Tíminn - 22.02.1947, Page 4
FRAMSÓKNARMENN!
4
Mimih að koma í ftokksskrifstofuna
REYKJÆVÍK
Skrifstbfa Framsöknarflokksins er
Edduhúsinu. við Lindargötu
22. FEBR. 1947
í
Sími 6066
37. blað
Kaupfél. Þingeyinga
65 ára
Kaupfélag Þingeyinga, elzta
kaupfélag landsins varð 65 ára
í gær. Er það eitt af stærstu
kaupfélögum landsins og hefir
jafnan verið rekið með miklum
myndarbrag. Kaupfélagsstjóri
þar er nú Þórhallur Sigtryggs-
son.
Maðkaðir ávextir
fluttir til landsins
Héraðslæknirinn í Reykjavík
hefir gefið út tilkynningu til
almennings, þar sem hann varar
við mökuðum ávöxtum. Er hér
um að ræða þurrkaða ávexti,
sem fluttir hafa verið til lands-
ins í stórum stíl.
Við rannsókn á nokkrum
sýnishornum af þessum ávöxt-
um hefir komið í ljós að þeir
eru meira eða minna maðkaðir
og því ekki mannafæða. Hefir
héráðslæknirinn alvarlega að-
varað fólk við að leggja sér
þessa hættulegu vöru til munns,
nema hafa áður gengið úr
skugga um að ekki sé. um
skemmda ávexti að ræða.
Það fer ekki hjá því að fregn
sem þessi vekji nokkurn ugg
meðal almennings. Verður ekki
hjá því komizt að krefjast þess
að þeir aðilar, sem annast inn-
flutning á skemmdum og jafn-
vel banvænum matvælum handa
þjóðinni rerði látnir sæta á-
byrgð. íslenzka þjóðin verður að
vænta þess að hún búi nú við
meira öryggi í þessum efnum,
en þegar dönskum einokurum
og okrurum leiðst að flytja
mygluð og maðksmogin matvæli
hingað til lands.
Fjórtán prestaköll
auglýst laus
Prestsembættin eru ekki eftir-
sótt nú á dögum.
Biskup landsins hefir auglýst
fjórtán prestaköll laus til um-
sóknar. Eru prestaköllin þessi:
Hofteigsprestakall, Mjóafjarð-
arprestakall, Eydalaþing, Hofs-
prestakall í Suður-Múlasýslu,
Kálfafellsstaður, Staðarhóls-
þing, Breiðabólsstaðarpresta-
kall í Snæfellsnessýslu, Brjáns-
lækjarprestakall, Hrafnseyrar-
prestakall, Staður í Aðalvík,
Ögurþing, Mælifellsprestakall,
Grímseyjarprestakall og Sval-
barðsþins.
Heimsfrægir taflmenn
<Framhald af 1. síðu)
honum framan af keppninni
spáð fyrsta eða öðru sæti, en
vegna óheppni náði hann ekki
nema fjórða sæti á mótinu.
Hann hefir um langt skeið
verið skákmeistari Kanada.
Skákmeistari Ný-Sjálendinga.
R. G. Wade er Nýsjálendingur,
og hefir um nokkurt árabil stað-
ið í fremstu röð skákmanna.
Hann er skákmeistari nýja Sjá-
lands og var annar í seinustu
keppni um skákmeistaratltil
Ástrallu. Wade er mikill kunn-
áttumaður í skák og hefir skrif-
að mikið í ýms skákblöð og er
ritstjóri ástralks skákblaðs.
Hann var í Hastings, er mótið
fór fram en tók ekki þátt í því.
Hann er einnig kornungur, 25
ára gamall.
Tefla á sunnudaginn.
Báðir þessir skákmeistrar
munu nú keppa við íslenzka
skákmenn. Yanofsky ætlar að
tefla fjöltefli í Reykjð.vík og ef
til vill á Akranesi, Keflavík og
Hafnarfirði. Verða baldin hér
tvö skákmót, þar sem hann
teflir sjö umferðir við sex ís-
lendinga. Wade mun einnig taka
þátt í þessum mótum. Hefjast
þessi taflmót á morgun í sam-
komusal Mjólkurstöðvarinnar
kl. 1,30, og verður almenningi
seldur aðgangur að þeim og
skákirnar útskýrðar um leið og
teflt er.
Félag íslenzkra myndlistarmanna skorar á Al-
þingí að veita 3 milj. kr. til byggingar listasafns
Félag fslenzkra myndlistarmanna hefir sent alþingi erindi, þar
sem þess er farið á leit, að þingið veiti í f járlögum þessa árs allt að
þrjár miljónir króna til byggingar listasafns í Reykjavík. Er þetta
erindi birt hér í heilu lagi, ásamt þeim rökstuðningi, sem því fylgdi
af hálfu stjórnar félags myndlistarmannanna.
Myndlistaþrá íslendinga er
jafn gömul sögu þjóðarinnar.
Hinar víðfrægu frásagnir i
gömlu handritunum bera þvi
vitni, að þeir menn, sem stóðu
að sköpun þess menningarlega
fjársjóðs, er við litum á sem
dýrmætasta arf þjóðarinnar,
voru ekki aðeins ritsnillingar,
heldur áttu einnig hlut að máli
ágætir myndlistamenn, meistar-
ar á sínu sviði, sem kunnu deili
á erfiðustu lögmálum mynd-
rænnar stuðlunar.
Svo rík var hin myndræna
þrá þjóðarinnar, að jafnvel
hungri og hörmungum tókst
ekki að eyða löngun hennar til
istrænnar starfsemi myndlegs
eðlis. Um það vitna ótal munir
frá erfiðustu tímum sögu vorrar,
ofnar og saumaðar, mynd-
skreyttar ábreiður, forkunnar-
fagrir myndskurðir o. fl. Mörg-
um þessara hluta hefir fyrir
'öngu verið skipað í verðugan
sess á erlendum söfnum, enda
er þeir fyllilega sambærilegir
við hliðstæð verk annarra þjóða.
Það .eið þá heldur ekki á löngu
frá því íslenzka þjóðin braut af
sés og erlendra kúgunar og réð-
ist aftur húsbóndi á sínu eigin
heimili, þar til hinn gaml neisti.
hin myndræna þrá, sem aldrei
kulnaði út til fulls, tók að glæð-
ast á ný, og geta víst flestir
orðið á eitt sáttir um það, að af
þeirri glóð stafi þegar nokkurri
birtu á nútímamenningu ís-
lending-a, enda ætlun við, að
þetta muni fúslega viðurkennt
af þjóðinni.
En þrátt fyrir það, að enginn
hugsandi íslendingur myndi
vilja viðurkenna, að menningar-
líf okkar væri jafn blómlegt
eftir sem áður, ef myndlistin
yrði þurrkuð út úr því, verður
að lita svo á, að þessi listgrein
sé ekki viðurkennd af ríkinu, þar
sem það ekki hefir komið sér
Islenzk óperusöngkona . . ,
(Framhald af 1. síðu)
á vegum brezka hersins.
í desembermánuði síðastliðn-
um komst hún loks til Englands
og þaðan heim til íslajods, ásamt
Svanhvíti systur sinni, er einnig
hafði dvalið vjið músíknám í
Austurríki og Þýzkalandi á
striðsárunum.
Nönnu hefir tvívegis verið
boðið að ganga í þjónustu vold-
ugra kvikmyndafélaga, en þeim
boðum hafnaði hún, þvi að hug-
ur hennar hefir jafnan hneigzt
að óperusöng.
í nábýli við dauffann.
Nanna sagði blaðamönnum
lítils háttar frá þeirri erfiðu
baráttu, sem hún varð að heyja
ástríðsárunum og næstu misseri
eftir að styrjöldinni lauk, fjarri
fósturjörð sinni og svipt öllum
möguleikum að láta frá sér
heyra eða fá minnsta styrk að
heiman. í borgum þeim, sem
hún dvaldi í, þegar líða tók á
styrjöldina, voru heiftúðugar
loftárásir daglegir viðburðir.
Þoð var ekki sjaldgæft, að næstu
hús við það, sem hún var í,
væru lögð í rústir, og einu sinni
var hún stöd við járnbrautar-
lest, sem gerð var loftárás á og
sundrað með sprengjum. _ Frá
þessu öllu slapp hún þó ósködd-
uð. „Það var eins og fólk vendist
þessu,“ sagði hún — „ef það var
nógu taugasterkt.“ Annars sagð-
ist hún um skeið hafa verið
farin að efast um, að hún myndi
eiga eftir að sjá ættjörðina
framar. Að hinu leytinu vonaði
fólk alltaf, að stríðinu væri senn
'lokið. En hvert árið leið af öðru,
og alltaf var barizt af vaxandi
heift.
„Maður þraukaði þetta.“
Þegar Nanna fór frá Koblenz
missti hún allar eigur sínar,
nema fötin, sem hún stóð í og
handtösku sína, og svo hörpuna,
sem henni var dýrmætust af
öllu.
Hún var stödd í Vínarborg,
þegar barizt var um borgina i
lok styrjaldarinnar. Það voru
ógurlegar vikur, sem engin orð
fá lýst. Erfiðasta tímabilið var
þó kannske eftir að stríðinu
lauk. í júnímánuði 1945 voru
söngleikjahúsin í Vínarborg
opnuð á ný. Nanna var þá ráðin
til þess að leika greifafrúna í
Vínarblóð. En hún var þá svo
aðþrengd af skorti og öðrum
hörmungum, að hún féll þrisvar
í öngvit á æfingunum og varð
að hætta. „En maður þraukaði
betta sem sagt,“ hún og starði
fram fyrir sig, eins*og hún liti í
anda þennan hræðilega þrauta-
tíma.
Erfitt að komast brott.
Síðustu misserin var hún í
Graz, eins og áður er sagt, syðst
í Austurriki. Hún hafði spurnir
af ferð Lúðvíks Guðmundssonar
um Mið-Evrópu. En hann kom
ekki til Graz og henni tókst ekki
að ná sambandi við hann. Gekk
þeim systrum, Nönnu og Svan-
hvíti, mjög erfiðlega að útvega
sér nauðsynleg skilríki til brott-
ferðar. En það tókst þó að lok-
um, og munu þær hafa verið
meðal þeirra íslendinga, er síð-
ast komust brott, ef þelm, er á
annað borð vildu fara. En eftir
að allt var komið í lag, gekk
ferðin heim mjög greiðlega.
Söngskeitimtun
um iQúnaðamótln.
Nú um mánaðamótin mun
Nanna efna til söngskemmtunar
hér í Reylijavík. Mun Tónlistar-
félagið sjá um þessa hljómleika.
Dr. Urbantschitsch mun leika
undir. Meðal þess, sem hún
syngur, verða ljóðalög eftir
Beethoven, Schubert, Schu-
mann og Joseph Marx og lög
eftir Sigfús Einarsson, Karl O.
Runólfsson, Jón Leifs og Sig-
valda Kaldalóns og loks aría
Cherubins úr fyrsta þættl Brúð-
kaups Fígarós, aríu úr Toca og
„Caro nome“ úr Rigólettó.
Stendur til boffa
aff syngja í Graz.
Nanna mun dvelja hér heima
fyrst um sinn, en enn er óráðið,
hvað húifc tekst svo á hendur.
Henni stendur til boða að ráða
sig við söngleikjahúsið i Graz
og starfa þar næstu misseri. En
henni þykir að vonum viður-
hlutamikið að ráða sig þangað
til langs tíma, eins og nú er
ástatt í Austurríki,
Héðan farp, báðir skákmenn
irnír til Bandaríkjanna, fyrst
til New^ York. En síðan fer Wade
með Yanofsky til Kanada. Ekki
er alveg fullráðið, hve lengi
þeir dvelja hér á landi. Fer það
nokkuð eftir ferðum vestur um
haf, en ekki verður það skemur
en tvær til þrjár vikur.
Njótið sólariunar
í skammdeginu og borðið binar
fjörefnaríku Alfa-Alfa töflur.
Söluumboð til kaupmanna og
kaupfélaga utan Reykjavikur
HJÖRTUR HJARTAKSON
Bræðraborgarstíg 1
Simi 4256.
upp almennu listsafni. Af hálfu
hins opinbera er myndlistin
heimilislaus, einstaklingar hafa
orðið til að hýsa hana, ríkisins
vegna virðist hún hafa mátt
sálast á gaddinum, eins og hver
annar útburður.
Það skal fúslega viðurkennt,
að með kaupum á listaverkum
hefir hið opinbera stutt höfunda
þessara verka og játað tilveru-
rétti þeirra sem einstaklinga, en
en meðan þau listaverk, sem
ríkið þannig hefir varið fé til
að eignast, ýmist grotna niður
niður í óhæfum geymslum eða
þeim er dreift um skóla og skrif-
stofur, en ekki safnaö saman til
sýnis á einum stað aðgengileg-
um almenningi, verður ekki
?agt, að ríkið hafi viðurkennt
myndlistina) menningarlegt
gildi hennar né rétt þjóðarinnar
til að, njóta ávaxta hennar.
Engin mennigarþjóð, er véi
þekkjum til, að íslendingum
einum undanskildum, hefir haft
efni á því að búa svo illa að
myndlistarmenningu sinni, að
eiga ekki hús yfir málverk og
höggmyndir. Annars staðar
þykja almenn listasöfn sjálf-
sögð og nauösynleg sem skólar,
bókasöfn og aðrar stofnanir
menningarlegs eðlis, enda mun
Reykjavík vera eina höfuðborg
veraldarinnar, sem ekki getur
hrósað sér af svo sjálfsagðri
byggingu, og vitum við, að sú
staðreynd hefir valdið furðu
hjá mörgum útlendum gestum,
sem hér hefir borið að garði, og
hefir þaö vafalaust átt sinn
þátt í að móta skoðanir þeirra
á nútímamenningu okkar.
Nú mun að vísu svo tilætl-
azt, að einhverju af áðurnefnd-
um listaverkum, sem ríkið á,
verði veitt húsaskjól og haft til
sýnis á efstu hæð þjóðminja-
safnsins, og má ef til vill sjá
í þeirri ráðstöfun lítillega bót £
núverandi ófremdarástandi, en
í henni felst þó ekki viðunandi
lausn þessá máls. Aðeins óveru-
legur hluti þeirra listaverka,
sem hið opinbera hefir keypt,
af íslenzkum listamönnum,
kemst fyrir í þessu húsrúmi,
og þegar tillit er tekiö til, að í
eigu ríkisins eru einnig útlend
verk, gjafir frá eldri timum, og
að þessu safni áskotnuðust ný-
lega allmargar svartlistarmynd-
ir eftir hinn heimsfræga norska
málara Edvard Munch, sem gef-
in voru íslandi í tilefni af lýð-
veldisstofnuninni, af Norðmanni
einum, og einnig er vitað, að
danskur iistamaður hefir safn-
að miklu af verkum Guðm.
Thorsteinssonar með það fyrir
augum að afhenda þau ízlenka
ríkinu, þegar byggt hefir verið
hér lístasafns. Virðist manni sem
þjóðin hafi rétt til að bera fram
þá kröfu, að nú verði hafizt
handa og sú bygging reist á
næstu árum, sem geti orðið þess-
um verkum samboðið húsaskjól.
Erlendis þykir það kostur og
jafnvel nauðsyn, að umhverfis
slíkar byggingar sé rúmgóður
trjágarður, sem þá er notaður
til að koma fyrir höggmyndum,
sem að jafnaði njóta sín betur
undir himni én innan veggja,
enda sparast með þeirri ráðstöf-
un mikið húsrúm. Þar sem
Reykjavík byggist mjög ört, er
áríðandi að taka þetta mál
föstum tökum, áður en öllum
fegurstu stöðum borgarinnar er
ráðstafað til annarra bygginga
Við leyfum oss því að fara þess
á leit við hið háa Alþingi, að það
verji á fjárlögum þessa árs allt
að þrem miljónum króna til
safnsbyggingar, og treystum því,
að það sé okkur sammála um
nauðsyn þess gð leysg þetta
vandamál,
Reykjavlk, í janúar 1947
Félag ísl. myndlistamanna.
Þorvaldur Skúiason,
Jón Þorleifsson,
Jón Engilberts,
Sigurjón Ólafsson,
Ásmundur Sveinsson.
Gjamla Síc
fyja Bíc
( vitl Skulf’aötu)
Loftskip i kernafii
(This Man’s Navy) Nótt í Paradís
Stórfengleg og spennandi amer- ísk kvikmynd. i s Skemmtileg og íburðarmikli æv- íntýramynd í eðlilegum lltum frá dögum forn Qrikkja.
Wallace Beery Aðalhlutverk:
Tom Drake i Merle Oberon
James Gleason Tjjrham Bay
Sýnd kl. 5, 7 og 9. Thomas Gomer
Börn innan 12 ára fá 1 Sýnd kl'. 3, 5, 7 og 9.
ekki aðgang. j • 1 Sala hefst kl. 11 f. h.
Innheim tu-
menn Tín ians
Muniff aff senda greiffslu
sem allra fyrst.
~Tjarnatt>íc
—j «
Hjá Uuffy
(Duffi’s Tavern)
Stjörnu-mynd írá Paramont:
Bing Crosby, Betty Hutton
Paiilette Goddard, Alan Ladd
Dorothy Lamour, Eddie
Bracken o. fl. ásamt
Barry Fltzgerald, Marjorie
Reynolds, Victor Moore,
Barry Sullivan
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
Sala hefst kl, 11 f. h.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR;
Ég man jbd tíð
gamanieikur eftir EUGENE O’NEILL.
Sýning aunað kvöld kl 30.
Aögöngumiðasala i Iönó frá kl. 2 í dag. Tekið á móti pöi
unum í síma 3191 kl. 1 til 2. Pántanir sækist fyrir kl. 4
it-
ii,
i„
n.
ii,
I, .
ii-
i*.
ii,
ii.
ii.
ii-
.1.
II.
n.
«»•
ii-
ii-
:í; Höfum fyrirliggjandi og eigum von á íyrir vorið allskonar ! u AKinuroVr ædiim
ií! til garð- og jarðyrkju,. svo sem:
Stunguskóflum, , Hnausakvíslum,
Malarskóflum, Stungukvíslum,
Steypuskóflum, Heykvíslum,
Ballastskóf lum, Höggkvíslum,
:| Kornskóflum, Garffhrífum,
| Járnkörlum, í Hökum, Arfasköfum.
Sendlð pantanir sem fyrst. Samband ísl. samvinnufál lagaj
Á víðavang i
(Framháld af 2. siöu)
anum og Jóni Árnasyni að
kenna að ekki eru fullkomnari
hafnir og fleiri frystihús við
Breiðafjörð.
í áliti hagfræðinganna er tal-
að um féleysi til slíkra og því-
líkra framkvæmda og síðan
sagt:
„Þjóðbankinn hefffi vitaskuld
haft í hendi sér aff gTeiffa úr
þessum fjárhagsörffugleikum
meff nægum kaupum ríkis-
skuldabréfa og endurkaupum
víxla hjá bönkunum. Inn á
þessa braut hefir hann þó ekki
viljað fara, þar sem þaff hefffi
orðiff til þess að auka þensluna
og gjaldeyriseyffsluna.“
Það er Jónas Haralz, fulltrúi
Sósíalista í bankaráði Lands-
bankans, sem hér gengur í vörn
Kaupum tuskur
Baldursgötu 30
HVAÐ ER MALTKO?
Vimtið ötulleya fyrir
Tímann.
fyrir Landsbankann gegn hróp-
yrðum Þjóðviljans.
Hvort er svo meira að marka,
afstöðu Jónasar Haralz þegar
hann tekur ábyrga aí'stöðu í
Landsbankaráði eða æsinga-
skrif og upphrópanir Þjóðvilj-
ans?