Tíminn - 17.04.1947, Qupperneq 3
72. blað
TÍMITVX, flmmtMdagiim 17. apríl 1947
3
FIIHMTUG:
Austur-Landeyjum
Mér finnst ekki vera úr vegi að
minnast með örfáum orðum
þessara merku hjóna við hálfr-
ar aldar áfangastað ævi þeirra,
þau eru bæði afmælisbörn sama
vetrar. Björgvin er fæddur 1.
desember 1896 að Hellum í Land-
sveit í Rangárvallasýslu. For-
eldrar hans voru Filippus Guð-
laugsson og Ingibjörg Jónas-
dóttir, sem var um margra ára
skeið ljósmóðir í Landsveit.
Hjón þessi voru merk og farsæl;
staðahjónin eru gestrisin og
skemmtileg heim að sækja.
Björgvin er söngvinn bæði heima
og heiman. Hann er fljótur að
taka í orgelið og skemmta gest-
um sinum, þegar svo ber undir.
Og vel gefinn til að taka lagið,
og hefir kona hans átt góðan
þátt í að taka þar undir. Björg-
vin hefir verið organisti við
Krosskirkju um mörg ár og
rækt það starf með prýði og
elju — sem sagt, hann hefir
Jarþrúður Pétursdóttir og Björgvin Filippusson.
Björgvin fluttist ungur að ár-
um niður í Austur-Landeyj ar
með konu sinni, Jarþrúði Pét-
ursdóttur, sem fædd er 28. marz
1897, að Högnastöðum við
Reyðarfjörð eystra. Þessi aust-
firzka kona er af traustum stofni
komin, þótt ég geti ekki rakið
ætt hennar hér — en við vitum,
að hún er góðum kvenkostum
búin, hún hefir ekki látið sitt
eftir liggja í lífsbaráttunni, hún
hefir bæði verið hyggin og hög
kona, sem hefir auk sinna marg-
þættu heimilisstarfa afkastað
miklum og vel gerðum sauma-
skap, sem mörgu heimilinu hefir
komið vel. Jörðin, sem þessi
ungu hjón fengu til að heyja
sitt búskaparstarf á, var sízt i
miklu áliti í þann tíð — en
hjón þessi eru með ráðdeild og
dugnaði búin að gera garðinn
frægan með stórfelldum umbót-
um. Björgvin er búinn að reisa
öll hús jarðarinnar úr gömlum
rústum í góðar byggingar, fén-
aðarhús, heyhlöður og síðast
stórt og myndarlegt íbúðarhús,
steinsteypt, auk þess gert mikl-
ar jarðabætur, túnasléttur, girð-
ingar og engjabætur. Björgvin
hefir haft á umliðnum árum
pitt með beztu búum Landeyja-
sveitar, þar af leiðandi verið
traust stoð sveitar sinnar. Ból-
sýnt í verkinu, að hann virðir
kirkju og kristni, enda hefir
honum verið trúað fyrir bæði
uppeldismálum og kirkjunnar
málum í sveit sinni, þar sem
hann hefir verið bæði í fræðslu-
j nefnd og safnaðarnefnd um
margra ára skeið. Bólstaða-
Ihjónin hafa þótt sjálfkjörin í
| samkvæmum Landeyinga frá
. því fyrst þau komu hér, jafn-
i vel hvort sem gleðin eða sorgin
hafa verið á ferðinni. Þau
hafa komið jafn myndarlega
fram í báðum tilfellum, enda
þekkja þau af eigin reynslu
sannleiksgildi orða skáldsins:
I „að sorg og gleði saman fara“,
[en borið hvorttveggja með
prýði.
Bólstaðahjónin eiga myndar-
legan hóp barna, sem spá góðu
um að prýða hóp sinnar sam-
[ tíðar. Við, sem höfum átt sam-
leið með þessum mætu hjónum
1 um margra ára skeið, 'minn-
i umst þess nú með gleði og þakk-
látum hug við þessi tímamót
ævi þeirra.
Þetta, sem hér er sagt, er um
fyrri þátt ævi þeirra. Hinn síð-
ari er óskráður og hulinn. Hann
felum við guði um ókomin ár.
Lifið heil Bólstaðahjón.
(íuðni Gíslason.
að búast. En þarna eru líka
myndir, sem eru mjög vel
gerðar og unun á að horfa.
Jón Haraldsson, verkamað-
ur í Reykjavík á þarna fallegar
myndir. Honum hefir tekizt vel
að ná mildum og næmum lit-
brigðum vatnsins á mynd sína
frá Mývatni. Sigling hans er
líka góð mynd.
Axel Magnússon, gjaldkeri og
Hákon Sumarliðason, verkstjóri
eiga þarna teikningar eða ra-
deringar, sem eru mjög svip-
góðar og skemmtilegar.
Axel Helgason lögregluþjónn
hefir sterka liti í myndum sín-
um, svo að þær minna á tízku-
málverk, en svo sér maður
sköpulag og tilgerð á þeim öll-
um, þó að hörundslitur fólks
sé stundum annar, en okkur
finndist eðlilegast. En starsýnt
varð mér á sumar myndir hans.
Það var ekki ætlun mín að
telja frístundamálarana upp
hér, en ég hætti ekki, án þess
að nefna Arinbjörn Þorvarðar-
son, sundkennara í Keflavík.
Hans myndir þykja mér
skemmtilegar og sérstaklega er
ég honum þakklátur fyrir mynd-
ina á Skagahraununum, því að
auk þess, sem hún er góð mynd
af vélbát í úfnum sjó, stafar frá
henni þeim krafti, sem snúið
hefir lífsbaráttu íslenzkrar þjóð-
ar í sigur.
Þessi orð eru enginn allsherj
ar dómur, hvorki um þessa sýn-
ingu né málaralist yfirleitt.
Menn eru misskyggnir á fegurð
ina í málaralist eins og öðru,
svo að enginn einn býr þar yfir
öllum sannleika. En það er sér
stök ástæða til að minna fólk
á að vanmeta ekki eigin smekk
og eigin dómgreind, þegar lærðir I
menn og kreddubundnir rísa'
upp með mestum hroka og yfir- 1
læti. Reynslan hefir sýnt, að
ofstækismenn sjá yfirleitt ekki
nema hálfan sannleikann og
(Framhald á 4. sí6u)
Gunnar Widegren:
Ráðskonan á Grund
hóstaði, ræskti sig og hnerraði, hann sneri frá borð-
inu og rýndi út í garðinn. Honum leið áreiðanlega mjög
illa. Ég varð að beita allri orku minni til þess að halda
mér í skefjum. Það var húsbóndinn einn, sem ekki
virtist botna neitt í neinu, fremur en barn í vöggu.
Hann mælti:
— Rekið þá kattarfjandann umsvifalaust burt héð-
an og sjáið um, að hann sé ekki lengur með nefið niðri
í rjómaskálunum.
— Bara ég gæti það, húsbóndi góður, sagði Haldi-
gerður og velti vöngum um leið og hún skálmaði
brott með bakkann.
En einhverju hlýtur að hafa verið hvíslað í eyra hús-
bóndans, því að skömmu eftir hádegið kom hann fram
í eldhúsið, þar sem við Hildigerður sátum að jarðar-
berjaáti. Þótt áfengismagnið í saftinni væri harla
lítið, hafði það samt aukið Hildigerði áræði og sjálfs-
traust. Hún lét sér hvergi bregða, er húsbóndinn
ætlaði að fara að atyrða hana fyrir ósvífið orðbragð.
í þess stað svaraði hún hlæjandi:
— Sá, sem hellti niður rjómanum, á ekki heima
hérna, en við lofuðum þeim, sem hellti honum niður,
að skella skuldinni á köttinn.
— Þetta get. ég vottað, sagði ég.
— Já, hélt Hildigerður áfram, og ég hefi ekki gert
annað en standa við orð mín.
— Hildigerður á engan sinn líka, sagði húsbóndinn
brosandi og hypjaði sig burt. .
Ég heyrði gegnum gluggann, að húsbóndinn og bróðir
hans hlógu dátt og lengi. Það var innilegur hlátur.
Lára flúði á náðir einverunnar upp í gestaherbergið.
Hún kom ekki niður aftur fyrr en um kvöldverðar-
leytið. Það hittist svo á, að þær Hildigerður mættust
í forstofunni. Andartaki síðar var Hildigerður komin
hvæsandi inn á mitt eldhúsgólf. Hún nuddaði hand-
legginn, föl af reiði og sársauka.
— Amsvítans vargurinn beit mig! hrein hún.
Á gildum, brúnum upphandleggnum sáust greinileg
merki þess, hvað gerzt hafði. Stórir, blásvartir mar-
blettir töluðu sínu máli. Þegar hún bar eggjákökurnar
á borðið, hagaði hún svo til, að húsbóndinn gat ekki
annað en séð áverkann.
— Þetta er fallegt að sjá, sagði húsbóndinn. Hvernig
fékk Hildigerður þetta?
— Læðan, sem ég var að tala um i dag, er komin
á kreik aftur, sagði Hildigerður óvenjulega mildum
rómi.
Þá skellti húsbóndinn flötum lófanum á borðið og
sagð'i með þungri áherzlu á hverju orði:
— Hvers konar árans kvikindi er þessi bannsett
læða?
— Ja, svei þeim vargi, sagði bróðir hans.
Og svo fóru þeir að tala um kreppuna og stjórnmálin.
En Hildigerður ljómaði af himneskri gleði. Lára hand-
lék aftur á móti hnífinn og gaffalinn óstyrkum
mundum.
Þar með var þessu ævintýri lokið. En Hildigerður tók
mig í fang sér, þegar hún kom fram í eldhúsið, kreisti
mig og nísti og hóf mig á loft.
— Ég elska húsbóndann, sagði hún.
Lára hefir að minnsta kosti aukið drjúgum við synda-
registur sitt — við skulum bara ekki minnast á berja-
föturnar, sem hún hefir velt um, né önnur spellvirki,
sem orðið hafa af hennar völdum, hvar sem leið hennar
hefir legið. Þær Hildigerður hafa lýst stríði hvor á
hendur annarri, þótt hvorugur aðilinn hafi enn vogað
. sér að ráðast út yfir landamærin og hefja bein vopna-
viðskipti.
Arthúr hefir gefið okkur Hildigerði sína postulíns-
öskjuna hvorri. Á þeim eru lok, og í þeim á að geyma
sælgæti. Hann laumar líka öðru hverju að okkur kara-
mellupoka eða súkkulaðibita, sem hann herjar út úr
búðarlokunum hjá Svenson, og við komumst aldrei svo
langt, að við sjáum í botninn á öskjunum okkar. Við
étum okkur ekki heldur til óbóta af sælgætinu, en
það getur samt verið gaman að gægjast einstöku
sinnum niður í öskjuna sína og fiska upp úr henni
mola og mola sér til munngætis. Ég geymi öskjuna
mína uppi í herberginu mínu, og það er ekki hvað sízt
þegar ég er að skrifa þér, að ég rænist i hana. Hildi-
gerður geymir öskju sína, er hún kallar „hlöðuna" á
sínu kröftuga máli, í eldhússkápnum á sérstakri hillu,
sem hún drottnar yfir.
En Lára er þefvís, og þetta fer ekki framhjá henni
fremur en annað. Venjulega lýkur hún kvöldleiðöngrum
sínum í eldhúsið með því að skattleggja sælgætisöskju
Hildigerðar í sína þágu og Garms.
Það hefði hún þó átt að láta ógert hérna um daginn.
Þegar hún opnaði „hlöðuna“, reyndist hún snauð að
súkkulaði og karamellum, en i þess stað stökk froskur
upp úr öskjunni í löngum og fallegum boga. Hann
náði fótfestu milli bungandi brjóstanna á Láru, og þá
var henni nóg boðið. Henni varð svo bilt við, að hún
hneig niður á eldhúsgólfið. En um leið og hún valt
út af, greip hún um bakið á stólnum, sem stóra kopar-
Kaupfélög!
FJÖLYRKJAR
Planet Junior nr. 11
Samband ísl. samvinnufélaga
Innilegt þakklæti tii allra er sýndu samúð og hlýhug við
andlát og jarðarför
Herdísar Signrðardóttur,
Varmalæk í Borgarfirði.
VANDAMENN.
MÍNAR HJARTANS ÞAKKIR sendi ég börnum mínum,
systkinum mínum, vinum og kunningjum, fyrir allar
gjafir, skeyti og heimsóknir á 60 ára afmæli mínu.
Allur þessi vinarhugur verður mér ógleymanlegur.
Guð blessi ykkur öll.
Ósgerði í Ölfusi.
PÁLL GUÐBRANDSSON.
HJARTANS ÞAKKIR fyrir heimsóknir, gjafir og heilla-
skeyti, er við fengum á fimmtugsafmælum okkar, 28. marz
sl. og 1. des. sl. — Guð blessi vinni okkar.
JARÞRÚÐUR PÉTURSDÓTTIR.
BJÖRGVIN FILIPPUSSON.
•*• >«■»<>«i
Fyrst um sinn tökum vér að oss að
bóna bíla
Upplýsingar á sprautu-málningarverkstæði voru.
Sími 7267.
vorujöfnun NR. 4
Gegn framvísun vörujöfnunarmiða nr. 4 (1947Ö fá félags-
menn KRON 1 y2 kg. af appelsínum. Skipting appelsínanna
getur að þessu sinni ekki orðið eftir stærð fjölskyldna
vegna þess hve vörumagnið, sem úthluta á, er lítið.
Vörujöfnuninni lýkur föstudaginn 18. þ. m.
KRON
Jörðin Vetleifsholt II
í Ásahreppi Rangárvallasýslu,
fæst til kaups og ábúðar í næstu
fardögum.
Semja ber við oddvita Ása-
hrepps
Þorst. Þorsteinsson,
Ásmundarstöðum.
Rykgrímur
Heyrykið er hættulegt heilsunni.
Rykgrímurnar eru bezta vörnin.
Venjuleg gerð .. Kr. 22,50 Stk,
Úr algúmmí ."... — 36,90 —
Sendum um land allt.
SeylSisf jaröar Apótek
CtbreHSÍH Timann!
Ujinnumit
ihuídar uorrar vi& landi&.
—Jdeitd á cJdandgræ^ifíiijóJ.
Jdlzripitopa _JJiapparití^ 29.
Drekkiö Maltko!
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<