Tíminn - 17.06.1947, Blaðsíða 3

Tíminn - 17.06.1947, Blaðsíða 3
109. blað TtMlNN, |>riðjndaginn 17. jání 1947 3 KverLnaskólLim að Varmatandi (Framhald af 1. síðu) að þakka fyrst og fremst, að skólinn er kominn upp. Formað- ur sambandsins er frú Sigur- björg Björnsdóttir í Deildar- tungu, alkunn dugnaðar- og myndarkona. Árið 1940 var kos- in fjáröflunarnefnd fyrir skól- ann, sem starfaði með góðum árangri á vegum sambandsins. Hefir hún innt af hendi mikið og erfitt starf. Er vert að minnas^ þess, að fyrst krónuna, sem gef- in var til skólabyggingarinnar, gaf gömul kona í héraðinu af fátækt sinni. Fjársöfnunin gekk það vel, að árið 1943 var bygging skólans hafin. Síðan var unnið að bygg- ingu skólans af kappi og gat hann tekið til starfa seint í fyrrahaust, þó þá væri ekki öllu lokið við hann sem gera þurfti. Tók skólinn til starfa 15. nóv. síðastl. Að undanförnu hefir verið unnið að lagfæringum á umhverfi skólans og mun kostn- aðurinn við hann nú samtals , nema um einni og hálfri milj. króna. Teikningu af húsinu gerði Guðjón Samúelsson húsameist- ari ríkisins og hafði hann eftir- lit með smíði hússins frá því fyrsta. Yfirsmiður var Kristján Björnsson á Steinum. Fullkomnasti húsmæðraskólinn. Prófessor Guðjón Samúelsson lýsti fyrirkomulagi skólabygg- ingarinnar í aðalatriðnm. Kvað hann skóla þennan vera full- komnasta og vandaðasta hús- mæðraskóla á landinu, og er hann í ýmsu frábrugðinn fyrri skólum. Snyrting er í hverju herbergi námsmeyja og íbúð skólastýru er það stór, að hún þarf ekki að yfirgefa skólann, þó hún giftist og fari að búa. Auk þess er skólinn í ýmsu frábrugð- inn öðrum skólum hér á landi. Þorgils Guðmundsson lýsti gjöfum, sem Borgfirðingafélagið í Reykjavík gaf skólanum, en þær voru vísir að bókasafni og vandað píanó. Vígsluathöfnin. Vígsluathöfnin sjálf hófst. kl. rúmlega 4. Hófst hún með því að séra Bergur Björnsson í Staf- holti flutti bæn, en sungið var á undan og eftir. Að því loknu talaði Bjarni Ásgeirsson at- vinnumálaráðherra og afhenti skólann fyrir hönd mennta- málaráðherra, sem ekki gat komið því við vegna annríkis að vera viðstaddur skólavígsluna. Bjarni Ásgeirsson rakti í stuttu máli byggingarsögu skólans og minntist á þýðingu hans fyrir liéraðið. Að lokinni ræðu hans talaði Helgi Elíasson fræðslu- málastjóri nokkur orð og árnaði skólanum allra heilla Að lokum sagði Petrína Sveinsdóttir á Akranesi nokkur orð. VÖnduð hygging. Húsmæðraskóli Borgfirðinga að Varmalandi er stórt og fall- egt hús og vandað að öllum frá- gangi. í kjallara hússins er vef- stofa, geymslur allar, þvottahús, grænmetisherbergi og íbúðar- herbergi starfsstúlkna. Á 1. hæð eru kennarastofa, stór borðstoía og dagstofa, framreiðslu- herbergi, eldhús, forstofu- herbergi, snyrting og lok-s í við- byggingu, íbúð skólastýru, — þrjú herbergi, eldhús og bað með sérinngangi. Á 2. hæð eru 7 nemendaherbergi, eitt sérstak- lega einangrað sem sjúkra- herbergi, og saumastofa. í við- byggingu á þeirri hæð eru íbúð- arherbergi tveggja kennslu- kvenna. Skólinn er hitaður upp með hverahita og raflýstur frá Dieselrafstöð. Fyrsta starfsár skólans. Tíðindamaður Tímans átti viðtal við Vigdísi Jónsdóttur skólastýru, við vígslu skólans. Taldi hún bygginguna hina prýðilegustu. Um 30 nemendur luku prófi frá skólanum nú í fyrsta sinn, en honum var sagt upp í fyrradag. Nokkrir byrjun- arerfiðleikar voru á starfsem- inni í vetur, en þeir yfirunnust fyrir góðan vilja og þrautseigju nemenda og kennara. Heilsufar námsmeyja var gott og kunnu þær hið prýðilegasta við sig. Þegar hafa helmingi fleiri sótt um skólavist næsta vetur en komast að. Kennarar við skól- ann voru auk Vigdísar, Guðlaug Jónsdóttir, sem kenndi handa- vinnu, Svanborg Sæmundsdótt- ir, sem kenndi vefnað, og Sig- ríður Kristjánsdóttir, sem kenndi kjólasaum. Þá voru tveir stundakennarar, þeir Jón Þóris- son og séra Bergur Björnsson. Með byggingu þessa veglega skóla er stigið stórt og þýðing- ármikið spor í skólamálum Borgfirðinga. Nú gefst borg- firzkum húsmæðrum kostur á aukinni hússtjórnarmenntun, sem verður þýðingarmeiri fyrir heimilin með hverju árinu, sem líður. Verður framvegis reynt að koma 40 nemendum í skólann, þótt hann sé ekki ætlaður fyrir nema 36. Forstöðukona skólans ungfrú Vigdís Jónsdóttir frá Deildar tungu er vil menntuð og fær í starfi sínu. Mun hún án efa stýra skólanum með myndar brag þeim, sem hinum veglegu húsakynnum er samboðinn. Jarðarför föður okkar Hjálms Þorsteinssonar Kirkjuteig 15, fyrrum bónda á Hofsstöðum, Stafholtstung- um, fer fram frá dómkirkjunni föstudaginn 20. júní kl. 15.30 e. h. Börn hins látna. Maðurinn minn Jón Hjaltalín Brandsson frá Kambi andaðist að heimili okkar Leifsgötu 20 sunnudaginn 15. þ. m. Fyrir hönd barna minna og tengdabarna Sesselja Stefánsdóttir. Hafið þér gerzt styrktarfélagi barnaspítalasjóðs Hrings- ins? — Ef ekki, þá hringið í síma 3146 — 3680 — 4218 — 4224 — 4283, eða skreppið inn í Soffíubúð. Þar sitja kon- ur frá Hringnum og taka á móti styrktarfélögum. Þjóðhátíð Reykvíkinga 17. júní 1947 Dagskrá Dagskrá hátíðahaldanna 17. júní í Hljómskálagarðinum Fyrri hluti: Kl. 1,15 Almenn skrúðganga hefst frá Háskóla íslands. — Á undan skrúðgöngunni er borin fánaborg fagfélaga, íþróttafélaga og annarra félagasamtaka i Reykjavík. — 1,30 Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Vígslu- biskup sr. Bjarni Jónsson. — Einar Krist- jánsson óperusöngvari' syngur við messu- gjörðina. — 2,00 Forseti íslands flytur ræðu og leggur því næst blómsveig á fótstall minnisvarða Jóns Sigurðssonar á Austurvelli. — Lúðra- sveit Reykjavíkur leikur: Ó, Guð vors lands. % > — 2,20 Fjallkonan kemur fram á svalir Alþingis- hússins og ávarpar mannfjöldann. — 2,25 Forsætisráðherra Stefán Jóhann Stefáns- son flytur ræðu af svölum Alþingishúss- ins. — 2,45 Lagt af stað frá Alþingishúsinu 1 skrúð- göngu suður á íþróttavöll. — Verður þá lagður blómsveigur frá bæjarstjórn Reykjavíkur á leiði Jóns Sigurðssonar. • Kórarnir í Reykjavlk syngja: „Sjá roðann á hnjúkunum háu“ — 3,15 Forseti Í.S.Í., Benedikt G. Waage, setur 17. júní mót íþróttamanna. Þáttur íþróttamanna það sem eftir er dagsins til kvöldverðar. Síðarl hluti: Kl. 20,00 Lúðrasvelt Reykjavíkur leikur nokkur lög. — 20,30 Hátíðahöldin sett af formanni Þjóð- hátíðarnefndar. — 20,35 Tónlistarfélagskór syngur. Söngstjóri Victor Urbahtschitsch. — 20,55 Borgarstjórinn í Reykjavík, hr. Gunnar Thoroddsen, flytur ræðu. — 21,10 Karlakórinn Fóstbræður syngur. Söng- stjóri Jón Halldórsson. — 21,25 Bændaglima. (Bændur: Guðmundur Ágústsson, glimukóngur íslands, Á., og Friðrik Guðmundsson, glímukappi K.R.). — 21,45 Karlakór Reykjavíkur syngur. Söngstjóri Sigurður Þórðarson. — 22,15 Þjóðkóririn syngur undir stjórn Páls ís- ólfssonar tónskálds, með aðstoð Lúðra- sveitar Reykjavíkur, þessi lög: 1. Reykjavík. 2. Ó, fögur er vor fósturjörð. v 3. Þú vorgyðjan svífur. 4. ísland ögrum skorið. 5. Öxar við ána. 6. Rís þú unga íslands merki. 7. Ég vil elska mitt land. % — 22,30 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur undir stjórn Alberts Klahn. — 22,45 Flugeldasýning. -r- 23,15 Stiginn dans tli kl. 2 eftir miðnættl. Dansað verður á Fríkirkjuveginum, frá Iðnaðarmannahúsinu og suður að gatna- mótum Fríkirkjuvegar og Skothúsvegar. Ræðuhöld og önnur skemmtiatriði fara fram á upphækkuðum paili syðst í Hljómskálagarðinum. Reykvíkingar! Fjölmennið í skrúðgönguna 1 rá Háskólanum og takið þátt í hátíðahöldunum, sem eru Hátíðardagskráin, með söngtekstum þjóð- kórsins, verður seld á götunum og kostar 1 kr. Þjóðhátíðarnefnd Reykjavíkur *

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.