Tíminn - 06.06.1947, Blaðsíða 1
31. árg.
Reykjavík, föstndaglnn 6. júní 1947
: TTSTJÓRASKRXFSTOFTJR:
EDDUHÚoI. Lindargötu 9 A
$ almar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, LindargötJ 9A
S;m! 2325
102. blað
ERLENT YFIRLIT:
Undanhald Rússa í Iran
Bandaríkjamenn virðast hafa orðiö
hlutskarpari.
Fyrir ári síðan voru átök stórveldanna í Iran á hvers manns
vörum, en nú um skeið hefir verið hljótt um þau þar til fyrir
nokkrum dögum, er iranska stjórnin tilkynnti að hún hefði lokað
landamærunum við Sovétríkin vegna skæruliðastarfsemi í Azer-
baidjan. Þessi fregn minnti menn á, að viðhorfið í Iran hefði
breytzt mikið síðan í fyrra, því að Rússar hefðu þá ekki tekið
lokun landamæranna með þögn og þolinmæði, eins og nú virðist
raunin. Átökin um Iran virðast hafa endað með ósigri þeirra og
er það kannske ekki sízt árangurinn af einbeittri stefnu Banda-
ííkjanna í utanríkismálum.
Kommúnistar reyna að taka ákvörðunar
réttinn af verkamönnum á Siglufirði
Heklumynd 1 erlendum blöðum
4111
Á stríðsárunum hernámu
Bandamenn Iran og fóru Rúss-
ar með hernámsstjórnina í
norðurhelmingi landsins, en
Bretar og Bandaríkjamenn í
suðurhelmingnum. Á Teheran-
ráðstefnu þeirra Stalins, Roose-
velts og Churchills var Iran-
smönnum heitið, að setuliðin
skyldu flutt burt innan ákveðins
tíma frá stríðslokum. Bæði Bret-
ar og Bandaríkjamenn stóðu
við þessi loforð sín, en Rússar
höfðu her sinn áfram. Jafn-
framt efldu þeir andstöðuhreyf-
ingu gegn stjórn Irans í Azer-
baidjanfylkinu, hinn svonefnda
Tudehflokk. Iranstjórn visaði
málinu þá til öryggisráðsins, en
árangur varð þar lítill. Umræð-
urnar þar munu þó hafa hjálp-
að til þess, að samkómulag
náðist milli stjórna Irans og
Sovétríkjanna á þá leið, að
rússneski herinn skyldi fara
burtu úr landinu, en Rússar
skyldu fá sérleyfi til olíuvinnslu
í Norður-Iran og Azerbaidjan-
fylki skyldi fá allvíðtæka sjálf-
stjórn undir forustu Tudeh-
flokksins. Fulltrúar úr Tudeh-
flokknum skyldu jafnframt
fá sæti, í irönsku stjórninni.
Munu Rússar hafa talið, að þeir
hefðu með þessu tryggt allvel
aðstöðu sína í Iran.
Fyrst eftir að þetta samkomu-
lag var gert, var tíðindalítið i
Iran. Rússar fóru á brott með
her sinn og iranska stjórnin
efndi sinn hluta samningsins. Á
síðastl. hausti áttu svo að fara
fram þingkosningar í Iran. Það
kynlega skeði þá, að rússneski
sendiherrann í Teheran mót-
mælti því að kosningar færu
fram í Azerbaidjan. Jafnframt
gerði Tudehstjórnin þar sig lík-
lega til að hafa fyrirmæli ríkis-
stjórnarinnar að engu. Forsæt-
isráðherrann, Qavam es- Sult-
aneh, ákvað þá að grípa rösk-
lega í taumana. Hann vék
Tudehráðherrunum úr stjórn
sinni og sendi her inn 1 Azer-
baidjan. Tudehherinn veitti
nokkra mótspyrnu og útvarpið 1
Moskvu hafði i hótunum við
irönsku -étjórnina. Eftir nokk-
urra daga viðureign var mót-
staða Tudehhersins brotin á bak
aftur og Tudehstjórnin flúin til
Sovétríkjanna. Um áramótin
fóru þingkosningar fram í öll-
um fylkjum Iran'og lauk með
miklum sigri ríkisstjórnarinnar.
Á sama tíma og þetta hefir
gerzt í Iran, virðast áhrif
Bandaríkjamanna hafa eflst
mikið þar, þótt ekki sé mikið
sagt frá því opinberlega. Enska
blaðið „Tribune“ -ákýrir nýlega
frá því, að raunverulega sé
sendiherra Bandaríkjanna þar
nánasti ráðgjafi Shahens eða
keisarans, amerískir liðsforingj-
ar annist þjálfun iranska hers-
ins og stjórnin hafi ráðið til sín
nokkra ameríska verkfræðinga.
Þá hafi amerískir læknar raun-
verulega verið settir yfir heil-
brigðisyfirvöldin þar og lög-
reglustjóri frá Nev? Jersey sé
helzti ráðunautur lögreglunnar
1 Teheran. Bandaríkjamenn séu
jafnframt sem óðast að festa
ítök sín i olíumálum landsins,
en allgóð s^mvinna virðist þó
vera á milli þeirra og Breta á
i því sviði. En ^að eru hinar miklu
!olíulindir Irans, sem valda tog-
streitu stórveldanna um landið.
Eins og sakir standa, virðist
allt benda til, að Bandaríkja-
menn hafi orðið Rússum hlut-
skarpari í keppninni um Iran.
Sú ákvörðun irönsku stjórnar-
innar að loka landamærunum
við Sovétríkin virðist sýna það
bezt, að hún telur sig nú hafa
í fullu tré við Rússa. En áreið-
anlega eru Rússar ekkert glaðir
yfir þessari ráðstöfun, þótt þeir
telji hyggilegra að láta kyrt
liggja að sinni.
ERLENDAR FRETTIR
Truman forseti lýsti því yfir
á blaðamannafundi ígær, að
stjórn Bandaríkj anna myndi
ekki láta stjórnarskiptin í Ung-
verjalandi afskiptalaus.
Stjórn 1 Bandaríkjanna hefir
lýst yfir því, að hún sé reiðubú-
in til þátttöku í stofnun al-
þjóðahers.
Sendiherrar Ungverjalands i
Sviss og Bandaríkjunum hafa
neitað a_ð verða við áskorunum
nýju stjórnarinnar um, að
hverfa heim.
í Palestinu hefir hermdar-
verkum fjölgað aftur sinustu
dagana.
VerkföII i Frakklandi færast
nú i aukana. M. a. er nú verk-
fall við jámbrautir og olíu-
stöðvar.
Mót Möðruvellinga
verður haldið á Ak-
ureyri í sumar
Ákveðið hefir verið að halda
Möðruvellingamót á Akureyri
þriðjudaginn 1. júlí næstkom-
andi, og hefst það 1 Mennta-
skólanum kl. 10 f. h. nefndan
dag.
Allir þeir, er stundað hafa
nám í Möðruvallaskólanum, án
tillits til burtfararprófs, eiga
þess kost að taka þátt í móti
þessu, og er þess vænzt að allir
þeir, sem því mega við koma,
sæki það.
Gert er ráð fyrir, að farin
verði skyndiför í bifreiðum að
Möðruvöllum. Að öðru leyti
verður tilhögunarskrá tilkynnt
í upphafi mótsins.
Mótið stendur yfir aðeins einn
dag.
Gisting í Menntaskólanum er
heimil þeim, sem vilja.
Æskilegt er, að menn tilkynni
þátttöku sína til Ingimars Eydal,
Akureyri eða Einars Árnasonar,
: Eyrarlandi, en þeir eru I undir-
i búningsnefndinni.
Þeir neita að láta bfera upp miðlun-
artillögur frá sáttasemjara
Sáttasemjarl iiotar sér heimild vimiulög-
gjafariimar til að fyrirskipa atkvæða-
S'reiðslu.
Þau tíðindi hafa gerzt á Siglufirði, að stjórn verkalýðsfélags-
ins Þróttar, sem er skipuð kommúnistum, hefir neitað eftir fyr-
irskipun frá Alþýðusambandi íslands að bera upp míðlunartil-
lögur frá sáttasemjara i kaupdeilu þeirra, sem þar stendur yfir,
enda þótt samningamenn félagsins hefðu áður verið búnir að
fallast á þær. Sáttasemjari hefir ekki haft þessa synjun að
neinu, heldur fyrirskipað atkvæðagreiðslu í félaginu, eins og
hann hefir heimild til samkvæmt vinnulöggjöfinni. En ofbeld-
isverknaður kommúnista er samt hin sami og sýnir það ofur-
kapp, sem þeir leggja nú á það að skapa fjármálalegt hrun með
því að stöðva þýðingarmestu atvinnugrein landsmanna, síld-
veiðarnar.
Heklumynd sú, sem hér birtist mynd ef, hefír komið í fjölmörgum er-
lendum blöðum, og barst Tímanum myndamótið frá Danmörku.
Frú aðalfundi Kaupfélags Hallg'eirseyjar:
Viðskipti félagsins ukust um
hálfa miljón kr. á síðastl. ári
Aðalfundur Kaupfélags Hallgeirseyjar, Hvolsvelli, var haldinn
að Stórólfshvoli laugardaginn 24. f. m. Á fundinum voru birtar
ítarlegar skýrslur um starfsemi félagsins á liðnu ári. Hafði hún
gengið mjög vel þrátt fyrir erfiðari aðstöðu en áður.
Rekstrarafkoma félagsins var
mjög hagstæð á sl. ári, þrátt
fyrir þær breytingar, er orðið
höfðu á aðstöðu þess á árinu og
búast mætti við að hefðu í för
með sér samdrátt og aukinn
rekstrarkostnað fyrir félagið.
Kaupfélagið hafði frá stofnun
M. B. F. annast mjólkurflutn-
inga úr austurhluta Rangár-
vallasýslu, en við árslok 1945 tók
mjólkurbúið alla flutninga í
eigin hendur. Orsökin til þess,
að þetta komst í framkvæmd,
var hörð ásókn andstæðinga
samvinnustefnunnar þar eystra
í þá átt að kljúfa og tvistra
þeim verkum, er ss,mvinnumenn
hér sunnanlands hafa á undan-
förnum árum byggt upp, og
koma mjólkurflutningunum til
mjólkurbúsins á algerðan tvístr-
ing. Það hefði haft mjög alvar-
legar afleiðingar fyrir alla aðila,
enda varð þessu afstýrt með því
að mjólkurbúið tók alla flutn-
inga í sínar hendur.
Sala erlendra vara hjá félag-
inu nam sl.,, ár kr. 3.286.696,39,
og hækkaði um kr. 610.041,48.
Sala innlendra vara nam kr.
445.438,64 og hækkaði um kr. 3,-
896,97. Heildarsala félagsins
nam því kr. 3.732.135,03 og
hækkaði alls um kr. 522.938,45.
Af heildarsölu nam kostnað-
(Framhald á 4. síðuj
Mmningarathöfnin á
Akureyri í gær
í gær fór fram frá Akureyr-
arkirkju kveðjuathöfn vegna
þeirra, sem fórust í flugslysinu
í Héðinsfirði. Fjölmenni var við
athöfnina og var mannfjöldi
-sarnan kominn á Torfunes-
bryggju, er Ægir lagði frá landi
með þau 11 lík, sem flutt verða
suður til greftrunar.
í kirkjunni flutti séra Pétur
Sigurgeirsson kveðju, kirkjukór
Akureyrar söng og Björgvin
Guðmundsson lék einleik.
Á morgun kl. 1 fer fram
kveðjuathöfn yfir líkum þeim,
sem jörðuð verða á Akureyri.
Verður þeirri athöfn útvarpað.
Þingmannafundur
Eins og kunnugt er verður
fundur norrænna þingmanna
haldinn í Reykjavík í sumar.
Nítján íslenzkir þingmenn
munu taka þátt í fundinum og
tíu norskir, en ekki er enn vit-
að um þátttöku Svía og Dana.
Samkomulagi náð um samn-
ingsgrundvöll.
Eins og kunnugt er orðið,
sagði verkamannafélagið Þrótt-
ur á Siglufirði upy> gildandi
samningum sínum við atvinnu-
rekendur og ríkisverksmiðj -
urnar í marz síðastl. Samninga-
umleitanir fóru síðan fram
miiii beggja aðila og stóðu yfir
21.—26. apríl. Enduðu þær með
því, að samningamenn beggja
aðila, Þróttar annars vegar og
atvinnurekenda og síldarverk-
smiðjanna hins vegar, komu sér
saman um samningsgrundvöll,
er leita skyldi samþykkis á.
Hétu báðir aðilar að leggja
samningsgrundvöllinn fyrir um-
bjóðendur sína innan sex daga,
eða fyrir 2. maí. Ætlaði stjórn
Þróttar þá að vera búin að láta
fara fram atkvæðagreiðslu með-
al félagsmanna um samnings-
uppkastið. )
Stjórn Þróttar vill fá
„línu“ að sunnan.
Þegar líða tók að tilteknum
tíma, báðu stjórnendur Þróttar,
sem allir eru kommúnistar, leyf-
is um að fresta atkvæðagreiðsl-
unni og ákvörðun sinni í málinu,
þar til þeir hefðu haft samband
við menn í Reykjavík. En um
þetta leyti var símasambands-
iaust við Siglufjörð. Fengu þeir
þennan frest.
Loforð um atkvæðagreiðslu
svikið.
Þegar símasamband hafði
fengizt, iét stjórn Þróttar ekki
bera umræddan samnings-
grundvöli undir félagsmenn,
eins og samið hafði verið um,
heldur lét hún samþykkja að
fresta ákvörðun i málinu, þar til
eftir stofnun Alþýðusamþands
Norðurlands. Þegar því var lok-
ið, vildu kommúnistar ekki leng-
ur líta við þeim samningsgrund-
velli, er samkomulag hafði áður
orðið um, heldur kröfðust þess
nú, að samið yrði í einu lagi við
allar síldarverksmiðjur á Norð-
urlandi. Þar með höfðu þeir
svikið það loforð samninga-
nefndar félagsins, að bera samn-
(Framhald á 4. síðu)
Frá bæjarstjórnarfundl í gær:
„Búkolla”
var tekin af dagskrá
\
Sá atburður gerðist á bæjarstjórnarfundi í gær, að borgar-
stjóri óskaði þess, að hið svokallaða Búkollumál væri tekið af
tlagskrá. Hefir mörgum hinum gætnari liðsmönnum borgar-
stjórans orðið ljóst, að hann var hér á góðum vegi að gera fjár-
málalegt glapræði og því fengið hann til að taka málið til nýrr-
ar íhugunar, ef verða mætti til þess, að hann félli alveg frá þess-
ari fyrirætlun sinni.
„Búkolla" í Laxnesi.
Þetta „Búkollu“mál er þann-
ig til komið, að fyrir alllöngu
síðan gengust nokkrir læknar
hér í bænum fyrir stofnun „fyr-
irmyndar stórbús“ í Laxnesi í
Mosfellssveit, er hlaut nafnið
„Búkolla". Mun það hafa verið
ætlun þeirra að sýna, að hægt
væri að þúa með meiri myndar-
brag og framleiða ódýrara en
bændur almennt geta. Þessa
menn skorti ekki heldur fjár-
magn, og flest dagblöðin áttu
ekki nógu sterk orð til að lofa
framtak þetta (sbr. kýrnar,
sem skrúfa sjálfar frá vatn-.
inu).Þetta var nokkuð annað en
'hjá vesalings bændunum! Þeg-
' ar tímar liðu fram, mun rekst-
ifrinn hins vegar hafa orðið
'næsta dýr og framkvæmdirnar
hvorki reynst eins heppilegar
og haganlegar og til hafði verið
ætlazt. Á síðastl. vetri munu
skuldirnar hafa verið komnar
talsvert á aðra miljón kr. og
litlar horfur á miklum gróða í
náinni framtíð.
Borgarstjóri hyggst að vinna
sér frama.
Þegar hér var komið sögu,
munu ýmsir af eigendunum
hafa ógjarnan viljað leggja
meira fé í fyrirtækið og lána-
stofnanjrnar líka verið farnar
að gerast nokkuð óþolinmóðar.
Nokkur eftirgrenslan mun því
hafa verið hafin í því skyni,
hvernig hægt væri að losna við
búið með góðu móti, og þá
fljótlega verið komið auga á, að
(Framhald á 4. síðu)