Tíminn - 27.03.1947, Síða 4

Tíminn - 27.03.1947, Síða 4
FRA M SÓKNA RMENN! Muruð að koma í fLokksskrifstofuna 4 I REYKJAVÍK Skrifstofa Framsóknarflokksins er Edduhúsinu við Lindargötu i Sími 6066 27. MARZ 1947 $0. blað Samþykktir búnaðarþings Aukin fjárveiting til þjóff- minjasafnsins. Kristján Eldjárn og Gísli Kristjánsson ritstjóri höfðu sent erindi um gerð líkana af ís- lenzkum sveitabæjum. Þessi tillaga var samþykkt: „Búnaðarþing skorar á Al- þingi það', er nú situr, að aukin sé fjárveiting til þjóðminja- safnsins á fjárlögum fyrir 1947 og framvegis og þeirri aukn- ingu varið til líkanagerðar af ís- lenzkum sveitabæjum af eldri og yngri gerð. Jafnframt skorar Búnaðar- þing á ríkisstjórn og þjóðminja- vörð að hafin verði framkvæmd þegar á næstkomandi vori." í greinargerðinni er komizt að orði á þessa leið: „íslendingar eru nú hina sið- ari áratugi að vakna til fulls- skilnings og framtaks um varð- veizlu ýmissa verðmæta, varð- andi þjóðminjar og menningar- arf frá liðnum kynslóðum. Var þó of lengi sýnt tómlæti um þessa hluti. Hafa því margvis- leg verðmæti glatazt, sem aldrei verða endurheimt, t. d. Auðunn- arstofan á Hólum o. fl. En vegna þessa verður því að hafa meiri hraða á en ella að bjarga því, sem tfjargað verður frá glöt- un. Ánægjuleg viðleitni í þessa átt er stofnun byggðasafna og viðhald nokkurra sveitabæja í fornum stíl, sem framkvæmd er á vegum ríkisins. Þetta er hlekkur í þróunarsögu íslenskrar menningar, sem hlynna ber að eftir getu. En að því er viðkemur byggingarfyr- irkomulagi íslendinga á ýmsum tímum og í hinum ýmsu lands- hlutum, væri æskilegt að geta tekið fleiri sveitabæi til við- halds og varðveizlu og víðar á landinu en nú á sér stað. En með því, að það er mjög fjár- frekt, er tæplega við því að bú- ast, að í það sé ráðist. Er þá að leita annarra úrræða, sem að nokkru gætu fyllt upp í þessi skörð. Virðist þá tiltækilegast að gerð séu líkön af ýmsum sveitabæjum frá mismunandi tímum og ýmsum landshlutum. Væri það haglega og skipulega gert, mætti úr slíku safni allvel lesa þróunarsögu íslenzks bygg- ingarstils fram á vora daga. En með því að nú eru óðum að hverfa af sjónarsviðinu gömlu bæirnir og rýma fyrir nýjum og varanlegri bygging- um, verður að vinda bráðan bug að því að ná þeim líkönum og varðveita á þann hátt útlit þeirra. Vitað er um, að minnsta kosti tvo bæi 1 Skagafirði og Eyja- firði í mjög fornum stíl, sem þegar á næstkomandi vori eiga að rýma fyrir nýjum bygging- um, og getur svo víðar verið. Væri því allmikill fengur i því að fá gerð af þeim líkön, áður en þeir hverfa. Er því æskilegt, að hið háa Alþingi teldi sér fært að sinna þessu máli með aukinni fjár- veitingu til þjóðminjasafnsins, er varið yrði til framkvæmda í þvi efni, sem hér hefir verið rætt.“ < ► Höfum fyrirliggjandi á lager í Reykjavík og Akureyri einangrunarplötur Stærð i/2X2 metrar á 14.90 platan. Samband ísl. samvinnuf élaga Syndakvittun og kosn- ingasigrar. (Framhald. af 2. siOu) þá að gæta þess betur skýldu sinrar nú, þegar veðrinu hefir slotað, og vorkunnarlaust er að skilja og sjá hvert hefir verið larið með þá. Með öðru betra móti geta þeir ekki lagt fram sinn skerf til þess að koma þjóðinni út úr þeim ógöngum, sem öllum er nú að verða ljóst, að hún er komin í fyrir handvömm rangrar stjórn arstefnu. Til þess að brjótast úr þeim ógöngum, þarf þjóðin á öllum kröftum. að halda. — Það eitt er víst, — og ekki skulu menn heldur gera sér neinar vonir um það, að eigi taki langan tíma að vinna aftur upp gerð mistök. V. Langrœkni er oftast hvim- leið; — stunduni réttmæt og nauðsynleg. - En langminni í pólitík er hverju þjóðfélagi lífsnauðsyn. — Á því langminni þarf þjóð okkar alltaf að halda — og ekki sízt á næstunni. Langminnið þarf hún að nota til þess að skilja hvernig það mátti verða, að hún var ginnt til þess að búa sér þau örlög að breyta mesta góðæri er yfir hana hefir kom- ið — í'yfirvofandi fjárhagsöng- þveitn Langminnið verður að vera vörn þjóðarinnar gegn því að verða leiksoppur pólitískra loddara Hvað eftir annað — því það þolir hún ekki. ErLent yfirlit (Framhald af 1. síðu) jafnaðarmönnum miklum sigri í þeim. Eins og sakir standa þykja ekki miklar líkur til, að kommúnistar eflist mjög í land- inu, þrátt fyrir öflugan áróður. Hernámsstjórnin sá sig til- neydda að grípa inn Lrás at- burðanna og fyrirbjóða verk- fallið, sem ráðgert var 1. fe- brúar. Verklýðshreyfingin sner- ist óvænt við því. Foringjar verkamanna báðu Mac Arthur að endurskoða afstöðu sína og óskuðu jafnframt eftir rannsókn á kaupgjaldsmálum landsins í heild. í framhaldi af því eru nú pendimenn heimssambandsins að hefja rannsókn sína. Þannig standa nú málin í Japan. Ríkisstjórnin er völt í sessi, og margir erfiðleikar á vegum hernámsstjórngrinar, meðfram vegna áhrifaleysis og óvinsælda rikisstjórnarinnar. Ef til vill gæti frjálslynd stjórn, sem alþýðunni væri betur að skapi, leyst vandann. Þó er örð- ugt að sþá um það, því að iðn- rekendur landsins eru líka á- hrifamiklir, en hins vfegar virð- ist þjóðin óðum öðlast sjálf- stæði í hugsun gagnvart fyrir- mælum æðstu stofnana og hætta að taka þeim með skilyrðis- lausri hlýðni. En óneitanlega skiptir það miklu hver þróunin verður í landi sólaruppkomunn- ar meðal þeirra 80 miljóna manna, er þar búa. I»rír Eyrbyjggjar. (Framhald af 3. siðu) endurbyggð og standa þau flest enn í dag. Túnið girti hann og sléttaði að mestu. Hann var snar í snúningum, kvikur á fæti, enda verkmaður mikill. Sérstaklega þótti hann dugleg- ur heyskaparmaður. Minnist ég eigi að hafa séð mann fljótari að binda heysátu en hann var. Gestrisinn var hann og góður heim að sækja og við granna sína var hann hinn greiðugasti á allt það er þeim mátti að gagni verða, hjálpsamur og vel- viljaður. Kristín á Eyri var bónda sín- um talsvert ólík í sjón og fasi. Hún var dökkhærö og mun hafa verið há og grönn á yngri ár- um. Hún var fátöluö og lét lít- ið á sér bera, var þó greihd vel og kom hóglega og vel fram. Greiðug var hún og hjálpsöm við þá, er bágt áttu og húsmóð- urstörf fóru henni vel úr hendi. Vanheilsa bagaði hana þó mik- ið á síðari árum hennar. Hún var seintekin og dul í skapi, en þeir sem náðu tryggð hennar og vinfengi áttu það vist til ævi- loka. Hófsemi og reglusemi yar einkenni heimilisins á Eyri og athyglisvert má það teljast, að enginn þeirra Eyrarbræðra, sona þeirra, hefir nokkru sinni neytt áfengis eða tóbaks um ævina. IV. Lárus Guðmundsson var fæddur á Eyri 23. janúar 1892. Hann gerði lítið heimanreist eins og sumir bræður hans, er sigldu til aryiarra landa að leita fjár og frama, eins og hinar gömlu frásagnir orða það. Hann fór ekkert að heiman nema tvo vetur, er hann dvaldi við nám í alþýðuskóla í Hjarðarholti í Dölum. Um tvítugsaldur kenndi harin krankleika nokkurs, svo að hann gat ekki um nokkur ár stundað erviðsvinnu. Alla ævi síðan gekk hann aldrei heill til skógar, því heilsa hans stóð ætíð veikum fótum. Þó Eyrarbræður væru alllr vel gefnir, var það á allra vltorði,' er til þekktu, og samhljóða álit allra 1 sveitinni, að Lárus væri þeirra bræðra greindastur og hefði námsgáfur langt um meiri en almennt gerðist. Það má því þeirra beggja hafi þeim oft erf- iðleika skapað. Lárus hélt á- fram umbótum föður síns á jörðinni, sléttaði allt túnið og bætti miklu við það, og endur- bætti og jók byggingar og girð- ingar. Að útliti og framkomu líktist Lárus meir móður sinni en föður. Lárus andaðist á Eyri 25. apríl 1946, eftir langa van- heilsu. Þau hjón eignuð'ust tvö börn, son og dóttur, sem bæði eru á lífi, hjá móður sinni á tíyri. Lárus á Eyri tók mikinn þátt í félagslífi unga fólksins í Borg- arfirði á öðrum tugi þesarar aldar, — Ungmennafélögunum. Bæði U.M.F. Reykdæla og U.M.F. Dagrenriirig nutu góð's af áhuga hans og starfsorku og eiga hon- um margt að þakka frá fyrstu starfsárunum. Hann gekk að félagsstarfi fullur áhuga og sparaði þar hvorki tíma né fyrir- höfn. Hann var glöggur og til- lögugóður, en fastur fyrir og lítt gefinn fyrir að láta hlut sinn, eða víkja frá því, er hann áleit sannast og réttast. Hann var lítið fyrir það, að trana sér fram í r|:ðuhöldum á fundum, en þegar hann tók til máls, var hann rökfastur og djarfmæltur og eigi var annað hægt en að taka eftir því er hann sagði og taka tillit til þess. Hann var á- gætlega ritfær og munu félags- blöð ungmennafélaganna er hann starfaði í,bera vitni um það, ef þau eru við lýði. Hugsjónir Ungmennafélaganna voru hon- um hjartans alvörumál og um þau mál var honum kærast að ræða. Urp einn tíma var hann einn af beztu sundmönnum í Borgarfjarðarhéraði. Var það sú eina íþrótt er hann gát, vegna heilsu sinnar, stundað af nokk- urri alvöru. Stífluðu þeir bræð- ur ána fyrir neðan túnið og gerðu þar sundlaug og æfðu þar sund í hinu kalda tæra berg- vatni árinnar. Er mér enn í fersku minni, er Lárus kenndi mér, stráknum af hinum bakka árinnar, hin fyrstu tök þeírrar listar í þessari sundlaug. Síðast, er ég kom að Eyri gekk ég með þpssum æskuvini mín- um fram á árbakkann, þar sem sundlaugin hafði verið. Þá var allt öðruvísi um að litast, en verið hafði fyrir aldarfjórð- ungi, þegar vlð Lárus vorum þar I rslil stökkkeppn- Innar. (Framhald af 1. síðu) steinn Sæmundsson, SKS, 206,0 stig (37 og 37,5), 3. Baldvin Haraldsson, SKA, 182,2 st. (31 og 31) og 4. Ra,gnar Thorvald- sen, SKR, 181 stig (33 og 33,5). Tvíkeppni í göngu og stökki vann Jón Þorsteinsson, eins og áður er sagt. Hlaut hann sam- anlagt 420,2 stig. Annar þar varð Jónas Ásgeirsson með 409,5 stig 05 3. Ásgrimur Stefánsson með 407,5 stig. Brun kgxla fer fram í dag. Skíðálandsmótið átti að hefj- ast á bruni karla ,er fram skyldi Framsóknarvist Framsóknarmenn í Reykjavík, munið að panta aðgöngumiða að Framsóknarvistinni á föstu- dagskvöldið. Pantanir afgreidd- ar í síma 2323. fara í norðanverðri Skarðsheiði, hjá Árdal. Þetta gat þó ekki orðið, vegna dimmviðris og ó- færðar. En nú fer brunkeppnin fram í dag þar uppfrá, enda eru vegir orðnir vel færir þang- að. — kallast kaldhæðni örlaganna að einmitt hann skyldi dæmast til þess að eiga erfiðasta daga þeirra bræðra, sem einyrki á af- dalajörð, þar sem hann var þeirra sízt fallinn til erfisvinnu vegna heilsu sinnar, en hafði fyllstu hæfileika til að verða einn af leiðandi menntamönn- um þjóðarinnar. En svona urðu örlögin að þessu sinni. Eftir dauða föðua: síns tók Lárus við búi á Eyri. Hann bjó fyrst með móður sinni, en kvæntist síðan Guðrúnu Guð- mundsdóttir frá Sleggjulæk', Kristjánssonar. Var hjónaband þeirra hið bezta, þó vanheilsa að synda. Nú var þar strengur einn, en engin lygna og»bakkinn var að mestu horfinn og grjót- eyri komin í staðinn. Engin merki sáust eftir hina gömlu sundlaug og möguleiki til sund- laugabyggingar virðist þar eng- inn vera fyrir hendi lengur. Áin Flóka hafði ekki breytt vana sínum 'eða látið marka sér bás frekar en á fyrri dögum. Eg kenndi dapurleika og sárs- auka. Mér fannst sem áranna straumur hefði hér eyðilagt mikið meira en bakka þá er mynduðu sundlaug okkar á æskudögum. Mér fannst ég sjá í hinu þreytulega andliti vinar ýaitt/a Síi Dalur ör- laganna (The Valley of Decision) Stórfengleg Metro-Goldwyn- Mayer kvikmynd. Greer Garson, Gregory Peck. Sýning kl. 5 og 9. Innheimtu- menn Tímans Muniff að senda greiffslu sem allra fyrst. ★★★★★★★★★★★★★★★★ 1/ijja Síi (við Shúlttqötu) t blíðu og' stríðu. (So goes my Love). Hin skemmtilega og vel leikna mynd, með: Myrna Loy og Don Ameche. Sýnd kl. 9. Apastúlkan. Dularfull og spennandi mynd. Vicky Lane, Otto Kruger. Bönnuð yngri en 16 ára. Sýnd kl. 5 og 7. ----—-------—-----——. 7rjatnatkíó Klukkan kallar (For Whom the Bell Tolls) Gary Cooper Ingrid Bergman Sýnd kl. 9. Á sjó og landi. (Tars and Spars). Amerísk músik- og gamanmynd. Janet Blair, Alfred Drake, Marc Platt. Sýning kl. 5 og 7. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR: Bærinn okkar leikrlt í 3 báttum eftir THORNTOX WILDER. Leikstjóri: LÁRUS PÁLSSON. Sýning annað kvöld kl. 20. Aðgöngumiðasala í Iðnó frá kl. 2 í dag. Tekið á móti pöntunum í síma 3191 kl. 1 til 2. Pantanir sækist fyrir kl. 4. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦ o o o O < * <» n 0 O O O o < I O o o O o O míns, eitthvað svipaða sögu, um breytingu og eyðileggingu margra þeirra hugsjóna er við áttum saman í æsku. Ég fylltist I gremju yfir því að þessi skarp- gáfaði og góði drengur hafði orðið að eyða ævi sinni í heilsu- leysi við búskaparbasl, sem ein- yrki á afskekktri og erfiðri jörð í afskekktu sveitarhorni. Og ég hryggðist af því að hugsa til þess, hversu mikii andleg afrek í alþjóðarþágu höfðu hér farið forgörðum, vegna þess að Lárus á Eyri hafði ekki haft tæki- færi til að njóta hæfileika sinna til fullnustu. V. „Alt er þegar þrennt er“ segir gamall íslenzkur málsháttur. Á Eyri í Flókadal hafa nú þrír ættliðir búið allan sinn búskap í samfelld 111 ár. Þrisvar hefir verið vegið í hinn sama kné- runn og hinn stóri ljár numið þá alla. Þrátt fyrir ýmsa erfið- leika hefir þó mörg gæfan fylgt þeim fegðum og blessun verið í búi þeirra fegða og sveitungar og nágrannar blessa minningu þeirra. í þriðja sinn, við sama ættararin, býr nú ekkjan á Eyri. Það er trú og von vandamanna, að þeir hollvættir, sem haldið hafa verndarhendi sinni yfir ætt þessari á Eyri í þrjá liði, geri það enn og allt megi enn vel fara, hvernig sem tímans mikla móða breytir farvegi sínum. Guðm. Illugason. DREKKIÐ MALTKO. Vtnttlð ötullefia fyrir Títnann. Auglýsið í Tímanum. Sextíu og' fimm ára. (Framhald af 2. síöu) töluvert að því að bæta jörð sína og sléttaði hluta túnsins þó við erfiðar aðstæður væri. Þau Sigurður og Rósinkransa hafa alið upp 2 fósturbörn, þau Guðbjart Gunnarsson, nú nem- anda á kennaraskólanum og Sigurlin, sem dvelur enn heima, auk þess átti Rósinkransa 2 dætur frá fyrra hjónabandi, Kristínu og Guðmundu, sem einnig ólust upp hjá þeim hjón- um. Sigurður er enn léttur í spori og lífsglaður og hefir áhuga á ýmsum félagsmálum og frjáls- lyndur er Sigurður í íandsmál- um. Hann hefir ávallt fylgt Framsóknarflokknum að mál- um og við flokksmenn hans ósk- um honum allra heilla á kom- andi dögum. K.B.E. Raðstofulijal. (Framhald af 3. siðu) mun þeirri. aðferð óspart beitt, þar sem yfirmenn á skrifstofum eru svo melnlausir eða kæri^ausir að láta slíkt viðgangast. Algengt er það nú, að misjafnir og ábyrgðarlausir starfs- menn fá á þennan hátt hærra heildar- kaup en yfirmennirnir en þeir mega ekki taka eftirvlnnukaup. Þó hér sé aðeins óverulega drepið á þetta er hér á ferðinni hiál, sem þarf að gefa gaum. Réttast væri að fella algerlega niður alla eftirvinnu á skrifstofum, en gera hins vegar þær kröfur til starfsmanna, að þeir vinni forsvaranlega." ÉG HEFI HÉR ENGU við að bæta frá sjálfum mér. Mér skilst að það, sem þessi skrifstofumaður segir, sé mjög i samræmi við skoðanir margra annarra, en auðvitað er ég reiðubúinn að birta jthugasemdir skrifstofufólks- ins, eins og annarra. . Pétur landshornasirkill.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.