Tíminn - 18.02.1947, Síða 1

Tíminn - 18.02.1947, Síða 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ÚTGEPANDI: FR AMSÓKN ARFLOKKURINN Símar 2353 og 4373 PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. RITST JÓRASKRIFSTOFUR: EDDDHÚSI. Llndargötu 9 A Símar 2353 og 4373 | AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A Síml 2323 31. árg. Koykjavík. þriðjudag'liin 18. febi*. 1947 33. blað ERLENT YFIRLIT: Kolaskorturiíin í Bretlandi Íhaldsiiienii uota lækifærið til að jafna g'amlar deilnr við náiiiuinálaráðherr- ann Seinustu fregnir frá Bretlandi benda til þess, að stjórninni hafi tekizt með ráðstöfunum sínum að vinna bug á sárasta elds- neytisskortinum, er hin óvenjulega hörkuveðrátta hefir valdið. Þetta. er ekki sízt að þakka kolanámumönnunum, sem hafa lagt á sig eftirvinnu og helgidagaívinnu til þess að auka framleiðsluná. Sést á því, að kolanámumenn telja það miklu skipta, að erfiðleik- arnir, sem stjórnin hefir hér þurft að mæta, yrðu ekki eins mikið vatn á myllu stjórnarandstöðunnar og hún hefði látið sig dreyma um. Ástæöan til þess, aö íhalds- menn hafa notaö sér eldsneytis- skortinn, sem stafar af vetrar- hörkunum, til ádeilna á ríkis- stjórnina, stafar fyrst og fremst af því, aö kolanámurnar voru þjóðnýttar í síðastl. ári. Kola- vinnslan hefir farið minnkandi í Bretlandi á undanförnum ár- um og liggja til þess margar Ingðlfur Arnarson, fyrsti togari Rvíkurbæjar kom í gær Skipinu fagnað meö viðhöfn Shlnwell. ist þjóðnýtingin vel fyrir á meö- al námumannanna. Hins vegar eru ekki komnar til fram- kvæmda nema sáralitlar endur- bætur á kolavinnslunni, er stjórnin hefir fyrirhugað, en áætlað er að veita alls 3 miljarð'a sterlingspunda til að koma námarekstrinum í nýtízkuhorf. Þótt kolaíramleiöslan hafi heldur aukizt á siðastl. ári, hefir það ekki nægt til aö mæta hinni auknu eftirspurn. Engin skilyrði hafa því verið til að safna birgð- um og kolin haía verið flutt jafnóðum til verksmiöja og orkuvera og þau voru unnin. Þegar samgöngurnar tepptust vegna snjóþyngsla og ísalaga á dögunum, urðu verksmiðjurnar og orkuverin því næstum jafn- harðan kolalaus. Við þetta bætt- ist svo, ^ð vinnslan féll niður í mörgum námum vegna kuld- anna. Til að koma í veg fyrir al- gert öngþveiti, greip stjórnin til mjög róttækra ráðstafana, m. a. var lokaö fyrir rafmagn til fjöldamargra verksmiðja og raf- ástæöur. Námufélögin hafa ver- orka injög taknjörkuð til heimil- ið mörg og fá þeirra svo fjár- sterk, að þau hefðu bolmagn til að koma rekstrinum í nýtizku- horf. Aðbúnaður námumanna hefir verið slæmur og þvi stöð- ugt orðið erfiðara að fá menn til námuvinnu. Jafnaðar- menn hafa lengi haldið því fram, að eina lausnin á þessum mál- um væri Jþjóðnýting og sameig- inlegur rekstur allra námanna. Þegar lögin um þjóðnýtingu námanna voru samþykkt á fyrra ári, veittu íhaldsmenn þeim sáralitla mótstöðu, þvi aö á- standið í þessum málum var oró'ið svo óvinsælt, að erfitt var að mæla því bót lengur. Þótt enn sé ekki fengin reynsla af þjóðnýtingunni, hefir ástand- ' ið heldur batnað síðan. Bæði heildarframleiðslan og afköstin á mann hafa aukizt síðan. Fleiri menn hafa líka gefið sig fram til námuvinnu og yfirleitt mæl- ERLENDAR FRETTIR Bandaríkjamenn hafa farið þess á leit í Öryggisráðinu, að þeir fái til umráða nokkrar eyjar á Kyrrahafi, er áður lutu Japönum. Líklegt þykir, að hin stórveldin vilji fresta þessu máli, unz gengið hafi verið frá friðarsamningu|n við Japani. Bretar hafa ákveðið að leggja Palestínumálið fyrir sameinuðu þjóðirnar. Samnjpgar um fransk-tékk- neskt bandalag eru langt á veg komnir, segir i tilkynningu frá Prag. Brezku konungshjónin eru komin tji Suður-Afríku og hefir verið mjög vel fagnað. Um 70 manns fórust í flug- slysunum um helgina. Við Ítalíu- strendur fórst flugvél með 16 manns og í Kólumbiu fórst Sky. mastervél með 53 menn. Ekkert Iát verður á kuldunum í Norður- og Vestur-Evrópu. í Bretlandi hafa frostin aukizt aftur. í Osló hefir skólum og samkomustöðum verið lokað vegna eldsneytisskorts. isnota. Þessar ráðstafanir hafa leitt til þess, að meira en ein milj. manna hafa misst atvinn- una í bili, en hinsvegar hafa þær aístýrt algeru öngþveiti. íhaldsmenn liafa vitanlega notað þetta tækifæri til að kenna skipulagsleysi og úrræða- leysi stíírnarinnar um kola- skortinn. Stjórnin hefir hins vegar bent á, að ekki hafi verið möguieikar til að safna kola- birgðum að undanförnu og ekki sé hægt að kenna henni um þótt harðindi séu nú meir í Bret- landi en þar hafa orðið i 50 ár. Hún hefir sýnt fram á, aö kola- framleiðslan hefir aukizt stjórnartíð hennar. Þá hefir hún bent á, að þjóðnýtingin hafi tryggt vinnufriðinn og hafi t. d. verið tíu sinnum minna vinnutap í kolanámunum vegna verkfalla nú en eftir fyrri heims- styrjöldina. Gagnrýni íhaldsmanna hefir ekki sízt verið óvæg vegna þess að Emmanuel Shinwell námu- málaráðherra hefir lengi verið einn harðskeyttasti andstæðing ur þeirra. Hann var einn þeirra þingmanna, er harðast gagn- rýndi stjórn Cliurchills á stríðs- árunum og vildi aldrei fara í stjórn hans, þótt hann ætti kost á ýmsum ráðuneytum Shinwell gaf Churchill á þeim árum þá lífsreglu, að þeir menn sem ekki þyldu gagnrýni, ættu ekki að gefa sig að stjórnmálum Þeirrar reglu hefir hann þurft að minnast seinustu vikurnar. Shinwell er 62 ára gamall Hann er af Gyðingaættum Hann vann ýms störf á uppvaxt- arárum sínum og lærði meðal annars klæðskeraiðn. Hann var ungur, þegar hj.nn tók að starfa í verkalýðsfélögunum og varð brátt ejjjn af leiðtpgum sjó mannasamtakanna. Hann sat á þingi 1922—24 og 1928—31. Hann var námumálaráð'herra í stjórn um Mac Donalds 1924 og 1930— 31. Árið 1935 bauð hann sig fram á móti Mac Donald, sem þá var genginn íhaldsmönnum á hönd (Framhald á 4. slSu) Hér sjá menn nýju togarann, þar sem hann liggur á ytri höfninni í Reykjavík, skrýddur óteljandi fánum, al- búinn að leggjast að bryggju, Jiegar tollverðirnir hafa innt af höndum embættisskyldu sína. í baksýn sést Esja, sem enn er söm og_ á dögum Ingólfs landnámsmanns. — Megi farsæld fylgja þessu nýja skipi og þeim mönn- um, er á því starfa. (Ljósm.: Sig. Guðmundsson) /Evlntýri á flugför: Fjögra manna flugvél nauðlendir hjá Völlum í Skagafirði Flugiiieiiiiirnir (tL|»plir í Variualilíö í lioila viku Steindór Hjaltalín írá Siglufirði hefir á undanförnum árum gefið sig mjög að flugmálum og fest kaup á allmörgum flugvélum, stórum og smáum, og komið upp ílugskóla á Akureyri í félagi við aðra. í sumar flaug hann á stórri flugvél, sem hann á, til Eng- lands og mcginlands Evrópu tneð marga gesti í boði sínu. Nú fyrir skömmu lenti Stein- dór í nokkru ævintýri í flugferð norður í land. Lagði hann af stað mánudaginn 3. febrúar í einni flugvéla sinna — fjögra manna flugvél og var ferð- inni heitið til Akureyrar. Voru þeir félagar fjórir i vélinni, Njáll Guðmundsson flugmaður, Ásgeir Pétursson vélaÁiaður og Baldur Þórisson, auk Steindórs sjálfs. Komust ekki niöur í Eyjafjörð. Dimmt var yfir þennan dag og þegar þeir félagar konni yfir Eyjafjörðinn, byrgði hann svart. ur mökkur, sem hvergi rofaði gegnum. Flugu þeir þarna fram og aftur um stund, komust nið- ur undir brúnina á Villinga- dalnum, en urðu frá að hverfa að lokum. Var nú orðið svo lítið benzín eftir á vélinni, svo að ekki voru tiltök að ná aftur til Reykjavikur og vafasamt, hvort Uppgripa síldarafli í sundunum Uppgripa síldarafli var á Kleppsvíkinni og Viðeyjarsundi í gær. Margir bátar voru að veiðum og fengu sumir þeirra ágæt köst. Annars bíð'a margir síldarbátar eftir losun við bryggj ur í Reykjavík, því skortur er á skipum til að flytja norður bræðslu. . Sýning á málverkum Þór. B. Þorlákssonar Á laugardaginn var opnuð i Oddfellow-húsinu yfirlitssýning á málverkum Þórarins B. Þor- lákssonar í tilefni af því, að um þessar mundir eru áttatíu ár liðin frá. fæðingu hans. Eru á þessari sýningu nær níutíu myndir, sem Þórarinn heitirm málaði á þrjátíu árurn. Þórarinn hóf málaranám i Kaupmannahöfn, og hafði þá enginn íslendingur gefið sig við málaralist siðan Sigurður Guð- mundsspn fornfræðingur féll í valinn. (Að þessu hugðarefni sínu vann Þórarinn síðan eftir föng- um, þar til hann lézt árið 1924. Mun hann jafnan verða talinn brautryðjandi málaralistarinn- ar á íslandi. dygði til flugs suður í Borgar- fjörð, þótt lendandi væri á flug- vellinum á Kroppsmelum. Lent hjá Vöilum í Skagafirði. Þegar kom yfir Skagafjörð lækkuðu þeir félagar flugið og komust niður úr skýjaþykkninu, og reyndist þá sæmilega bjart undir. Tóku þeir félagar þaö ráð að lenda hjá Völlum fremur en hætta á að fljúga suður. Hafði ein ílugvéla Steindórs lent á þessum slóðum í sumar, og voru þeir félagar nokkuð kunnugir staðháttum. ' Flugmenn í vetrarleyfi -— bændur við flugvallargerð. Lendingin tókst slysalaust, og héldu' ævintýramennirnir til Varmahlíðar. Sátu þeir þar í góðu yfirlæti alla vikuna. Fékk Steindór bændur i héraðinu með bifreiðar til þess að aka grjóti í skurði, sem voru þvi til trafala, að flugvélin gæti hafið ‘sig á loft. Var þvi verki lokið fyrra sunnudag. Bjóst Steindór þá til ferðar með sveit sína, þvi að veður var gott, og flaug hann þann dag til Akureyrar. Sveitin fiýgur suður. Hingað til Reykjavíkúr komu þeir félagar aftur á föstudag- inn var. Fóru þeir frá Akureyri á þremur flugvélum — farþega- flugvélinni, sem nauölent hafði í Skagafirðinum, og tveimur litlum kennsluflugvélum. Flaug farþegaflugvélin beina leið yfir hálendið til Reykjavíkur. En litlu kennsluflugvélarnar flugu vestur yfir byggðir. Lentu þær báðar lijá Völlum í Skagafirði og heilsaöi Steindór upp á vini sína frá fyrri viödvöl þar. En síðan var flogið áfram yestur yfir Húnavatnssýslu og suður yfir heiðar til Reykjavíkur. Telur Steindór að gera megi góðan flugvöll þarna hjá Völl um með litlum tilkostnaði. Varö að skera nótina sundur. Jökull frá Hafnarfirði fór i gærmoi'gun áleiðis til Siglu- fjarðar með sild, sem hann hafði veitt þá um morguninn og dag- inn áður. í seinasta kastinu fékk hann svo mikla síld í nót- ina að fleygja varð miklu af henni og skera nótina sundur til að ná henni undan sildar- kösinni. 'Á Viðeyjarsundi veiðist sildin á 6—7 faðma dýpi. Fleiri bátar á síldveiöar. Bátar eru nú alltaf að bætast við á síldveiðarnar með degi hverjum. Eldborg hefir nú t. d hætt síldarflutningum, og er farin á veiðar, og von er á fleir um næstu daga, svo sem Dóru frá Hafnarfirði og Richard frá ísafirði. Skortur á flutningsskipum tefur nokkuð síldveiðarnar, þar sem bátarnir þurfa að liggja við bryggjur fullhlaðnir og bíða eftir losun. í gær biðu margir bátar eftir losun, en illa leit út með skip til flutninga norður. Rifsjjes og Ólafur Bjarnason munu þó taka síld til flutnings í dag. Hinn nýi togari Reykjavík- urbæjar, Ingólfur Arnarson, kom til landsins í gær eftir fljóta og greiða ferð frá Eng- landi. Var honum fagnað af mikilli viðhöfn og f jölda fólks, sem safnaðist saman á hafn- arbakkanum, þegar skipið lagðist að bryggju. Hiö nýja skip kom inn á ytri höfnina á öðrum tímanum i gær. Hayðvi það aðeins verið hálfan þriðja sólárhring frá Englandi. Þess var nú skammt að bíða, að fólk tæki að þyrpast niður á Skúlagötuna, til þess að virða fyrir sér skipið, þar sem það lá fánum skrýtt úti á Engeyjar- sundi. Voru dómar manna mjög á einn veg, að þetta væri föngu- legt skip að sjá. Nokkru eftír klukkan þrjú var haldið inn og mun klukkan hafa verið um tuttugu minútur geng- in í fjögur, þegar þessi fyrsti togari bæjarútgerðarinnar í Reykjavik skreið í fyrsta sinn inn úr hafnarmynninu. Var þá hafnarbakkinn allur þakinn fólki, sem fýsti aö sjá þetta nýja skip. — Lúðrasveit Reykjavíkur lék, og margt stórmenna bæj- arins, svo sem þingmenn og bæjarfulltrúar, stigu á skips- fjöl. Klukkan fjögur hófst úty^rp móttökuathafnarinnar. Fluttu þeir Jóhann Þ. Jósefsson sjávar- útvegsmálaráðherra og Gunnar Thoroddsen borgarstjóri fyrst ræður. Síðan lýsti Gísli Jónsson alþingismaður skipinu. Síðastur talaöi Guðmundur Ásbjörnsson, forseti bæjarstjórnar. Þetta skip er hiö fyrsta, sem hingað kemur af 32 togurum. sem rikisstjórnin samdi um smíði á árið 1945. Það-er með olíukynntri gufuvél.um 500 lestir að burðarmagni og getur flutt 300 lestir af isuðum fiski í lest. Skipið er fallegt að ytri sýn, og vistarverur skipsverja virð- ast rúmgóðar og snotrar. Skipstjóri á Ingólfi Árnarsyni er Hannes Pálsson. Framsóknarvist á föstudaginn Vegna fjölmargra áskorana hefir verið ákveðið, að Fram- sóknarfélögin í Reykjavik haldi skemmtisamkomu í samkomusal Mj ólkurstöðvarinnar næstkom andi föstudagskvöld. Hefst hún1 með Framsóknarvist kl. 8.30. ' Vigfús Guðmundsson, sem er á förum úr bænum, hefir lofað að stjórna þessari samkomu. Ef dæma má eftir likum, er vissara fyrir Framsóknarfólk, sem sækja ætlar þessa samkomu, að panta sér aðgöngumiða sem fyrst í síma 2323. Bretar settu engin Bjarni líenediktsson utanrík- ismálaráðherra upplýsti utan dagskrár í gær, að það væri algerlega tilhæfulaust, að Bret- ar hefðu sett þau skilyrði fyrir viðurkenningu sinni á ísienzka lýðveldinu vorið 1944, að tsland samþykkti alla samninga, er Bretar og Danir hefðu gert um íslenzk málefni. Yfirlýsingu þessa gaf ráðherrann í tilefni af því, að Einar Olgeirsson hafði lialdið þessu fram fyrh' nokkrum dögum, er landhelgis- samningurinn frá 1901 var til umræðu Ráðherrann tók það skýrt fram, að Bretar hefðu engin skilyrði sett fyrir viðurkenningu sinni á lýðveldisstofnuninni. Hins vegar upplýsti ráðherr- ann, að nokkru eftir að ríkis- stjórn Ólafs Thors kom til valda 1944, hefði það orðið samkomu- lag milli íslendinga og Breta, að slíkir samningar skyldu gilda áfram, enda hefði það verið í samræmi við alþjóðavenjur.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.