Tíminn - 15.08.1947, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEPANDI:
PR AMSÓKN ARFLOKKURINN
Símar 2353 og 4373
PRENTSMEÐJAN EDDA h.f.
: „ITSTJÓRASKRIPSTOFDR:
EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, ENNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9A
Slml 2333 J
31. árg.
Rcykjjavík, föstudagiim 15. ágiist 1947
146. blað
ERLENT YFIRLIT:
„Glæsilegasti dagurinn
í sögu Bretaveldis”
f dag bætast tvö Indversk ríki í hóp frjálsra,
fullvalda ríkja.
Dagurinn í dag mun í framtíðinni verða talinn einn af merk-
isdögum sögunnar. í dag leggja Bretar raunverulega niður völd
sín í Indlandi, er jafnframt mun skiptast í tvö brezk samveldis-
lönd, er geta sjálf ráðið því, hvort þau slíta öll stjórnarfarsleg
tengsli við Bretland í framtíðinni. Allt frá því í byrjun seinustu
aldar hefir framsýnustu menn Breta ekki aðeins órað fyrir því,
að þessi dagur myndi koma, heldur hefir stjórnarstefna Breta í
índlandi miðað að því, að Indverjar yrðu færir um að taka öll
mál sín í eigin hendur. Árið 1833 lét Macanlay lávarður, sem þá
var nýlendumálaráðhrra, þau orð falla, að það yrði „glæsileg-
asti dagurinn í sögu Breta“, þegar Indverjar hefðu öðlast þann
þroska að fara með mál sín sjálfir.
Strax um miðja 19, öld byrj-
uðu Bretar að koma fótum und-
ir sjálfstjórn Indverja og veitti
þeim aðstöðu til að gegna op-
inberum embættum. Þetta jókst
síðan smámsaman, en stórstíg-
astar breytingar urðu þó upp
úr fyrri líeimsstyrjöldinni. Jafn-
framt efldist líka sjálfstæðis-
hreyfing Indverja og gerði víð-
tækari kröfur en Bretar töldu
þá fært að veita. Stærsta skref-
íð vara stigið af hálfu Breta til
móts við kröfur Indverja árið
1942, þegar Stofford.s Cripps var
sendur til Indlands með tilboð
frá brezku stjórninni um fullt
sjálfstæði Indverjum til handa.
Vegna ágreinings milli Hindúa
og Múhameðstrúarmanna um
framkvæmdaatriði, höfnuðu
Indverjar þó tillögum Cripps.
Bretar stóðu þó eigi að síður
við þetta tilboð sitt, og stjórn
Attlees gerði það að stefnumáli
sínu að veita Indverjum fullt
sjálfstæði. Vegna ágreinings
Hindúa og Múhameðstrúar-
manna tókst þó ekki að koma
á samkomulagi fyr en brezka
stjórnin lýsti yfir því í febrúar-
mánuði síðastl., að hún myndi
afsala Bretum öllum völdum í
Indlandi fyrir júnílok 1948 og
Indverjar yrðu að vera við því
búnir að taka við stjórn allra
mála sinna fyrir þann tíma.
Þetta dró allmikið úr ágreiningi
Indverja, þar sem þeir fundu
til aukinnar ábyrgðar. Fyrst í
júnímánuði tókst þó með milli-
göngu Breta að koma á sam-
komulagi milli Hindúa og Mú-
hameðstrúarmanna þess efnis,
að Indland skiptist 1 tvö ríki.
Fyrst um sinn verða þau brezk
samveldisríki, en með fullu
sjálfstæði, eins og t. d. Kanada
og Ástralía. Þau geta svo sjálf
ákveðið, hvort þau vilja slíta
öll stjórnarfarstengsli við Breta
veldi. Brezka þingið samþykkti
nær einróma í seinasta mán-
ERLENDAR FRETTIR
Deilumál Egipta og Breta
hafa undanfarið verið rædd í
Öryggísráðinu. Egiptar gera þá
kröfu, að brezki herinn verði
fluttur úr landinu fyrri 1. sept.
næstkomandi, en Bretar telja
sér leyfilega hrsetu þar í nokk-
ur ár enn samkvæmt samingi
ríkjanna frá 1936.
Brezka þinginu var frestað í
fyrradag. Neðri málstofan á-
kvað að taka sér frí til 20. sept.,
en lávarðadeildin aðeins til 9.
sept. Lávarðadeildin tók á-
kvörðun sína með tilliti til þess,
að hún gæti betur fylgzt með
framkvæmd stjórnarinnar á
viðreisnarlögunum með þssum
móti. Stjórnarandstæðingar
vildu ekki láta neðri málstofuna
fá lengri frest en til 9. sept.
uði lög, sem staðfestu þessa
skipan.
Valdaafsal Breta nær aðeins
til þess hluta Indlands., sem hef
ir heyrt beint undir brezku
stjórnina, en ekki til fursta-
dæmanna, sem hafa alltaf verið
sjálfstæð að nafninu til. Brezki
hluti Indlands er 886 þús. fer-
mílur og hefir um 296 millj.
íbúa. Hann mun skiptast þann-
ig, að ríki Múhameðstrúar-
manna, Pakistan, mun ná yfir
landssvæði, þar sem eru 69 millj.
íbúa, en ríki Hindúa, sem mun
nefnast Indland, mun ná yfir
landssvæði með 227 millj. íbúa.
Furstadæmin eru 562 að tölu og
ná samtals yfir 690 þús. fer-
mílna landssvæði með 93 millj.
íbúa. Flest eru þau þannig sett,
að þau verða nú annaðhvort að
fylgja hinu nýja Indlandi eða
Pakistan* enda hafa mörg þeirra
þegar óskað eftir innlimun í
annaðhvort ríkið.
Pakistan nær yfir fylkin Sind,
Norðvesturhéruðin, vesturhluta
Punjab, Austur-Bengal og Bo-
luchistan. Það verður því mjög
sundurslitið og hefir á margan
hátt erfiða aðstöðu.
Fyrsti landsstjóri Breta í
Pakistan verður Jinnah, for-
ingi Múhameðstrúarmanna
Fullvíst þykir, að Pakistan kjósi
að vera brezkt samveldisríki á-
fram. Mountbatten lávarður
verður fyrsti landsstjóri Breta í
hinu nýja Indlandi, en líklegt
þykir, að það hafni öllum sér-
stökum stjórnarfarslegum
tengslum við Bretland.
Ýmsir telja valdaafsal Breta
í Indlandi mikinn ósigur fyrir
brezka heimsveldið og jafnvel
tákna endalok þeses. Aðrir á-
líta, að brezka heimsveldið muni
frekar styrkja aðstöðu sina með
skilnaðinum, þar sem hann fari
fram með þeim hætti, sem muni
styrkja vináttu þessara þjóða,
og brezk menningaráhrif muni
ráða mestu um stjórnarhætti
Indverja í framtíðinni. Bretar
hafi hér eignazt nýja og trausta
bandamenn. Athyglisvert er,
að það var ein fyrsta ákvörðun
Hindúa eftir að skilnaðurinn
var endanlega ráðinn, að stjórn
skipun hins nýja Indlands skuli
sniðin eftir stjórnskipun Bret-
lands, en hvorki amerískri né
rússneskri fyrirmynd.
Dansbúningar frá 14. öld
Þjóödansarar frá ýmsum löndum hafa nýlega haldið mót í London. —
Á myndinni sjást belgiskir þjóðdansarar, sem þar voru mættir, og eru
þeir í dansbúningum, er tíðkuðust á 14. öld.
Póststjórnin fær nýja og full-
komna langferðabíla til Akur-
eyrarferða
Um þessar mundir er póststjórnin að taka í notkun fjórar nýj-
ar bifreiðar á sérleyfisleiðinni milli Akraness og Akureyrar. Þess-
ar nýju bifreiðar eru af svonefndri REO-gerð, en þær eru smíð-
aðar í Kaysers-verksmiðjunum í Bandaríkjunum. Yfirbygging
<'11 hefir verið gerð hér á landi. Þessar nýju bifreiðar taka 27 far-
þega og eru miklu rúmbetri og þægilegri en þær bifreiðar, sem
áður hafa verið notaðar á langleiðum hér á landi. Fyrsta bif-
reiðin af þessari gerð var tekin í notkun fyrir hálfum mánuði,
önnur í dag og hinar tvær koma síðar i sumar.
Kemur síldin um
næstu helgi ?
Enn er sama deyfðin yfir sild-
veiðunum. Bezta veður var á
miðunum og öll skilyrði til þess
að veiða sildina, en hún lét ekki
sjá sig.
Flotinn er nú dreifður um
allstórt svæði. Víðast hvar verða
skipin vör við síld, en ef kau
kasta á hana, eru ekki nema
nokkrir háfar í kastinu. Nokk-
ur síld til söltunar hefir komið
til Siglufjarðar undanfarna
daga.
Nýr straumur byrjar um næstu
helgi og gera sjómenn sér vonir
um að síldin muni þá genga.
Heildsali
dæmdur
Nýlega hefir heildverzlun
Friðriks Bertelsen & Co. verið
dæmd fyrir verðlagsbrot. Verzl-
unin lagði ólögleg umboðslaun á
vörur, keyptar frá New York.
Hlaut hún kr. 60.000,00 í sekt og
ólöglegur hagnaður, kr. 151.-
143,29 var gerður upptækur.
PéturG.Guðmundsson
látinn
Síðastl. fimmtudag andaðist
hér i Reykjavík Pétur G. Guð-
mundsson fjölritari, nærri 68
ára að aldri. Banamein hans var
hjartabilun, sem hann hafði
' kennt fyrir hálfum mánuði
' síðan.
! Pétur G. Guðmundsson var
einn af brautryðjendum verka-
lýðshreyfingarinnar hér á landi
og hélt tryggð við hana til
S.l. þriðjudag bauð póst-
stjórnin fréttamönnum útvarps
og blaða að skoða nýja gerð
Jangferðabifreiða, sem hún hefii
nýlega fengið og er að taka
notkun um þessar mundir. Var
fréttamönnum boðið að reyna
þessa bifreið og var ekið með
þá upp að Skíðaskálanum í
Hveradölum. Jón Sigurðsson og
Vilhjálmur Heiðdal sýndu
fréttamönnum bifreiðina og
lýstu henni, en au kþess voru
með í förinni nokkrir bifreiða
stjórar póststjórnarinnar af
langleiðum. Var auðfundið. að
sæti voru betri og skipun þeirra
hagkvæmari en í eldri bifreið-
um, og vagninn þýðari og hreyf-
ingar hans mýkri. Sögðu bif-
reiðastjórarnir, að það væri og
samhljóða álit allra farþega, er
ferðazt hefðu með bifreið þeirri
af þessari gerð, sem tekin hefir
verið í notkun.
Að undanförnu hafa yfir-
byggingar nöer allra langferða-
bifreiða hér á landi verið gerð-
ar þannig, að þær hafa ekki
verið með gegnumgangi, en
hins vegar með þremur hurðum.
Mun þetta fyrirkomulag . hafa
skapast af þeim orsökum, að
brýr og vegir hafa verið mjóir
og ekki þótt tiltækilegt að hafa
(Framhald á 4. siöu)
Fimm. ístandsmet sett
á meistaramótinu
Kornast Fiimhjjörn og Haukur í Norður-
landakeppnina?
Meistaramót íslands í frjálsum íþróttum hófst hér í bænum
á mánudagskvöldið og hélt áfram á þriðjudags- og miðvikudags-
kvöld. Mótinu lýkur í kvöld og verður þá keppt í 100 m. hlaupi,
4x1500 m. boðhlaupi og fimmtarþraut. Margir góðir árangrar hafa
náðst á mótinu og hafa ekki verið sett færri en 5 íslandsmet og
2 drengjamet.
Ný met.
Metin, sem hafa verið sett,'
eru þessi:
Jóel Sigurðsson setti nýtt ís- \
landsmet í spjótkasti 60.82 m. j
Gamla metið, sem Jóel átti, var i
59,07 m. |
Reynir Sigurðsson setti nýtt
íslandsmet í 400 m. grindahlaupi
á 59 sek. Er það 7/io úr sek betra
en gamla metið, sem Brynjólfur
Ingólfsson átti.
Skúii Guðmundssoon setti
nýtt íslandsmet í 110 m. grinda-
hlaupi á 15,8 sek. Er það 4/io úr
sek betra en gamla metið, sem
Finnbjörn Þorvaldsson átti.
Torfi Bryngeirsson setti nýtt
íslandsmet í stangarstökki á
3,75 m. Gamla metið, sem hann
átti, var 3,65 m.
í 100 m. hlaupi (í milliriðli)
setti Finnbjörn Þorvaldsson
nýtt íslandsmet á 10,7 sek, en
gamia metið, sem hann átti,
var 10,9 sek. Úrslitin í 100 m.
hlaupi eru enn eftir og gera
margir sér von um, að Finnbirni
takist þá enn ^ð bæta metið.
Þá hefir Haukur Clausen sett
tvö drengjamet: í 100 m. hlaupi
á 10,9 sek. og í 200 m. hlaupi á
22,1 sek. Tími hans í 200 m.
hlaupinu er sá, sami og íslands-
met Finnbjörns Þorvaldssonar
er.
Af öðrum góðum áröngrum á
mótinu íy.á nefna, að Vilhjálm-
ur Vilmundarson kastaði kúl-
unni 14,53 m. í Aukakasti og
Sigfús Sigurðsson kastaði henni
einnig yfir 14 m. í langstökkinu
náði Finnbjörn Þorvaldsson betri
árangri en íslandsmetinu, en
bað er 7,08 m., sett af Oliver
Steini. Nokkur meðvindur var.
og verður því stökk Finnbjörns
ekki viðurkennt sem met.
Finnbjörn og Haukur
í Norðurlandakeppnina?
Eins og kunnugt er, átti að
velja þá menn, sem ná beztum 1
árangri á meistaramótum Norð- j
manna, Finna, Dana og íslend- j
inga, til þess að keppa við beztu
menn Svía. Horfur eru á, að þeir
Finnbjörn og Haukur komizt í
keppnina, Finnbjörn í 100 m.
hlaupið og Haukur í 200 m.
hlaupið.
Beztu árangrarnir.
Hér fer á eftir yfirlit um beztu
árangrana, sem náðst hafa á
mótinu:
Ingunn frá Kornsá
jarðsungin í dag
í dag verður Ingunn Jóns-
dóttir á Kornsá borin til graf-
ar. Hún lézt hinn 10. ágúst s. 1.,
92 ára að aldri. Ingunn var fædd
30. júlí 1855 og gift Birni Sig-
fússyni fyrrv. alþingismanni,
sem látinn er fyrir alllöngu.
Bjuggu þau lengst af á Kornsá
í Vatnsdal, og var heimili þeirra
þjóðfrægt fyrir rausn og mynd-
arskap. En Ingunn var þó meira
en ágæt húsfreyja. Hún var
einnig þjóðkunn fræðikona og
rithöfundur. Þriár bækur hafa
komið út eftir hana og fjalla
allar um þjóðfræðileg efni. Eru
Eru þær þessar: Bókin mín
(1935), Minningar (1937) og
Gömul kynni (1946). Þessarar
gagnmerku konu verður nánar
minnzt hér í blaðinu innan
skamms.
Skömmtun á
skófatnaði
í dag hefst skömmtun á skó-
fatnaði og gildir stofnauki nr.
11 á núgildandi matvælaseðli
sem innkaupaheimild til 1. mai
1948 fyrir einu pari af skóm.
Samkvæmt 2. grein reglugerð-
arinnar, sem gefin var út um
þessa skömmtun í gær, er
gúmmískófatnaður og ■ eitthvað
fleira undanþegið tskömmtun-
inni.
dauðadags. Hann var gæddur
miklum og fjölhæfum gáfum og
fékkst við ýms ritstörf um dag-
ana.
Sala á benzíni takmörkuð
Viðskiptamálaráðuneytiff gaf í fyrradag út reglugerff um tak-
mörkun á bensínsölu til bifreiffa og bann við sölu til hvers kyns
annarra nota en bein nauffsyn getur talizt. Reglugerffin er gefin
út að tilhlutun Fjárhagsráffs.
Samkvæmt reglugerð þessari
er öllum þeim, er benzín selja
í smásölu, óheimilt að selja ben-
zín á annan hátt en í geyma
bifreiða, og óheimilt er að tæma
bifreiðageymana að öðru leyti
en því, sem af þeim eyðist við
akstur.
Skal benzínsalinn skrá hve
mikið benezín hann afgreiðir á
hverja bifreið í hvert skipti, og
er viðskiptamálaráðuneyti
heimilt að láta fram fara ranr
sókn varðandi framkvæmd þess
atriðis, hvenær og hvar sem <
og án frekari aðvörunar.
Brot á reglugerð þessari varð
seektum, allt að krónum 200
000.
Óheimilt er og að selja ber
zín, þar á meðal flugvélabenzíi
til annarra nota en brýn nauc
syn getur talizt.