Tíminn - 23.10.1947, Page 3
194. blað
TÍMEVIV, fimmtndagimi 23. okt. 1947
3
Min.nin.g þriggja bræöra
Látnir landar vestanhafs.
Jónas Pálsson söngfræðingur
andaðist í byrjun september s.l.,
í Vancouver. Hann var fæddur
á Norður-Reykjum í Hálsasveit
í Borgarfjarðarsýslu 29. ág. 1875.
— Foreldrar hans voru hjónin
Sigurbjörg Helgadóttir frá
Snóksdal og fyrri maður hennar,
Páll Jónasson bóndi á Norður-
Reykjum.
Hugur Jónasar hneigðist þeg-
ar í æsku að tónlist, og á ung-
lingsárum fór hann austur á
Eyrarbakka til Jóns Pálssonar
til náms í hljóðfæraleik. Vann
hann þó jafnframt fyrir sér við
sjóróðra. Síðar innritaðist hann
í Latínuskólann, en stundaði
jafnframt tónlistarnám hjá
Brynjólfi Þorlákssyni.
Árið 1900 fór Jónas til Ame-
ríku. Vann hann fyrst ýmsa
vinnu eftir því sem til féll, en
fullnumaði sig jafnframt á
tónlistarbrautinni. Fékk hann
brátt störf sem organleikari og
söngstjóri við kirkju íslendinga
í Winnipeg. — Hann tók á þess-
um árum í Torontó kennarapróf
í píanóleik með hæstu einkun,
en fór eftir það til Englands og
Þýzkalands til frekara náms.
Eftir það byrjaði hann kennslu
vestra, með þeim ágæta árangri,
að hann komst í tölu færystu og
eftirsóttustu kennara á því
sviði.
Jónas var prýðilegum gáfum
gæddur, skáld gott í bundnu
máli og listfengur í öllu. Jónas
var kvæntur Helgu, dóttur
Baldvins L. Baldvinssonar, hins
kunna vesturfaraumboðsmanns.
Bjuggu þau lengi í Winnipeg, en
fluttu síðar til Vancouver. Lifir
hún mann sinn, ásamt 5 dætr-
um þeirra hjóna.
Jóhann Hjörtur Pálsson, al-
bróðir Jónasar, andaðist á
Lundar í Manitoba 11. október
1946. Hann var fæddur á
Norður-Reykjum 11. júní 1873.
— Vestur um haf fluttist hann
1897, ásamt móður sinni og
Kristjáni, yngri hálfbróður sln-
um, og settust þau að í Winni-
peg. Árið 1900 kom hann til ís-
lands aftur, en fór ári síðar
vestur ásamt unnustu sinni,
Kristínu Þorsteinsdóttur frá
Húsafelli. Giftu þau sig, er vest-
ur kom, og bjuggu fyrst í Winni-
peg. En 2 árum síðar reistu þau
bú að Lundar í Manitoba og
stunduðu síðan sveitabúskap.
Hjörtur var góðum gáfum
gæddur, söngmaður ágætur og
skemmtilegur í vinahóp. Heimi’i
þeirra hjóna var annálað fyrir
gestrisni og góðvild.
Frú Kristín lifir mann sinn,
ásamt 10 uppkomnum börnum
af 11 er þau eignuðust.
Kristján (Skarphéðinsson)
Pálsson andaðist 11. febr. s.l. í
Selkirk í Manitoba. Haiin var
fæddur á Norður-Reykjum 5.
sept. 1886. Foreldrar hans voru
hjónin Sigurbjörg Helgadóttir
og seinni maður hennar, Skarp-
héðinn ísleifsson frá Signýjar-
stöðum í Hálsasveit. — Föður
sinn missti Kristján 7 ára gam-
all, en inóðir hans dó í Selkirk
1924. — Kristján fluttist með
móður sinni og Hirti hálfbróð-
ur sínum til Winnipeg árið
1897. — Eftir að vestur kom, tók
fjölskyldan upp ættarnafnið
Pálsson.
Frá 1908 átti Kristján alla tíð
heimili í Selkirk, þar sem hann
vann við smíðar. Hann hafði
aldrei misst dag frá vinnu og
aldrei kennt sjúkleika, svo
menn vissu, unz hann lézt snögg
lega við vinnu sina 11. febr. s.L
Kristján giftist árið 1908 eft-
irlifandi konu sinni, Ingibjörgu,
dóttur Klemensar Jónassonar
frá Bólstaðarhlíð í Húnavatns-
sýslu, og konu hans, Ingibjarg-
ar Jónsdóttir frá Litlu-Giljá, en
þau hjón fluttu vestur um haf
1886. Áttu hjón heima í Selkirk
yffr 50 ár. Klemens andaðist þar
6. okt. 1946, en Ingibjörg, kona
hans, 15. jan. 1944 eftir rúm-
lega 60 ára hjónaband.
Kristján og Ingibjörg eignuð-
ust 6 börn, og eru 5 þeirra á
lífi, 4 dætur og 1 sonur. Kristján
naut ekki annarrar skóla-
fræðslu en 2 vetrartíma í
barnaskóla. En þrátt fyrir það
mun hann hafa aflað sér stað-
góðrar fræðslu af lestri góðra
bóka, og það svo, að hann var
talinn einn af fróðustu Vestur-
íslendingum, hvað við kom
bæði íslenzkum og enskum bók-
menntum.
Kristján var gott ljóðskáld,
og mun hann hafa verið einn
af hlutgengari ljóðskáldum
Vestur-íslendinga. Kvæði hans
hafa ekki verið gefin út í heild,
en mörg birzt í blöðum Vestur-
íslendinga. Kristján var að
eðlisfari hlédrægur og lítt fyrir
að láta á sér bera, og hefi ég
heyrt, að sumt af ljóðum hans
muni hafa horfið með honum.
En vonandi safna vinir hans og
landar saman því, sem skrifað
og prentað er, og gefa út.
Mig setti hljóðan og hryggan,
er mér barst lát þessa góða
drengs, í bréfi að vestan, og er
mér síðar bárust vestur-íslenzk
blöð, sá ég, að svo hafði mörg-
um fleiri farið. Ef til vill hafa
þessar tilfinningar bezt verið
túlkaðar í 1. vísu í erfiljóði
Jónasar Pálssonar um Kristján,
en hún er svona:
„Skuggar hylja skjáinn minn,
skerðist góður fengur,
því að Selkirk-svanurinn
syngur ekki lengur.“
Nú hafa þessir gömlu Borg-
firðingar lokið göngu sinni. Þeir
munu allir hafa komið fram
þjóð sinni til sóma, og minn-
ingarnar um átthagana og ætt-
landið geymdu þeir til hinztu
stundar.
Ef'tir er á lífi 1 þeirra 4 Norð-
ur-Reykjabræðra, Páll (Skarp-
héðinsson) Pálsson, skáld og
blaðamaður við Heimskringlu.
Varð hann 65 ára í september
í haust. Hefir hann orðið fyrir
miklum harmi að sjá á bak öll-
um bræðrum sírium á tæpu ári,
en með þeim var ávallt mjög
góð vinátta. Ég veit, að margir
muni taka undir þá ósk mína
og bæn, að hinn mikli sláttu-
maður höggvi hér ei oftar um
sinn í hinn sama knérunn.
Reykjavík, 12./10. 1947.
Ól. G.
Prjónavél
nr. 5, 6 eða 7 í góðu standi ósk-
ast til kauþs. Upplýsingar í síma
4950 Reykjavík.
Gjalddagi TÍMANS
var 1. júU. Þeir, sem ekki
hafa greitt blaffið, eru
áminntir um að gera það
sem fyrst.
194 7
Tóiiistuiidum til lesturs fer nú óðum að
f jölga. Eius og fyrr býður \ÖRI)RI upp á
skemmtilegustu bækurnar, kjarnmestu
og þjóðlegustu. Eftir erfiði liðins dags
hafa TVorðra-bækurnar löngum verið
eftirsóttar til afþreyingar og hvíldar á
löngum vetrarkvöldum. Og’ svo mun enn
verða.—
Það, sem af er þessa árs, hafa eftir ,
taldar bœhur Izomið út:
Á Dælamýrum, eftir Helga Valtýsson. Bók þessi vekur
mikla athygli og óskipta ánægju allra, sem lesa, enda
er stíll höf. slunginn heillandi töfrum ... ib. kr.
35.00, ób. kr. 25.00.
Á Svörtuskerjum. Hrífandi ástarsaga, eftir sænsku skáld-
konuna Emilie Carlén. Saga þessi hlaut verðlaun
sænska akademísins. — Mikil saga og margbrotin
......... ib. kr. 48.00, ób. kr. 36.00.
Benni í frumskógum Ameríku ......... ib. kr. 20.00.
Benni á perluveiðum ........ ib. kr. 20.00.
(Benna-bækurnar njóta nú hylli lesenda á öllum
aldri þó upphaflega hafi þær verið ætlaðar ungum
drengjum).
Beverly Gray fréttaritari .... ib. kr. 20.00.
(Þetta er 5. bók hins vinsæla bókaflokks fyrir ungar
stúlkur.)
Feðgarnir á Breiffabóli III (Grænadalskóngurinn), eftir
Sven Moren. (Þetta er lokabindi hins merka og vin-
sæla sagnabálks, sem hófst með sögunum Stórviði og
Bærinn og byggðin ......... ib. kr. 20.00, ób. kr. 14.00.
Fegurð dagsins. Kvæði, eftir Kjartan Gíslason frá Mosfelli.
Það er bjart og hlýtt yfir þessari bók, sem veldur
því, að lesandinn leggur hana ánægður frá sér.....
ib. kr. 28.00, ób. kr. 18.00.
Fjöllin blá, eftir Ólaf Jónsson. Þessi ljóð eru óður fjall-
farans til hinna miklu víðátta, hressandi og fersk
eins og háfjallaloftið........ib. kr. 30.00, ób. kr. 20.00.
Dagshríðar spor. Smásögur, eftir vestur-íslenzku skáld-
konuna Guðrúnu Finnsdóttur. Sögur þessar eru
kanadískar að umhverfi en íslenzkar í anda, þar sem
minningin um ísland verður stundum ljúf draum-
sýn ..... ib. kr. 25.00, ób. kr. 17.00.
\
Gömul blöff. Smásögur, eftir Elínborgu Lárusdóttur.
Snjallar og hnitmiðaðar. Þeir, sem vilja skemmta sér
og auka skilning sinn á fortíð og samtið ættu að fá
sér þessa bók ..... ib. kr. 30.00, ób. kr. 20.00.
í andlegri nálægð við ísland, eftir Einar Pál Jónsson, rit-
stjóra Lögbergs. Skemmtilega skrifaður þáttur um
för höf. á fund forseta íslands er hann var staddur
í New York 1944 í boði Roosevelts forseta ..... ób.
kr. 5.00.
Mary Lou í langferð, eftir Astrid Lind. Afar spennandi og
• ævintýrarík saga fyrir ungar stúlkur .... ib. kr. 20.00.
Rússneska hljómkviðan, eftir Guy Adams. Saga þe$si er
óvenjulegt skáldverk um óvenjuleg örlög, og hlaut
glæsilegan sigur í bókmenntasamkeppni sameinuðu
þjóðanna, og hefir síðan farið sigurför um flest lönd
heims, sem hrífandi ástarsaga ....... ib. kr. 36.00,
ób. kr. 25.00.
Væringjar, eftir Helga Valtýsson. Þessar snjöllu smásög-
ur komu út 1935, og því verið ófáanleg bók um nokkra
ára skeið, en nú hafa komið í leitirnar örfá eintök,
sem seld verða með „gamla verðinu“.......... ib. kr.
10.00, ób. kr. 8.00.
Öræfaglettur, eftir Ólaf Jónsson. Saga þéssi gerist uppi á
öræfum. Aðalpersónur sögunnar eru ungur piltur, sem
flýr á fjöll undan rangsleitni byggðarmanna, og ung
daladóttir, sem forlögin leiða á fund útlagsans. — Ör-
æfaglettur hafa vakið mikla athygli, enda þjóðleg
og sérstæð skáldsaga, sem heillar og seyðir lesand-
ann inn í töfraheim öræfanna ........ ib. kr. 35.00,
ób. kr. 25.00.
A nasstunni og fyrir jol eru þessar htehur
vœntanlegar:
Ríki mannanna. Raunskyggn og magnþrungin ástarsaga,
i þýðingu Konráðs Vilhjálmssonar.
Kata bjarnarbani. Saga þessi hlaut I. verðlaun í Norður-
landasamkeppni um beztu barnabókina 1945. Verður
hún þriðja Óskabókin, en áður eru útkomnar í þeim
flokki: Hilda á Hóli og Börnin á Svörtutjörnum.
Konan í söðlinum. Þróttmikil sænsk skáldsaga í þýðingu
Konráðs Vilhjálmssonar.
Inga fer til íslands.. Fjörug og ævintýraleg telpusaga.
Norsk telpa dvelur um skeið á íslandi — og landið
birtir henni marga þá töfra sína, sem heimafólki
sést yfir.
Dagur er liðinn. Ævisaga Guðlaugs frá Rauðbarðaholti,
prýðilega skráð af Indriða Indriðasyni. Saga þessa
óbreytta íslendings kcmst nær því að vera saga lands-
ins undanfarin 70 ár eða svo, heldur en ævisögur
margra þeirra, er hátt hefir borið í mannfélaginu.
Bessastaðir. Þættir úr sögu höfuðbóls. Skráð hefir Vil-
hjálmur Þ. Gíslason. Bók þessi verður mikið og merki-
legt rit með fjölda glæsilegra mynda.
Faxi. Ein hugstæðasta og snjallasta bók, sem skráð hefir
verið á íslenzka tungu. Segir hún sögu hestsins um
aldaraðir. Hvað hann hefir verið þjóð sinni og fyrir
hana liðið. Bókin er rituð af dr. Brodda Jóhannessyni.
Myndskreytt af Halldóri Péturssyni.
i
Norðra-bækurnar fást hjá öllum bóksölum landsins.
Einnig má^anta þær gegn póstkröfu beint frá forlaginu.
BÓKAÚTGÁFAN NORÐRI
Reykjavík
Fósthólf 101
Akureyrl
Pósthólf 45
TÚMAR FLÖSKUR
% f
Gleymið ekki, að þangað til við fáum nýjar flöskur,
kaupum við allar algengar vínflöskur á 50 aura
stykkið.
Móttaka í Nýborg.
Ef þér kjósið heldur að selja flöskurnar heima á
40 aura, þá hringiff í síma 5395 effa 6118.
Áfengisverzlun ríkisins
i
wmwrrmai
1
LUMA
rafmag nsperur
ERU BEZTAR
Seldar í öllum haupfélögum landsins.
Samband ísl. samvinnuf élaga
BLABBURÐUR.
Unglinga vantar tii að bera út Tímann, bæði í Vestur-
og Austurbænum.
Talið við afgreiffsluna sem fyrst, sími 2323.
I ÍSSSSSíÍSSÍSSSSSSSSSSSSSSSSSSiWSSSSÍSSSSSSSSSSSSSSSSÍSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSK
F ramsóknar menn!
Munið Framsóknarvistlua kl. 8,30 í kvöld í samkomusal Mjólkurstöðvarinuar.
Steingrímur Steinþórsson flytur ræðu.