Tíminn - 13.06.1947, Síða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEFANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.í.
I .ITST JÓRASKRIFSTOFOR:
EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A
aíinar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, LlndargÖtu 9A
Siml 2323
31. árg.
Reykjavík, föstudaglnn 13. júní 1947
107. blað
ERLENT YFIRUT-.
Verður Hawaii bandaríkst fylki?
Sfawaiibúar vilja |iað sjálfir «íí frv. uin það
liggur nú fyrir þingi Bamlaríkjanna
Innan skamms tíma mun 49. stjarnan bætast í bandaríska
íánann, ef að líkum lætur. Fyrir Bandaríkjaþingi liggur nú frv.
um að gera Hawaii að einu af sambandsfylgi Bandaríkjanna
og hefir það hlotið eindregin meðmæli Trumans forseta og inn-
anríkisráðherrans, sem þessi mál heyra undir. Allar líkur benda
því til, að frumvarpið verði samþykkt.
Af hálfu Hawaiibúa sjálfra
liggur það skýrt fyrir, að þeir
óska eftir inngöngu í Banda-
rlkin. Stjórnarfarsleg tengsl
Hawai; við Bandaríkin hafa ver-
ið mjög svipuð og Filippseyja
áður en þær urðu sjálfstætt ríki.
Bandaríkjamenn hafa boðið
Hawaiibúum upp á skilnað, eins
og Filippseyj amönnum, en þeir
hafa í þess stað óskað, að Haw-
aii yrði eitt af sambandsfylkj-
um Bandaríkjanna. Var þessi
vilj i staðfestur af miklum meiri-
hluta kjósenda í þjóðarat-
kvæðagreiðslu, sem fór fram
1940. Málið stöðvaðist þá vegna
styrjaldarinnar, en hefir nú
verið tekið upp aftur að frum-
kvæði Hawaiimanna.
Hawaiieyjar munu í augum
flestra Norðurálfumanna vera
heimkynni sólskins og sumars
flestum öðrum stöðum fremur.
Eyjarnar eru alls 20 talsins, en
aðeins átta þeirra eru byggðar.
Þar hafa oft verið mikil elds-
umbrot -sg þar er eitt þekktasta
eldfjall veraldar, Kilauea. Flest-
ar eru eyjarnar hálendar og ná
sumir tindarnir þar 4000 m.
hæð. Þrátt fyrir hálendi er frjó-
semi og gróður eyjanna meiri en
víðast eru dæmi til. Þar vaxa
:allar tegundir suðrænna ávaxta
og jurta, auk mikilla skóga.
Náttúrufegurð er þar slík, að
Hawaiieyjar eru af mörgum
taldar fegursti staður veraldar.
Fyrir 170 árum var Hawaii
ónumið land af hvítum mönn-
um. Fyrsti hvíti maðurinn, sem
steig þar á land svo vitað sé, var
enski skipstjórinn Cook, sem
kom þangað 1778. Cook áætlaði
að þá væru um 100 þús. íbúar á
eyjunum. Þeir nefndust Kana-
kerar og voru fríðir menn og
myndarlegir. Eyjarnar skipt-
ust þá í mörg smáríki,
en um þetta leyti var einn kon-
ungurinn að brjótast til valda
og tókst honum fám árum
seinna að gera þær að einu ríki.
Ham> opnaði eyjarnar fyrir út-
lendingum. Hinir innfæddu íbú-
ar reyndust mjög menntunar-
fúsir og sömdu sig fljótt að hátt-
um aðkomumanna og blönduðu
blóði við þá. Nú er svo komið,
að hreinir Kanakerar eru ekki
taldir nema 14 þús., en alls eru
íbúarnir taldir um 450 þús. Þetta
stafar ekki af því, að Kanaker-
um hafi verið útrýmt, heldur
hinu, að þeir hafa blandað blóði
við aðkomumenn. Af íbúunum
nú eru Japanir og afkomendur
þeirra flestir eða um 160 þús.
Næst koma Kínverjar, Koreu-
menn og Filippseying&r.
ERLENDAR FRETTIR
Verkfalli járnbrautarmanna í
Frakklandi ( lauk í fyrrinótt.
Járnbrautarmennirnir fengu
nokkra kauphækkun, en þó mun
minni en þeir höfðu krafizt.
Lausn deilunnar er_mjög þökkuð
Ramadier forsætisráðherra.
Bandaríkjastjórn hefir nú af-
hent rússnesku stjórninni mót-
mæli sín vegna stjórnarskipt-
anna í Ungverjalandi. Telur hún
að Rússar hafi með afskiptum
sínum í Ungverjalandi brotið
Jaltasamfcykktina og fleiri gefin
loforð.
Aukin menntun Hawaiibúa
hafði það í för með sér, að þeir
kröfðust fljótt meira stjórnar-
farslegs frelsis. Árið Í340 fengu
þeir þingbundna konungsstjórn,
en undu því ekki til lengdar.
Árið 1894 gerðu þeir byltingu
gegn þáverandi drottningu og
steyptu henni af stóli. Hún hét
Lilluokalani og var fræg fyrir
að gera sönglagið Aloaho. Örfá
næstu árin var Hawaji lýðveldi,
en eftir spánsk-ameríska stríð-
ið óskuðu íbúarnir ijangögnu í
Bandaríkin. Því var iafnað, en
1898 féllust Bandaríkjamenn á
að gera eyjarnar að eins konar
umdæmissvæði sínu.
Stjórnarháttum Hawaiieyja
er þannig háttað, að Banda-
ríkjaforseti skipar landsstjóra,
er annast framkvæmdavaldið að
miklu leyti. Eyjaskeggjar hafa
sérstakt löggjafarþing, en
Bandaríkiaþing hefir vald til að
breyta lögum þess, en það hefir
aldrei notað sér þetta vald.
Bandaríkjamenn hafa jafnan
lýst því yfir, að það væri Haw-
aiibúum frjálst að gerast sjálf-
stæðir, ef þeir óskuðu þess, en
þeir hafa jafnan óskað nánari
tengsla við Bandaríkin.
Me^iningarmál Hawaiibúa eru
talin í góðu lagi og verklegar
framfarir hafa verið þar miklar.
Næstum öll utanríkisviðskipti
þeirra pru við Bandaríkin og
ræður það kannske mestu um,
að þeir óska að gerast eitt af
sambándsfylkjum Bandaríkj
anna.
Akurnesingar íaka
ekki þátt í samúðar-
verkfalli
Fjölmennur fundur í Verka-
lýðsfélagi Akráness, haldinn
þriðjudagskvöldið, samþykkti
með 49 atkvæðum gegn 14 eftir
farandi tillögu:
Út af tilmælum Alþýðusam
bands íslands varðandi samúð-
arverkfall til stuðnings verka
mannafélaginu Dagsbrún í
Reykjavík, sem nú á í deilu við
atvinnurekendur þar, og þar
sem sú deila er háð vegna tolla-
laga þeirra, er samþykkt voru á
síðasta alþingi, samþykkir fund-
ur í Verkalýðsfélagi Akraness,
haldinn 10. júní 1947, eftirfar-
andi:
Þar sem vitað er, að dýrtíð sú,
sem ríkir i landinu, er stór
hættuleg fyrir allt atvinnulíf
bæði til lands og sjávar, og get-
ur orðið valdandi atvinnuleysi
og kreppu, og þannig gert að
engu þær vonir, sem verkamenn
og ]pó frekast sjómenn, hafa
bundið við þau stórtæku vinnu-
tæki, sem nú þegar eru komin
til landsins, eða koma bráðlega
þá tjáir fundurinn sig mótfall-
inn þvi, að efna til víðtækra
vinnustöðvana til þess að knýja
fram grunnkaupshækkanir um
land allt, svo sem stjórn Alþýðu-
sambands íslands hefir hvatt til
undanfarið. Og í beinu fram-
(Framhald & 4. stOu)
BREZKA KONUNGSFJÖLSKYLDAN
Dýrasýningin í Örfirisey
var opnuð í gær
I»ar verða m. a. til sýnis apar, sæljón, skógar-
birnir, selir, fiskar og útlendir og
innlendir fuglar
Dýrasýningin í Örfirisey, sem Sjómannadagsráðið gengst fyrir
að haldin er þar, var opnuð í gærkvöldi kl. 8. Á sýninguna eru
ekki komnar nema tvær dýrategundir, af þeim, sem þar á að sýna,
þ. e. apar og sæljón. Það munu einmitt vera þau dýr, sem flest-
um þykir einna mest gaman að sjá. Blaðamönnum var í gær
boðið að skoða sýninguna, áður en hún var opnuð fyrir almenning.
Mynd þessi var tekin af brezku konungsfjölskyldunni nokkru eftir aS hún
kom úr för sinni tij Suður-Afríku.
Hringkonur hefja nýja fjársöfn-
un fyrir barnahælissjóðinn
Kvenfélagið Hringurinn hefir lengi unnið að því mikla nauð-
synjamáli að koma 'upp barnaspítala. Þegar hafa safnazt rúmar
1.3 millj. kr. í þessu skyni eða um helmingur væntanlegs bygging-
arkostnaðar. Hringkonur ætla þó ekki að láta hér staðar num-
ið, heldur eru nú að hefja nýja fjársöfnun, sem vonandi fær
almenna þátttöku. Segir svo um þessa fjársöfnun í ávarpi, sem
stjórn Hringsins hefir sent félagskonum:
— Samkv. reikningum félags-Q
ins, sem lagðir voru fram á að-
alfundi þ. 19. þ. m. er Barna-
spítalasjóður Hringsins orðinn
1.237.000 þús. kr., en auk þess
hefir hann nýlega fengið loforð
fyrir rúmum 100.000 kr., sem
enn eru óinnkomnar. Búast má
við, að þar með sé fengið fram
undir helmingur af byggingar-
kostnaði barnaspítalans og meg-
um við því gera ráð fyrir, að
bráðlega verði hafizt handa um
bygginguna. En þó nú sé svo
komið, að horfur séu á, að brátt
verði byrjað á byggingu barna-
spítlans, þá er ekki ætlun
Hringsins að leggja hendur í
skaut, heldur þvert á móti að
herða róðurinn og reyna nú að
gera stórt átak til þess að efla
barnaspítalasjóðinn, og auka
þar með að mun framlag hans
til barnaspítalans, því takmark
Hringsins hefir ávalt verið, að
framlag hans til barnaspítalans
yrði sem allra mest.
Það eru nú orðin töluverð
vandkvæði á því að stofna til íslendingar hafa eignast. Mun
Skymastervél Loft-
leiða kemur á laug-
ardaginn
Hin nýja Skymasterflugrvél
Loftleiða er væntanleg hing-
að til lands eftir hádegi á
laugardaginn. Mun hún lenda
á Reykjavíkurflugvellinum.
Flugvélin lagði af stað frá
New York til Winnjpeg í gær,
en þ|:r átti hún að taka 15—20
Vestur-íslendinga, sepi ætla að
koma hingað. Einnig mun hún
koma með farþega frá New
York.
Á vélinni er erlend áhöfn, að
öðru leyti en því, að Alfreð
Elíasson er annar flugmaður.
Mun þessi áhöfn verða á flug-
vélinni áfram.
Þetta er stærsta flugvél, sem
skemmtana, hlutaveltu eða
happdrættis í fjáröflunarskyni.
Bæði er nú orðið svo mikið um
slíkt, að vafi getur verið um
árangur, og líka er það orðið
miklum erfiðleikum bundið a§
koma slíku á stað, og svo lendir
það oftast þungt á tiltölulega
mjög fájjm félagskonum. Fyrir
því hefir okkur hugkvæmst að
reyna nú nýja leið til fjáröflun-
ar, leie^, sem hefir þann kost, að
allar félagskonur geta lagt sinn
skerf þar til, án mikillar fyrir-
hafnar, eu sem getur hins vegar
leitt til mjög mikils árangurs
og orðið til þess að efla Barna-
spítalasjóðinn að miklum mun,
ef allar Hringkonur vilja leggj-
ast á eitt.
Hringkonur munu minnast
þess, að síðastliðið ár var stofn-
aður félagsskapur, sem nefnist
„Styrktarfélagar Barnaspítala-
sjóðs Hringsins.“ Þessi félags-
skapur er aðeins fólginn í því, að
hver félagi leggur til 100 kr. árs-
tillag í þrjú ár. Þó má greiða
(Framhald á 4. síOu)
hún verða látin fljúga til Norð-
urlanda fyrst um sinn.
Ósannindum
hnekkt
Blaðinu hefir borizt eftirfar-
andi yfirlýsing frá ríkisstjórn-
inni:
— Því hefir verið haldið fram
í dagblaðinu „Þjóðviljinn", að
stjórn verkamannafélagsins
Dagsbrúnar hafi 12. febrúar sl.
boðið ríkisstjórninni að fram-
lengja samning félagsins með
óbreyttu kaupgjaldi til sex mán-
aða, ef stjórnin vildi lýsa yflr
því, að ekki yrðu gerðar ráð-
stafanir, sem rýrðu kjör Dags-
brúnarmanna á þessu tímabili,
en að ríkisstjórnin hafi ekkl
viljað taka þessu tiiboði.
Ut af þessari frásögn vill rik-
isstjórnin lýsa yfir því, að hún
hefir aldrei, hvorki 12. febrúar
né endranær, fengið þetta til-
boð, og hefir því af þcim ástæð-
um aldrei hafnað slíku tilboði.
Þetta mun vera í fyrsta sinnp
sem dýrasýning, slík sem þessi,
er haldin hér á landi. Gefst
mönnum nú kostur á að sjá dýr,
sem fæstir íslendingar hafa
nokkurn tíma augum litið, og
um leið gefst mönnum tækifæri
til að skoða og virða fyr\r sér
nokkur íslenzk dýr, betur en
kostur er á úti í náttúrunni.
Sjómanijadagsráðið á því þakkir
skilið fyrir að koma þessari sýn-
ingu á fót og auðga með því hið
fábreytta skemmtanalíf bæjar-
búa, yfir sumartímann.
Á dýrasýningunni verða apar,
sæljón, bjarndýr, páfagaukar,
selir og flestar tegundir ís-
lenzkra fiska, og ef til vill ís-
lenzkir fuglar.
Eins og áður er sagt, eru ap-
arnir og sæljónin einu dýrin,
sem komin eru til sýningar.
Aparnir eru fyrir nokkru komn-
ir hingað til landsins. Eru þeir
9 talsins, tvær tegundir Afríku-
apa. Hefir forstjóri dýragarðs-
ins í Edinborg sýnt Sjómanna-
dagsráðinu þá vinsemd, að lána
dýrin hingað til sýningar. Apar
þessir eru hinir fjörugustu og
einkennilegir mjög í háttum
sínum. Er þeim komið fyrir 1
sérstöku húsi á eynni, en einn
veggur þess er úr neti svo auð-
velt er að horfa á dýrin.
Sæljónin eru fengin hingað
alla leið frá Kaliforníu í Banda-
ríkjunum og hefir sýningar-
nefndin keypt þau til sýningar-
innar. Komu þau til landsins
með skipi, fyrir nokkrum dög-
um. Dýrin eru tvö talsins og hef-
ir þeim verið komið fyrir í sér-
stökum steinsteyptum þróm, þar
sem ferskum sjó er dælt inn til
þeirra alltaf öðru hvoru. Sæljón
þessi eru ungar og að stærð á
við miðlungs stóran fullorðinn
sel. Sæljón verða allt að fimm
sinnum stærri, þegar þau eru
orðin fullvaxta. Sæljónin lifa á
fiski. Hefir þeim verið gefinn
smáþorskur og síld. Dýr þessi eru
hin skemmtilegustu og synda
forkunnar vel.
(Framhald á 4. síSu)
Kommúnistar boða
verkfall á síld-
veiðiskipum
Stjórn Alþýðusambandsins
hefir tilkynnt Landssambandi
ísl. útvegsmanna, að sjómanna-
félögin í Vestmannaeyjum, á
Akureyri og í Neskaupstað muni
hefja verkfall á síldveiðiskipum
20. þ. m., ef samningar hafa ekki
tekist fyrir þann tíma. Von mun
á slíku verkfalli á fleiri stöðum.
Kommúnistar fyrirskipuðu í
vetur öllum sj ómannaféilögum
að segja upp samningum um
síldveiðikjör, og sést á því, að
þeir hafa þá strax ætlað að
stöðva síldvelðarnar ef ekki yrði
fallizt á kröfur þeirra um aukna
dýrtíð. Félög, sem ná til 60% af
síldveiðiflotanum, neituðu að
hlýða þessari fyrirskipun.
Hátíðahöldin 17. júní
Undirbúningsnefnd 17. júní
hátíðahaldanna í Reykjavík,
hefir komið sér saman um til-
högun á hátíðahöldum dags-
ins í bænum.
Eru þau í aðalatriðum ákveðin
á þann veg, að kl. 1 e. h. hefst
skrúðganga frá Háskólanum að
Austurvelli. Þá verður messa. i
dómkirkjunni, séra Bjarni pre-
dikar. Forseti íslands, herra
Sveinn Björnsson lejjgur blóm-
svei á fótstall minnismerkis
Jóns Sigurðssonar á Austurvelli
en Lúðrasveit Reykjavíkur leik-
ur þjóðsönginn. Fjallkonan, sem
að þessu sinni verð.ur ungfrú
Alda Möller, leikkona, kemur
fram á svalir Alþingishússins.
Farið verður í skrúðgöngu suð-
ur á íþK^ttavöll, þar sem háð
verður frjálsíþróttamót.
Um kvöldið verða svo væntan-
lega hátíðahöld og dans I
Hljómskálagarðinum og á Sól-
eyjargötunni.
Tundurdufl grandar enskum tog-
ara fyrir Austurlandi
Allir skipverjar, nema einn, björguðust
í fyrrakvöld vildi það slys til, að enskur togari frá Hull, Loch
Hope, sökk fyrir Austurlandi eftir að hafa fengið tundurdufl í
vörpuna. Duflið sprakk við skipshlið, einn maður beið bana, en
fimm særðust hættulega.
Atburður þessi átti sér stað
rétt eftir hádegið i fyrradag.
Togarinn var á veiðum sunnan
Reyðarfjarðardýpis, er skipverj-
ar tóku eftir því, að tundurdufl
hafði komið í botnvörpuna.
Sprakk það við skipshlið, án þess
að nokkuð fengist að gert, og
tók skípið þegar að sökkva. Við
sprenginguna beið einn maður
bana, en fimm særðust hættu-
lega, auk þess sem allmargir
hlutu minni háttar meiðsli.
Á sömu slóðum og „Loch
Hope“ hafði verið að veiðum,
var brezki togarinn „Urka.“ Er
skipverjar á þeim togara sáu,
hvað skeð hafði, sigldu þeir þeg-
ar á slysstaðinn, en „Loch Hope“
var sokkinn er hinn kom á vett-
vang. Tókst að bjarga öllum
mönnunum, sem ýmist héldu sér
uppi á sundi eða á braki úr skip-
inu.
Er öllum mönnunum hafði
verið bjargað, var haldið til
Seyðisfjarðar og komið þangað
um nóttina. Mennirnir, sem
mest voru slasaðir, voru fluttir
í sjúkrahúsið og þar gert að
meiðslum þeirra. Líðan skip-
verja er eftir atvikum góð.