Tíminn - 13.06.1947, Síða 4
FRAMSOKNARMENN!
Munib að koma í ftokksskrifstofuna
REYKJAVÍK
Skrifstofa FramsóknarfLokksin ser í
Edduhúsinu v/ð Lindargötu. Sími 6066
13. JÉ\t 1947
107. blað
Ú i
œnum
f dag.
Sólin kemur upp kl. 3.10. Sólarlag kl.
23.54. Árdegisflóð kl. 1.00. Síðdegisflóð
kl. 13.35.
í nótt.
Næturakstur fellur niður vegna
bensínskorts. Næturlæknir er i lækna-
varðstofunni í Austurbæjarskólanum,
sími 5030. Næturvörður er í Ingólfs
Apóteki.
Útvarpið í kvöld:
20.00 Préttir. 20.30 Útvarpssagan:
„Grafinn lifandi", eftir Arnold Benn-
ett, IV (Magnús Jónsson prófessor).
21.00 Strokkvartett útvarpsins. Kvart-
ett í G-dúr eftlr Mozart. 21.15 Erindi:
Alþjóðasamband kennara. — Síðara
erindi Steingrímur Arason kennari).
21.40 Tónleikar: Negrasöngvar (plöt-
ur). 22.00 Préttir. 22.05 Symfóníutón-
leikar: Symfónía nr. 3 eftir Bax. 23.00
Dagskrárlok.
Skipafréttir.
Brúarfoss er í Kaupmannahöfn.
Lagarljoss fór frá Leith 10. júní til
Gautaborgar. Selfoss er á Raufarhöfn
í dag 12. júní Fjallfoss fer frá Hull í
kvöld 12. júní til Reykjavíkur. Reykja-
foss fer frá Patreksfirði kl. 14.00 í dag
til Vestmannaeyja. Salmon Knot kom
til Reykja\tfkur 9. júní frá New York
True Knot fór frá Reykjavík 6. Júní til
New York. Becket Hitch fór frá New
York 11. júní til Reykjavíkur. Anne
kom til Hamborgar 6. júní frá Siglu-
firði. Lublin er í Leith. Björnefjell fór
frá Vestmarínaeyjum 6. júní til Ham-
borgar. Dísa fór frá Raumo í Pinn-
landi 6. júní til Siglufjarðar og Hjalt-
eyrar. Resistance kom til Antwerpen
11. júni frá Seyðisfirði. Lyngaa kom til
Gautaborgar 8. júní frá Oslo Baltraffic
fór frá Reykjavík 9. júní til Liverpool.
Akurnesingar . . .
(Framhald af 1. síSu)
haldi af samþykktum trúnaðar-
mannaráðs varðandi þessi mál
samþykkir Verkalýðsfélag Akra-
ness að svara fyrrnefndum til-
mælum Alþýðusambands ís-
lands um samúðarverkfall neit-
andi.“
Spegilliim.
Spegillinn kunningi okkar er ekki
mjög gamall í hettunni. Hann er að-
eins 140 ára og áður en farið var að
silfra bakhlið spegilglersins, var sett
þar húð af blýi, tini eða kvikasilfri.
Pyrr á öldum, í Róm, spegluðgu ungu
stúlkurnar sig í fægðum fleti úr
bronsi eða silfri. Pornegiptar notuðu
einnig brons til þess að spegla sig í.
Balletdansarar efna
til sýninga hér
Hinn 18. þ. m. er væntan-
legur hingað til lands flokkur
„Ballett“-dansara frá kon-
ungleg^ leikhúsinu í Höfn.
Mun hann hafa hér nokkrar
sýningar og ef til vill á Ak-
ureyri.
Það eru þrír ungir dansarar,
sem nýlega hafa hafið starf sitt
hjá konunglega leikhúsinu, sem
koma hingað. Konunglega leik-
húsið hefir eingöngu úrvals
dansfólki á að skipa, enda mun
dansfólk þess standa framar
flestum þjóðum í þeirri list.
Einn úr flokknum er íslend-
ingur, Friðbjörn Björnsson, sem
getið hefir sér góðan orðstír í
Danmörku fyrir dans sinn. Hefir
hann einnig samið sjálfur
nokkra dansanna, sem flokkur-
inn mun dansa hér.
Ballett dansararnir koma
hingað á sínum eigin vegum, en
Haraldur Björnsson leikari tek-
ur á móti þeim og hefir séð um
undirbúning að komu * þeirra.
Þeir munu halda -hér nokkrar
danssýningar, sú fyrsta verður í
Iðnó 20. þ. m. og önnur 24. þ. m.
Ef til vill mun flokkurinn fara
til Akureyrar og sýna þar.
Koma þessara dansara hingað
má teljast merkileg nýjung í
skemmtanalífi bæjarbúa, þar
sem þetta er raunverulega í
fyrsta sinn, sem haldin er hér
Ballettsýning.
Kvennafundur
Næstkomandi mánudagskvöld
efna kvenfélögin í bænum til
fundar um slysahættu barna og
ráðstafanir gegn því, að börn
séu eftirlitslaus á götum bæj-
arins. Þess er vænzt, að konur
fjölmenni á fundinn.
Dýrasýningin
(Framhald af 1. slðu)
Annað ker með sjó í er við
hliðina á Sædýrabúrinu og verða
selirnir í því. Þeir verða ís-
lenzkir, veiddir í Breiðafirði og
munu þeir vera á leiðinni til
Reykjavíkur. Þá eru einnig á
leiðinni páfagaukar frá Svíþjóð,
og von á svokölluðum svart-
björnum vestan úr Klettafjöll-
um, áður en mjög larigt um
líður.
Þess skal getið, að veitingar
verða í skála út á eynni. Allur
ágóði af sýningunni rennur til
dvalarheimiíis aldraðra sjó-
manna qg.ætti það ekki að draga
úr aðsókninni.
Embættispróf við Háskólann
Prófum, sem staðið hafa yfir við Háskóla íslands, er nú að
mestu lokið. Fer hér á eftir skrá um þá stúdenta, sem lokið hafa
fullnaðarprófi að þessu sinni:
í guðfræði: Andrés Ólafsson
II. ei#ik. betri 190 stig, Kristján
Bjarnason I. eink. 127% stig.
Embættispróf í læknisfræði:
Björn Jónsson I. eink. 176y3 stig.
Björn Þorbj arnarson I. eink.
184% stig, Erlendur Konráðsson
I. eink. 161% stig, Grímur Jóns-
son II. betri 141% stig, Henrik
Linnet I. eink.. 160% stig, Jón
Gunnlaugsson I. eink. 157 stig,
Richard Thors I. eink. 176% stig,
Þóroddur Jónasson I. eink.
187% stig.
Embættispróf í lögfræði: Ari
Kristinsson I. eink. 197% stig,
Axel Ólafsson II. eink. betri
146y3'stig, Brynjólfur Ingólfsson
I. eink. 180 stig, Eggert Krist-
jánsson I. eink. 224 % stig, Einar
Ágústsson I. eink. 214% stig,
Friðjón Þórðarson I. eink. 221 %
stig, Guðjón Hólm Sigvaldason
I. eink. 182 stig, Guðmundur
Vignir Jósefsson I. eink. 217 stig,
Guðmundur Pétursson II. eink.
betri 149 stig, Guðmundur Ingvi
Sigurðsson I. eink 210y3 stig,
Haukur Hvannberg I. 212% stig,
Lárus Pétursson I. eink 188%
stig, Magnús Árnason I. eink
204% stig, Valgarður Kristjáns-
son II. eink. betri 161 % stig,
Vilhjálmur Jónsson I. eink. 196
stig, Önundur Ásgeirsson II.
eink. betri 176% stig.
Kandidatspróf í bygginga-
verkfræði: Ásgeir Markússon I.
eink. 6,63, Guðmundur Þor-
steinsson I. eink. 7,13, Helgi H.
Árnason I. eink. 7,26, Ingi Magn-
ússon I. eink. 6,43, Ólafur Páls-
son I. eink. 6,19, Snæbjörn Jón-
asson I. eink. 7,26.
Fyrra hluta prófi í verkfræði
hafa þessir stúdentar lokið:
Eggert Steinsen II. eink. 5,36,
Jóhann Indriöason I. eink. 7,22,
Sigurður Magnússon II. eink.
5,3S* Sigurður Þormar I. eink.
6,07, Theódór Árnason II. eink.
Ákviðið hefir verið, að kennsla
til fullnaðarprófs í byggingar-
verkfræði, er tekin var upp á
stríðsárunum, skuli hér eftir
lögð niður og aðeins haldið uppi
kennslu til^fyrra hluta verk-
fræðiprófs. Einn stúdent enn
mun þó ljúka hér fullnaðarprófi
í byggingarverkfræði.
Útvegum allar stærðir og gerðir af sjálfvirkum, raf-
knúnum kælivélum fyrir matvörubúðir, veitingahús
og heimili.
Aðalumboðsmenn fyrir:
Thomas Ths. Sabroe & Co. A/S
Samband ísl. samvinnuf élaga
Ferðaskrifstofan gefur út kynn-
ingarrit um ísland á þremur
tungumálum
Skrifstofan gengst fyrir 65 ferðum í sumar
Ferðaskrifstofa ríkisins hefir nú hafið sumarstarfsemi sína að
nýju. Hafa þegar um 250 manns ferðast á vegum skrifstofunnar
irá því hún hóf sumarferðalög um hvítasunnuna. Þorleifur Þórð-
arson framkvæmdastjóri skrifstofunnar ræddi við blaðamenn í
gær og skýrði þeim frá starfsemi skrifstofunnar.
Eitt af aðalverkefnum Ferða-
skrifstofunnar er að vekja at-
hygli á landinu, sem ferða-
mannalandi og veita erlendum
mönnum fyrirgreiðslu.
Farðaskrifstofan er í þessu
skyni að gefa út tvo bæklinga
á þrem málum,, ensku, dönsku
og frönsku, og verða þeir við
fyrsta tækifæri einnig þýddir á
sænsku. Annar bæklingurinn er
almenns eðlis hvað efni snertir,
hinn fjallar um hagnýtar upp-
lýsingar fyrir ferðamenn. Þess-
ir bæklingar verða sendir til
allra helztu erlendra skrifstofa.
Ennfremur er í ráði að gera aug-
lýsingamyndir af Geysi og öðr-
um merkum stöðum og senda
þær einnig út.
Fyrirspurnir hafa borizt er-
lendis frá um ferðaskilyrði hér,
en svo virðist, sem fólkið hætti
við, er það kynnist verðlagi okk-
ar.
Þegar lögin um Ferðaskrif-
stofu ríkisins gengu í gildi á ný,
var bætt við ákvæði um, að hún
skipulegði orlofsferðir og styddi
að ódýrum orlofsdvölum og ynni
að því, að orlofslögin kæmu fólki
að sem mestu gagni. í samræmi
við þetta hefir Ferðaskrifstofan
undirbúið áætlun um margar
ferðir, sem verða farnar á veg-
um hennar í sumar. Þá er á-
kveðið að Ferðaskrifstofan starfi
bæði í Reykjavík og einnig á
Akureyri um sumartímann til
hagræðis fyrir ferða.menn. Þess-
ir tveir bæir eru og verða í fram-
tfcfinnli mjðdepjkaír ferðahreyf-
ingarinnar.
í sumar er áætlað, að 65 ferð-
ir, stuttar og langar, hefjist frá
ofangreindum stöðum.
Rétt er einnig að vekja at-
hygli á því, að skrifstofan
hyggst að útvega fólki utan af
landsbyggðinni, er vill ferðast á
vegum skrifstofunnar, gistingu
hér í Reykjavík og einnig á Ak-
ureyri. Og með tilliti til þess, að
fólk vilji koma til Reykjavíkur
eða Akureyrar og sjá bæi þessa,
hafa verið áætlaðar sérstakar
ferðir. Sjá t. d. 11 ferð í ferða-
áætluninni.
Hér er gert ráð fyrir 6 daga
dvöl í Reykjavík og 4 daga
ferðalagi um bæinn og nær-
sveitirnar. Slíkt ferðalag með
mat og gistingu (í skólum) ætti
ekki að þurfa að kosta
mikið yfir 300 kr. Þetta má telj-
ast ódýr orlofsferð, enda þótt
við þetta bætist ferðir til og frá
Reykjavík. En til þess að draga
úr þessari kostnaðarhlið hefir
Ferðaskrifstofan hafið máls á
því við eigendur og umráða-
menn farartækja, að þeir gefi
hópum, er væru í orlofsferðum,
einhvern afslátt frá venjuleg-
um fargjöldum, og hefir þessi
málaleitun fengið góðar undir-
tektir.
Hringkonur
(Framliald af 1. síðu) '
fyrir öll árin í einu fyrirfram,
ef menn kjósa það heldur.
Hringurinn hefir þegar fengið
slíka félaga, en skilyrði fyrir því
að fjáröflunaraðferð þessi komi
að tilætluðum notum, er að fé-
lagatala verði nógu -há, en til
þess þarf auðvitað að vekja at-
hygli á félagsskapnum, að ýta
undir menn til að styrkja hann
með því að gerast sjálfir félag-
ar, eða láta börn sín verða það.
Hverjir 100 slíkir félagar gefa
okkur 10.000 krónur árlega,
(jatnla Síó
Kveiuiastríð
(Keep your Powder Dry)
Amerísk Metro Goldwin Mayer
kvikmynd.
Laraine Day
Susan Peters
Lana Turner
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Vtfja Síó
(niíf Skúlnmitu)
r--------—----—-
Innheimtu-
menn Tímans
Muniö að senda greiðslu
sem allra fyrst.
Minnislausi
maðurinn
(„Somewhere in the Night“)
Spennandi og viðburðarík stór-
mynd.
Aðalhlutverk:
John Hodiak
Nancy Guild
Lloyd Nolan
Bönnuð börnum yngri en
16 óra.,
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Tjarharbíó
♦
Flekkuð
fortíð
(Pardon My Past)
Amerísk gamanmynd.
Fred MacMurray
Marguerite Chapman
Akim Tamiroff
Sýning kl. 5, 7 og 9.
Tlu skynsömustu dýrin
(Framhald af 3. síðu)
gleymt að loka dyrunum á milli
búranna. Bob sá það, og er
gæzlumaðurinn var önnum kaf-
inn við starf sitt, sætti hann
lagi og fór inn í búr Tomma og
réðst á hann af mikilli grimmd.
Munaði minnstu, að Tommi yrði
þar að láta lífið fyrir illvirki sín,
en þó tókst mönnum að skilja þá
við illan leik.
Þó er skynsemi Simpansanna
undraverðust. Simpansnum Jack
hafði verið búið hæli í rúmgóðu
búri, sem læst var með hengi-
lás. Dag einn kom gæzlumað-
urinn með nýjan lás og átján
lykla 1 kippu. Voru þeir allir
mjög líkir að stærð og lögun.
Dyrunum var læst, lásinn hafð-
ur að innanverðu og lyklakipp-
an skilin eftir inni í búrinu.
Einn lykillinn gekk að lásnum.
Jack tók kippuna þegar og fór
að reyna að opna lásinn. Eftir
svo sem hálfa klukkustund hafði
hann fundið rétta lykilinn og
opnað lásinn. Þvínæst lokaði
gæzlumaðurinn hurðinni á ný
og tók nú lykilinn, sem gekk að
lásnum, úr kippunni svo að
lítið bar á. Apinn reyndi nú í
um það bil fimm mínútur, en
UPPBOÐ
Opinbert uppboð verður hald-
ið í Sundhöll Reykjavíkur föstu-
daginn 20. þ. m. og hefst kl. 1,30
e. h. Seldir verða ýmsir óskila-
munir, svo sem handklæði,
sundskýlur, fatnaður, vesti,
buddur og margt fleira.
Greiðsla fari fram við ham-
arshögg.
Borgarfógetinn
í Reykjavík.
30.000 kr. í þrjú ár, 1000 félagar,
300.000 kr. o. s. frv. — Það hefir
nú verið ákveðið að gera gang-
skör að því fyrri hluta júnímán-
aðar að safna sem allra flestum
styrktarfélögum. Er það því
beiðr/ okkar, að þér reynið að
hjálpa til, með því að hvetja
vini og kunningja til að gerast
„Styrktarfélagar Barnaspítala-
sjóðs Hringsins," og styrkja með
því þetta þarfa málefni. Jafn-
hliða mun stjórn og fjáröflun-
arnefnd fara á stúfana til
þess. —
í stjórn Hringsins: Frú Ingi-
björg C. Þorláksson, form. sími
4283, frú Guðrún Geirsdóttir,
sinii 3680, frú Anna Briem, sími
3583, frú Jóhanna Zoega, sími
4947, frú Margrét Ásgeirsdóttir,
sími 4218.
í fjáröflunar- og skemmti-
nefnd Hringsins: Frú Soffía
Haraldsdóttir, form. sími 3224,
frú Helga Björnsdóttir, sími 2000
frú Una Brandsdóttir, sími 4361,
frú Kristlana Einarsdóttir, sími
2061, frú Sigríður Magnúsdóttir,
sími 3215, frú Sigrún Jósdóttir,
sími 4058, frú Eggrún Arnórs-
dóttir, sími 2771, frk. Anna
Blöndal, sími 3718.
fleygði svo lyklunum frá sér og
fór að barma sér. Gæzlumaður-
inn lézt nú missa lykilinn á
gólfið, og Jack greip hann þegar
og opnaði lásinn ljómandi af á-
nægju.
Sagan um Jósef og konu Pótí-
fars endurtekur sig oft meðal
hinna æðri dýra. Eftirfarandi
saga er af baviönum. Gamall og
afbrýðisamur baviani vakti æ-
tíð yfir því með stakri ná-
kvæmni, að ungu karldýrin
kæmu ekki of nærri konu hans.
En eitt sinn, er hann vék sér
eitthvað frá stundarkorn, bar
það við, að konan sjálf nálgað-
ist vörpulegan ungan bavian
með ástleitni, og þau höf§u mök
saman. En í sama bili kom gamli
eiginmaðurinn aftur. Kona hans
yfirgaf þá unga apann og kom
skríðandi til manns síns, eins
og hún vildi auðmýkja sig og
biðjiMt fyrirgefningar. En fram-
koma hennar hafði aðeins þær
afleiðingar, að eiginmaðurinn
réðst af mikilli grimmd á unga
apann og flæmdi hann burt.
Þannig sýna dýrin greind sína
og skynsemi á margan hátt.
Það hendir meira að segja mjög
sjaldan, að fleiri en þrjár rottur
veiðist í sömu gildruna í röð..
Það mætti teljast gott, ef hægt
væri að segja það sama um okk-
ur mennina, og þá þyrfti ekki
að verja milljónum króna á
hverju ári til slysavarna á göt-
um og þjóðvég’um, þar sem
hundruð manna farast af sams
konar slysförum ár eftir ár. Þá
gætum við kannske líka sagt
með einhverjum sanni, að mað-
urinn sé vitrasta dýr jarðar-
innar.