Tíminn - 10.01.1947, Blaðsíða 4
FRAMSÓKNARMENN!,
Munið að koma í flokksskrifstofima
REYKJAVÍK
Skrifstofa Fraihsóknarflokksins er í
Edduhúsinu. við Lindargötu Sími 6066
10. JADí. 1947
6. blað
Ú l
œnum
í dag:
Sólin kemur upp kl. 10.09. Sólarlag
kl. 15.02. Árdegisflóð kl. 750. Siðdegis-
flóð kl. 20.10.
í nótt:
Næturakstur annast bifreiðastöðin
Hreyfill, sími 6633. Nætyrlæknir er í
læknavarðstofunni í Austurbæjarskól-
anum, s,mi 5030. Næturvörður er í
Reykjavíkur Apóteki, sími 1760.
Útvarpið í kvöld:
20.00 Préttir. 20.30 Útvarpssagan: „í
stórræðum vorhugans" eftir Jonas Lie,
XI. (séra Sigurður Einarsson). 21.00
Píanó-kvintett útvarpsins: Píanókvint-
ett í Es-dús eftir Hummel. 21.15 Erindi:
Um bókasöfn á íslandi, II, (Björn Sig-
fússeon háskólabókavörður). 21.40 Tón-
leikar: Norðurlandasöngmenn syngja
(plötúr). 22.00 Préttir. 22.05 Symfóniu-
tónleikar (plötur): a) Gátutilbrigðin
eftir Elgar. b) Pianókonsert 1 Es-dúr
eftlr Ireland. 23.00 Dagskrárlok.
Ólafur gafst upp
(Framhald af l. síöu)
ustu hans, ef aðrar tilraunir
mistakast.
Viðræður sósíalista við Ólaf
Thors um stjórnarmyndun und-
ir forustu hans, gefa til kynna,
að þeim sé ekki jafnmikil al-
vara um stjórnarsamstarf gegn
braskarastéttinni og oft mætti
ætla af Þjóðviljanum. Flokkur-
inn leikur þar bersýnilega
tveimur skjöldum, eins og
gleg^st sést á því, að á sama
tíma og hann ræðir við Ólaf
Thors, býðst hann til að styðja
Alþýðuflokksmann tU- stjórnar-
myndunar! Flokkur, sem þann-
ig er reiðubúinn til að styðja
samtímis tvær ólíkar stjórnar-
myndanir og virðist næsta sama,
hvor leiðin er heldur valin,
verður eðlilega litinn með tor-
tryggni. Þetta kann að ein-
hverju leyti að vera afleiðing
þess, að mjög ólíkra sjónarmiða
gæti innan Sósíalistaflokksins
— byltingarsinnarnir, þ. e. hinir
hreinræktuðu - kommúnistar,
vilja fá niðurrifsstjórn með
Ólafi Thors, svo að hrun þjóð-
félagsins verði ekki umflúið, en
aðrir flokksmenn vilja róttæka
umbótastjórn. Ekkert verður
sagt um, hvor armurinn er
sterkari, en sá síðarnefndi er
miklu fjölmennari'.
Afstaða Alþýðuflokksins er
svo kunn, að ekki þarf að lýsa
henni. Margir foringjar hans
'hafa verið slegnir þeirri blindu,
að þeir hafa talið nána sam-
vinnu við braskarastéttina
helzta sáluhjálparveginn, enda
þótt sú spilling, sem af slíku
hlýzt, sé hinn óheppilegasti
jarðvegur fyrir umbótasaman
lýðræðisflokk, eins og Alþýðu-
flokkurinn hefir viljað vera. -
Sjálfstæðisflokkurinn hefir að
undanförnu verið ófær til allra
giftusamlegra starfa, vegna al-
gerrar yfirdrottnunar brask-
arastéttarinnar í flokknum. —
Hvort hann losnar úr þeim álög-
um, þegar forustu Ólafs nýtur
ekki eins mikið og áður, skal
ósagt látið. En gerði flokkurinn
það, myndi hann verða heil-
brigðari og þjóðhollari flokkur.
Fullvíst er, að sérhver til-
raun, sem gerð verður til heil-
brigðrar stjórnarmyndunar,
mun mæta ófyrirleitnustu
andstöðu frá þeim öfl-
um, sem dyggast hafa fylgt Ól-
afi Thors, þ. e. braskaravaldinu
í Sjálfstæðisflokknum, bylting-
armönnum Sósíalistaflokksins,
og ýmsum afvegaleiddum leið-
togum Alþýðuflokksins.
ítmurnmmjnmnmmnttttttuntmt
t r i c o
er óeldfimt hreinsunarefni, sem
fjarlægir íitublettl og allskonar
óhreinindl úr íatnaði yðar. —
Jafnvel ííngerðustu silkiefni
þola hreinsun úr því, án þess
að upplltast. — Hreinsar einn-
lg bletti úr húsgögnum og gólí-
teppum. Selt 1 4ra oz. glösum á
kr. 2.25. —
Fæst í næstu búð. — Heild-
sölubirgðir hjá
fHEMMX
tt«ttm»»:»»»:»n»»»tt»»»»»»«t
Erleut yfirlit
(Framhald af -1. siðu)
verjum, en gat strokið þaðan til
Síam, en þaðan var honum vísað
burtu eftir nokkra dvöl. Næst
skaut honum upp í Hongkong og
hét hann þá Nguyen Tan Thank.
Þaðan skipulagði hann mis-
heppnaða uppreist í Indo-Kína.
Á stríðsárunum skipulagði hann
mótspyrnuhreyfingu gegn Jap-
önum og vann sér þá slíkt orð,
að hann var orðinn foringi þjóð-
ernissinna er stríðinu lauk.
Indo-Kína málin valda mikl-
um deilum heima í Frakklandi.
Kommúnistar draga þar taum
þjóðernishreyfingarinnar og
stafar það vafalaust mikið af
því, að flokksbræður þeirra ráða
miklu í henni. Hinir flokkarnir
vilja yfirleitt halda í yfirráð
Frakka í Indo-Kína í lengstu
lög. Vel getur svo farið, að mál
þetta ráði talsverðu um frönsk
stjórnmál á næstunni, en ekki
væri það Frökkum til sóma.
Þeir ættu að hafa lært það af
Sýrlandsmálinu, að það er ekki
lengur neinn sæmdarvegur að
beita smáþjóðir ofríki.
Ormalyfin
(Framhald af 2. siðu)
'stakri meðferð fjárins fyrir og
eftir inngjöf, og með því að
hafa mótlyf við hendina. Þetta
brýndi Rannsóknastofan fyrir
bændum. Enginn kunni annað
ráð, sem betur dygði, — heldur
ekki Bragi Steingrímsson
Fyrir 4—5 .árum síðan var
farið að nota erlendis í tals-
verðum mæli nýja tegund
ormalyfs, fenotiasín. Flest um-
mæli um þetta lyf voru mjög
lofsamleg og fyrir 3 y2 ári gerði
ég ráðstafanir til að fá lyfið
hingað til lands. Síðustu árin
hefix lyfið verið fáanlegt hjá
okkur og hefþ: nú verið dreift
um 70.000 skömmtum til bænda,
nú síðast í nafni Rannsókna-
stofunnar á Keldum. Á sama
tíma mun lyfjaverzlun rikisins,
og ef til vill fleiri, einnig hafa
flutt inn fenotíasín, að vísu ekki
alveg sams konar og okkar.
Ég held þess vegna, að það
stafi af misminni, ef Bragi
dýralæknir heldur, að hann
hafi kennt íslenzkri bændastétt
að nota fenotíasín og þar með
forðað þeim frá eiturbrasi
Rannsóknastofunnar, en hann
segir í grein sinni: „Það hefir
tekið mig þrjú ár að fá bændur
til að notfæra sér bezta sauð-
fjárormalyf, sem enn þekkist".
Þegar nýjungar í lækningum
koma fram erlendis, er ef til
vill freistandi að „uppgötva þær
að nýju“ hér heima. Slíkar upp-
götvanir geta orðið tilefni til
snoturra fyrirsagna. Hitt skipt-
ir þó meiru máli, að nýjungar
séu prófaðar með opnum huga
við okkar skilyrði en síðan það
haft, sem sannara reynist. Þær
nýjungar, sem eru gagnlegar, í-
lendast næstum sjálfkrafa.
Samkvæmt þeirri reynslu, sem
fengin er, get ég trúað, að feno-
tíasín sé slík nýjung.
Björn Sigurðsson
læknir.
Yfirlýslng
(Framhald af 3. síðu)
þetta að segja: Umrædd bygg-
ing var afhent bæjarsjóði í því
ástandi er nefndin tók við
henni, ásamt öllum leiðslum,
hitalögnum og ofnum, og getur
svo hver sem vill lagt trúnað á
þá fjarstæðu að nefndin hafi
sent þangað vinnuflokk til að
vinna þar skemmdarverk með
sleggjum og járnkörlum.
Reykjavík, 21. des. 1946.
Sölunefnd setullðseigna.
KRAFTTALÍUR
fyrirliggjandl í eftirfarandl stærðum:
Fyrir ll/n tonn
- 2
- 3
5
Samband ísl. samvinnufélaga
(jamla Síó
Appassionata
Áhrlfamlkil og snilldarlega vel
leikin sænsk kvikmynd.
Að'alhlutverlfin leika:
Viveea Lindfors
Georg Rydeberg.
í myndinni eru leikln verk eftir
Beethoven, Chopin og Tschai-
kowsky.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
, Vijja Síí
(við Shúlaqötu )
Gróður í gjjósti.
(A Tree Grows in Brooklyn)
• Áhrifamikil stórmynd.
Sýnd kl. 9.
Chaplin-syrpan.
(Chaplin Festival).
Fjórar af hlnum alkunnu
stuttu skopmyndum, sem Char-
lie Chaplin lék í á árunum 1916-
18. Þær hafa nú verið gerðar að
tónmyndum og heita: „Inn-
flytjandinn", „Ævintýramaður-
inn“, „Við heilsubrunninn" og
„Chaplin sem lögregluþjónn".
Sýnd kl. 5 og 7.
Fjaðraherfi
9 og 15 fjaðra
Samband ísl. samvinnufélaga
TVÆB ÁGÆTAR BÆKUR
TIL TÆKIFÆRISG JAFA:
sólbrAb,
nýja ljóðabókln
eftlr GUÐMUND INGA.
KVÆÐI,
ljósprentun á æskuljóðum
HULDU skáldkonu.
Tjarharbíc
Eundónaborg
í lampaljósi
(Fanny by Gaslight)
Spennandi ensk mynd.
Phyliis Calvert
James Mason
Wilfred Lawson
Stewart Granger
Jean Kent
Margaretta Scott
Sýning kl. 5, 7 og 9
Uppeldisskóli
Sumargjafar
Ný deild tekur til starfa 1. fehrúar næst-
komandi.
Nokkrir nemendur geta enn komizt að. — Umsóknir
sendist Valborgu Sigurðardóttur, Ásvallagötu 28, er gefur
allar nánari upplýsingar í síma 5890.
ySSS$SSS$$SSS$$SSSSS$$$SS$SSSSSSSSSSSSSSSSSSSS$SSSSSSSSggSSSSSSSSSSS3SS<g3SSSS
TILKYNNING
%
Allir þeir, sem' eiga ógreidda i’eikninga á okkur frá
fyrra ári, pru vinsamlega beðnir að senda þá til okkar
%
til greiðslu fyrir 10. þessa mánaðar.
Flugmálastjóri
Rey kj a víkur f lug vallar.
Dálítil ferðasaga
(Framliald af 3. síðu)
mig alla leiðina yfir fjallið.
Nú hélt ég rakleiðis heim til
bæjar í Trostansfirði og kom
þar um rismál. Fékk ég þar að
venju hinar beztu viðtökur, og
sagði ég Bjarna af ferðum mín-
um. „Mér þykir ferð þín hafa
giftusamlega tekizt,“ sagði
Bjarni, „þú hefir komið niður
Norðdal, en gengið of mikið til
hægri handar, þvi hefðir þú
gengið nokkrum föðmum norð-
ar áður en þú hrapaðir hefðir
þú gengið fram af björgum og
látið líf þitt.“
Ég lagði mig nú til svefns um
stund áður en ég lagði af stað
heimleiðis. Ég kom á Bíldudal
um kvöldið alhress og laus við
allan ríg 'og allar harðsperrur
‘sem menn fá svo titt i slikum
ferðum sem þessum.
Að mér tókst ferð þessi jafn
Frá Hollandi
og Belgíu
E.s. „Rijnstroom44
frá AMSTERDAM 13. jan.
frá ANTWERPEN 15. jan.
(ef verkfallinu aflétt).
Einarsson,
Zoega & Co., h. f.
Hafnarhúsinu,
símar 6697 og 7797.
giftusamlega og raun varð á,
þakka ég fremur guði og fyrir-
bænum móður minnar en minni
eigin fyrirsjón.
Fám dögum eftir heimkomu
mína frétti ég lát móður
minnar.
TILKYNNING
frá skattstofu HafnarfjarÓar.
Atvinnurekendur og ALLIR aðrir, sem laun greiða,
sem samkv. 23. gj. laga um tekju- og eignarskatt eru
skyldir til að láta skattstofunni í té skýrslur um
starfslaun, útborgaðan arð í hiutafélögum og hlut-
hafaskrár, eru hér með minntir á, að frestur til að
skila þessum gögnum rennur út mánudaginn 20. þ. m.,
ella dagsektum beitt, sbr. 51. gr. laga um tekju- og
eignaskatt. Orlofsfé telst með iaunum.
Athygli skal vakin á breytingum þeim, sem gerðar
hafa verið á launamiðuryum, sem standa í samb. við
ákv. 122. og 123. svo og 112. og 113, gr. laga um al-
mannatryggingar, og ber að fylla þá út rétt og greini-
lega, ella bera atvinnurekendur ábyrgð á viöbótar-
skattgreiöslu vegna ófullnægjandi skýrslugjafa.
Framtöium skal skiia fyrir iok þessa mánaðar. Þeir
sem ekki hafa skilað framtölum fyrir þann tíma, og
ekki beðið um, eða fengið frest, verður áætlaður skatt-
ur, eins og lög mæla fyrir um.
Hafnarfirði, 9. janúar 1947.
SkaUstjórinii í HafnarfirÓi.
LAUS STADA
Staða landnámsstjóra samkvæmt lögum
„um laiidnám, nýbyggðir or endurbygg-
ingar í sveituin“, er auglýst til umsóknar.
Laun samkvæmt 5. f lokki a launalaga.
IJmsókitir skulu komnar í skrifstofu ný-
s' hýlastjórnar, Lækjargötu 14, fyrir 1. fe-
bráar n. k.
Nýbýlastjórn ríkisins
UTBREIÐIÐ TIMANN