Tíminn - 06.03.1947, Qupperneq 1
í !
RITSTJÓRI: - \
I ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON j
! ÚTGEFANDI: \
\ FRAMSÓKN ARFLOKKURINN \
Símar 2353 og 4373
; PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
\ ViITSTJÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚ3I. Lindargötu 9 A \
) \
Símar 2353 og 4373 \
• AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
\ OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
) EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A j
Síml 2323 \
\____________________________ S
31. árg.
Reykjfavík, fimmtudagiun 6. marz 1947
45. blað
ERLENT YFIRLIT:
Endalok Austur-Prússlands
Uússar kalla það Kalingradhéraðið og
vinua kappsamlega að því að gera það
að rússnesku landi , <
Um langan aldur hefir Austur-Prússland verið háborg hinnar
þýzku þjóðernisstefnu. Þar átti hún vöggu sína og þaðan breiddist
út sá hernaðarandi, sem illu heilli hefir oft stjórnað gerðum
Þjóðverja. Aðalsmennirnir og stórbændurnir í Austur-Prússlandi
hafa verið höfuðfultrúar þýzku hernaðarstefnunnar og lagt til
margfallt meira af hershöfðingjum og herforingjum en nokkur
stétt önnur. Oft hefir verið komizt svo að orði, að Austur-
Prússland væri þýzkasti hluti Þýzkalands.
Þaö voru austur-prússnesku
aðalsmennirnir, sem áttu einna
drýgstan þáttinn í valdatöku
Hilters. Það var þó ekki vegna
neinnar sérstakrar aðdáunar á
þessum austuríska liöþjálfa,
heldur til þess að bjarga sínu
eigin skinni. Bruning, sem þá
var íorsætisráðherra, hafði í
undirbúningi löggjöf um skipt-
VON HINDENBURG.
ingu stórjartSa, er mjög hefði
bitnað á stórjarðaeigendum i
Austur-Prússlandi. Þeir fóru því
á fund Hindenburgs, sem var þá
forseti Þýzkalands, og fengu
hann til að víkja Bruning frá
völdum og taka Hitler í staðinh.
Eftir valdatöku sína, launaði
Hitler Austur-Prússúm ríkulega
þessa aðstoð. Þýzki herinn var
ekki áðeins endurreistur, eins
og \*erið hafði þeirra heitasti
draumur, heldur var Atistur-
Prússland á margan hátt gert
að miðstöð hinnar þjóðernis-
legu fræðimennsku, einkum þó
háskólinn í Königsberg. Yfir-
stjórnandi þessarar starfsemi
var. Rosenberg, sem var aðal-
postuli hinna nazistísku kenni-
setninga. — Austur-Prússland
skyldi vera höfuðsetur þýzks
anda og skapgerðar.
Það mun ekki hafa verið sízt
af þessum ástæðum, að mikill
geigur greip Austur-Prússa, þeg-
ar halla tók á Þjóðverja í styrj-
öldinni og rússneski -herinn
nálgaðist land þeirra. Þeir munu
ekki hafa talið slg eiga neins
góðs að vænta úr þeirri átt.
Allir þeir, sem gátu því viðkom-
ið, reyndu að flýja. Sennilega
hefir líka meiri hluti íbúanna
komizt undan til þeirra héraða
Þýzkalands, sem voru hernum-
in af Bandamönnum.
Áður en Rússar höfðu her-
numið Austur-Prússland, höfðu
ERLENDAR FRÉTTIR
Brezka stjórnin hefir lagt
fyrir þingið frumvarp um skiln-
að Indlands og Bretlands, er
komi til framkvæmda i júnl
1948. Hafði sir Stafford Crlpps
framsögn fyrir hönd stjórnar-
innar.
þeir tilkynnt, að þeir myndu
innlima það i Sovétríkin og
höfðu Bandamenn gefið til þess
samþykki sitt. Sennilega mun
fátt vera Þjóðverjum meira
tákn um algeran ósigur en að
Austur-Prússland, sem var tal-
ið þýzkast allra landa, skyldi
þarinig lagt undir framandi
stórveldi. Jafnvel á Versala-
fundinum treystust sigurvegar-
arnir ekki til að leggja Austur-
Prússland undir Pólland, þótt
i það væri landfræðilega eðlilegt,
heldur bjuggu til pólska hliðiö
svonefnda. Austur-Prússland var
svo lengi búið að vera þýzkt
land, að slíkt þótti þá ekki koma
til mála.
Síðan styrjöldinni lauk hafa
Rússar unnið kappsamlega að
því að gera Austur-Prússland
að rússnesku landi. Fáir hinna
; upprunalegu ibúa eru nú eftir.
því að flestir þeirra, sem ekki
höfðu getað flúið, háfa verið
fluttir burtu til afskekktra hér-
aðra í Rússlandi. í staðinn hafa
verið fluttir þangað rússneskir
landnemar í hundrað þúsunda
tali og heldur þeim fólksflutn-
ingum enn áfram. Landnemum
þessum eru yfirleitt búinn betri
kjör en annars staöar i Rúss-
landi. Rússum virðist þaö ekki
aðeins keppikefli að endurrelsa
landbúnaðinn, er var áður aðal-
atvinnuvegurinn, heldur vinna
þeir kappsamlega að þvi að
koma þar upp margvíslegum
iðnaði. Ailt bendir til, að þeir
ætli að gera Austur-Prússland
að höfuðútvirki á vesturlanda-
mærum Sovétríkjanna.
Jafnhliða þessu keppast Rúss-
ar við að útrýma öllu, sem minn-
ir á, að Austur-Prússland hafi
áður verið þýzkt land. Öllum
nöfnum á borgum, bæjum, hús-
um, vegum og götum hefir ver-
ið breytt. Öil hin nýju nöfn eru
hárússnesk, Königsberg heitir
nú Kalingrad, og Austur-Prúss-
land heitir nú Kalingradhérað-
ið. Tilsit heitir nú Sovjetak,
Friedland heitir nú Pravdinska
og þannig mætti lengi telja.
Þrátt fyrir allar þessar að-
gei’ðir Rússa er ekki vist, að
átökunum um Austur-Prússland
sé með öllu lokið. í Þýzkalandi
■eru nú hundruð þúsundir aust-
ur-prússneskra flóttamanna og
minningin um gamlar ættar-
slóöir mun lifa í hugum þeirra
og afkomendanna. Þeir tímar
geta því komið, að Austur-
Prússland eigi eftir að verða
hættulegt þrætuepli.
Hrafnkell goði sekkur
í fyrradag varð það slys i
Vestmannaeyjum, að vélbátarn-
ir Hrafnkell goði og Jökull
rákust saman rétt utan við höfn-
ina með þelm afleiðingum, að
Hrafnkell sökk. Engan mann á
hvorugum bátanna sakaði.
Hrafnkell goði sökk á sjö min-
útum eftir áreksturinn, og tókst
öllum skipverjum að bjarga sér
yfir í Jökul. Fóru þó þrir þeirra
i sjóinn. Hrafnkell var 38 smál.
að stærð. .
Allar gjaldeyrisinnstæður þjóðarinnar eydd-
ar og tugir miljóna að auki
-----------------------------------“Fyrst um sinn aðeins
Menntasetur ísfirzkra húsmæðra . t . * . e. ..
takmörkuo leyii til
Það er veglegt hús, framtíðarheimkynni húsmæðraskólans á ísafirði. Skólann stofnaði kvenfélagið „Ósk“ á ísa-
firði, árið 1912 og starfrækti það skólann í 22 ár eða þai til nýju lögin um húsmæðraskóla gengu í giidi árið
1941. Síðan hefir skólinn verið rikisskóii. — Kvenfélagið Ósk átti 40 ára afmæli þann 6. þessa mánaðar og gaf
þá skólanum 20 þúsund krónur, sem verja skyldi til heimilisprýði í nýja skólahúsinu. — Aðalforgöngu að stofnun
Kvenfélagsins Ósk hafði frú Camilla Torfason, kona Magnúsar Torfasonar þá bæjarfógeta á Isafirði og sýsiu-
manns í ísafjarðarsýslum. — Þetta nýja skólahús er allt hið vandaðasta. Mun byggingu þess verða að fullu lokið
næsta sumar. En byrjað var á því fyrir tæpum tvcimur árum síðan að forgöngu alþýðufiokksmeirihlutans í
bæjarstjórn ísafjarðar. — í skóianum verða heimavistir fyrir 32 nemendur. Þar eru tvö eldhús, annað fyrir
heimavistarnemendur og hitt fyrir heimangöngunemendur. í húsinu er líka stór vefstofa, bprðstofa og dagstofa.
Enn eru í húsinu íbúðir handa forstöðukonu og kennara. Skólahúsið er fögur bygging og hefir verið valinn staður
í hjarta bæjarins í námunda við gagnfræðaskólann, Bókasafnið og íþróttahúsið.
. W.'.f VAfís /.íirf1
AOA hefur fastar flugferðir
frá New-York um Stokkhólm
með viökomu í Keflavík
Hópur erlendra blaðamauna kemur hingað
með fyrstu ferðinni, og íslenzkum hlaba-
mönnum verður boðið til New York
oj* Stokkhólms
Um mið'jan þennan mánuð mun ameríska ílugfélagið American
Overseas Airlines hefja fastar flugferðir milli New York og Stokk-
hólms. Fyrst um sinn verffa þrjár ferffir í viku hvora leið, og verffa
viðkomustaffirnir í tveimur þeirra Gander, Keflavík og Kaup-
mannahöfn, en í hinni þriffju verffur flogið um Osló í stað Kaup-
mannahafnar. Fargjöldin verffa nokkuð lægri en nú tíffkast á
Fitumagn Faxa-
flóasíldarinnar
um 13%
Hætta á, aff þak nýju
mjölgeymslunnar brotnl
niffur
Hllimu Kristjónsson, forstjóri
síldarverksmiðjanna á Siglu-
flrði, skýrði Tímanum svo frá
í símtali í gærkvöldi, að fitu-
magn Faxaflóasíidarinnar væri
að meðaltali um 12%, en fitu-
magn Norðurlandssíldar á
surnrin er 18—22%. Um 8% af
hreinu lýsi fást úr Faxaflóa-
síldinni, og er það nálægt helm-
ingi minna en úr Norðurlands-
sild. — Til samanburðar má
geta þess, að fitumagn norskrar
vetrarsildar er enn minna, um
6—8%, en fitumagn vorsíldar-
innar norsku mun svipað og
Faxaflóasildarinnar nú.
Nýja sildarverksmiðjan á
Siglufirði hefir verið reynd síð-
ustu daga. Hefir vinnsla í henni
gengið skrykkjótt, en siðustu
stundirnar, sem unnlð var i gær,
gekk aiit eins vel og búast mátti
við, að það gerði án breytinga.
Tvær pressur af f jórum og tvelr
þurrkofnar af þremur eru, í
nothæfu ástan^i, og skiluðu
þessi tæki i gegn 200 málum á
klukkustund í gærkvöldl, og
voru þá afköst þurrkofnanna
fulinýtt og væri því hægt að
vinna 4800 mál á sólarhring.
Það ættl að verða til hag-
ræðis, í sumar, þegar sildveiði-
timinn hefst, að hin nýju tæki
voru reynd nú, svo að nú gefst
tækifæri til að bæta strax úr
því, sem áfátt reynist.
Mjölgeymslunni er enn mjög
áfátt og erfitt að geyma mjölið
óskemmt. Snjóar inn um loft-
ræstingarútbúnað, undir þak-
skegg og með gluggum. 4 feta
þykkur snjór liggur á þakinu,
Og svigna iangböndln gelg-
vænlega, svo að þaklð myndi
vart þola meiri snjóþunga.
Getur verlð hætta á að það
brotnl.
þessum Ieiffum.
Roger G. Allen, blaðafulltrúi
AOA, sem er kominn hlngað til
þess aff undirbúa komu fyrstu
flugvélarinnar, skýrði blaða-
mönnum hér frá þessu í gær.
Kvað hann líklegt.að fyrsta flug-
vélin færi frá Washington 14.
marz.
Fréttamenn hingaff og héffan
til New York og Stokkhólms.
Með henni mundu verða Thor
Thors sendiherra og frú, Hugh
Cumming frá ameríska utanrík-
isráðuneytinu og einir sjö
amerískir biaðamenn. Fólk þetta
mun dvelja hér á íslandi nokkra
daga, en flugvélin mun fara á-
fram til Svíþjóðar og taka þar
gesti og blaðamenn. íslenzkum
fréttamönnum mun verða boð-
ið að fljúga á þessarí nýju flug-
leið, bæði til Stokkhólms og
New York, þremur hvora leið.
Nota affeins
Keflavikurflugvöllinn.
Þessar amerisku flugvélar
munu eingöngu nota flugvöllinn
í Keflavík, og er ráðgert, að
móttökuskilyrði fyrir farþega
verði eitthvað bætt frá þvi, sem
nú er. Félagið mun hafa um-
boðsmenn í Reykjavík og skrif-
stofu í Keflavík, og geta farþeg-
ar þar fengið farmiða til svo
að segja hvaða staðar í heimin-
um sem er. Hefir félagið sam-
band við önnur flugfélög, svo
að það getur séð um ferðir
lengra en þess eigin flugvélar
fara.
AOA hefir aðeins vel þjálfað
fólk í þjónustu sinni, og eru til
dæmis allar flugfreyjurnar
lærðar hjúkrunarkonur. Skipt
verður um áhafnir á flugvélun-
um á hverjum flugvelli, svo að
komið getur fyrir, að sex mis-
munandi áhafnir fljúgi á leið-
inni milli Stokkhólms og New
York og til baka.
bráðnauðsynlegasta
innflutnings
í dagblöðunum biitist í
gær tilkynning frá viffskipta-
ráði, þar sem tjáff var, aff
fy#st um sinn yrffi frestað
veitingu allra gjaldeyris- og
innflutningsleyfa, nema um
væri að ræða bráffnauffsyn-
legar vörur, en jTafnvel slík
leyfi yrffu takmörkuff. Var sú
ástæffa færð frám, aff viff-
skiptasamningar af hálfu ís-
lendinga viff affrar þjóffir
stæðu yfir og ekki væri hægt
aff áætla gjaldeyristekjur þjóð
arinnar, fyrr en samningum
væri lokiff. Meginástæffan til
þessarar ákvörffunar mun þó
vera sú, að gjaldeyrisinn-
eignir þjóffarinnar erlendis
eru nú allar til þurrffar
gengnar og meira til.
Ömurlegt ástand.
Hinn 1. marz var ástandið
orðið þannig, að inneignir ís-
lenzkra banka erlendis námu
aðeins 44 miljónum króna, að
frádregnu því, sem lagt hefir
verið á nýbyggingarreikning. En
sú upphæð, sem þar er til, 'nem-
ur tæplega 120 miljónum króna.
Hins vegar eru bankarnir þeg-
ar búnir að taka á sig ábyrgðir
að upphæð 58 miljónir króna
fyrir vörum, sem ekki eru komn-
ar epn og 150 miljónum króna,
sem ekki er búið að yfirfæra,
hefir verið ráðstafað til kaupa
á nýbyggingarvörum. JEr þannig
búið að ráðstafa meira en 44
miljónum króna í erlendum
gjaldeyri umfram það, sem eft-
irstöðvunum af gjaldeyrisinn-
stæðunum nemur. Hér við bæt-
ist svo það, að ekki eru epn öll
kurl komin til grafar, þar eð
(Framhald. á 4. siðu)
Karl í krapinu
Margt er sér til gamans gert.
Ýmsir menn hafa orðið frægir
fyrir að leika«þær listir að láta
járna sig á höndum og fótum,
troða sér i poka og sökkva í
djúpt vatn, en losa sig þar af
sjálfsdáðum og áhaldalaust,
bæði úr jámunum og pokanum,
(Framhald á 4. síðu)