Tíminn - 15.04.1947, Síða 1

Tíminn - 15.04.1947, Síða 1
RITSTJÓRI: S ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON | ÚTGEFANDI: | FRAMSÓKNARFLOKKURINN J Símar 2353 og 4373 PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. RITST JÓRASKRIFSTOFUR: EDDUHÚ3I. Llndargötu 9 A Símar 2353 og 4373 AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Llndargötu 9A Síml 2323 31. árg. Reykjavík, þriðjudagfim 15. apríl 1947 70. blað Frá Alþingi: Totlahækkunin neyðarúrræði til bráðabirgða til aö jafna hallann á fjárlagafrumvarpinu Úr ræðu Skúla Guðmiuidssonar við 2. umræðu í n. d. um tollafrv. stjórnariiuiar Viff 2. umr. um tollafrv. ríkisstjórnarinnar í neffri deild s.l. föstudagskvöld, flutti Skúli Guffmundsson, fulltrúi Framsóknar- fiokksins í fjárhagsnefnd, ræffu og benti hann þar m. a. á eftir- farandi: Rikisútgjöldin hafa tólffaldast. Frumvarp þetta gerir ráð fyrir tollahækkunum á árinu 1947, sem áætlað er að nemi um 30 milj. kr. Er frumvarpið flutt í þvi skyni að jafna rekstrar- hallann á fjárlagafrumvarpinu, sem er nú, eftir 2. umr. þess, nálægt 30 milj. kr. Gjöldin á rekstrarreikningi fj árlagafrum- varpsins eru komin upp í fullar 197 milj. kr., og má búast við einhverri hækkun þeirra við 3. umræðu, ef að vanda lætur. Rikisútgjöldin eru því nú, sam- kvæmt frv., orðin 12 sinnum hærri en þau voru síðustu árin fyrir styrjöldina. Ríkisútgjöldin og verðmœti útflutningsins. Á árunum 1935—1938 voru út- gjöld ríkissjóðs 16,6 milj. króna á ári að meðaltali. Þá var verð- mæti útflutningsvörunnar að meðaltali 53,7 milj. á ári. Ríkis- útgjöldin voru því um 31% af útflutningsverðmætinu á þeim árum. En síðustu árin hafa ríkisútgjöldin stöðugt farið mjög hækkandi, í hlutfalli við verðmæti útflutningsins. Þann- ig komust þau upp í 54% af útflutningsandvirðinu árið 1945. Árið 1946 var andvirði útflutn- ingsins alls 291 milj. kr., og sé gengið út frá því, að útflutn- ingurinn á þessu ári, verði jafn mikill að verðmæti, sem þó er alveg óvíst, eru rikisút- gjöldin orðin 70% af útflutn- ingsandvirðinu. Útflutnings- verðmætið er að vísu ekki ein- hlýtur mælikvarði á þjóðar- tekjurnar, en segja þó öðru bet- ur til um þær. Orsakir útgjaldahœkkunar- innar. Hækkanir ríkisgj aldanna á síðustu árum eru af mörgum rótum runnar, en það, sem einna mestu hefir valdið, mun þó vera: Launalögin, sem sett voru fyrir tveim árum, ásamt stöð- ugri fjölgun starfsmanna og auknum kostnaði við ríkisrekst- urinn. Skólalöggjöfin og trygg-- ingarlögín frá síðasta Alþingi. Síðast en ekki sízt má nefna stöðuga hœkkun vísítölunnar. Á valdatíma fyrrverandi ríkis- stjórnar hækkaði vísitala fram- færslukostnaðar um hvorki meira né minna en 48 stig. Þetta eitt, vlsitöluhækkunin í stjórnartíð fyrrv. ríkisstjórnar, eykur útgjöld ríkissjóðs senni- lega um a. m. k. 20 miljónir króna á ári. Þeim arfi hefir nú- verandi ríkisstjórn tekið við, og af því stafa fyrst og fremst þeir erfiðleikar, sem nú er við að fást, í sambandi við af- greiðslu fjárlaganna. Rannsóknarefni fyrir hag- frceðinga. S. 1. haust fengu þingflokk- arnir fjóra hagfræðinga til þess að athuga ástand og horfur í fjárhags- og atvinnumálum þjóðarinnar, og hefir álit þeirra verið birt. Gjarnan mætti láta fræðimenn á þeim sviðum at- huga fleira en þar var tekið til meðferðar, t. d. það, hvað stjórnarvöld landsins geta leyft sér að heimta mikla skatta og tolla til opinberra þarfa og hvað ríkisútgjöldin mega t’era há, í hlutfalli við þjóðartekj- urnar. Þetta er rannsóknarefni, sem hagfróðir menn ættu að taka að sér. Ef slíkt væri athug- að nú, yrði- niðurstaðan vafa- laust sú, að ríkisútgjöldin séu orðin of mikil, í samanburði við þjóðartekjurnar. Neyðarúrrœði til bráðabirgða. Það er kunnugt, að nú í augnablikinu er ekki hægt að koma fram skynsamlegum að- gerðum í dýrtiðarmálunum, sem m. a. gætu minnkað svo veru- lega fjárþörf ríkissjóðs, að eigi væri þörf fyrir þessar tollahækk anir og aðra þá tekjuauka, sem frv leggja fyrir um. Einungis þess vegna, að samkomulag fæst ekki enn um það, að fára þær leiðir, sem fara ætti í fjárhags- og atvinnumálum, eru frv. fram borin, sem nokkurs konar nauð- vörn. Þetta hefir komið fram í ræðum ráðherranna, sem talað hafa um tekjuaukafrv. Þeir hafa nefnt þau neyðarúrræði og bráðabirgðaúrræði, sem þau líka vissulega eru. Með þeim fæst engin varanleg lausn á þeim vanda, sem þjóðin er komin í vegna verðbólgu og dýrtíðar. — Þetta eru aðeins óhjákvæmileg neyðarúrræði, til þess að bjarga afkomu rikissjóðs þetta árið. Nauðsyn raunhœfra ráðstafana. Til þess að komast út úr ó- göngunum þarf aðrar ráðstaf anir, eins og oft hefir verið bent á af Framsóknarmönnum. Og e. t. v. er nokkur von um, að það, sem nú liggur fyrir og er að gerast, að ríkisútgjöldin eru, fyrst og fremst vegna verðbólg- unnar, komin upp í 200 milj. kr., eða um 70% af útflutning- unum, verði til þess að opna augu fleiri manna fyrir nauð- syn þess, að breytt verði um stefnu í fjármálum. Stóríbúðaskattur. Andmælendur frv. hafa haldið því fram í umræðunum, að til þess að afla ríkissjóði nauðsyn- legra tekna hefði átt að fara öðruvísi að. Þeir hafa einkum talað um, að í stað tollanna hefði átt að leggja á stóríbúða- skatt. Rétt mun það vera, að til sé allmargt af óþarfalega stórum íbúðum. Er það ekki sízt vegna þess að fyrrv. stjórn vanrækti að hafa eftirlit með og stjórn á því, hvernig innfluttu bygg ingarefni hefir verið varið. Þessi vanræksla stjórnarinnar hefir gert einstökum mönnum fært að nota byggingarefni í óhófi meðan aðrá vantaði efni til nauðsynlegra bygginga. Vel getur komið til mála, að leggja skatt á óhólega stórar íbúðir, eins og aðra óþarfa eyðslu. En þó að slíkt væri gert nú, væri það engin lausn á þeim vanda, sem hér þarf við að fást, að ná 30 milj. króna í rekstrarhalla fjárlagafrv. Stóríbúðaskattur yrði aldrei nema lítið brot af því, sem nú Sigursælt íþróttafólk úr U. M. F. R. Saltfiskurinn orðinn mörgum sinnum meiri en í fyrra Freðfiskmagnið nær lielmingi meira í lok marzmánaðar nam fisksöltun á öllu landinu rúmlega 16 þús. smál. miðaff viff fullstaðinn fisk og hafffi þá veriff saltað í marzmánuði einum saman tæplega 10 þús. smál. í lok marz árið 1946 nam saltfiskframleiffsla affeins um 2800 smál. Saltfiskfram- leiffslan í lok marz s.l. var sem hér segir í nokkrum hinna stærri veiffistöffva: Fremsta röð frá vinstri: Margrét Sölvadóttir, Guðbjörg Sigurjónsdóttir, Magnús Magnússon. — Miðröð: Ragnar Björnsson, Guðni Guðnason, myndastytta af Aðalsteini heitnum Sigmundssyni, Guðmundur Jónsson, Pétur Einarsson, Gunnar Snorrason, Sigurbergur Elentínusson, Árni Tryggvason, Ragnar Kristjánsson, Ármann Lárusson, Kristinn Guðmunds- son, Daníel Einarsson. — Aftasta röð: Siguröur Magnússon, Hilmar Sig- urðsson. Allt þetta fólk, sem er úr U.M.F.R., hlaut verðlaun fyrir íþróttaafrek 1946, nema Magnús Magnússon. En hann gefur bikarinn, sem hann heldur á, tii að keppa um á þessu ári í drengja flokki í frjáls- um íþróttum. Ljósm.: G. Þórðarson. Ungmennafélögin gangast fyrir glímu- og kynningarför til Noregs tngmennafélag Reykjavíkur liefir finft forgöngu um málið í vor er ákveffiff að flokkur íslenzkra glímumanna fari til Noregs a vegum ungmennafélaganna og sýni þar glímu á nokkrum Áöffum. Jafnframt verða fluttir fyrirlestrar um ísland og þá eink- um ungmennafélagshreyfinguna á íslandi og sýndar kvikmyndir frá íslandi. Ungmennafélag Reykjavíkur á frumkvæðiff að þessari för og eru flestir glímumennirnir frá því félagi. Vestmannaeyjar 1964 smál. Akranes 1953 smál. Keflavík 1638 smál., Hornafjörður 1587 smál., Reykjavík 1251 smál., Hafnar- fjþrður 1161 smál., ísafjörður 1104 smál., Grindavík 694 smál., Garður 610 smál., Sandgerði 606 smál., Fáskrúðsfjörður 527 smál., Bolungavík 476 smál., Grundarfjörður 355 smál., Stykishólmur 300 smál. Hin mikla aukning saltfisk- framleiðslunnar frá fyrra ári og frá því, sem verið hefir undan- farin ár, stendur í beinu sam- bandi við það, aö útflutningur ísvarins fisks frá bátaflotanum hefir því nær enginn verið á lessu ári, en nam t. d. til loka marzmánaðar í fyrra rúmlega Frá því að ungmennafélögin hófu fyrst starfsemi sína hér á landi hafa þau alltaf haft náið samband við ungmennafélögin í Noregi, enda má segja að norsku félögin séu fyrirmynd þeirra íslenzku, stofnuð fyrst af mönnum sem dvöldu í Noregi og kynntust þessari merkilegu vakning,arhreyfingu norsku æsk- unnar. vantar í ríkiskassann, og þótt hann væri á lagður, væri ekki hægt að komast hjá hækkun á tollunum. En það gæti verið skynsam- legt að leggja á stóríbúðaskatt, og verja honum til þess að styðja nauðsynlegar byggingar í kaup- stöðum og sveitum, sem nú vantar fé til. Stjórnin ætti að taka þetta til athugunar. Viðskilnaður sósíalista. Margt af því, sem fram hefir komið í ræðum þingmanna Sós- ’alistaflokksins um þetta mál, lítur einkennilega út, þegar það er borið saman við verk þeirra á næstliðnum árum, meðan þeir voru þátttakendur í ríkisstjórn. Einar Olgeirsson sagði m. a., að Sósíalistaflokkurinn hefði viljað stuðla að því, að þýðingarmestu atvinnuvegirnir, svo sem sjávar- útvegurinn, yrðu reknir með hagnaði. En hvernig kemur þetta heim við verk þessara manna? Eftir að hafa verið við völd í full tvö ár. skildu þeir við sjávarútveginn svo ósjálfbjarga í vetur, að engin fleyta hefði þá farið á flot til fiskveiða, að togurum undanskildum, ef rík- issjóður hefði ekki gengið, í á- byrgð fyrir útflutningsverð- inu. Þá tala þeir þingmenn Sós- íalistaflokksins mjög um heild- salana, sem séu of margir og græði um of. Það mun hvoru tveggja vera rétt. En hvernig var stjórnin á viðskiptamálun- (Framhald á 4. siðu) Nú um nokkurt skeið hefir allt samband milli þessara skyldu æskulýðssamtaka frændþjóð- anna fallið niður af eðlilegum ástæðum, sem eiga rót sína að rekja til langvinnrar styrjaldar og erfiðleika sem fóru í kjölfar hennar hjá norsku þjóðinni. Strax að styrjöldinni lokinni hófust þó bréfaviðskipti milii ungmennafélaganna í þessum löndum. Því hefir nokkrum sinnum verið hreyft af áhugamönnum íslenzku ungmennafélagshreyf- ingarinnar, að nauðsynlegt væri að treysta böndin milli þessara samtaka í Noregi og hér, með kynningarferðum á báða bóga. Af framkvæmdum hefir þó ekki orðið fyrr en nú, að afráðið er að flokjyar íslenzkra glímu- manna fari á vegum ungmenna- félaganna tR Noregs í vor í fylgd með leiðtogum ungmennafé- félagshreyfingarinnar, sem ætla að halda- um leið fyrirlestra í kynningarskyni og sýna kvik- myndir héðan að heiman. Það er Ungmennafélag Reykja víkur, sem á frumkvæðið að því að þessi för verður farin nú og þá einkum formaður þess, Stef- án Runólfsson, sem unnið hefir af miklum dugnaði að undir- búningi farar þessarar. í febrúar síðastl. fékk Ung- mennafélag Reykjavíkur bréf frá Ungmennafélaginu í Bergen þar sem það býður glímuflokki frá íslenzku ungmennafélögun- um að sýna á vegum þess Bergen og býðst að öðru leyti til að greiða fyrir ferðalagi flokks- ins um Noreg og dvöl hans þar, Þá hefir Norges Ungdomslag sem er samband norsku ung mennafélaganna, boðist til að greiða götu íslenzku ungmenna- félaganna. Lárus Salómonsson hefir í all- an vetur æft sérstakan glímu flokk, sem tekur þátt í þessari glímuför til Noregs. Aðallega eru það menn úr Ungmennafélagi Súðin slitnar upp frá legufærum sínum Síðastl. laugardag skall á suð- vestan ofviðri úm norður og austurland og hélzt fram yfir helgina. Súðin var stödd á Kópa skeri í strandferð vestur um !and og ætlaöi að koma þar á land vörum. Vegna veðurs var þó ekki hægt að skipa öllu því á land á Kópaskeri, sem þangað átti að fara. Var ákveðið að bíða og sjá til hvort veður batnaði ekki. Á laugardaginn jókst hvassviðrið stöðugt og um kl. 7 náði það hámarki sínu. — Þegar líða tók að miðnætti breyttist vindstaðan í vestur og jók brimið. Þegar vindstaðan breyttist slitnaði Súðin frá legu- færum sínum og missti bæði akkerinn og mikið af akkeris- festunum í sjóinn. Hélt skipið við svo búið til Akureyrar. Vegna þessa óhapps getur skipið ekki komið við á öðrum höfnum suð ur, en Siglufirði 20 þús smál. Það fiskmagn, sem áður var flutt út ísvarið, hefir því orðið að hagnýta á annan hátt og enda þótt frystihúsin hafa tekið nokkurn hluta af því, hefir þó mestur hlutinn far ið til söltunar. Nokkrir erfiðleikar hafa verið á saltútvegun, en gera má ráð fyrir, að úr þessu komi ekki til neinna vandræða af þeim sök- um. Frá áramótum til marzloka nam ffamleiðsla af freðfiski tæp lega 15 þús. smál. en var á sama tímabili á fyrra ári um 11300 smál. Allmiklum erfiðleikum hefir það vaidið frystihúsunum að geymslurúm er víða orðið fullt, en engar afskipanir hafa átt sér stað af þessa árs fram- leiðslu að undanteknum rúm lega 300 smál. Samsöngur Fóstbræðra Karlakórinn Fóstbræður held- ur samsöng í Gamla Bíó í kvöld kl. 7.15. Verður samsöngurinn endurtekinn 3 næstu kvöld, á miðvikudag, fimmtudag og föstudag á sama tíma. Tveir fyrstu samsöngvarnir eru ein- göngu fyrir styrktarmeðlimi kórsins. Karlakórinn Fóstbræður hélt nýlega upp á 30 ára afmæli si^t og er þetta fyrsti samsöngur þeirra eftir afmælið. Annars hefir kórinn yfirleitt haldið samsöngva einu sinni á ári og þá einmitt um þetta leyti árs. Söngstjóri hefir frá upphafi verið Jón Halldórsson og gegnir hann því starfi enn eins og kunnugt er. Af starfandi félögum hafa 5 menn auk söngstjóra starfað í 30 ár, en þessir menn eru Guð- mundur Ólafsson, Hallur Þor- leifsson, Helgi Sigurðsson, Jón Guðmundsson og Sæmundur Runólfsson. Þá hefir Magnús Guðbrandsson starfað í 26 ár, 7 menn starfað milli 20—30 ár og 11 menn 10—20 ár. í félaginu hafa starfað frá stofnun þess til þessa dags, 123 menn. Núverandi stjórn kórsins er þannig skipuð: Formaður Sig- Reykjavíkur og öðrum ung- mennafélögum á landinu og auk þess nokkrh' glímumenn úr Knattspyrnufélagi Reykjavíkur. Er óhætt að fullyrða að einung- is hinir vöskustu glímumenn verða valdið til þessarar farar. Hefir Lárus og lagt mikið kapp á að búa þá sem bezt undir för- ina. Ekki er alveg afráðið hvenær flokkurinn fer héðan, en vænt- i urgur Waage, ritari Holgeir anlega verður það um miðjan Qjsiason og gjaldkeri Friðrik maí. Glímumennirnir verða 20, en auk þeirra taka þátt í för- inni nokkrir forustumenn ung- mennafélaganna, sem ekki er alveg afráðið enn, hverjir verða. Munu þeir halda fyrirlestra í sambandi við sýningar flokksins og sýna kvikmyndir frá íslandi. Verður för þessi því, þegar allt kemur til alls, hin bezta land- kynning. Farið verður með flugvél héð- an til Noregs og fyrst sýnt í Bergen og Oslo, en auk þess mun fiokkurinn fara í hálfsmánaðar ferðaiag um landið og sýna á nokkrum stöðum, þar sem einn- ig verða fluttir fræðandi fyrir- lestrar um íslenzk félagsmál að- allega og sýndar íslenzkar kvik- myndir. Benda allar líkur til þess að för þessi geti orðið landi og þjóð til sóma og jafnframt treyst böndin milli æskulýðsfélaga þessara tveggja frændþjóða. Eyfjörð. Tekjuöflunarlögin 'staðfest Á rikisráðsfundi höldnum 14. apríl 1947, staðfesti forseti ís- lan/ds tekjUöflunarlög ríkils- stjórnarinnar. 1. Frumvarp til laga um hækkun á aðflutningsgjöldum árið 1947. 2. Frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 60 1939, um gjald af innlendum toll- vörutegúndum. 3. Frumvarp til laga um breyt- ing á lögum nr. 84/1932 um bif- reiðaskatt o. fl.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.