Tíminn - 06.08.1947, Síða 1
\
{
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEFANDI:
FRAMSÖKNARFLOKKURINN
Simar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.I.
1 .ITSTJÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A j
Simar 2353 og 4373
AFGRKDÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötti 9A )
Siml 2333 (
31. árg.
Reykjavík, niiðvikudaginii 6. ágiisí 1947
140. blali
Síldarskýrsla Fiskifélagsins:
Síldaraflinn oröinn svipaður og
á sama tíma í fyrra
Bræðslusíldaraflinn er iun 1050 |»ús. hl. «g
saltsíldaraflinn inn 35 piis. tn.
Lítil síldveiði var í gær. Veiðiveður var þó gott og flotinn allur
á miðunum. Fer hér á eftir skýrsla frá Fiskifélagi íslands yfir
afla skiþanna eins og hann var á miðnætti aðfaranótt sunnu-
dagsins. — Fremri talan, sem fylgir nafni hvers skips, er mál í
'iræðslu, en síðari talan tunnur í salt.
HÓTELBRUNI I GAUTABORG
Botnvörpuskip:
Ðrangey Reykjavík 4355, Faxi
Hafnarfirði 4878, Gyllir Reykja-
vík 486, Sindri Akranesi 8323,
Tryggvi gamli Reykjavík 4725.
Önnur gufuskip:
Aiden Dalvík 5021, Ármann
Reykjavík 1911, Bjarki Akur-
eyri 5302, Huginn Reykjavík
8256, Jökull Hafnarfirði 6700,
Ólafur Bjarnason Akranesi 5513,
Sigríður Grundarfirði 5125,
Svérrir. Keflavík 3526, Sæfell
Vestm.eyjum 6419, Sævar Vest-
mannaeyjum 3349.
Mótorskip (1 um nót)
Aðalbjörg Akranesi 2443. Ág.
Þórarinsson, Stykkishólmi 4313,
Akraborg Akureyri 1730, Álsey
Vestm.eyjum 6779, Andey Hrís-
ey 3742, 354, Andvari Reykjavík
4818, Andvari Þórshöfn 1994,
Anglía Drangsnesi 382, 140, Anna
Njarðvík 1740, 261 Arinbjörn
Reykjavík 3454, Ársæil Sigurðs-
son Njarðvík 1335, 634, Ásbjörn
ísafirði 2030, 107, Ásbjörn Akra-
nesi 1286, Ásgeir Reykjavík
4189, 113, Ásmundur Akranesi
721, 50, Ásúlfur ísafirði 2505.
Ásþór Seyðisfirði 2685, 289, Atli
Akureyri 3736, 214, Auðbjörn
ísafirði 1858, 178, Aður Akur-
eyri 4546, 288, Austri Reykja-
vík 181, Baldur Vestm.eyjum
2619, 206, Bangsi Bolungavík
1086, 542, Bára Grindavík 566,
278, Birkir Eskifirði 780, Bjarmi
Dalvík 3626, 564, Bjarnarey
Hafnarfirði 6495, Bjarni Ólafs-
son Keflavík 1288, Björg Nes-
kaupstað 2326, Björg Eskifirði
3521, 107, Björgvin Keflavík
2416, 320, Björn Keflavík 2563,
202, Björn Jónsson Reykjavík
1508, Blátindur Vestm.eyjum
635, Bragi Keflavík 1122, Bragi
Njarðvik 1897, Brimnes Patreks-
firði 1568, 118, Bris Akureyri
640, Böðvar Akranesi 3622, 147,
Dagný Siglufirði 7419, Dagur
Reykjavík 4352, 243, Draupnir
Neskaupstað 3259, 225, Dröfn
Neskaupstað 2071, 421, Dú*
Keflavík 3016, 276, Edda Hafn-
arfirði 10069, Eggert Ólafsson
Hafnarfirði 780, 54, Egill Ólafs-
firði 1483, 470, Einar Hálfdáns
Bolungavík 1202, 231, Einar
Þveræingur Ólafsfirði 3424, 288,
Eiríkur Sauðárkróki 2265, Eld-
borg Borgarnesi 8701, Eldey
Hrísey 3100, 240, Elsa Reykja-
vík 3877, 60, Erlingur II. Vestm.-
eyjum 1798, 681, Erna Bolunga-
vik 570, Ester Akureyri 2084, 229
Eyfirðingur Akureyri 4012, Fagri
klettur Hafnarfirði 7194, Fann-
ey Reykjavík 3344, 108, Farsæll
Akranesi 5214, 222, Fell Vestm,-
eyjum 4615, Finnbjörn ísafirði
2544, 436, Fiskaklettur Hafnar-
firði 2040, Flosi Bolungavík 1467,
174, Fram Hafnarfirði 2164, 45,
Fram Akranesi 3087, 460, Frey-
dis ísafirði 3885, Freyfaxi Nes-
kaupstað 5310, 103, Freyja
Reykjavík 5991, 119, Friðrik
Jónsson Reykjavík 752, Fróði
Njarðvík 2888, 368, Fylkir Akra-
nesi 1291, Garðar Rauðuvík
3489, 295, Geir Siglufirði 754,
140, Geir goði Keflavík 1054
112, Gestur Siglufirði 1248
Goðaborg Neskaupstað 2887,
Grindvíkingur Grindavík 1869
Grótta ísafirði 5670, Grótta
(Framhald á 4.
„Nýsk»i>iiiiin“ á Siglufirði:
Annar nýi lýsisgeymirinn
er að sökkva
Þctta hefir |»egar orsakað bilun, og mikið lýsi
|»ví farið forgörlium
Á sunnudaginn var, um kl. 6 varð vart við það, að
annar lýsisgeymirinn við nýju verksmiðjuna á Siglufirði
var farinn að leka og rann allmikið lýsi frá honum.
Þegar að þessu var gáð, kom
í ljós, að ventill við frárennslis-
pípu hafði bilað og pípan
sprungið. En öryggisventill, sem
ERLENDAR FRETTIR
Báðir aðilar á Jövu hafa nú
hlýtt þeirri fyrirskipun öryggis-
ráðsins að hætta vopnaviðskipt-
um. Indonesíumenn segja, að
það sé hagstætt Hollendingum,
þar sem þeir geti nú bætt að-
stöðu sína á því svæði, sem þeir
voru búnir að leggja undir sig.
í enskum blöðum er nú mikið
rætt um framtíðarhorfurnar og
þykja þær slæmar. Fullvíst er
talið, að stjórnin muni ætla að
herða skömmtunina stórlega og
fækka mikið í hernum, svo fleiri
menn geti unnið að framleiðsl-
unni.
á að koma í veg fyrir að lýsi
geti* runnið út um þessa frá-
rennslispípu, var opinn fyrir
einhverja vangá.
Þessi bilun á frárennslispíp
unum stafar af því, aö geymir
inn hefir sígið, en jarðvegur
mun vera þarna um átta metra
djúpur, og vantar mikið á að
grunnur geymisins sé nægilega
tryggur og vel gerður. Við sígið
hafa pípurnar sprungið með
þessum afleiðingum.
Ekki er enn fullvíst, hve mik-
ið lýsi hefir runnið til spillis
þarna, en telja má víst, að tjón-
ið nemi miklu. Réttarrannsókn
mun fara fram í þessu máli.
Geymir þessi er ein af ný-
sköpunarframkvæmdum Áka
Jakobssonar eins og mjölskemm-
an fræga, og virðast þær allar
vera með sama markinu brennd-
ar. Mun svo vera, að undirstaða
fleiri nýsköpunarframkvæmda
sé ótrygg, eins og þessa geymis
,Barnamióll<liT frá Lax-
nesl var 3.og4. fi mjólk
Yfirlýsiiig frá iiijjúlkiireftirlitsmaiiuiiitiiii
staöfestir frásö^'n Tímans
í yfirlýsingu, sem nýlega birtist í Morgunblaðlnu og Vísi frá
stjórn Búkollu h.f., var reynt að gefa til kynna, að það væri helber
ippspuni hjá Tímanum, að athugun, sem gerð var snemma í júlí
á barnamjólkinni frá Laxnesi, hefði leitt í.Ijós, að hún hefði verið
3. fl. og 4. fl. mjólk.
Eftirfarandi yfirlýsing frá
Edvard Friörikssyni, mjólkur-
eftirlitsmanni í Reykjavík, sker
úr því, hvort frásögn Tímans
eða stjórnar Búkollu h.f. hefir
haft við meiri rök að styðjast:
Margir íslendingar kannast við hótel Eggers í Gautaborg. Þar hafa orðið
þrjár íkviknanir á mjög skömmum tíma og hlauzt mikill eldsvoði af þeirri
seinustu. Hótelið eyðilagðist að mestu og miklar skemmdir urðu á nær-
liggjandi húsum. Þetta var mesti hótelbruni, sem lengi hefir orðið í Sví-
þjóð. Myndin var tekin, þegar bruninn stóð sem hæst.
Kaupfélag Reykjavíkur og
nágrennis 10 ára gamalt
Félagsinaimatala hefir meir eit tvöfaldast og
viöskaptaveltan ineir en fífaldast
Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis á 10 ára starfsafmæli í
dag. Átti framkvæmdastjóri félagsins, Ísleífur Högnason, tal við
blaðamenn í gær í tilefni af afmælinu og skýrði frá stofnun fé-
lagsins og starfrækslu þess.
Kaupfélag Reykjavíkur og ná-
grennis var upphaflega stofnað
Mót Framsóknar-
manna austanfjalls
Á sunnudaginn var héldu
Framsóknarfélögin í Árnes- og
Rangárvallasýslum sameiginlegt
mót að Þjórsártúni. Helgi
Jónasson alþingismaður setti
skemmtunina með stuttri ræðu.
Þá töluðu þeir Eysteinn Jóns-
son, menntamálaráðherra, Tóm-
as Guðmundsson skáld og sr.
Sveinbjörn Högnason, Breiða-
bólstað.
Var ræðumönnum óspart
klappað lof í lófa og mun það
næstum einsdæmi, þegar tekið
er tillit til fólksfjölda, hversu
hljótt var meðan ræðumenn töl-
uðu. Milli þess, að ræður voru
fluttar, sungu menn i/slenzk
ættjarðarlög undir stjórn ísaks
Eiríkssonar, Ási. Var almenn
þátttaka í söngnum og höfðu
menn ofð á því, hvað söngurinn
var hljómfagur og þróttmikill,
enda voru þar margir ágætir
söngmenn.
Skemmtunina sóttu hátt á
fimta hundrað manns, þrátt
fyrir mjög óhagstæð veðurskil-
yrði. Sást varla maður undir
áhrifum áfengis og mun það fá-
títt nú á dögum á jafn fjöl-
mennum skemmtunum. Fram-
sóknarmenn í Árnes- og Rang-
árvallahéruðum hafa fullan hug
á að koma á slíkum skemmtun-
um á hverju sumri, sem þess-
ari.
upp úr tveimur félögum er störf
uðu hér í bænum, Kaupfélagi
Reykjavíkur og Pöntunarfélagi
Verkamanna. Tók hið nýja fé
Jag til starfa 6. ágúst 1937, og
fékk til umráða verzlanir beggja
fé’aganna. Auk þess færði fé
lagið út verksvið sitt og voru
bráðlega eftir stofnun þess sett
á stofn útibú í Hafnarfirði
Sandgerði, Grindavík og Kefla-
vík.
Fyrsti framkvæmdastjóri hins
nýja félags var Jens Figgved
og gegndi hann því starfi þar
til hann lézt 1943, en þá var
breytt um rekstrarskipulag og
ráönir að félaginu þrír fram-
kvæmdastjórar, þeir Árni Bene
diktsson, Hermann Hermanns
son og ísleifur Högnason, en að
undanförnu hefir sá síðast
nefndi einn verið farmkvæmda-
stjóri félagsins.
Árið 1945 sagði útibúið í
Hafnarfirði skilið við kaupfé-
lagið og þar var stofnað sjálf-
stætt kaupfélag. Einnig hafa
deildirnar í Keflavík og Sand-
gerði slitið sambandi sínu við
Kron og eru nú sjálfstæð kaup-
félög. Deildin í Grindavík hefir
hins vegar sameinast Kaupfé-
lagi Suðurnesja í Kefiavík.
Kron hefir nú samtals 10
matvörubúðir í Reykjavík og
opnar tvær í viðbót seint í þess-
um mánuði eða í næsta. Auk
þess hefir félagið sérdeildir. Það
hefir vefnaðarvörubúð, skóbúð,
búsáhaldabúð, listmunabúð og
bókabúð. Ennfremur rekur fé-
lagið sína eigin efnagerð og
fatahreinsun.
Hagur félagsins er góður.
Sjóðseignir nema kr. 1.845.935,99
(Framhald á 4. síSu)
Afmæli Hákonar
Noregskonungs
Hákon Noregskonungur 7.
átti 75 ára afmæli á mánudag-
inn og var því fagnað með mikl-
um hátiðahöldum um gervallan
Noreg. Um daginn ók konungur
um götur Oslóborgar og stóð
ökuförin þrjár klst. Var kon-
ungurinn hylltur látlaust allan
tímann.
í tilefni af afmælinu var kon-
ungi gefin vönduð skemmti-
snekkja, sem hann getur
notað til siglinga meðfram
ströndum Noregs, þegar hann
heimsækir þegna sína. Snekkj-
an var byggð fyrir framlög frá
almenningi.
Hákon konungur hefir unn-
ið sér meiri vinsældir en flestir
þjóðhöfðingjar aðrir. Hann átti
meiri þátt í hinni karlmannlegu
framkomu Norðmanna á stríðs-
árunum en nokkur maður
annar.
Hátíðahöld verzlun-
armanna tókust vel
Hátíðahöld verzlunarmanna
um helgina tókust vel. Á laug-
ardaginn og sunnudaginn dró
óhagstætt veður nokkuð er þátt-
tökunni, en á sunnudaginn var
veður mjög gott og munu þá
hafa komið um 10 þús. manns
í Tivoli, en þar fóru aðalhátíða-
höldin fram, að undanskilinni
Viðeyjarförinni.
Hátíðahöldunum lauk með
ákrautlegri flugeldasýningu og
dansleik í fyrrinótt. Fjöldi fólks
var þá á Tivolisvæðinu, enda
var veður mjög milt og gott.
(Framhald á 4. siöu)
Réykjavík, 4. ágúst 1947.
Þar sem ég hefi verið fjarver-
andi við störf mín úti á landi,
hefi ég ekki getað fylgzt með
skrifum þeim og umtali, er
rannsóknir á hinni svokölluðu
„Barnamjólk“ frá Laxnesi hafa
vakið. En nú eftir að hafa lesið
það sem dagblöðin hafa haft um
þetta að segja, tel ég rétt að
taka fram eftirfarandi atriði:
1. Að morgni hins 9. júlí sl.
fórum við hr. Kári Guömunds-
son, fulltrúi héraðslæknisins í
Reykjavík, að beiðni læknisins
upp að Laxnesi og Korpúlfsstöð-
um og skoðuðum fjósin þar og
tókum mjólkursýnishorn. Jafn-
framt gerði ég skýrslu um á-
stand fjósanna og meðferð
mjólkurinnar á báðum sítíðum.
Enda þótt ýmislegt hafi verið
athugavert, tel ég ekki ástæðu
til að birta þá skýrslu.
2. í Laxnesi var mjólkin látin
á flöskur. (Og var á flöskunuin
tappi með áletruninni „Barna-
mjólk“). Tókum við, tvær flösk-
ur af morgunmjólkinni, en eina
af kvöldmjólkinni. Gaf Kári
manni þeim, er afhenti okkur
sýnishornin kvittun fyrir þeim
sem venja er til. Mjólkin var
(Framhald á 4. síðu)
Engin síld
Sama og engin síldveiði hefir
verið siðan fyrir helgi. Veður
hefir oftast verið vont og haml-
að veiðum. í fyrrinótt batnaði
veðrið og var allgott veður í gær
og skipin öll úti, en sama og
ekkert varð síldarvart.
Úþurrkarnir héldust sunnan-
lands í síöastliöinni viku
OóKviðrið helzt einiiig' norðaiistaiiilands
Tíminn hefir átt viðtal við Pál Zóphóníasson ráðunaut um
heyskapinn í síðastliðinni viku og fer frásögn Páls hér á eftir:
— Síðastliðinn laugardag (26.
júlí) hafði ég símleiðis tal af
mönnum víðsvegar að, til að fá
fréttir af heyskapnum.
Þá áttu þeir Sunnlendingar, er
ég átti tal við, von á þurrki, og
töldu „rakið þurrt útlit.“ Bjugg-
ust þeir við, að töðurnar mundu
þá názt upp og inn. En þetta fór
á annan veg. Það þyknaði upp,
og dagurinn varð ekki þurrk-
dagur, heldur einn af þessum
rigningardögum, sem sett hafa
svip á þetta sumar á Suðurlandi.
Töðurnar náðust því ekki upp,
og síðastliðna viku hefir enn
verið rigning, nema á þriðju-
daginn, þá var þurrt í uppsveit-
um, en þó náðist þá lítið upp.
Það er því úti öll sú taða, sem
losuð hefir verið síðastliðinn
hálfan mánuð, og margt af
henni orðið hrakið, enda þó hún
sé víða í föngum og smásætum,
sem flestum þarf að dreifa aft-
ur. Og þeir, sem byrj-uðu síðast
að slá, eiga alla sína töðu úti.
Enn eru nokkrir, sem láta
hluta af túninu standa óslegna,
og bíða eftir því, að þurrkur
komi.
í. Eyjafiröi, Þingeyjarsýslum
og á Fljótsdalshéraði hafa verið
stöðugir þurrkar og allt náðst
inn um leið og það er losað. Þar
eru töður miklar og góðar, en
þær hafa þornað við mikla sól,
(Framhald á 4. siðu)