Alþýðublaðið - 14.06.1927, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 14.06.1927, Blaðsíða 2
2 ALBYÐUBLAÖiÐ ALÞÝÐUBLAÐIB kemur út á hverjum virkum degi. Afgreiðsla i Alpýðuhúsinu við Hverfisgötu 8 opin irá k). 9 árd. til kl. 7 síðd. Skrifstofa á sama stað opin kl. 9VS—IO'/s árd. og kl. 8—9 siðd. Simar: 988 (aigreiðslan) og 1294 (skriístoían). Verðlag: Áskriitarverð kr. 1,50 á mánuði. Auglýsingaverð kr. 0,15 hver mm. eindáliia. Prentsmiðja: Alpýðuprentsmiðjan (í sama húsi, sömu simar). Frá stórstúkuþinginu. Á stórstúkuþinginu var gerð svo feld samþykt: Að gefnu tilefni og samkvæmt sampyktum fyrri stórstúkupinga Jýsir stórstúkuþingið í Reykjavík 1927 yfir pví, að bannmálið er á- kveðið stefnumá! reglunnar, og telur pví skýlausa skyldu allra félaga Góðtemplarareglunnar að styðja og endurbæta bannlögin og aðrar áfengisvarnir, svo sem auðið er. Einnig sampykti þingið tillögur um að fá banrilögin bætt og eft- iriitið með peim aukið og fól framkvæmdanefndinni að gera gangskör að framkvæmdum þeirra, þar á meðal að því að fá á næsta alþingi flutt frumvarp um sérstakan dómara í áfengis- málum, að áfengisauglýsingar verði lögbannaðar, að heimild 'iækna til að gefa út áfengisseðla verði afnumin eða takmörkuð að minsta ,kosti, enda verði Hag- stofunni falið aö birta mánaðar- Jega í Hagtíðindunum sundurlió- aðar skýrslur um afhiendingu á- fengis til lyfjabúða og laitna og úr lyfjabúðum eftir læknisávísun (ef eða á meðan áfengislyfseðla- leyfi er ekki afnumið), að það ákvæði verði sett i lögin um veit- ingáleyfi og gistihúshald, að veitingamaður missi rétt til veit- inigaleyfis við fyrsta brot á á- fengislöggjöfinni, að flutt verði þegar á næsta alþingi frumvarp um, aö hneykslanlegt framferði embættismanna, hvort sem það stafar af áfengisnautn eða öðr- um sökum, varði viðurJögum samkvæmt 144, gr. h.igningarlag- anna, og sömuleiðis, að athuguð verði nauðsyn á samsvarandi á- kvæðum um yfirmenn á skipum og þeim, er nú giida um biíreið- arstjóra, og þá komið á framfæri frumvarpi þar um. Þá vaT og" samþykt að krefjast þess, áð ekkert áfengi sé flutt inn sam- kvæmt Spánar&amningunum án þess, að upprunavottorð fylgi þvi, -— svo að ekki sé flutt vín frá öðrum Iöndum í blóra við Spán, enda er óhæfan nóg samt —. Einnig samþykti stórstúkuþingi'ð að krefjast þess af ríkisstjórn- inni að hafa fullkomið eftirlit með áfengisverzluninni og minti sérstaklega á nauðsyn rannsóknar á því, hvernig standi á rýrnuninni miklu, sem hvaðj eftir annað hefir reynst á birgðum hennar, einnig, að takmörkunin, sem síðasta al- þingi samþykti að gerð væri á útlánum úr henni, þurfi að ná til útsalanna, en ekki að eins til stórsölunnar. Nákvæmt eftirlit sé haft með ölgerð og innflutnimgi öls ; stjórnarvöldin gangi ríkteftir, að áfeng hárvötn séu gerð alveg óhæf til drykkjar; tollgæzlu sé komið á sem atlra viðast; bann- gæzLa sé aukin og efld sem mest, þar á meðal sérstaklega á Siglu- firði. ÁfengisdrykJdr verði ekki um hönd hafðir í veizlum, sem haldnar eru að tilhlutun ríkis- valdsins, þar á meðal bæjar- eða sveitar-félaga. í frásögn hér í blaðinu í gær átti að standa, að 31 tóku há- stúkusti’gið (gerðust félagar al- þjóðahástúkunnar), eTi það níis- prentaðist; stórstúkustigið. Störstúkuþinginu lauk í dag. Rannsóknirnar að Eergþópsh¥((li. Er mér hafði borist í hendur Alþýðublaðið frá 7. þ. m., bað ég fornfræðing hr. Hans Kjær að gefa mér nánari upplýsingar við- víkjandi hinni fyrirhuguðu ferð Irans til Islands í sumar og jafn- tramt að upplýsa, undan hvaða rótum þessi rannsóknarferð hcms væri runnin. Þ'essu svarað"i hr. Hans Kjær mér bréflega daginn eftir, og fer bréfið hér á eftir: „Af tilefni spurningar yðar til mín í gær vil ég gjarnan taka það fram, er nú greinir: ' Ferð mín til íslands í sumar er, eins og sézt á hánni stuttu frétt, er simuð var til íslenzkra biaða, hrein-vísindalegs eðlis og af persónulegum toga spunnin. Það er ósk mín að vera viðstadd- ur rannsóknimar á Bergþórshvoli eða svo lengi, sem tími vinst til, í fullkomnu samráði og sam- vinnu við þá, er stjóma útgreftr- inum á Bergþórshvoli, — þ. e. a. s. viÖ Matthías þjóðminjavörð Þórðarson, svo að ég á þann veg fái skýrar hugmyndir um hús- Jn í Thy, sem ég var svo hepp- inn að fínna rústimar af og eru einistök í sinni röð í Norður-Ev- rópu; þau eru að vísu eldri, en seninilega á sama sviði þróunar hins norræna húss eins og hús íslands á fyrri hluta miðalda. Geti ég aftur á móti við þetta tæki- færi orðið að einhverju liði með sérþekkingu minni eða á annan veg, væri mér það kært. Fexð mín er í engu sambandi vi'ð þá íslenzku forngripi, sem í Danmörku eru.“ Eins og lesa má í bréfinu, eru það engin stjórnarvöld, er beðið hafa Hans Kjær að taka þátt í þessum fyrirhuguðu rannsóknum að Bergþórshvoli, heldur er það persónuleg ósk ‘hans -- er hann verður staddur á íslandi hvort sem er, — að fá að vera með við rannsóknir þessar sem vís- indamaður til nánari skýringa öðmm atriðum fornfræða, er hann hefir haft mjög með höndum. Það er þá heldur ekki hans meining að flytja neitt á burt með sér af því, er kynni að finnast á áður- nefndum stað. — Það verður því naumast talið amiað en almenn kurteisi að veita honum leyfi til þess sem vísindamanni að vera viðstaddur þessar rannsóknir, enda geri ég ekki ráð fyrir, að nein þjóð myndi neita slíkri beiðni, enda er hér ekki að tala um launungarmál. KhÖfn, 20. maí ’27. Þorfinnur Kristjánsson. Athngasemd. Alþýðublaðið er hónum ágæta sámverkámanni sínum, herra Þor- fínni Kristjánssyni, þakklátt fyrir, að hann hefir knúÖ fram þessa yfirlý&ingu Hans Kjærs fomgripa- varðar, en satt að segja upplýs- ir hún ekkert um það, sem máii skiftir um för hans hingað. Héf- ir herra Kjær tekið hana upp hjá sjálfum sér? Og sé svo ekki, hver er það þa, sem hefir komið nonum af stað? Hver borgar ferðalag hans? Hefir hann styrk úr nokkrum sjóði til þess og hverjum? Hver borgar útgröftinn á Bergþórshvoli ? Er það íslenzka ríkið? Það getur varla verið, því að ekki er neitt fé veitt til þess á fjárlögunum. Og sé ekkert fé til þess á fjárlögunum, þá verður verkið auðvitað að bíða, þangað til þingið veitir féð; það liggur ekkert á; rústirnar skemmast ekkert, þó að þær liggi eitt ár til í jörðu. Það er auðvitað nokkuð skrítin meinloka hjá fornfræðingi aö búast við því, að nokkuð sé ) á Bergþórshvolsrústunum um ' tóftirnar i Thy að græða; þó að ekkert annað væri, þá er aidurs- munurinn of mikill til þess, að það geti verið. Hitt er og, að það er gersamlegur misskiíningur, að íslenzk fornhús séu af norræn- um uppruna; þau eru af kelt- neskum uppruna, og pvi er ekk- ert á þeim að græða fyrir herra Kjær við rannsóknir hans á hús- um í Thy. Og þetta hlýtur hann að vita. Hitt er engin fyrirsögn, að hann flytji ekki út forngripi, því að það banna fornmenjalögin. Meðan þessum spurningum er ó- svarað, er þa'ð engin skylda hvorki fyrir kurteisi sa'tir né aðr- ar að taka beimsókn þessa danska fornfræðings með neinum þökk- um í landi, þar sem enn má sjá spor Daniels Bruuns í snjónum, og þar sem engin þörf virðist á þessu ferðalagi hvorki fyrir hann né aðra. Skiptapl Græiilaníl. (Tilkynning frá sendiherra Dana.) HaJdið er, að eimskipið „Hugo“, sem Kryolit-félagið grænlenzlta hefir á leigu, riafi farist á heim- leið frá Ivjgtut. Liðnir eru 19 dagar, síðan skipið fór frá Ivig- tut, en venjulega fara 12 dagar-í þá ferð. Frá landsfógetanum í Godthaab er símað, að „Islands- falk“ liafi séð olíuklætt lík á reki, og að gufuskipið „Gustav Ho)m“ hafi séð björgunarbát af skipinu. Á skipinu voru 18 menn, allir Danir. „Islands Falk“ og önnur skip eru nú að leita að liinu horfna skipi. Lúðrasveif ReyijavíkHr er glæsilegur ávöxtur af starfi og samtökum nokkurra manna, sem hafa fundið hvöt hjá sér til að verja tómstundum sínum tif að þjóna listhneigð sinni og með áhuga og ósérplægni kosfa’ð kapps um að fullnægja kröfu tímanna um göfgandi, mentandi og upp lyftandi hljómiistarstarf almenningi til hressingar, hvíldar og huglyftingar frá áhyggjum, striti og dægurþrasi lífsbarátt- unnar. Þessir menu eru allir að stjórnandanum undan skiTdum, sem «gefur sig eingöngu við hljómlistarstarfsemi fyrir laun af skornum skamti, handiðnarmenn, verzlunarmenn og verkamenn, sem vinna fyrir sér og sínum fyr- ir takmörkuð laun stéttar sinnar. Þeir offra hvíldartíma sínum og tómstundum til starfs í Lúðra- sveitinni og oft jafnvel tíma frá nauðsynjaverkum, ef svo ber undir. Starf þeirra kostar fé þar að auki. 'Það útheimtir hljóðfæri, nótur, húsnæði o. fl., sem þeir eru ekki færir um að leggja af mörkum auk starfsins. Það er skylda almennings að fullnægja þeirri þörf. Lúðrasveitin hefir jafnan hiiðrað sér hjá að gera kröfu um þetta, nenm þegar ó- hjákvæmilegt hefir verið, og þá hefir því jafnan verið vel tekið. Þrátt fyrir það, þó að langt sé: nú, síðan Lúðrasveitin minti al- menning á skyldu hans gagnvart henni, hefir hún fjölgað hjá sér hljóðfærum, staðið þungan straum af skuldaafborgunum húss síns. og starfað svo, að nú fullnægir hún kröfum tímans eins vel og nokkurn tíma áður. En nú er henni þörf fjár. Þess vegna ætlar hún í kvöld kl. 8V2 að gefa ai-. menningi færi á að sýna viður-- kenningu sína og kaupa af henni merki á 50 aura, sem ungar stúlkur munu ganga með á miili manna, meðan, Lúðrasveitin Ieik- ur úrvalslög, útlend og innlend. Oft er þétt skipað um Austur- völl, er Lúðrasveitin lætur til sín heyra, og væntanlega verða þar nú ekki færri en flestir hafa ver- ið og allir með merki Lúðrasveit- arinnar. Það verðskuldar him sannarlega. „Réttur", tímarit, feest í bókabúðinni á Laúgavegi 46. Gérist áskrifend- ur!

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.