Tíminn - 17.12.1946, Blaðsíða 1
RITST J ÓRASKRIF'STOnTTi
EDDTXH 'BI. Lln^ .rvötu « <«■
Slmax 2363 or 4373
AFGREIÐSL.V ENNHRJM'1.4
OG auglýsingahk . hv«t« >•
EDDUHOSL Lindargðtti «
Siml 2323
30. árg.
Reykjavík, þriðjudaglnn 17. des. 1946
232. blað
Síldarverksmiðja á Norðaustur-
landi, sunnan Langaness
Frv. frá fimm þingmönnum Austfirðinga.
Fimm þingmenn Austfirðinga, Halldór Ásgrímsson, Lúðvík
Jósefsson, Eysteinn Jónsson, Páll Þorsteinsson og Barði Guð-
mundsson, hafa lagt fram í neðri deild frv. um byggingu síld-
arverksmiðju á Norðausturlandi sunnan Langaness. Frumvarp-
ið hljóðar á þessa leið:
Tólfmannanefndin hætt störfum:
Þora nú Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu-
flokkurínn loks að taka höndum saman?
Ríkið lætur reisa 5—10 þús.
mála síldarveksmiðju á Norð-
austurlandi sunnan Langaness.
Skal verksmiðjunni nánar val-
inn staður að undangenginni
rannsókn um, hvar hún er bezt
sett með tilliti til síldveiðisvæð-
isins.
Til byggingar verksmiðjunnar
heimilast ríkisstjórninni að taka ;
allt að 10 millj. kr. lán. Byrjaðj
skal á byggingarframkvæmdun-
um á árinu 1947.
Um stofnun og rekstur verk-
smiðju þeirrar, sem um ræðir í
lögum þessum, fer samkvæmt
lögum nr. 1, 1. jan. 1938, um
síldarverksmiðjur ríkisins.
í Greinargerð frv. segir:
Það er gamalt áhugamál Aust-
firðinga, að byggð verði stór
síldarverksmiðja á Norðaustur-
landi sunnan Langaness. Hvað
eftir annað hefir fiskifélags-
deildin eystra, útgerðarmenn og
Fjórðungsþing Austfirðinga-
fjórðungs sent Alþingi og ríkis-
stjórn áskorun um byggingu
slíkrar verksmiðju. í síldarverk-
smiðjumálunum munu Austfirð-
ingar ætíð hafa aðhyllzt það
sjónarmið, sem ýmsir fróðir
menn í þessum málum hafa
haldið fram, að rétt væri að
hafa flestar síldarverksmiðjurn-
ar nálægt miðju síldveiðisvæð-
inu, en jafnframt afkastamikl- i
ar verksmiðjur nálægt jöðrun-
um austast og vestast. Vegna
austurveiðisvæðisins hafa því
Austfirðingar talið, að þyrfti að
byggja verksmiðju austan
Langaness.
Nú eru nýjar stoðir runnar
undir þessa kröfu. Með stór-
auknum síldveiðiflota er orðin
knýjandi nauðsyn að byggja
stóra verksmiðju sunnan Langa-
ness, svo að hið síldarauðuga
veiðisvæði þar nýtist eins og
verða má.
Það er vitanlegt, að sunnan
Langaness er árlega miklar síld-
argöngur, allt suður á Héraðs-
flóa, og veiðiskilyrði verða að
teljast þar mjög góð, meða!
annars vegna þess, hvað straum-
ar eru þar vægir.
Það má fullyrða, að þau síld-
veiðiskip, sem stundað hafa
aðallega veiði á þessum slóðum.
hafa oft aflað ágætlega og þá
sérstaklega þau skip, sem hafa
losað afla sinn 1 hina litlu verk-
smiðju á Seyðisfirði.
Vitanlega eru engar veiði-
skýrslur til, sem geta gefið hug-
mynd .um, hvaða veiðimagns
mætti vænta af svæðinu sunn-
an Langaness, því að vegna fjar-
lægðar frá verksmiðjum og.eins
sökum þess, hve erfitt er í viss-
um áttum að sigla hlöðnum
skipum norður fyrir Langanes,
þá sækja þau eðlilega ógjarnan
á þetta veiðisvæði, ef annars er
kostur. Á það ná benda, að í
norðanátt getur verið ágætt að
stunda veiði sunnan Langaness
og leggja þar upp afla, þótt ó-
gerlegt sé að vera við veiðar
norðan nessins eða sigla hlöðn-
um skipum t. d. norður til Rauf-
arhafnar, svo að ekki sé um það
talað, ef þarf að fara alla leið
til Siglufjarðar. Þá er augljóst
mál, hvað smærri síldveiðibát-
ar geta notazt betur við veiði
sunnan Langaness, ef þeir geta
lagt upp veiði sína í grennd við
veiðisvæðið. Síldveiðimenn munu
nú almennt vera búnir að gera
sér grein fyrir nauðsyn á skjót-
um framkvæmdum i þessu máli.
Eins og nú horfir við, virðist
horfa til vandræða, ef síldveiði-
flotanum er ekki gert auðvelt
fyrir að leggja upp veiði sína í
verkmsiðju sunnan Langaness.
Margir sjómenn fullyrða, að
síldveiðarnar s.l. sumar hefðu
orðið mun meiri, ef svo hefði
ekki verið að farið sem raun
varð á, að síldveiðiflotinn hóp-
aðist venjulega saman á litið
svæði, þar sem sildar varð vart,
og telja þeir, að stundum hafi
virzt svo, að síldin hefði þar
tæplega getað komið upp á yfir-
borðið fyrir þeirri miklu umferð,
sem þar var, og ef síld kom ein
hvers staðar upp, þá fengu að-
eins þau skip veiði, sem í kapp-
hlaupinu verða fyrst til að koma
veiðitækjum sínum í sjóinn. Á
sama tíma varð oft vart mikill-
ar sildar austan Langaness, en
(Framhald á 4. slðu)
ERLENDAR FRETTIR
Þingi sameinuðu þjóðanna
lauk í fyrradag. Á seinustu þing-
fundunum var samþykkt með
samhljóða atkvæðum tillaga um
afvopnunarmálið, þar sem ör-
yggisráðinu er falið að undir-
búa reglugerð um allsherjaraf-
vopnun og bann við framleiðslu
fjöldamorðvopna. Þá var sam-
þykkt að skora á öryggisráðið að
misnota ekki neitunarvaldið.
Fundi utanríkisráðherranna í
New York er nú lokið og verður
næsti fundur þeirra haldinn í
Moskvu 10. marz næstk.
Leon Blum hefir myndað
hreina flokksstjórn, sem nýtur
hlutleysis kommúnista og kat-
ólska framsóknarflokksins. —
Stjórn þessi er aðeins til bráða-
birgða eða þangað til þingið
hefir kosið forseta ríkisins 1
janúar.
Ýmsar fréttir
Bæjarráð hefir fallist á til
lögu húsaleigunefndar, að bær-
inn reyndi að festa kaup á
Camp Knox fyrir húsnæðislaust
fólk. Hafa 57 fjölskyldur, sam
tais 214 manns, leitað ásjár
nefndarinnar, vegna húsnæðis-
leysis.
Karlakór Reykjavíkur og is-
lenzka sendinefndin á þingi
sameinuðu þjóðanna munu í
dag leggja af stað heimleiðis frá
New York með flugvél.
Stefán Þorvarðsson, sendi-
herra íslands í London, er ný-
lega kominn hingað og mun
dvelja hér um stundarsakir.
Guðmundur S. Guðmundsson
skákkappi mun taka þátt í al-
þjóðaskákkappmóti, sem haldið
verður í Hastings á Bretlandi
um áramót. Brezka skáksam-
bandið bauð íslendingum að
senda einn mann á mótið og
kostar það dvöl hans.
Stjórn Sildarverksmiðja rikis-
ins hefir ákveðið að skipta fram-
kvæmdastjórastarfinu í tvennt
Hilmar Kristjónsson, sem verið
hefir framkvæmdastjóri, verð-
ur tæknilegur framkvæmda-
stjóri, en Sigurður Jónsson, sem
verið hefir skrifstofustjóri, verð
ur vlðskiptaframkvæmdastjóri.
Eöa biðla þeir áfram til
Á fundi tólfmannanefndarinnar, sem haldinn var í gær, flutti Ólafur
Thórs þá tilkynningu frá forseta tslands, að hann teldi þýðingarlaust
að halda áfram störfum tólfmamianefndarinnar, og myndi hann því
gera aðrar ráðstafanir. Það fylgdi ekki, hverjar þessar ráðstaf-
anir væru, en líklegt má telja, að forsetinn liafi snáið sár til stærsta
þingflokksins og falið honum stjórnarmyndun.
Vinnubrögðin í tólfmanna-
nefndinni.
Með endalokum tólfmanna-
nefndarinnar er lokið leiðinleg-
um þætti í stjórnarmyndunar-
tilraununum að þessu sinni.
Vinnubrögðin í tólfmannanefnd-
inni hafa leitt greinilega í ljós,
að fyrir Sjálfstæðisflokknum og
Alþýðuflokknum hefir það aldrei
vakað að koma upp þjóðstjórn
að þessu sinnl. Af hálfu forustu-
manna þeirra flokka hefir aldrei
verið ætlazt til annars en að
nefndin væri notuð sem eins
konar skjálkaskjól, er hægt
væri að kenna um dráttinn á
stjórnarmynduninni meðan ver-
ið væri að bræða saman gömlu
stjórnina að nýju.
í samræmi við þetta voru
störfin í tólfmannanefndinni.
Nefndarfundir voru ekki haldnir
nema endrum og eins, og þá
sjáldan, sem nefndin kom sam-
an, var séð um það, að nefnd-
inni gæti ekkert miðað að
markinu.
Hér fer á eftir yfirlit um
fundahöld nefndarinnar sein-
ustu dagana, sem gefa allgóða
hugmynd um störf nefndar-
innar:
4. des. Fundur að boði Sósial-
ista, en flokkarnir skiptust á að
boða fundi.
5. des. Enginn fundur boðað-
ur. Alþýðuflokkurinn átti að
boða fund.
6. des. Enginn fundur boðað-
ur. Alþýðuflokkurinn átti að
boða fund.
7. des. Enginn fundur boðað-
ur. Alþýðuflokkurinn átti að
boða fund.
8. des. Fundur.
9. des. Enginn fundur boðað-
ur. Sj álfstæðisf lokkurinn átti
að boða fund.
10. des. Enginn fundur boðað-
ur. SjálfstæðLsflokkurinn átti
að boða funfl.
11. des. FÚndur. Fulltrúar Al-
þýðuflokksins mættu ekki. —
Fundi því strax slitið.
12. des. Fundur boðaður af
Framsóknarflokknum. Fulltúar
Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu-
flokksins mættu ekki. Fundi því
strax slitið.
13. des. Enginn fundur. Sósl
alistar áj.tu að boða fund.
14. des. Enginn fundur. Sósí-
alistar áttu að boða fund.
15. des. Enginn fundur. Sósí-
alistar áttu að boða fund.
1G. des. Lokafundur.
Þetta yfirlit sýnir bezt, hve
lítill vilji hefir verið hjá and-
stöðuflokkunum til að láta störf
tólfmannanefndarinnar bera ár-
angur.
Raunveruleg saga stjórnar-
myndunarinnar.
Hin raunalega saga þeirra
stjórnarmyndunartilrauna, sem
hafa farið fram á Alþingi, er 1
stuttu máli þessi:
Þegar sósíalistar báðust lausn-
ar úr ríkisstjórninni af fullkom-
lega eðlilegum ástæðum, bar
hinum ráðherrunum í stjórn-
inni engin nauðsyn til að biðj-
ast lausnar og var raunar óeðli-
legt, að þeir gerðu það. Flokk-
arnir, sem að þeim stóðu, höfðu
meirihluta þings að baki sér og
milli þeirra var ekki minnsti
ágreiningur. Það mun líka hafa
verið vilji Alþýðuflokksins, að
ráðherrar sósíalista væru látnir
fara, en stjórnin héldi áfram,
eins og ekkert hefði gerzt. Inn-
an Sjálfstæðisflokksins var
einnig mikið fylgi fyrir þessu
og Ólafur Thors frestaði því
aðgerðum i málinu í 2—3 daga.
Á þessum tíma fóru fram for-
setakosningar i þinginu, er
bentu til þess að Sjálfstæðis-
flokkurinn og Alþýðuflokkur-
inn ætluðu sér að vinna saman.
Við prófkosningu í þingflokki
Sjálfstæðismanna i sambandi
við forsetakjörið kom þó i ljós,
að þeir menn, er vildu samvinnu
við sósíalista, voru enn í meiri-
hluta, því að Jón Pálmason fékk
11 atkv., en Gísli Sveinsson 9
atkv.
Eftir nánari athugun fór þó
svo, að þessir tveir flokkar
treystust ekki til að standa að
stjórn saman. Stjórnin var þvi
öll látin biðjast lausnar og sú
stefna ákveðin, að reynt skyldi
að fá sósíalista aftur til sam-
starfs. Flokksforingjunum var
hins vegar ljóst, að það myndi
taka langan tíma og vildu ekki
taka á sig óvinsældir af þeim
drætti. Þess vegna neitaði Ólaf-
ur Thors að reyna stjórnar-
myndun „að svo stöddu“ og
bannaði jafnframt öðrum
flokksmönnum sínum að reyna,
svo að ekki kæmist á stjórn
með öðrum hætti. Alþýðuflokk-
urinn mun einnig hafa lýst yfir,
að ekki væri tímabært, að hann
reyndi að mynda stjórn. Ráðið
var að finna upp tólfmanna-
nefndina, sem hægt væri að
kenna um dráttinn, meðan leit-
að væri sátta við sósíalista.
Sannleikurinn er sá, að það
er ekki vegna tólfmannanefnd
arinnar, heldur þessara sátta-
umleitana Sjálfstæðisflokksins
og Alþýðuflokksins við sósíalista
að stjórnarmyndunin hefir
dregist eins lengi og raun er á
orðinn. Eins og framangreind
fundaskýrsla tólfmannanefnd-
arinnar sýnir, hafa þessir tveir
flokkar átt svo annríkt við þess-
ar sáttaumleitanir, að þeir hafa
ekki mætt þar á fundum eða
frestað að kveðja þá saman, svo
að dögum skipti. Suma dagana
hafa sex þingmenn Alþýðu-
fiokksins setið á fundum með
Sjálfstæðismönnum uppi
stjórnarráði til að undirbúa
sáttatilboð til sósialista.
Hver reynist kjarkur
„sigurvegaranna“
Nú er komið að því, að Sjálf-
stæðisflokkurinn og Alþýðu-
flokkurinn geta ekki lengur
haldið þessum ástaleik sínum
uppi í skjóli tólfmannanefndar-
innar. Þessir flokkar sem ekki
| virðast ósammála um neitt, (sbr.
j skrif Mbl. og Alþbl. undanfarið)
og hafa þinmeirihl. að baki sér,
geta ekki lengur haldið þing-
inu aðgerðalausu og landinu
stjórnlausu með slíkum vinnu-
brögðum. Annaðhvort verða
• þeir að gera Sósíalistaflokknum
svo gott boð, að hann veiti
Ólafi fyrirgefningu syndanna og
fari inn aftur, ef þeir telja sig
ekki geta án þeirra verið, ell-
egar að þeir verða að setja rögg
í sig og stjórna í krafti þess
meirihluta, sem þjóðin veitti
þeim í seinustu kosningum.
Seinni afstaðan virðist ólíkt
karlmannlegri og drengilegri,
og raunar skylda þeirra, ef þeir
vilja standa við gefin kosninga-
• (Framhald á 4. slðu)
Héraðabönn draga úr
áfengisnautn
Aitnisbnrður liigrogl-
unnar á Siglufirði.
Vegna þeirrar fullyrðingar,
sem Morgunblaðið hefir tvívegis
farið með fyrir nokkru, í annað
skiptið eftir fjármálaráðherr-
ann, um lokun áfengisverzlun-
arinnar á Siglufirði í Sumar,
sem leið, sneri framkvæmda-
nefnd Samvinnunefndar bind-
indismanna sér til heimamanna
á Siglufirði méð fyrirspurn
þessu viðvíkjandi.
Nefndinni hefir nú borizt sím-
skeyti frá lögreglunni á Siglu-
firði, svohljóðandi:
„Samkvæmt beiðni um álit
lögreglunnar í Siglufirði, á því,
hvort lokun áfengisútsölu ríkis-
ins hér á staðnum hafi verið til
bóta og minnkað drylckjuskap
þann tíma, er lokunin stóð yfir,
vil ég taka fram: LögregJan
telur, að tvímælalaust hafi lok-
un sú á áfengisútsölu ríkisins
hér í Siglufirði, sem fram-
kvæmd var síðastliðið sumar,
orðið til stórbóta, enda bar lítið
á drykkjuskap þann tima, sem
lokað var.
í fáum orðum sagt, var bær-
inn allt annar bær þann tíma,
sem áfengisútsalan var lokuð.“
Siglufirði, 7. desember 1946.
Bjarni Jóhannsson,
yfirlögreg luþj ónn.
Alþingi sýnir málefnum bænda
furðulega óvirðingu
„Þar sá maður loksins ráðherra“.
í gær fór fram atkvæðagreiðsla vlð 1. umr. um frv. um breytlngu
á búnaðarmálasjóðnum og var fyrst greitt atkvæði um dagskrártil-
lögu frá Ingólfi Jónssyni. Tillagan var samþykkt með 15:13 atkv.
Með tillögunni greiddu atkvæði: Ólafur Thórs, Gunnar Thor., Garð-
ar Þorst., Ing. Jónsson, Jóh. Hafstein, Sig. Kristj., Hallgr. Ben., Jón-
as Jónsson, Stefán Jóh., Emll Jónsson, Ásg. Ásg., Áki Jakobsson,
Lúðvik Jósefsson, Katrín Thor. og Sig. Guðnason. — Gegn tillögunni
greiddu atkvæði: Allir Framsóknarmenn (nema Halldór Ásgrímsson,
er var farinn heim), Barði Guðmundsson, Gylfi Þ. Gíslason, Sigfús
Slgurhjartarson, Jón Sigurðsson, Gísli Sveinsson og Pétur Ottesen.
Sigurður Bjarnason sat hjá. Sex þingmenn voru fjarverandL
Þegar atkvæðagreiðslunni var lokið, leit Pétur Ottesen yfir til Ólafs
Thors og sagði: Þar sá maður loksins ráðherra. Ólafur er nú fáséður í
þlnglnu, nema eitthvert óþurftarverk standi þar til. Það þykir sér-
stök óvirðing við mál að visa þvi frá við 1. umr. Og hafa stjórnar-
flokkarnir sýnt vel hug sinn tU bænda með þessari afgreiðslu.
Atvinnubótavinna
hafin á Ísafirði
Atvinnubótavinna er nú haf-
in á ísafirði á vegum bæjar-
sjóðs. Vinna um 40 manns í
henni og er skipt um flokka
vikulega.
Þegar atvinnuleysisskráning-
in fór fram um mánaðamótin
seinustu, létu 115 menn skrá sig
atvinnulausa.
Viðskiptasamningur
við Pólverja
í siðastl. viku voru undirrit-
aðir í Varsjá viðskiptasamning-'
ar milli íslands og Póllands.
Samkvæmt samningnum kaupa
Pólverjar ull af fslendingum á
næsta ári fyrir 6.5 milj. kr., en
selja okkur kol fyrir 4.5 milj.
kr. Mismuninn greiða þeir með
kolum á árinu 1948.
Kunnugir telja, að hægt hefði
verið að ná miklu hagkvæmari
og víðtækari viðskiptasamning-
um við Pólverja, ef samið hefði
verið fyrr á árinu. En utanrík-
ismálaráðherrann var því mót-
fallinn og urðu því ýmsar aðrar
þjóðir fyrri til að semja við
Pólverja.
Þjófar fundnir
Fjórmenningarnir, sem lög-
reglan handtók nýlega, grun-
aða um innbrotsþjófnaði, hafa
nú játað á sig 15 innbrot og til-
raunir til innbrota. Rannsókn í
máli þeirra er ekki að fullu lok-
ið enn, en dómar munu bráð-
lega verða kveðnir upp.
<