Tíminn - 09.01.1947, Side 3
5. blað
TÍMIM, fimmtndagiim 9. janúar 1947
3
Dánarmlxmlng:
Guðmundur Halldórsson
bóndi á Saiidliólaferfu.
Þann 3. marz s. 1. andaðist
Guðmundur Halldórsson bóndi
á Sandhólaferju.
Fæddur var Guðm. 11. sept.
1878 að Syðri-Rauðalæk í
Holtum, og voru foreldrar hans
Halldór Halldiórsson bóndi að
Syðri-Rauðalæk og eiginkona
hans, Margrét Bárðardóttir,
ættuð frá Efra-Seli í Land-
sveit. Á tíunda árinu var Guð-
mundur, er hann missti föður
sinn. Mun föðurmissirinn hafa
haft sterk áhrif á hinn óharðn-
aða ungling, sem þá var næst
elztur systkina sinna og varð
þá að- taka á sínum veiku kröft-
um í þarfir lítt efnaðs heimil-
is. Tveimur árum eftir fráfall
Halldórs heitins, fluttist ekkj-
an frá Rauðalæk með barna-
hópinn. Ungur að árum kvaddi
Guðm. fæðingar og æskustöðv-
arnar, með hryggð og æsku-
vonir í brjósti. Lágu sporin í
vesturátt, niður með Rauða-
læknum, sem rann við túnið
heima, unz staðar var numið.
á bökkum Þjórsár á hinum
landskunna ferjustað, Sand-
hólaferju.
Það mun fljótt ha^a komið í
ljós, að ættjarðarástin var Guð-
mundi í blóð borin, hann flutti
hana með sér frá Rauðalæk í
nýja dvalarstaðinn, þangað,
sem hann hélt áfram sínum
æskuleikjum, ásamt systkinum
sínum, í víðsýni hins fagra
fjallahrings, sem í nokkurri
fjarlægð gerir útsýnið á Sand-
hólaferju svo heillandi, ekki sízt
á heiðríku vorkvöldi, þegar áin
rennur í ótal kvíslum í kyrrð
og ró vestan við túnið, en kvöld-
sólin varpar gullnum roða á
hlíðar Austurfjalla. Hér átti
Guðm. líka eftir að dvelja leng-
ur en aðeins stuttan tíma í
fögrum áfangastað, hér átti
hann eftir að lifa ævina alla.
í sveitinni var hann borinn, hún
var hans skóli, sem mótaði hann
og ól. Á Sandhólaferju kaus
hann að lifa lífinu, hann tók
þar við búi ásamt bró$ur sínum,
Ingvari, er móðir þeirra og
fóstri, Sigurður Jósepsson, hættu
búskap, 1924. Árið áður gekk
hann að eiga eftirlifandi konu
sína, Önnu Sumarliðadóttur.
Eignuðust þau sjö börn, fimm
syni og tvær dætur. Guðm. sál
var nokkuð við aldur er hann
hóf búskap á Sandhólaferju,
jörðin er erfið og útheimtir í
ríkum mæli árvekni og dugnað
þeirra, er jörðina nytja. Guðm.
átti eldheitan áhuga hins ósér-
hlífna manns, sem öllu er fús að
fórna fyrir heimilið, eiginkon-
una og börnin. Ást hans á þess-
um aðilum átti sér engin tak-
mörk. Hann vann því meira en
kraftarnir leyfðu, og skeytti
ekki hót þótt honum væri á það
bent, að mannsorkan og manns-
ævin eiga sér afskömmtuð tak-
mörk. En kraftar og líf Guðm.
höfðu skjlað sttnum dýrmæta
arði, arðinum, sem hann þráði
mest að eignast að kvöldi ævi-
starfsins, að koma börnunum
sínum vel á legg'. Svona leið
merkasti þátturinn í ævistarfi
Guðmundar á Sandhólaferju:
Persónu Guðm. þarf ekki að lýsa
fyrir þeim, er hann þekktu,
opnum örmum tók hann á móti
hverjum þeim er að garði bar,
vináttu nágranna sinna átti
hann alls staðar að fagna. Ég
get ekki skilið svo við þessi
minningarorð, að ég ekki flytji
hinum látna vini alúðarkveðjur
U. M. F. Ásahrepps, fyrir það
brautryðjendastarf, er hann
hóf á byrjunarárum þess félags,
við félagarnir fyr pg síðar
stöndum ávallt í þakkarskuld
við þá, sem gengu þar fyrstu
sporin. Guðm. naut þess mikla
heiðurs að vera gerður að heið-
ursfélaga í ungmennafélagi
sveitar sinnar, er hann varð að
hverfa frá félagsstörfunum.
Slíka viðurkenningu hljóta þeir,
sem öllu vilja fórna á altari
mætra félagssamtaka.
Og svo að lokum er ég lýk
þessum orðum mínum um Guð-
mund á Ferju dáinn, kemur
í hug minn atvik frá síðastliðnu
vori. Ég kom á fögru kvöldj
riðandi framan Þjórsárbakka
sunnan Sandhólaferju, sólin var
að hverfa á bak við Útfjöllin
(Framhald á 4. síSu)
og matseld og tala dálítið illa
um grannkonurnar. Ekki sé ég
að þessir vesalings sakleysingj-
ar geri mikið illt af sér. Svo
væru þá 200 miljónir barna og
áreiðanlega gera þau hvorki að
drepa né eyðileggja í stórum
stíl. Svo væru álíka mörg gam-
almenni og sjúklingar, sem ekki
hafa þrótt til slíks. Þá er af-
gangurinn ekki meira en 100
miljónir ungra manna, sem hafa
hreysti og getu til að fremja
afbrot. Af þessum 100 miljón-
um eru 90, sem stöðugt eru önn-
um kafnir og strita við að
framleiða mat og klæði úr
skauti jarðarinnar, og þeir hafa
ekki tima til að gera illt af sér.
í þessum 10 miljónum, sem þá
eru eftir, eru aðgerðarlitlir
menn, sem langar til að njóta
lfsins þægilega, hæfileikamenn,
sem gleyma sér við sín viðfangs-
efni, embættismenn, prestarnir,
greinilega fylltir áhuga á að
lifa dyggðugu líferni, minnsta
kosti á yfirborðinu. Raunveru-
lega vondir eru þá ekki nepia
nokk/úr þjóðmálaleiðtogar, ver-
aldlegir eða andlegir, sem aldrei
láta heiminn í friði og nokkur
þúsund landishornalýðs, sem
gengur á mála hjá þessum
leiðtogum. En það verður þó
enganveginn heil miljón, sem
fæst í þennan flokk og tel ég þó
stigamenn og ræningja með.
Það er því í mesta lagi einn
maður af þúsundi, sem kallast
getur vondur, og þó er hann
það hvergi nærri alltaf.
Það er því miklu minna illt á
jörðinni en maður heldur, þótt
það sé vitanlega of mikið“.
Þetta er í samræmi við það,
sem hann segir annars staðar
um hetjudýrkun og hernaðar-
ljóma:
„Meðan geðþótti fárra manna
getur látið drepa þúsundir
bræðra okkar, er sá hluti mann-
kynsins, sem haldinn er hetju-
dýrkun, það hræðilegasta af
öllu í ríki náttúrunnar.“
/
Þannig skrifaði þessi franski
skörungur, sem með penna sín-
um gróf grunninn undan harð-
stjórn og einræði.
Með svona skrifum reif hann
niður rótgrónar skoðanir, sem
stjórnarhættir og mannfélags-
skipun samtiðarinnar hvíldi á.
En í hjarta sínu dáði hann
manneðlið, óspillt og heilbrigt,
og trúði á framför mannkyns-
ins. Hann deildi á trúarbrögðin
og tignaði skynsemina, en þó
aðhylltist hann þá skoðun að
framför mannsins og þroski
leitaði sameiningar við alföður,
algóðan og alvitran guð.
ALICE T. HOBART:
Y ang og yin
Það þurfti mikinn sálarstyrk til þess að neita hinum aðþrengdu
mönnum um ögn af ópíum, þegar þeir grátbáðu um það. Verið
gat lika, að þeir freistuðust til þess að selja þeim það. /
XVIII.
GLUGGAR hússin Voru opnir um nætur. En Peter var vanur
að vakna, hvenær sem var. Hann hrökk upp við það, að
porthurðin var knúð með krepptum hnefum. Éitlu síðar
var drepið á dyrnar á húsi hans. Hann flýtti sér út að glugganum,
svo að Díana vaknaði ekki við höggin og kallaði til mannsins,
að hann kæmi undir eins til dyra.
Þegar hann lauk upp hurðinni, stóð dyravörðurinn úti fyrir.
„Frá wai kúó ren, hinum ókunnu mönnum," sagði hann og rétti
Peter bréf.
Peter las bréfið við ljósglætuna frá luktinni, sem dyravörður-
inn hélt á. Það var frá amerískum tóbakssölumanni. Maður úr
starfsliði hans var fárveikur, sagði hann, og fólk óttaðist, að hann
væri með kóleru. Gæti hann komið strax?
Bækistöðvar þessarar tóbaksverzlunar voru utan við borgina
við skipaskurðinn, sem var lífæð utanlandsviðskiptanna. Borg-
arhliðunum var lokað á hverju kvöldi áður en myrkrið skall á, svo
að bréfið hlaut að hafa verið dregið yfir múrana í körfu. Peter
varð að fara eins að, ef hann átti að komast til sjúklingsins áður
en birti af degi.
Það var þó ekki hættulaust. Vínviðarteinungar og kjarr hafði
náð fótfestu í sprungum og augum í borgarmúrnum, og hin flétt-
aða karfa, sem hann sat í, festist, og við það slaknaöi á tauginni,
sem þegar var orðin gerslitin. En samt sem áður komst hann heill
á húfi til jarðar, skreiddist upp í burðarstólinn, sem beið hans
undir múrnum, og skipaði burðarkörlunum að hraða för sinni
sem mest þeir máttu. Ef maðurinn var veikur af kóleru, gat hver
mínúta verið dýrmæt. Innan fárra stunda gat hann verið liðið
lík, ef hjálpin barst ekki nógu fljótt.
purðarstóllinn vaggaðist eftir hreyfingum burðarkarlanna, sem
hlupu við xót yfir þögla sléttuna. Að vitum Peters lagði sterkan
eim frá nýplægðum hrisgrjónaekrum — einum hinnar svörtu
moldar, sem hafði verið ræktuð um margar aldir, var allt öðru
vísi en þefurinn af mold hinna nýsnortnu akurlenda í Banda-
ríkjunum. Hann heyrði froskana kvaka í vatnspollunum í plóg-
förunum, og einstaka fugl, sem var að vakna af nætursvefninum,
skríkti af kátínu.
Burðarkarlarnir námu staðar og létu stólinn siga til jarðar.
Stórt múrsteinshús bar við dimman himininn. Einn af starfs-
mönnum fyrirtækisins beið læknisins á dyraþrepinu. Peter var
órótt' innan brjósts. Hann hafði ekki séð neinn Bandaríkjamann,
nema trúboðana, siðan um haustið.
Sjúkligurinn var eiginlega barn að aldri, nýkominn til Kína.
Hann var mjög óttasleginn.
„Þetta er ekki kólera,“ sagði Peter rólega, þegar hann hafði
skoðað hann rækilega. Ótti sjúklingsins rénaði undir eins — hið
xalda myrkur dauðans þokaðist ögn fjær beði hans.
„En þetta er illkynjuð blóðsótt. Þetta verður langvinn sjúk-
dómslega."
„Ég sætti mig við það — ef ég bara lifi þetta af .... Ef þér
viljið bara lofa því, að ég skuli ekki deyja ...,“
Peter varð hálf-hvumsa við. Hann var óvanur því, að sjúklingar
hans óttuðust dauðann. Slíks hafði hann aldrei orðið var síðan
hann kom til Kína. Og' sjálfur hafði hann smám saman tileinkað
sér æðruleysi Kínverjanna og hetjulund andspænis sjúkdómum
cg dauða.
í langan tíma fór Peter daglega út í bækistöðvar tóbaksverzlun-
arinnar til þess að hjúkra og liðsinna þessum ameríska dreng —
Randolp hét hann. í siðasta skiptið, sem hann kom, sat sjúkling-
urinn einn í dagstofunni. Hann var lotinn í herðum, axlirnar
slappar og hendurnar héngu máttvana niður með stólbríkunum.
Hann þolir ekki einveruna, hugsaði Peter. Og þó hann ætti enn
cunninn meginhluta af dagsverki sínu, settist hann hjá drengnum
og fór að tala í hann kjark. Hann sagði honum frá sjúkrahúsi
sínu, kínversku sjúklingunum og hinum ótrúlegu uppátækjum
þeirra. Og smám saman gleymdi drengurinn þeirri tortryggni og
andúð, sem að jafnaði ríkir milli trúboða og kaupsýslumanna.
„Viltu ekki reykja?“ spurði’hann.
„Jú — þakka þ^r fyrir,“ svaraði Peter. ____
„Vindil eða sigarettu?"
,',Vindil.“
Randolp flýtti sér að ná í beztu vindlana, sem völ var á. Hann
liómaði af ánægju. Þakklæti hans í garð læknisins breyttist á
svipstundu í virðingu og vináttu. Hann átti því að venjast að
Irúboðarnir teldu tóbakið eina af tálsnörum djöfulsins og köstuðu
sök á hann fyrir að stuðla að útbreiðslu þess. Hann hafði aftur
á móti fellt þann dóm yfir trúboðunum, að þeir væru þröngsýnir
ofstækismenn. En þessi læknir var skilhingsríkur og hjartahlýr
maður, þótt hann starfaði í trúboðsstöð.
Það var orðið ærið langt síðan Peter hafði reykt vindil. Laun
lians voru klipin við nögl, og hann hafði ekki átt annars úrkostar
en hætta alveg reykingum. En þess betur naut hann nú þessa
góða tóbaks og þeirrar kumpánlegu hlýju, sem einkenndi fram-
komu piltsins. Hann hló innilega, þegar Randolp lýsti fyrir honum
ferðum sínum um fylkið, skiptum sínum við hina kínversku kaup
menn og bendingamálinu, sem hann hafði sjálfur fundið upp.
„Þeir halda, að þetta sé gamansemi, og það er þeim að skapi.
Þeir eru í rauninni ágætustu náungar. Og skollanum slungnari í
viðskiptum." — Nú kom upp kaupmannshugurinn í Randolp. ■
„Viltu heyra nýja kjörorðið okkar? Sigaretta upp i hvern Kínverja,
karla, konur og börn, áður en tiu ár eru liðin! Hugsaðu þér,
hversu risavaxin viðskipti það yrðu! Kínverjarnir kváðu vera
fjórar miljónir.“
KeðjuráFarmall
dráttarvélar
Samband ísl. samvinnuf élaga
Tilkynning
frá Viðskiptaráði uni útgáfu nýrra
gjjaldeyris- og imiflutuingsleyfa.
Viðskiptaráðið hefir ákveðið að veita ekki fyrst um
sinn, á meðan það afgreiðir endurútgáfu leyfa frá
fyrra ári, ný gjaldeyris- og innflutningsleyfi fyrir al-
mennum vörukaupum, nema sérstaklega tilheyri út-
flutningsframleiðslunni.
Ráðið mun því synja öllum umsóknum sem til þess
berast, ef ekki er eins ástatt um og að framan segir.
Hins vegar mun ráðið auglýsa /sftir umsóknum í til-
tekna vöruflokka strax og það er tilbúið til þess að af-
greiða slíkar umsóknir.
Reykjavík, 7. janúar 1947.
viðskiptarAðið.
ÍÍÉPI^Íi' ■
FASTEIGNASKATTUR
til bæjarsjóðs Reykjavíkur árið 1947:
Húsaskattur, lóðarskattur, vatnsskattur, svo og
leiga af íbúðarhúsalóðum, féll í gjalddaga 2. janúar.
Eigendur fasteigna og lóðarleigjendur eru beðnir
að athuga, að oft vill við bregða, að gjaldseðlar komi
ekki til skila, einkum ef eigandinn býr ekki sjálíur
í hinni skattskyldu húseign, eða skattskyld lóð ér ó-
byggð. .
GreiðiÖ fasteignagjöldin til bæjargjaldkerar.s í
Reykjavík nú þegar.
Skrifstofa borgarstjóra.
\
Tilkynning
frá Viðskiptaráði
Viðskiptaráðið vill hér með beina því til stofn-
ana og einstakra manna, að ráða eigi hingað til
lands erlenda listamenn, án þess að hafa áður
tryggt sér leyfi ráðsins fyrir þeim gjaldeyri, sem
nauðsynlegur kann að véra í þessu skyni.
Enn fremur eru menn varaðir við því að slofna
til hvers konar hópferða til útlanda, án þess að haía
fyrirfram fengið loforð Viðskiptaráðs um gjald-
eyri til fararinnar.
Reykjavík, 6. janúar 1947.
viðskiptarAðid.
Tapast hefir:
brúnn hestur, 5 vetra. Mark: heilrifað hægra, sneitt
framan vinstra. Dökkjörp hryssa, 5 vetra. Mark: Sýlt
bæði eyru.
Þeir, sem kynnu að verða varir við annað eða bæði
þessi hross, eru vinsamlega beðnir að láta vita til
Kr. Arndal- Reykjavík, sími 1327.