán
Fyrir skömmu vildi sá at-
burður til hér í bænum, að
maður úr úthverfi bæjarins varð
fyrir árás fjögurra manna og
var illa leikinn af þeim.
Auk meiðsla, sem hann varð
fyrir, rændu þeir hann um 1600
krónur. Forsprakki árásarmann-
anna er fundinn, er hann al-
þekktur óþokki og munu félag-
ar. hans að þessum verknaði,
vera svipuð manntegund. Mál
þetta er nú í rannsókn.
IJr heimi nefndaóhófs-
ins og bitlinganna.
(Framhald af 1. slöu)
unnar sú nýsköpun, sem hún er
frægust fyrir. í marsmánuði
síðastl. ákvað hún að hækka
laun verksmiðjustjórnarinnar.
Grunnlaun formannsins voru
hækkuð úr 7000 kr. í 9000 kr.
eða í 27.000 kr., ef miðað er við
300 stiga vísitölu. Grunnlaun
annarra stjórnarnefndar-
manna voru hækkuð úr 5000
kr. i 7000 kr. eða í 21.000 kr„ ef
miðað er við 300 stiga vísitölu.
Þóroddur vill verða jafningl
Sveins.
Eins og áður segir, fékk
Svein Benediktsson 19 þús. kr.
greiddar í ferðakostnað og fæð-
ispeninga á síðastliðnu ári.
Annar maður í verksmiðjustjóm
inni mun hafa talið þetta vera
gott til fyrirmyndar. Það var
Þóroddur Guðmundsson. Hann
hefir ferðazt mikið í sumar og
m. a. komið til þeirra staða, þar
sem ríkisverksmiðjurnar eru.
Flestir hafa talið, að þessi
ferðalög væru yfirleitt farin í
þágu Sósíalistaflokksins, m. a.
í sambandi við væntanlegt Al-
þýðusambandsþing. Nú er hins-
vegar komið á daginn, að þau
hafa verið greidd af síldarverk-
smiðjum ríkisins, því að frá
áramótum og til 1. okt. hafa
þær greitt Þóroddi kr. 12.731.00
í ferðakostnaff!
Tíminn kann svo ekki að rekja
þessa sögu lengra að sinni. En
þetta nægir líka til að gefa al-
menningi nokkra hugmynd um,
hvernig ástatt er í þessum efn-
um, þvi að þvílík dæmi munu
mýmörg til. Eigingjarnir og
aurasjúkir Sjálfstæðismenn
sækjast vitanlega eftir þvi að
fá sem mesta bitlinga, og kom-
múnistar þurfa þeirra einnig
til að kqfpa kostnaðinum við
flokksstarfsemina yfir á ríkis-
sjóðinn.
Það er hér, sem þjóðin þarf
að hefja öflugt viðnám. Fjár-
lög, sem nálgast 200 milj , mætti
vera henni áminning um, hvert
komið er. Annað hvort er nú
fyrir hana að rísa gegn óhófs-
eyðslunni og misnotkuninni á
ríkisfé ellegar að lífskjör henn-
ar verða stórlega þrengd og at-
vinnulíf hennar sligað með
sívaxandi sköttum og tollum.
Erleudar fréttir.
(Framhald af 1. siöu)
málaviðhorfið í heiminum.
Hann deildi þar hart á kom-
múnista. Ekkert orð er eins mis-
notað og lýðræði, sagði hann.
T. d. kalla kommúnistar allt
Iýðræði, þar sem þeir stjórn,
en misheppnist þeim einhvers
staðar að brjótast til valda,
kalla þeir stjórnarfarið þar fas-
isma, eins og t. d. í Grikklandi.
Hann átaldi mjög rússnesku
blöðin og sagði þau vera að
byggja í kringum Rússa múr
fáfræði og tortryggni.
Fjórir hægri flokkar í Frakk-
landi hafa myndað með sér
bandalag i kosningum. Kalla
þeir sig flokk de Gaulle og
segjast berjast fyrir stefnu
hans í stjórnarskrármálinu.
Tsaldaris forsætisráðherra
Grikkja reynir nú að mynda
stjórn á breiðra grundvelli en
áður.
„skák er tímafrek íþrótt, ef
maður á að fylgjast vel með“,
sagði Guðmundur að lokum.
Kaupfélög!
Höfum
fyrirliggjandi
stunguskóflur
V insamlegast
sendið oss
pantanir
sem fyrst.
Samband ísl. samvinnuf élaga
(jamla Síó
WATERLOO-
BRÍJIIV.
(Waterloo Bridge)
Hin tilkomumlkla mynd meö
Yivien Leigh,
Robert Taylor.
Sýnd kl. 9.
Sjöundi krossinn
Sýnd kl. 5 og 7.
Bönnuö börnum innan
16 ára.
< •««
tjýja Síi
(við Shúlaqötu)
GANGADREGLAR
Breidd 91 cm. Verð kr. 21.20 meterinn.
aitíma
Bergstaffastræti 28.
TÍMINN
kemur & hvert sveitaheimlli og
þúsundir kaupstaöaheimlla.enda
geflnn út i mjög stóru upplagi.
Hann er því GOTT AUGLÝS-
INGABLAÐ. Þeir, sem ekki
hafa reynt þaö, œttu aö spyrja
hina, er reynt hafa.
T Í M I N N
Lindargötu 9A, siml 2323 og 2353
Ósýnilegi
veggurinn.
(Den Osynliga Muren)
Vel leikin sænsk mynd, gerö
af GUSTAF MOLANDER.
Aðalhlutverk:
Inga Tidblad,
Erik Hell.
Bönnuö yngri en 12 ára.
TUNGLSLJÓS og KAKTUS.
Fjörug gamanmynd meö
Andrew’s-systrum og
Leo Carrillo.
Sýnd kl. 5 og 7.
7jarnarbíó
Verðlaun handa
Benna.
(A Medal For Benny).
Áhrifamikil amerisk mynd
eftir John Steinbeck og J.
Wagner.
Dorothy Lamour,
Arturo de Cordova,
J. Carol Naish.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
i > Byggingarsamvinnufélag Reykjavkur.
Fundur
< •
i'
-1
<»
< >
i Kaupþingssalnum mánudaginn 28. október 1946 kl. 8.30.
< >
<»
< >
< >
<»
< i
< >
Stjórnin. | [
FUNDAREFNI:
Þátttaka félagsins í byggingarsambandinu.
Önnur félagsmál.
HAPPDRÆTTI
SEM ALLIR ÍSLENDINGAR FAGNA
Nýtt!
; !
-rt' :
t dag hefst sala á iniðum í happdrætti
K. R., sem í eru nii nær ófáanlegir hlut-
ir, en hlutir sem nauðsynlegir eru
hverri f jölskyldu.
Hlutirnir eru:
■" < Isskápur, Þvottavél,
Strauvél og Eldavél,
allt rafknúið
ÚUU l!
Notiff þetta einstæffa tækifæri.
Verð miðanna er kr. 2.00. Dregið verður 1. desember n. k. — Enginn festur.
Miðarnir verða seldir af félögum K. R. og ýmsum verzlunum hér í bænum og Hafn-
arfirði.
BÆJARBÚAR OG AÐRIR!
Reynið heppnina og styrkið um leið eitt mesta velferðarmál þjóðarinnar —
ÍDRÚTTASTARFSEMINA.
Vinsamlegast.
Knattspyrnufélag Reykjavíkur